Heimskringla - 15.03.1933, Page 7

Heimskringla - 15.03.1933, Page 7
WINNIPECr, 15. MARZ 1933 HEIMSKRINCLA 7. StÐA Anna Laxdal Ström. Frh. frá 3. bls. svo mörg í hvort sinn — sög- uð sundur — og hún var ekki svæfð. Lífsábyrgðarmaður, er send- ur var til að fullvissa sig og lífsábyrgðarfél., sem hún hafði lífs- og heilsuábyrgð hjá, trúðil því ekki, að hún væri ekki vinnufær, er hann sá hana á fótum nokkrum imánuðum seinna, svo leit hún þá vel út. Hún sýndi honum bakið á sér, þar sem rifin voru burt. Mað- urinn fölnaði upp. Fél. sendi engan eftir það í sömu erinda- gjörðum og styrkurinn kom, eins og til stóð. Emma sál. var sérlega vel gefin kona til sálar og líkama. Gáfur hennar gagnlegar til, hvers sem þeim var beitt. Hún! annaðist heimili sitt til síðustuj stundar — útgjöld og innkaup.] Og félagsystur hennar leituðuj álits hennar og ráða um vanda-! mál sín löngu eftir að hún fór, í rúmið. Hún var skyldurækinj um alt, sem til hennar tók,| hvort sem það snerti heimilið^ eða félagsskapinn. Bar gott ( skyn á almenn mál og lét sig þau varða. Annars fáskiftin um annara hagi. Vönduð og góð^ kona. Foreldrum sínum ástrfk og umhyggjusöm dóttir. Sál hennar syrgja tveir synir henn-[ ar, tvö stjúpbörn, eiginmaður j og aldraðir foreldrar, auk fjölda nærskyldra ættingja, vina og starfsfélaga. Svo þó fráfall þessarar ungu konu bergmáli ekki um víðlendur heims, er núí skarð fyrir skildi í heimahög- um hennar. Ágætis kona — verða því eftirmæli hennar og vitnisburður, kona, sem með góðleik og glaðlyndi gladdi alla, sem til hennar náðu. Kona, sem engin atvik taldi eftir sér, andleg eða líkamleg, ef þau máttu mönnum og góð- um málefnum að liði verða. Hún lifði sjálfri sér og sínum nánustu til sóma, og mannfé- laginu til góðs. Guð blessi minningu hennar. M. J. B. lega tilfinnanlegur. Því get eg ekki horfið frá því, að brýna sífelt fyrir mönnum: Verið þið nú fyrir hvern mun samtaka. í>eir menn, sem á annað borð vilja gera gagn, komast lengst með því að leita samvinnu við aðra, í stað þess að steita sí- felt hnefana hvorir framan í aðra. Það er ekki gagn í því, að sýna föðurlandsást á hátíð- um og tyllidögum, en gleyma landi sínu og þjóð, alla aðra daga. Menn verða að gleyma sér og hagsmunum sínum fyr- ir velferð föðurlandsins.—Mbl. ENDURMINNINGAR Eftir Fr. Guðmundsson. “Endurminningar” Friðriks Guðmundssonar eru til sölu hjá höfundinum við Mo- zart, í bókaverzlun ó. S. Thor- geirssonar og á skrifstofu Hkr. Fróðleg og skemtileg bók og afar ódýr. ..Kostar aðeins $1.25. * * * Munið eftir að til sölu eru á skrifstofu Heimskringlu með af- falls verði, námsskeið við helztu verzlunarskóla bæjarins. Nem- endur utan af landi ættu að nota sér þetta tækifæri. Hafið tal af ráðsmanni blaðsins. HINDENBURG segir nokkur vel valin orð. Um síðastl. áramót hafði Hindenburg forseti tal af blaðamönnum, og birtist sam- tal þeirra í þýzkum blöðum. Hinn aldurhnigni ríkisforseti komst m. a. að orði á þessa leið: “Eg er orðinn maður gamall og einmana. En eg verð kyr í stöðu minni eins lengi og kraft- ar mínir frekast leyfa. Því þegar yngra fólkið sér að eins gamalla maður og eg er kyr við skylduströfin, þá er eg að vona að’ skyldurækni þeirra aukist. Mér fellur það ætíð þungt, að þurfa að láta þá menn frá mér fara, sem eg hefi unnið með, sem lagt hafa að sér, og gent skyldu sinni til hins ítr- asta. Þetta eru einhverjar þyngstu raunir þjóðhöfðingja. —En þingræðið krefst þess. Þingræðið sópar mönnum burt og setur aðra í þeirra stað. Meinið í þýzkum stjórnmál- um er, að svo til hver einasti Þjóðverji hefir sína ákveðnu sérskoðun í landsmáJum, og stendur í þeirri bjargföstu trú, að hann hafi hina einu réttu skoðun. En skortur á sam- heldni og samvinnu er sannar- Frh. % Þegar eg nú er að taka sam- an föggur mínar, ráðinn í að flytja alfarinn burt úr sveitinni minni, þar sem eg bjó í 22 ár og leið margt súrt og sætt, þar sem eg hafði staðið og stimp- ast mest á blómaskeiði aldurs míns, þar sem eg var nokkurn veginn kunnugur á öllum heim- ilum í sveitinni, þekti alla menn og hafði tekið meiri og minni þátt í öllum félagsmál- um og sveitamálum. Þegar eg nú hugleiði þetta alt, þá finn eg, að ýmislegt vantar í endur- hinningar mínar, sem þó les- endurnnr kynnu að una vel og hafa gaman af, og einmitt þess vegna fer eg að lokum eina boðleið um hreppinn, til að sjá hvað ber fyrir augu og eyru. Fyrst stanzar þá hugurinn við orðið boðleið, sem er eld- gömul, mjög nauðsynleg, fast- ákveðin regla fyrir því, hvern- ig halda skuli á opinberum aug- lýsingum og tilkynningum til almennings um sveitir landsins. Styzta og haganlegasta hring- leiðin í hreppnum hafði verið vandlega athuguð, syo ekkert heimili væri eftir skilið og eng- ir óþarfa krókar viðhafðir, sem tafið gátu opinbera erindið; og að því loknu var lögskipað, að viðlögðu þingvíti eða sekta- gjaldi, að hlýða reglunni. — Hins vegar er nú útlit fyrir, að bráðum heyrist ekki og þekkist ekki þetta þýðingarmikla orð, nema fyrir árekstur í orða- bókum. Símarnir liggja inn á hvert heimili og hanga í bað- stofunni, en þá kallar sýslu- maðurinn eða hreppstjórinn á símastjórann og biður um al- ment viðtal í tilteknum hreppi, og auglýsir þá öllum hrepps- búum á sama augnabliki, þingdag og stund og áminnir alla, er til tíundar hafa fram að telja og til saka að svara, að mæta á tilteknum stað fyrir réttinum. Þetta veldur þeim breytingum í sveitunum, að ekki þarf framar unglinga til þeirra hlaupanna, að senda með þingboð, og þó einkum hitt, að| hægra verður að rata milli bæj- anna, í blindhríðum á vetrar- dægrum, eftir símah'nunni, og lítur út fyrir, að það geti kom- ið í veg fyrir mörg slys, ásamtj með ótal öðrum kostum, sem það hefir í för með sér. Þegar nú hugur minn svifur á boðleið yfir bæjaröðinni, þá hindrar ekki frost né fjalla- bratti, ekki vindur né vegleysa, ekki ófærð né óveður, og ekki er hann bundinn við löng eða krókótt göng að baðstofum, eða takmarkaður af þykkum torfveggjum; þó kóf og kafald sé í lofti, þá situr hann í heið- ríkjunni og nýtur þeirra líf- geisla, sem gera hann færan um að sjá og skilja jafnt hið liðna og nærstæða, eftir því sem hann er þroskaður til. Fyrir 3.0 árum síðan, eða um seinustu aldamót, þektist það naumast, að matsuðustór væru hafðar í baðstofum á Langa- nesi eða í nærliggjandi sveit- um. Gestir sögðu frá því eins og stórtíðindum sætti, ef þeir höfðu komið einhvers staðar þar, sem búið var að setja eld- stæði niður í baðstofu. Féllu þá þegar margir og misjafnir dómar manna um þessa nýj- ung, og voru flestir á því, að það mundi valda óþægilegri lykt og lakara lofti í baðstof- unum, að sjóða matinn þar inni. Konurnar einar setti hljóðar; þeim var sárt og þær klæjaði; aðrir urðu svo spásagnaríkir og mælskir, að þær treystu sér ekki til þess að hrekja það alt með skýrum og ómótmælan- legum rökum: en samt voru þær sér þess tíieðvitandi, að einhverjar umbætur á þessu sviði voru nauðsynlegar og hlutu að vera framkvæman- legar. Skömmu fyrir 1890 var eg í vondri tíð, um hávetur, á ferð f kring á Melrakkasléttu; kom eg þá að Grjótnesi, til Guð- mundar bónda Jónssonar. Var hann vel efnaður maður, greindur og framgjarn, og hafði hann sett matsuðustó í bað- stofu sína og lét vel af. Þá kom eg og að Hóli á Sléttu til frænku minnar Friðnýjar, syst- ur Friðjóns Friðrikssonar og þeirra bræðra, sem allir Vest- ur-íslendingar kannast við. Hún hafði og stó í sinni bað- stofu, og þótti mikið til koma. Þarna hafði neyðin kent mönn- um, á kaldasta tanga landsins, er teygist norður í íshafsbaug- inn. — Eg, sem var sjónarvott- ur að þessu, hefði því átt að verða fyrsti maður í minni sveit til að setja stó í mína baðstofu. Fátæktin, og ótti við húsbruna, mun hafa dreg- ið mest afl úr framkvæmd minni. Því hefir löngum verið kent um, að ilt og ónóg fæði og vont loft í baðstofunum, á- samt ónógri birtu eða sólskini, hafi allra mest orsakað ung- barnadauðann ;en það held eg, að baðstofukuldinn hafi verið þar þyngstur á metunum. Nýlega meðtekið bréf að heiman segir mér, að nú séu eldstæði í hverri baðstofu, og alt af nægur hiti. Eg hefi oft orðið þess var, að það er eins og alment álit manna, að loftið í baðstofun- um hafi ekki verið gott, og verra mikið en nú gerist í hí- býlum manna. Það er aldrei hægt að fullyrða neitt um slíkt fyrir öll heimili, en í þeim sveitum, sem eg þekti bezt til, þá var loft í baðstofum, víðast hvar gott, að undanteknu því, að þær voru flesetar of kaldar fyrir börn og gamalmenni, og það fólk, sem sat og hafði ekki fyrir stafni annað en að lesa og skrifa. Allir þeir, sem verk höfðu með höndum, fundu síð- ur til þess, og kvörtuðu þó margir um fótakulda, og ein- mitt þess vegna höfðu margir þann sið, að ganga á tréskóm inni á heimilum sínum. Nú vil eg snöggvast endur- minnast þeirrar útsjónar, sem alment var tíðkuð og viðhöfð til loftræsingar í baðstofum. Á öllum baðstofum var að minsta kosti einn strompur á mæni þeirra, og væri býlið stórt og baðstofan löng, þá voru strompamir tveir. Það minnir mig, að þeir væru allir álíka víðir til að sjá. Málsborðin svo kölluðu, sem menn keyptu í verzlunum, voru alt af 8 þuml- unga breið, og munu flestir strompar upp til lands hafa verið smiðaðir úr flettingum af þeim borðum, og var breiddin á þeim látin ráða víddinni á strompinum í neðri endann, en svo voru þeir hafðir nokkru mjórri í efri endann. Innan- mál þeirra strompa, sem eg smíðaði, mun því hafa verið um 7 þuml. í víðari endann og 5 þuml. í mjórri endann. Þeir voru hafðir svo langir, að þeir stóðu tvö til þrjú fet upp úr þekjunni. — Nótt og dag drógu þessir strompar lakasta loftið úr baðstofunni, og hreint loft inn í hana um göt á glugga- póstum og alt í kring með fram gisnum gluggum, fyrir utan það loft, sem sogaðist inn í hurðin var opnuð. Hér fyrir utan var þó víðast hvar einn eða fleiri gluggar á hjörum, sem opna mátti ef þurfa þótti. Fæði alþýðufólks uppi í sveitum, er enn í dag nokkurn veginn það sama, nema hvað fæði brjóstmylkinganna er holl- ara, af þvl mæðurnar h'ða minni kulda og kveljast minna í reykjarsvælu, og hafa því ró- legri skapsmuni.— Loftið í bað- stofunum er álíka og áður, en ungbarnadauðinn mikið minni, beinkrömin og kyrtlaveikin, brjóstmæðin og frostsárin á höndum og fótum, alt bæri- legra og fátíðara, síðan mat- reiðslustórnar voru fluttar í baðstofurnar. Okkur er talin trú um, að hreinlæti á alþýðu- manna heimilum fari stöðugt batnandi. Svo er margt selt og keypt, að sitt hzt hverjum. Eg legg engan dóm á málið,, en vil leit- ast við að lýsa hreinlætinu, eins og það var algengast, þar sem eg þekti til, fyrir alt að 50 ár- tíma, þegar e g fullorðinn fór að taka eftir heimilissiðum hjá almenningi. Svo margir Langnesingar eru í Winnipeg, í Dakota, í Nýja íslandi og norður með Manito- bavatni, að þýðingarlaust væri fyrir mig að skrumskæla hrein- lætis útlistun mína af heimilun, nema til að gera sjálfan mig ómerkilegan. Það mundi verða langt og þreytandi mál, ef eg færi að lýsa hverju heimili fyr- ir sig, enda næði það síður til- ganginum. Frá því eg var bam að aldri og alt fram að aldamótum, mátti heyra húsfreyjurnar á heimilunum spyrja dætur sín- ar éða vinnukonur á morgnana: “Ertu nú búin að taka upp úr rúmunum?” Nú segja þær al- ment: “Ertu búin að breiða yf- ir rúmin?” Væri þetta ekkert annað en orðamunurinn, þá mundi eg ekki færa mér þetta til umtals; en bak við þetta liggur, að minni hyggju, stórt hreinlætis spursmál. Áður var það alment siður, að taka yfir- og undir rekkjuvoðimar upp úr rúminu, dusta af þeim alt laus- legt ryk, brjóta þær svo saman vandlega og láta þær undir koddann, og taka þaðan um leið samanbrotið brekanið, eins og það var kallað á Norður- landi, fletta því sundur og breiða það vandlega yfir rúmiQ; taka þá yfirsængina, brjóta hana saman og leggja hana efst í rumið við vegginn. í þurmrn og þægilegum veðrum, voru rekkjuvoðirnar bornar út og hengdar um stund á þvotta- ásinn. Ekki sá eg þær barðar utan með priki, en margoft sá eg konur eða þjónustustúlkur koma út með lítinn vönd, og strjúka nokkrum sinnum yfir rekkjuvoðirnar áður en þær voru bornar inn aftur. Rekkju- voðir allar voru af heimaunnu vaðmáli og entust í mörg ár. Væri heimilið í þjóðbraut, þar sem gera mátti ráð fyrir að fín- ir menn gistu annað slagið, þá voru þó hafðar hvítar lérefts- rekkjuvoðir í slík gestarúm Brekanið eða yfirvoðir rúm- anna voru öll heimaunnin, og I var í þau haft togið ofan af ullinni, sem var bæði sterkara efni, og hafði þann kost við sig, að það hratt frá sér ó- hreinku, þó lúnir menn hölluðu sér út af í vinnufötum eftir máltíðir. Þessar rúmvoðir voru einnig viðraðar og burstaðar úti af og til, í þurrum veðrum. Rúmvoðirnar voru ofnar með öllum litum, svartar, rauðar, bláar og grænar, í ótal útgáf- um, langröndóttar, í breiðum og mjóum bekkjum, tíglóttar og tannaðar.— Þá voru og kodda- verin og yfirsængurverin heima- unnið úr tvistdúk. Tvisturinn eða bómullargarnið, keypt í spunnum hespum, sem fluttist í verzlanir. — Að koma inn í . N afi ÍS pj iöl ld 7 i ** -- —i Dr. M. B. Halldorson 401 Bord Bld*. Skrifstofuslml: 23674 Stundar sérstaklera lungnasjúk dðma. Kr aú flnna & skrlfstofu kl 10—12 f. h. og 2—6 e. h. Helmlll: 46 AUoway Ave. Talstmli 331KS DR A. BLONDAL 602 Medlcal Arts Bldg Talsfml: 22 296 8tundar sérstaklega kvensjúkdðma o» harnasjúkdðma. — Atl hltta: kl. 10—12 « k. oc 8—6 e. h. Helmtll: 206 Vlctor St. Sfml 22 180 Dr. J. Stefansson 216 MEDICAL ARTS BLDG. Hornl Kennedy og Graham Stnndar eÍDKöngu buiCdb- eyrna- nef- ok kverka-ajflkdðma Er atJ hitta frá kl. 11—12 f. h. og kl. 3—6 e. h. Talafmt t 21N34 Helmili: 688 McMill&n Ave. 42691 DR. L. A. SIGURDSON 216-220 Medical Arts Bldg. Phone 21 834 Offlce tlmar 2-4 Heimili: 104 Home St. Phone J2 409 Dr. A. B. INGIMUNDSON Tannlæknir 602 MEDICAL ARTS BLDG. Simi: 22 296 Heimilis: 46 054 Simið pantanir ySar Roberts Drug Stores Limited Abyggilegir lyfsalar Fyrsta flokks afgreiðsla. Niu búðir — Sargent and Sherbrooke búð—Simi 27 057 baðstofurnar, þegar búið var að taka upp úr öllum rúmum og breiða yfir þau, minti ekki á neinn óþrifnað. Það eyddi þreytu og gladdi skapið.. Eg hefi áður getið um það í endurminningum mínum, að eg heyrði Guðmund kennara Hjaltason segja frá því í fyrir- lestri, að víða væru svarðargólf í baðstofum í Borgarfirði, og væru þau þakin með torfi og grasrótin látin snúa upp, og væri skift um torfið á jólun- um. Þetta þektist ekki í þeim sveitum, sem eg þekjti eða kynt- ist til muna. Þó var eitt kot á Langanesií þar sem var moldar- gólf í baðstofukytrunni, fyrstu árin sem eg var á Langanesi, en ekki var það þaklð með torfi, því árlega ætlaði bóndinn að koma fjalagólfi í hana, eins og líka hjmn gerði. — í þurri og góðri tíð voru baðstofu- gólf ekki þvegin, víðast hvar, nema á laugardögum, en einn- ig f miðri viku, el blautt var úti og óvanaleg óhreinka barst inn. Naumast þarf að taka það fram, að baðstofugólfin voru sópuð á hverjum degi, á þann hátt, að ýrt var fyrst úr svampi fínum vatnsdropum á gólfið, svo ekkert ryk skyldi þyrlast upp, heldur bindast í vatninu. Gólfsóparnir voru heimatilbún- ir, ýmist af taglhári eða af hvalskíðafaxi. Þessir sópar, með löngu skafti, sópuðu fljótt og vel. Göng til baðstofu, sem ekki voru borðlögð, og önnur framhýsi, voru daglega sópuð, þegar þur voru veður, en til þess voru hafðir vendir. — Á þeim dögum var haldið mikið upp á máltækið: “Nýir vendir- sópa bezt.” Eftir mikla storma, eða mikið hestspark á bæjar- tröðum úti, mátti löngum sjá konur, eða meyjar þeirra, með vöndinn við að sópa hlaðið og bera alla þurra höggspæni, hef- ilspæni og kvisti í svuntum sín- um inn að hlóðarsteininum. Frh. G. S. THORVALDSON B.A., L.L.B. Lögfræðtngur 702 Confederation Life Bld(. Talsími 97 024 W. J. LINDAL, K.C. BJÖRN STEFÁNSSON ISLENZKIR LÖGFRÆÐINGAB á Ó8ru gólfi 325 Main Street Talsími: 97 621 Hafa einnig skrifstofur aO Lundar og Gimli og eru þar að hitta, fyrsta miövikudag i hverjum mánuðl. Telephone: 21 613 J. Christopherson, Islemkur Lögfrœffingur 845 SOMERSET BLK. Winnipeg, :: Manitoka. A. S. BARDAL selur likklatur 02 ann&st um útfar- lr. Allur útbúnaVur s4 beatL Ennfremur selur bann allskonar minnlsvarba og legstetna. 843 SHERBROOKH ST. Phonei 86 607 WII2I21PM HEALTH RESTORED Lækningar án lyfja DR. 9. G. SIMPSON, N.D., D.O., D.O. Chronlc Diseases Phone: 87 208 Suite 642-44 Somerset Blk. WINNIPEG —MAlf. MARGARET DALMAN TBACHER OP PIANO 864 BANNING ST. PHONE: 26 420 Dr. A. V. Johnson íslenzkur Tannlæknlr. 212 Curry Bldg., Winnlpeg Gegnt pósthúsinu. Simi: 96 210. HeimUis: 33328 Jacob F. Bjarnason —TRANSFER— Hacgage «nd Faraitare Moi 762 VICTOR 8T. SIMI 24.500 Annast allskonar flutninga fram og aftur um bæinn. J. T. THORSON, K. C. lelenzkur lðafrseHlnanr Skrlfstofa: 801 GREAT WEST PERMANENT BUILDING Síml: 92 756 DR. K. J. AUSTMANN Wynyard —:— Sask. TaUfmll 38 889 DR. J. G. SNÍDAL TANNLÆKNIR 614 Sonaeraet Block PortaKe Avenue WINNIPM BRYNJ THORLAKSSON Stfngstjórl Stilllr Ptanos ng Orgel Sfmi 38 345. 594 Alveratone St.

x

Heimskringla

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimskringla
https://timarit.is/publication/129

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.