Heimskringla - 19.07.1933, Síða 8
8. SÍÐA.
HEIMSKRINGLA
WINNIPEÖ, 19. JÚL.1 1933
FJÆR OG NÆR.
Séra Ragnar E. Kvaran flytur
síðustu guðsþjónustur sínar í
Nýja íslandi á sunnudaginn
kemur, 23. júlí. í Árnesi fer
guðsþjónustan fram kl 2 e. h.
en á Gimli kl. 7 e. h.
* * *
Messa í Piney
Sunnudaginn 23. þ. m. flytur
séra Rögnv. Pétursson messu í
skólahúsi Pineybæjar kl. 2. e. h.
Allir boðnir og velkomnir.
* * *
Dr og Mrs. Sveinn E. Björns-
son komu snöggva ferð hingað
J. J. SWANSON & Co. Ltd.
REALTORS
Rí'ntaJ, Insurance and Flnanclal
Agents
Sími 94 221
600 PARIS BLDG. — Winnipeg
CARL THORLAKSON
úrsmiður
699 Sargent Ave., Winnipeg
Heimasími 24 141
til bæjarins á mánudaginn. Þau
héldu heimleiðis aftur á þriðju-
daginn.
* * *
H. J. Pétursson, verkrfæðing-
ur, frá Ignace, Ont., kom til
bæjarins á laugardaginn var.
Hann segir atvinnulítið þar
eystra og brautarvinnu stjórn-
arinnar miða seint áfram.
* * *
Það væri bærileg skemtun
fyrir Winnipeg-íslendinga, að
sækja íslendingadaginn að
Hnausum 2. ágúst. Hvergi er
betra tækifæri að endurnýja
gamlan kunningsskap en á slik-
um hátíðum. Allir vinir þínir
í bygðinni eru þar saman komn-
ir. En samfundir íslendinga í
dreifingunni hér vestra, er eitt
af því sem mest veltur á hér
um viðhald þjóðernisins.
* * *
Dr. O. Björnsson lagði af
stað s. 1. mánudag í ferð suður
til Hartford, Conn., og fleiri
staða í Bandaríkjunum. Hann
býst við að verða 5 til 6 vikur
syðra.
» C O N C E R T
SIGURD SKAGFIELD
PINEY
LAUGARDAGINN, 22. JÚLI
Accompanist: RAGNAR H. RAGNAR
Inngangur 50c—Börn 25c Hefst kl. 8.30 e. h.
fmmAmmmmmtAmmmmmymwAKVMAWimmmmmmm'}
Islendingadagur
í Seattle, Wash.
Haldinn að “Silver Lake”
Sunnudaginn, 6 Agúst, 1933
Iþróttir byrja kl. 11 f.h.
Hátíðin sett kl. 2 e.h.
Dans frá kl. 6.30 til kl. 10.30 'e.h.
Munum Island, Islendinga
og Islenzka túngu
“Ef
EAT0N
Segir það
—þá er það!
JJ
í meira en aldarfjórðung hefir EATON bætt
úr nuaðsynjum vestan manna og kvenna fyrir
þá sjálfa og heimilin. Jafn óskeikular eins
og árstíðirnar hafa vöruskrár EATON’S kom-
ið tii manna ár eftir ár.—
Hver hlutur í þessum stóru bókum hefir verið
svo nákvæmlega sýndur í myndum eða skýrð-
ur í lesmáli að vesturbúar hafa fundið að það
var jafn hættulaust að kaupa eftir þeim—og
örugt eins og þó þeir hefðu vöruna milli
handanna. Frá Stórvötnunum og til Kyrrahafs
strandar, er sú tiltrú óbifanleg að “Ef EATON
segir það, þá er það!”
EATON félagið er stolt af þessum orðstír.
Allrar varúðar er gætt að varðveita hann—og
gæta þess að engin missögn í stóru eða smáu
finnist í EATON vöruskránni. Verzlunarmats-
menn hafa gætur á því að hver hlutur sé það
sem sagt er að hann sé. Útsöludeildin og
auglýsinga deildin fylgiast með því sem sagt
er í hverri línu. Á þessum dögum eigi síður
en áður, megið þér trúa því að: “Ef EATON
segir það, þá er það!”
>T. EATON
E ATO N S
Síðast liðin fimtudag kom
Björgvin T. ísberg frá Baldur til
bæjarins. Hann kom úr ferða-
lagi vestan frá hafi. Hafði
brugðið sér þangað til að finna
systkini sín og kunningja á
ströndinni. Eru þau Mrs. V.
Fisher í Victoria, Mrs. S. Willie
í Vancouver, Antoníus ísberg,
New Westminister og Sigurður
fsberg verzlunarstjóri í South
Slocan, B.C. V®1 lét hann af
ferðinni að öðru leyti en því,
að honum þótti full-mikið um
rigningar og þokur vestra. Á
Victoría eyju þótti honum eink-
ar skemtilegt um að lítast.
* * *
W. Johnson frá Wynyard,
Sask., kom til bæjarins s. 1.
mánudag. Hann fer í kynnis-
för norður um Nýja-ísland þar
sem hann tók sér bólfestú fyrst
fyrir einum 30 árum, og á þar
því marga kunningja. Horfur
kvað hann betri í Saskatchewan
fylki en áður. Uppskera liti út
fyrir að verða mikil og ef verð-
hveitis héldist í því sem það nú
væri, bætti það nokkuð úr skák.
* * *
3 herbergja íbúð
til leigu að 624 Victor St., Win-
nipeg. Rafmagnsstó og tal-
sími í húsinu. — Sanngjörn
leiga. * * *
G. T. Spil og Dans.
á hverjum þriðjudegi í G. T.
húsinu, Sargent Ave. Byrjar
stundvíslega kl. 8.30 að kvöldi.
Jimmie Gowler’s Orchestra. —
Þrenn verðlaun fyrir konur og
Þrenn fyrir karla, að upphæð
$5, $2 $1.
* * *
Sveinn kaupmaður Thorvalds-
son frá Riverton, Man., var
staddur í bænum fyrir helgina
í viðskifta erindum.
* * *
Goodtemplara-skemtiferðin til
Gimli s. 1. sunnudag hepnaðist
ljómandi vel. Þegar á sam-
komustaðinn nyrðra kom, var
hópurinn orðinn um tvö hundr-
uð manns. Goodtemplarar frá
Selkirk tóku nokkrir þátt í
skemtuninni. Aðal ræðumað-
ir dagsins var Richard Beck
háskólakennari frá Grand Forks.
Talaði hann um bindindishorfur
lipurt og fróðlegt erindi. Birt-
ist það með góðu leyfi höfund-
arins í næsta blaði. Auk hans
töluðu stórtemplar A. S. Bardal,
Gunnlaugur Jóhannsson, forseti
samkomunnar og ef til vill fleiri
unnendur hins góða málefnis.
* * *
Síðast liðinn mánudag lagði
stórtemplar Arinbjöm S. Bardal
af stað til Hague á Hollandi.
Situr hann hástúkuþingið er þar
fer fram um næstu mánaðar-
mót. Rúman mánaðar tíma
bjóst Mr. Bardal að verða í
burtu . í baka leiðinni mun
hann hugsa sér að koma við á
sýningunni í Chicago.
* * *
Prófessor Richard Beck frá
Grand Forks, N. D., var ásamt
fjölskyldu sinni staddur í bæn-
um yfir helgina. Hann fór norð-
ur til Gimli á sunnudaginn og
hélt ræðu á skemtisamkomu
Goodtemplara. Heiipleiðis héldu
þau s. 1. mánudag. En Mr.
Becks er bráðlega von norður
aftur, því á íslendingadeginum
að Hnausum, 2. ágúst, flytur
hann ræðu.
* * *
íslendin^adagsnefnd Winni-
peg-manna óskar eftir að kom-
ast í samband við sem felsta
af þeim núlifandi íslendingum
sem fyrstir komu til þessa lands
eða með þeim fyrstu fram að
árinu 1885. Alt þetta fólk, karl-
ar og konur, er vinsamlega beð-
ið að tilkynna ritara nefndar-
innar sem allra fyrst: 1. Hvort
það hafi ákveðið að vera við-
statt á hátíðahaldinu í Gimli
Park þann 7. ágúst í sumar; 2.
nafn; 3. aldur; 4. hvaða ár það
kom til þessa lands. Öll skrif í
þessu sambandi sendist til:
G. P. Magnússonar,
ritara nefndarinnar að
596 Sargent Ave., Winnipeg
Eftirfylgjandi nemendur
Magneu Sigurðson í Árborg
stóðust próf við Toronto Con-
servatory of Music 1. júlí 1933:
Introductory Grade:
First Class Honors—Agnes
Oddleifson.
Elementary Grade:
Honors—Olive Oddleifson
Primary Grade:
First Class Honors—Halldóra
Sigurðsson
“Endurminningar”
FriSriks GuSmundssonar eru til
sölu hjá höfundimum viS Mo-
zart, í bókaverzlun Ó. S. Thor-
geirssonar og á skrifstofu Hkr.
FróSleg og skemtileg bók og
afar ódýr. ..Kostar aSeins $1.25.
Ort þegar spurSist lát
séra J. A. SigurSssonar
Altaf fellur einn og einn
Af íslands göfgu sonum.
Eg er á ferðum, ekki seinn,
Að yztu takmörkunum.
Sigurjón Þórðarson,
Geysir, Man,
MESSUR OG FUNDIR
i klrkju Samhandssafnaðar
Messur: — á hverjum sunnudegl
kl. 7. e. h.
Safnuðurnefndin: Fundir 2. og 4.
fimtudagskveld i hverjum
mánuði.
Hjáiparnefndln. Fimdir fyrsta
mánudagskveld í hverjum
mánuði.
| Kvenfélagið: Fundir annan þriðju-
dag hvers mánaðar, kl. 8 að
kveldinu.
Söngflokkurinn. Æfingar á hverju
fimtudagskveldi.
Sunnudagaskóiinn: — Á hverjutm
sunnudegi, kl. 11 f. h.
MuniS eftir aS til sölu eru á
skrifstofu Heimskringlu meS af-
falls verSi, námsskeiS viS helztu
verzlunarskóla bæjarins. Nem-
endur utan af landi ættu að
nota sér þetta tækifæri. Hafið
tal af ráðsmanni blaSsins.
KaupiS Heimskringlu
Lesið Heimskringlu
Borgið Heimskringlu
Islendingadagurinn
Hnausa, Man. 2. Ágúst 1933
Byrjar kl. 10 árdegis.
Aðgangur 25c fyrir fullorðna, 10c fyrir börn
RæSuhöld byrja kl. 2 e. h.
MINNI ISLANDS:
Ræða—Dr. Richard Beck
Kvæði—Þ. Þ. Þorsteinsson
MINNI CANADA
Ræða—G. S. Thorvaldson, lögm.
Kvæði—Watson Kirkconnell, próf.
MINNI VESTUR-ÍSLENDINGA:
Ræða—Ragnar E. Kvaran, prestur
Kvæði—G. O. Einarsson
Frú Sigríður Olson synj;u einsöngva.
“Boy Scouts” flokkur sýnir leikfimi.
íþróttir—Hlaup og stökk af ýmsu tæi—íslenzk
fegurðarglíma og kappsund. Dans í Hnausa Community
Hall.
Verðlaunavalz kl. 9 e. h.
Söngflokkur bygðanna undir stjórn hr. Sigurbjörns
Sigurðssonar.
Skemtiferðarlest til Hnausa fer að morgninum kl. 9 frá
C.P.R. járnbrautarstöðvunum í VÍ’innipeg og kemur að
kvöldinu kl. 11.50. Niðursett far. Lestin leggur af
stað til Winnipeg frá Hnausa kl. 7.05.
Dr. Sveinn E. Björnsson, forseti
G. O. Einarsson, ritari.
MINNISVARÐAR
Setjið stein á leiði ástvinanna.
Áður en þér kaupið spyrjist
Eyrir um verð hjá oss. Vér
höfum unnið við steinhög-g- í
28 ár. Höggvum steina eftir
hverskonar uppdrætti sem ósk-
að er. Skrifið oss, verðáætlanir
kosta yður ekkert.
D. LARSEN
Ste. 4 Lock Apts.
1603 Logan Ave., Winnipeg
ISLENDINGADAGUR
WINNIPEG-MANNA
i Gitnli Fark, Gimli, Man.
MÁNUDAGINN, 7« ÁGÚST 1933
Forseti dagsins: Dr. Ágúst Blöndal
Fjallkonan: Mrs. W. J. Líndal
Ræðurnar byrja kl. 2. e. m.
íþróttir byrja kl. 10. f. h.
J. A.
JOHANNSON
Garage and Reparr Servioe
Banning and Sargent
Sími 33573
Heima sími 87136
Expert Repáir and Complete
Garage Service
Gas, Oils, Extras, Tires,
Batteries, Etc.
“O, CANADA”
"Ó, GUÐ VORS LANDS”
Avarp forseta—Dr. A. Blöndal
Karlakór
Fjallkonunni fagnað
Nokkrar velþektar söngkonur
í íslenzkum búninum.
Avarp Fjallkonunnar
Karlakór
Avarp frá tignum gestxun
Blandaður kór
MINNI ISLANDS;
Kvæði—Þ. Þ. Þorsteinsson
Ræða—Séra Ragnar E. Kvaran
Blandaður kór
MINNI CANADA:
Kvæði—Dr. Sig. Júl. Jóhannesson
Ræða—Dr. B. J. Brandson
Kvennakór
Nokkrar stúlkur frá Selklrk sýna lslenzkan
þjóðdanz, kallaður “Vefaradanzinn”. Koma
þær fram í Islenzknm búnlng.
Karlakór
ELDGAMLA ISAFOLD
GOD SAVE THE KING
ÍÞRÓTTIR:
Fyrsti og annar þáttur íþróttanna byrja kl.
10. f. m. og fara fram samtímis. Verðlaun gefin.
Að afstöðnum ræðuhöldum fer frara Is-
lenzk glíma.
Kappsund verður þreytt að daginum.
Iþróttir allar fara fram undir stjóm þeirra
Mr. G. S. Thorvaldsonar og Mr. Bjöms Péturs-
sonar.
Að kvöldinu kl. 8 byrjar söngur undir
stjórn Mr. Paul Bardals. Gamlir Islenzkir al-
þýðusöngvar verða sungnir og ætlast til að allir
taki undir. ..Þá sýngur einnig hinn velþekti
karlakór Winnipeg-manna.
Danzinn byrjar ki. 9 að kvöldinu og verða
þar danzaðir bæði nýju og gömiu danzamir.
Gnægð af heitu vatni til kaffigerðár verður
tii á staðnum.
Hljómaukar verða settir upp i garðinum svo
ræður og söngur heyrist um allan garðinn.
Ný málverk og ný skreyting verður á söng-
og ræðupöllum.
Inngangur í garSinn fyrir fullorðna 25c en börn innan 12 ára 10c.
Inngangur að danzinum: Inn á áhorfendasviðið 10c en að danzinum 25c.
Fargjald til Gimli, fram og til baka, og inngangur í garðin $1.25 fyrir fullorðna en
45c fyrir börn innan 12 ára.
Takið eftir ferða áætlun í fslenzku blöðunum í næstu viku.