Heimskringla - 27.09.1933, Síða 8

Heimskringla - 27.09.1933, Síða 8
8. SlÐA. HEIMSKRINGLA WINNIPEG, 27. SEPT. 1933 FJÆR OG NÆR. Andrés Skagfeld frá Oak Point ,Man., var staddur í bæn- um í gær. * * ¥ Séra Guðmundur Árnason messar í kirkju Sambandssafn- aðar í Winnipeg næstkomandi sunnudag. * * * Gull- og silfur-verkstæði Karls Þorlákssonar, 699 Sargent Ave., Winnipeg .kaupir gamla gulimuni hæzta verði gegn pen- ingum út í hönd. ¥ ¥ ¥ Mrs. G. Paul frá Chicago, sem fyrir nokkrum dögum kom til Winnipeg, hélt heimleiðis s. 1. föstudag. Með henni fór Mrs. D. Pétursson, móðir hennar. ¥ ¥ * Messugerð flytur Mr. G. P. Johnson, sunnudaginn 1. okt. í Kandahar kl. 11; f. h. og í Wyn- yard kl. 2 e. h. Allir hjartan- lega velkomnir * * ¥ Ingibergur H. Borgfjörð lagði af stað s .1. sunnudag til Chi- eago. Stundar hann þar nám í vetur við guðfræðideild háskól- ans. Kona hans fór með hon- um. Mr. Borgfjörð útskrifaö- ist í verkfræði frá Manitoba- háskóla fyrir nokkrum árum. Áður enn hjónin lögðu af stað, var þeim haldið kveðju-samsæti á heimili Mr. og Mrs. Th. Borg- fjörð, foreldrum Mr. I. H. Borg- fjörð, af kunningjum þeirra og þeim ámað heilla. ¥ ¥ ¥ Meðlimir í Jóns Sigurðssonar félaginu eru beðnir að mæta að heimili Mrs. J. B. Skaptason, 378 Maryland St., 3. okt. kl. 8 e. h. ¥ ¥ ¥ Spurt frétta: Svar. Það er helzt hjá þjóðum títt, Þessu verður ekki breytt: Allir læra eitthvað nýtt, Enginn maður veit þó neitt. Kl. J. M ¥ ¥ ¥ Snjólfur J. Austmann lagði af stað s. 1. föstudag til Kenaston, Sask. Bjóst hann við að dvelja þar um hríð hjá syni sínum Joe Austmann. * * * Böðvar Jónsson og Kristján Eyvindsson, báðir frá Langruth, Man., voru í bænum fyrir helg- ina. Þeir komu með gripi til markaðarins. Stjórn karlakórs lslendinga biður alla meðlimi kvenna- og | karla-kórsins að mæta á fundi ' jí Sambandskirkjunni á Banning St., sunnudaginn 1. ok. kl. 3. 'e. h. Mjög mikilsvert málefni j liggur fyrir fundinum. Allir meðlimir beðnir að mæta. ¥ ¥ ¥ Til Leigu húsið 724 Beverley St., 10 her-1 bergi, rúmgóð, bakstígi úr eld- húsi, vírað fyrir eldhús á mið- gólfi; ágætt fyrir 2 fjölskyldur eða 3 — $30. um mánuðinn. — S. Sigurjónsson, 738 Banning St. ¥ ¥ ¥ \ Munið eftir að til sölu eru á skrifstofu Heimskringlu með af- falls verði, námsskeið við helztu verzlunarskóla bæjarins. Nem- endur utan af landi ættu að nota sér þetta tækifæri. Hafið tal af ráðsmanni blaðsins. ¥ ¥ ¥ “Endurminningar” Friðriks Guðmundssonar eru til sölu hjá höfundimum við Mo- zart, í bókaverzlun Ó. S. Thor- geirssonar og á skrifstofu Hkr. Fróðleg og skemtileg bók og afar ódýr. ..Kostar aðeins $1.25. ¥ ¥ ¥ Samkvæmt atkvæöa-nafna- skrá Winnipeg-borgar sem nú er í prentun, hafa 101,861 manns atkvæði við næstu bæj- ar-kosningar. í síðustu kosn- ingum var tala atkvæðisbærra 101,489, eða 372 færri. Eru leigjendur af þeim alls 68,289, en húseigendur 33,572. Húsa- eigendur eru 531 færri enn síð- ast liðið ár, en leigjendur 903 fleiri. ¥ ¥ ¥ G. T. Spil og Dans á hverjum þriðjudegi og laugar- degi í I. O. G. T. húsinu, Sar- gent Ave. Byrjar stundvíslega kl. 8.30 að kvöldinu. $16.00 og $20.00 í verðlaunum.—Gowlers Orchestra. ÆFIMINNING. BÍL- og ÚTSÖLUSTÖÐVAR . Tækifæri fyrir þann sem hefir $500.00 höfuðstól að leggja í fyrirtækið, að taka við góðri og vellaunaðri verzlun. ..Spyrjist fyrir, eftir skilmálum á 840 Sargent Ave. Hinn 3. sept. s. 1. andaðist að heimil sínu, skamt austur frá i Riverton í Nýja íslandi, húsfrú ! Margrét Sigurðsson, tæplega 69 ára gömul. Banamein hennar jvar hjartabilun, sem að henni jhafði gengið um allmörg und- anfarandi ár. Hún hét fullu nafni Þórunn Margrét Árnadóttir, og var fædd 7. okt. 1864 að Setbergi í Borg- arfirði í Norður-Múlasýslu. For- eldrar hennar voru þau hjónin Árni Jónsson, Bjarnasonar í Breiðuvík og Kristjana Jóns- dóttir, ættuð af Útmannasveit í sömu sýslu. Föður siTin misti hún á unga aldri, en móðir hennar var með henni alla jafna og dó á heimili hennar fyrir fáum árum í hárri elli. Kornung giftist Margrét fyrra manni sínum, Valdemar Davíðs- syni, og munu þau hafa flutst hingað vestur 'skömmu eftir 1880—82. Með honum áxti hún fjögur börn, sem öll vorn dáin á undan móður sinni. Elst var Kristjana, efnisstúlka, er dó uppkomin í Winnipeg fyrir ali- mörgum árum — þá Davíðar tveir, dó annar ungbarn en hinn í uppvexti, og Árni féll í stríðinu mikla. Með síðara manni sínum, Sigvalda Sigurðssyni frá Harð- bak á Melrakkasléttu, eignaðist hún sex börn. Dóu tvö ung, en þau, er náðu þroska aldri, voru: Anna, gift Pe-rcy Leam, hér- lendum manni; hafa þau gisti- hús í Minneota, Man. Næst- ir voru Sigursteinn Hólm, og Hjálmar Stefaníus, er báðir fór- ust í veraldar ófriðnum mikla ásamt Árna hálfbróðir þeirra, sem áður er getið. Yngstur er Gunnar, hinn eini bræðranna, er komst lífs af úr stríðinu. Hann er kvæntur hérlendri konu, og býr með hinum aldur- hnigna föður sínum á eignar- jörð þeirra. Þau Sigvaldi og Margrét bjuggu um eittskeið á Gimli og síðar í Selkirk. Nokkru eftir aldamótin fluttu þau til Win- nipeg, og áttu þau þar heima og í St. James um allmörg ár. Stundaði hann þar trésmíðar og húsabyggingar þangað til skömmu eftir stríðið, að þau bygðu sér heimili það, er þau hafa búið á síðan. Margrét sál. var fróðleiks- kona, góðum gáfum gædd, sönggefin og hneigð til skáld- skapar, og að eðlisfari mjög glaðlynd. Hélst glaðsinnið til dauðadags þrátt fyrir ýmiskon- ar andstreymi og óvenju marg- ar æfisorgir. Hún var hjarta- góð, frændrækin og örlynd, enda var heimili þeirra hið mesta gestrisnis heimili. Var sambúð þeirra Sigvalda og hennar hin ástúðlegasta, jafnt á gleði og sorgatímum þeirra, enda er hann valmenni hið mesta. G. Gunnar Erl endsson Teacher of Piano 1 594 Aiverstone St., Phone 88 345 UNCLAIMED CLOTHES AU New—Not Wom Men’s Suits & Overcoats 479 PORTAGE AVE. I. H. TUHNER, Prop. Telephone 34 585 “WEST OF THE MALL—BEST OF THEM AI.L” J. J. SWANSON & Co. Ltd. REALTORS Rental, Insuranee and Financlal Agents Sími 94 221 800 PARIS BLDG. — Winnipeg KAUPIR GAMLA GULL- MUNI FYRIR PENINGA ÚT f HÖND CARL THORLAKSON Úrsmiður 699 Sargent Ave., Winnipeg íslenzka gull- og silfur- smiða stofan BifreiðarFerðir Afsláttar fargjöld til allra staða. Ferðist með hinum nýju hituðu ‘Sedan’ bílum. Farþegjar allir vátrygðir. Æfðir bílstjórar. Sýnishorn fargjalda: Wpg til Regina... $ 7.00 Wpg til Calgary .... 14.00 Wpg til Saskatoon .. 9.50 Wpg til Toronto.. 18.75 Wpk til New York .. 23.50 Spyrjið eftir fargjöldum til allra staða THE Drivers’ Syndicate 439 MAIN St. Sími 93 255 Winnipeg FRÁ ÍSLANDI JOCC09500050000000M06560 Special Fall OSfer Yz Ton MONOGRAM Coal y2 Cord Cut Pine $5.50 DON’T DELAY ORDER NOW WOOD’S C0AL CO., LTD* Phone—45 262 or 49 192 lccecccccccccooo! Halldór Pálsson stúdent frá Guðlaugsstöðum fer innan skamms til Skotlands og ætlar að stunda þar sauð- fjárræktarnám um þriggja mán- aða skeið. Hefir Búnaðarfélag íslands veitt honum 900 kr. styrk til þessa, og síðan á hann að starfa sem sauðfjár- ræktarráðunautur hjá Búnað- arfélaginu. ¥ ¥ ¥ Steúdentagarðurinn. Byrjað var á steypuvinnu í Stúdentagarðinum í síð. viku 24. ág. Er búist við að verkið haldi áfram slitalaust unz bygg- ingunni verður lokið. Húsið sjálft án húsgagna, kostar sennilega 230—240 þsúund krónur. — Stúdentagarðurinn er bygður sunnan við Hring- braut, suður af Bjarkargötu. ¥ ¥ ¥ Fornleifafundur Nýlega var forn haugur hjá Uppsala í Svíþjóð rofinn. Fanst þar beinagrind og hjá henni lá 1 meters langt knatttre, silfur- rent og mjög skrautlegt, ásamt öðrum skrautgripum, vopnum og verjum. Einnig fanst þar kúluspil, er samanstóð af 23 kúlum, og voru sumar úr beini og aðrar úr grænu gleri, og voru þær mjög haganlega gerð- ar. Fornfræðingar álíta hluti þessa vera frá árinu 900. ¥ ¥ ¥ Poul Reumert og frú hafa um tíma í sumar verjð suður í Frakklandi. Er þau voru á heimleið til Danmerkur, komu þau við í aPrís. Þar fékk Poul Reumert tilboð frá leik- húsum um að leika þar á vetri komanda. Er hann kom heiúi, bjóst hann við því ,að hann myndi flytja af landi burt, og þá helst til Parísar, því samningur hans við Dagmarleikhúsið var útrunninn, og stjórn Kgl. leik- hússins hefir amast við Reu- mert upp á síðkastið, en kona hans, Anna Borg, fór frá því elikhúsi í vor, meðal annars vegna þess, að hún taldi að leikhússtjórnin kæmi ekki vel fram gagnvart manni hennar. Er það vitnaðist, að við borð lægi að Reumert flytti úr landi, þótti mörgum Dönum það illa farið, er Þjóðleikhúsið neitaði sér um að verða aðnjótandi að leikstarfsemi hans, og væri leik- húsið svo illa statt, að það mætti ekki við því, að missa af besta leikara þjóðarinnar. Nú flytja nýjustu blöð þær fregnir, að komið hafi til mála, að Reu- mert yrði ráðinn til að leika í nokkrum leikritum við Konung- lega leikhúsið í vetur. ¥ ¥ ¥ Ný iðngrein 1 fyrri viku byrjaði nýtt fyrir- tæki starfsemi í Reykjavík og heitir það Veiðarfæragerð ís- lands. Eins og nafnið ber með sér, er þar unnið að veiðarfæra- gerð. Er þegar byjrað að gera allskonar línur. Vélar þær, sem notaðar eru, geta snúið línur með alt að 36 þráðum. Línum- ar eru síðan hertar (léttbikað- ar) og gerir það þær miklu endingarbetri og ver þær fúa. Maöur sá, sem stofnað hefir fyr- irtækið er frá Kirkjubóli í Ön- undarfirði og heitir Skúli Páls- son. Hefir hann unnið að und- irbúningi þessa fyrirtækis um tveggja ára skeið, því miklir erfiðleikar hafa orðið á því fyrir hann að afla fjár til þess að byrja. En fyrir sérstaka þrautseigju og dugnað hefir Skúla nú tekist að koma þessu fyrirtæki á laggirnar. Hefir hann fengið sérfræðing frá Nor- egi, Fr. Petersen, til þess að stjórna verkinu. Línur þær sem þegar eru tilbúnar, líta mjög vel út, og má óhætt gera ráð fyrir, að fyrirtæki þetta eigi góða framtíð, því að gera má ráð fyrir að ísl. útgerðarmenn noti frekar íslenzkar línur en útlendar, þegar gæðin eru þau sömu. ¥ ¥ ¥ Afkoma manna er víða erfið á þessu landi. Sumt af því eru sjálf- skaparvíti. Mestu veldur hið geysilega verðfall afurðanna, en þar næst er hið mikla erlenda skran, sem dyngt hefir verið inn í landið, jnargt óþarft og margt sem landsmenn sjálfir gætu unnið. Út yfir tók þó árið 1930. Því var oft spáð, að það yrði erfitt ár fyrir fjárhag landsmanna og sú stjórn yrði ekki öfundsverð eftir á, sem þá færi með völd. Ugglaust hafa líka orðið ýms mistök hjá þá- verandi stjórn, sem sjá má á eftir, þó að alt slíkt sé úr lagi fært hjá andstæðingunum í ræðum og ritum. Og flestir eru sammála um, að tildrið hefði þó orðið margfalt meira hefði íhaldsstjóm setið að völd- um. En þó eyðslan yrði þá tals- verð af opinberu fé, sem altaf varð að verða nokkur, þá liggur aðaleyðslan hjá almenningi. Samkvæmt nýprentuðum verzl- unarskýrslum hefir innflutning- ur það ár verið meiri en nokk- uru sinni fyr eða síðar, eða um 72 miljónir króna. En þó sérstakt góðæri væri þá hér á landi, varð útflutningurinn að- eins 60 miljónir. Slíkur halli (12 miljónir) á verzlunarjöfnuð- inum ,er hverri þjóð hættuleg- astur ,miklu hættulegri en þó að ríkissjóður tæmist vegna fram- kvæmda innan lands. Mest af þeim peningum, sem greiddir eru fyrir vinnu í landinu, eru aðeins tilfærsla á milli lands- manna, en alls ekki tap fyrir þjóðarheildina. En þær miljón- ir, sem fara fyrir misjafnlega þarfar útlendar vörur, eru að kalla eytt og tapað fé. — Marg- ir af andstæðingum Framsókn- arflokksins heimta nú innflutn- ingshöftin afnumin, þ. e. frjáls- ar hendur fyrir verzlunarstétt- ina að moka inn erlendum vör- t *.m til að græða á úthlutun jþeirra til almennings. Ef þeim tekst að fá óhindraðan inn- flutning á allskonar óþarfa skrani, eða vörum, sem íslend- ingar geta vel framleitt sjálfir, þá er voði vís. aLndsmen eiga þá með lamaða atvinnuvegi og kolfallnar afurðir, að mæta stórvaxandi flóði af erlendum vörum yfir landið og má búast við, að það leiði til mikillar ó- gæfu, sennilega til algerðs hruns þjóðarbúskaparins. — —Tíminn. MESSUR CKj FUNDIR i Lirkju Sarabandssafnaðar Messur; — á hverjum sunnudegJ ki. 7. e. h. Safnaðarnefndin: Fundir 2. og 4. fimtudagskveld i hverjum mánuðl. Hjálparnefndin. Fundir fyrsta mánudagskveld I hverjum mánuði. Kvenfélagið: Fundir annan þriðju- dag hvers mánaðar, kl. 8 að kveldinu. Söngflokkurinn. Æfingar á hverju fimtudagskveldi. Sunnudagaskólinn: — A hverjurn sunnudegi, *1. 11 f. h. tign við Columbia háskólann í New York. Síðan hefir hún verið í þjónustu Washington ríkisins og hefir starf hennar verið umsjón með skólum og foreldrafræðsla meðal almenn- irígs. Sökum dugnaðar í hví- vetna hefir frú Lewis verið veittur eins árs styrkur úr sjóði Rorkefellers til framhaldsnáms í sálarfræði og öðrum uppeldis- fræðum. Hún er hér aðallega í þeim erindum að sjá skyldmenni sín og feðrafold. Þó hún sé fædd of uppalin vestra, talax hún og skilur móðurmál sitt mjög vel. —Vísir, 4. sept. H. Á. Góður gestur Hér er nú á ferð Mrs. Dora Lewis frá Seattle. Hennar fulla nefna er Halldóra Sumarliða- dóttir, Sumarliðasonar frá Æð- ey. Það kannast margir við Sumarliða gullsmið, sem var á sínum tíma nafnkunnur maður um land alt. Hann fluttist til Norður-Dakota með fjölskyldu sinni og seinna þaðan til Seattle þa rsem ekkja hans, Helga Kristjánsdóttir, er enn á lífi. Frú Lewis misti mann sinn í stríð- inu. Hún hélt þó áfram námi, því eins og svo margir afkom- endur íslendinga vestra, er hún framúrskarandi námskona. Árið 1926 var henni veitt meistara- ENDURMINNINGAR Eftir F. GuSmundMon. Frh. frá 7 bls. því. Aldrei framar sá eg séra Stefán, en eg má bæta því við að hann var blómlegur fífill á skólaárum sínum, gróinn upp í varpanum á Skriðuklaustri í Fljótsdal, í ást og umsjón einna hinna markverðustu og virð- ingarverðustu foreldra á því mikla héraði. í þann tíð drukku fjölda margir bændur á Héraði, Jökuldal og Fjöllum, einn pela af brennivíni á langri kaupstað- arferð, til að finna og tegla bet- ur stuðlana í ferskeyttar bög- ur, á fjallvegum, til þess líka að vera útsjónaríkari og hrein- málli í kaupum og sölum á möl- inni, og til að vaka betur yfir burðarklárunum að hvergi færi um hrygg og alt kæmi óskemt heim. —< Ekki man eg hvert eg hafði nokkur viðskifti við Mrs. Shaw í þessari ferð, en svo heiðarlega leist mér á hana, að eg kom þar oftar og fékk þar góð kaup stundum. Það var auðséð á varningi hennar að hún skifti við ríkisfólk, sem keypti fatnað af dýrasta efni, og kastaði því lítið brúkuðu út í horn sökum tízku kredd- unnar, og þar fékk hún það fyr- ir lítið eða ekkert verð, og seldi það þá stundum fyrir lítið verð. Framh. i Prentun The Viking Press, Limited, gerir prentun smáa og stóra, fyr* ir mjög sanngjamt verð. Ábyrgjumst að verkið sé smekklega og fljótt og vel af hendi leysL Látið oss prenta bréfhausa yðar og umslög, og hvað annað sem þér þurfið að láta prenta. Bækur og stærri verk gerð eftir sérstökum samingi. THE VIKING PRESS LTD. 853 SARGENT Ave., WINNIPEG 5ími 86-537

x

Heimskringla

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimskringla
https://timarit.is/publication/129

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.