Heimskringla - 25.10.1933, Síða 2

Heimskringla - 25.10.1933, Síða 2
X. SÍÐA. HEIMSKRINCLA WINNIPEG, 25. uKTÓBER 193S FRÁ ISLANDI Bílvegurinn til Norðurlands og Austurlands Geir G. Zoega vegamálastjóri er nýkominn úr eftirlitsferð um Norðurland. Segist honum svo frá um veginn til Norður- og Austurlands. Tveir eru kaflar vondir á Norðurlandsvegi er lagfæra þarf hið fyrsta: Holtavörðuheiði og Hvalfjarðarvegur. Á Holtavörðuheiði hefir verið unnið í sumar. Þar hafa um 35 menn verið við vinnu. Vegur- inn er nú fullgerður upp undir Hæðarstein, rúmlega 4 km. frá Norðurárbrúnni í heiðarsporð- inum. En eftir eru um 15 km. frá brautarenda, norður í Hrúta fjörð, niður á láglendi, norðan við Grænumýrartungu. Sá vegarkafli kostar um 200 þús. kr. 40 þús. kr. eru veittar til þessarar vegagerðar næsta ár. Ef 50 þús. kr. fengist árið 1935, er kominn tæpl. helming- ur. En með þessu móti miðar vegagerð þessari alt of seint. Holtavörðuheiðin er nú orðin svo fjölfarin og gamli vegurinn svo illfær bílum, að til vand- ræða horfir. Á hinn bóginn ekki skemtilegt að leggja mikið fé í viðgerðir á þeim vegi, sem aðeins á að nota 1—2 ár, eða svo. Sem minstu hefir veriö kostað til hans í sumar. Því hefir farið svo, að vegurinn yfir heiðina hefir versnað. Væri hin mesta þörf að hafa einhver ráð til þess að full- gera Holtavörðuheiðarveginn á næstu tveim árum. Við erum horfnir frá því, seg- ir vegamálastjóri, að hugsa um ferju á Hvalfjörð. Einlægara er að gera veginn alla leið. Vega- lengdin frá brautarendaríum hjá Eyri ,og alt að Þyrli, eru 29 km. Nú er þetta tveggja tíma ferð í bíl. Á góðum vegi yrði þetta aðeins þriggja stundarfjórðunga akstur. Versti kaflinn er brekkan hjá Hálsi. Talið er, að vegagerðin frá Eyri og inn að Hvammsvík kosti um 90 þús. kr. og er þá komið yfir versta kaflann. Á- ætlun um vegagerðina inn fyrir fjörðinn er ekki gerð enn. Að þessum tveim vegarköfl- um frátöldum, er lakastur vegur á vestanverðu Vatnsskarði, frá Bólstaðarhlíð, og austur í mitt skarðið. Öxnadalsheiðin verður frekar látin bíða. Vegurinn á henni er sæmilegur, enda ekki eins mikil umferð um Norður- landsveginn þegar svo langt er komið. Um bílvegasambandið til Austurlands, sagði vegamála- stjóri m. a.: Vegurinn upp Jökuldalinn, er nú fullgerður að mestu upp að Gilsá. Þar þarf nýja brú. Þar liggur vegurinn upp á fjallgarð- inn. Þaðan eru tæpl. 40 km. að Möðrudal. Bílfært er nú að Möðrudal vestanfrá. Kaflinn milli Gilsár og Möðrudals er greiðfær til vegagerðar, víða sléttir melar, sem þurfa h'tillar aðgerðar við. Ætti að vera hægt að gera þenna kafla bíl- færan fyrrihluta næsta sumars, ef fé verður fyrir hendi, sem vænta má.—Mbl. Mat á l^ndi við Skerjafjörð Með úrskurði lögmanns í Reykjavík voru þeir Grímúlfur H. Ólafsson yfirtollvörður og Páll Zophoniasson ráðunautur dómkvaddir til þess að meta lai^dispildu-við Skerjaf jörð, þing- lesna eign “The Harbour and Piers Association Ltd.” Land þetta er talið 79.27 ha. Eigend- ur Skildinganess seldu það h. f. Höfn árið 1907. Höfn seldi það aftur 1913 “The British North Western Syndicate Ltd.”, en það seldi • það núverandi eig- anda fyrir £6.050 eða 133,100 kr. miðað við 22 kr. gengi. — Mats- mennirnir hafa metið landið : 145,952.50 kr.. * * * Atvinnubætur 1932 , Borgarstjóri hefir samið skýruls um fjárframlög til at- vinnubóta árið sem leið. Sést á henni, að úr bæjarsjóði hafa verið greiddar 542,645.68 kr. fyrir atvinnubótavinnu og 12,- 089.53 kr. styrkur til mötu- neytsins. Vatnsveitan hefir lagt fram 32,502.69 kr., Gasstöðin 10,529.10 kr. og hafnarsjóður 41,586.45 kr. En alls hefir ver- ið greitt vegna atvinnubóta 682,152.15 kr., þar af hefir ríkis- sjóður endurgreitt 260 þús. kr * * # “Meteor” Þýska rannsókna og mælinga skipið Meteor fór frá Rvík. 18 sept. Það hefir í bili lokið rannsóknum sínum í Norður- höfum. Um þessa seinustu för skipsins norður í höf skýrir for- maður rannsóknar nefndarinn- ar svo frá: — Vér fórum héðan norður til Jan Mayen. Hreptum vér dimmviðrisþoku á leiðinni, en er til eyjarinnar kom, birti og gerði besta veður. Vér fórurn í land og hittum þar þrjá Norð- menn, sem eru á veðurathug- ana og loftskeytastöðinni þar. Er það loftskeytamaður, veður- fræðingur og matreiðslumaður. Austurrísku vísindamennirnir, sem þar voru í vetur að pólar- Irannsóknum, voru farnir heim. | Sættu þeir skipsferð til Noreg3 12. ágúst, eða mánuði fyr, en | þeir áttu að hætta rannsóknum. j Hús þeirra stendur þar og eru í því allir innanstokksmunir þeirra og vísindaáhöld. Héldu Norðmennirnir áfram pólar- rannsóknum fyrir þá. Vér komum líka til Eggja- eyjar (Egg Island). Þar er jarðhiti mikill og brennisteins- hverir og jarðlag gvipað og á Reykjanesi. Vér sigldum svo umhverfis eyna í glaða sólskini, og hefi eg aldrei á æfi minni séð fegurri sjón en Beerenberg þá. Þetta háa fjall (2094 m.) með snjóhvítum jökulskalla, bar við heiðbláan himininn og var dásamlega tignarlegt. Frá Jan Mayen fórum vér til Scoresbysunds. Fengum svarta- þoku á leiðinni, en hana birti er vér komum að Grænlands- strönd. Þó komumst vér ekki inn í Scoresbysund vegna þess að það var fult af ísi (þett.a mun hafa verið um 26. ágúst). Þar á hæð nokkurri sáum vér hús þeirra vísindamanna, sem þar voru í vetur, en mennirnir voru farnir þaðan nýlega, höfðp Borg er engan hefir Talsima! GETIÐ ÞÉR IIIJGSAÐ YÐUR HANA? Engin almenn þægindatæki eru jafn nauð- synleg til samfélags nota sem óskilbundinn tal- sími. Borinn saman við það gagn sem hann veitir yður, er enginn hlutur sem kostar yrður jafn lítið. “Takið út símann; hann er ekki þess virði sem þér setjið fyrir hann,” er hið almenna við- kvæði, þó veit sá hinn sami í hjarta sínu að það er ekki satt. Eftir hvaða nytsemdar mati sem reikna skal, er enginn hlutur í heiminum seldur notendum fyrir jafn lágt verð sem talsíminn. Og í Winnipeg er símaþjónustan bezt o^ ódýrust þegar hliðsjón er höfð af svæðinu sem hún tekur yfir. .ý Munduð þér vilja hætta við rafljósin og taka upp aftur tólgarkertin ? Þegar snögg veikindi bera að höndum, eldur, eða innbrot eða önn'ur óhöpp þá er engin vernd til betri en talsími í húsinu. FJARLÆGÐ ENGINN TrtLMI! Talsímakerfið út um álfuna, er nú svo fullkomnað, að á hvaða stundu sem er, dags eða nætur, getið þér sím- að heiman að frá yður til ættingja eða vina, á hvaða stað sem þeir eru, þar sem talsíma tæki eru, og talað við þá. Hin lágu talsíma gjöld, sem í gildi eru á kvöldin, færa kostnaðinn svo niður við löng samtöl að engum talsíma notanda eru þau ofvaxin. YFIR OKTÓBER býðst talsímadeildin til að setja inn síma á heimili bæjarbúa ókeypis. Fylgja verður þriggja mánaðar borgun af símagjaldinu með umsókninni! Pantið heimilis símann strax (Færsla og breytingar gerðar rýmilega) Manitoba Telephone System haldið heimleiðis með “Pourque- pas?” Frá Scoresbysundi ihéldum vér aftur austur um haf og gerðum margskonar rannsóknir á leið- inni. Fórum vér fyrst til ísa- fjarðar, þaðan norður til Akur- eyrar og svo hingað. Aðalverkefni vort var að rann saka strauma í hafinu, svif, hita og dýpi. Voru gerðar dýpt- armælingar 10. hverja mínútu með bergmálstæki (Echolod). Ennfremur gerðum vér mæling- ar í lofti fyrir pólarárið. Eru þær mælingar gerðar með sjálf- virkum radio-flugbelgjum. Mældum vér á þenna hátt lofstrauma, hita og raka. í 8 km. hæð var 40—50 stiga frost. Sjávarhitinn hjá íslands- ströndum reyndist 10 stig, en vegar vestur í pólstrauminn kom var hitinn 0 stig á yfir- borði, en minkaði er neðar dró og lægsta hitastig í sjónum, sem vér mældum var h- 1.7 stig. í 600 metra dýpi var sjáv- arhitinn allsstaðar undir 0 stig. Á ferðalaginu fengum vér enga rigningu, en þokur miklar og hægviðri, yfirleitt gott. og hlýtt veður. * ♦ * * Fiskþurkurinn Óþurkarnir hér um slóðir hafa verið mikið áhyggjuefni manna í sumar. Yfirlit um tjón á heyafla manna, vegna þeirra er ekki fáanlegt. Meiri verð- mæti eru í húfi þar sem fisk- urinn er. En þar horfir að því leyti öðru vísi við, en með hey- in, að fiskurinn saltaður verst skemdum í húsi, þó dragist að fá á hann þurk. Skemdir á fiskgæðum af völdum úrkomu því þær einar orðið, þegar úr- helli hafa komið á þurkdögum, og “komið ofaní” fiskinn. Þetta mun hafa átt sér stað einum tvisvar sinnum í allstórum stíl hér í Reykjavík og nágrenni. Fyrir rúmlega mánuði síðan voru horfurnar þessar: Hægt er þurka þann fisk sem hér er óþurkaður á 14 þurkdögum, og geta þurkhúsinu þurkað afgang inn frá hausti og fram til ára- móta. Síðan hafa komið 6—7 þurk- dagar. Er þá eftir að fá viku- þurk til þess að þurkhúsin geti tekið það sem eftir er. Úr þurkhúsunum verður fisk- urinn sem kunnugt er ekki jafn góð vara, og sólþurkaður. Því er ekki tekið til húsþurkunar fyr en alt um þrýtur. * * * Bilvegur til SiglufjarSar Mikill áhugi er fyrir því, á Siglufirði, að bílvegur komi sem fyrst þangað sem yrði í sam- bandi við bílvegakerfi landsins. Hefir vegamálastjóri haft það mál til athugunar undanfarin ár, en ekki er fullráðið enn hvar vegurinn verði lagður. Er nú helst talað um að leggja veg- inn um Siglufjarðarskarð. — Árni Pálsson verkfræðingur mun nú gera þar mælingar og rannsókn á því, hvert unt er að gera þar bílfæran veg. —Mbl. * * * Lækna- og lögfræðisnemar eru nú orðnir of margir við háskóla íslands. Sendir háskóla ráðið út svohljóðandi “Aðvörun til háskóla stúdenta” 15. sept.: Vegna þess hve margir kandi datar hafa lokið embættisprófi í læknisfræði og lögfræði undan farin ár, og vegna þess hve mhrgir stúdentar eru enn við nám í þeim greinum, eru at- vinnuhorfur lækna og lögfræð- inga hér á landi fyrirsjáanlega svo slæmar um langt ára bil, að lækna- og lagadeild Háskólans, telja sér skyld gð vara stúdenta sem nú hafa í hyggju að byrja háskólanám, alvarlega við því að leggja út í nám í þessum tveimur fræðigreinum. * * * Skaðabótamál Þegar Ólafur Thors gegndi dómsmálaráðherraembættinu s. 1. haust, vék hann, sem kunn- ugt er, Lárusi Jónssyni frá yfir- læknisstöðunni á Nýja-'Kleppi og setti dr. med. Helga Tómas- son að spítalanum. Lárus Jónsson höfaði skaða- bótamál gegn ríkinu. Undirréttur hefir nú kveðið upp dóm í því máli. Hann til- dæmdi L. J. laun frá 1. jan 11933 til 26. nóv. 1934, miðað við 5000 kr. árslaun, og að auki 300 kr. á mánuði, sem uppbót fyrir húsnæði, ljós og hita. Und- ; irréttardómarinn mun hafa lit- ið svo á, að eigi hafi verið færð- I ar fram nægilegar sannanir fyrir því að réttmætt hefði verið að víkja honum frá bótalaust. * * * Aukning lögreglunnar. Samkv. ákvörðun bæjar stjórnar verður lögregluþjónum í Rvík. fjölgað upp í 48 og þannig bætt við 21 mönnum. * * * Óðinn bjargar skipi Varðskipið “Óðinn” hefir bjargað dönsku skipi “Niord”, sem strandaði við Melrakka- sléttu. Áður hafði Óðinn bjarg- að “Geysi”, sem einnig strand- aði þarna. Hefir Óðni tekist að þétta “Niörd’i svo, að hann mun komast hingað suður til Rvíkur. * * * Héraðsvatnafyrirhleðsla. Héraðsvötnin í Skagafirði hafa í vatnsflóði í sumar brot- ist gegnum bakka austanvert við Vindheimabrekkur, svo hætt er við að þau kunni að leggjast í gamla farvegi vestur með brekkunum vestur í Svartá. Tókst þá að teppa í rásir þessar til bráðabirgða og er nú í. ráði að gera þarna fyrirhleðslu í haust til þess að sporna við því, að Vötnin fari þarna úr farvegi sínum og valdi skemdum á vest- urhluta Vallhólmans. - * * * Síldveiðarnar í Siglufirði 16. sept. — Dr. Pauls verk- smiðjan sem ríkið keypti í vor, hætti störfum 14. þ. m. hafði þá starfað 55 virka daga og brætt 73235 mál síldar. Mjöl- framleiðslan varð 14,800 hund- rað-kíló-sekkir. Ríkiíjbræðslan og Hjaltalín eru að enda við að bræða. Síldarsöltunin varð 57,830 tn. saltsíld, 66,969 Matéssíld, 9,757 hausskorin og slógdregin sfld 1,971 slægð síld, 3,125 sykur- söltuð síld, 19,666 kryddsöltuð síld, bræðslusíld Ríkisverksmiðj unnar 206,928 mál, Hjaltalíns 42,679 mál. * * * Sogsvegurinn Vegna stórrigninga og vatns- aga, hefir ekki verið hægt að vinna að Sogsveginum nú um tíma. Er vegurinn nú að mestu lagður frá Grímnesbraut upp fyrir Ásgarð, en eftir er þó að mölbera veginn. ♦ * * Atkvæðagreiðsla um bannlögin 19. maí s.l. samþykti Alþingi að fela stjórninni að láta fram fara þjóðar atkvæði um hvort afnema skuli bann á innflutn- ingi áfengra drykkja, er felst í gildandi áfngislöggjöf. Hefir nú stjórnin ákveðið að til at- kvæða skuli gengið um þetta mál síðasta vetrardag 21 þ. m. Atkvæðisbærir eru allir er náð hafa 21 árs aldri á kjördegi. Eftir símfréttum er hingað bárust til Winnipeg, 22 þ. m. féll atkvæðagreiðsla þannig, að bannlögin eru feld með stórum meirihluta atkvæða. * * * (Tíminn, 27. sept.) Fiskafli Samkv. skýrslum Fiskifélags- ins var afli á öllu landinu frá áramótum til 1. sept. talinn að vera 66,453 smál. Er það 13,200 smál. meira en í fýrra. * * * Sildveiðin Hún er nú um það leyti áð hætta. Um seinustu helgi var síldaraflinn á öllu landinu sem hér segir: Látið í bræðslu 751 þús. hl., í fyrra á sama tíma 525 þús. hl. Saltað og sérverk-

x

Heimskringla

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimskringla
https://timarit.is/publication/129

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.