Heimskringla - 08.11.1933, Page 8
S. SÍÐA.
HEIMSKRINGLA
WINNIP12G, 8. NÓV. 1933
FJÆR OG NÆR.
Messa í Sambandskirkjunni á
sunnudaginn kemur, 12. þ. m. á
venjulegum tíma. ..Séra Philip
M. Pétursson prédikar. Sunnu-
dagsskóli kl. 11. f. h.
¥ ¥ ¥
Arinbjöm Bardal flytur erindi
og sýnir myndir í Goodtemplara
húsinu 22. nóv. til arðs fyrir
stórstúkuna. Nánar auglýst í
næsta blaði.
¥ * *
Séra Guðmundur Árnason frá
Oak Point, Man., kom til bæj-
arins fyrir helgina. Messaði
hann í Sambandskirkju s.v 1.
sunnudag. Heimleiðis hélt hann
á mánudag.
* * •
Fimtudaginn, 2. nóv. voru þau
Thomas Thorvaldur Thorarin-
son frá Riverton, Man., og Mary
Ann Saple frá Ledwyn, Man.,
gefin saman í hjónaband af sr.
Rúnólfi Marteinssyni að 493
Lipton St. Heimili þeirra verð-
ur að Riverton.
¥ ¥ ¥
Sveinn kaupm. Thorvaldson
og sr. Eyjólfur Melan frá River-
tcn og dr. Sveinn E. Björnsson
frá Árborg komu til bæjarins s.
1. mánudagsmorgun. Voru þeir
á fundi er stjórnarnefnd Sam-
einaða Kirkjufélagsins hélt hér.
Eru þeir allir í stjórnarnefnd-
inni og Mr. Thorvaldsson vara
forseti félagsins.
¥ ¥ ¥
Borgarstjóri R. H. Webb,
hefir ákveðið að sækja um end-
urkosningu í bæjarkosningun-
um sem bráðlega fara í hönd.
John Quéen verkamannaforingi
á fylkisþingi Manitoba, er ann-
ar sem sækir um borgarstjóra
stöðuna.
¥ * *
“Og nokkrir Vestur-fslendingar’’
Blaðið “Vísir” er gefið er út
í Reykjavík, 27. sept. s. 1. skýrir
frá komu BrúarfoSS frá útlönd-
um. Með skipinu segir blaðið
Sparið Peninga
með því að brenna Lin
kolum
DOMINION LUMP
$6.25 tonnið
DOMINION COBBLE
$6.25 tonnið
Símar 94 309
94 300
McCurdy Supply
Co., Ltd.
49 NOTRE DAME Ave. E.
Gunnar Erlendsson
Teacher of Piano
594 Alverstone St., Phone 38 345
I_______________
UNCLAIMED CLOTHES
Al) New—Not Wom
Men’s Suits & Overcoats
479 PORTAGE AVE.
I. H. TURNKR, Prop.
Telephone 34 585
“WKST OF THK MAL.Í.—BKST
OF THKM ALL.”
J. J. SWANSON & Co. Ltd.
RKALTORS
Rental, Insurance and Financial
Agents
Sími 94 221
600 PABIS BLDG. — Winnlpeg
KAUPIR GAMLA GULL-
MUNI FYRIR PENINGA
0T f HÖND
CARL THORLAKSON
Úrsmiður
699 Sargent Ave., Winnipeg
íslenzka gull- og silfur-
smiða stofan
að komið hafi ýmsir farþegar,
er það telur upp með nafni,
— kaupmenn, verzlunarstjórar,
stórkaupmenn og frúr, en bætir
svo við ‘,‘og nokkrir Vestur-ís-
lendingar.”
¥ ¥ *
Séra Guðm. Árnason messar
á Oak Point sunnudaginn 12.
nóv.
¥ ¥ ¥
Páll ísólfsson hljómlistakenn-
ari og organisti við fríkirkjuna
í Reykjavík, auglýsir í Rvíkur.
blöðunum ókeypis kenslu í orgel
spili og öðru er að kirkjusöng
lýtur, frá 1. nóv. fram til vors,
fyrir barnakennara og þá er
ráðnir hafa verið til að stýra
söng við kirkjur út um land. Er
það myndarlega og höfðinglega
gert, og honum til sæmdar.
¥ ¥ ¥
Séra Jóhann Friðriksson
messar í Lúter söfnuði sunnu-
daginn 12. nóv. kl. 2. e. h, og á
Lundar um kvöldið kl. 7.30.
¥ ¥ ¥
Magnús gamli Árnason var á
ferð hér í bæ í vikunni sem
leið. Er hann nú nærri hálf
níræður að aldri en þó enn hinn
ernasti. Fór hann með eftir
fylgjandi vísur er vér hripuðum
niður, sverja þær sig í ætt við
hinar fyrri vísur hans, ljósar og
liðugar, glettnar og gamansam-
ar:
Afmælisvísur
Einatt glaður öls við tár
Orti kýmnis bögur
Svo hafa liðið æfi ár
Áttatíu og fjögur.
Oft þó sýndust dægur dimm
Og dauft á Mfsbrautinni
Lét eg aldrei orlög grimm
Aftra gleði minni.
Mikleyjar plágur
Engisprettur angra menn,
Uxa-hundar, slettir;
Þó á sálum ýnisum enn
Eru grænir blettir.
Vökumaðurinn
Ennþá rumdi, ennþá frat
Ennþá þrifust brekin
Ennþá vakað ekki gat
Ennþá var hann rekinn.
Mjögsiglandi
Kapteinninn á kænum tveim
Og kanske fleiri,
Kveld og morgna kátur réri,
En konan varð að flæðiskeri.
¥ ¥ ¥
Gestur Vídal frá Hnausum,
Man.,-- kom snöggva ferð til
bæjarinnar s. 1. mánudag.
* ¥ ¥
Skák *
Þriðjudaginn þ. 31. okt. s. 1.
voru nær þrjátíu taflmenrí sam-
ankomnír í skólanum, flestir ís-
lendingar. Telft var af áhuga og
kappi og skemtu menn sér hið
bezta.
Þegar leið á kvöldið, var bor-
ið inn kaffi og brauð-samfellur
og var hverjum veitt, sem hann
vildi. Var það kærkomin og góð
hressing, því þegar menn eru j
búnir að sitja lengi að tafli og
hafa glímt við skæða sókn og
góða vörn af andstæðinganna
hálfp, þá er það næstum að I
segjk bæði sálaríegt og h'kam-
legt sælgæti að fá góðan kaffi- I
sopa að hressa sig á.
íslendingar! Þið, sem teflið |
og hafið gaman af skák, komið
í Jóns Bjarnasonar skóla á j
hverju þriðjudagskvöldi. Gang-
ið í félagið og haldið við list-
inni. Það kostar aðeins einn
dollar um árið að gerast með-
limur. Ef þið hafið ekki dollar-
inn, þá komið samt, þið eruð
jafn velkomnir fyrir því. Ef
þið viljið fræðast um opningar,
þá fáið þið leiðbeiningar í því.
Ef þið viljið glíma við skák-
þrautir, þá er einnjg nóg af
þeim.
Það skerpir skilninginn að
hugsa. Skákin er ekkert and-
legt niðurdrep, hún krefst hugs-
unar og gerir manninn frægan.
Gleymið því ekki að við spil-
um “Bridge” á hverjiíi fimtu-
dagskvöldi.
Frétt frá Leslie, Sask., segir að
Páll bóndi Guðmundsson, bróðir
þeirra Þorsteins Guðmundsson-
ar við Leslie og Björgvins Guð-
mundssonar tónskálds, hafi orð-
ið fyrir tilfinnanlegum eigna
missir í vikunni sem leið. Sauða
hjörð, sem hann átti, var á
beit við járnbrautina utan við
bæinn, og varð fyrir járnbraut-
arlest er að austan kom, er drap
42 úr hópnum.
¥ * *
Á laugardaginn var 4. þ. m.
andaðist hér í bænum að heim-
ili sínu í Tremont Apts., konan
Hallfríður Ólavía Johnson, kona
Guðjóns Johnson, húshirðis við
Tremont bygginguna. Hallfríð-
ur heitin var fædd 8. ágúst 1876
á Hellisfjörubökkum %í Vopna-
firði. Hún á tvær dætur á lifi
er báðar eru giftar og búsettar
hér í bæ. Jarðarför hennar fór
fram á mánudaginn. Hún var
jarðsungin af séra Philip M.
Pétursson.
¥ ¥ *
Brynjólfi söngstjóra Þorláks-
syni var haldið skilnaðar sam-
sæti í Fyrstu lútersku kirkju •'
gærkveldi. Er ekki tími til að
skýra frá samsætinu í þe#su
blaði. Aðeins skal þess getið,
að það var hið veglegasta í alla
staði.
Brynjólfur leggur af stað 'til
íslands á miðvikudaginn í þess-
ari viku.
¥ ¥ ¥
Winnipeg Symphony Orchestra
hefir hér nokkra konserti.
Enginn neitar því, að músik-
i.n er alheims mál. Hverrar
þjcðar sem þeir eru, sem hlýða
á Winnipeg Symphony orkestr-
uúa, er fyrst lætur til sín heyra
26 nóvember, munu kannast
við að músikin er alheims mál.
Bernard Naylor heitir sá er
stjórnar henni og er sem slí^cur
annálaður. Og um þá er í or-
kestvunni spila má segja, að
þeir séu með lífi og sál í söngn-
um.
Að eiga þess kost að hlýða á
söng senv þann er þarna er völ
á, er sönglífi þessa bæjar til
svo mikillar eflingar, að sam-
komunar eiga það skilið að þær
séu sóttar og þeir senv fyrir því
stantía þökk og heiður fyrir á-
huga á söngment.
Tryggvi Jónsson frá Riverton,
Man., var staddur í bænum í
gær.
¥ ¥ ¥
Spilsamkepni
Kvenfélag Sambandsafnaðar
efnir til spilasamkepni í sam-
komusal kirkjunnar annað hvert
mándagskveld í allan vetur.
Fyrsta samkepni fór fram
mánudagin var þ. 30. okt. kl.
8.30 e. h. Verðlaun í pen-
ingum gefin hvert kvöld og
einnig há verðlaun þeim sem
hæðstu mörk fær til jóla. Spilað
verður “Contract-í*rogressive
Bridge.” Kaffi ókeypis á eftir í
hvert sinn. — Komið stundvís-
lega. Aðgangur 25c.
Næsta samkepnin, 13. nóv.
Nefndin.
* * *
Á árssamkomu Norska Glee
klúbbsins í Minneapolis 26. okt.
s. 1. söng Guðmundur Kristjáns-
son bæði íslenzka og norska
söngva. Segir blaðið Minneap-
olis Journal að söngur Guð-
mundar hafi gert samkomu
þessa miklu fullkomnari og til
komumeiri, ei\ hún hafi verið
undanfarin ár.
¥ ¥ ¥
“Endurminningar”
FriSriks Guðmundssonar eru til
sölu hjá höfundinum við Mo-
zart, í bókaverzlun Ó. S. Thor-
geirssonar og á skrifstofu Hkr.
Fróðleg og skemtileg bók og
afar ódýr. ..Kostar aðeins $1.25.
EN DURMINNIN G AR
Frh. frá 7 bls.
þá með því hvað eg væri orð-
i'm leikinn í að ljúga.
Nú leið óðum að þeim tíma er
eg eftir samningi átti að vera
farinn úr húsinu mínu og af-
henda það kaupanada, til þess
að verða ekki einn, álitslaus og
i aukaveltu, þá sá eg að mér, sem
var nýkominn inn í landið var
nauðsynlegt að vera með öðrum
velþektum mönnum við atvinnu
mína og til þess að koma mínu
nýja húsi fljótt og vel upp, þá
var nauðsynlegt að margar
liendur ynnu að því. Það var
auðséð að mér var bezt að gefa
einh’verjum alþektum og álitleg-
um bygginga formanni tækifæri
á að byggja mitt hús fyrir sann-
gjarna borgun og með því skil-
yrði að taka mig í sinn verka-
mann hóp eins lengi og eg
vildi með honum vera eða
hjá honum vinna fyrir ákveðið
kaup. En þá var eftir að finna
þann forsmið sem mér þótti í
alla staði ákjósanlegur til að
gera samninga við og vinna með
alt sumarið ef mér svo sýndist
Auðvitað var mér Jón Vopni
efstur í huga, en sá var gallinn
á slíkum samningum við hann,
að hann var sjálfur hvergi við
smíðar en hafðj nokkra for-
menn við húsabyggingar sinn
á hverjum stað og þeir voru
ekki allir mér geðfeldir. Eg hafði
sumarið áður kynst þeim meira
og minna, og þótti þeim svipa
til forustusauðanna heima, þar
sem þeir voru margir í sömu
hjörð. Einn tar hvítur, annar
bíldóttur, þriðji grár og sá fjórði
svartur, allir til að sjá, en ekki
var minni munur á hæfileikum
þeirra og skapsmunum, þegar
menn fóru að þekkja þá til
hlítar. Einn þeirra var montinn
og stökk altaf fyrstur af stað
háreistur og hamóður þegar
komin var grenjandi stórhríð og
áreið að komast í húsaskjólið.
Hinir forustu sauðirnir gengu
næstir honum og var nokkurn-
veginn hægt að sjá hvað þeir
hugsuðu, þó sauðum láti ekki
vel að herma eftir. En svo
þegar það kom í Ijós að sá
montni hafði ekki sett á sig
stefnuna heim fyrir æsinguna
í blóðinu, þá tók sá bráðlyndasti
hinna þriggja það að sér, að
gefa honum þá áminningu sem
lækka skyldi í honum hrokann,
gekk fram með síðunni á hon-
um og sló hann með skallanum
eða horninu á hjartastað. svo
hann'dró sig strax til baka, en
bræðin svall hinum í sinni, svo
hann mundi ekki hvað mikið
átti að breyta stefnunni og fór
nú líka skakt, þó minna væri.
Þá kom sá þrlðji til sögunnar,
lét að vísu fautann eiga sig, en
tók aðra stefnu og rétta, sá
fjórði studdi það með því að
líta til baka og láta öllum
hópnum í ljósi samþykki sitt
og traust og ganga svo öruggur
á eftir þeim þriðja, þangað til
honum þótti mál til komið að
hvíla hann, en skundaði þá
fram með honum og tók við
stjórninni. Sá bráðlyndi og ann-
ar í röðinni ,stóð þá vanalega
kyr, þangað til hann var orðinn
aftastur í hópnum og sneri þá
nokkuð í aðra átt, þegar hann
mundi eftir sér svo hann átti
því betri kost á að iðrast yfir-
sjóna sinna.
Misjafn sauður í mörgu fé.
Mér blöskraði alveg þóttasvip-
urinn og hembingurinn í sum-
um íslenzkum húsasmiðum í
Winnipeg. Það eru skrítnar
stellingar og geta þó orðið með-
eiginlegar, ef atvinnuvegurinn
endist nógu lengi. Margir ó-
fullkomnir menn leika það að
látast vera eitthvað meira en
þeir eru, og þekkingarleysið
leitast þeir við að byrgja undir
fáorðum þótta og háðsvip um
leið og þeir athuga það ekki, að
þóttinn er ábrygðult éinkennl
heimsku og þekkingarleysis.
Mig langaði til að skrifa í blöð-
in réttláta útlistun þess, hvernig
sumir yfirsmiðirnir létu við þá
sem leituðu sér atvinnu hjá
þeim, en það hlaut að verða
ranglát árás á marga háttprúða
ágætismenn, nema ráðist væri í
persónulegar sviftingar, sem
aldrei kemur sér vel, og meiðir
líka margan saklausan.
Eg hitti mann þann er Kristj-
án hét Stefánsson, ættaður var
hann úr Þistilfirði, og þekti eg
ættfeður hans að nokkru leyti.
Mér hafði veri& sagt að hann
væri sanngjarn og góður dreng-
ur og smiður hinn bezti. Mér
MESSUR 0G FUNDIR
i kirkju Sambandssafnaðar
Messur: — á hverjum sunnudegk
kl. 7. e. h.
Safnaðarnefndin: Fundir 2. og 4.
fimtudagskveld i hverjum
mánuSi.
Hjálparnefndln. Fundir fyrsta
mánudagskveld i hverjum
mánuSi.
Kvenfélagið: Fundir annan þriðju-
dag bvers mánaðar, kl. 8 að
kveldinu.
Söngflokkurinn. Æfingar á hverju
fimtudagskveldi.
Sunnudagaskólinn: — A hverjui'i
sunnudegi, kl. 11 f. h.
leizt vel á manninn og samdi eg
við hann um að byggja mitt
hús og gefa mér atvinnu yfir
sumarið svo lengi sem hann
fengi byggingavinnu og eg
þyrfti á að halda. Félagi hans
var maður sá er Þorlákur hét,
og minnir mig að hann væri
Nelsson. Framh.
Kaupið Heimskringlu
Lesið Heimskringlu
Borgið Heimskringlu
BifreiðarFerðir
Afsláttar fargjöld til allra
staða. Ferðist með hinum
nýju hituðu ‘Sedan’ bílum.
Farþegjar allir vátrygðir.
Æfðir bílstjórar.
Sýnishorn fargjalda:
Wpg til Regina... $ 7.00
Wpg til Calgary .... 14.00
Wpg til Saskatoon .. 9.50
Wpg til Toronto.. 18.75
Wpk til New York .. 23.50
Spyrjið eftir fargjöldum til
allra staða
THE
Drivers’ Syndicate
439 MAIN St.
Sími 93 255 Winnipeg
FLAUJELS YFIRSKÓR
f Kvenskóastærðum upp í 8
Konurnar munu meta
þessa fínu nýju flaujels
yfirskó — á svörtum og
brúnum lit — með þessum
mjúku og loðfeldu brydd-
ingum. Hælar og sólar eru
úr beztu tegund af rubber.
Með lágum, miðlungs og
háum hælum. — Verð,
$3.50
Kvennaskódeildin,
á öðru gólfi við Hargrave
T. EATON C°
UMITED
WEVEL CAFE
692 SARGENT AVE.
PHONE 37 464
Þar hittast Islendingar, utan
sem innanbæjar, við máltíðir og
hið nafntogaða Þjóðrækniskaffi.
> Soffía Schliem
Thura Jónnsson
Prentun
The Vlklng Press, Limited, gerir prentun smáa og stóra, fyr-
ir mjög sanngjamt verð. Ábyrgjumst að verkið sé smekklega
og fljótt og vel af hendi leysL LátiO oss prenta bréfhausa
yðar og umsliög, og hvað annað sem þér þurfið að láta prenta.
Bækur og stærri verk gerð eftir sérstökum samingi.
THE VIKING PRESS LTD.
853 SARGENT Ave., WINNIPEG
t v
^ ^ 5ími 86-537 &