Heimskringla - 10.10.1934, Síða 3
WINNIPEG, 10. OKT. 1934
HEIMSKRINGLA
3. SlBA
Vestmannaeyingar
hafa haft í smíðum dýpkun-
arskip fyrir höfn sína. Tilboða
var leitað um smíðið og gengið
að tilboði “F'rederikshavn Skabs
værft og Flydedok”. Kostar
skipið 120,000 kr. Unnið getur
það á 8 metra dýpi. Hefir ríkis-
sjóður fallist á að greiða i
verðs, eða 40,000 krónur.
¥ ¥ *
Oddur Thorarensen
fyrverandi lyfsali, andaðist í
Kaupmannahöfn s. 1. laugar-
dagskvöld (11. sept.) úr hjarta-
slagi.
Oddúr lyfsali Thorarensen
var fæddur 23. júlí 1862. For-
eldrar hans voru Stefán sýslu-
maður Thorarensen, Oddsson,
lyfsala á Akureyri, Stefánsson-
ar amtmanns á Möðruvöllum og
Olivia Juby, af dansk-þýzkum
ættum. Tólf ára að aldri fór
Oddur heitinn utan, og var til
skiftis með móðursystrum sín-
Það hreinsar burtu
fljótt og léttilega \
óhreinindi án
burstaþvottar
og núnings.
ÖLL ÓÞÆGILEG hreinsun verð-
ur auðveld ef notað er Gillett’s
Pure Flake Lye. Það bókstaf-
lega skolar burtu öllum óhrein-
indum. Etur sig í gegnum gróm-
ið. Notið eina teskeið uppleysta
í potti af köidu vatni.* Óhrein-
indin hverfa! Það þarf engum
núningi að beita.
Hafið Gillett’s Lye ávalt við
hendina fyrir alla skúrun. Notið
það í setskálar, til hreinsunar á
teptum skólppípum. Það drep-
ur gerla og eyðir ódaun — en
skaðar hvorki glerhúðir eða
pípur. Matsalinn yðar selúr
Gillett’s Lye. Biðjið hann um
bauk — nú þegar.
* Leysið lútinn aldrei upp í heitu
vatni. Efnaverkun lútsins hitar sjálf
vatnið.
GILLETrS
ÉTUR
ÓHREININDI
um í Hamborg og Kaúpmanna-
höfn og nam því þarlend mál
sem innfæddur. Stúdentsprófi
lauk hann í Kaupmannahöfn og
sömuleiðis prófi í lyfjafræði, er
hann hafði numið í höfn og
Þýzkalandi. Síðan hvarf hann
heima aftur og leigði fyrst lyfja-
búðina hér af Hansen lyfsala,
en keypti síðan. 31. ágúst 1889
giftist hann Ölmu, dóttur H.
Schiöth bakarameistara og
póstafgreiðslumanns. Áttu þau
4 börn, eina dóttur, Olivíu, er
hér er á Akureyri, Stefán, lyf-
sala í Reykjavík, Hinrik, lækni
á Siglúfirði og Odd, lyfsala hér
í bæ.
Lyfjabúðina rak Oddur heit-
inn til ársins 1919, að hann
seldi hana í hendur Oddi syni
sínum, á 100 ára afmæli lyfja-
búðarinnar.
Eftir að Oddur heitinn hætti
lyfsalastörfum, bauð hann sig
fram til bæjarstjórnar, var kos-
inn og var forseti hennar um
skeið, unz eyrnasjúkdómur olli
því, að hann hugði af því starfi.
Hinn framliðni var sæmdur
riddarakrossum Dannebrogs- og
St. Ólafsorðu, og stórriddara-
krossi Fálkaorðunnar.
* * *
Jakob Möller vikið frá
Akureyri 6. sept.
Að því er útvarpsfregn
hermdi í gærkveldi hefir Ey-
steinn Jónsson, fjármálaráð-
herra, sent til Jakobs Möllers,
bankaeftiritsmanns bréf, dag-
sett 4. sept., og þar með tilkynt
Möller að honum sé vikið úr
stöðunni, m. a. sökúm megnrar
vanrækslu á starfinu.
* * *
‘Skipulagsnefndin’
Misskilnings mun kenna í
fregnum “Dags” og flestra ann-
ara blaða um valdsvið eftirlits-
niefndar þeirrar, er atvinnu-
málaráðherra skipaði nýlega. T.
d. mun nefndin ekki hafa með
erindisbréfinú fengið vald til
þess að heimta skýrslur af ein-
staklingum eða félögum. Kveð-
ur “Nýja Dagblaðið” svo að
orði, 31. f. m., “að í erindisbréfi
ráðherrans er það skýrt fram
tekið, að nefndin eigi því að-
eins að gera tillögur um opin-
beran rekstur, að “fyrirsjáanlegt
yrði, að einkarekstur ekki
nægir til að fullnægja kröfum
þjóðarinnar eða kann að öðru
leyti að vera varhugaverður fyr-
ir almenningsheill”. Og neðan-
máls bætir blaðið við þessari
skýringu: “Það er líka mis-
skilningur hjá Alþýðublaðinú í
fyrradag að nefndin hafi “mjög j
víðtækt valdssvið”. Nefndin
hefir ekkert vald, heldur ein-
göngu tillögurétt”.
Annars þykir oss eigi auðséð
að nefndin eigi auðvelt með að
dæma um hvenær t.d. einka-
rekstur kunni að vera varhuga
verður fyrir almenningsheill,
nema að hún geti krafist nauð-
synlegra upplýsinga um rekst-
úrinn, er henni þurfa þykir.
Héðinn Valdimarsson er for-
maður nefndarinnar, eins og
áður var sagt, en ritara hefir
hún kosið sér Steingrím Stein-
þórsson, skólastjóra.
* * *
íslendingar í
Kappskák Norðurlanda
Nýlega fór fram í Kaup-
mannahöfn kappskák Norður-
landa í þremur flokkum. Fimm
íslendingar keptu á þessu móti.
Svo fóru leikar, að í “lands-
flokknum” náði Eggert Gilfer i
2/z vinning af 8 mögulegum.
í “meistaraflokknum” náði
Jón Guðmundsson í 3 /i vinning
af 10 skákúm tefldum. En hann
fékk 2. verðlaun fyrir snjalltefli
(40 kr.), en fyrir það hlaut 1.
verölaun Niemzowitsch,—Rússi
búsettur f Danmörku — líklega
4. bezti taflmaður í heimi. í
þesum sama flokki náðu þeir
Árni Snævarr og Guðm. Guð-
mundsson 5 /% vinningi hvor.
í “1. flokki” hlaut Baldur
Möller 5 vinninga af 10.
Nýjar embættaveitingar
Skattstjóri í Reyjavík hefir
verið skipaður Halldór Sigfús-
son, endurskoðandi, frá Krauna-
stöðum.
Ragnar Kvaran hefir verið
skipaður skrifstofustjóri hinnar
nýstofnuðu skipulagsnefndar.
¥ ¥ ¥
Landbúnaðarráðherrann
hefir falið Páli Zophoníassyni
ráðunaut að safna og semja
skýrslur um ástandið í óþurka-
héruðunum, til þess að byggja
á ráðstafanir til bjargar bú-
stofni bænda, þar sem þess ger-
ist þörf. Víst er, að brýna nauð-
syn ber til slíkra ráðstafana eft-
ir mesta óþurkasumarið, er
komið hefir í minnum þeirra
manna, sem nú eru uppi. Á svo
erfiðum tímum er gott að hafa
ríkisstjórn, sem er vel vakandi
yfir afkomu atvinnuveganna.
-—Dagur.
¥ ¥ ¥
Nýbýli—Sambýli
Það er mikið talað og ritað
um viðreisn landbúnaðarins,
ekki einasta af bændum sjálf-
um, heldur einnig af ýmsum
öðrum, svo sem embættismönn-
um, kaupstaðabúum og öðrum
þeim, sem með eftirdæmi sínu
hafa sýnt bændum búhyggindi
sín.
Flestir þessir menn virðast
vera sammála í því, að halda
einskonar opinberan umræðu-
og blaðaskóla fyrir þá bændur,
sem ennþá halda trygð við jarð-
ir sínar í sveituhum. Þeir vilja
kenna ný búvísindi til viðreisn-
ar landbúnaðinum. Það mætti
því ætla, að landbúnaðurinn
kæmist fljótlega út úr því öng-
þveiti, sem hann nú virðist vera
komin í. Telja má því líklegt,
að þeim bændum fækki, sem
telja sig svo efnalega aðfram-
komna, að þeir neyðist til að
biðja um eftirgjafir skulda.
Eitt aðalviðreisnarráð telja
þessir búfróðu menn vera það,
að bændur flytji burt af jörðum
sínum og byggi upp í samein-
ingu svokölluð sveitaþorp, því
þá muni fleiri fljótlega geta
búið í góðum og hlýjum húsutn
á sameiginlegum funda- og
skemtistað, haft sameiginlegt
leikhús, sameiginlegan síma og
loftskeytatæki, sameiginleg
jarðabótaverkfæri, öll af ný-
ustu gerð. Sumir bæta við:
Sameiginlegt miötuneyti ,en um
það eru nú samt skiftar skoð-
anir, því nokkrir eru hræddir
um, að slíkt geti valdið ágrein-
ingi, en um það ber öllum þess-
um fræðimönnum saman, að
ágreiningur megi ekki eiga sér
stað í svo ^iáinni sambúð, enda
sé tæplega hætt við því, þegar
alt sé sameiginlegt, undantekn-
ingarlaust, alt sameiginlegt.
Ekki mun fullráðið enn, hvar
byrjað verður á umbóta- og
sambyggingum þessum, enda á
þing eftir að segja sitt búvís-
indalega álit á málinu. Sumir
tala um að heppilegast sé að
setja þær niður nokkuð langt
frá kauptúnúnum, aftur eru
aðrir, sem álíta að þau muni
þrífast bezt nærri sjávarsíðu
eða kauptúnum. Þeir eru
hræddir um, að ríkissjóður verði
of naumur á matgjöfum á með-
an að verið er að rækta jörð-
ina, svo ráðlegra sé að geta náð
sér í einn róður og fá sér í
soðið eða atvinnu í kaupstað
svona rétt til vara. Altaf kynni
þó að vera hægt að ná sér í
atvinnúbótavinnu.
Þegar þess er gætt, hve
skemtilegt það er að búa í nýj-
um og glæsilegum húsum, ná-
lægt kaupstöðum, geta fyrir-
hafnarlaust tekið þáfct í sam-
kvæmislífi stórbæjanna, þá er
ekki að furða, þótt mönnum
finnist leiðinlegra til dalanna,
þar sem ekki er annað til skemt
unar en “fífilbrekka, gróin
grund, grösug hlíð, með berja-
lautum”, eða þá hrikaleg fjöll,
með tindum og gnýpum, sem
líkjast voðalegum nátttröllum.
Ó, sá munur! Háreistir salir,
með glymjandi “músik” í kaup-
stöðunum.
Til eru þeir menn, sem þykj-
ast ekki vita, hvar bændur geti
tekið byggingarkostnaðinn. Þeir
vita ekki, að fyrir öllu hafa
hinir búhyggnu menn séð;
kostnaðinn allan á ríkissjóður
að greiða, þegar hann hefir pen-
inga fyrirliggjandi, sem senni-
lega enginn þarf að efa.
Komist þessi ráðagerð til
framkvæmda, telja þessir bú-
hyggnu menn örugt ráð fundið,
til þess að halda fólkinu í sveit-
unum, og að þá verði hægt að
reka búskapinn með ágóða og
ánægjú.
Eins og nú horfir við, er ekki
sjáanlegt annað, en að minsta
kosti dalajarðir allar fari í eyði,
enda margar þegar komnar það.
Aðalástæðan til þess, að bændur
flytja burt af jörðunum, er að
þeirra sjálfra sögn sú, að sam-
göngur séu svo erfiðar. Þeir
segjast vera hræddir um, að
dráttur verði á bílvegalagningu
til verulegra nota fyrir þá, fyrr
en um seinan. Það er og mjög
eðlilegt, að menn vilji dragast
þangað, sem samgöngur eru
góðar, því góðar samgöngur
eru með réttu taldar vera lífæð
búnaðar og þá úm leið bænd-
anna. Það kemur líka ljóslega
fram, því einmitt þaðan, sem
samgöngur eru erfiðar, flytur
fólkið mest. Það væri fullkom-
in þörf á að koma sem fyrst
vegakerfi landsins í viðuúandi
horf, því líkur eru til, að sam-
býlahugsjónin dragist eitthvað
að komast í framkvæmd.
Þessir nýbýlahugsjónamenn
segja: Látum allar sveita- og
dalajarðir fara í eyði, flytjið
ykkur í grend við kauptúnin í
nýbýlasambúð; sleppið allri
hinni gömlu og úreltu sveita-
menningu, en takið ykkúr til
fyrirmyndar nýtízku kaupstaða-
menningu. Látið alt ræktað
land dalajarðanna fara. Þið
verðið ekki lengi að rækta aft-
ur nýbýlin í sameiningu. Von-
andi verður mál þetta athugað
á næsta þingi; má þá vænta
heppilegra úrslita, þar sem svo
margir búfróðir menn eru sam-
ankomnir og þar sem mestur
hluti þeirra er búsettur í Rvík.
Reynandi væri að senda eitt-
hvað af atvinnulausu fólki úr
kaupstöðúm landsins upp til
sveita og dala og lofa því að
hirða eitthvað af hinu mikla
grasi á eyðijörðunum.
Mín ynnileg ósk er sú, að öll
býli fram til fjalla og niður til
stranda mættu blómgast og
verða að stórbýlum með góðri
húsaskipun og mörgu dugandi
fólki; alt láglendi yrði að rækt-
uðu landi, en fjallshlíðar klædd-
ust fagurblaktandi skógarlaufi,
þar sem hin yngri kynslóð gæti
baðað sig í yndislegum skógar-
lundum og notið fegurðar nátt-
úrunnar í ríkum mæli. Þetta
verður, ef þjóðin vill vinna að
því með einbeittum vilja og at-
orku.
Blessun guðs hvíli yfir ís-
lenku þjóðinni.
Stefán Bergsson
—Dagur.
INNKOLLUNARMENN HEIMSKRINGLU
' I CANADA:
Árnes................................................F. Finnbogason
Amaranth............................J. B. Halldórsson
Antler...................................Magnús Tait
Árborg................................G. O. Einarsson
Baldur...........................................Sigtr. Sigvaldason
Beckville.............................Björn Þórðarson
Belmont....................................G. J. Oleson
Bredenbury............................. H. O. Loptsson
Brown...............................Thorst. J. Gíslason
Calgary............................Grímur S. Grímsson
Churchbridge...................................Magnús Hinriksson
Cypress River......................................Páll Anderson
Dafoe..................................S. S. Anderson
Elfros.............................J. H. Goodmundsson
Eriksdale......................................ólafur Hallsson
Foam Lake........................................John Janusson
Gimli.................................... K. Kjernested
Geysir.........................;... ..Tím. Böðvarsson
Glenboro................................ G. J. Oleson
Hayland..............................Sig. B. Helgason
Hecla.................................Jóhann K. Johnson
Hnausa................................Gestur S. Vídal
Hove...........................................Andrés Skagfeld
Húsavík............................................John Kernested
Innisfail..........................Hannes J. Húnfjörð
Kandahar...............................S. S. Anderson
Keewatin.............................. Sigm. Björnsson
Kristnes............................... Rósm. Ámason
Langruth...........................................p. Eyjólfsson
Beslie............................... Th. Guðmundsson
Lundar...................................Sig. Jónsson
Markerville........................ Hannes J. Húnfjörð
Mozart...................................Jens Elíasson
Oak Point......................................Andrés Skagfeld
Oakview......................................Sigurður Sigfússon
Otto............................................Björn Hördal
Piney................................. S. S. Anderson
Poplar Park...........................Sig. Sigurðsson
Red Deer.............................Hannes J. Húnfjörð
Reykjavík........................................Árni Pálsson
Riverton.........................................Bjöm Hjörleifsson
Selkirk...............................G. M. Jóhansson
Steep Rock.....................:..........Fred Snædal
Stony Hill......................................Björn Hördal
Swan River....................................Halldór Egilsson
Tantallon.......................................Guðm. ólafsson
Thornhill...........................Thorst. J. Gíslason
Víðir............................................Aug. Einarsson
Vancouver.......................... Mrs. Anna Harvey
Winnipegosis................:....................
Winnipeg Beach...................................John Kernested
Wynyard................................S. S. Anderson
í BANDARÍKJUNUM:
Akra.................................Jón K. Einarsson
Bantry.................................E. J. Breiðfjörð
Belingham, Wash.........................John W. Johnson
Blaine, Wash...............................K. Goodman
Cavalier...............................Jón K. Einarsson
Chicago: Geo. F. Long, 2428 Hamlin Ave., Logan Square Sta.
Edinburg...................................Jacob Hall
Garðar.................................S. M. Breiðfjörð
Grafton.................................Mrs. E. Eastman
Hallson................................Jón K. Einarsson
Hensel.................................J. K. Einarsson
Ivanhoe.................!..........Miss C. V. Dalmann
Milton.................................F. G. Vatnsdal
Minneota............................Miss C. V. Dalmann
Mountain...........................................Th. Thorfinnsson
Point Roberts..........................Ingvar Goodman
Seattle, Wash.........J. J. Middal, 6723—21st Ave. N. W.
Svold................................Jón K. Einarsson
Upham................................E. J. ílreiðfjörð
The Viking Press, Limited
Winnipeg Manitoba