Heimskringla - 10.10.1934, Side 5
WINNIPEG, 10. OKT. 1934
rfEIMSKR/NGLA
5. SHU
sla þeirra hluta, sem menn
þurfa sér til lífsviðurhalds, geti
valdið skorti í heiminum. En
svo er það samt. Eins og nú
er ástatt er framleiðslan því að-
eins arðberandi að hún verði
seld. Menn framleiða til þess
að selja en ekki til þess að nota
sjálfir, nema að ltilu leyti. Þessu
verður ekki breytt, nema því
aðeins að allur þorri manna
gerði sig ásáttan með að hverfa
aftur að njög frumstæðum lífs-
kjörum . Nú eru' engin líkindi
til þess að það verði gert. Þess
vegna virðist enginn annar veg-
ur vera til, til að ráða bót á
þessu, en sá, að koma á ein-
hvers konar skipulagi á alla
framleiðslu og öll viðskifti —
skipulagi., sem sé gert í því
augnamiði að gera öllum mönn-
um, hvar sem þeir eru, mögu-
legt, að hafa atvinnu, er sé
nógu arðberandi til þess að þeir
geti lifað samkvæmt skynsam-
legum kröfum um lífsþægindi.
Höfuðgallinn á öllum atvinnu
» og viðskiftamálum nú er sá, að
í þeim er alt miðað við ábata en
ekki þarfir. Meðan svo er, er
engin von um að nokkurt sam-
ræmi komist á í þeim efnum.
Hin óhindraða samkepni leiðir
ávalt og óhjákvæmilega til of-
framleiðslu, ranglátrar skifting-
ar arðsins og algerðrar óvissu.
Þess vegna er það að fleiri og
fleiri af þeim mönnum, sem um
fjármálin fjalla, er að verða
ljóst að engin varanlega bót
geti fengist nema meö meira
og betra skiplagi. Og það er
enginn vafi á því, að í framtíð-
inni munu stjórnmálin snúast
meira og meira um þetta. Það
verður hlutverk allra stjórna,
að vinna að því að koma þess-
konar skipulagi á; og það vitan-
lega ekki hjá einni og einni þjóð
út af fyrir sig, heldur hjá öllum
þjóðum. Það er sama, hvort
mönnum líkar þetta vel eða illa.
Nauðsynin er svo mikil, að hjá
því verður ekki komist. Menn
þurfa ekki að aðhyllast neina
sérstaka stjórnmálastefnu til að
sjá þetta, það kemur þrátt fyrir
allar stjórnmálastefnur sem því
eru andstæðar; því að undir
niðri eru það hin hagsmunalega
nauðsyn, sem að lokúm ræður,
hvaða stefnur eru teknar í
stjómmálunum.
En enginn þarf að halda að
þetta geti breyzt skyndilega. —
Það mun þurfa langan tíma til
þess. Mörg ráð, sem ef til vill
gera gagn í bili verða eflaust
reynd. En það er enginn annar
vegur til út úr því ástandi, sem
nú er, og sem að vísu ge-tur
batnað í bUi og líklega gerir
það, en sem áreiðanlega kemur
aftur fyr eða síðar, svo framar-
lega sem meginstefnan verður
sú sama.
En, mun einhver. vilja segja,
hvað kemur þetta trúmálum
við? Það eru trúmál sem eiga
að ræðast í kirkjum, en hvorki
fjármál né stjórnmál. Nei, það
eru einmitt þessi mál og öll
önnur, sem sne-rta almenna vel-
ferð manna, sem eiga að ræðast
í kirkjum. Ef meira hefði verið
um þau rætt þar, væri ekki ó-
mögulegt, að þau væru eitthvað
nær réttri og heppilegri úr-
lausn en þau eru. Sú skoðun
að trúmálin komi ekkert við
binu verulega mannlífi með öll-
um þess vandamálum, að trúin
sé ekkert annað og eigi ekki
að vera neitt annað en átrnúað-
ur, viðtekning einhverra hug-
mynda um óþekta hluti og ein-
hver viðleitni hvers manns út
af fyrir sig til að lifa sæmilega
óaðfinnanlegu lífi — sú skoðun
er úrelt og óhæf fyrir þessa
tíma. Hinir mestu trúarbragða
leiðtogar hafa verið menn, sem
mikið hafa látið til sín taka um
mannlífið. Þeir hafa stundum
álitið það svo ilt, að nauðsyn
bæri til að flýja það, en þeir
hafa aldrei verið afskiftalausir
um það. Spámenn gamlatesta-
mentisins vor-u ekki afskifta-
lausir um það, sem var að ger-
ast umhverfis þá í þjóðlífinu.
Um það ge-tur hver og einn
sannfærst, sem vil hafa fyrir
því að lesa orð þeirra. Jesús
frá Nazaret var ekki afskifta-
laus um það, heldur þvert á
móti var hann svo afskiftasam-
ur um galla samtíðar sinnar, að
menn þoldu ekki orð hans og
tóku hann af lífi af því að þeir!
óttuðust áhrifin, sem orð hans
höfðu. En kirkjan þegir að |
mestu leyti, þó ekki að öll-u'
leyti. Hún misskilur sitt hlut-1
verk; hún kannast ekki við að i
það sé sitt hlutverk að skilja!
tákn tímanna og hjálpa öðrum J
til að skilja þau. Hún hefir að-
skilið það sem hún nefnir ver-
aldleg mál og það sem hún
nefnir andleg mál, og hún hefir
tekið að sér andlegu málin. En
þetta tvent verður ekki fráskil-
ið hvað öðru, það er engin and-
leg frelsun til án líkamlegrar
frelsunar, frelsunar frá því sem
þjáir mennina og gerir þá van-
sæla hér í þessu lífi. Það sem i
kirkjan þarf mest með er ný j
trú, nýjan kristindóm getum
vér nefnt það — -trú, sem skilur
eftir áhrif í öllu félagslegu |
skipulagi mannanna til góðs, en j
ler ekki fyrir utan og ofan
mannlífið.
Menn tala oft um það að
kirkjurnar ættu að sameinast
og segja að hin sífelda sundr-
ung og skifting þeirra standi
kirkjunni í heild sinni fyrir þrif-
| um. Satt er það að vísu, en
hvaða gagn mundi sameining
þeirra gera nema því aðeins að
þær gameinuðu sig um eitt-
hvað?^ Það skiftir engu máli,
hvort þessi kirkjuflokkurinn eða
hinn vill sleppa þessari kenn-
ingunni eða hinni, eða víkja við
skilningi sínum á þessu eða
hinu; því flest af því öllu sam-
an hefir ekki lengur neina þýð-
ingu. En væri kirkjan yfirleitt
fús til þess að sameina sig um
það, að beita áhrifum sínum til
úrlausnar einhverjum vanda-
-málum heimsins, t. d. til þess að
vernda friðinn í heiminum, þá
væri mikið unnið með samein-
ingu.
Það væri rangt að segja, að
allar kirkjur láti öll mál nema
hin svokölluðu trúmál afskifta-
laus. Ýmsar deildir hennar hafa
hvað eftir annað gert yfirlýsing-
ar um afstöðu sína í mörgum
mikilsverðum mannfélagsmál-
um. En mikill hluti kirkjunnar
er samt enn svo bundinn á
kenningaklafann, að frá honum
er einskis verulegs skilnings og
engrar þátttöku að vænta í ná-
lægri framtíð. Eflaust á þetta
eftir að breytast, því áreiðan-
lega getur kirkjan ekki haldist
við til lengdar, nema að hún
geti hrundið af sér því ámæli,
að hún sé úrelt stofnun, sem
láti sig litlu eða engu skifta!
flest það, sem mest nauðsyn er'
á að breytist.
Hver maður verður að lifa í!
því mannfélagsástandi, sem ó- j
-teljandi öfl, sem hann ræður!
ekki yfir, hafa ofið saman ogl
myndað. En hann þarf ekki að
vera ánægður með það og á
ekki að vera þaö, ef hann sér, I
að það er verra en það mætti J
vera. Þeir eru víst fáir, sem j
ekki sjá það nú. En það er sitt j
hvað að sjá og að gera. Vér
gjörum ekki nema vér höfum
viljann og trúna á að unt sé að
ibæta alt heimsins böl, að það sé !
á valdi mannanna sjálfra að
gera það, og að það sé hlutverk
hvers og eins að leggja fram
sinn skerf til þess. Að hafa
viljann til að leggja hönd á
plóginn er það sem oss skortir
mest flesta hverja, en ekki það,
að vér getum ekki séð að þess
þarf með. En hver sem hefir
lagt hönd á plóginn horfir ekki
til baka; hann horfix fram á
við; hann veit að hann á að
eiga nokkum skerf hversu smár
sem hann kann að vera, í því
mikla og dýrlega starfi, sem
flýtir fyrir þróunn mannlífsins
á þessari jörð til meiri farsæld-
ar, fegurðar og friðar — til
guðsríkisins, sem vér biðjum
að komi, en sem vér erum svo
tregir til að vinna fyrir.
‘GEISLATEINNINN’
Mesta æfintýri vísindanna
Á rústum “gullgerðarlistar”
miðaldanna var bygð efnafræði
nútímans. En draumur mann-
kynsins um einhverntíma að
geta breytt málmum, verður þó
aldrei aldauða.
Menn gerðu sér fulla grein
fyrir því að ,málmarnir værú
óumbreytanlegir. En þó voru
menn enn að vonast eftir að
eitthvert innra samband fyndist
þeirra í milli, er gullgerðarmenn
fortíðarinnar nefndu
leyndardóm leyndardómanna.
Öld eftir öld leituðu gullgerð-
ar-menn eftir “óskasteininum”,
sem átti að geta umbreytt óæðri
málmum í gull. Dag eftir dag
unnu þessir menn við deigluna
í “ofni leyndardómanna” til þess
að finna “duft almættisins”. —
Duft þetta álitú þeir vera rautt.
Það átti að geta breytt málm-
um. Og margt annað átti það
að geta gert, t. d. lækna sjúlc-
dóma, yngja fólk og lengja lífið.
“Gullgerðarmenn” eða efna-
fræðingar miðaldanna, fundu
ekki “óskasteininn”, þó þeir
ynnu baki brotnu um öll lönd
og þó þeir hefðu þetta eina
sameiginlega takmark, og mikl-
um auðæfum úr að spila. Mikl-
ar fórnir voru færðar á altari
þessara “vísinda vísindanna”.—
Menn eyddu æfi sinni, kröftum,
efnum, slitú sér út, svo alteknir
voru þeir af hinni “göfugu á-
stríðu” gullgerðalistarinnar alt
frá dögum hins egypska dul-
spekings Hermes Treimegistos,
er var upphafsmaður þessarar
‘ ‘ vísindagr einar’ ’.
Margir gullgerðarmenn mið-
alda álitu, að þeir hefðu staðið
á þrepskildi hins mikla leyndar-
dóms. Að þeir hefðu verið að
því komnir að handsama hið
dularfulla efni, sem gat breytt
ýmsum málmúm í gull, læknað
sjúka og örfað lífsþróttinn. En
annaðhvort fór þekking þeirra
með þeim í gröfina, ellegar þá
að þeir skildu eftir sig “leið-
beiningar” sem enginn botnaði
ltfandi vitund í.
Geislaefnið radium
Það var fyrst vor kynslóð,
sem fekk lyft tjaldinu frá þeim
mika leyndardómi, er hið óvið-
jafnanlega efni fanst. — radium
— er nefna mætti “óskastein-
inn’’.
Kelvin lávarður, hinn enski,
lét svo um mælt, er “geislaefn-
ið” fanst, að hér væri fundinn
mesti leyndardómurinn í ríki
náttúrunnar. Eiginleikar efnis
þessa voru með þeim hætti, að
þeir gerbreyttu ýmsum kenn-
ingum efnafræðinnar, er áður
voru taldar óbifanlega á bjargi
bygðar.
Menn áttú erfitt með að trúa
því, að hin 28 ára gamla pólska
kona, Marja Sklodowska hefði
fundið nýtt frumefni. Hún gift-
ist síðar Curie hinum franska
og heimurinn kannast við hana
með hans nafni. Nú er hún ný-
lega dáin.
Grundvöllinn að uppgötvun
hennar lagði franski vísinda-
maðurinn Henry Becquerels. —
Árið 1896 fann hann að efnið
“uran” hafði þann eiginleika, að
frá því komu ósýnlegir geislar.
En út af þvf tók frú Curie að
rannsaka hvort önnur efni
hefðu þessar geislaverkanir, þ.
e. sendu sífelt frá sér geisla, án
þess að þau yrðú fyrir nokkrum
utanaðkomandi áhrifum.
Hún rannsakaðai af miklu
kaþpi og skarpskygni fjölda
efna og efnasambanda með til-
liti til þess, en komst ekki að
annari niðurstöðu en þeirri, að
ein tvö efni Uran og Tosium
hefðu þessar geislaverkanir.
En svo einn góðan veðurdag
fekk hún sendan máJm frá Joa-
chimsdal í Bæheimi. í málmi
þeim var Uran, með geislaverk-
anir.
En frú Curie fann nú sér til
mikillar undrunar, að í málmi
iþessum frá Joachimsdal voru
meiri geislaverkanir, en ef væri
þar Uran-efnið eitt. Og af því
dró hún þá ályktun, að í málmi
þessum hlyti að vera eitthvert
efni, sem enn væri ófúndið og
óþekt með öllu.
Þolinmæðisverk
En löng var leið og erfið til
þess að finna efni þetta. Beið
hennar nú hið mesta þolinmæð-
isverk. Maður\ hennar Pierre
Curie prófessor var henni stoð
og stytta. Og 1898 var hún
komin það langt, að hún hafði
eitt decigram af efni þessu í
'höndunum.
Til þess að ná þessum einum
tíunda úr grammi, þurfti að
mylja niður eitt tonn af málm-
inum frá Joachimsdal.
En árangurinn varð líka sá,
að fundið var hið dásamlegasta
efni, sem fundist hefir í heim-
inum, fullkomið töfraefni, sem
gerir mannkyninu óendanlega
mikið gagn.
Lykill að mörgum ráðgátum
Er menn höfðu loks hand-
samaö þetta undraefni gátu
rnenn leyst margar ráðgátur,
sem áður voru óskiljanlegar.
Og með því, að nota sér af
eiginleikum efnis þessa, er sá
gamli draumur mannkynsins að
rætast, að hafa meðal gegn öll-
um sjúkdómum.
Því radium er geislaefni um
fram alt. Dag og nótt, ár eftir
ár, öld eftir öld sendir það frá
sér hina öflugu geisla. Það lýsir
frá sér í myrkri og sendir frá
sér hita. Frá því geislar, ljós
og hiti, án þess að vega upp
orkutapið af útgeisluninni. —
Þetta gerði alla náttúrufræð-
inga heimsins agndofa. Ekkert
því líkt hafði þekst.
Útgeislunin frá radium sýndi
sig að vera miljón sinnum sterk-
ari en frá Uran. Geislar þess
gátu farið gegnum þykkar járn-
plötur.
Hvað er nú hægt af þessu að
læra?
Uppspretta lífsins?
Fyrir löngu gerðu menn sér í
hugarlund, að langt niður í
jörðinni brynni eilífur eldur. —
Þessvegna létu menn sem svo,
að þar væri víti brennandi með
sjóðandi brennisteinssvækju og
helvískum hita.
Seinna komu vísindin með þá
skýringu, að iður jarðar væru
fylt gastegundum, með 2000
gráðu hita. Og nú geta menn
gert sér grein fyrir því, að hit-
inn, sem menn fyrirhitta, er
þeir grafa í jörð niður, stafi frá
geislum frá radium í iðrún jarð-
ar.
En hvaðan fær sólin orku
sína. Um það vitum við ekki.
En sé 1 gramm af radium í
hverju tonni sólhnattar, þá er
orka þess radium næg til þess
að veita sólinni þá orku sem
hún hefir.
Og þegar menn nú giska á,
hvternig menn fá heilsubót við
ýmsar heilsulindir, þá er skýr-
ingin sú eðlilegust, að í lindum
þessum sé radium. Gufa kemúr
þar úr jörðu, sem leikið hefir
um jarðlög hið neðra, en inni-
halda radium. Þannig fá lind-
irnar heilsubætandi áhrif sín.
Þegar frú Curie stóð árið
1898 með hið litla hylki, er
hafði að geyma hið nýja efni, þá
hafði draumur gullgerðarmanna
að nokkru leyti ræst.
Þá dreymdi um rautt duft er
átti að verða mannkyninú til
hinnar mestu blessunar. Hún
fann hið hvíta duft, sem er
fegursta perlan í kórónu vís-
indanna. V. B. (þýtt)
—Lesb. Mbl.
TVEIR ISLENZKIR STOKU-
MENN IKAUPMANNAHÖFN
I danska blaðinu “Berlingske
Tidende” 26. f. m. er eftirfar-
andi grein:
“Þegar “ísland” kom til
Kaupmannahafnar í gær, af-
henti skipstjórinn lögreglunni
tvo pilta, vegna þess, að þeir
höfðu komið frá íslandi, sem
faldir farþegar. Þeir voru alveg
peningslausir, en við burtförina
höfðu þeir falið sig í lestinni og
haft brauð með sér í nesti til
ferðarinnar.
Þegar skipið var komið út á
rúmsjó, var þeim fyrst veitt
efitirtekt. Hinum yngri, sem er
aðeins 16 ára gamall, var kom-
ið fyrir á heimilslausra hæli, en
eldri pilturinn, hinn 19 ára
gamli, Magnús Gíslason, var
tekinn til yfirheyrslu í gær-
kveldi.
Hann skýrði svo frá, að þá
félaga hefði langað til að sjá
Kaupmannahöfn, og þeir höfðu
búist við ,að hægt væri að fá
nógu atvinnu í svo stórri borg.
Fyrst úm sinn fær Gíslason
að skoða sig um í fangelsinu,
en s/ðan verða þeir félagar
sendir/ aftur til Islands”.
Nýja Dagblaðið sneri sér til
lögreglustofunnar í gær, og
fékk þar staðfestingu á því, að
þessi frásögn danska blaðsins
væri rétt.
Pilturinn, sem ekki er nafn-
greindur í greininni heitir
Gunnar Jóelsson, til heimilis á
Framnesvegi 10. Kom hann
hingað aftur með “íslandi”, en
Magnús er ekki kominn enn.
Báðir eru þessir piltar vel
kunnugir lögreglunni hér.
Þér sem notið—
TIMBUR
KAUPIÐ AF
THE
Empire Sash & Door
CO., LTD.
Birgðlr: Henry Ave. Ea«t
Sími 95 551—95 552
Skrifstofa:
Henry og Argyle
VERÐ - GÆÐI - ÁNÆGJA
BUSINESS
EDUCATION
“Endurminningar”
Friðriks Guðmundssonar eru til
sölu hjá höfundintum við Mo-
zart, í bókaverzlun ó. S. Thor-
geirssonar og á skrifstofu Hkr.
Fróðleg og skemtileg bók og
afar ódýr. ..Kostar aðeins $1.25.
t » , -t „ou w
\ mee< °efroeuo,
slrearo^ne ^ Qcmin-
arvá econom^ courseí
°( 'r“’T cvep)<K.ng
,oo. «"h e , wKe.Ker y°°
ví.íK <° 'e 5CCreter'»l
^cT You^*1*^
r , ,Ke D°nun>°n 5UV
mail, f°r 1 , gcrytVuna
p' -
(cxt Kooks. uy Kere jor
classei , r nj.tion in
tK°se ~'ho P L„ble cleo-
rooms. ^ 5tudenö
f°r 0UVj i denred- D°n«
arrenged '1 t ortKeD°m-
put off coetsyou
inion PrOTPej1 .jj meW
notKing,«n e
y:á
MAIL THIS COUPON 10-DAY!
To tKe Secretary :
Dominion Business College
Winnipeg, ManitoKe
WitKout obligation, please send me full perticulars
of your courses on“Streamlin«M business training.
Lesið Heimskringlu
Kaupið Heimskringlu
Borgið Heimskringlu
l!i
6’/>eDominion
BUSINES|5 COLLEGE
'OM 'IHf. MÁÍ) • WINMIPEG-
Skjót, trygg og þægileg ferð
með
Canadian Pacific Steamships
Þegar þér farið að hugsa um að heimsækja kunningja yðar &
tslandi um jólln, ættuð þér að sjá oss og gera strax ráðstafanir
um það.
Siglingar eru á fárra daga fresti.
Þriðja pláss farrými frá Montreal til Reykjavík:
Aðra leiðina ......-...$111.50 og yfir
Fram og til baka ......$197.00 og yfir
Frekari upplýsingar fást með því að finna agent vorn f
plássinu eða skrifa:
R. W. Greene G. R. Svvaiwell J. B. McKay
106 C.P.R. Bldg. C.P.R. Bldg. King and Yonge Sts.
Edmonton, Alta. Saskatoon, Sask. Toronto, Ont.
W. C. CASEY, Steamship General Passenger Agent
322 Main St. — Winnipeg, Man.
CANADIAN PACIFIC STEAMSHIPS