Heimskringla - 07.11.1934, Side 7
WINNIPBG, 7. NÓV. 1934
HEIMSKRINGLA
7. SIÐA
AÐ LEIKSLOKUM
Eg verð að gera dálitla skýr-
ingu á þessum undarlega mis-
skilningi sem er milli okkar
ritstj. Hkr. Annars býst eg við
að flestum lesendum sé farið
að leiðast það.
Það er æði mikið sem okkur
ritstj. ber á milli. Hann stað-
hæfir að hagur bænda sé orð-
inn sem næst !því eins góður
eins og hann var áður en
kreppan kom á, og þakkar það
aðgerðum stjómarinnar.
En eg álit að kreppan hafi
aldrei þrengt eins að bændum
eins og nú, þrátt fyrir starfsemi
stjórnarinnar. Þó hefi eg sér-
staklega talað um ástæður
gripabænda.
Þetta bar eg fram í fyrri
grein minni 19. f. m. Ritstj.
mótmælti þessu, og sagði að eg
færi þar með rangt mál, móti
betri vitund”. í síðari grein
minni 17. f. m. hugði eg mig
hafa fullgild rök fyrir minni
skoðun. Við hana gerir rit-
stjórinn nokkrar athugasemdir,
en hrekur þó ekkert af ástæð-
uxn mínum. Hann fer þar út í
aðra sálma, til þess að leiða
athygli lesendanna frá efni því
sem um er deilt. — Sú er oft
aðferð lögmanna, og ýmsra
annara, sem hafa veikan mál-
stað að verja. —
Ritstj. segir að eg viti ekki
eða vilji ekki viðurkenna, að
tolllög Bandaríkjanna hafi
lækkað verð á ungum gripum
héðan; en að þau lög hafi geng-
ið í gildi meðan King sat að
völdum. Þetta vissi eg vel áður
en hitt vissi eg ekki að þau lög
hefðu verið King að kenna, eins
°g ristj. virðist gefa í skyn. En
ef svo væri, þá mætti ætla að
Bennett hefði getað afnumið
Þau. Eg hefi ekkert dæmt um
°rsakir kreppunnar. — Það
mun þurfa færari menn en
okkur ritstj. Hkr. til að rekja
Það mál til hlítar — eg hefi
aðeins talað um afleiðingar
hennar, og fjárþröng þá sem
kún hefir valdið gripabændum.
Eg hefi fært rök að því að verð
á miðlungsgripum hagagengn-
ulo var sem næst því helmingi
hærra 1929 en á kornöldum
gripum í haust. Eg hefi sýnt
fram á að girpaverð hafi farið
tekkandi með ári hverju, síðan
kreppan kom á, og að það hafi
verið lægst í sumar. Eg hefi
^rdðað við gripaverð alment, en
°kkí einstök happakaup. Þetta
stendur alt óhrakið.
Eg skal játa að gripaverð
kefir hækkað dálítið síðan eg
skrifaði grein mína. Mun það
^est hafa stafað af því að
ookkrir bændur hafa komið
kingað austan úr fylkjum og
kafa keypt talsvert af ungum
Sripum úti í sveitum. Mun það
kafa haft nokkur áhrif á mark-
aðinn í Winnipeg. En nú síð-
hstu dagana hefir verðið fallið
áftur.
Það er annars einkennilegt
að ritstj. Hkr. getur ekki rök-
ra^tt nokkurt mál, nema að
skoða það gegnum pólitízk gler-
a«gu. Hann talar um að eg
“a,ki pólitízkum plógi”. Þá list
kefir eg aldrei lært. Eg er mjög
iiia að mér í pólitízkri búfræði,
þar er ritstj. mér svo miklu
fremri, eins og hann hefir oft
sýnt, og aldrei betur en nú. Eða
hvað á að kalla það að stað-
hæfa að efnahagur bænda sé
nú “sem næst því eins góður,
eins og áður en nokkuð var tal-
að um kreppu”; og að þakka
það aðgerðum stjórnarinnar.
Ekki lái eg ritstj það, þótt
hann hefði ekki mín ráð að
ferðast niður í griparéttina til
að fræðast um verðlagið. Hann
segist hafa sorglega reynslu af
för sinni þangað eitt sinn áður,
að nautin væru þar óð, en
mennirnir þó verri”. Það hefði
getað farið svo að ritstj. hefði
orðið fyrir illum áhrifum af
nautunum; og væri það illa
farið, enda þótt hann hefði get-
að varast mennina.
Um orðið “launklípni” geta
þeir átt saman dr. J. P. Pálsson
og ritstjórinn. Þeir eru báðir
skólagengnir menn, og því ef-
laust meiri málfræðingar en eg.
Er svo útrætt um þetta mál
frá minni hlið; ritstj. má gjarn-
an hafa síðasta orðið.
Guðm. Jónsson
frá Húsey.
Aths. ritstj.:
Vísvitandi fer G. J. hér með
þau ósannindi að okkur beri á
milli um verð á lélegri gripum.
Af minni hálfu var það einmitt
verð þeirra gripa, sem tekið var
fram um í fyrstu grein minni,
að enn stæði í stað. Og af
því að það er eina bændavaran,
sem G. J. getur bent á, sem
ekki hafi á þessu ári hækkað f
verði, er sjálfsagt, að ala á því,
til þess að fegra málstað sinn í
held sinni. Og eins er með
samanburð hans á verði á
stríðsárunum og kreppuárunum,
að þar er hann að fljúga eins
langt frá efninu og komist
verður. Finni G. J. engan mun
á verði bænda vöru á þessu ári
og á árinu 1933, hlýtur það að
vera af því, að hann hefir um-
gengist þessar sérstöku skepnur
fullmikið, sem hann talar um í
grein sinni, að ill áhrif stafi frá.
VOGARÓSIN
Framh.
— Hvað ertu að gera, bölvað
nautið þitt? þrumaði Magnús
gamli öskuvondur. í sömu svif-
um féll heil skriða af smástein-
um rétt hjá þeim, svo þeir urðu
að flýta sér til hliðar. Nú setti
þá alla hljóða. Pétur bærði
fyrst á sér; hann ræskti sig og
tók upp í sig.
— Hann hlýtur að hafa sorf-
ist sundur á hvassri brún, sagði
Jón í Nesi lágt. Því var engu
svarað.
Þarna stóðu þeir. Það var
komin hellirigning og allsstaðar
að úr bjarginu heyrðist hávað-
inn af grjóthruni og skiðuföll-
um. Útlitið var ekki glæsilegt.
Engum myndi detta í hug að
undrast um þá, fyrr en á nóttina
liði, og í Vogum var aðeins
kvenfólk heima. 1 Nesi myndi
enginn verða órólegur Jóns
vegna. Fólkið myndi halda, að
hann væri í Vogum um nóttina.
Og það var óðs manns æði að
klifra upp bergið án vaðs, ekki
sízt nú, er það var vott og sleipt
af regninu. Reyndar höfðu
fleiri en einn fyrr á tímum
klifrað hjálparlaust bæði niður á
þenna stall og upp aftur. Meira
að segja hafði faðir Magnúsar
gamla leikið það í æsku, en á
síðasta mannsaldri hafði enginn
gert það.
— Hvað eigum við að gera?
spurði Jón í Nesi. Nú var
hann sérlega gæfur í máli.
Magnús gamli þagði. Hann
horfði um stund hugsandi upp
eftir berginu. — Faðir minn fór
hér upp, tautaði hann fyrir
munni sér. Þá hnyklaði hann
alt í einu brýrnar og horfði til
skiftis á ungu mennina tvo. —
Annarhvor ykkar verður að
klifra upp og sækja voð, sagði
I hann því næst, mjög alvörugef-
j ,
mn.
Það glaðnaði yfir Jóni í Nesi.
— Pétur verður að klifra upp!
Eg er svo fjandi [stirður í
skrokknum eftir veturinn, ann-
ars skyldi eg —
Magnús gamli virti þessa tvo
aftur fyrir sér um stund. Svo
sneri hann sér að PétrL
— Vilt þú reyna, Pétur minn?
Hann var næstum bh'ður í mál-
rómi.
— Reyna! — Hann, sem er
vinnumaður þinn. Þú getur
skipað honum að fara, sagði
Jón óðamála.
Magnús gamli lét sem hann
heyrði það ekki: hann horfði
bara á Pétur. Ljóshærði, grann-
vaxni pilturinn horfði þrjósku-
lega niður fyrir sig.
— Hvað fæ eg fyrir ferðina
þá arna? spurði hann dræmt
eftir langa bið.
Pelíssier’s Limited
BREWERS
MULVEY & OSBORNE WINNIPEG
PELISSIER’S CLUB BEER and BANQUET ALE
A Union Product Made By Union Labor
PROMPT
DELIVERY—
42 304 . . 41 111
Thls advertlsement is not lnserted by the Government Liquor Control Commission. The
Dommlssion ls ncl responslble íor statements made as to quallty of produot advertised.
— Tveggja ára kaup, greitt
þegar við komum í stofuna í
Vogum, svaraði gamli maðurinn
án þess að hugsa sig um.
Pétur hló háðslega. — Þá
verð eg heldur hér! sagði hann
hörkulega. Þeir finna okkur
sjálfsagt, þegar líður á kvöldið.
Magnús gamli horfði á eftir
stórum steini, sem þaut framhjá
í sama bili. — Það verður ekki
hér á stallinum, Pétur, sagði
hann.
— Sama er mér ,mín bíður
ekkert eftirsóknarvert, þegar
upp kemur! sagði pilturinn.
Magnús gamli hugsaði sig um
eitt augnablik, gaut hornauga
til Jóns í Nesi og hnyklaði
brýnar. Því næst sagði hann
með sinni gömlu, þrumandi
raust:
— Jæja, drengir ef þið viljið
drepast eins og hundar hér í
bjarginu, án þess svo mikið
sem reyna að skreiðast upp, þá
það! Eg er of gamall, en það
ætla eg að segja, að þegar eg
var yngri---------í stuttu máli:
sá ykkar, sem sækir nú vað,
hann skal fá Elínborgu og jörð-
ina og það, sem eg læt eftir
mig!
Jón rauk upp: — Stúlkan er
heitin mér!
— Hefir þú vitni að því?
spurði karlinn þurlega.
— Vitni? Jón var hundslegur
við.
— Já, eg sagði vitni. — Hvað
ætlar þá að verða úr þessu?
Pétur svaraði með því að
leysa af sér eggjakörfuna og
binda fastar á sig ullarskóna.
Sem snöggvast sýndist Jón ætla
að þjóta upp, en svo leit hann
út undan sér upp eftir berginu,
og fór ósjálfrátt hrollur um
hann. Strax á eftir þreif Pétur
í handlegg hans og hvæsti fram
an í hann: — Eg ætla aðeins
að vara þig við, Jón, að komi
eg aftur og finni þig einan á
stallinum, þá — já, þá skalt þú
aldrei oftar þurfa á vað að
halda í þínu lífi!
Hann herti takið, svo Jón
stundi. Því næst lagði hann til
uppgöngu.
Fyrsta spottann var hann fljót-
ur; það var tiltölulega greið-
fært. Bjargið var blautt, svo
að það var ennþá sleipara en
venjulega. Einmitt nú misti
hann fótfestuna, svo hann varð
að hanga í standberginu á hönd
unum einum saman, þar til
hann gat á nýjan leik tyllt tán-
um í rifur og á snasir. Smá-
steinar losnuðu undan fingrum
hans, áður en hann náði taki.
Hann heyrði dunur grjóthruns-
ins umhverfis sig, og fugla-
gargið frá þúsundum nefja
klauf loftið í hvert sinn er
flokkur flaug hjá eða lyfti sér
til flugs frá berginu. Fyrir neð-
an hann gekk bjargið þvert-
hnýptniður í hyldýpið, og fyrir
ofan hann ,hátt, hátt uppi, var
bjargbrúnin, sem hann stefndi
að með öllu sínu líkams- og
viljaþreki. Hann hugsaði ekki,
ákvarðaði ekki, hinn ungi,
sterki líkami hans skalf allur
af æsingu. Hver taug var þan-
in til hins ítrasta. Stórir og
smáir steinar þutu í loftinu, oft
rétt hjá honum, en hann tók
ekki eftir þeim; hann fann ekki,
að fingurnir voru sárir og blóð-
ugir. Hann skeytti því engu,
þótt hann rifi alt í «inu annan
öklann til blóðs á hvassri stein-
snös. — Aðeins einu sinni
hvíslaði hann nafnið: “Vogarós-
in”.
Upp á við mjakaðist hann,
upp á við, hægt og seint, en
stöðugt upp á við. Bráðum
voru aðeins fimtán faðmar eft-
ir — tólf — tíu — átta — fjór-
ir. . . . Þá var honum farið
að sortna fyrir augum af
þreytu, og blóð hans brann eins
og af sótthita. — En inst í
huga hans steig upp syngjandi
fögnuðurinn: “Vogarósin” þín!
“Vogarósin” þín!---------
Aðeins hálfur þriðji faðmur
var eftir, en brattasti og versti
kaflinn á allri leiðinni. Og alt
í einu losnaði hnefastór steinn
úr brúninni, féll niður og lenti
í höfði Péturs. Alt sortnaði
umhverfis hann og honum fanst
hann steypast niður í gínandi
undirdjúp. Hann vissi ekki
sjálfur ,hvort hann hafði mist
tökin eða ekki. En gegnum
dvínandi meðvitundina þrengdi
sér hin harða, óbeygjanlega
skipun, sem ætlaði að sprengja
heila hans: Upp! Upp! Hann
varð að komast upp.
Eins og svefngöngumaður
læsti hann blóðugum fingrun-
um í rifur og sprungur. Hann
þreifaði lengi fyrir sér í hvert
skifti, misti tvisvar takið, svo
að hann hékk í lausu lofti á
annari hendi og öðrum fæti.
Og regnið streymdi niður. En
samt miðaði honum upp á við.
Á nokkrum mínútum hafði
hann komið báðum höndum upp
á brúnina. Lausagrjót skriðn-
aði undan olnbogum hans og
hrapaði niður. Það var varla
nokkur máttur eftir í honum,
og honum fanst hann altaf vera
að renna og hrapa. Líkaminn
ætlaði að síga út af brúninni.
Þá fór skyndilega um hann
kippur; með því að neyta hinstu
krafta, tókst honum að koma
hnjánum upp og velta sér upp
á fastan jarðveg. Þar lagðist
hann á grúfu og brast í grát af
gleði og þreytu.-------
Skömmu síðar kom hann
skjögrandi inn í stofuna í Vog-
um, fleygði sér niður á stól og
veifaði handleggjunum í ákafa.
Kvenfólkinu lá við að ærast.
— Kaðal — kaðal — vað!
æpti hann, þegar hann loks
mátti mæla. Konurnar stóðu
sem steini lostnar, fölar og
skelfdar og bjuggust við hinu
versta. Elínborg varð fljótust
að ná sér. Hún flýtti sér út og
hljóp að einu úthýsinu, þar
sem auka-vaðurinn var geymd-
ur. Þegar hún var að rogast út
með hann, kom Pétur þjótandi
og rétti henni hjálparhönd.
Loks komu þau að bjargbrún-
inni. Pétur varp öndinni létt-
ara og tárin komu fram í aug-
un á “Vogarósinni”. Mennirnir
tveir stóðu ennþá niðri á stall-
inum. .
— Bara að eg geti nú kastað
svo í lagi sé, tautaði Pétur. —
Hann fann varla til handanna
á sér.
— Hversvegna —? Nú fyrst
tók hún eftir, hvernig hann leit
út og hrópaði upp yfir sig. Augu
þessarar háu íturvöxnu meyjar
með sviphreina andlitið fyltust
af tárum, sem runnu niður rjóð-
ar kinnamar.
En á næsta augnabliki mundi
hún aftur eftir vaðnum, þreif
hann með báðum höndum, mið-
aði vandlega og kastaði honum
svo af öllu afli. Bæði lutu á-
fram, full eftirvæntingar, og
héldu niðri í sér andanum, með-
an þau fylgdu honum með aug-
unum. Hann lenti nokkrum
BYh. á 8. bls.
NAFNSPJÖLD
Dr. M. B. Halldorson
401 Boyd Bldg.
Skrifstofusíml: 23 674
Stundar sérstaklega lungnasjúk-
dóma.
Er að finni á skrifstofu kl. 10—12
f. h. og 2—6 e. h.
Heimili: 46 Alloway Ave.
Talsími: 33 158
G. S. THORVALDSON
B.A., LL.B.
Lögfrœðingur
702 Confederation Life Bldg.
Talsími 97 024
Dr. J. Stefansson
216 MEDICAL ARTS BLDG.
Horni Kennedy og Graham
Stundar eingöngu augna-eyrna-
nef- og kverka-sjúkdóma
Er að hltta frá kl. 2.30—5.30 e. h.
Talsími: 26 688
Heimili: 638 McMillan Ave. 42 691
W. J. LINDAL, K.C.
BJÖRN STEFÁNSSON
ISLENZKIR LÖGFRÆÐINGAR
á öðru gólfi
325 Main Street
Talsími: 97 621
Hafa einnig skrifstofur að
Lundar og Gimli og eru þar
að hitta, fyrsta miðvikuöai í
hverjum mánuðl.
Rovatzos Floral Shop
206 Notre Dame Ave. Phone 94 954
Fresh Cut Flowers Daily
Plants in Season
We specialize in Wedding' &
Concert Bouquets & Funeral
Designs
Icelandic spoken
M. HJALTASON, M.D
ALMENNAR LÆKNINGAR
Sérgrein: Taugasjúkdómar
Lætur úti meðöl f viðlögum
Sími: 36 155 682 Garfield St.
Dr. S. J. Johannesson 218 Sherburn Street Talsími 30 877 A. S. BARDAL selur líkkistur og annasit um útfar- ir. Allur útbúnaður sá besti. Ennfremur selur hann allskonar minnisvarða og legsteina.
Viðtalstími kl. 3—5 e. h. 843 SHERBROOKE ST. Phone: 86 607 WINNIPEG
Office Phone Res. Phone 87 293 72 409 RAGNAR H. RAGNAR
Dr. L. A. Sigurdson 109 MEDICAL ARTS BUILDING Pianisti oo kennari
Offxce Hours: 12 - 1 4 P.M. - 6 P.M. AND BY APPOINTMENT Kenslustofa: 683 Beverley St. Phone 89 502
THE WATCH SHOP Thorlakson Baldwin MARGARET DALMAN
Diamonds and Wedding Rings Agents for Bulova Watches Marriage Licenses Issued 699 Sargent Ave. TEACHER OF PIANO 854 BANNING ST. Phone: 26 420
VIKING BILLIARDS óg Hárskurðar stofa 696 SARGENT AVE. i Knattstofa, tóbak, vindlar og vindlingar. Staðurinn, þar sem Islendingar skemta sér. Dr. A. V. JOHNSON ISLENZKVR TANNLÆKNIR 212 Curry Bldg., Winnlpeg Gegnt pósthúsinu Slmi: 96 210 Heimilis: 33 328
UNCLAIMED CLOTHES All new—Not Worn Men’s Suits & Overcoats 479 PORTAGE AVE. I. H. TURNER, Prop. Telephone: 34 585 "WEST OF THE MALL—BEST OF THEM ALL" Jacob F. Bjarnason —TRANSFER— Baggage and Furniture Moving 762 VICTOR ST. SIMI: 24 500 Annast allskonar ílutninga fram og aftur um bæinn.
J. J. Swanson & Co. Ltd. REALTORS Rental, Insurance and Financial Agents Sími: 94 221 600 PARIS BLDG.—Winnipeg J. T. THORSON, K.C. Islenzkur lögfrceðingur Skrifstofa: 801 GREAT WEST PERMANENT BUILDING Sími: 92 755
Svanhvít Jóhannesson, LL.B. Islenzkur “lögmaður” Viðtalssltfa: 609 McArthur Bldg. Portage Ave. Cí skrifstofum McMurray & Greschuk) Simi 95 030 Heimili: 218 Sherburn St. Síml 30 877 Dr. K. J. AUSTMANN Wynyard —:— Sask.
MAKE YOUR PLEASANT LUNCH HOUR DATES AT The JHarlborousí) ^otel ! A Service to Suit Everyone ; LADIES MEZZANINE FLOOR ! 11.30 to 2.30 Special Luncheon ■ 35c BUSINESS MEN CLUB LUNCHEON—11.45 to 2.30 Talsimi: 28 889 Dr. J. G. SNIDAL TANVLÆKNIR <■ 614 Somerset Block Portage Avenue WINNIPEG
50c and 75c also a la carte ; COFFEE ROOM (Men & Women) J ! SPECIAL LUNCH, 12-3 40c ■ ; SPECIAL DINNER, 6 to 8....50C ]
Dr. A. B. Ingimundson TANNLÆKNIR
602 MEDICAL ARTS BLDG.
LESIÐ, KAUPIÐ OG BORGIÐ HEIMSKRINGLU Sfml: 23 396 Heimilia: 46 054