Heimskringla - 14.11.1934, Síða 4
4. StÐA
HEIMSKRINGLA
WINNEPEG, 14. NÓV. 1934
ffríntskríttgla
(StofnuO 1886)
Kemur út á hverjum mUSvikudegi.
Eigendur:
THE VIKING PRESS LTD.
853 og 855 Sargent Avenue, Winnipeg
Talsímia 86 537
Verð blaðsins er $3.00 árgangurinn borgist
tyrirfram. Allar borganir sendist:
THE VIKING PRESS LTD.
011 viðskifta bréf blaðinu aðlútandi sendist:
Manager THE VIKINO PRESS LTD.
853 Sargent Ave., Winnipeg
Ritstjóri STEFÁN EINARSSON
Utanáskrift til ritstjórans:
EDITOR HEIMSKRINGLA
853 Sargent Ave., Winnipeg
"Heimskringla” is published
and printed by I
THE VIKING PRESS LTD.
853-855 Sargent Avenue, Winnipeg Man.
Telepihone: 86 537
WINNIPEG, 14. NÓV. 1934
FRÁ RÚSSLANDI
Á skömmum tíma, mánuði eða svo
hafa verið haldnir fimm eða sex fyrir-
lestrar í þessum bæ um Rússland. Fréttir
þaðan hafa dunið eins og úrhellisrigning
yfir menn. En eins og við er að búast,
segja ekki allir söguna eins og mála sumir
rautt en aðrir svart. Þeir eru til sem
haldið hafa fram, að þar væri búið að
stofna guðsríki á jörðu. Aðrir hafa ekki
látið sér neitt fyrir brjósti brenna að
nefna landið jarðneskt helvíti. Einstöku
eru svo hófsamir, að segja blátt áfram
að vel sé þar um margt, en aftur miður
um sumt. Og líklegast er það mesti
sannleikurinn, sem sagður verður um
þetta heimkynni nýs stjórnskipulags.
En eitt er það, sem öllum kemur sam-
an um. Það er að nýr áhugi til umbóta og
framfara sé vaknaður hjá þjóðinni, eink-
um hinni uppvaxandi kynslóð. Prof. J.
King Gordon, sonur prestsins og sögu-
skáldsins Gordons, sem eitt sinn átti
heima í þessum bæ, er s. 1. fimtudag flutti
fyrirlestur um Rússland, bendir á það,
að yngri kynslóðin hafi áreiðanlega öðlast
hugsjón, sem hún horfi ekki í að fóm-
færa sér fyrir. Hjá eldri éöa elztu kyn-
slóðinni, hefir slíks ekki orðið vart, enda
er margt óh'kt með ungum og gömlum.
Hún vill ekki þau verk vinna, sem ekki
færa henni beinan og skjótan arð, hvernig
sem reynt er að sannfæra hána um, að
starfið sé í þágu heildarinnar unnið. En
hinir yngri eru fúsir til þess. Og það
segir ávalt nokkuð. Eru allar líkur
til að á þjóðinni sé að sannast það sem
Þorsteinn Erlingsson kvað:
-----ef æskan vill rétta þér örvandi hönd,
þá ertu á framfara vegi.
Fyrir stríðið mikla, voru meirf vanhöld
í menningarástandi Rússlands en nokkur
staðar í Norður-álfunni. Einn frjóði íbúa
hins eiginlega eða evrópiska Rússlands,
var talinn standa jafnfætis bezt mentuðu
Evrópu-þjóðunum. Hinn hlutinn var einn
og sér og var allra aftastur í menningar-
listinni. Nú er þessu orðið ger breytt.
Æskulýður Rússlands stendur nú jafn-
öldrum sínum í öðram löndum vel á
sporði. Og árangurinn af því er nú það,
sem er að gerast hjá þjóðinni. Þó á
verklegar framfarir verði ekki meiri bent
ennþá hjá Rússum en þær, sem til eru
hjá öðrum þjóðum, eru þær svo miklu
fremri því er áður þektist í Rússlandi,
að borið saman við það, munu ekki aðr-
ar þjóðir hafa af meiru að láta.
Hitt getur orkað tvímælis, hvort iðn-
aðarstefna Rússlands, sem mest kveður •
að, sé öllu öðru heillavænlegrL Frétta-
ritari “Christian Science Monitor”, sem
í Rússlandi hefir verið í 10 ár, og sem
hvítt kallar hvítt og svart það sem svart
er í því er hann ritar um Rússland, efast
um að verksmiðjustarfsemi sé affarasælli,
en það, að gefa sig meira við landbúnaði.
Telur hann mikinn hluta þjóðarinnar
mundi njóta sín betur við jarðyrkjuna,
meðan menningarástand hennar sé eins
og það er, en víraverki verksmiðjuiðnað-
arins, sem húff botnar ekkert í og starir
á sem naut á nýverki. Segir hann ekki
efa á því, að löngun bænda til að bjargast
á búnaði hafi dvínað og þó stjórain reki
fyrirmyndarbú víða, hafi ekki nærri eins
alment og nauðsynlegt sé, verið gert að
jánbrautum landsins ,sem verið hafi til
þessa í niðumíðslu svo mikilli, að bús-
afurðir hafi ekki komist til markaðar.
Mannféllirinn 1933 telur hann hafa átt
rætur að rekja til þessa sinnuleysig um
samgöngur. En á það beri að líta að verk-
efni Rússlands séu mörg og að því er sam-
göngur um bygðir og búlönd Rússlands
áhræri, eigi þjóðin þar meira umbótaverk
fyir höndum, en flestar aðrar menningar-
þjóðir.
Annað sem fregnritari þessi bendir á,
er að mikill hluti þjóðarinnar sé í Asíu og
með austurlenzkum hugsunarhætti, sem
líti tortryggnisaugum alt þetta verklega
bis og fjármálabraék vestlægu þjóðanna og
athafnir rússnesku stjórnarinnar um leið.
Austrið og vestrið mætast þarna í bók-
staflegum skilningi og um erfiðleikana
að sameina þetta hvorttveggja er sagan
gerð. Það er margt sem til greina kemur
þegar mæla á verkefnin á höndum rúss-
nesku stjórnarinnar. Að hugsa sér að hún
gæti nú þegar litið yfir það sem hún
hefir gert sem harla gott, væri til heldur
mikils ætlast.
Hitt er ærið afreksverk, að hafa vakið
mikinn hluta þjóðarinnar, hinn yngri að
minsta kosti, til meðvitundar um þjóðlegt
hlutverk. Það er ekki óhugsanlegt að
samfara því sé meiri einstaklingsáreynsla,
en margan grunar, en áreynsla, sem ávalt
hefir laun sín átt í þroska þjóðanna.
BANDARiKJA KOSNINGARNAR
SÖGULEGUR VIÐBURÐUR
Það verða naumast bornar brigður á
sigur demókataflokksins í kosningunum,
sem fóru fram 6. nóvember, þar sem
tveir þriðju öldunga og þrír fjórðu full-
trúa á Washington þinginu, eru nú bak-
hjarl hans eða Roosevelts. En þessi
mikil sigur, er ef til vill, eins og viðhorf
og stefna flokksins er nú, einnig sögu-
legur pólitískur viðburður.
Lítum á aðaldrætti stjóramálasögunnar.
Þegar birta tók í lofti eftir borgarastríðið
1865, voru tveir stjórnmálaflokkar í land-
inu. Þá greindi ekki einungis á í skoð-
unum, heldur bygðu hvorir sinn hluta
landsins, republikar norður hlutan, en
demókratar hinn syðri. í norðurhlutan-
um voru fleiri ríki; hann var og mann-
fleiri og iðnaður var þar lengra á veg
kominn. Sem eðlilegt var unnu þeir
stríðið og republikar tóku við völdum
hinna sameinuðu ríkja.
Og þeir voru aðalflokkur landsins um
sextíu ár. Stefna þeirra reyndist farsæl
og iðnaðarþroski landsins frá 1870 til
1880 og eftir það, var hinn stórkostleg-
asti. í Norðurríkjunum fanst varla nokk-
ur viðskiftamaður, sem ekki var republiki.
Öegar Vesturríkin komu til sögunnar,
bygðust þau af Norðurríkjamönnum. Og
þeir fluttu þangað með sér með öðru
erfðagózi stjóramálaskoðanir feðra
sinna. Með iðnaðar vextinum fluttist fólk
inn í landið frá Evrópu og risu þá brátt
um samtök ýmiskonar á meðal verka-
manna. En þeir fylgdu flestir republik-
um að málum af því að með vernd iðn-
aðarins frá þ§im flokki, álitu þeir mola
til sín falla af borðinu í hærra vinnu-
launa-gjaldi. Republika flokkurinn varð
því um tvo mannsaldra að heita mátti
drotnandi og menn hugsuðu í sambandi
við hann um þroska og velmegun lands-
ins.
Fyrir demókrata flokknum stóð alt
öðru vísi á. Hann gat naumast heitið
landsmálaflokkur öll árin frá 1860 til
1930. Að vísu vann hann í fylkjunum
syðra undantekningar lítið, en áhrifa
hans gætti lítiö í Norðurríkjunum. Þó
kom að því, að í stærri borgum risu upp
demókrata flokkar, er frá leið og voru
nýir innfleyjendur oftast helztu áhang-
endur þeirra og verkalýður. Þessi brot
sameinuðust demókrataflokkinum syðra
og höfðu oft forsetaefni í vali við kosn-
ingar. En aðeins tvisvar á sjötíu árum
hepnaðist þeim að koma sínum forsetum
til valda, þeim Cleveland og Wilson. —
Roosevelt, sem kosinn var 1932, var
þriðji forsetinn úr þeim flokki, sem völd-
um hefir náð síðan 1860.
Republikar hafa átt kosningar vísar,
nema einhver sérstök óhöpp hafi komið
fyrir eða sérstaklega hart hafi verið í ári.
En jafnvel þó svo færi að þeir töpuðu,
hafa þeir ávalt rétt hluta sinn svo, að
þeir hafa verið kosnir næst á eftir, með
yfirfljótanlegum meirihluta.
Kosningarnar síðast liðna viku, bera
með sér ,að á þessu er að verða gagnger
breyting. Sigur demókrataflokksins frá
þessu sjónarmiði skoðaö er mjög undr-
unarverður, hann er nýr í sögunni. Og
það er jafnvel nokkur ástæða til að
spyrja, hvort að frægðarsól hins aldna
og volduga landsmálaflokks republika,
sé ekki gengin til viðar, og eigi aldrei
eftir að skína úr þessu.
Sigur Roosevelts er þakkaður mörgu.
Persónuleg áhrjf hans hafa eflaust fallið
þjóðinni miklu betur í geð, en áhrif and-
stæðinga hans. Á hverju sem gengur, er
viðmót hans og mæli glatt og hressandi
og eins og ekkert sé eiginlega um að
vera. En hver alvara undir niðri býr,
bera störfin vitni um. Og það er eins og
þjóðin kýs að það sé. Eftir demókratan-
um Al. Smith frá New York, er það orð-
tak haft um þessar kosningar, að það
skjóti enginn á Santa Claus, og á hann
með því við, að fjáraustur Roosevelts til
bænda fyrir að yrkja ekki jörðina, fram
færslustyrkur til atvinnulausra og á-
kvæðisvinnan öll, er hann hefir veitt
hundruðum þúsunda, hafi unnið Roose-
velt það fylgi, er kosninga-úrslitin beri
vott um. Satt mun það, að þetta hafi
fjölgað vinum Roosevelts, þó reynslan
virðist önnur vera í Canada með það,
enda eru allar styrkveitingar syðra send-
ar beina leið frá stjórninni til viðtakenda,
en ekki með fylkjastjórnir að milligöngu-
mönnum eins og hér. En jafnvel þó að
níutíu af hundraði allra slíkra styrkþega,
greiddu atkvæði með Roosevelt, eins og
haldið er fram, er það ekki eitt nægilegt
til að vinna slíkan sigur, sem demókratar-
unnu. Styrkþegarnir eru ekki helmingur
þjóðarinnar og ekkert líkt því. Úslitin
virðast miklu fremur benda í þá átt, að
sú stefna, sem í stjórnmálum hefir ríkt í
Bandaríkjunum síðast liðin 60 ár sé dæmd
og léttvæg fundin af almenningi eða
miklum meiri hluta þjóðarinnar. Það
lítur mjög út fyrir, að stefna sú er
Coolidge og Hoover fylgdu og sem fólgin
var í vernd stóriðnaðarins og “óskoraðs
einstaklingsfrelsis”, eins og það var kall-
að, gangi nú ekki í augu þjóðarinnar og
að hún hafi reynsluna fyrir sér og sé
sannfærð um, að óheill mikil hafi af
henni stafað að minsta kosti eftir stríðið
og eftir að utan lands viðskiftin fóru í
mola. Það er einmitt skipulagning iðn-
aðarins, eins og hún kemur fram í stefnu
Roosevelts og viðreisnarstarfi hans, sem
þjóðin aðhyllist nú, og henni virðist full
alvara með að reyna til hlítar. Viðreisn-
arstefna Roosevelts hefir fyrir margra
hluta sakir vakið athygli almennings, af
því að hún hefir náð til hans, og lítil-
magninn hefir fundið eitthvað í henni
fólgið, sem sér kom beinlínis við og líf
hans hefir gert bærilegra en það annars
hefði verið.
Hin nýja stefna, sem og um er talað
sem “Roosevelts New Deal”, hefir því
fallið í frjóva jörð, og er, eftir kosninga-
úrslitunum að dæma, líkleg til að verða
eins gótgróin stjórnmálastefna fyrst um
sinn og aðal-landsmálastéfnan, republika-
stefnan hefir verið til þessa. Þessi straum-
hvörf eða breyting á viðhorfi stjórn-
málanna í Bandaríkjunum, sem kosninga-
úrslitin sýna, má því réttilega sögulegan
viðburð kalla.
ST. LAWRENCE-SAMNINGARNIR
OG MR. HEPBURN
Eftir sigur Rooseveltsstjórnarinnar í
nýafstöðnum kosningum þótti sigurvæn-
legar en áður horfa með St. Lawrence-
samningana. Kvisaðist brátt að þeir yrðu
lagðir á ný fyrir Washington-iþingið í
vetur, en öldungadeildin hafnaði þeim,
eins og kunnugt er, síðast liðið vor.
En það virðist ekki ein bára stök með
þessa samninga. Um leið og ögn blæs
byrlegar fyrir þeim syðra, lýsir Hepburn,
forsætisráðherra Ontariofylkis því yfir,
að þeir skuli aldrei verða samþyktir af
Ontario-þinginu. Og það er ekki talið
ómögulegt að hann geti sett fyrirtækinu
stólinn fyrir dyrnar.
í sjálfu sér eru það Canada og Banda-
ríkin, sem samninginn gera. En að On-
tariofylki ,sem önnur fylki er hlut eiga
þarna að máli, réðu því hverjum leyft yrði
að nota orkuna Canada megin, þótti
sjálfsagður hlutur. Þessvegna var það
eitt fyrsta sporið, sem forsætisráðherra
Canada steig, er hann byrjaði á að gera
uppkast að samningunum með Roosevelt
forseta, að gera samning við Ontariofylki
um þetta og áskilja því réttinn til að
fara með orkuna í sínu fylki eins og bezt
gengdi. Og þar sem vel stæði á, að
virkja um leið, átti að gera það og fylkið
að greiða sinn hlut af þeim kostnaði,
sem eðlilegt var. Hafði þáverandi stjóra
ekkert á móti þessu, enda lítil ástæða til
þess, þar sem Ontario-Hydro, er reiðu-
búið að notfæra sér meiri orku, en það á
nú kost á.
En Hepburn segir nei, án þess að gagn-
rýna samningana nokkura hlut eða finna
þeim neitt til foráttu. Af fyrirtækinu
má alls ekki verða.
Um það er all-mikið rætt og ekki að
ástæðulaus, hví Hepbum snúist þannig
við þessu. Og það er misjafnlega lagt út
fyrir honum. Um umhyggju fyrir Hydro-
kerfinu þykir það ekki bera vott, enda er
ýmsu hreyft um, að önnur orkufélög hafi
staðið nærri Hepbum í fylkis-,
kosningunum. Séreigna fyr-!
irtæki þessarar tegund-
ar í Montreal, New York, Cleve-
land, Detroit og Chicago, láta
aldrei á sér standa að gera |
Ontario Hydro ýmsar glettur, i
þegar svo ber í veiði. Og í
síðustu fylkffekosningum leit út
fyrir að þau væru óvanalega
mikið á vakki.
Það var minna en við mátti
búast sagt um tilvonandi St. j
Lawrence-fljóts-skipleiðina í
fylkiskosningunum. Er nú ljóst,
að spilin hefðu ekki stokkast
einS vel fyirr orkufélögin með
því, og trompið orðið minna í
þeirra höndum ef svo skildi fara
að öldungadeildin yrði eftir
þessar kosningar syðra fúsari til
samningana en áður.
Ýmsir hafa spurt, hvort Hep-
burn væri að vega að Hydro-
fylkiskerfinu af framkomu hans
að dæma. Ljóst er nú að hon-
um er það ekki á móti skapi, þó
hitt liggi þessa stundina sýni-
lega nær, að berjast á móti
að samþykkja St. Lawrence-
fljóts-fyrirtækisins. — Og fái
hann við það ráðið, þurfa
bændur Vesturfylkjanna ekki
fyrst um sinn að vonast eftir 3
—4c lækkun á burðargjaldi á
hveiti sínu.
LÍTIÐ LAUF Á LEIÐI
INGIMARS INGJALDSONAR
Að bíðum við þess ei bætur hér
—þó berum við það í hljóði—.
Finnum við nú, því fallinn er
foringinn okkar góði.
Vakti það okkur vonarhug,
að var hann svo hress og glaður,
sýndi í verki, vilja og dug,
en var ei kyrstöðumaður.
Þetta reynir á þol og kraft,
að þurfa að skilja við hann.
—Gott væri enn að geta haft
glaðlynda fyrirliðann.
Böðvar H. Jakobsson
EG SÉ EFTIR AÐ EG HAFI
VERIÐ “GÓÐUR DRENGUR”
(Úr “Reader’s Digest)
Framh.
Eitt af því sem allra ósæmi-
legast þótti prestssyni var það
að reykja. Eg leit því með öf-
und og nokkurs konar lotningar
blandinni skelfingu á þá drengi
sem eg vissi að reyktu vindl-
inga. Þeir voru allir á hraðri
ferð til glötunar, samkvæmt sið-
ferðiskenningum þeirra tíma. —
Svo var það einn góðan vieður-
dag að djöfullinn náði haldi á
mér. Nokkrir hinna óguðlegu
leikbræðra minna komu með
nýja vindlinga og nörruðu mig
til þessa reyna-einn þeirra. Sök-
um þess að eg hafði aldrei reykt
áður saug eg reykinn ofan í
mig; eg þurfti því ekki lengi að
bíða eftir hegningunni fyrir
þessa voðasynd. Eg var rétt
að segja kafnaður. Ég vissi að
þetta hlaut að vera vegna þess
að guð hafði séð til mín og
hegnt mér fyrir athæfið.
Peningaspil var önnur synd,
sem leiddi beina leið til glötun-
ar. Mér var kent að enginn
millivegur væri til í því efni;
þeir sem þátt tækju í peninga-
spilum í nokkurri mynd færu
beina leið til þess gamla. Um
skynsamleg rök í þessu sam-
bandi var ekki að ræða; pen-
ingaspil var synd og laun henn-
ar var eilíf glötun. — Og
það var sama í hversu smáum
stíl peningaspilið átti sér stað;
það var sama syndin að spila
fjTir eitt cent og hundrað dali.
Það var jafnvel synd að spila
fyrir marmarakúlur.
Samt spilaði eg fyrir marm-
arakúlur, en eg vissi að með því
bakaði eg mér reiði guðs. Það
bætti heldur ekki úr skák að
þeir, sem eg varð að spila við
voru forhertir syndarar, óguð-
legir strákar og glataðir ræflar;
um aðra var ekki að gera —
alir sem spiluðu fyrir marmara-
1 fullan aldarfjórðung hafa Dodd’s
nýrna pillur verið hin viðui-kenndu
meðul við bakverk, gigt og blöðru sjúk-
dómum, og hinum mörgu kvilla er stafa
frá veikluðum nýrum. — pœr eru til
sölu í öllum lyfjabúðum á 50c askjan
eða 6 öskjur fyrir $2.50. Panta má þær
beint frá Dodds Medicine Company Ltd.,
Toronto, Ont., og senda andvirðið þang-
að.
kúlur voru það. Þarna hafði því
syndin náð haldi á mér í annað
sinn; en dómsdagur var hvergi
nærri sem betur fór.
í fyrsta skifti sem eg verulega
tók þátt í peningaspili var þegar
eg spilaði “domino” og græddf
60 cents. Eg hefi varla nokk-
urn tíma tekið þátt í peninga-
spili síðan, aðallega vegna þess
að eg hefi ekki haft peninga til
þess; en eg hefi að minsta
kosti náð sjálfsáliti mínu aftur
og hætt að fyrirlíta sjálfan mig
fyrir þessar syndir; eg gæti nú
með góðri samvizku tekið þátt
í þesskonar leik án þess að
hugsa um alsjáandi auga sem
ógnandi starði á mig niður frá
himnaríki.
Að því er áfengi snertir vor-
um við ekki algert bindindisfólk.
Við heyrðum til biskupakirkj-
unni sem fór ekki eins langt í
því atriði og sumar aðrar kirkj-
ur, sem kölluðu áfengið brenni-
vínsdjöfulinn og töldu jafnvel
þann drykkjumann sem drakk
eitt glas af öli. En samkvæmt
okkar mælikvarða var hver sá
er drukkinn varð afhrak og úr-
þvætti. Þetta bygðist ekki á
því að það er skaðlegt og
heimskulegt að drekka áfengi
eins og allir hljóta áð viður-
kenna; ekki heldur á þeirri lík-
amlegu og andlegu skaðsemi
sem það veldur að drekka held-
ur bygðist það á því að áfengis-
nautn væri á móti vilja ein-
hverrar vanstiltrar veru sem
sæti í hásæti að skýjabaki,
horfði á alt sem fram færi og
reiddist þeim er drykkju.
Það litla sem talað var um
líkamleg áhrif áfengis var alt
sett í samband við þessa trúar-
bragðakenningu.
Jæja, eg sleit loksins af mér
hnapphelduna. Einn góðan
veðurdag tók eg mig til og
drakk mig blind-fullan af ásettu
ráði, því mig langaði til að vita
hvernig það væri. Mér geðjað-
ist alls ekki að því og mig
langaði aldrei til þess oftar.
Hvers vegna gerði eg það?
Eg held virkilega að það hafi
verið vegna þess að eg vildi
sjálfur sjá og finna bindindis-
kenningarnar sem mér voru
fluttar, beita reynslunni og skyn
seminni í stað hjátrúar og vit-
leysu. Einu áhrifin sem ‘synda’
kenningin hafði á mig voru þau
að eg sóttist enn meira eftir
því, sem talin var synd. Nú
hefi eg ærlegri og skynsam-
legri ástæðu en syndakenning-
una fyrir því að forðast áfengi.
Eins og gefur að skilja var
það ekkert í mannlegu félags-
lífi í þorpinu þar sem eg ólst
upp, sem strangari reglur voru
settar en umgengni eða sam-
band pilta og stúlkna. í þessu
atriði eins og í sambandi við
peningaspil, reykingar, áfengis-
nautn og fleira, tókst siðferðis-
postulunum með framferði sínu
og hégilju kenningum að hafa
þau áhrif á hugarfar fólksins
sem alls ekki voru heilnæm eða
heilbrigð. Samband pilta og
stúlkna var gert að því skrímsli
sem betur var fallið til þess að
leiða til hræðslublandinna, ósið-
ferðis athafna; þannig fer æfin-
lega þegar það er hindrað óeðli-
lega sem heilbrigt náttúrulög-