Heimskringla - 09.01.1935, Blaðsíða 7
WINNIPEG, 9. JANÚAR, 1935
HEIMSKRINGLA
7. SÍÐA.
FRAMHALDSLÍF OG
NÚTÍMAÞEKKING
eftir séra Jakob Jónsson
á Norðfirði.
Það hefir dregist vonum leng-
ur, að út kæmi á íslenzku bók,
sem í væri heildaryfirlit yfir
niðurstöður og rök sálarrann-
sóknanna. Sú hreyfing, sem af
þeim hefir hlotist, og nefnd hef-
ir verið í grein hér í blaðinu
andsæisstefnan, er orðin það
sterk á landi hér, að full ástæða
er til að draga saman rök henn-
ar í eina heild. Það hefir nú
séra Jakob gert á svo skýran og
gagnorðan hátt, að það má telja
vel af stað farið. Séra Jakob
hefir dregið að sér mörg gögn,
jafnt úr hérlendri sem erlendri
reynslu, og leggur þau á borðið,
til að vitna um hina vísindalegu
staðreynd, að “takmarkið æðsta
er ekki gröfin, heldur himin-
inn”. Bók hans er skift í fimm
kafla, er nefnast: I. Þekkingin,
II. Efnið, II. Dularfull fyrir-
brigði, IV. Skýringar og V. Gröf
eða himinn. Rekur höfundur
efni sitt alveg frá rótum, eins
og efnisyfirlitið ber með sér, og
flytur rok sín með skarpskygni,
hispursleysi og heilbrigðri gagn-
rýni.
Formála fyrir bókinna hefir
Einar H. Kvaran rithöfundur
skrifað. Er það út af fyrir sig
næg m'eðmæli með bókinni. —
Bendir hann á þá staðreynd, að
fyrir 30 árum hefði það þótt ó-
trúleg saga, að þjónandi þjóð-
kirkjuprestur yrði fyrstur
manna til að semja slíkt rit sem
sem þetta. En hann bendir
jafnframt á, að hér sé þó um
einkar eðlilegt fyrirbrigði að
ræða, því að engum standi nær
en einmitt prestum að kynna
alþýðu þessi mál. Og hér eigi
einmitt hlut að máli prestur,
sem sé með afbrigðum áhuga-
samur við embættisstörf sín.
Ætti sú staðreynd að vekja alla
íslenzka kirkjumenn til þess, að
hagnýta sér þá hjálp í starfi.
sínu, sem þessi bók leggur þeim
upp í hendur. Myndu þá þau
ummæli hr. Kvarans ekki missa
marks, er hann telur þessa bók
“einn vott af mörgum um það
viðsýni og frjálslyndi, sem býr
með hinni íslenzku prestastétt”.
Það hefir farið svo í ýmsum
nágrannalöndum vorum, að
kirkjan og sálarrannsóknirnar
I hafa 'lent meir eða minna á
öndverðum meiði. Hefir enda
kveðið nokkuð að því í Eng-
landi, þar sem sálarrannsókn-
irnar mega teljast hvað lengst
komnar, og andsæisstefnan út-
breiddust. Ýmislegt bendir til,
að svo muni ekki þurfa að fara
hér, og er þess væntandi, að
bók séra Jakobs reynist sterk
stoð undir samvinnu þessara
ná-skyldu andlegu hreyfinga.
Framhaldslíf einstaklingsins er
ein megin-stoðin undir allri siða
kenningu Jesú, og alt, sem verð-
ur til að hjálpa til að sannfæra
menn um raunveruleik þess, ætti
að vera hverjum íslenzkum
kirkjumanni kærkomið.
E. P. Briem bóksali hefir gefið
bókina út, og prýtt hana all-
mörgum myndum, til skýringar
textanum. Frágangur allur er
hinn prýðilegasti og útgefanda
til sóma.—Kirkjublað. .
Erlendur Ottesen Erlendsson
Frá Reykjavík á fslandi — f. 28. nóv. 1888—d. 18 júlí 1934
Minning — Með innilegri hiuttekning og samúð til
ekkjunnar og barnanna
wjhie
F 0 R
tOMPtEIE- ,
PROSPECTUS
BUSINESS
EDUCATION
^rr'
>ou á
, Jemandí <A
eeá
,.TKeD«n«v
CoUege courw’ i . —-4
are stretunlined
r
stenograpn^.
■tsrssa
for 9°ur comprete
K° T ' ^'e cW
fa)ntmgiorU'
i-cíff
n&’ Tr to^enls •
, reel 5t* V i” W-
Cr'5tTlceneJ.T
T'TUcoUege.
ltest UB»n*»
Nýjan skipaskurð eru Frakk-
ar að gera milli ánna Rhone
og Rín, þegar hann er fullgerð-
ur, má sigla milli Miðjarðarhafs
og Norðursjóar, eftir nefndum
fljótum.
* * *
Frakkar eiga 185 herskip, til
saman 541 þús. smál'estir; 35
hafa þeir í smíðu'm.
* * *
Frá því Serbía brauzt undan
stjórn Tyrkja fyrir 100 árum,
hefir annarhvor kóngur í því
landi verið myrtur.
* * *
Stærstu skipakví í Evrópu.
af þeim sem þurausa má, er
ítalska stjómin að láta smíða í
Neapel. Hún er 1100 fet á
lengd og á að kosta 4 miljónir
dala.
VfSAN
í A
MAIL THIS COUPON TO-DAY!
I*
To tKe Secretery:
Dominion Business CoIUge
Winnipeg, Manitobe
WitKout obligation, please send me full particulars
of your courses on “Strettmlin•,* business training.
Addr«« ........................... .............
^6cDominion
BUSINES# COLLEGE
0N THE MAIÍ.
WINtJIPEG -
Frh. frá 3. bls.
Álma spennir ófrægur
ort sem þenna brag hefur,
sóma grennir gæða þur,
góðra kvenna nýðingur.
Þá hefir mér verið kend eftir-
farandi vísa, sem andmæli gegn
kaffivísunni.
Þú kveður nýð um konurnar
korða víðir lista spar,
hressa lýði hugprúðar
og hrinda kvíða blessaðar.
Guðmundur Erlendsson alinn
upp í Mýrasýslu, kveðst • hafa
lært kaffivísuna mjög snemma
æfinnar, og ekki vita annað en
hún þá hafi verið gömúl, en
engan heyrt nefndan sem höf-
und. Hann kunni þessa and-
stæðu vísu:
Ketil væta konurnar,
kaffið sæta drjúghentar,
auka kæti alstaðar
og efla mæti velferðar.
Carólína ólafsdóttir frá
Skjaldartröð á Snæfellsnesi,
kveðst kunna kaffivísuna og
lært hana ung af móður sinni,
og veit ekki annað en móðir sín
hafi kunnað hana lengi. Hún
segir einnig að Sigurdrif hafi
verið til heimilis hjá foreldrum
sínum og lært margar vísur
hennar, en aldrei segist hún
hafa heyrt Sigurdrifu' eigna sér
kaffivísuna, eður aðra eigna
henni hana, og aldrei heyrt að
vísan hafi orðið til á Snæfells-
nesinu, og ætlar hana gamla.
Háöldruð kona hálf nýræð
Guðrún Grímsdóttir (nýdáin)
sagðist hafa lært vísuna í Mý-
vatnssveitinni fyrir 1870, og
lært hana sem gamlan hús-
gang, og enginn vissi um höf-
und.
Önnur kona merk hátt á ní-
ræðu, Steinunn Jónsdóttir, syst-
ir Sigurðar bónda Jónssonar á
Seilu í Skagafirði, segist hafa
verið búin að læra kaffivísuna
1859, en ekki getur hún upp-
lýst um höfundinn.
Ögmundur Jónsson frá Görð-
I.
Þú lékst þér uin Arnarhól ungur
og öslaðir Tjörnina og Lækinn,
varst þá ekki í hreyfingum þungur,
en þéttur á velli og frækinn.
Þig lofuðu leikbræðra tungur
fyrir lipurð; á brekkurnar sækinn.
Þú bygðir þér seiðhjall við sjóinn
og sást þaðan langt út í geiminn;
kringum Engey lá óvæður Flóinn,
fyrir ungsvein til stórræða feimin.
Þú elskaðir Esjuna og snjóinn,
'en óskirnar voru út í heiminn.
II.
Og þó fanst þér borgin þín bera við ský
og bezt væri að ieiga þar heima,
þó híbýlin væru ekki vegleg né hlý
fyrir vonir og óskir að geyma.
Og móðurlaus drengur! — mest það var af því,
að þig var um fjarlægð að dreyma.
Þú vissir þú áttir að elska þitt land,
með öllum þess fjöllum og dölum;
oft berfættur gekstu þar brimlaminn sand,
við blysljós frá stjarnanna sölum.
Og skútan þín djarfsigld, fór daglega í strand
með djásnin þín, leggjum og völum.
III.
En nú kemur skip, eftir níu löng ár
og nú áttu draumar að rætast.
Þér fanst að þú verða þá fimm sinnum hár
af ferða bug — samt varstu en þá svo smár.
Og útþráin — brosandi bað mig um tár
fyrir blessaða landið í skilnaðar gjöf —
sú hugsun fylgdi þér fram að gröf,
þar sem ástin og eilífðin mætast.
IV.
Eftir sjóvolk frá ættjörð nú eygðir þú land,
sem áður fann Leifur hinn hepni,
og þar fanst þú liðtækt að lenda við sand
því í lund þér, var samskonar kepni.
með Ijúfmensku og glaðværð þar lífinu sleizt
og lagðir í þjóðveggin steina;
þar lærðurðu að elska, þín ástmey gat treyst
þér í ástum, ef það kom til greina.
Og svo liðu árin; sem elfur að sæ
og ötul var lund þín til starfa.
Nú vildir þú kvongast og byggja þér bæ!
og berjast til alm'ennings þarfa
og fleyja ekki sérkennum frónskum á glæ,
sem fánýtu moði og arfa:—
Nei, Guðrún var íslenzk, sem elskaði þig
og ætlaði að gera þig frægan,
en tíminn varð stuttur, því samur við sig
sífelt er dauðinn, nú skelfir það mig, —
í dómsök skal hafa mig hægan.
V.
Heyrðist hvellur og dynur —
eins og haglþrumu hvinur,
í hömrunum bergmálið drundi.
Rafþræðir brennandi brustu,
brunaliðs-vagnarnir þustu,
sviðnuðu bjargsteyptir bogar,
blossuðu hamslausir logar,
það varð sprenging sem sló þig, gjörði
spell þeim, sem unna,
og spilaborg lífs þíns var hrunin til grunna,
á svipstundu alt þetta yfir þig dundi.
VI.
Að endingu, vinur minn vísan er búinn,
eg verð aldrei skáld, eins og sumir þeir stærri;
en eg vildi kveðja þig frá okkur flúinn
til fegurra lands, þar sem sólin er skærri;
þín drenglund var íslenzk, af árvekni knúinn
í arftöku liðinu sýnast þeir færri.
Þú ert dáinn en lifir og vakir að vinna
að velferð og kærleik, til ástmenna þinna.
Þ. K. K.
-September, 1934.
um í Kolbeinsstaðahreppi í
Mýrasýslu, nú á þriðja ári yfir
nírætt, alsjáandi á bók, og mjög
lítið hærður, og að útliti sem
75 ára gamall maður segist sem
aðrir, kunna kaffivísuna, og
lært bana snemma æfinnar af
föður sínum, en bvenær faðir
hans lærði vísuna veit hann
ekki, en hyggur hana gamla,
eina af þessum lífseigu og land-
fleygu' vísum.
Með þessu verður svo vitna-
leiðslunni hætt en þar fyrir utan
má geta þess að eg hefi glöggar
fregnir af því að hún var lærð
sem gömul vísa af unglingum
um 1870 í Eyjafjarðarsýslu,
1 Þingeyjarsýslu, Húnavatnssýslu,
| Mýrasýslu, Borgarf jarðarsýslu
I og austur í Árnessýslu. Að öðru
j leyti hníga vitnisburðir fólks,
i að því að vísan er eldri en fyrst
er ætlað, eða frá 1862.
Býsna ólíklegt er það að hún
sé eftir konu sem verður fyrir
alvarlegri ávítun fyrir eyðslu-
semi. Eg held konum hafi
1 aldrei komið svo vel orðið eyð-
sluklær, að þeim hefði fundist
ástæða til að taka í sama
1 streng og yrkja brígslyrða vísu
um sig og konur yfir höfuð;
nær mundi, að konan hefði
-brugðist reið við, og reynt að
hrinda af kvenkyninu áburðin-
um, og aldrei vissi eg þá ónátt-
úru hjá konum að þær legðust
á samstétta konur sínar; hitt
vita menn fremur að þær lentu
í deilum við karlmenn fyrir sitt
kyn, bæði í bundnu máli og ó-
bundnu. VTsurnar bera það líka
með sér, að höfundur þeirra
skilja að uppruna vísan sé
eftir karlmann og því er karl-
mönnunum þorinn sá löstur á
brýn, sem þeim er ætlað þyngst
undir að búa, og felst í orðinu
“fyllisvín”, og meira en jafn-
gildir orðinu eyðsluklær um
konurnar.
Niðurstaðan virðist þá þessi:
Vísan er eldri en frá 1860, og
ekki eftir konu og höfundurinn
ófundinn sem í upphafi greinar-
innar, það mun líka reynast
ofurefli að finna höfunda að
þessum gömlu og góðu lands-
horna vísum og er þessi tilraun
gott dæmi.
Grein þessi hefði átt heima í
Blöndu því þar er fyrri hlutinn,
en reynslan befir sannað mér
að þangað komast greinar mín-
ar ekki, fremur en ríkur maður
í himnaríki, verði hann að troð-
ast gegnum nálaraugað.
Erlendur Guðmundsson
frá Mörk
NAFNSPJOLD
Dr. M. B. Halldorson G. S. THORVALDSON
401 Boyd Bldg.
Skrifstofusími: 23 674 B.A., LL.B.
Stundar sérstaklega lungnasjúk- dóma. Lögfrœðingur
Er að flnni á skrifstofu kl. 10—12
f. h. og 2—6 e. h. 702 Confederation Life Bldg.
Heimili: 46 Alloway Ave. Talsimi: 33 158 Talsimi 97 024
Dr. J. Stefansson
216 MEDICAL ARTS BLDG.
Hornl Kennedy og Graham
Stundar eingöngu augna-eyma-
nef- og kverka-sjúkdóma
Er að hdtta frá kl. 2.30—5.30 e. h.
Talsimi: 26 688
Heimlli: 638 McMillan Ave. 42 691
Rovatzos Floral Shop
206 Notre Dame Ave. Phone 94 954
Presh Cut Flowers Daily
Plants in Season
We specialize in Wedding &
Concert Bouquets & Funeral
Designs
Icelandlc spoken
Dr. S. J. Johannesson
218 Sherbum Street
Talsfmi 30 877
Viðtalstimi kl. 3—5 e. h.
Office Phone Res. Phone
87 293 72 409
Dr. L. A. Sigurdson
109 MEDICAL ARTS BUILDING
Office Hotirs:
12-1
4 P.M. - 6 P.M.
AND BY APPOINTMENT
W. J. LINDAL, K.C.
BJÖRN STEFÁNSSON
ISLENZKIR LÖGFRÆÐINGAR
á öðru gólfi
325 Main Street
Talsími: 97 621
Hafa einnig skrifstofur að
Lundar og Gimli og eru þar
að hitta, fyrsta miðvikudae 1
hverjum mánuði.
M. HJALTASON, M.D.
ALMENNAR LÆKNINGAR
Sérgrein: Taugasjúkdómar
Lætur úti meðöl í viðlögum
Sími: 36 155 682 Garfield St.
A. S. BARDAL
selur likkistur og annasit um útfar-
ir. Allur útbúnaður sá besti. _
Ennfremur selur hann allskonar
minnisvarða og legsteina.
843 SHERBROOKE ST.
Phone: 86 607 WINNIPEG
RAGNAR H. RAGNAR
Píanisti oa kennari
Kenslustofa: 683 Beverley St.
Phone 89 502
THE WATCH SHOP Thorlakson Baldwin MARGARET DALMAN
Diamonds and Wedding Rings Agents for Bulova Watches Marriage Licenses Issued 699 Sargent Ave. TEACHER OF PIANO 854 BANNING ST. Phone: 26 420
YIKING BILLIARDS og Hárskurðar stofa 696 SARGENT AVE. Dr. A. V. JOHNSON ISLENZKUR TANNLÆKNIR
Knattstofa, tóbak, vindlar og vindlingar. Staðurinn, þar sem Islendingar skemta sér. 212 Curry Bldg., Winnlpeg Gegnt pósthúsinu Simi: 96 210 Heimilis: 33 328
UNCLAIMED CLOTHES All new—Not Worn Men’s Suits & Overcoats 479 PORTAGE AVE. I. H. TURNER, Prop. Telephone: 34 585 "WEST OF THE MALL—BEST OF THEM ALL” Jacob F. Bjarnason —TRAN SFER— Baggage and Furniture Moving 762 VICTOR ST. SlMI: 24 500 Annast allskonar flutninga fram og aftur um bæinn.
J. J. Swanson & Co. Ltd. REALTORS Rental, Insurance and Financial Agents Sími: 94 221 600 PARIS BLDG.—Winnipeg J. T. THORSON, K.C. Islenzkur lögfrœðingur Skrifstofa: 801 GREAT WEST PERMANENT BUILDING Síml: 92 755
Svanhvít Jóhannesson, LL.B.
lslenskur "lögmaSur”
Viðtalsstfa: 609 McArthur Bldg.
Portage Ave.
(1 skriístofum McMurray & Greschuk)
Sími 95 030
Heimill: 218 Sherburn St. Sími 30 877
Dr. K. J. AUSTMANN
Wynyard —:— Sask.
MAKE YOVR PLEASANT
LUNCH HOUR DATES AT
The
Jflarlborougí) ^otcl
A Service to Suit Everyone
LADIES MEZZAMNE FLOOK
11.30 to 2.30 Special Limcheon
35c
BUSINESS MEN CLT'B
LUNCHEON—11.45 to 2.30
50c and 75c
also a la carte
COFFEE ROOM (Men & Women)
SPECIAL LUNCH, 12-3______40c
SPECIAL DINNER, 6 to 8....Ö0C
Talsimi: 28 889
Dr. J. G. SNIDAL
TANMLÆKNIR
614 Somerset Block
Portage Avenue WINNIPEG
LESIÐ, KAUPIÐ
OG BORGIÐ HEIMSKRINGLU
Dr. A. B. Ingimundson
TANNLÆKNIR
602 MEDICAL ARTS BLDG.
Slml: 22 296 Helmllia: 46 054