Heimskringla - 09.01.1935, Blaðsíða 8
8. SÍÐA.
HEIMSKRINGLA
WINNIPEG, 9. JANÚAR, 1935
Nýárs kveðja
TIL UR. RICHARD BECK
Eg þekki dreng meö djúpa og hreina sál,
sem deilir ekki á þá, sem vita minna,
sem heilskygn talar hljómskært feðra-mál,
og hugans göfgi allir sjá og finna.
Hann víðsýnn rúmar alt í andans höll,
frá yztu skautum himins, eins og jarðar;
hann leikur sér um Ijóðs og sögu-völl
að lífsins myndum, jökuls milli og fjarðar.
Og Ijúfm'enskan er léttstíg, eins og barn,
og laðar eins og bros u'm meyjar vanga,
hún bræðir, eins og sólskin svellahjarn,
er sumarblóm um vordag byrja að anga.
Eins svifhár líkt og svanur fljúgi um geim,
með segulmátt og fögrum töfrahljómi,
hans frægð berst út um allan menta heim,
hann er að verða lands og þjóðar sómi.
Þ. K. K.
-4. jan. 1935.
FJÆR OG NÆR
Messur í Nýja Islandi, flytur
aéra E. J. Melan sem hér fylgax
Arborg, sunnud. 13. jan. kl. 2.
e. h.
Riverton sunnud, 20. jan. kl. 2.
e. h.
Gimli sunnud. 27. jan. kl. 2. e.h.
* * *
Séra Jakob Jónsson messar í
Mrkju' Sambandssafnaðar í
Winnipeg næstkomandi sunnu-
dag.
* * *
Ræðan sem séra Jakob Jóns-
son flutti á jóladaginn í kirkju
Sambandssafnaðar er prentuð
í blaðinu að óskum fjölda
manna er hlýddu á hana.
* * *
Nýútkomin bók
Framhaldslíf og nútímáþekking
eftir séra Jakob Jónsson
Magnus Peterson, 313 Horace
Ave, Norwood, Man., mu'n hafa
útsölu á bók þessari. Bókin
kostar í bandi $2.50 og í kápu
$2.00. Nokkurra eintaka er
von vestur innan skamms, og
þeir, sem óska eftir að eignast
bókina sem fyrst, eru beðnir að
leggja inri pöntun til útsölu-
mannsins eða á skrifstofu ís-
lenzku vikublaðanna eða á 906
Banning St., heimili Gísla Jóns-
sonar.
* * *
Heimilisiðnaðarfélaglð heldur
næsta fund sinn á miðvikudags-
kvöldið 16. janúar að heimili
Mrs. Albert Wathne, 700 Bann-
ing St. Þetta er ársfundur deild-
arinnar og meðlimir því beðnir
að sækja fundinn.
* * *
Ungmennafélagsfundur
Opin skemtifundur verður
haldin í fundarsal kirkju Sam-
bandssafnaðar í kvöld (mið-
vlkudaginn 9. þ. m.) kl. 8. e. h.
Ýmislegt verður þar til skemt-
aria og er sérstaklega óskað
eftir að yngra fólk safnaðarins
f jölmenni. Pundur þessi er aðal-
lega boðaður fyrir yngra fólk,
ag er það alt boðið velkomið og
eigi sízt það sem gestkomandi
er í bænum.
* * *
Hr. Geir Thordan, sonur
Þórhalls Daníelssonar í Höfn í
Hornafirði, Skaftafellssýslu, á
fslandsbréf hjá G. J. Oleson,
Glenboro, Man. Hann eða ein-
hver sem veit um heimilisfang
hans geri svo vel og geri að-
vart — svo hægt sé að senda
bréfið án frekari tafar.
* * *
Fálkamir unnu frægan sigur
á Amphitheatre skautahringn-
s. 1. föstudag og mánudag. —
Þeiir léku móti Elmwocýl á
föstudaginn og unnu 3 á móti 1
og Selkirkingum á mánudag og
unnu' 5 á móti 3. Þeir standa nú
hæstir í sinni flokkaskifting.
* * *
Gleymið ekki!
Spilakvöldunum í Goodtemp-
larahúsinu á þriðjudögum og
föstudögum. — Góð verðlaun!
Gott músik! Inngangur 25c.
Allir velkomnir.
* * *
Leikfélag Sambandssafnaðar
heldur fund í samkomusal kirkj-
unnar á fimtudagskvöldið 10.
þ. m. stundvíslega kl. 7. Áríð-
andi mál liggja fyrir og era' sem
flestir beðnir að mæta.
* ♦ *
Jörð til sölu í Vancouver, B. C.
4>/2 ekra við Bumaly vatnið.
Landið er hreinsað og mest alt
í túni, fyrirtaks jarðvegur, út-
sýni framúrskarandi fagurt. —
Þar er nýtt 4-berbergja hús,
26x28 með steypu kjallara, hús-
ið er plastrað og hefir ljós og
vatn. Heyhlaða fyrir 4—5 tonn
Það er aðeins 25 mínútna ferð
frá Vancouver, P.O., og strætis-
vagnin fer fram hjá plássinu.
Þetta fæst fyrir mjög sann-
gjarnt verð. Frekari upplýsingar
fást hjá:
H. J. Thorson
1784 34th Ave. E. —Vancouver
* * *
Sveinn Einarsson frá Calder,
Sask., kom til bæjarins s. 1.
mánudag. Hann kom með vagn-
hlass af svínum til markaðar.
* * *
Sveinn kaupm. Thorvaldson
frá Riverton, Man., var staddur
í bænum s. 1. föstudag í við-
skiftaerindum.
* * *
P. N. Johnson frá Elfros,
Sask., var staddur í bænúm um
helgina í erindum fyrir gripa-
samlagið í Saskatchewan.
Séra Jakob Jónsson flytirr
ræðu á samkomu, sem haldin
verður á Lundar þann 18. þ. m.
og flytur guðsþjónustu í kirkju
Sambandssafnaðar þar snnnu’-
daginn næstan á eftir, þann 20.
þ. m.
* * *
Bleggi Oddleifsson frá Ár-
borg, Man., hefir verið um viku-
tíma á sjúkrahúsinu í Winnipeg.
Hann var skorinn upp við kvið
sliti og er sagður á batavegi;
býst við að fara úr spítalanum
á laugardag.
* * *
Dánarfregn
1. jan. 1935 ,lézt að Ashera
Guðmundur Pálsson, rúmlega
81 árs að aldri, ógiftur og bam-
laus. Hafði verið hér í landi 45
ár og lengst af þeim tíma bú-
settur við The Narrows, Man.
Guðmundur var fæddur og
uppalin í Vatnsdalnum í Húna-
vatnssýslu' á Íslandi, sonur
hjónanna Páls Snæbjömssonar
(af hinni kunnu Snæbjarnar
ætt þar) og Ingiríðar ólafsdótt-
ur frá Eiðstöðum. Guðm. var
vel vitiborinn eins og hann átti
kyn til, og beitti því hispurs-
laust eða skoðunum sínum við
hvem sem í hlut átti, án tillits
til hvort þeim sem við var
rætt líkaði það eða ekki, en
var þó maður á bak við orðin til
að skapa þeim fuit gildi og vildi
því ekki skulda neinum hvorki
í efnalegum né andlegum skiln-
ingi. En þó ætíð tilbúinn að
leggja þeim lið, ef hann áleit að
þess þyrfti með sem hann kynt-
ist. S.
* * *
íslenzkt Taxifélag
Vér viljum beina athygli ís-
lendinga að því, að nú fyrir
tæpum 3 árum síðan stofnaði
Mr. Arthur Dalma,n Taxifélag og
hefir það stöðvar sínar á hom-
inu á Sargent og Agnes. Þeir
hafa ágætis bíla upphitaða, og
hringja má til þeirra hvort held-
ur er á degi eða nóttu. íslend-
ingar ættu að hlynna að þessu
fyrirtæki, þeir nota taxi svo
mikið að eitt þesskonar félag
ætti vel að geta borið sig og
náð að vaxa. Hugsið um það,
það er ekki einskis vert að þjóð-
flokkur vor geti náð fótfestu' við
sem flest fyrirtæki í bænum.
Eigandinn er Arthur Dalman,
sonur eins gamla landnemans,
Jónasar Dalmans er síðast bjó á
Gimli.
# * *
SAMSÆTI
í tilefni af heiðri þeim, og
viðurkenningu, er hr. Sveinn
kaupmaður Thorvaldsson, í
Riverton hefir nýlega hlotið,
hefir Þjóðræknisféiagið ákveðið
að minnast þess viðburðar með
því að gangast fyrir samsæti er
haldið verður í Fot Garry Hotel-
TAXI? Phone us—
PHONE 34 555
SARGENT TAXI
Day og Night Service
“If you we satisfy,
Others please notify”
Minimum by-law rates
inu í Winnipeg þann 24. þ. m.
og hefst klukkan 6.30 e! h.
Konur og karlar sem þátt
vilja taka í samsæti þessu eru
beðin að gefa sig fram á skirf-
stofúm íslenzku blaðanna, Lög-
bergs og Heimskringlu, þar sem
áskriftar listar verða til staðar,
og borga þar þátttöku gjald
sitt, sem er $1.25 fyrir manninn.
Til hægðarauka fyrir íslend-
inga í norður hluta Nýja íslands
verður einn áskrifta listi hjá hr.
Skúla Hjörleifsson í Riverton
og geta þeir er vilja skrásett
sig þar. '
Áskirftarlistunum verður lok-
að þann 19. janúar næstkom-
andi og verða því allir þeir er
þátt vilja taka í samsætinu að
vera búnir að skrásetja sig fyrir
þann dag.
Winnipeg, 8. jan. 1935.
J. J. Bíldfell, forseti
í Hollywood vinnur meðal
annara sá maður er heitir Rob-
el, býr til kýmileg tilsvör og
þessháttar gamansemi, í leikrit
og hvað annað, sem fólki er
boðið í radio og kvikmyndum.
Hann var áður velmetinn prest-
ur í stórum söfnuði og segist
hafa skift um vegna þess, að nú
geti hann gert mörgum manni
glaða stund og komið þeim til
að hlægja. Það hafi hann ekki
gert áður, meðan hann gegndi
prestverkum. Hann heldur því
fram, að trúin eigi að vera upp-
lífgandi og fjörgai^di og ‘,ef
prestamir halda áfram, að
flytja leiðinlegar ræður og dapr-
ar, þá muni kirkjufólkinu
fækka. Sá maður vill koma
hlátri inn í trúarbrögðin, vegna
þess að hlátur sé öllum hollur.
* * *
Lögreglumenn brutust inn á
Kínverja, til að taka þá fyrir að
spila um peninga, en þeir gulu
voru svo vel innilokaðir, að
lögreglan varð lengi að hamast,
þangað til kom að spilagosun-
um. Þeir voru teknir ásamt
hurðum og ýmsum útbúnaði.
Nú stendur harður bardagi fyrir
rétti, Stubbs (fyrrum dómari),
sækir á lögregluna fyrir hús-
brot en Craig (fyrrum dóms-
málaráðherra) ver hennar að-
gerðir. (Frá úrslitum þessa
máls er sagt á fyrstu síðu).
* * *
í vikunni fyrir jólin gengu
stormar um Atlantshaf vestan-
vert. 1 því veðri fórst enskt
skip æði stórt og seytján manns
af skipshöfninni, en níu var
bjargað af stórskipinu Askama.
með því móti, að báti var skotið
fyrir borð, með tíu manns, er
lagði að hinu laskaða skipi, sem
var mestalt í sjó, og í hann
tíndust þeir sem lifðu eftir. —
“Ekki hræddist eg sjóinn, þó
mikill væri”, sagði sá er stýrði
bátnum, “heldur hitt, að bátur-
inn molaðist við skipshliðina,
en það valt eins og kafli í stór-
sjónum, þó mikið væri.” Ask-
ania hét skip þetta frá New
Yor-k og flutti til Halifax þá
sem bjargað var.
MESSUR og FUNDIR
í kirJcju SambandssafnaOar
Messur: — á hverjum sunnudegi
kl. 7. e. h. •
SafnaöarnefndinTFundir 1. í&átu-
deg hvers mánaðar.
Hjálparnefndin: — Pundir fyrsita
mánudagskveld 1 hverjum
mánuði.
KvenfélagiS: Fundlr annan þriðju-
dag hvers mánaðar, kl. 8 að
kveldinu.
Söngflokkurinn: Æflngar á hverju
fimtudagskveldi.
Sunnudagaskólinn: — Á hverjum
sunnudegi, kl. 11. f. h.
Félag nokku'rt á Englandi,
sem heitir Royal Reserve, ætlar
að merkja 3000 hvali til að
komast eftir hvemig þær skepn-
ur haga sér í lífinu og auka kyn
sitt.
* * *
— Það var nauðsyulegt að
dæla þrívegis blóði inn í ungan
mann til þess að bjarga lífi
hans. Ungur Skoti bauðst til
þess að leggja til blóðið Eftir
fyrstu blóðsmillifærslu fekk
Skotinn 100 krónur, 50 krónur
fyrir þá næstu, en fyrir hina
þriðja vildi sjúklingurinn ekk-
ert borga — skoska blóðið var
farið að segja til sín.
* * *
— Geturðu lánað mér hundr-
að kónur?
— Eg get það, en vil ekki.
— Heldurðu að eg borgi þér
þær ekki aftur?
Þú vilt það, en getur það ekki.
* * *
— Dóttir mín er gefin fyrir
list.
— Já, mín nennir heldur ekk-
ert að gera.
KAUPIÐ HEIMSKRINGLU
LESIÐ HEIMSKRINGLU
BORGIÐ HEIMSKRINGLU
10 GOOD REASONS
Why Yoa Should Train at
Success Business College - Winnipeg
1.
Through superior service, the Success Business College of Winni-
peg became the largest private Commercial College in Westem
Canada.
2.
More than 43,000 young men and women. have enrolled for
Success Courses. Hundreds of these are now employers and their
preference for “Success-trained” office help creates an ever
increasing demand for Success Graduates.
3.
The Success is the only Business College in Winnipeg that has
been accredited by the Business Educators’ Association of Canada.
This Association admits only the best Commercial Colleges into
its membership.
4.
Students of the Success Business College are entitled to the
privilege of the B. E. A. examination system. B. E. A. standards
represent the highest degree of efficiency in Canadian Commercial
education.
5.
The Success Business College employs only teachers of advanced
Scholarship and long successful teaching experience. The Success
system of individual and group instruction insures quick and
thorough results.
6.
The Employment Department of the Success Business College
places more office help than any other Employment Agency in
the City of Winnipeg. The service of this Department is available
only to Success students.
7.
The Success Business College admits only students of advanced
education and favorable personal characteristics.
8.
The Success Business College premises are well equipped and
comfortable. The College is located in the heart of the busines3
section of Winnipeg, where employers can conveniently step into
our office and employ “Success Graduates.”
9.
The Success Business College has no branches; it operates one
efficient College in which the principal and his staff devote their
best efforts and all their time to thorough instruction and careful
supervision of students.
10.
The majority of Commercial teachers in Winnipeg received their
business training at the Success Business College. It pays to at-
tend the College that is known as “The Teacher of Teachers.” Our
high standards attract the best young people in Westem Canada.
Wiite For Free Prospectus
( /"X \
Individual ^ ^ ^ / / ) Home
Instraction v—~////?//?ró/) y Study
At 'V Courses
The BUSINESS COLLEGE By
CoOege Portage Ave. at Edmonton St. WINNIPEG MaU
PROVINCE OF MANITOBA
HON. W. R. CLUBB, Minister of Public Works
BUREAU OF LABOR AND
FIRE PREVENTION BRANCH
Office: 332 LEGISLATIVE BUILDINGS
TELEPHONE: 840 252
í>essi deild er stofnuð til að hafa samvinnu við verkveitendur og verkamenn og aðra
og hefir umsjón meí eftirfylgjandi lögum:
“The Bureau of Labor Ace”
“The Manitoba Factories Ace”
“The Bake Shops Act”
“The Building Trades Protection Act”
“The Fair Wage Act”
“The Electrician’s License Act”
“The Elevator and Hoist Act”
“The Shops Begulation Act”
“The Public Buildings Act”
“The Minimum Wage Act”
“The Steam Boiler Act”
“The Licensing of Cinematograph
Projectionists under “The Public
Amusements Act”
“The Fire Prevention Act”
“The One Day of Best in Seven Act
for Certain Employees.”
Upplýsingum um að þessi lög hafi á einhvem hátt verið brotin, verður tafarlaust
gaumur gefinn.
Deildin skorar á félög og einstaklinga, verkveitendur og verkamenn í Manitoba, að
gera alt, sem hægt er til að draga úr hinum sífjölgandi slysum.
Styjið deildina i því að varna slysum, með því að sjá um að auglýsingum þvi við-
víkjandi sé þannig fyrir komið að þær séu lesnar.
VENJID YÐUR A VARFÆRNI-ÞAÐ B0RGAR SIG!
STANDIÐ Á VERÐI GEGN ÓVININUM
Góður þjónn ELDUR! ófær húsbóndi
SEM ALDREI SEFUR
F!l H On eV n0kkuð’ sem viðkemur öllu ^andinu, en
J er að því leyti sérstætt, að því verður að
vera sint sérstaklega á hverjum stað fyrir sig. Ef hvert umhverfi getur
dregið nokkuð verulega úr lífs- og eignatjóninu, þá verður tjón þjóðar-
innar þeim mun minna. Framkvæmdir í þessu efni, ættu því alstaðar
að vera eins miklar og mögulegt er. Þar sem það er viðurkent, að öll
vöra gegn eldsvoða eigi að vera stunduð eins og bezt má vera, þá þarf
fyrst og fremst að kenna fólki að skilja eldshættuna og varast hana.
MUNIÐ ÁVALT, að varúðin er bezta vörnin gegn eldshættunni.
E. McGRATH, Secretary, Bureau of Labor and Fire Commissioner