Heimskringla - 27.02.1935, Page 3
WINNIPEG, 27. FEB. 1935
HEIMSKRINGLA
3. SlÐA.
týrahungri og útþrá. Þó ung
séu, greina þau milli hveitis og
hismis, og engir lesendur eða
tilheyrendur eru þakklátari.
Eitthvað svipað þessu hefir
vakað fyrir prófessor Georg
Brandes, þegar hann sagðr “En
hvað Andersen er lánsamur! —
Hvaða rithöfundur á slíkan hóp
lesenda sem hann!” Börnin hafa
líka skipað Andersen til sætis á
konungsstóli frammi fyrir 'öll-
ium heimi og komandi kynslóð-
um. Hann <$r fyrir löngu orð-
inn hið mesta uppáhald þeirra.
H.
Um Andersen má segja með
sanni, að hann hafi verið sonur
karls í koti, sem kóngsríkið
vann. Æfi þessa meistara æfin-
týranna var eins æfintýraleg og
nokkur af sögum hans sjálfs.
Þetta gaf hann í skyn, er hann
valdi sjálfsæfisögu sinni nafnið
Mit Livs Eventyr (Æfintýr lífs
míns); en hún byrjar á þessa
leið: “Láf mitt er fagurt æfin-
týri, innihaldsríkt og unaðs-
legt.” En þetta var ritað, er
snild höfundar hafði hlotið verð-
skuldaða viðurkenning bæði
heima og eriendis. Hann var i
fullri sátt við heiminn. Hitt
sýnir sjálfsæfisaga hans, svo
engum fær dulist, að frægðar-
braut hans var hvorki bein né
slétt. Hann kleif margan örð-
ugan hjalla, áður en hann
komst upp á sigurtindinn. Þó
gat Andersen sagt með sanni á
fimtugsafmæli sínu, að hann
væri hamingjusamur sem barn.
Hann hafði séð böl snúast í
blessun. Heimsfrægð hafði fall-
ið honum í skaut, og það sem
enn betra var: hann hafði, —
eins og hann sjálfur segir —
eignast vináttu margra hinna
göfugustu og beztu samtíðar-
manna sinna. Það er ekki að
undra, þótt honum fyndist líf
sitt skáldlegra og fegurra en
nokkurt æfintýra sinna.
En víðar en í æfisögu sinni
lýsir Andersen sjálfum sér og
lífsreynslu sinni; í bréfum hans
og öðrum ritum, er margan
fróðleik að finna um æfi hans
og skapgerð. Æfintýri hans
eiga ekki sjaldan rót sína að
rekja til einhverra atburða í lífi
hans. Hans Brix, er manna best
hefir ritað um þau, kemst svo
að orði: “í sérhverju þeirra er
dropi af hjartablóði skáldsins.”
Eg nefni eitt dæmi. Það leikur
'ekki á tveim tungum, að sagan
“Ljóti andarunginn” er saga
skáldsins sjálfs. Flestir kann-
ast við söguna þá. “Veslings
ljóti andarunginn”, sem bæði
endurnar og hænsnin bitu og
börðu, hröktu og hæddu, af því
að hann var öðru vísi en þau.
Hann átti ekki sjö dagana sæla
í andagarðinum. Og lengi mátti
hann þola örlög olnbogabarns-
ins. En loksins kom vordagur-
inn ógleymanlegi, þegar hann
sá í spegilsléttu vatninu, að
hann var sjálfur svanur. “Og
stóru svanirnir syntu hringinn
í kringum hann og struku hon-
um með nefjum sínum — og
gömlu svanirnir lutu honum.”
Andersen varð líka að þola
uiarga mæðu, áður en samtíð-
armenn hans, eigi síst margir
landa hans, sáu og skildu, að
hann var svanur — afburða
skáld.
Andersen var sonur fátæks
skósmiðs í Odense á Fjóni. En
mjög var faðir skáldsins ólíkur
öllum þorra stéttarbræðra
sinna. Hann var að ýmsu leyti
einkennilegur maður og óvenju-
iegur: tilfinninganæmur, hug-
uiyndaríkur og bókhneigður. —
Bert er, að hann hefir hneigst
til íhygli og þorað að fara eigin
götur í skoðunum. " Mun því
Andersen hafa rétt að mæla, er
hann kallar föður sinn “gáfað-
an, mann” (en begavet Mand).
Æði var hinn síðarnefndi þó
reikull í ráði; mun metnaðar-
girni hans hafa valdið nokkru
þar um. Skósmiðsiðjan og
smáborgarlífið reyndist honum
fábreytt; hann vildi kanna ó-
kunna stigu. Gerðist hann þá
hermaður, en hamingjan varð
honum hverful. Eftir rúm tvö
ár í hermensku ,sneri hann
heim, þrotinn að heilsu og and-
aðist eigi mjög löngu síðar.
Móðir Andersens var mjög ó-
lík manni sínum að skapferli. —
Hún var miklu veikgerðari en
hann, trúhneigð — blíðlynd og
góðhjörtuð. En engin var hún
gáfukona eða atkvæða; hún
hafði beldur eigi neinnar ment-
unar notið. Þó halda sumir því
fram, að hún hafi mest áhrif
haft á Andersen í æsku. Hvað
sem því líður, þá er hitt víst,
að í lundarfari skáldsins má sjá
þess glögg merkl, að hann hefir
að erfðum hlotið ýms einkenni
foreldra sinna.
Snemma kom það fram, að
skáld bjó í Andersen. Hann var
þegar í æsku gæddur taum-
lausu ímyndunarafli, draum-
lyndur og tilfinningaríkur. Ung-
ur fór hann að yrkja kvæði og
semja leikrit. Hafði hann það
sér til gamans, að láta brúður
sínar leika leiki, er hann sjálfur
hafði sett saman eða séð leikna.
Var hann því í sannleika ólíkur
öðrum börnum. Og hér fór sem
ofh vill verða, að margir gerðu
skop að honum og töldu hann
eigi með öllum mjalla. Þó voru
nokkrir svo djúpskygnir, að þeir
sáu ,að piltur þessi var búinn ó-
venjulegum andlegum hæfileik-
um. Ekki bætti það úr skák,
að Andersen var ófríður í vexti
og klaufalegur í limaburði. Varð
hann fyrir þetta að athlægi
meðal annara baraa, og höfðu
jafnaldrar hans hann löngum að
skotspæni. Særði þettta hinar
næmu tilfinningar hans og varð
til þess, að hann gaf sig eigi að
öðrum börnum, en leitaði at-
hvarfs í leikpum sínum og
draumórum. í heimi hugmynda
sinna bygði hann sér mikla
kastala og háar hallir, en sjálf-
ur var hann riddarinn sigri
hrósandi eða konungurinn, sem
víðlendum ríkjum réði.
Lítillar mentunar naut And-
ersen í æsku, en hann las alt
sem hann fékk yfir komist; þó
var hann hrifnastur af leikrit-
um. í æfisögu sinni lýsir hann
með miklu fjöri þeim atburði,
er hann fyrst las leikrit Shake-
speares. Og óðar og fljótar lét
hann brúður sínar leika harm-
leiki snillingsins. Segir Ander-
sen svo frá: “Eg sá ljóslifandi
fyrir hugskotssjónum mínum
vofuna úr Hamlet, og Lear kon-
ung vitskertan uppi á eyðiheið-
inni.” Um þessar mundir kveðst
Andersen hafa skrifað heilan
sorgarleik, þar sem allar per-
sónurnar lágu dauðar að leiks-
lokum. Vert er að minnast þess,
að faðir Andersens hafði
snemma glætt bókhneigð sonar
síns, með því að lesa fyrir hann
í úrvalsritum, svo sem leikritum
Holbergs og Þúsund og einni
nótt.
Ellefu ára að aldri misti And-
ersen föður sinn. Er hann hafði
fermdur verið, vildi móðir hans,
að hann lærði skraddaraiðn, en
því var Andersen algerlega mót-
fallinn og grátbændi móður
sína, að lofa sér að freista gæf-
unnar í “kóngsins Kaupmanna-
höfn”. Sumarið 1818 höfðu leik-
arar frá konunglega leikhúsinu
haldið samkomur í Odense. —
Koma þeirra olli straumhvörf-
um í lífi skósmiðssonarins,
kveikti óslökkvandi útþrá í
brjósti hans. Nýr heimur opn-
aðist fyrir sjónum hans. Hann
var ekki í minsta vafa um,
hvern veg hann átti að ganga.
Hann var ákveðinn í að verða
leikari.
Að lokum lét móöir Ander-
sens undan og leyfði honum
brottförina. En hún hafði haft
allan vara á. Hún hafði leitað
til spákonu einnar í Odense,
sem lét svo um mælt, — er
hún hafði leitað véfrétta í spil-
um og kaffikorg, — að Ander-
sen mundi mikill maður verða
og sá dagur mundi koma, að
Frh. á 7. bls.
Til Sveins Thorvaldsonar
kaupmanns við íslendingafljót
út af hans konungslegu upphefð (Empire Order), 1935
Eg ætlaöi, Sveinn minn, að senda þér ljóð,
og sýna þá löngun í verki.
Því nú, þar sem virðing og viðhöfn þín stóð:
Þú varðst okkar Grettir hinn sterki!
En gæfa þín, Sveinn, hún var greiðari en hans,
Með göfgi þú ruddir þér brautir,
Og öðlast nú lofstír hins merkasta manns
Og minning um afstaðnar þrautir.
Og þetta er nú blessað. Og virðingin vís:
En valmenskan—hún er þó stærri.
Og það er sú hefð, sem í hug mínum rís,
Um hátt þinn og lífsmátann nærri.
Vér fögnum því einu, sem gleður vort geð:.
Því göfuga, fagra og stóra.
Og virðingarmerkin, vér samt getum séð,
Og safnað þeim týrum við ljóra.
En manngildið eitt, það er minning hæzt,
og menningin fær þar sitt gildt.
Og það hefir, Sveinn minn, bezt göfgi þitt glæst,
og gefið þér alt hvað það vildi.
ISLANDS FRÉTTIR
í gær var skriðan um 200
NOTIÐ
TVÖFALT
SJÁLFGERT BÓKARHEFTI
ENOIH
FINNI
Tll.HCINí
aðeins
Passar í vasann—
heldur hverju blaði
í bezta ástandi.
Og þarna er það komið, sem læt eg mitt ljóð,
Um lofstír þinn heiminum kynna!
Og verði það ávalt um æfinnar slóð,
Hjá íslenzku þjóðinni að finna.
Skriða spillir túni að Villinga-
dal á Ingjaldssandi
24. janúar hljóp skriða úr
metrar á breidd. Skriðan jókst
í nótt. Bær og peningahús eru
talin í hættu.
* * * *
Vatnsskortur í Hrísey
Svo heill sé þér, Grettir, með hugrekkið mætt,
Og hugðnæma mótið að vanda.
Og því skal um lofstír þinn líka svo rætt:
Að lifir þú hjá oss í anda!
Og nú er eg búinn. Er jiorður við Fljót,
Við nepjur og holskeflur daga:
Þú öðlaðist, Sveinn, alt þitt menningarmót
Og minning, er gleymir ei Saga.
Og þökk fyrir starfið og stórmannleg ráð,
Og styrkinn. og fornkappa skrúða
Og frétt hefir kóngur um dug þinn og dáð
Og drengskap og hátternið prúða!
Jón Kernested
■Winnipeg Beach í janúar 1935.
fjallinu fyrir ofan Villingadal á
Ingjaldssandi. Stefndi hún fyrst
á bæinn en breytti svo um
stefnu og rann ekki á bæinn.
Skriðan fór yfir túnið og eyddi
miklu af því. Skriðan jer um
tvo metra á þykt í sporðinn. Alt
fólk er flutt úr bænum. Fénað-
ur hefir og að mestu verið flutt-
ur burt.
í Hrísey eru nú alilr brunnar
að þorna, sem nothæft vatn er
í, svo til vandræða horfir verði
ekki aðgert sem fyrst. Álitið er
að þverrun vatnsins stafi af
sprungum meðan jarðar, vegna
jarðskjálftanna síðastliðið sum-
ar, enda hafa jarðskjálftakippir
fundist þar öðru hvoru langt
fram á vetur.
INNKÓLLUNARMENN HEIMSKRINGLU
Kveðja til Sveins kaupmanns Thorvaldsonar
24. janúar 1935
í kvöld vér hillum, góðan gest!
glæsilegan Thorvalds-arfa.
Sveinn—er maður mannval bezt
mikill á velli hvar sem sézt.
í framkvæmd, er þó frægð hans mest
fólkinu kendi hann að starfa.
Því skal heilsa góðum gest!
Giftu drjúgum Thorvalds-arfa!
Árla og fremst í fylking stóð
framtakssamra landnámsmanna!
plægði lönd, og lagði í sjóð
lofsvert dæmi—sinni þjóð!
breiðan múr, um bæ sinn hlóð
bjartra vona—erfingjanna.
honum var mæld í merg og blóð
manndóms göfgi—forfeðranna.
Margan hefir ísland átt
óskamög í fjærstu löndum!
sem af viti, og sigur mátt
settu ættar merkið hátt.
Vér erum óhult öll í sátt
með einum slíkum, hér vér stöndum.
Verði honum aldrei vinafátt
í Winnipeg, né Gimli-ströndum!
Að þó hallist æfi kvöld!
enn í lyfting kempan stendur.
Bjartur á svip, með brynju og skjöld!
Frá “Bretanum” fékk sín oturgjöld—
fyrir að reisa á r^stum tjöld,
og ryðja skóg á báðar hendur.
Að verðleikum, á vorri öld!
var honum “Georg” titill sendur.
Vér í þessum vinahring
viljum allir hringja skálum!
þessum úrvals íslending!
Okkar bezta frumbýling.
Frægð hans hleypur heiminn kring
hugfró er það vorum sálum.
Óskum vér, að öll vor þing
eignist slíkan Svein, að málum!
Þórður Kr. Kristjánsson
Kveðja til húsfrú Kristínar Thorvaldson
frá Riverton, Man.
24. janúar 1935
Mig langar að syngja þér svolítin brag—
þó Sveinn heyri til mín, hann verður ei hissa
því hann á þig alla, hvern einasta dag
fyrir alls engan “titil” hann vildi þig missa
og þó að eg bindi þér brúðkranz í lag;
er brúðguminn einn, sem á rétt, til að kyssa!
Þú sórst honum eiða við altaris-stall.—
og ást þína gafst honum sanna og hreina
og trygð þín er enn—eins og órofið f jall!
Með ófægða töfrandi, huldumáls-steina.
Þú hittir ei neinn, sem var honum jafn snjall
því hann var frá barnæsku, fríðastur sveina.
Og ennþá um vanga þér, sólbrosið sézt
því Sveinn hefir reynst þér svo fágætur drengur!
Og eg þykist viss um hann meti þig mest
og muni þér ást þína, hvar sem hann gengur
Og þið starfið samhent, að því sem er bezt
í þjóðrækt, og búsæld, þá geymist það lengur.
Hann veit að þú enn ert sín ímynd og sól,
með ylgeisla vorsins, í sérhverju spori
með þér, séhver hátíð, er honum sem—jól!
og hússtjórn þín, fyllir hann djörfung og þori
—hann—blessar þá móðir, sem börnin hans ól,
og brQsmildu augun, sem sólskin á vori.
Þórður Kr. Kristjánsson
I CANADA:
Árnes................................. F. Finnbogason
Amaranth....................................J. B. Halldórsson
Antler.....................................Magnús Tait
Árborg....................................G. O. Einarsson
Baldur..............................................Sigtr. Sigvaldason
Beckville...............................Björn Þórðarson
Belmont....................................G. J. Oleson
Bredenbury.................................H. O. Loptsson
Brown................................Thorst. J. Gíslason
Calgary.................................Grímur S. Grímsson
Churchbridge.......................................Magnús Hinriksson
Cypress River.............................Páll Anderson
Dafoe....................................S. S. Anderson
Elfros..............................J. H. Goodmundsson
Eriksdale............................... ólafur Hallsson
Foam Lake.............................................John Janusson
Gimli...................................... K. Kjernested
Geysir................................................Tím. Böðvarsson
Glenboro.....................................G. J. Oleson
Hayland................................Sig. B. Helgason
Hecla...................................Jóhann K. Johnson
Hnausa...................................Gestur S. Vídal
Hove..............................................Andrés Skagfeld
Húsavík.............................................John Kernested
Innisfail............................Hannes J. Húnfjörð
Kandahar..................................S. S. Anderson
Keewatin............................................Sigm. Björnsson
Kristnes............................................Rósm. Ámason
Langruth...................................B. Eyjólfsson
Leslie...............................................Th. Guðmundsson
Lundar..............................................Sig. Jónsson
Markerville......................... Hannes J. Húnfjörð
Mozart................................................Jens Elíasson
Oak Point..........................................Andrés Skagfeld
Oakview.................‘............Sigurður Sigfússon
Otto........................................Björn Hördal
Piney.....................................S. S. Anderson
Poplar Park..............................Sig. Sigurðsson
Red Deer..............................Hannes J. Húnfjörð
Reykjavík.....................................Ámi Pálsson
Riverton................................Bjöm Hjörleifsson
Selkirk..................................G. M. Jóhansson
Steep Rock...................................Fred Snædal
Stony Hill.................................Björn Hördal
Swan River.........................................Halldór Egilsson
Tantallon...........................................Guðm. ólafsson
Thornhill............................Thorst. J. Gíslason
Víðir................................................Aug. Einarsson
Vancouver........................... Mrs. Anna Harvey
Winnipegosis.......................................
Winnipeg Beach..........................John Kernested
Wynyard....................................S. S. Anderson
I BANDARÍKJUNUM:
Akra....................................Jón K. Einarsson
Bantry...................................E. J. Breiðfjörð
Bellingham, Wash........................John W. Johnson
Blaine, Wash.....................Séra Halldór E. Johnson
Cavalier................................Jón K. Einarsson
Chicago: Geo. F. Long, 2428 Hamlin Ave., Logan Square Sta.
Edinburg.....................................Jacob Hall
Garðar..................................S. M. Breiðfjörð
Grafton.................................Mrs. E. Eastman
Hallson.................................Jón K. Einarsson
Hensel...................................J. K. Einarsson
Ivanhoe..............................Miss C. V. Dalmann
Los Angeles, Calif....Thorg. Ásmundsson, 3314 Sierra St.
Milton....................................F. G. Vatnsdal
Minneota............................Miss C. V. Dalmann
Mountain................................Th. Thorfinnsson
National City, Calif.......John S. Laxdal, 736 E 24th St.
Point Roberts...........................Ingvar Goodman
Seattle, Wash..........J. J. Middal, 6723—21st Ave. N. W.
Svold...................................Jón K. Einarsson
Upham..................................E. J. Ilreiðfjörð
The Viking Press, Limited
Winnipeg Manitoba