Heimskringla - 27.02.1935, Page 7
WINNIPEG, 27. FEB. 1935
HEIMSKRINGLA
7. SÍÐA.
H. C. ANDERSEN
Frh. frá 3. bls.
Odense-bær yrði skrauitlýstur
honum til heiðurs.
Fjórtán ára gamall, með eitt-
hvað tíu ríkisdali í vasanum,
hélt Andersen úr föðurgarði, að
leita gæfunnar. Hann var sem
hetjurnar í mörgum æfintýrun-
um, er allslausar og einmana
lögðu út í heiminn. En Ander-
sen var hinn öruggasti, treyst-
andi á handleiðslu forsjónarinn-
ar, minnugur þess, að löngum
fór vel í æfintýrunum.
Til Kaupmannahafnar kom
hann 6. september 1819. Var
það merkisdagur mikill í lífi
hans. Fyrsti áfanginn var hon-
um að baki. Áður en hann fór
að heiman, hafði hann sagit við
móður sína: “Fyrst verður mað-
ur margt ilt að þola, og svo
verður maður frægur.” Hann
reyndist sannspárri en hann
mun hafa grunað. Framan af
varð hann að þola margt and-
streymi. Vegur snillingsins er
eigi sjaldan þyrnum stráður, og
sannaðist það á Andersen. Hann
reyndi til að verða leikhúss-
söngvari, leikhúss-dansari og
leikari, en allar þær tilraunir
hans fóru út um þúfur. Þegar
best vegnaði með sönginn, fór
Andersen í mútur; hann var of
klauffenginn til að verða dans-
ari og hann skorti leikara-hæfi-
leika. Félagar hans gerðu gys
að honum. Hann bjó við sult
og seyru í einu lakasta hverfi
Kaupmannahafnar, mitt í hinni
ægilegustu siðspillingu, en samt
hélt han hreinleik sálar sinnar
og sakleysi. Þar við bættist,
að leikhússstjómin hafnaði öll-
um leikritum þeim, sem Ander-
sen sendi henni, enda var hér
um harla gölluð frumsmíði að
ræða, þó finna mætti í þeim
skáldleg tilþrif. En þrátt fyrir
alian andbyrínn, glataði Ander-
sen ekki trúnni á sjálfan sig og
framtíð sína.
Ýmsir merkismenn höfðu líka
orðið til að greiða götu hans.
Meðal þeirra voru tónsnillingur-
inn Weyse, Síboni söngmeistari
við konunglega leikhúsið, og
Baggesen skáld. Þeir sáu, ekki
síst hinn síðastnefndi, að eitt-
hvað óvenjulegt bjó í pilti þess-
um, þó afkáralegur væri í út-
liti og háttum. En þó var það
BUSINESS
EDUCATION
w r ri c
F 0 R
COMPIETE i
PROSPECTUS
I
MAIL THIS COIIPON TO-DAY!
To tKe Secretary:
Dominion Ðusiness Gollefe
Winnipeg. Menitobe
WitKout obligstkm, please send me full particulars
of your courses on' ’Streamlme" busmess traininf.
N«me
Addrw
^AGDominion
BUSINESfS COLLEGE
O >J THE MMÍ
WINNIPEG -
mesta gæfa Andersens, að hann
ávann sér vináttu Jónasar Col-
lins, eins af stjórnendum kon-
unglega leikhússins, er var bæði
mikilmenni og göfugmenni. —
Reyndist hann Andersen ágætur
vinur og hollur ráðgjafi æfi-
langt. Ekki er því að undra þó
skáldinu verði tíðrætt um Col-
lins í sjálfsæfisögu sinni og
bréfum, og minnist hans jafnan
með ástúð og þakklæti.*
Andersen hafði, svo sem fyr
var að vikið, notið lítillar ment-
unar í æsku. Úr þessu varð að
bæta, ættu skáldhæfileikar
hans að njóta sín til. fulls. Þetta
sá Collins öðrum fremur. Fékk
! hann því áorkað, að konungur
! veitti Andersen 400 ríkisdala
i ársstyrk í þrjú ár, til náms á
I æðriskólum og ókeypis kenslu. j
1 Stundaði Andersen fyrst nám á
j latínuskólanum í Slagelse, en
j síðar á latínuskólanum í Hels-
| ingjaeyri. Urðu námsárin lion-
! um eigi eins gleðirík og affara-
sæl og ætla mætti. Hann sætti
illri meðferð og ósanngjarnri af
hálfu S. Meislings, er var rekt-
or nefndra skóla á námstíð
Andersens. Meisling þenna, þó
lærður væri vel, skorti allan
skilning á skapgerð og gáfum
Andersens og beitti hann hörku
og háði. Kom svo að lokum, að
Collins tók hann úr Helsingja-
eyrar-skóla og setti hann til
náms í Kaupmannahöfn. Lauk
Andersen þar stúdentsprófi
haustið 1828, með sæmilegri
einkunn. Var hann nú í sjö-
unda himni, svo sem sjá má í
fyrsta kafla skáldsögu hans O.
T. Er þar að finna reglulegan
dýrðaróð, þó í óbundnu máli sé,
um hamingju hins nýbakaða
stúdents. Næsta ár lauk Ander-
sen prófi í forspjallavísindum
með heiðri. Og þar með var lok-
ið skólagöngu hans. Eftir það
urðu ritstörfin aðal viðfangsefni
hans.
Andersen varð fyrst kunnur
af kvæðum sínum. Á skólaár-
unum í Helsingjaeyri orkti hann
hið fagra og fræga kvæða sitt
“Hið deyjandi barn”. Var það
prentað í tímariti einu, náði
brátt lýðhylli og kom höfundin-
um í skáldatölu. Fyrsta bók
Andersens kom út á nýársdag
1829. Var það skáldsagan “En
Fodrejse frá Holmens Kanal til
Östpynten af Amager.” Frá-
sögnin er fyndin, en ófrumleg,
öfgafull og yfirborðsleg. Þó
má glögt sjá hið auðuga ímynd-
unarafl höfundarins í smellnum
samlíkingum og glöggum mynd-
um hér og þar í ritinu. Bók
þessi hlaut ágætar viðtökur. —
Sama árið kom úr gamanleikur
og kvæðasafn eftir Andersen og
áttu' einnig vinsældum að fagna.
Sumarið 1830 ferðaðist And-
ersen um Jótland. Varð för
þessi harla örlagarík í lífi
skáldsins. Meðan hann dvaldi í
Faaborg, varð hann ástfanginn
mjög í Riborg Voigt, systur eins
vinar síns og námsfélaga. En
hún var öðrum heitin. Fjarri
fór þó, að Andersen gleymdi
henni. Að honum látnum fanst
lítill poki á brjósti hans, hafði
hann þar alla æfi geymt síðustu
kveðju Riborgar — bréf frá
henni. Og ástavonbrigði þessi
höfðu djúp áhrif á Andersen,
svo sem sjá má af ritum hans
frá næstu árum. Þar kennir nú
meiri alvöru en áður.
Tvisvar sinnum varð Ander-
sen aftur fyrir vonbrigðum í
ástum. Hann lagið um skeið
hug á dóttur Jónasar Collins
velgerðarmanns síns, en árang-
urslaust. Löngu seinna feldi
hann mikla ást til Jenny Lind,
söngkonunnar frægu, “sænska
næturgalans” svokallaða. Fór
það að vonum, því að þau voru
* Um Andersen og Collins
má lesa í bókinni H. C. Ander-
sen og det Collinske Huus, er
Edvard, sonur Jónasar Collins,
sá um útgáfu á, og prentuð var
1882. Var höfundurinn gagn-
kunnugur Andersen, enda er
mikinn fróðleik að finna í riti
hans bæði um æfi skáldsins og
sjálfan liann.
andlega skyld, áttu bæði göfuga
og hreina snillingssál. En söng-
konan galt ást Andersens með
einlægu, bróðurlegu vinarþeli.
Og þó honum fyndist það að
vonum rýr ástarlaun, hélst hin
fölskvalausa vinátta þeirra,
meðan bæði lifðu. Og tvær hin-
ar fegurstu af sögu Andersens,
“Næturgalinn” og “Engillinn”,
eru sporttnar upp af aðdáun
hans á söng Jenny Lánd. En
Andersen græddist meira á
kynningunni við þessa frábæru
listakonu. Hún hafði mikil og
göfgandi áhrif á hann. Með
dæmi sínu sýndi hún honum, að
hinn sanni snillingur helgar líf
sitt list sinni. Enda segir Ander-
son sjálfur um söngkonuna:
“Hún kendi mér fyrst að skilja
helgi listarinnar, af henni lærðii
eg, að maður verður að gleyma
sjálfum sér í þjónustu hins
æðra.” Og er stundir liðu fram,
helgaði Andersen sig líka allan
list sinni. En hinir eru margir,
sem gæddir eru listgáfu, en
neita að fórna öllu á altari
hennar og verða þess vegna
aldrei nema miðlungsmenn.
En hverfum aftur að ástamál-
um Andersens. Vart verður
sagt, að hann hafi gæfumaður
verið í þeim efnum. Mun ó-
fríðleiki hans í sjón og klaufa-
leg framkoma hafa átt sinn
þátt í því að svo fór, sem raun
bar vitni um kvonbænir hans.
Hann sagði líka eitt sinn í
bréfi: “Sá maður, sem hvorki er
fríður sýnum, né auðugur, fær
aldrei eignast ást konu”. En
ekki vildi Andersen lifa í ást-
lausu hjónabandi, og kvæntist
hann því aldrei.
Framh.
Fyrir nokkru síðan fundust
miklar marmaranámur á Græn-
landi. Hefir danska stjórnin nú
undanfarið látið rannsaka
þenna marmara og er hann tal-
inn að vera að öllu leyti í jafn-
gildi við marmara þa^in er unn-
in er í Suður Evrópu. Er nú
ráðgert að vinna námur þessar
og koma grænlenzka marmar-
anum á Ameríku markaðinn.
LOFTFÖR OG LOFTSJÓNIR
Á vökunni
—Um Njálu og önnur fornrit—
Að þú vildir eignast stöku;
Orð eg ræð frá þér;
Langa að stytta vetrarvöku.
—Vel því taka ber.
Þeim, sem tóku óð að arfi,
Enn 'er stakan kær.
Vekur líf og lag í starfi
Listin fjær og nær.
Þótt í kjörlands ys og önnum
Óður brotni og mál
Gleymast íslands sonum
sönnum
Sagnir vart um—Njál.
Hann—og aðra dáða drengi:
Dóma þeirra og lög;
Þar, sem frækið frægðar
mengi,
Færði störfin hög.
Njáll, og öll hans æfisaga:
Aldin fyrirmynd;
Þó að nepja neyðardaga
Næði um, kjörin blind.
Hann, og líka Hall af Síðu,
Heiðra—og fleiri má.
Jafnvel hér á fróni fríðu,
Fólk það hlustar á.
Okkar vöku-vinna heima
Var: Að kynnast þeim;
Frægðar-sagnir fornar geyma
Og fagran stefja hreim.
Heimför
Eg er á leið til íslands heim
í anda—veiztu þaö?
Og fyrst eg kem að fjöllum þeim
Hvar fyrr eg hafði stað.
Af flugvél að sjá
Flugvélin var furðu góð:
Eg fór með henni:
Lagðar brautir lofts um Enni.
Þaut hún hraðfleyg upp og út
Og ofan líka;
Sjón það gerði söguríka.
--------------- Landið var, úr lofti að sjá,
Negri sem var tekinn fastur Sem lítil rýja,
fyrir stuld var færður fyrir Hengd á milli himinskýja.
dómara.
Dómarinn: “Hefir þú nokkur Sær og himinn sýndist eins,
vitni?” Um svalan geiminn; —
Negrinn: “Nei, eg stel ekki í Eins og fyrir utan heiminn.
vitna viðurvist.” Jón Kernested
NAFNSPJOLD
Dr. M. B. Halldorson 401 Boyd Bldg. Skrifstofusími: 23 674 Stundar sérstaklega lungnasjúk- dóma. Er að finni á skrifstofu kl. 10—i: f. h. og 2—6 e. h. Heimili: 46 Alloway Ave. Talsími: 33 158 G. S. THORVALDSON B.A., LL.B. Lögfrœðingur 702 Confederation Life Bldg. Talsimi 97 024
Dr. J. Stefansson 216 MEDICAL ARTS BLDG. Horni Kennedy og Graham Stundar eingöngu augna-eyrna- nef- og kverka-sjúkdóma Er að hdtta frá kl. 2.30—5.30 e. h. Talsími: 26 688 Heimili: 638 McMillan Ave. 42 691 W. J. LINDAL, K.C. BJÖRN STEFÁNSSON ISLENZKIR LÖGFRÆÐINGAR á öðru gólfi 325 Main Street Talsími: 97 621 Hafa einnig skrifstofur að Lundar og Gimli og eru þar að hitta, fyrstá miðvikudag í hverjum mánuði.
Rovatzos Floral Shop
206 Notre Dame Ave. Phone 94 951
.Fresh Cut Flowers Daily
Plants in Season
We specialize in Wedding- &
Concert Bouquets & Funeral
Designs
Icelandic spoken
M. HJALTASON, M.D.
AL.MENNAR LÆKNINGAR
Sérgrein: Taugasjúkdómar
Lætur úti meðöl < viðlögum
Sími: 36 155 682 Garfield St.
Dr. S. J. Johannesson
218 Sherburn Street
Talsími 30 877
Viðtalstími kl. 3—5 e. h.
A. S. BARDAL
selur líkkistur og annasit um útfar-
ir. Allur útbúnaður sá besti. —
Ennfremur selur hann allskonar
minnisvarða og legsteinia.
843 SHERBROOKE ST.
Phone: S6 607 WINNIPEG
Office Phone
87 293 •
Res. Phone
72 409
Dr. L. A. Sigurdson
109 MEDICAL ARTS BUILDING
OrFicE Houks:
12-1
4 p.m. - 6 P.M.
AND BY APPOINTMENT
RAGNAR H. RAGNAR
Pianisti oo kennari
Kenslustofa: 683 Beverley St.
Phone 89 502
THE WATCH SHOP
Thorlakson Baldwin
Diamonds and Wedding
Rings
Agents for Bulova Watches
Marriage Licenses Issued
699 Sargent Ave.
MARGARET DALMAN
TEACHER OF PIANO
S54 BANNING ST.
Phone: 26 420
J. J. Swanson & Co. Ltd.
REALTORS
Rental, Insurance and Financial
Agents
Sími: 94 221
600 PARIS BLDG.—Winnipeg
Dr. A. V. JOHNSON
tSLENZKUR TANNLÆKNIR
212 Curry Bldg., Wlnnipeg
Gegnt pósthúslnu
Simi: 96 210 Heimilis: 32 32S
Friðrik Valtýr Friðriksson
f. 11. marz 1894 — d. 4 des. 1924
Margs er að sakna þá mistum við þig,
Mætasti vinur og frændi,
Svifti það mörgum á sorganna stig,
Hve sviplega, dauðinn þér rændi.
Horfin er sjónum þín hýrlega brá
Og hlýlega viðmótið glaða,
Og brosin sem skinu þér ásjónu á—
Enginn fær metið þann skaða.
Á fagnaðarmótum, æ fremstur þú varst,
Og fluttir þar gleðinnar mál.
Af öllum í Geysir þar alla tíð barst,
Þú áttir svo glaðværa sál.
Frá föður og móður þú eignaðisit arf,
Sá arfur, var fjársjóður dýr.
Við arfinn þann góða þú stiltir þitt starf
Það starf sem að margur að býr.
Þolinn í starfi og stiltur í lund
Og stöðugur ætíð þú varst. —
Hjálpsama réttir að mönnunum mund,
Og með þeim hið erfiða barst.
Að þú hefir lifað í þessari bygð,
Það hafa fundið vor mál.
Og fyrir þau varstu með tállausri trygð
Á tápfullri og óskiftri sál.
Það syrgir þig ekkjan og syrgja þig böm
Og syrgir þig örvasa sprund.
Þó hygg eg í sorgunum verði þeim vöm
Að vita þá umliðnu stund.
Systirin eina þig elskaði heitt
Og einnig hún syrgir þig mjög.
En huggun í sorgunum henni fá veitt
Þau himnesku fornaldar lög.—
Um hádegi æfinnar hrifinn frá oss
Ó, hart var að sjá þér að baki.
Við vitum þú eignast hin eilífu hnoss,
Og englanna verður þú maki.
Við kveðjum þig vinur í síðasta sinni,
Og sannlega vonum að fá
Að hitta þig~afitur, í unaðs heimkynni,
Þars eilífri sælu er að ná.
F. P. Sigurðsson,
Geysir, Manitoba
MAKE YOUR PLEASANT
LUNCH HOUR DATES AT
The
Jílarlborougí) ^otel
A Service to Suit Everyone
LADIES MEZZANINE FLOOR
11.30 to 2.30 Special Luncheon
35c
BUSINESS MEN CLUB
LUNCHEON—11.45 to 2.30
50c and 75c
also a la carte
COFFEE ROOM (Men & Women)
SPECIAL LUNCH, 12-3......40c
SPECIAL DINNER, 6 to 8....50c
NÝJA fSLAND
Jacob F. Bjarnason
—TRAN SFER—
Baggage and Furniture Moving
762 VICTOR ST.
StMI: 24 500
Annast allskonar flutnlnga fram
og aftur um bæinn.
J. T. THORSON, K.C.
tslenzkur lögfrœOingur
Skrifstofa:
801 GREAT WEST PERMANENT
BUILDING
Simi: 92 755
Lag: Eldgamla ísafold
Eld nýja íslajörð
Elskuð ei betri er gjörð,
Korn bylgju breið
Unna þér öld af öld
Ástmeyjar, sveina fjöld
Skyldunnar skilja völd
Skín sól á meið.
Landið er látt og slétt
Litfögrum blómstrum sett
Fiski-lón fræg.
Engin hér eru fjöll
Eldgos né skemda spjöll
Náttúran er því öll
Ávaxta næg.
Rauðár-dals breiðan bekk
Brosleitur Leifur gekk
Vín þrúgur vóð.
í þúsund ár það var gleymt,
Það er nú aftur heimt
t orðum og gjörðum geymt
Glöð er vor þjóð.
P. S. G.
Dr. K. J. AUSTMANN
Wynyard —Sask.
Talsimi: 28 889
Dr. J. G. SNIDAL
TANRLÆKNIR
614 Somerset Block
Portage Avenue WTNNIPEG
VIKING BILLIARDS
og Hárskuröar stofa
696 SARGENT AVE.
Knattstofa, tóbak, vindlar og
vindlingar. Staðurinn, þar sem
Islendingar skemta sér.