Heimskringla - 06.03.1935, Blaðsíða 7
I
WINNIPEG, 6. MARZ, 1935
HEIMSKRINGLA
7. SlÐA.
H. C. ANDERSEN
Frh. frá 3. bls.
mat þægindi og öryggi mikils.
Sem vænta mátti, urðu hin
mörgu ferðalög skáldsins hon-
um efniviður í ýmsar bækur.
Andersen hafði sagt í æsku,
að fyrst yrði maður margt ilt
að þola og svo yrði maður fræg-
ur. I>au orð eru sönn yfirskrift
æfi hans sjálfs. Og sem oftar
í sögu andans afburðarmanna
urðu útlendingar fyrri til að
meta hann alment heldur en
landar hans. Svíar urðu fyrstir
til að heiðra hann opinberlega,
en aðrar þjóðir sigldu brátt í
kjölfar þeirra. Æfintýri Ander-
sens féllu sérstaklega í frjóan
jarðveg í Þýzkalandi. Perð
hans þar um land 1845—46 var
samfeld sigurför. Þjóðhöfð-
ingjar, skáld, listamenn og vís-
indamenn, æðri sem lægri,
sýndu honum margvíslegar
virðingar. Og Andersen naut
hamingju sinnar í fullum mæli:
hann gleymdi mótlætinu, er á
undan hafði gengið. Hjarta hans
fyltist þakklætis og ástar til
allra manna.------“Ljóta and-
arunganum” höfðu vaxið væng-
ir. “Stóru svanimir syntu í
kringum hann og struku honum
með nefjum sínum.—Og gömlu
svanirnir lutu honum.”
Svipaða sigurför fór Andersen
um Holland og England 1874.
Árið 1871 heimsótti hann Noreg
fyrsta sinni. Voru viðtökumar
þar hinar ástúðlegustu. Bjöm-
stjerne Björnson flutti honum
kvæði og norskir stúdentar
hyltu hann.
Og heima á ættjörðinni höfðu
dómarnir um Andersen og rit
hans smámsaman breyst til
batnaðar, orðið sanngjarnari og
samúðarfyllri. Lýðhylli hans óx
þar og með ári hverju og áttu
æfintýri hans og sögur eigi
hvað minstan þátt í því. Sjálfs-
æfisaga skáldsins, sem út kom á
fimtugsafmæli hans, 2. apríl
1855, jók einnig vinsældir hans
í Danmörku.
Loks höfðu þá augu landa
skáldsins opnast fyrir því, hvern
snilling þeir áttu þar, sem hann
var. Og þeir sýndu það nú ó-
spart í verki. Hin 23. nóv. 1867
var Andersen gerður að heiðurs-
borgara Odensebæjar; var bær-
inn skrautlýstur og mikil hátíð
MAIL THIS COUPON TO-DAY!
T*o tKe Secretery :
Dominion Businesj CoIUge
Winnipeg. Manitobe
WitKout obligetkm, please send m« full perticulan
of your courses on "Streamime” busmess tnuning.
N*!**# . i., , i) . . ( . . T . - , | :
....................
6’/>eDominion
BUSINES^ COLLEGE
0"l IH' M«,0- • WINrilPEG
haldin við það tækifæri. Spá-
konan hafði reynst sannspámi
en margar stöllur hennar. Á
sjötugsafmæli skáldsins árið
1875, var saga bans “Móðir”
(Historien om en Moder) gefin
út á fimtán tungumálum; auk
þess hefir hún þýdd verið á enn
fleiri tungumál, þar á meðal
eina indverska tungu, bengöl-
sku. Og sjálf “kóngsins Kaup-
mannahöfn” syndi Andersen að
lokum verðskuldaðan sóma. —
Hinn 26. júní 1880 var afhjúpuð
höggmynd sú af skáldinu, er
stendur í Rosenborgarhallar-
garði. Kom hér fram kaldhæðni
örlaganna. Því að í skemtigarði
þessum, hafði Andersen, bláfá-
tækur unglingurinn, setið og
maulað þurt brauð, er hann átti
eigi ráð á betri miðdegisverði.
Andersien var kunnugt um, að
reisa átti standmynd þessa hon-
um til heiðurs ,en hann lifði eigi
að sjá því verki lokið. Hann
andaðist rúmlega sjötugur að
aldri, 4. ágúst 1875, á herra-
garðinum “Rolighed” í nágrenni
Kaupmannahafnar. Varð hon-
um æfikveldið ánægjulegt, því
að hann var umkringdur ágæt-
'jm vinum og fórnfúsum.
m.
Andersen var bæði fjölhæfur
og afkastmikill rithöfundur. —
Alls liggja eftir hann nærri þrjá-
tíu rita, auk sjálfsæfisögu og
fjölda bréfa.
I Hann orkti margt kvæða;
fæst þeirra eru tilþrifamikil, en
sum mjög fögur. Nokkur þeirra
hafa orðið almenningseign þjóð-
ar hans og lifa enn á vörum
hennar. Djúp tilfinning ein-
kennir hin bestu kvæði hans.
Þau eru töluð beint út úr hjarta
skáldsins, en að formfegurð
skara þau sjaldnast fram úr.
Meðal hinna ágætustu og víð-
frægustu er “Hið deyjandi
barn”. Vögguvísur hans og ásta
ljóð eru oft prýðisfalleg og þýð.
Ágætar náttúrulýsingar og
landslagsmnydir er að finna í
kvæðum hans. Eitt hið allra
fegursta slíkra kvæða er ‘‘Dan-
mark, mit Fædreland”; að dómi
Dana sjálfra, ef til vill fegursta
ættjarðarkvæði þeirra. Eins og
æfintýri hans sýna glegst þá
gat Andersen verið meinfynd-
inn, en ekki lét honum háð-
kveðskapur nema í meðallagi.
Hann skráði nokkra ljóðleiki. Af
þeim má nefna Agnete og Hav-
manden sem orkt er út af al-
kunnu þjóðkvæði dönsku. En
ekki getur leikur þessi tilkomu-
mikill talist, þó skáldleg fegurð
sé á köflum, einkanlega í nátt-
úrulýsingunum. Það er eins og
maður finni blómilminn og
heyri fuglasönginn og bylgju-
sláttinn á skógklæddri sævar-
ströndinni.
Andersen reit margar skáld-
sögur og eru þær meðal hinna
merkustu rita hans; teljast til
hins besta í dönskum bókment-
um frá fyrri hluta nítjándu ald-
ar að áliti merkra sérfræðinga í
þeirri grein. Samt eru þær eigi
einsl fágaðar — fullkomnar frá
listarinnar sjónarmiði — sem
æfintýrin; meðferð efnis er oft
ábótavant. Víðkunnust skáld-
sagna Andersens er Improvisat-
oren, sem þýdd hefir verið á
ýms tungumál. Þó söguhetjan
heiti ítölsku nafni, Antonio, er
þetta í raun og veru saga And-
ersens sjálfs, lýsing á námsferli
hans og baráttu hans á skáld-
brautinni. En jafnframt er bók-
in ljóslifandi og litarík mynd af
ítölsku landslagi og þjóðlífi og
af ítalskri menningu. Hún er,
eins og Steingrímur Thorstein-
son komst heppilega að orði:
“full af ljómandi fegurð og í-
myndunarauðlegð.” Aukaper-
sónum er sérstaklega greinilega
lýst og frásögur Andersens eru: |
O. T., Kun en Spillemand, De to
Baronesser og Lykkeper. Hinar
tvær síðastnefndu eru þroskað-
astar allra skáldsagna höfund-
arins; gerir hann sér nú meira
far um, að lýsa hinum ýmsu
sögupersónum, heldur en að
segja sögu sína.
ÆFIMINNING
SIGRfÐUR BJÖRNSDÓTTIR EGILSSON
Þann 31. janúar síðastliðinn
andaðist í The Pas, Manitoba
ekkjan Sigríður Björnsdóttir
Egilsson næstum 82 ára gömul.
Sigríður fæddist 11. apríl 1853
á Roðhóli á Höfðaströnd í
Skagafjarðarsýslu á íslandi. —
Foreldrar hennar voru Björn
! Þorsteinsson og Þóra Runólfs-
dóttir, er mestan sinn búskap
bjuggu á Spáná.
Árið 1875 giftist Sigríður
Áma Egilssyni og fluttust þau
næsta ár vestur um haf. Þau
námu land í Mikley í Winnipeg-
vatni og bjuggu þar lengi bæði
austan á eynni og að vestan.
En árið 1904 fluttust þau burt
þaðan og settust þá að í
Grunnavatnsbygðinni, eins og
hún var þá jafnan nefnd, skamt
frá Otto pósthúsinu. Þar dvöldu
þau tuttugu ár; en fluttust 1914
norður til The Pas. Ámi dó
1920.
Af tólf bömum, sem þau eign-
uðust, eru sex á lífi: Helga,
kona Ásgríms Halldórssonar á
Oak Point, Manitoba; Mrs. F. H.
Truax í Minot, N. D.; Mrs. D.
Light í Noonan, N. D.; Mrs. H.
De Rushie í Vineland, New
Jiersey; Mrs. E. H. Stevenson í
The Pas og Barney Anderson í
Cranberry Portage, Manitoba.
Hin börn þeirra, sem dáin eru,
dóu öll ung að undantekinni
einni dóttur, Sigurbjörgu að
nafni, er dó 24 ára gömul fyrir
tólf árum. Síðustu árin, sem
Sigríður heitin lifði, var hún til
heimilis hjá dóttur sinni, Rós-
björgu, Mrs. Stevenson, og
manni hennar, og naut hún hjá
þeim ágætrar aðhlynningar. Var
hún allmikið farin að tapa
heilsu síðari árin; þó ferðaðist
hún af og til milli dætra sinna
og dvaldi hjá þeim tíma og
tíma til skiftis þar til hún var
komin undir áttrætt.
Hún var mikil myndar- og
dugnaðarkona og kvað hvar-
vetna mikið að henni. Þurfti
hún þess líka með á frumbýl-
ingsárunum, að geta tekið til
hendinni, því að efnin voru oft
lítil en fjölskyldan stór. En
maður hennar var líka orðlagður
dugnaðarmaður, sem reyndi í
það ítrasta að bjargast af eigin
ramleik. Var saga þeirra hjóna
hin sama og saga svo margra
annara íslenzkra landnáms-
manna og kvenna hér í bygð-
um íslendinga í Canada, sem
barist hafa áfram gegnum fá-
tækt og erfðileika með stóran
barnahóp, saga strits og sjálfs-
fórnar, þar til því hlutverki, að
koma hópnum upp hefir verið
lokið. Má með sanni segja um
Sigríði sál. að hún leysti þetta
hlutver kvel o gdyggilega af
hendi. Hún var börnum sínum
góð móðir, gestrisin og greið-
vikin um efni fram við alla,
sem hún náði til og þess þurftu
með.
Böm hennar og aðrir að-
standendur votta þakklæti sitt
öllum þeim, sem heiðruðu
minningu hennar með því að
senda blómsveiga á kistuna. En
minningin varir lengur en þau
ytri tákn samúðar og virðingar;
hún geymist í þakklátum hug-
um allra þeirra, er góðs hafa
notið af elju og erfiði feðra og
mæðra, sem hér ruddu braut-
ina. Blessuð veri sú minning.
G. Á.
Ekki stendur Anderson fram-
arlega sem leikritaskáld. Þó
samdi hann fjölda sjónleika og
urðu sumir vinsælir á leiksviði.
Gamanleikurinn Den nye Bar-
selstue er talinn bestur þeirra.
enda er hann f jörugur og fynd-
inn; háð-skeyti höfundar missa
ekki marksins. Annars þarf
ekki langt að leita skýringar-
innar á því, hversvegna Ander-
sen mishepnaðist leikritagerðin
yfirleitt. Hann varð helst að
vera aðalpersónan — sögumað-
urinn. Honum lét ekki vel, að
skapa persónur sér fjærskyldar
að eðli og hugsunarhætti. En í
hinum bestu ieikritum blandar
ritarinn sér ekki í frásögnina;
hann er sem hlutlaus áhorfandi,
er lætur sögupersónurnar lýsa
sér í orðum og athöfnum, og
sæta þeim örlögum, sem þær fá
eigi umflúið samkvæmt lífsins
órjúfanlega lögmáli, — lögmáli
orsaka og afleiðinga, að upp-
skeran verði sáðinu samkvæm.
Andersen lét heldur ieigi að sýna
á leiksviði sálarlegan þroskaferil
persória sinna, breytingamar,
sem verða hljóta á skapgerð
þeirra og lífshorfi, sökum marg-
víslegra áhrifa, er þær verða
fyrir. En slík lýsing á eðlileg-
um og óhjákvæmilegum skap-
gerðar-breytingum persóna
sinna tókst Shakespeare svo
snildarlega. Er engum heiglum
hent, að feta honum þar í spor.
Andersen var gæddur afar-
ríkri athugunargáfu, ekfeert fór
fram hjá honum; hið smávægi-
legasta og algengasta klæðir
hann í hinn skáldlegasta bún-
ing. Hann blæs lífsanda í það,
sem öðrum var kaldur og dauð-
ur veruleikinn. Gætir þessa í
skáldsögum hans, en þó mest í
ferðalýsingum hans. Segja má,
að þær séu fjölbreytt safn
mynda úr fortíð og nútíð. Þeirra
helstar teru: En Digters Bazar,
I Sverige, og I Spanien. Hin
skarpa athygli höfundar og
skáldlegt hugarflug hans eru
hér Ijósu letri skráð. En þó
dáist íhugull lesandi ef til vill
mest að því, hversu vel skáldinu
tekst að færa hughrif sín í hæf-
an orðabúning. Það er sem
maður sé ferðafélagi Andersens,
svo glöggar og lifandi eru lýs-
ingar hans.
Frh.
FRÁ fSLANDI
Miðstöðvarofn springur
í vefnaðarvöruverzlun
Siglufirði 4. febr.
1 morgun kl. 10 varð geysi-
mikil sprenging út frá miðstöðv-
Dr. M. B. Halldorson 401 Boyd Bldg. Skrifstofusími: 23 674 Stundar sérstaklega lungnasjúk- dóma. Er að finnl á skrifstofu kl. 10—12 í. h. og 2—6 e. h. Heimlli: 46 Alloway Ave. Talsimi: 33 158 G. S. THORVALDSON B.A., LL.B. LögfrœOingur 702 Confederation Life Bldg. Talsími 97 024
Dr. J. Stefansson 216 MEDICAL ARTS BLDG. Horni Kennedy og Graham Stundar eingöngu augna-eyrna- nef- og kverka-sjúkdóma Er að hitta frá kl. 2.30—5.30 e. h, Talsimi: 26 688 Heimili: 638 McMillan Ave. 42 691 W. J. LINDAL, K.C. BJÖRN STEFÁNSSON tSLENZKIR LÖGFRÆÐINGAR á öðru gólfi 325 Main Street Talsími: 97 621 Hafa einnig skrifstofur að Lundar og Gimli oe eru þar að 'hitta, fyrsta miðvikudag i hverjum mánuði.
Rovatzos Floral Shop 206 Notre Darae Ave. Phone 94 954 Fresh Cut Flowers Daily Plants in Season We specialize in Wedding & Concert Bouquets & Funeral Deslgns Icelandic spoken M. HJALTASON, M.D. ALMENNAR LÆKNINGAR Sérgrein: Taugasjúkdómar Lætur úti meðöl I viðlögum Sími: 36 155 682 Garfield St.
Dr. S. J. Johannesson 218 Sherbum Street Talslmi 30 877 Viðtalstími kl. 3—5 e. h. A. S. BARDAL selur líkkistur og annasit um útfar- ir. Allur útbúnaður sá besti. Ennfremur selur hann allskonaj minnisvarða og legsteina. 843 SHERBROOKE ST. Phone: 86 607 WINNIPEG
Office Phone Res. Phone RAGNAR H. RAGNAR
87 293 72 409
Dr. L. A. Sigurdson 109 MEDICAL ARTS BUILDING Pianisti oa kennari
Office Hours: Kenslustofa: 683 Beverley St.
12-1
4 P.M. - 6 P.M. Phone 89 502
AND BY APPOINTMENT
THE WATCH SHOP MARGARET DALMAN
Thorlakson Baldwin
Diamonds and Wedding TEACHER OF PIANO
Rings 854 BANNING ST.
Agents for Bulova Watches
Marriage Licenses Issued Fhone: 26 420
699 Sargent Ave.
J. J. Swanson & Co. Ltd. Dr. A. V. JOHNSON
REALTORS ÍSLENZKUR TANNLÆKNIR
Rental, Insurance and Financial
Agents 212 Curry Bldg., Winnipeg
Sími: 94 221 Gegnt pósthúsinu
600 PARIS BLDG,—Winnipeg Simi: 96 210 Heimilis: 33 328
MAKE YOVR PLEASANT
LUNCH HOUR DATES AT
The
Jílarlborousí) ?|otel
A Service to Suit Everyone
LADIES MEZZANINE FLOOR
11.30 to 2.30 Speclal Luncheon
35c
BUSINESS MEN CLUB
LUNCHEON—11.45 to 2.30
50c and 75c
also a la carte
Jacob F. Bjarnason
—TRANSFER—
Baggage and Furniture Moving
762 VICTOR ST.
SlMI: 24 500
Annast allsfconar flutninga fram
og aftur um bœinn.
COFFEE ROOM (Men & Women)
SPECIAL LUNCH, 12-3......40c
SPECIAL DINNER, 6 to 8....50C
arofni í vefnaðarvörudeild verzl-
unar Halldórs Jónassonar, Aðal-
götu 29 hér á Siglufirði, 10 mín
útum áður var kveikt upp í
ofninum. Ofninn var í skrif-
stofu inn af búðinni, var þar
geymdur fatnaður og ýmsar
vörur. Tíu millimetra þykkar
rúður í þrem stórum einrúða
sýningagluggum þeyttust í smá-
molum út á götu og hristingur
fanst í næstu húsum. Enginn
var staddur í búðinni er þetta
vildi til. Miðstöðvarofninn var
allur í smágötum er komið var
að, höfðu brotin þeytst í gegn-
um loft og veggi herbergisins
og gegnum margfaldan fatnað
er hékk þar inni. Herbergið og
vörur þar inni er stórskemt.
Eigi er vitað með vissu um or-
sök sprengingarinnar. Skemdir
hafa ekki verið metnar.
J. T. THORSON, K.C.
Islenzkur lögfrœOingur
Skrlfstofa:
801 GREAT WEST PERMANENT
BUILDING
Sími: 92 755
Dr. K. J. AUSTMANN
Wynyard —Sask.
TaUimi: 28 889
Dr. J. G. SNIDAL
TANtLÆKNIR
614 Somerset Block
Portage Avenue WINNIPEG
KAUPIÐ HEIMSKRINGLU
LESIÐ HEIMSKRINGLU
BORGIÐ HEIMSKRINGLU
VIKING BILLIARDS
og HárskurOar stofa
696 SARGENT AVE.
Knattstofa, töbak, vlndlar og
vlndlingar. Staðurinn, þar sem
Islendingar skemta sér.