Heimskringla - 31.07.1935, Síða 4

Heimskringla - 31.07.1935, Síða 4
4. StÐA. HEIMSKRINGLA WINNIPEG, 31. JÚLÍ 1935 Hcímskringik (Stofn uO lttt) Kemur út i hverjum miBvikudegi. Elgemdur: THE VIKING PRESS LTD. tS3 oa tSS Sargent Avenue, Winnipeg Talsimia tS 537 Verð blaðsins er $3.00 árgangurinn borgist tyriríram. Allar borganir sendist: THE VIKING PRESS LTD. öll viðskifta bréf biaðinu aðlútandi sendist: Manager THE VIKING PRESS LTD. 853 Sargent Ave., Winnipeg Rltstjóri STEFÁN EINARSSON Utand.sk.rift til ritstjórans: EDITOR HEIMSKRINGLA 853 Sargent Ave., Winnipeg "Heimskringla” is published and printed by THE VIKING PRESS LTD. 853-85S Sargent Avenue, Winnipeg Man. Telephone: 86 537 WINNIPEG, 31. JÚLÍ 1935 ISLENZKIR HÁTÍÐISDAGAR Um þetta leyti árs, er ávalt talsvert um hátíðisdaga og útiskemtanir hjá ís- lendingum. I ár kveður jafnvel meira að því en áður. Þjóðhátíðardögum ís- lenzkum leggjast ýms verkefni upp í hendur, sem sérstaka athy^li vekja. í Nýja íslandi er 60 ára minning um komu íslendinga til M»nitoba það, sem sér- staka athygli vekur á þjóðhátíðardögum þeirra. — í Þingvalla-nýlendu, hefir nú þegar í síðustu viku verið minst mjög hátíðlega landnáms þeirrar bygðar. Og suður í Chicago fer nú þjóð- hátíð í hönd; einnig á meðal Is- lendinga vestur á Kyrrahafsströnd. Norð- ur á Lundar var síðastliðna viku haldin útiskemtun, Pield Day, er 400 manns sóttu. Fóru þar fram eftirtektaverðar íþróttir. Vonar Heimskringla að frá þeirri hátíð verði ger skýrt í blöðunum af einhverjum, er þar var viðstaddur. Einnig vonast hún eftir fréttum af öllum þessum hátíðisdögum. Það ferst stund- um fyrir að þessara hátíða sé getið að miklu eða þess, sem fram fer þar, af því að blöðin hafa ekki fréttaritara þar. En öllu slíku í sögu Islendinga hér þarf að halda til haga. Eins er með fregnir af hag íslendinga í ýmsum bygðum hér vestra. Bréf með slíkum fréttum eru nú blöðunum alt of sjaldan send til birtingar. Það mætti ekki minna vera en að hver bygð sendi einu sinni á ári ítarlega frétt yfir það sem gerst hefir og hvern þátt íslendingar hafa átt í því. Þetta er það þjóðræknisatriði, að það ætti ekki undir höfuð að leggjast. Það tengdi lengi íslendinga hér saman og það er ómetanlegt innlegg til sögu þeirra hér í landi. 1 raun og veru ætti ein blaðsíða eða tvær í hverri viku að vera fylt með þesskonar bygðafréttum af Is- lendingum. Það kann nú, mörgum að virðast að það séu ekki miklar fréttir í því að skrifa um hvenær sláttur byrjar, hvern- ig uppskeruhorfur eru, hvemig verzlun og viðskifti ganga, hverjir giftast og reisa bú, hverjir fæðast og deyja, hvað hverjum og einum hlotnast sér til fra^gð- ar sakir athafna sinna eða gáfna, en alt þetta eru sterkir þræðir í því að tengja íslendinga saman þeim hugarböndum, sem nauðsynlegt er, til þess að þeir taki saman höndum um þau mál, er þá sér- staklega snerta. Og það er í því, sem hlutverk íslenzku blaðana er fólgið. Þau eru andlegur tengiþráður hér milli íslendinga, ef þau eru rétt notuð. Og síðan að íslendingar hættu að eiga nokkra bygð út af fyrir sig, em blöðin eina, eða sterkasík, að minsta kosti, þjóðernislega tengitaugin, sem þeir eiga. Ef íslendingar nær eða fjær vildu gefa þeim gaum og ljá hugmyndinni lið sitt í verki, væri það ekki einu sinni þakksamlega þegið af þessu blaði, held- ur væri það íslenzkum málefnum hér vestra ómetanlegur hagnaður. Þjóðhátíðunum sem fara í hönd ættu íslendingar einnig að sinna og sækja þær, ef þeim er það unt. Það er fyrir mörgum íslendingum ein sú bezta skemt- un, sem þeim getur hlotnast, að koma saman sem íslendingar. Gamall kunn- ingsskapur er oft enduraýjaður á slík- um hátíðum. Það gefst betra og meira tækifæri þar að tala saman en á öðrum samkomum og kynnast öðrum er þeir hafa ekki áður kynst. Það atriði er svo mikils vert, að Heimskringla leggur til, að í hverri íslendingadagsnefnd, sé hér- eftir kosin gérstök nefnd til þess, að kynna íslendinga hverja öðrum á þess- um hátíðisdögum. Af slíkri persónu- legri viðkynningu getur oft margt gott leitt. Það eru dæmi þess, að ævarandi vinátta hafi þar myndast meðal manna. Funi kveikist af funa, sögðu forfeð- ur vorir. Því er eins farið með vinátt- una og eiginlega öll áhrif er frá manni til manns berast. Það á margur í drjúgum mæli velferð sína því að þakka að hafa kynst þeim manni, er honum var nauðsynlegt að kynnast. Það harmar líka margur það, að hafa ekki kynst hinum eða þessum, sem hann fann ekki fyr en um síðir eða of seint, að eitthvað ómetanlega mikið sameiginlegt bjó með og sér. Vegna viðkynningar- leysis, varð hann af þeim styrk frá þeim manni, er honum var nauðsynlegur. Úr þessu geta þjóðhátíðir vorar oft bætt. Við íslendinga viljum vér því segja: Sækið þjóðhátíðirnar, sem þess eigið nokkurn kost. Þér eigið þar vísa góða skemtun fyrst og fremst, en kom- an þangað getur einnig orðið yður eft- irminnileg og til ómetanlegrar gleði og gagns framvegis. “BENNETT FARINN!” Þessi sigurópi laust upp fyrir skömmu og kveður nú við í herbúðum allra and- stæðingaflokka sambandsstjórnarinnar. Hvað veldur? Hafa einhverjir stór- fenglegir óknyttir verið fundnir í fari stjórnarinnar, eitthvað skelfilega glæp- samlegt í augum kjósenda. Eða hafa andstæðingaflokkar hennar birt svo slá- andi stefnuskrár, að hjörtu allra hafi hrifið? Hvað er það sem sigurópinu veldur? Þó fjarri sé því, að í fari stjórnar- innar hafi nokkuð fundist, er vott ber um annað en að þar hafi eins skynsamlega verið á málum haldið og hægt var af nokkurri stjórn að vænta, og að ekki hafi enn bólað á stefnuskrám hjá stjóm- arandstæðingum, sem nokkur kjósandi myndi svo mikið sem gefa baun fyrir, er því ekki að neita, að fyrir þessu fyrir- fram kosninga sigurópi er nokkur á- stæða í augum stjórnarandstæðinga. Og hún er sú er nú skal greina. Þegar Bennettstjórnin kom til valda voru hér þúsundir atvinnulausra í bæj- um landsins. Þó almenningur vissi að þeir syltu heilu og hálfu hungri, var ekki kannast við það af því opinbera og jafnvel ekki nema af sumum blöðum landsins. Mr. King, þáverandi forsætis- ráðherra, kvað “glæpsamlegt” að veita stjómarfé þessum mönnum til styrktar. Bennett leit öðruvísi á það •'mál og veitti fé til framfærslu þeim, er hann var kominn til valda. Þörfin sýndi sig einnig og hópurinn bjargarlausi var stærri en búist var við. Ekki heyrðist annað í fyrstu, en að þarna hefði þarft verk verið unnið og úr neyð margra bætt. Fyrir einhleypa vinnufæra menn stofnaði stjórnin til atvinnubúa, en sá sér ekki fært að greiða nema lítilshátt- ar kaup auk fæðis og klæðnaðar, enda gat þar naumast um arðbæra vinnu verið að ræða þar sem einstakir menn, er áður höfðu sama starf rekið og þar var um að ræða, sáu sér það ekki fært. Og á eftir engum var rekið við vinnuna. Þetta var og gat aldrei skoðast annað en framfærslustyrkur atvinnulausra. Nú fanst stjórnarandstæðingum alveg nóg um örlæti stjórnarinnar. En svo margir færðu sér það í nyt með því, að stjómarandstæðingar þorðu ekki að hafa mikið á móti því. En þeim var bölvan- lega við ef bjargarlausir skyldu líta á Bennett sem Sankti Kláus fyrir þetta. Og þegar fór nú að líða að kosningum, varð eitthvað að gera. 1 bráðabirgðar- atvinnubúunum hugsuðu kommúnistar sér að hverri væri tækifæri ef ekki þar að koma skoðunum sínum á framfæri. Og að baki þeim stóðu ótrauðir að því verki flestir ef ekki allir andstæðinga- flokkar Bennettstjómarinnar. Auðvitað kannast þeir ekki við þetta. En alt frá því er sveitimar lögðu af stað frá British Columbia og þar til þær voru stöðvaðar, studdu þessir flokkar þær og hvöttu að herja á sambandsstjói'fiina. Þarna höfðu þeir orðið stefnuskrá. Og það er þessi stefnuskrá þeirra, að æsa saklausa og ráðlitla og óforsjála unga menn út í það, að fylgja kommúunistum út í þetta óvit, sem nú er kunnugt, sem þeir eru nú að fagna yfir að tekist hafi svo vel, að gert hafi út af við Bennett. Af þessu stafa sigurópin: “Bennett farinn! Ben- nett farinn!” 1 sjálfu sér gerir nú sá söngur minst til. Það er til hins, sem verra er að vita, að stjómmálaflokkur skuli sökkva svo djúpt ofan í fen flokksofstækisins og fyrirlitningarinnar eins og það, að nota sér annað eins og þetta til að aka pólitískum plógi sem hér er um að ræða. Það mun sem betur fer fágæft í sög- unni. En það vekur því meiri eftirtekt á spillingu stjómmálanna í landinu. En þó tekur út yfir alt, að þegar í nauðirnar rak nú og ferð atvinnuleys- ingja til Ottawa var stöðvuð og sjáan- legt var að úti væri um nokkum póli- tískan hag af þessu, afneita þeir allir saman þessum pólitísku leikbræðrum sín- um og demba allri sökinni á veslings Kommúnistana. Það er ekki sízt vegna þess óþokkabragðs sem þeir, kommún- istarnir, eru beittir með þessu, sem þessi framkoma liberala og annara stjóm- arandstæðinga er fyrirlitleg. • Hvað hagur þessara manna, sem fyr- ir þessu ferðalagi til Ottawa eru eða voru að berjast, stakk þá tilfinnanlega í hjartað, er nú ljósast af orðum þeirra John Bracken og John Queen borgar- stjóra til þeirra af þeim sem nú eru strandaðir í Winnipeg, “burt, burt með ykkur flækingjar innan tveggja daga!I’ Það getur vel verið að þetta fyrir- komulag til bjargar bágstöddum sé “glæpur” frá hagfræðislegu sjónarmiði skoðað eins og King sagði og sem sumir jafnvel sem styrks hafa notið öll kreppu árin eru nú einnig famir að hafa á orði. En hitt er víst, að það er ekki ómanúðleg löggjöf. Vér efumst um að hægt sé að benda á aðra löggjöf er tekur henni fram í því efni hjá nokk- urri stjórn fyr eða síðar í þessu landi. Og verði það þessi löggjöf sem fellir Bennett í næstu kosningum, þá bara segjum vér að við séum ekki hans verð- ir sem stjórnarformanns. ÞJÓÐSTJÓRN I CANADA í Winnipeg er staddur maður, nýkom- inn til borgarinnar er Loyal M. Kelly heitir. Hann er frá Montreal. Erindi hans er að ferðast um vestur fylkin fyrir félagsskap í Austur-Canada, er það hefir á stefnuskrá sinni, að mynda þjóð- stjórn í Canada. Félagsskapur þessi (nafn hans er The League for National Government) segir Mr. Kelly að hafi 30,000 félagsmenn í Toronto og öðrum borgum í Ontario og Quebec. Mr. Kelly kveður félagið ekki nýjan stjómmálaflokk. Hann telur félagsmenn sannfærða um, að flokkaskiftingin sé ekki þjóðinni til neins góðs og að stjórn mynduð af öllum flokkum muni reynast flokksstjóminni nýtari. Hvort sem hugmyndinni verður kom- ið í framkvæmd í þessum komandi kosn- ingum eða hún fær ekki nógu almennan byr til þess, lítur Mr. Kelly svo á að tak- markinu ætti sem fyrst að vera náð. Auðvitað hefir mörgu fjarstæðara ver- ið hreyft en þessu. En hefir Canada ekki eins nærri því þjóðstjóm nú og hún getur haft? Þegar allir flokkar þingsins greiða at- kvæði með öllum veigamestu frumvörp- um einnar stjómar, getur ekki verið langt frá því að Canada hafi þjóðstjórn í öllum skilningi, nema að nafninu til. Þegar þess er gætt, að andstæðinga- flokkar stjómarinnar á sambandsþinginu voru engum ákvæðum bundnir til að greiða atkvæði með stjórninni og það ‘verður því að skoðast að hafa verið gert vegna málefnanna, virðist ekkert lík- legra en að Canada hafi eins þjóðlega stjóm og kostur er á. Og áreiðanlega þá þjóðlegustu sem hér hefir nokkurri sinni að völdum setið. VINAMÓT í vöku vart má heyra Míns vinar róm í frið, Því þruma’ er þá í eyra Af þungum vatnanið. Og eins með opnum augum í anda fæ ei sjá, í tregatáralaugum Æ týnist myndin þá. En draums í dularheimi Er dýrðlegt hnoss að fá. í glæstum milligeimi Má gjörla heyra og sjá. Og duga verða draumar í dularfullum geim, Unz ólgir aldastraumar Mig einnig bera heim. Ó, lof mér leiðum dreyma Og lina sálar und, Og sviftur sorgum sveima I svefni langa stund. Þar sálin sár fær geymast Við sæla draumalind, Og tár og tími gleymast í hugans töframynd. Gordon Paulson GULLBRÚÐKAUP Fimtudaginn 27. júní síðastl. áttu þau '50 ára hjónabands-af- mæli sitt Þórarinn Stefánsson og Sigríður Ólína Jóhannsdótt- ir, Winnipegosis, Man., og var þess minst hátíðlega að til- hlutun barna þeirra, tengda- sonar og tengda dætra, sem öll voru þar viðstödd nema elzta dóttirin, Mrs. R. Brown, búsett í Port Arthur, Ont. Samsætið fór fram að heimili þeirra að kveldi( undir stjórn J. S. Stef- ánssonar, sem ávarpaði við- stadda með viðeigandi ummæl- um, og síðan sungin tvö sálm- verg “Hve gott og fagurt,” og “Heyr börn þín.” Þá tók tii máls og ávörpuðp brúðhjónin, með fáum en fullnægjandi vin- arorðum Mr. A. Ólafsson, Mr. A. F. Björnson og Mrs. A. Ól- afsson. Þá var sungið “Hvað er svo glatt,” og mörg fleiri vel valin íslenzk lög. Dóttur- dóttir brúðhjónanna Ólína Stef- ánsson lék lögin á orgelið, og yngri og eldri samstyltu raddir sínar, með hógværum hlýleik og lotning fyrir hinni guðdóm- legu list listanna, sem hið ó- gleymanlega skáld skáldanna Stgr. Th. lýsir þannig í kvæð- inu “Sönglistin,” að sé “dóttir himins” sem steig niður á jörðina til að kenna mannanna börnum móðurmálið hæða,” o. s. frv. En svo eg grípi nú þráðinn aftur, þá sátu nú þarna brúð- hjónin, eins og vera bar í “öndvegi” í vina og ást- vinahóp; og öndvegið var tveir dýrir og nýjir hægindastólar, sem börn þeirra og tengdaböm gáfu þeim, og fleiri sem gáfu þeim vinargjafir að ógleymdum hlýju handtökunum, há-íslenzk- um og hjartanlegum. Einnig bárust þeim varmar heillaóskir frá fjarstöddum og set eg þau hér sem einlægan þakkarvott frá brúðhjónunum til þeirra sem sendu þau. Frá Kandahar, Sask. Ólína og Þórarinn Stefánsson: Kæru vinir! Hjartanlegar hamingjuóskir á fimtíu ára giftingarafmæli ykk- ar. Guð blessi ykkur á ó- komnum æfiárum. Sesselja, Steingrímur og Guðrún. House of Commons, Ottawa, Ont. The Speaker July8, 1935. Dear Mr. and Mrs. Stephanson: íslendingar Fyrir yðar óbrigðula hugrekki við framfara mál Canada HRÓSUM VÉR YÐUR Gegnum sextíu ára framfarasögu hinna íslenzku nýlenda í Canada, hafa hin hraðskreiðu og þægi- legu hafskip Canadian Pacific félagsins lagt til stóran þátt með flutningi íslendinga bæði frá heimalandi þeirra og til baka aftur. Hin beina siglingaleið til Islands, yfir Skotland, er einkar vinsæl meðal reyndra íslenzkra ferða- manna. Þeir meta hina óaðfinn- anlegu þjónustu og framúrskar- andi aðbúnað sem getið hefir eim- skipum Canadian Pacific félagsins frægðar orð. Þegar þér undirbúið ferðalag heim til Islands þá hafið tal af næsta umboðsmanni félagsins eða W. C. CASEY, Passenger General Agent, C. P. H. Building, cor. Portage and Main, Winnipeg. — Símar 92 564 — 92 457. CANADIAN PACIFIC STEAMSHIPS MANIT0BA TELEPHONE SYSTEM Aðalskrifstofa: 166 PORTAGE Ave. East Jafnhliða Islendingum hér í fylk- inu hefir þjóðeigna talsímakerfið vaxið og þroskast nú í meira en aldarfjórðung. Til hvað mikilla nota það hefir komið yður verður ekki skýrt, en áreiðanlega hefir það stutt yður, veitt yður tíma- sparnað, og tekið af yður margan snúning, við verzlun yðar og dag- leg störf, auk þess sem landsíminn tiú tengir saman hin mörgu bygð- arlög yðar. Þér hafið jafnan verið með hinum fremstu að hag- nýta yður þetta menningarætki — talsímann — og munuð svo gera í framtíðinni. STJÓRN OG FORRÁÐAMENN TALSÍMAKERFIS- INS ÁRNA YÐUR ALLRA HEILLA VIÐ ÞESSI TÍMAMÓT í SÖGU YÐAR HÉR í LANDI, SEXTÍU ÁRA AFMÆLI ÍSLENZKRAR BYGÐAR I CANADA. MANIT0BA TELEPHONE SYSTEM

x

Heimskringla

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimskringla
https://timarit.is/publication/129

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.