Heimskringla - 20.11.1935, Side 1

Heimskringla - 20.11.1935, Side 1
L. ÁRGANGUR WINNIPEG, MIÐVIKUDAGINN, 20. NÓV. 1935 NÚMER 8. Hversvegna var de Bono kallaður heim Þjóðstjórnin á Englandi endurkosin Washingtön, 19. nóv — Eigi alls fyrir löngu kallaði Mussol- ini yfirherforingja sinn de Bono heim frá Blálandi. Lét Mussol- ini í veðri vaka að ástæða sín fyrir því hefði verið sú, að hers- höfðinginn væri orðin gamall og ekki nógu framsækinn fyrir sig syðra. En Bandaríkjamenn líta svo á, sem ástæðan hafi veriö önnur en Mussolini segir, eins og eftirfarandi grein, sem skrif- uð er af manni, sem kunnugt er um skoðanir yfirmanna í Bandaríkjahernum á þessu, ber vitni um: ‘‘Ástæða Mussolini fjrrir að kalla de Bono heim kann að vera tekin góð og gild á Italíu. En í augum þeirra, sem nokkuð eru kunnugir hermálum er hún blátt áfram hlægileg. Það er satt, að de Bono er farinn að eldast. Það getur einnig verið satt, að hann sé gætinn. En hann er bezti hers- höfðingi ítala ennþá. Hann er einnig ákveðnari fascisti, en herforingi þeirra í Róm er, sem úr stöðu sinni vék fyrir de Bono. Herforingja starf hans í Blálandi hefir með öllu, eftir því sem hermálasérfræðingar hér (í Bandaríkjunum) líta á það, verið óaðfinnanlegt. De Bono var blátt áfram kallaður heim af því, að hann er bezti hers- börfðingi ítala, þar sem þeirra bezti her er einnig. Hvað býr undir þessu? Ekk- ert annað en það, að Mussoliní álítur hættulegustu vígstöðv- arnar nú vera heima fyrir, á ítah'u, en ekki í Blálandi. En svo er fleira eftirtektavert við þetta. Og eitt af því er það, að de Bono er kallaður heim tveim dögum eftir kosn- ingarnar á Englandi. Fyrir viku fréttu ítalir að iStanley Baldwin hafði lofað verkalýö Englands því, að hann skyldi binda enda á drotnun- Mussolini,, ef þjóðstjórnin yrði endurkosin. Verkalýður Eng- lands er hræddur við fasismann og vildi helzt sjá Mussolini send- an til Sankti-Helenar-eyju- Og það segja ítalir ástæðuna fyrir því, að verkamenn börðust ekki harðar en raun ber vitni um gegn þjóðstjórninni. Það eitt er víst, að hér (í Bandaríkjunum) hafa menn verið að furða sig á því, síðan um kosningar, og spyrja sjálfa sig, hvort Baldwin ætli að steypa Mussolini af stóli, eða gera úr honum brezkan leik- sopp (Marionette). Þeir geta ekki betur séð, en að annað- hvort af þessu liggi fyrir. 1 augum þeirra, er því þetta ástæðan fyrir þvi, að de Bono var kallaður heim, að Mussohni skoðar sig þurfa hans rueð heima fyrir, eigi síður en í Blá- landi, ef honum og stefnu hans, fasismanum eigi ekki að verða kollvarpað. Við sína hlið heima veit hann að hann hefir þann vin, er de Bono er, sem hann getur allra manna bezt treyst. Maður veit ekki hvort maður á fremur að þakka það gæfu eða brezku stjórnviti, að þess- um mesta einræðissegg, síðan á"clögum Napoleons, hefir verið stungið ofan í þessa pækil- krukku, sem hann er nú að reyna að klóra sig upp úr. Brezkir stjórnmálamenn kváðu vera hissa á hve greið- lega gekk, að leggja böndin á Mussolini. Það er nú kunnugt, að þeir unnu Frakka með því að hóta þeim, að láta þá eina glíma við Þjóðverja. En að ná Hitler einnig á sitt vald, var meira en þeir bjjuggust við. Skýring Hitlers á því er ekki kunn. En að hann hafi lofað stuðningi í siðferðislegum skiln- ingi er víst. Hefir líklegast séð sér vænst, að vera með fjöl- mennari hliðinni. Það getur og hafa valdið nokkru um afstöðu hans, að herforingi hans tilkynti honum, að her hans yrði ekki til víga búinn fyr en eftir 18 mánuði að minsta kosti. Það geta hafa verið aðrar á- stæður fyrir því að Hitler bann- aði að selja ítölum nokkurt hrá- efni, en engin þó betri, en þessi ákvörðun hans, að vera með Bretum. Saga sú gengur manna á milli, að í síðasta sinni, er Mus- solini hótaði brezka sendiherr- anum á ítalíu, Sir Eric Drum- mond, að það skyldi verða Ev- rópu-stríð, að Sir Eric hafi spurt: “Með hverju ætlarðu að berjast?” Hann gat betur en Mussolini gert sér grein fyrir af- leiðingum refsiaðgerða þjóða- bandalagsins. Otvarp frá íslandi Símskeyti barst Viking Press fé- laginu í morgun frá íslandi er hljóðar svo: Reykjavík 20. nóv. 1935 Viking Press, Winnipeg, Man. Útvörpum sunnudaga 17.40 (íslenzkur tími), erindi, ís- lenzkri tónllst. Vinsamlegast auglýsið. Látið vita hversu notast. Útvarpsstjóri. iSamkvæmt þessu eiga Vest- ur-íslendingar von á að geta hlýtt á útvarp frá íslandi á hverjum sunnudegi fyrst um sinn. Útvarpstíminn í Reykjavík. (17-40) er kl. 5.40 eftir hádegi. Munur á Winnipeg tíma og Reykjavíkur tíma, er sex klukkustundir; eftir því er út- varpsins von hingað klukkan 11.40 fyrir hádegi. Til Wynyard kl. 10.40 f. h. o. s. frv. 2000 Blálendingar drepnir á 2 kl.st. Asmara, Eritrea, 19. nóv. — Frá fregnstofu ítala í Asmara bárust þau tíðindi að um 2000 Blálendingar hefðu fallið í loft- árás er ítalir gerðu á norður vígstöðvunum í dag. Tuttugu loftskip gerðu árás- ina undir forustu Aimone yfir- manns flughers ítala. í áhlaup- inu voru og tveir syuir Mussol- ini, Bruno og Vittorio, er stjórn- uðu sínu flugskipinu hvor. Enn- fremur tengdasonur Mussolini, Galeazzo Ciano greifi. Árásin var gerð á eina her- búð (camp) Blálendinga. — Sprengjunum rigndi eins og skæðadrífu úr loftskipunum. — En um tvær klukkustundir Ihéldust Blálendingar við og flugu skotin jafnharðan frá þeim á loftskipin. Aðeins tvö þeirra lömuðust og urðu að lenda. En þegar bardaganum lauk og farið var að rannsaka loftskipin, kom í ljós, að hvert þeirra hafði fengið til jafnaðar um niu skot, en ekki orðið neitt meint af því, nema þessum tveimur. Var annað þeirra skip Ciano greifa. Ein kúla hitti vélfræðing annars skipsins, er nauðlenda varð, og dó hann. — Annað manntjón í liði ítala get- ur ekki um. Eftir tveggja stunda bardaga tvístruðust þeir er uppi stóðu af Blálendingum og földu sig í skógunum í kring- Herbúð Blálendinga var ger- eydd. MacDonald fær ráðuneytisstöðu London, 19. nóv. — Stanley Baldwin forsætisráðherra Eng- lands hefir boðið Ramsay Mac- Donald stöðu í ráðuneyti sínu og er sagt að MacDonald hafi þegið boðið. Vandinn er aðeins Sá, að finna þingsæti. Er helzt búist við að það verði eitthvert há- skóla-kjördæmið í Skotlandi. Góður fundur Þjóðræknisdeildin “Frón” hafði góðan fund s. 1. mánudag í G. T. húsinu. Dr. Ófeigur Ófeigsson var aðal-ræðumaður kvöldsins og flutti hugljúft og snjalt erindi um samband milii heima-Islendinga og Vestur-ís- lendinga. Aðrir er til máls tóku voru Jón J. Bíldfell, Ásm. P. Jóhannsson og dr. Rögnvaldur Pétursson. Lúðvik Kristjánsson flutti kvæði og Ragnar H- Rag- nar lék á píanó tvö lög, er hrifu áheyrendur. Á fundi var um 150 manns. 31 árs gömul amma Yngsta amma í Evrópu, og líklega í öllum heiminum, á heima í Pólandi, og heitir Mat- hilde Francis. Hún er aðeins 31 árs gömul. Giftist hún þegar hún var 14 ára, og eignaðist dóttur, þegar hún var 15 ára gömul. Dóttirin var Mtið seinni á sér en móðir hennar, því að hún giftist fimtán ára og er nú orðin móðir. Það er ekki ó- mögulegt, að frú Francis verði langamma 46 ára gömul. McGeer kosinn Vancouver, 16. nóv. — Eftir þráláta og nákvæma atkvæða- talningu í Vancouver-Bnrrard- kjördæmi, kemur það upp úr kafinu, að borgarstjóri G. G. McGeer sé kosinn sambands- þingmaður í stað Arnold Web- ster, C. C. F. sinna, er fyrst var tahnn kosinn- McGeer hlaut við enmirtakninguna 10,215 at- kvæði; en það er 6 atkvæðum meira en Webster hefir. Mc’Geer er liberal. Bæjarkosningarnar Eitt af því sem skattgjald- endur Winnipeg-borgar greiða atkvæði um í bæjarkosningun- nm n. k. föstudag, er hvort bær- inn eigi að veita $500,000 til aðgerða eða bygginga nýrra í- veruhúsa í Winnipeg. Það er auðvitað ekki óhugs- anlegt að bærinn kæmist skuld- laus út úr þessu. En það eitt er víst að þegar sala hefir verið fyrir hús í Winnipeg, hefir ekki staðið á því að einhverjir hafi orðið til þess að koma þeim upp. Kjósendur skulu enn mintir á, að bæjarkosningin fþr fram föstudaginn 22- nóv. Atkvæða greiðslan byrjar kl. 9. að morgni og lýkur kl. 8. að kvöldi. Hlutfallskosningar gilda, þ. e. a. s. það verður kosið með tölum 1, 2, 3 o. s. frv. íþróttafélagið Fálkinn efnir til voldugrar samkomu í G. T- hús- inu 2. des. n. k. Nánar auglýst síðar. Frú Andrea Johnson Frú Andrea Johnson frá Ár- borg, Man., var kosinn forseti kvenfélags þess, er starfar í sambandi við Bændafélagið í Manitoba, á ársfundi þess ný- lega í Portage La Prairie. Frú Johnson hefir verið varaforseti félagsins um nokkur ár og hefir mjög að hag þess hugað. Hún er hæfileika kona og hefir kom- ið sér og íslendingum fram til sóma og gagns, í störfum sín- um í félagsmálum, hvort sem í íslenzku eða hérlendu þjóðlífi hafa verið. Og það er henni virðing, að hafa verið falin for- usta þessa volduga félags. Bílslys í Canada Ottawa, 16. nóv. — Sam- kvæmt skýrslum Sambands- stjórnarinnar voru bílslys á síð- ast liðnu ári í Canada sem hér segir: Alls dóu 1,108 manns. En meiðsli hlutu 17,998. Eigna- tjón af slysunum nam $1,266,- 413. í Ontariofylki voru dauðsföll- in flest. Þar dóu 527 manns. í Manitoba dóu 40, Satkatchew- an 30, British Columbia 81, Al- berta 61, Nova Scotia 37, New Brunswick 25 í Quebec og P. E. I. 307. Ríkisstjórinn í Norður Dakota tekur á móti hr. Ásgeir Ásgeirs- syni fræðslumálastjóra fslands. Þann 7. nóv var hr. Ásgeiri Ásgeirssyni haldið veglegt sam- sæti af Scottish Rite Masons í Bismarck og boðinn velkominn til Norður Dakota af hálfu Gov- Welford. Sátu samsætið helstu borgarar bæjarins og allir æðstu embættismenn ríkisins. Opin- bert heimboð hélt fylkisstjórinn í þinghúsinu til heiðurs hr. Ás- geiri Ásgeirssyni Iseinjtia um daginn og komu þangað yfir þúsund gestir. Um kvöldið flutti hr. Ásgeirsson fyrirlestur hjá kennarafélaginu í Dakota, í stærsta samkomusal ríkisins, og sóttu meir en 2,000 manns fyr- irlesturinn. Næsta dag var Ásgeiri Ás- geirssyni haldið samsæti í Rug- by, N. D., af The Lions Club, og við það tækifæri var hr. Ás- geirsson gerður að heiðursfé- laga. Guðmundur dómari Grím- son og frú héldu honum sam- sæti það kvöld. Þann 18. nóv. var Ásgeir Ás- geirsson í heimboði hjá Dr. Beck í Grand Forks, með Mr. og Mrs. O. B- Burtness, fyrrum þingmanni Norður Dakota og Guðmundi Grímson dómara og frú. (Úr bréfi frá N. D. íslendingi) Hinn 5- þ. m. voru gefin saman í hjónaband af séra E. J. Melan að heimili hans í River- ton. Mr. Lorne W. Jóhannsson frá Selkirk, Man., og Miss Sól- björg Guðjónsson frá Hecla. Man. Heimili þeirra verður fyrst um sinn í Hecla, Man. London, 16. nóv. — í kosn- ingunum sem fóru fram á Eng- landi 14. nóvember, var þjóð- stjórnin endurkosin með svo rífum meirihluta, að nærri mun láta, að eins dæmi sé í kosn- ingasögu landsins- Um það er liðskönnun lýkur, er gert ráð fyrir að þingmeiri- hluti hennar verði um 260. Sigur þessi er ekki einungis mikill í sjálfu sér, heldur og eftirtektaverður af því að hann fellur stjórn í hlut, er verið hefir við völd öll undanfarin kreppuár. Canadiskum kjós- endum hlýtur að koma það ein- kennilega fyrir sjónir, að stjórn- inni skyldi ekki þar, sem hér, vera kent um kreppuna. Styrkur hvers flokks á þing- inu eftir þessar kosningar er sem hér segir: I Óháðir Cons...............1 National ................. 4 Óháðir .................. 1 Stjórnarandstæðingar (171) Verkamenn ................149 Liberalar .............. 12 Óháðir Lib................. 4 Óháðir Verkam.............. 4 Óháðir ................... 1 Communisti ................ 1 Óvissir .................. 15 Alls eru þingsætin 615. MÁLVERKASÝNING EMILE WALTERS í Eaton’s byggingunni Maður, sem kynst hefir borg- um eins og t. d. Kaupmanna- höfn, getur ekki annað en fund- ið til þess, hve hljótt er yfirleitt um listasýningar hér í Winni- peg. I fyrra vetur kom eg þó nokkrum sinnum niður í Audi- torium, þegar umferðasýningar voru á ferðinni, og í sannleika sagt var ekki hægt að láta sér blöskra, hve aðsóknin væri góð. Væri að mínu áliti alls ekki illa til fundið, þó að blöðin hér (h'kt og í Kaupmannahöfn og Rvík.) hefðu ákveðinn smáleturs dálk, þar sem bent sé á það helsta, sem sjónarvert sé í borginni á hverjum degi eða viku. En'hvað sem þessu líður, er nú á ferðinni sýning, sem sér- stök ástæða er til að gefa gaum, ekki sízt af hálfu íslendinga. — Listamaðurinn er af íslenzkum ættum, myndimar eru málaðar á íslandi og loks er þarna um að ræða listaverk, sem nautn er í að skoða án tillits til hins hvortveggja. Menn líta á myndir frá ýms- um sjónarmiðum. Gömlum karli var einu sinni sýnt olíumálverk. Hann strauk yfir það með lóf- anum og sagði, að ekki fyndist sér það nú vel slétt. Hann hefir sennilega einhverntíma málað yfir kommóðu og borið hand- bragð málarans saman við þess- háttar iðn. — Auðvitað dettur mér ekki í hug að neinn fari að hlamma lófunum yfir myndirnar hans Emiles. En það er ekki loku fyrir það skotið, að menn kunni að dæma þau út frá öðm sjónarmiði, sem er álíka fjar- stætt og gamla mannsins. Ein- taka menn segja ef til vill sem svo, að myndirnar séu nógu fallegar, en þeir kannist ekki við að ísland sé svona, eins og hann sýnir það- Þeir dæma ó- sjálfrátt eins og þeir væru að Eins og tölurnar hér að ofan bera með sér, er conservatíva- flokkurinn fjölmennástur. Þjóð- stjórnin er því í raun og veru og hefir verið conservatív stjóm. Leiðtogi hennar var fyrir kosn- ingar og er enn hinn nafnkunni foringi conservatíva Mr. Bald- win. Ráðgjafar þjóðstjórnarinnar voru allir endurkosnir, að þeim feðgum undanskildum, Ramsay MacDonald og syni hans. Var Mr. MacDonald yngri nýlendu- málaráðherra. I nýja ráðuneytinu verður því ekki um miklar breytingar að ræða. Sir Herbert Samuel, leiðtogi liberala féll. En Lloyd George, foringi nokkurs hóps liberala, var kosinn og 3 aðrir úr hans flokki. Sir Herbert hélt því fram eftir kosningamar í Canada, að þær sýndu óhug canadiskra kjós- enda til Ottawa-samninganna- Spáði hann að úrskurður brezkra kjósenda myndi verða svipaður. Hann og flokkur hons ofsóttu því Ottawa-samn- ingana í kosningunum. En þjóð- in svaraði því þannig, að Sir Herbert Samuel sjálfur náði ekki kosningu. Verkamannaflokkurinn náði um 50 sætum fram yfir það sem hann hafði áður. Aðal-málin í þessum kosn- ingum voru utanríkismálin. — Afstaða stjómarinnar í málum Þjóðabandalagsins voru kjós- endum auðsjáanlega efst í huga. skoða ljósmynd. En ljósmyndin á ekki frekar skylt við list mál- arans heldur en kommóðan, ef rétt er á litið. Og það er alger- lega rangt að málverk af ein- hverjum stað sé því sannara eða betra því nær sem það er ljós- mynd af staðnum, blátt áfram af því að ljósmyndin er langt frá því að sýna okkur staðinn eins og hann er eða flytja okkur áhrif hans. Ófullkomnun ljós- myndarinnar kemur meðal ann- ars fram í því, að hún sýnir að- eins ljós og skugga, en ekki ýmiskonar litbrigði. Þess vegna mega menn ekki kippa sér upp við það, þó að málverkið sýni okkur íslenzkt landslag í dálít- ið öðru ljósi en venjuleg ljós- mynd hefði gert. Við þetta bætist, að listamaðurinn sjálfur hlýtnr að láta myndina túlka á- kveðinn hugblæ sjálfs s>ín. — Annálaritarinn, sagnfræðingur- inn og söguskáldið lýsa sama atbnrðinum á ýmsa vegu. Hið sama gera ljósmyndarinn og málarinn við stað þann, sem þeir velja sér sem myndarefni. Þess vegna þykir mér vænt um að geta sagt, að þó að málverk Emiles Walters séu langt frá því að sýna landið eins og það er á ljósmynd eða jafnvel eins og það er í minningum ein- stakra manna, er yfir myndum hans ósvikinn, íslenzkur blær- Einna mest finst mér til um það, hve vel hann nær blæ- brigðum snævi þakinna fjalla. Jökulbjarminn er dásamleg mynd, einföld að formi til, en sérstök í sinni röð sökum lit- brigðanna. Vilhjálmur Stefáns- son norðurfari hefir látið fylgja þessari mymd umsögn og skýr- ingu. Mt. Skelfill og April Thaw eru líka mjög eftirtektaverðar snjófjallamyndir. Apríl-hlákan er frá fjallinu ofan við Eski- fjörð og sýnir snjóinn í giljun- um, en hæstn hryggi og hæðir upp úr. Það er ekki svo að Frh. á 5. bls. Stjórnarsinnar (429) Conservatívar .............385 Liberal-National ....'..... 32 National-Labor ............ 6

x

Heimskringla

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimskringla
https://timarit.is/publication/129

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.