Heimskringla - 18.12.1935, Page 4
4 SÍÐA.
HEIMSKRINCLA
WINNIPBG, 18. DES. 1935
®eimakritt0la
(Stofnuð 1111)
Kemur út á hverjum miOvikudtti.
Eigendur:
THE VIKING PRESS LTD.
153 oo *SS Sargent Avenue, Winntpef
Taltími* SS 537
Ver6 bl»Ssln« er $3.00 ir^angurinn bargtt
fyriríram. Allar borganir aendist:
THE VIKING PRESS LTD.
ÖU vlSaklfta bréf blaBlnu aSlútandl eendlM:
Manager THK VIKINO PRKSS LTD.
«53 Sargent Ave., Winnipeg
Ritstjóri 8TEFAN EINAR8SON
Utanáskrift til ritetjórans:
KDITOR HKIMSKRINOLA
«53 Sargent Ave., Winntpeg
"HeimaJcrincle" i* pubUebed
and printed by
THK VIKINO PRKSK LTD.
SSS-SSS Sargent Avenue, Wtnntpeg Mon.
Telephoine: M 637
WINNIPEG, 18. DES. 1935
Jól
Það er fróðra manna mál, að leiðir
manna og dýra hafi skilið, 'þegar maður-
inn fór að geta hugsað óhlutkent, fór að
skapa sér sjálfstæðan, fullkominn heim,
sem ekki átti sér neina tilveru í veru-
leikanum.
Er þá lífið ekki annað en skáldskapur,
eða hugarburður? í>ó undarlegt sé til
frásagnar, á það ef til viU ekkert betra að
bjóða.
í háttum manna og venjum má á ótal
margt benda, er minnir á þetta. Eitt af
því eru jólin.
Það er ekki svo auðvelt að gera sér
grein fyrir hvemig farið verði að því, að
halda jólin sem nú fara í hönd, svo að í
fullkominni merkingu þess orðs geti heit-
ið jól, meðan fjöldi manna á við svo erfið
kjör að búa, að honum er það áhyggju-
efni hvernig hann fái séð sér og sínum far-
borða. Úr þeim erfiðleikum dregur held-
ur ekkert, þó í annað verra sé hægt að
vitna á löngu liðnum tímum. En þrátt
fyrir þá órjúfanlegu alvöru lífsins, hefir
jólaboðskapurinn aldrei með öllu gleymst,
hann hefir fylgt mannkyninu og glætt
fögnuð hjá því, jafnvel mitt í dýpstu sorg.
Á mér hægra augað grét,
er hið vinstra brosti—
sagði eitt skáldið íslenzka. í>að virðist
einnig hafa á mannkyninu sannast og á
eflaust eftir að rætast oft á því.
Þannig er lífið, fult af andstæðum,
þar sem ihverfulleikinn, andviðrin og
myrkrið ríkir aðra stundina, en sólskin,
blíðviðri og birta hina. Á aðra höndina
kaldur, miskunarlaus veruleikansheimur,
á hina ljúfur, fagur og fagnaðarríkur
draumheimur mannsálarinnar.
Það er ekki eðli manns, að hann dreymi
ekki, segir fom málsháttur. Hvað væru
jólin án draum-heims þess er á hefir verið
minst? Hvaða jól væru það, að helga
þau, eins og nú er að svo miklu leyti
gert, ágirnd og gróðafýkn blygðunar-
lausra fésálna? Um það snýst nú til-
finnanlega jólafögnuðurinn. Hjá stórum
hópi manna, er jólaboðskapurinn í því
fólginn hvernig hægt sé að mata sem
bezt krókinn, græða sem mest á kærleiks
þelinu sem í sál til sálar skapast við á-
hrif mestu bræðralagg hátíðar mann-
kynsins, jóla-hátíðarinnar. Er það ekki
að gera musterið að ræningja bæli, ,eins
og þar stendur? Og í öllu umstanginu,
vafstrinu og veseninu, sem hið ytra er
jólunum samfara, er í raun og veru fátt
að sjá, sem samrýmanlegt er jólaboð-
skapnum. Hann er aðeins draumur enn-
þá, sem eftir á að rætast í veruieikanum.
En menn hlakka til jólanna eigi að
síður vegna þess draums. Hann boðar
eitthvað betra, eins og alt það gerir, sem
mannkynið hefir fagrast og bezt hugsað,
þó margt af því eða flest eigi eftir að ræt-
ast. Hann er það sem mér finst mega
kalla von lífsins, þó hann sé ekki nema
óhlutkend hugsjón.
Eg geng út á götuna. Grátt mistrið
sveipar loftið eins og það hefir gert
nokkra undanfarna blíðveðursdaga svo
sólar hefir ekki notið. í dag um hádegis-
bilið klufu silfurbláir sólargeislarnir mistr-
ið í undursamlegri fegurð og stöfuðu
Ijósi og yl til alls sem lifir og glaðst fær
við bros þeirra. Alt breyttist. Veðrið
hlýnaði og varð næstum sumarlegt þá
stundina. I sál mannsins varð einnig
vorlegra. I>að fyrsta sem menn mintust
á er þeir hittust, var bh'ðan og góðveðrið
og í orðunum lýsti sér bæði von og gleði.
Jólin eru eitt slíkt sólbros.
MISHEPNAÐUR FUNDUR
Að fundi forsætisráðherra fylkjanna og
sambandsstjórnarinnar loknum verður
ekki annað séð, en að starf hans hafi
iherfilega mishepnast.
Hið títt um talaða samkomulag og
eining, sem þar var að minsta kosti búist
við, virðist jafnvel hafa farið út um þúfur.
Florsætisráðherrar fylkjanna komu til
ffundarins í þeim ákveðna skilningi, að
hafa þar hver nokkuð fyrir sinn snúð, á
kostnað annara eða hvers annars og sam-
bandsstjórnarinnar. King hafði ekki
dreymt um að drengirnir hans væru
þannig innrættir og illa að sér í diplo-
matiskum fræðum.
Til þess að ráða nökkra bót á þessu,
réðst King í að loffa að bera hlutffallslega
meira en áður, eða um 50% af fram-
tfærslukostnaði atvinnulausra í stað 40%
sem áður var. Og það bætti auðvitað
nokkuð úr sák. En þar fylgdi nú samt.
sá böggull skammrifi, að þetta tillag nær
ekki nema til heilbrigðra og vinnufærra
manna. Allir þeir sem fylkin og velgerða-
félög bæja og sveita hafa smeygt inn á
skrá atvinnulausra og ófærir eru til
vinnu, fyrir þeim verða bæimir og sveit-
irnar og fylkin algerlega að sjá. King-
stjómin vill ekkert með þann lýð hafa.
Um góðgerðasemi Kings við fylkin mun
því mega segja, að þar standist á strokkur
og mjaltir, eða tæplega það. Tala óvinnu-
færra er há.
Til atvinnubóta var talað um að gera
þjóðgarða, eftir því sem fé leyfði og tími
gæfist til í þeim fylkjum, sem ekki hefðu
þá neina. Um hve miklu fé skyldi til
þessa verja, var ekki rætt. Málið virtist
ekki svo nýtt, að það vekti nokkurn á-
huga. í raun og veru hefir það verið á
prjónum í mörg ár og hefir skamt hrokk-
ið að bæta úr atvinnuleysi.
King lét á sér heyra, að öll aðstoð
sambandsstjórnar í lánum og beinum út-
látum til fylkja, bæja og sveita, mætti
ekki fara fram úr 15 miljón dölum á árinu
1936.
Á fundinum var ekki gert út um eitt
einasta mál. En fjöldi nefnda voru skip-
aðar, er starfa eiga að því að kynna sér
ýms mál fram að þingi, er kemur saman
í lok janúarmánaðar. Ein þessara nefnda
á að yfirffara söluráðs-lögin, sem Bennett-
stjórnin löggilti til að klippa alt það úr
þeim, sem kostur er á, svo hænsna kaup-
menn og kornkaupmenn geti ráðið sem
mestu í kaupum og sölu bænda afurða.
Þá var skipuð nefnd til að aðskilja sauð-
ina frá höfrunum, óvinnufæra frá vinnu-
færum atvinnuleysisstyrkþegum. Enn-
fremur nefnd til að athuga breytingar á
stjórnarskrá landsins, sem líklegast verð-
ur helzt fólgið í því, að fá leyfi Breta til
þess að Canada fái sjálft eftir vild að
breyta sinni stjórnarskrá. Það lýsti sér
þegar á þessum fundi, að fylkin voru með
breytingu því aðeins, að þeirra réttur
væri að meiri fyrir hana, en ekki minni,
eins og álitið var nauðsynlegast, því það
var eirimitt sambandsstjórnin, sem meira
vald þurfti en hún hefir til þess að geta
tekist á hendur ýms þau umbótastörf,
er henni var auðveldara að- framkvæma
en fylkjunum. Þar vildi enginn fylkis-
forsætisráðherra sinn hlut lægri. Og þá
var einingunni lokið.
I
Nefnd var skipuð til að rannsaka
námaiðnað og sérstaklega skatta á hon-
um, sem mjög eru mismunandi í ýmsum
fylkjum.
Ekki urðu fylkin eins fengsæl og þau
kusu sér í að fá skattsvið sitt víkkað. í
því máli voru engin ákvæði tekin. En
nefnd var skipuð til að íhuga hag fylkj-
anna og ástæður allar með það fyrir aug-
um að vita út á hvað væri verið að lána
þeim, er þau bæru fram lánkröfur á
hendur sambandsstjórninni.
Fleira munum vér ekki, sem þess sé
vert upp að telja af því sem gerðist á
þessum fundi. Þessi sýnishorn æltum
vér því nægja. Og sjái einhverjir eitthvað
það í starfi fundarins, sem von og nýjan
þrótt vekur hjá þjóðinni í stríðinu við
kreppuna og erfiðleikana, segjum vér
bara bravo við því. Sú bjartsýni er
skamtur h'fsins gæða — á sinn máta!
Maður að nafni Olson, búsettur í New
York gekk um daginn í svefni, út á götu,
að brunaboða og braut hann. Er slökkvi-
liðið kom að, stóð maðurinn þar hríð-
skjálfandi og steinsofandi. Slökkviliðinu
tókst að vekja manninn.
ÓEINLÆGNI
Eflaust mun sumum þykja mikið vafst-
ur heima fyrir um þessar mundir í undir-
búningi jólanna^ hátíðar friðarins. Samt
er óhætt að fullyrða, að það sé hverfandi
borið saman við umstangið í Evrópu,
sáðast liðna viku, í undirbúningi ófriðar
og stríða.
Eins og sagt var frá í síðasta blaði, var
Þjóðabandalagið komið á fremsta hlunn
með að hefta inntflutning til ítalíu á járni,
kolum og bensíni. Er ekkert vafamál, að
það hefði brátt stöðvaö hjaðninga-vígin í
Afríku. En sú hefir nú orðið raun á, að
Frakkland hefir tekið í taumana og mót-
mælt þessum refsi-aðgerðum. í þess
stað hefir það í samvinnu við Samuel
Hoare, utanríkismála-ráðherra Breta, að
því er virðist gert uppkast að nýjum
friðarsamningi. Er etfni þess samnings
það, að ítah'a hljóti það atf landi er hún
hefir nú með sverði unnið í Blálandi, en
Blálendingum sé veitt ítök á Rauðahaf-
inu( sem ekki verður séð hvað þeir geta
annað gert við, skipalausir, en direkt sér
í því. Baldwin stjórnin á Bretlandi virð-
ist samt sem áður hafa orðið Frökkum
sammála. Hefir afarmikill styr staðið
um stjórnina síðan þessir samningar voru
birtir. Er sagt að úrslita orustan eigi að
standa um þá á brezka þinginu á morgun.
Á Frakklandi hefir Laval stjórnarfor-
maður fengið samnings-uppkastið sam-
þykt, með herkju þq, eða 306 atkvæðum,
en 242 á móti. Taldi Laval samningi
sínum til gildis, að hann bægði stríði frá
Evrópu, en viðskiftabanninu á járni ben-
síni og kolum, hefði eflaust fylgt stríð.
En andúðúin í þinginu á Frakklandi á
móti samningunum, sýnir ótvírætt, að
þjóðin er þeim alt annað en fylgjandi,
sem einn maður.
Á undirtektum brezku stjórnarinnar
furða sig margir. Og svo harðsnúin eru
sum blöð á Bretlandi á móti samningn-
um, að það er enn talið vafasamt, að
Bretar þori að verða með þeim, er þeir
verða lagðir fyrir Þjóðabandalagið. Og
Andúðin gegn samningunum, er ekki ein-
ungis auðsæ á Bretlandi, heldur tala
ýmsar smærri þjóðirnar í Þjóðabandalag-
inu um afstöðu Breta, sem andlegt þrótt-
leysi hjá þjóð, sem heimurinn h'ti nú til
sem öruggs foringja. Það hlýtur eitthvað
að búa að baki þessu öllu, sem enn er
'ekki Ijóst.
Því hefir verið haldið fram, að ef þessar
síðustu refsi-aðgerðir verði framkvæmd-
ar, sé Mussolini úr sögunni. En m«ð því
stjórnarfarslega hruni viti engin hvað
þjóðarinnar bíði. Við uppreist og öngþveiti
megi eins vel búast og gjaldþroti. Og þá
getur nú farið að- höggva nærri konung-
dóminum. Það gæti farið svo, að í það
sama ssekti á ítalíu og á Þýzkalandi. En
svo algerlega bjargarlausar þjóðir, eru
viðskiftum heimsins ekki til eflingar. Og
að því er til konungsdómsins kemur, þá á
bæði Holland þar til skyldra að telja og
Bretland til vina. Konungsríkjunum yrði
eflaust ekkert betur við það hrun, heldur
en viðskiftalöndunum við gjaldþrotið.
Eitthvað af þessu getur komið til
greina hjá þeim, sem völdin hafa. En
hjá hinum, fjöldanum, kemur það á-
reiðanlega lítið til mála. Er sagt, að
Norðurlanda þjóðirnar séu ákveðnar í því,
að halda sér við það, að binda enda á
stríðið í Afríku, og afstaða þeirra til refsi-
aðgerðanna nýju, verði í Þjóðabandalag-
inu eins ákveðin og fyr. Bæði andstæð-
ingar stjórnarinnar í þingi á Bretlandi og
blöðin, bregða stjórninni og brezka flot-
anum um hræðslu við Mussolini. En að
það sé eitthvað annað en sú hræðsla,
sem breytt hefir viðhorfi stjómarinnar á
þessum refsi-aðgerðum, er þó líklegra.
Væri Mussolini svo hættulegur nú, er
hætt við að það verði ekki við lambið að
leika sér, að eiga við hann, eftirþessa
tfyrstu landvinninga.
En hvað sem Þjóðabandalagið gerir nú
í þessu máli, þá er það víst, að Blálands-
keisari gengur ekki að þessum nýju
samningum. Hann lýsti því hiklaust yfir,
eftir að hann hafði yfii*vegað þá, að hann
berðist meðan nokkur manna sinna stæði
uppi fyrir sjálfstæði lands síns og þjóðar.
Og að honum hafi verið það alvara, ber
það vitni um, að hann eggjaði menn sína
til framgöngu og hélt af stað sjálfur til
vígvallanna, er hann hafði lokið starfi
sínu á stjórnarsetrinu í Addis Ababa.
Hann hafði áður verið á vígstöðvunum en
skrapp heim til að sinna nauðsynlegum
störfum.
Á norðvestur vígstöðvunum bárust
fréttir um það í gær, að her
ítala hefði verið hrakinn til
baka, en hann var á leiðinni
suður til Tanavatns. Er það í
fyrsta skifti sem ítalir kannast
við það í fréttum aínum frá
Eritrea, að hafa farið halloka,
svo það mun satt vera. Það
gengur að minsta kosti í þótfi
þar þessa stundina.
Ýmsir fréttaritarar hafa það á
orði, að það sem sé að gerast á
ráöstefnum Breta og Frakka,
snerti Bláland í raun og veru
minna, en Breta og ítali. En
verði oflangt gengið í því, geti
svo farið, að aðrar þjóðir í
Þjóðabandalaginu, hætti að
fylgja þeim eins að málum og
þær hafa gert. Það er eitt af
því, sem ekki þykir óh'klegt að
verði til þess, að þessum nýju
friðarsamningum^ í stað refsi-
aðgerðanna, verði hafnað.
FORD TEFUR FYRIR ÍTÖLUM
Samkvæmt frétt frá suður-
vígstöðvunum í Blálandi, hefir
Henry Ford beitt refsiaðgerðum
við sjálfan sig, sem orðið hefir
til þess að tefja landvinninga
ítala í Afríku. Fréttin hljóðar
þannig:
Á vígstöðvunum í Somali-
landi, 15. des. — Rodolfo Grazi-
ani, yfirhershöfðingi ítalska
hersins á suðurvígstöðvunum á
landamærum Somalilands og
Blálands hélt því fram í dag, að
hann hefði nú verið kominn
alla leið að sunnan til Addis
Ababa, höfuðborgar Blálands,
ef bílakÖngurinn Henry Ford
hefði ekki tekið upp á þeirri
kúnst, að beita sjálfan sig refsi-
aðgerðum (private sanction).
“Við pöntuðum hjá honum og
greiddum honum fyrir fram fyr-
ir 800 bíla”, sagði herforing-
inn, “en salan fórst fyrir; þegar
Ford tók upp á því, að beita
refsiaðgerðum við sjálfan sig.”
Yfirhershöfðinginn sem sótt
hefir Blálendinga að sunnan, og
vaðið hefir inn í Bláland, hélt
því fram, að ef herinn hefði
haft þessi flutningstæki frá
Ford til þess að fylgja á eftir
hernum, er hann óð fram, með
nægar vistir og vopn, hefði
hann nú verið búinn að taka
höfuðíborg Blálands.
“Hraði skriðdreka (caterpil-
lars) er ekki mikill, fimm mílur
á klukkustund. En hefðum við
nú um 300 af þeim, yrðum við
komnir inn til Addis Ababa í
marzmánuði,” sagði yfirherfor-
inginn. “Það eru flutningstæk-
in sem útslagið gera í stríði.”
JÓN BISKUP HELGASON
SEGIR FRÁ PARÍSARFÖR
SINNI
Jón biskup Helgason sótti í
|haust fyrir íslands hönd hið 3.
lúterska alheimsþing, sem hald-
ið var í París dagana 13.—21.
okt. Sóttu það þing um 100
fulltrúar frá 24 löndum^ og
margir fleiri. Voru flestir full-
trúar frá Fakkandi, 26, og þar
næst frá Þýzkaandi 15.
Fundir hófust kl. 9J að
morgni og stóðu til kl. 1, svo
frá 3—7 og stundum frá 8—10
síðd. Voru fyrirlestrar haldnir
á hverjum degi og auk þess gaf
einn fulltrúi frá hverri þjóð yfir-
lit um hag kirkjunnar í sínu
landi á málegum tíma. Svo
var rædd afstaða lútersku kirkj-
unnar til ýmissa þjóðfélags-
mála, kreppan bæði andleg og
efnisleg, heimatrúboð, heiðingja
trúboð o. s. frv. Að lokum voru
samlþyktar langar ályktanir af
ýmsu tagi um þau mál, sem
rædd höfðu verið. Þrjú tungu-
mál voru jafn rétthá á þinginu,
franska, þýzka og enska, og
þegar erindi var flutt á einu
málinu fengu menn þýðingar af
því á hinum málunum. En þótt
undarlegt kunni að virðast, töl-
uðu menn sín á milli aðallega
þýzku.
í fundarlok sagði forsetinn,
Morehead frá New York, af sér
vegna aldurs, en í hans stað var
kosinn Marahrens biskup í
Hannover. Ákveðið var að
næsta þing skyldi koma saman
eftir 5 ár.
Dvölin í París
Þetta er í stuttu máli það,
sem biskup sagði tíðindamanni
Morgunblaðsins um þingið.
— En hvemig leist yður á
París?
Hún var mér ógleymanleg.
Aldrei hafði mér komið til hug-
ar að hún væri jafn fögur og
stórkostleg og hún er. New
York og Berh'n komast ekki í
neinn samjöfnuð við hana að
fegurð. Eg vil bara nefna torg-
in miklu, t. d. Concorde- og
Vendome-targin, Invalidehótelið
og kirkjuna með legstað Napo-
leons mikla, Notre Dame og
Sacré Couer-kirkjuna og sigur-
bogann með gröf ókunna her-
mannsins, þar sem hinn ó-
slökkvandi eldur brennur, og
þar sem allir taka ofan, er þar
nema staðar. Þar held eg að eg
ihafi verið gripinn geðhrifum.
Eg var svo heppinn, að mér
ihafði verið fenginn bústaður
hjá dönskum hjónum. Þau eiga
heim í skrauthýsi mitt á milli
París og Versala. Maðurinn
heitir S'mith-Petersen, og er
verkfræðingur. Hann er dótt-
ursonur próf. Jul. sál. Thomsen
í Kaupmannahöfn. Þessi góðu
hjón báru mig á höndum sér,
vildu alt fyrir mig gera og
hvergi hefir mér liðið betur en
ihjá þeim.
í París sat eg hádegisveislu
hjá sendiherra Dana og íslend-
inga, Oldenburg, hinum mæt-
asta manni; var og í boði hjá
Verrier prófessor, sem hefir
mikinn áhuga á Norðurlanda-
fræðum — einnig íslenzkum og
er mikili vinur dr. Guðm. Finn-
bogasonar.
Æfintýr
— En komust þér þá ekki í
neitt æfintýr í heimsborginni ?
— Jú, við getum kallað það
því nafni. Og sú saga er þann-
ig:
Seinna sunnudaginn, sem eg
^tOOVtRN°RAIVD C0MPAHy0F
Áínjpnlurprs ofcpngíanö
TRADING INTO NUD50NS BA»
THI HHOOUCC 0r SCOUAND
OUALITY OUARANTCCO BV
Hudson's Bay Company-
-er framúrskárandi vinsælt.
Það er brent, blandað og
i móðnað á Skotlandi.
26 únz $2-30
40 únz. 3'35
tíí'Bött (Eompang.^
This advertisment is not inserted hy the Government Liquor Control Commission. The
Commission is not responsible for statements made as to quality of products advertised.