Heimskringla - 18.12.1935, Qupperneq 5
HEIMSKRINGLA
5. SlÐA
WINNIPBG, 18. DES. 1935
FJÆR OG NÆR
var í París, bað erkibiskup Svía
xnig og finskan biskup, að að-
stoða sig við prestvígslu. Átti
hann að vígja ungan sjómanna-
prest til Skandinavisku kirkj-
unnar í 'Grimsby. Eftir það sát-
um við veizlu. Kom þá til mín
prestur og spurði bvort hann
mætti ekki kynna mig konu
prestsins, sem við vorum að
vígja. Eg hafði ai^ðvitað ekk-
ert á móti því.
Og svo kemur hún til mín og
gegir á hreinni íslenzku:
— Komið þér sælir, herra
ibiskup.
Þá rak mig í rogastans. Kom
nú upp úr kafinu að þetta er
íslenzk kona, helga Guðbjartar-
dóttir, Helgasonar, frá Flateyri
í Önundarfirði. Hún hefir verið
hjúkrunarkona og dvalist í Eng-
landi 12—13 ár. Þar mun hún
hafa kynst manni sínum, sem
heitir Abrahamsson. Hún tal-
aði íslenzku eins og hún hefði
aldrei út fyrir landsteinana
komið.
Eg spurði erkiibiskup Svía
hvort hann hefði vitað, er hann
bað mig að aðstoða við prest-
vígsluna, að prestkonan væri ís-
lenzk. Hann kvað nei við, og
þótti þetta mjög enikennileg til-
viljun.
Frá ferðalaginu
— Hvemig er að ferðast á
meginlandinu núna?
— Því fylgja ýmsir erfiðleik-
ar, einkum vegna peninga. Og
þrátt fyrir alla þá kurteisi, sem
við mættum í Þýzkalandi, var
einna verst þar að þessu leyti.
Þar er ekki annað að fá en hin
svokölluðu ferðamörk og verður
maður að skila afganginum við
landamærin, ,þegar úr landi er
farið. En tollskoðun er mjög
lítil, og get eg varla sagt að eg
þyrfti að opna ferðatöskur mín-
ar alla leiðina.
í Brussel
Á heimleiðinni fórum við ytfir
Brussel. Hafði forstöðunefnd
mótmælendakirkjunnar í Belgíu
ibeðið norrænu fulltrúana að
koma þar við. Þarna vorum
við í tvo daga. Notuðum við
tímann . eins og unt var til að
skoða heimssýninguna og þótti
mér hún stórfengleg. Forstjór-
ar dönsku og sænsku sýningar-
deildanna sögðu mér báðir, að
varla hefði komið sá dagur fyr-
ir í sumar, að menn hefði ekki
spurt: Hvar er íslenzka sýn-
ingin?
Seinni daginn í Brussel sat
eg veizlu hjá Krag, sendiherra
Dana í Belgíu. Hann mun vera
í móðurætt 5. maður frá Jóni
Eiríkssyni konferensráð, dótt-
ursonur Kammerherra Lutti-
chau, sem var kvæntur Mal-
vínu dóttur sonardóttur Jóns
iEríkssonar.—Mbl.
— Hvers vegna svarar þú
hverri spurningu með nýrri
spurningu ?
— Geri eg það?
Veitið Gestunum
PALM ICE CREAM
í allskonar yndislegum
mótum
Um Jólin
og Nýárið
•
Biðjið um það hjá næsta
Palm verzlunarmanninum
eða símið beint til
Palm Dairies Limited
verksmiðjunnar
Logan og Brighton
Símar 25 838—25 839
Fyrir skömmu flutti séra
Jakob Jónsson fyrirlestur um
ísland á ensku í Wynyard. Var
fyrirlesturinn sóttur af mönnum
af ýmsum þjóðflokkum. Hélt
eéra Jakob fram og studdi með
rökum, að hér væri eins mikil
ástæða til að kenna íslenzku í
“high schools” og latínu. Virt-
ist unga fólkið talsvert spent
fyrir fræðslunni um ísland. —
Samskonar erindi hefir séra
Jakob flutt í ungmennafélagi
Hóla-bygðar.
* * *
úr bréfi frá Wynyard s. I. viku:
Mr. og Mrs. H. Halldórsson,
Wynyard, Sask., sem eru á för-
um vestur að hafi, var haldið
imyndarlegt samsæti í kveðju-
skyni af bygðarvinum.
* * *
Hannes kaupm. Kristjánsson
frá Gimli var staddur í bænum
s. 1. mánudag í viðskiftaerind-
um.
* * *
Endurminningar
Annað hefti er nú komið út af
þessari sjálfsæfisögu Friðriks
Guðmundssonar. Fjallar það um
ferð hans hingað vestur og það
sem á dagana dreif fyrstu árin
í Ameríku; uppgang Winnipeg-
borgar; íslenzkan f élagsskap;
frumbýlings árin í Vatnabygð-
um o. fl. Hefti þetta er mjög
skemtilegt og góðar og glögg-
ar athuganir víða. Kostar sama
og hið fyrra $1.25 í kápu. Er
til sölu hjá höf. að Mozart,
Sask., á skrifstofu Heims-
kringlu, Ólafi S. Thorgeirsson
Ibókasala og Magnúsi Peterson
ibóksala. Sent póstfrítt.
* * *
Stúkan “Skuld” nr. 34. I. O.
G. T. hefir Whist Drive og dans
í G. T. húsinu á Gamlársdags-
kvöld, þriðjudaginn 31. des.
1935. Verðlaun verða gefin fyrir
hæstu vinninga í vist; einnig
fyrir beztu búninga (best and
most comical). Inngangur 25c
Byrjar kl. 8.30.
* # *
Jóhann bóndi Briem í River-
ton, Man., átti níræðisafmæli 7.
des. Var honum haldið sam-
sæti í tilefni af því af sambygð-
armönnum hans og vinum.
* * *
íþróttafélagið “Fálkinn” gefur
ibörnum atvinnulausra aðgöngu-
miða að skautahringnum á
Home og Sargent yfir veturinn.
Miðanna má vitja til W. Good-
man, 690 Victor St., Winnipeg,
Sími 21 900.
* * *
Blaðið “Minneota Mascot”
getur þess þann 13 þ. m. að
daginn áður hafi andast að
heimili sonar síns, Albert Fjeld-
sted í Minneota, ekkjan Sigríð-
ur Einarsdóttir Fjeldsted tæpra
87 ára að aldri. Hún var fædd
27. jan. 1849.
* * *
Jólagjafir
Þið sem kaupið bækur,, um
jólin, kaupið íslenzk úrvalsrit.
Á skrifstofu Heimskringlu eru
til sölu: Ljóðmæli Stephans G.
Stephanssonar Andvökur IV. og
V. bindi, á niðursettu verði, $5.
sent hvert sem vera skal. Enn-
fremur myndir af listaverkum
Rikarðs Jónssonar í Reykjavík
áður $3.00 nú á $2.00. Betri
jólagjafir en þessar, eru hvergi
fáanlegar. Sendið pantanir á
skrifstofu “Heiimskringlu” og
yður verða sendar bækurnar.
¥ * ¥
Tilkynning
Með því, að Karlakór íslend-
inga í Winnipeg hefir ákveðið í
samráði, og með aðstoð “The
Ghoral Society” að syngja
“Kantötu” hr. Jóns Friðfirins-
sonar tónskálds á næstkomandi
vori, þá eru allir þeir, er ósk-
uðu eftir að aðstoða við nefnda
“kantötu” beðnir að gefa sig
fram sem allra fyrst við Mrs.
Björgu V. ísfeld, sími 30 292,
eða Waltier Jóhannsson, sími
35 707. Ennfremur þeir, er
vildu eignast þetta tónsmíða-
verk í einni heild. Kostar bók-
in $1.50.
¥ * *
16. nóv. s. 1. heimsóttu nokkr-
ir fyrverandi nágrannar og vin-
ir þau Mr. og Mrs. Ben. Ólaifs-
son á hinu nýja heimili þeirra,
703 St. Annes Road, St. Vital.
Fná því þau giftu sig 16. sept.
1920 hafa þau alt af átt heima
að 1080 Sherbur St. Kristinn
Oliver afhenti þeim hjónunum
stofulampa til minningar um
heimsóknina, sem vinargjöf -frá
gestunum.
* * *
Kveðjusamsæti
Þjóðræknisfélag íslendinga í
Vetsurheimi, efnir til kveðju-
samsætis á Royal Alexandra hó-
telinu hér í borginni, á föstu-
daginn þann 20. þ m., kl. 6.30
síðd., í kveðjuskyni við þau Dr.
Ófeig Ófeigsson og frú Margréti
Ófeigsson, sem nú eru í þann
veginn að leggja af stað héðan
úr borg og suður til Mayo-
stofnunarinnar að Rochester,
Minn., þar sem lækninum hefir
boðist staða um alllangt tímabil,
ef honum svo sýnist. Dr. ó-
feigsson kom til Winnipeg, á-
samt frú sinni, fyrir tveim ár-
um, sem fyrsti styrkþegi Can-
adasjóðs, er ísland var sæmt
með í tiletfni af Þúsund ára af-
mælishátíð Alþingis 1930; hefir
hann stundað framhaldsnám við
Almenna sjúkrahúsið hér og
læknadeild háskólans, með frá-
bærum árangri. Dr. Ófeigsson
er gáfumaður mikill, og það
sem jafnvel er meira um vert,
þrunginn af áhuga fyrir starfi
sínu. Þau hjón hafa notið al-
mennra vinsælda og eignast
fjölda trúnaðarvina.
Aðgangur að kveðjusamsæti
þessu, sem vafalaust verður
fjölsótt, kostar $1.50 fyrir
manninn, eða $3.00 fyrir parið,
og fá þeir einir aðgöngu, er
trygt hafa sér aðgöngumiða á
fimtudaginn þann 19. þ. m. —
Fást þeir hjá þeim herrum Árna
Eggertssyni, J. Walter Jóhanns-
syni, Ásmundi P. Jóhannssyni
og S. W. Melsted.
* * *
Þjóðræknisdeildin “Frón” hélt
almennan fund í G. T. húsinu í
Winnipeg s. 1. mánudag. Á
fundi voru um 180 manns. —
Stjómarnefndarkosning fór
fram og eru í henni á komandi
ári þessir: Soffanías Thorkels-
son forseti, Grettir Jóhannsson
vara-forseti, Ragnar Stefánsson
ritari, Stefán Einarsson vara-rit
ari, Sveinn Pálmason féhirðir,
Jóhann Th. Beck vara-féhirðir,
Sigurður Sigmundsson fjár-
málaritari, Ingi Stefánsson
vara-tfjármalaritari.
Endurskoðunarmenn reikn-
inga voru kosnir: Ásm. P. Jó-
hannsson og Friðrik Kristjáns-
son.
Að kosningu lokinni fór fram
skemtun. Flutti ungfrú Svan-
ihvít Jóhannesson lögfræðingur
skemtilegt erindi um “Tímann”.
Kvað hún tímann öllu dýrmæt-
ari, því enda þótt hann væri
sem stæði ekki peningar til
allra, væri samt hægt að færa
sér hann í nyt á þann hátt að
betra og bæta andans hag. Og
þess væri kostur útgjaldalaust
í þessum bæ, að miklu meira
leyti, en menn gerðu sér grein
fyrir. Hér væru ókeypis lestr-
arsalir, fyrirlestrar fluttir sem
inngangur væri ekki seldur að,
og svo stæðu fundir og þing
bæði bæjar- og fylkisstjórnar
öllum opin, sem mikið mætti
fræðast af um efnahag þjóðfé-
lagsins og hvernig oss væri
stjórnað. Að máli hennar var
gerður góður rómur. Annað til
sbemtana var piano-spil eftir
Ragnar H. Ragnar, en eins og
menn vita, er einspil hans eitt
af því er meö ágætum verður
talið. Þá söng frú K. Jóhannes-
son einsöng og er hún svo kunn
fyrir söng sinn, að óþarft er að
minnast skemtunarinnar er á-
heyrendur nutu. Ennfremur las
Ragnar Stefánsson upp kvæði,
eftir þrjú merkustu skáld ís-
lands, skemtilega og áhrifa-
mikið. Fundir Fróns hafa und-
anfarið verið vel sóttir, enda má
meðal annars sjá af því, sem
hér er getið, að slík ókeypis-
skemtun stendur óvíða til boða.
JÓLAELDAR
Frh. frá 1 bls.
illa út. Eg var farin að bera
sterkari óvildarhug til þessarar
konu en var holt fyrir geðs-
muni mína og taugar. Svo eg
ákvað með sjálfri mér, að hætta
alveg að vinna hjá henni, senda
henni boð um að eg kæmi ekki
tframar. En eins og stundum vill
til, grípa atvikin fram fyrir
hendurnar á manni. Sú ánægja
veittist mér aldrei, því einn
góðan veðurdag veiktist hún
skyndilega og lá liðið Hk þrem
dögum fyrir jól. Jarðarförin
var ákveðin síðdegis á aðfanga-
dag.
Eg hefi ekki enn getað gert
mér fyllilega grein fyrir því,
hversvegna eg fór til útfarar-
innar. Líklega hefir það verið
forvitni að einhverju leyti, og
svo kannske einhverskonar
leyndur þakklætisvottur, fyrir
þessa atvinnumola sem féllu af
borðum hennar, enda þótt eg
væri mér þess ekki meðvitandi
þá. Þegar til alvörunnar kemur,
langar okkur, sem eftir stönd-
um, að rétta þeim förnu hendina
í friðsamlegri kveðju.
Þegar eg kom var kveðjuat-
höfnin byrjuð. Eg settist utar-
lega nálægt dyrum, en sá vel inn
yfir alla kirkjuna, sem búið var
að klæða jólaskrúði, lifandi
grænu limi og pálmum. Vönduð
líkkista þakin blómum stóð
framan við ræðustólinn. Prest-
urinn var byrjaður að tala í
þægilegum alvöruþrungnum
róm. Kirkjan var full af fólki,
er sat prútt og alvarlegt í
bragði og virtist hlusta með
gaumgæfni. Eg sat nú svona
stundarkorn og eins og tók ekki
eftir neinu sérstaklega, en alt í
einu áttaði eg mig á því að eg
var orðin alt sjáandi. Það sýnd-
ist koma náttúrlega og alveg að
sjálfsögðu að eg var alt í einu
farin að athuga hugsanir fólks-
ins, er sat þarna fram undan
mér hátíðlegt á svip. En hugs-
animar voru hreint ekki hátíð-
legar, heldur ósköp hversdags-
legar og persónulegar. Allir
voru eitthvað að brjóta heilann
um eigin hag t. d. um viðskifti,
skuldir, vinnu, atvinnuleysi,
peningamál, skemtanir og alls-
konar strit og stríð daglega
lífsins, sem allir kannast við,
smátt og stórt, eftir því hvað
hver og einn hafði fyrir við-
fangsefni. Enginn hugsaði um
dauðann, dómsdag og annað líf
eða þá framliðnu, sem þetta
fólk var þó áreiðanlega komið
saman til að kveðja. Það mundi
sýnilega enginn eftir henni. —
Mér varð litið inn eftir kirkjunni
og þar sá eg það, sem eg aldrei
gleymi. Framan við kistuna
stóð sú framliðna, að mér sýnd-
ist ljóslifandi, og mér varð það
ljóst að hún sá og skildi alt
það sama og eg. Enginn af
samferðafólkinu er þama var
statt hugsaði um hana, enginn
sá eftir henni né syrgði hana,
enginn elskaði hana eða vafði
vinarhug. Öllum þessum hóp
af fólki var öldungis sama um
hana. Það var þarna aðeins fyr-
ir siðasakir. — Og þarna stóð
hún og mændi fram yfir mann-
fjöldann, vinalaus, einmana,
gleymd, öreiga sál, komin yfir
landamærin þangað, sem engin
tekur neitt með sér, nema eigið
manngildi og hlýhug annara,
fyrir farareyri. Hún hafði hvor-
ugt. Jafnvel blómin á kistunni
voru litlaus,, ilmlaus og dauð.
Þau höfðu verið send atf því
það var viðeigandi, en ekki sem
einlægar vinakveðjur.
Það greip mig sannbland af
skelfing og innilegustu með-
aumkun. Aldrei hefir mig lang-
að eins af öllum h'fs og sálar
krötftum til að hjálpa mann-
eskju úr nauðum. Eg hafði
ekki heyrt nokkurt orð af því,
sem presturinn sagði. Það var
svo margþættur leikur, sem eg
var að horfa á og fylgjast með.
Nú varð mér litið til prestsins
og eg sá að hann átti í vand-
ræðum. Hann fann að orð
hans féllu á dauf eyru. Prestar
eru eins og leikarar, næmir
fyrir andrúmslofti. Og eg sá
að gamla prestinum þótti það
æði þunt, að geta ekki látið
þessa drumba vikna, standandi
tframmi fyrir dauðanum á sjálf-
an aðfangadaginn.
Alt í einu var eins og leitftri
ibrigði fyrir í huga hans og hann
fann leiðina að hjörtum áheyr-
endanna. Jólahugsunin kveikti
í anda og orðum hins aldna
prests. Hann talaði af anda-
gift og krafti eins og skáld. —
Jólahátíðin varð margþætt, stór
og fögur í orðum hans. Það
mál snart strengi í huga á-
heyrendanna áh'ka og þegar
heillandi músik er leikin af
snild. Það var sem loftslagið
þarna inni léttist og.yrði bjart-
ara. Hlý samúðar alda rann á
milli manna og náði líka að
ln'kkistunni. Hálfgleymdar minn-
ingar fóru að læðast fram og
stinga upp höfðinu hér og þar,
þægilegar endurminningar,
samfundir, bros og gleðistundir,
sem tekið er eins og sjálfsagt
um leið og það er veitt. Og
andi jólanna blés lífi í útkúlnað-
ar glæður.
Mér varð aftur litið til kist-
unnar og þeirrar framliðnu, en
hún var horfin og blómin hötfðu
aftur fengið líf og lit og ilm,
sem angaði urn alt húsið. Ein-
hverniviegin vissi eg að öllu var
óhætt og sú feginsgleði greip
mig að eg fann tárin streyma
niður kinnarnar. Eg tók upp
vasaklútinn minn til að þurka
mér um augun og þegar eg leit
upp aftur, hafði eg mína vana-
legu sjón, en fann þó að eg
mundi hér eftir sjá svo margt
með öðrum augum.
Organleikarinn var byrjaður
að spila útgöngulagið — og í
Iþeim hljóm heyrði eg aðra tóna,
voldugri, dýpri, heitari, lof-
söngva liðinna kynslóóða, er
hafa verið sungnir niður aldirn-
ar í hugum og hjörtum þeirra,
er fagnað hafa jólunum, sem
hátíð ljóss, friðar og kærleika.
Úti fyrir heldur straumurinn
áfram, ljósin blika, bílarnir
þjóta hjá og skóhljóð jólaboð-
Iberanna berst inn til mín. —
Eg veit ekki hvort saga Maríu
gömlu á nokkum þátt í því, en
í kvöld er eg óvenju þakklát
fyrir hvert hlýtt handtak, ein-
lægt bros og ást, er Ijómar úr
augum vina og vandamanna.—
Þeir eldar gefa varanlegan yl.
iiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiwiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiing
West End Food Market
I Wes
O
S Sími 30 494
...
Cor. Sargent og Victor x
ÓSKAR ÖLLUM VIÐSKIFTA VINUM SÍNUM
ÁNÆCJULEGRAR OG FAGNAÐARRÍKRAR
JÓLAHÁTÍÐAR
í verzluninni er ávalt á reiðum höndum allskonar
matvara. Ennfremur nú um hátíðimar
Kalltúnar — Gæsir — Hænsni
Nýreykt sauðakjöt — Rullupylsur o. fl.
West End Food Market
TIL J0LAFAGNAÐAR
LABATTS
^nAuv
(PoVg/
öi\e
V
c/
Er alveg mátulegt að bragði, efni og styrkleika
til þess að auka á gleði jólahaldsins
Fæst einnig á ölstofunum, klúbbum og í opin*
berum vínsölubúðum.
SÉRSTAKAR* ÚTSENDINGAR
FYRIR JÓLIN
Vöruhúsinu verður haldið opnu þangað til
kl. 10.30 e. h. mánud. 23. des. og þriðjud.
24. des. Tekið verður á móti pöntunum
fram á kl. 10.30 e. h. og sendar út sam-
dægurs.
PANTIÐ NÚ STRAX SfMI 92 244
JOHN LABATT LTD.
191 Market Ave. E. Winnipeg
(rétt við Main St.)
i This advertisment is not inserted by the Government Liquor Control Commission. The
Commission is not responsible for statements made as to quality of products advertised.