Heimskringla - 01.04.1936, Page 3

Heimskringla - 01.04.1936, Page 3
WINNIFBG, 1. APRÍL, 1936 HEIMSKRINGLA 3. SÍÐA ing í Dresden. Það er indæll bær. Hreinn — gamall og nýr, og fullur af listafólki, opera- búsum og söfnum, og hafði eg yndi af á sunnudögum að at- huga söfnin. Eg vann þar hjá konunglegum meistara. Við máluðum mest í stjórnarráðinu, Landgericht, í kirkjum og víð- ar. Þar undi eg mér bezt af öllum sitöðum í heiminum sem eg hefi dvalið í, að Reykjavík undanskildri. Svo hvarf eg til Hafnar aftur og settist þar að um tíma, í fé- lagi við aðra stúlku. En þar átti eg ekki heima, enda þótt eg hefði stundað þar skóla áður. Það gekk ljómandi í fyrstu, — blöðin mintust okkar. En svo skeði sá atburður á fyrsta ári, að elzta systir mín misti mann- inn sinn í sjóinn frá tveimur börnum á fyrsta og öðru ári. Hvarf eg þá heim og settist að í Reykjavík, vorum við svo saman systurnar upp frá því. En móðir okkar annaðist heim- ilið og litlu föðurlausu börnin okkar meðan við vorum úti að vinna, og var oft margt í heim- ili. Systir mín stundaði bók- band hjá Ársæli bróðir okkar eða var í bókabúðinni hans. í Reykjavík var mér vel tekið. — Um 80 hefðarkonur héldu mér samsæti á opinberum stað og færðu mr ljóð eftir Jón Trausta (Guðm. Magnússon) skáld, en í hans húsi áttum við heima í mörg ár, og var þeim hjónum það kærkomið, þar sem þeim varð ekki barna auðið. Við systurnar áttum marga indæla stund saman með börnum okk- ar, með því eg hafði þá altaf góða atvinnu. Þannig liðu 10 ár. Þá hvað? Þá datt í mig að fara til Ame- ríku til að sjá mig um og læra af Ameríkönum, og um leið heimsækja Svisslendinginn minn sem eg hafði skrifast á við í 13 ár. (Hann las um mig í þýzku tímariti og þá byrjuðu bréfaskifti okkar). Við vorum búin að ákveða að sjást, en hann gat ekki yfirgefið stöðu sína. Þetta var í það mund er íslenzku skipin voru að gefa upp Ameríku ferðir og ákvað eg að fara áður en þau hættu. Það var afarmikil vinna undan- farandi árin og altaf fékk eg fleiri og fleiri viðskiftavini. — Stundum haf'ði eg nokkra menn í vinnu á sumrin og marga nemendur; fór eg því til Ame- ríku meðfram til að hvíla mig frá málningunni um eins árs skeið. Uvo lagði eg af stað 13. sept. 1920 og var mér strax farið að leiðast er eg kom um borð og lá við að eg beiddi Helga “Lóss” að taka mig til baka, jafnvel þó eg næði ekki í farangurinn. En eg reyndi að stilla mig. Eg hafði ágæta samfylgd með frú Stefaníu leikkonu og fl., einnig var þar kona í ferð- inni, hún var ekkja með þrjá drengi, varð brátt vel til vina með okkur, stuðlaði þar mikið til að drengirnir hennar voru á líkum aldri og minn, enda átt- um við lengst samleið, fór hún til Seattle, eg til Spokane. Mamma vildi ekki sleppa drengnum mlínum. “Þú færð ekki barnið” mælti hún, “það verður nógu erfitt fyrir þig í j Ameríku samt.” Svo skildi eg við þessa elskulegu móður míná hrygga. “Gráttu ekki elsku mamma, eg kem afitur”, voru mín síðustu orð. Eg kom til Spokane um haustið og þaðan til Adely, þar sem Svisslendingurinn minn átti heima og var mér þar auðvitað tekið opnum örmum, enda þótt eg aldrei hefði hann augum lit- ið. Hann heilsaði mér með kossi, sagðist nota sér að þaö væri íslenzkur siður. Eg varð svo hissa er hann sagði þetta að eg gleymi því aldrei. En brátt varð eg þess vör að hann hafðil kynt sér íslenzku og átti dálítið af íslenzkum bókum. Ilann var ekkjumaður og átti þrjú uppkomin börn, og hafði vellaunaða stöðu, var póstur fyrir stjórnina, hafði skínandi bústað 160 ekrur af landi og allar vélar og áhöld og ráðs- mann til að sjá um alt. Kýr, hesta, kindur og hænsni, aldin- garð með 200 ávaxtartrjám o. s. frv. Húsið stóð undir skógi vöxnu fjalli, og við blasti dalur, rennisléttir akrar og engi, en á rann eftir miðjum dalnum. — Yndislegt landslag. Eg skrif- aði mömmu einhverju sinni að fegurðin væri líkust því að maður gengi á málverkum. Og okkur fanst sem við hefðum þekst um langa tíð, svo við op- iniberuðum trúlofun okkar brátt, enda þótt við hefðum varla minst á slíkt í bréfum okkar. Hann skrifaði á þýzku, en eg á íslenzku, til að læra málin. Við vorum svo gefin saman á gamlársdag, það sama ár 1920. Svo liðu árin, eg fer ávalt með honum í póstferðirnar um fjöll og hálsa. í bíl á sumrin en á vetrum í skemtisleða eða létti- vagni með hlaupa hesturn fyrir. Og hann “Jötlaði”* alla jafna. Fólkið vissi þegar pósturinn var á leiðinni, því undir tók í fjöll- unum. En eftir tæp þrjú ár hætti söngurinn og “Jötlið” í fjöllun- um. Jakob Thoni fórst af bfl- slysi 8. des. 1923. Það var in- dæll vetrarmorgun en talsvert frost og frusu rúður bílsins. — Hann var að forðast skepnu sem fór í veginn fyrir hann og sneri bílnum snögt til hliðar og fór hann um við sveifluna. — Drengurinn minn (sem hann hafði sent eftir til íslands fyrir mig) stóð á hliðarborðinu og sakaði lítið. Eg sá slysið að heiman og flýtti mér til þeirra með ung- barnið í fanginu, en ástvinur minn dó samstundis í örmum mínum og þá sendi eg drenginn eftir hjálp. Eg get ekki komið orðum að hvernig mér leið á þessu augna- bliki, einmana, langt frá öllum vinum og tryggi ástvinurinn minn liðið lík. Hluttekningar- bréf kom frá Póststjórninni í Washington, D. C. og var á þá leið, að maður sem stóð svo prýðilega í stöðu sinni, hlyti að hafa verið góður eiginmaður. Og sólargeislinn okkar, litla stúlkan, aðeins fárra mánaða gömul, varð huggunin mín. En nú byrjuðu aftur daprar stundir, eftir þennan sólskins- blett í lífi mínu. Eg misti heim- ilið mitt með öllu. — Fór að vinna við málning aftur í Se- attle. Leið þó ekki á löngu þar til eg vaidi' mér aftur lífs förunaut. Og 25. marz 1925, giftist eg á ný Jóhanni Ólafi Norman, ekkjumanni með 7 börn. Hann var mjög karimannlegur og göfugmannlegur svo eg trúði honum fyrir mér og litlu stúlk- unni minn,,i strax og eg tók í hraustu höndina hans. Hann átti von á vinnu hjá fiskjfélagi á Point Roberts. Og sigldum við þá af stað til þess- arar fögru strandar. Eins og í leiðslu steig eg á land af skipsfjöl, hugsandi h'tið um hvað fyrir mér mundi liggja hér. Heimþrá gerði en vart við sig, líkt og þegar eg lagði af stað frá íslandi. En eg hafði þá nýskeð fengið þá fregn að eg fengi engan arf eftir manninn minn. (Efðaskráin fanst ekki). Hefði mér hlotnast arfur, ætlaði eg mér heim til íslands með bömin. Drengurinn minn fór nú til Californíu til að vinna fyrir sér og jafnframt að halda áfram námi við málningu, sem hann hafði byrjað með tilsögn minni í Seattle. Og eftir 4 ára dvöl í Ameríku tók hann sig upp og fór til íslands, hann festi hér ekki yndi. En er hann kvaddi * Jötl er svissneskt kvæða- lag, á sinn hátt, sem íslenzkt rímnalag. mig fyrir 9 árum, þá greip mig ólæknandi heimþrá, enda þótt það gleddi mig að móðir mín fékk aftur að njóta hans. Svo fór eg að mála hér, gekk ágætlega, fékk mikla vinnu og hugsaði nú ekki um annað en að komast heim — heim til ís- lands og ástvinanna. Stundum hafði eg hálft fárgjald, eða fyrir helminginn af fjölskyldunni, en það var auðvitað — aðeins byr undir annan vænginn. “Ærið sóttist róður harður.” Eg fékk vinnu við að mála stór- hýsi, skólahús, kirkjur, hlöður, skrifstofur o. s. frv. Vann oft nótt og dag, bæði hér í Pt. Rob- erts, einnig í Seattle, Belling- ham, Blaine, Vancouver og al- staðar sem mér hauðst vinna. Því eg var ákveðin í að fara heim. Keypti ferðaföt bæði fyr- ir mig og börnin; útbjó mig með gjafir fyrir systlkini og vini og alt var til reiðu, nú átti að skríða til skarar 1930. Þá yrðu fargjöldin niðursett. Og mað- urinn minn reyndi líka alt hvað hann gat — því enginn hefir víst skilið mig betur en hann. En svo komu erfiðu árin og vonirnar brugðust með öllu, öll sund virtust lokuð, en eg gat ekki slept þeirri hugsun að þrá ma'n uppfyltist og í hvert sinn er mér bauðst vinna lifnaði von- in á ný. Og eg var alls ekki smeik að koma heim til íslands, með þá þekking á atvinnugrein minni sem eg hafði öðlast hér til viðbótar því er eg hafði áður lært í skóla. Svo eg safnaði 'aö mér ógrynni af öllum þeim gögnum sem gætu orðið mér til stuðnings við að setja upp ameríská atvinnu heima. (Því að mínu áliti er Ameríka langt á undan í byggingarlist á marga vísu). Einnig hafði eg á góðu árunum lagt fyrir tals- vert af áhöldum, pensla og bursta af nýjustu og beztu teg- und. 1930 fór Magnús bróðir minn heim til íslands, eftir 12 ára dvöl í Ameríku. Þar af dvaldi hann 10 ár í San Franciseo. — Hann dvaldi árstíma hér hjá okkur og bygði hann sér þá starfstofu. En er píanóið þagn- aði og myndirnar hættu að skapast í þessari stofu, þá fann eg ekki framar ánægju að konn þar inn, liðu stundum ár svo eg leit þar ekki inn, því endur- minningin um þenna kæra burt- horfna listamann setti mig hljóða. Hann hafði svo oft ver- ið mér dásamlegur í raunurn mínum. En nú flutti tilviljunin mig inn í þessi hýbýli hans. — Síðan Magnús fór hefi eg tog- að öllum árum til þess að kom- ast líka, en nú lítur helzt út fyrir að eg verði að leggja ár- arnar í bátinn, en það er þungt., þungt, þungt. Maggi minn, gerðu lag við þetta. Hér var maður á Tanganum sem sagði: Ásta, já hún verður aldrei centa-laus. En oft skall nú hurð nærri hælum í því efni. En þó átti eg í gær 12. febr. 5 dala gullpening, vinargjöf sem kom sér vel að grípa til þegar eg var í þröng. Síðast pant- setti eg hann fyrir jólagjafir. Hún gerði mér þann greiða að lána mér peninga út á hann, konan með rólega og ábyggi- lega svipinn. Og eg var nýbúin að útleysa hann. Þegar —þeg- ar hann tapaðist mér, ásámt öðru, ásamt svo óteljandi vina- minningum. Svo nú, 13. febr., á eg ekki fyrir frímerki á bréf til ástvinanna heima, móður, son- ar og systkina. Svo hér er eg. 12. febrúar 1936. — Klukkan er að verða 10 að kvöldi. Eg sit í stofunni og er að stoppa í sokka og hlusta á útvarpið frá Hollywood. Eg fór úr sokkun- um og lét á mig inniskó. Jó- hann býður mér góða nótt og fer upp á loft, en kemur að vörmu spori aftur og segir: “Það er kviknað í þakinu.” Við hlupum bæði út til að gá að þakinu og var það alelda. Rok- veður var á með frosti. taldi eg ekki sporin mín upp stigann, inn ganginn, inn í stóra herbergið, þar sem börnin mín þrjú hvíldu í fasta svefni. Eg hraða mér að rúmi Brynhildar mdnnar — 9 ára — hennar rúm var undir veggnum þar sem reyfháfurinn var og skíðlogaði alt í kringum barnið. Eg stans- aði augnablik, hugfanginn af fegurð hennar, þar sem hún lá með löngu lokkana sína á kodd- anum, saklaus og yndisleg í glóandi geislum eldsins og átti sér einkis ills von. “Bíbí mín, á fætur, húsið er að brenna”. Næst var Lisalie mín 12 ára. “Upp með þig húsið er að brenna.” Hún rak upp hræðslu óp. “Út með ykkur, eg ætla að taka Bubba.” Helgi rninn 7 ára svaf í þriðja rúminu og tók eg hann innaní teppi og bar hann útá víðavang, þá fyrst vaknaði hann. I millitíð var maðurinn minn að reyna að sljákka eldinn með vatni. Við gengum þarna að verki, alveg eins og við höfum altaf verið samhent á liðnum ár um. Þegar eg kom upp aftur, var litla herbergið hans alelda. Við reyndum svo að ná í eitt- hvað úr rúmunum og klæða- skápunum, og henda þvi út af svölunum. Hálft stóra herberg- ið var þakið barna leikföngum, en eg gat aðeins náð í brúðuna hennar Bíbí, mér fanst hún horfa á mig, eg fleygði henni út og hana sakaði ekki, því hún var úr gúmmí. Eg seildist upp á vegg eftir mynd af Njáli syni mínum — einnig helgimynd úr postuh'ni, sem Lisalie minni þótti svo vænt um, en eg náði henni ekki. Svo tók eg niður klukkuna, en misti hana á gólf- ið. Og engin ti'mi vanstí til að ná í tvær Gibs myndir sem héngu sín hvoru megin við háa gamlinn á rúminu mínu. Ekki heldur mynd móður minnar. “Á eg nú að fara”, spurði eg Jóhann, það mátti ekki seinna vera, að eg rendi mér niður af svölunum og hann á eftir. Svo fórum við að reyna að bjarga niðri. Þeir hlógu svo hátt í Hollywood að það minti mig á útvarpstækið og tókst mér að bjarga því. (Það var sumar kaupið mitt, sem eg tók þá fram yfir peninga). Stúlkurnar hlupu til nágrann- anna á náttfötunum, berfætt- ar í snjóstormi og mesta frosti sem hér hefir komið í mörg ár (12. ísl. stig). Þeim var tekið með alúð og urðu margir til að hlýja upp húsin sín í nágrenn- inu til að taka á móti okkur. Þá kom hjálp, og hætti eg þá að mestu að skifta mér af björguninni, týndi þó saman bréf og myndir sem voru að fjúka aftur inn í eldinn. Þá var flutt inn í starfstofu — (studio) Magnúsar bróðir mlíns. Það var ekki hægt að tendra rafljósin því vírar voru fallnir, svo var smátt og smátt að kvikna í því sem búið var að bjarga. Eg steig á hlut til að slökkva í honum, tók eg þá eftir að eg var berfætt (og um nótt- ina hélt eg að eg væri búin að fá brunasár á fótum, en er eg gáði betur að, var það nagli og náði eg honum út og sakaði ekki). Allan þennan tíma stóð drengurinn minn í sömu spor- um og horfði íbyggin á eldinn, en sagði ekki neitt. Þegar húsið var rétt í þann veginn að falla og loftsvalirnar stóðu eins og klettur í eldhaf- inu, datt mér alt í einu í hug myndavélin mín sem mér hafði tekist að bjarga, og var eg hin rólegasta að taka myndir af bál- inu, þegar bifreiðarnar og fólkið streymdi að úr öllum áttum. — Einhver gerði þá athugasemd að Mrs. Norman væri berfætt. Aðrir spurðu hvort við hefðurn nokkra eldsábyrgð. — “Nei, en stúlkunum mínum er borgið og drengurinn minn stendur þarna, og við erum öll ómeidd. Og vona eg bara að mér hepnist að styrk úr hetjusjóði hreystinnar, annars væri mér hugraun að þiggja ölmusu gjaf- ir, eftir að hafa unnið sjálfstætt fyrir lífinu í 30 ár. En svo átti eg nú ekki sjálf mikinn fatnað að missa, svo það sannast hér að — “nakin fæddist eg, nakin er eg, nakin loks úr heimi fer eg.” Daginn eftir gekk eg yfir að ibrunarústunum og svipaðist um eftir fötum til að færa börnin í, en þar var ekki um auðugan garð að gresja. Það var döpur sjón sem blasti þama við mér. Alt það erfiði sem við höfðum lagt í að laga og prýða heimil- ið okkar var á svipstundu að engu orðið. Hér höfðum við átt heima í 10 ár, hér fæddust börnin okkar. Brynhildur og Helgi. Hinn bópurinn (börn mannsins míns eftir fyrri konu) að mestu uppvaxinn og floginn úr hreiðrinu. Aðeins við hjónin og börnin 3 voru heima þessa eftirminnilegu nótt. Það gegnir furðu að menn skuli vera að búa til sögur, þegar sannar sögur eins og þessi koma fyrir þvínær dag- lega. Þetta litla snotra hús sem nú er ekki lengur til, mátti líka kallast safnhús. Það geymdi marga foraa hluti og fáséða. Við vorum samtaka í þvi sem öðru, að við brendum aldrei neinu blaði eða bréfi sem hafði íslenzkt orð að geyma. Engin Þér sem notið— TIMBUR KAUPIÐ AF THE Empire Sash & Door CO., LTD. BirgBlr: Henry Ave. Kast Sími 95 551—95 552 Skrlfstofa: Henry og Argyle VERÐ - GÆÐI - ÁNÆGJA frímerki voru eyðilögð og það var mitt mesta yndi að safna úr fjörunni og úr ám og lækjum, steinum sem að einhverju leyti voru einkennilegir í lit eða lög- un. Tdl dæmis átti eg i marga steina úr Columbia-ánni, Spo- kane-ánni og víðar úr Ameríku. Einnig nöðíu-skinn, hringljur og marga hala frá Addy. Hreið- ur, egg og hríslur og hlöð úr skóginum. (Fiðrildum safnaði eg í Þýzkalandi og gaf eg nátt- úrusafninu á íslandi af því 3 kassa er eg fór að heiman). — Horn af hreindýrum og ýmsum öðrum skepnum. Margar skel- pöddur, stærri en lófi manns. Slöngur í spíritus og fl. En fólki hrylti við þessum náttúru undrum, svo eg hafði það ekki á glámbekk. Þegar kjallarinn var bygður undir húsið, fékk eg sérstök umráð yfir eins og fjórða parti af honum, þar hafði eg fjórar hyllur, þétt settar kössum af slíku dómadags sam- Frh. á 7. bls. INNKOLLUNARMENN HEIMSKMLU I CANADA: f™168............................... Sumarliði J. Kárdal Amaranth............................................ B HaUdórsson Árborg................................... O. Einarsson Baldur...............................Sigtr. Sigvaldason Beckville.......................................Björn Þórðarson .................................... J- Oleson Bredenbury.............................H. O. Loptsson ®r°wn...............................Thorst. J. Gíslason Gnlgar/"*:"........................Grímur S. Grímsson Cypress River....................................Páll Andera0n ^foe...................................S. S. Anderson ................................S. S. Anderson Enksdale...............................ólafur Hallsgon Foam Lake..........................................John Janusaon Gl,..................................... K. Kjernested .................................Tím. Böðvarsson glenboro........................................... J. Oleson Hayland.............................. gjg b. Helgason fiecla................................Jóhann K. Johnson Hnausa.................................Gestur S. Vídal “9ve-"..........................................Andrés Skagfeld Husavik............................................John Kernested Inmsfail.............................Hannes J. Húnfjörö Kandahar............................... s. S. Anderson Keewatm............................... sigin Björnsson Knstnes.................................Rósm. Áraason Langruth................................... Eyjólfsson r®8116..............................................Th. Guðmundsson íjnnJar-""................................Sig. Jónsson Markerville....;...................Hannes J. Húnfjörö Mozart.................................g g_ Anderson Oak Pomt............................. Andrés Skagfeld Oakview.............................Sigurður Sigfússon Gtt0................................... Björn Hördal Pmey...................................:S. S. Anderson Poplar Park.......................... gjg Sigurðsson Red Deer............................Hannes J. Húnfjörð Reykjavík............................... Árai Pálsson Riverton.............................Bjöm Hjörleifsson Selkirk...............................G. M. Jóhansson Steep Rock.........................................pred Snædal Stony HiU.........................................Björn Hördal Swan River............................HaUdór Egilsson Tantallon.............................Guðm. ólafason ThornhiU............................Thorst. J. Gíslason Víöir..............................................Aug. Einarsson Vancouvcr.............................Mrs. Anna Harvey Winnipegosis...k..................................jngi Anderson Winnipeg Beach....................................j0hn Kernested Wynyard.................................s. S. Anderson I BANDARÍKJUNUM: A^ra...................................Jón K. Einarsson Bantry.................................e. J. BreiðfjörB Bellingham, Wash......................John W. Johnson Blaine, Wash...................séra Halldór E. Johnson Cavaher...............................jón k. Einarsson Chicago: Geo. F. Long, 2428 Hamlin Ave., Logan Square Sta. Eúinburg...................................Jaco5 Hall Garðar................................s. M. Breiðfjörð Grafton...............................Mrs. E. Eastman Hallson...............................Jön K. Einarsson Hensel.................................j. k. Einarsson Ivanhoe............................Miss C. V. Dalmann Los Angeles, Calif....Thorg. Ásmundsson, 4415 Esmeralda St. Milton..................................F. G. Vatnsdai Minneota...........................Miss C. V. Dalmann Mountain..............................Th. Thorfinnsson National City, Calif......John S. Laxdal, 736 E 24th St. Point Roberts..........................Ingvar Goodman Seattle, Wash.........J. J. Middal, 6723—21st Ave. N. W. Svold..................................jón K. Einarsson Upham.................................E. j. Hreiðfjðrð The Viking Press, Limited Winnipeg Manitoba Þá fá dálítinn

x

Heimskringla

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimskringla
https://timarit.is/publication/129

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.