Heimskringla - 15.04.1936, Síða 7

Heimskringla - 15.04.1936, Síða 7
WINNIPEG, 15. APRÍL, 1936 HEIMSKRINGLA 7. SÍÐA. ÍSLANDS-FRÉTTIR Þrír menn drukkna Jóhann Eiríksson frá Alfta- firði féll út af v/b. Gunnbirni frá ísafirði síðastl. mánudag og druknaði. Albert Þorvaldsson, 35 ára, og Kristinn Eyfjörð Antonsson, 30 ára, drukknuðu í fyrradag á Ólafsfirði. Voru þeir að vitja um hrognkelsanet, er slysið vildi til. Mennirinr voru báðir ókvæntir.—N. Dagbl. 19. marz. * * * Harðindin j íSamkvæmt símtali norður í Þingeyjarsýslu í gær hafði ver- ið snjókoma þar undanfama fjóra daga og hlaðið niður snjó. í fyrradag var þar aftaka stór- hríð. Þess var einnig getið að upp- selt væri alt rúgmjöl, sem til væri á Húsavík, bæði hjá kaup- félaginu og öðrum verzlunum. Samkvæmt upplýsingum frá Veðurstofunni var í gær (kl. 5) hvöss norðaustanátt og snjó- koma með 1—4 stiga frosti um Norðurland og alt suður um Snæfellsnes vestanvert. —N. Dagbl. 22. marz. * * * Snjóbíll til Húsavíkur Bráðlega verður snjóbíll send- ur til Húsavíkur til þess að flytja fóðurbæti til Bárðdælinga og Mývetninga, en í sveitum þeirra eru snjóþyngslin mest og illfærust. Nýlega voru taldir 26 sleðar í lest á leið frá Húsavílk upp í lágsveitir Suður-Þingeyjarsýslu, með fóðurbæti, en þar er færðin eitthvað skárri en í uppsveit- unum. Eftir fregnum að norðan má það teljast prýðilegt, hvað menn komast af með hey í þeim sveit- um, sem lengst hafa búið við al- gert jarðbann, svo sem í Bárð- ardal og Mývatnssveit. —N. Dagbl. 19. marz. VIÐSKIFTA- OG ATVINNU- LÍFIÐ 1936 Frh. frá 3. bls. argjaldi,, 19,2 -aulruni. Skyr liafa bændur fengið greitt með 68 aurum fyrir kg., og er það allmi'kið hærra verð en áður. Að öllu samanlögðu er því hægt að fullryða, að árangurinn af mjólkursöluskipulaginu hafi verið góður, sérstaklega þegar tekið er tillit til þess, að þetta er aðeins eftir 11 mánaða starf- semi. Sala landbúnaðarafurða á erlendum markaði Sala á landbúnaðarafurðum hefir gengið greiðlega, eftir- spurn hefir verið töluverð og verð yfirleitt hækkandi síðari hluta ársins. Ullarsalan. — Töluvert meira hefir verið flutt út af ull en á fyrra ári, eða hér um bil 200 þús. kg. meira. Samkv. skýrslu gjaldeyrisnefndarinnar hafa 700 þús. kg. af ull verið flutt út fyrir 1 milj. og 110 þús. kr. til 1. des. Öll ull er nú seld, svo meira verður ekki flutt út á ár- inu, og hefir verðið verið um 10% hærra heldur en í fyrra. Töluvert er þó ennþá ógreitt af þeirri ull, sem seld var til Þýzkalands, sökum þess að ekki hafa ennþá verið keyptar þar vörur fyrir andvirði ullarinnar, en öðruvísi fæst hún ekki greidd. Gærur og skinn hafa, samkv, skýrslu gjaldeyrisnefndar 1. des. verið flutt út 332,027 st. fyrir kr. 1,006,500 og er það fyrir rúm 400 þús. kr. meira en í fyrra. Verð á gærum hefir verið um 15% hærra heldur en í fyrra. Sútuð skinn hafa í ár verið flutt út samkv. skýrslu gjaldeyrisnefndar 1. des., fyrir kr. 30 þús., og er það næstum þrisvar sinnum meira en í fyrra á sama tíma. Önnur skinn hafa verið flutt út fyrir rúm 100 þús. kr. og loðskinn, refa- og minka- skinn, fyrir 47 þús. kr. og er það líka þrisvar sinnum meira held- ur en í fyrra. — Gærur eru nú allar seldar, nema þær, sem sút- unarverksmiðjumar hafa tekið til þess að vinna úr. Allmikil eftirspurn hefir verið eftir nauts húðum og hefir verð á þeim verið um 30% hærra en í fyrra. Garnir. Af söltuðum gömum hafa verið flutt út til 1. des., samkv. skýrslu gjaldeyrisnefnd- ar, 39,290 kg., fyrir kr. 36,730, en af hreinsuðum gömum 17,660 kg. fyrir kr. 201,660, og er það 171 þús. kr. meira en í fyrra. Verðið hefir verið 15% 'hærra en í fyrra. — Á hverju ári er, eins og sést af skýrslun- um, nokkuð flutt út af óhreins- uðum görnum, og er verð á ISLENZKAR BÆKUR Enn vil eg leggja í þann kostnað, að auglýsa þær ís- lenzkar bækur sem eg hefi til sölu og nú fyrirliggjandi: Bréfasafn þjóðskáldsins af Guðs náð séra Matthíasar Jochumssonar ................................. $8.00 Er þetta afarstór bók, 800 bls. í vandaðasta bandi. íslenzkir þjóðhættir, eftir séra Jónas frá Hrafnagili .... 8.00 Þessi ágæta bók er yfir 500 bls. í stóru broti, prýdd fjölda af myndum og prýðilega, inubundin. Héraðssaga Borgarfjarðar, I. bindi, í góðu bandi .. 5.50 Verður þetta stórt og voldugt verk þegar það er alt kom út, þar sem það á að ná yfir heila öld. Er þetta ibindi 480 bls. í stóru broti, skreytt með mörgum myndum og kort yfir hinn sögufræga Borgarfjörð. Myndir úr menningarsögu íslands, í góðu bandi ...... 2.75 í bókinni eru 125 ágætar myndir, góður formáli og nánar skýringar. Framhaldslíf og nútimaþekking, eftir sr. Jakob Jónsson 2.50 Þessi bók hefir fengið meiri útbreiðslu hér vestra en nokkur önnur íslenzk bók, síðan hún kom út. Saga Eiríks Magnússonar, eftir próf. Stefán Einarsson 2.25 Ágæt bók um framúrskarandi hetju og ættjarð- arvin. Land og lýður, eftir Sigurð frá Yztafelli, í bandi . 3.50 AJl-nákvæm lýsing af hverri, einustu sveit á Islándi, og búskaparháttum hvarvetna. Margar myndir. ÞjóðsögUr eftir Ólaf Davíðsson, I. bindi, í kápu ... 3.00 Þetta mikla og ágæta þjóðsögusafn á að koma út í þremur stórum bindum og kemur 2. bindið á þessu ári. Fylgir því mynd höfundarins. Sjóferðasögur, eftit Sveinbjörn Egilsson, í kápu . 1.50 Skemtileg æfintýri og ódýr bók. \ “Rauðskinna”, fyrstu þrír árgangarnir, í kápu .... 3.50 Þetta sögusafn hefir náð mikilli hylli almennings á íslandi, og er talið eitt hið bezta í sinni röð. “Rauða hættan”, eftir Þorberg Þórðarson,ií j<ápu . 2.25 Ferðasaga höfundarins til Rússlands árið 1934. “Og björgin klofnuðu”, eftir Jóhannes úr Kötlum, í kápu ....................................... 2.75 Þessi Ibók hefir veirið bæði lofuð og skömmuð, en engum dylst þar skáldskapar og frásagnarsnild höfundarins. Endurminningar, eftir Friðrik Guðmundsson, í kápu 2.50 Þetta er ódýr bók, lærdómsrík og skemtileg til lesturs. í tveimur bindum, hvert bindi $1.25. “Kak”, eftir dagbókum Vilhjálms Stefánssonar, í bandi 2.00 Þessi bók er bæði ágæt saga af Eskimóa dreng, og fyrirtaks náttúrulýsing. “Böðullinn”, skáldsaga eftir Per Lagerquist ...... 1.00 “Sýnir”, stuttar greinar um ýms málef'ni, eftir Sig- urð Eggerz ................................... 2.00 Bókmentafélagsbækur fyrir 1935, (íslenzkir annálar, Safn til sögu íslands og Skírnir) ............ 3.00 “Mamma litla”, ágæt saga, þýdd úr frönsku, í bandi .. 1.75 “Sunnefurnar þrjár”, einnig fyrirtaks sögur, nær 200 bls., í kápu ................................. 1.75 “Þyrnar” hans Þorsteins Erlingssonar, í góðu1 bandi.... 2.00 Ljóðin sem aldrei gleymast, svo lengi sem íslenzk tunga er töluð, og menn kunna enn að meta hreinskilni og drenglund. fslenzk Ijóð — lcelandic Lyrics. Ljóð eftir 30 íslenzk skáld, á frummálinu og í enskri þýðingu. Alls 270 bls., með myndum af öllum höfundunum. Bókin er f ágætu skinnbandi og allur frágangur hinn prýðilegasti ................................. 3.50 Ljóðmæli Davíðs Stefánssonar frá Fagraskógi. Nafn þessa íslenzka Ijóðsnillings eru nægileg meðmæli. Enda varð hann hrókur allrar snildar við þúsund ára þjóðhátíð íslands 1930. Þrjú bindi í góðu bandi, $3.00 hvert. Öll keypt í einu á........ 8.00 “Samt mun eg vaka”, Ijóðabálkur e>ftir Jóhannes úr Kötlum ........................................ 2.00 “Nökkvar og ný skip”, Ijóðmæli eftir Jóhannes Free- mann, í skrautbandi ........................... 1.50 Skáldvek eftir Jakob Thorarensen: 1. Fleygar stundir, skáldsögur, í bandi ..... 1.50 “ “ “ í kápu ............. 1.00 2. Stillur, ljóðmæli, í bandi ................ 1.00 “ “ í kápu ...........................75 3. Kyljur, ljóðmæli, f bandi ....................75 “ í kápu ...........................50 Jakob Thorarensen er einstaklega “human” í öllu er hann segir í bundnu eða óbundnu máli. Verðið á þessum bókum hans er hér niðursett um meira en helming. Gamanvísur, eftir Bjarna skopleikara .................75 Æfisaga Gunnars Þorbergssonar, í kápu ................75 Góður spegill af þrautseigri baráttu íslenzku í'rumbyggjanna hér vestra. Gráskinna, 2. bindi — Gríma, 10. bindi — Stuðlamál 1. og 2. bindi — Æfintýraleikir fyrir ungmenni — Ný skólaljóð — Uggluspegill (unglingssaga) — hver ein af þessum bókum .........................75 Sagan af Svanhvít og Bakkabræður, hver á .............10 Hér eru taldar þær bækur er eg hefi fyrirliggjandi nú sem stendur. En auk þess vil eg minna fólk á Eimreíðina og Kvöldvökur, sem kosta: Eimreiöin, 4 stór hefti á ári, $2.50. Kvöldvökur, nær 200 bls. í stóru broti, $1.75 árgang- urinn. Bæði þessi rit eru góð, hvert f sinni röð, en einkum á Eimreiðin það skilið að fá miklu meiri útbreiðslu hér vestra, því að hún er nú veigamesta tímaritið sem kemur út á ættjörðinni, og gefur Ijósastann spegil af öllum ftram- kvæmduim þar. Og hún segir til synda þar sem henni virð- ist þess þörf. Eg vil bjóða nýjum kaupendum tvo eldri ár- ganga, frá 1921 til 1934, fyrir aðeins $1.00 báða árgangana (menn geta valið um hverja þeir kjósa). Er þessi dollar aðeins fyrir iburðargjald firá íslandi til kaupanda hér. Og svo að endingu:— Eg panta fyrir fólk hverja þá íslenzku bók sem fáanleg er, og engin fyrirfram borgun nauðsynleg. En gleymið aldrei að standa rækilega í skilum er þið fáið kröfu, og sendið ekki bankaseðla í umslagi, heldur póstávísan eða Express Money Order. Eg vil reynast drengur í viðskiftum, en þið verðið einnig að standa rækilega við hvert loforð. Með því einu móti verður þetta starfrækt eins og það átti að vera frá fyrstu tíð. MAGNUS PETERSON 313 Horace> St. Norwood, Man., Canada þeim að nafninu til tiltölulega hærra. En þess er að gæta að meira gengur úr af þeim heldur en úr þeim gömum, sem seldar eru til hreinsunar hér í landinu, auk þess eykur hreinsun garn- anna hér vinnu í landinu, og væri þess vegna rétt að hreinsa þær allar hér heima. Hross. Samkv. skýrslu gjald- eyrisnefndar hafa til 1. des. ver- ið flutt úr 977 hross fyrir 122 þús. kr. Verð á þeim hefir ver- ið 15% hærra en í fyrra. Hross- in hafa verið seld til Englands og Norðurlanda. Til Þýzka- lands hefir ekkert verið selt í ár. Kjötsalan. Samkv. skýrslu gjaldeyrisnefndar hefir, til 1. des., verið flutt út 10,863 tn. af saltkjöti fyrir kr. 845,000. Mest af saltkjötinu hefir verið flutt til Noregs, en þangað höfðum við leyfi til þess að flytja 8500 tunnur á þessu ári, og mun það leyfi hafa verið notað að mestu. Hafa á þessu ári verið fluttar út 3. þús. fleiri tn. en í fyTra. Freðkjöt hefir til 1. des. verið flutt út, 1530 tonn, fyrir 1 milj. 286 þús. kr. og er það um 300 tonnum meira en flutt var út á isama tíma í fyrra, en þá var búið að flytja út 1250 tonn fyr- ir 947 þús. kr. Hér um bil ^ af freðkjötinu, sem út hefir ver- ið flutt í ár, eða um 900 tonn, eru af fyrra árs framleiðslu. — Aðeins rúm 600 tonn af þessa árs framleiðslu er selt, og meira verður ekki selt af frystu kjöti fyrir áramót, því innflutnings- leyfi eru ekki fyrir hendi. Freð- kjötið hefir verið selt til Eng- lands. Verð á kjötinu var í október, miðað við verð á sama tíma í fyrra, 20—25% hærra. Það, sem óselt er af þessa árs framleiðslu af freðkjöti, mun verða selt til Englands og Norð- urlanda eftir nýárið. Ostur. Út hefir verið flutt, samkv. skýrslu Gjaldeyrisnefnd- ar til 1. des., 50.5 tonn af osti fyrir 67 þús. kr. Á undanföm- uip árum hefir enginn oStur veríð fluttur út, svo þetta er ný útfluntingsvara. Eins og; sést af þessu yfirliti hefir verð á landbúnaðarvör- um, sem út hafa verið fluttar yfirleitt hækkað um 10—15% og einstaka meira. En í fyrra lækkuðu landbúnaðarvörur nær því eins mikið, svo verðið er nú aftur fyllilega komið upp í það verð, sem var á þeim vör- *m 19JJ. Framh. Dr. M. B. Halldorson 401 Boyd Blclg. Skrifstofusími: 23 674 Stundar sérstaklega lungnasjúk- dóma. Er að finni á skrifstofu kl. 10—12 í. h. og 2—6 e. h. Heimili: 46 Alloway Ave. Talsími: 33 158 Dr. J. Stefansson 216 MEDICAL ARTS BLDG. Horni Kennedy og Graham Stundar eingöngu augna-eyrna- nef- og kverka-sjúkdóma Er að hltta frá kl. 2.30—5.30 e. h. Talsimi: 26 688 Heimili: 638 McMlllan Ave. 42 691 Jacob F. Bjarnason —TRANSFER— Baggage and Furniture Moving 591 SHERBURN ST. Phone 35 909 Annast allskonar flutninga fram og aítur um bœinn. Dr. K. J. AUSTMANN Wynyard —Sask. MARGARET DALMAN TEACHER OF PIANO 854 BANNING ST. Phone: 26 420 Dr. O. BJORNSSON 764 Victor St. OPFICE & RESIDENCE Phone 27 586 Gunnar Erlendsson Pianokennari Kenslustofa: 594 Alverstone St. Sími 38181 YFIRLÝSING Að gefnu tilefni verð eg að | biðja yður herra ritstj. Hkr., að Ijá þessum línum rúm í yðar heiðraða blaði. Fyrir nokkru síðan birti Hkr. greinarstúfs-úrþvætti með und- irskriftinni “Skjóða Tranasen”. Þessi skuggabaldur, hver svo sem hann eða hún er, kastar isteinum út úr myrkrinu að vor- um mæta og merka kenni- manni, séra Jakob Jónsson, og svo er saklausu fólki kent um j óhappaverkið. Það er í hæsta máta ósamboðið íslenzku drenglyndi að vega að heiðvirð- um manni úr skúmaskoti, og raunar að hverjum sem væri. ‘ Það lýsir ókindarlegu innræti. i Mér sámar að verða að segja það opinberlega að ónnefndur landi hér í Wynyard hefir borið | það á mig að eg hafi skrifað þessa svokölluðu skjóðugrein, en eg lýsi því hér með yfir fyrir1 guði og góðum mönnum að eg á alls engan þátt í þessari “Tranasens-grein”. | Og nú sný eg mér að öðru umtaJsefni sem almenning varð- \ ar. Hann er orðin ærið harð-| drægur og langur þessi yfir- standandi vetur. Hvíta snjó- voðin lagðist hér yfir jörðina 27. okt. ef eg man rétt. Að vísu voru hér ekki mjög hörð frost fram að sólstöðum en úr því og fram til í endaðan febr. mátti heita að aftaka frosthörk- ur héldust óslitnar. Það vottar en (2. apríl) ekki neitt fyrir blessuöu vorinu og hvergi sér á dökkan dfl. Það má nærri geta að það ollir fólki aukinna erfiðleika að fá svona langan og harðan vetur á þessum ógna-krepputímum. Eg held þó sem betur fer að landar yfirleitt séu ekki en í neitt alvarlegri þröng með bjargræði fyrir menn né skepnur eða ekki hefi eg heyrt þess getið. Heilsufar mun hafa verið hér um slóðir yfirleitt fremur gott á þessum vetri og er gott til þess að vita því heilsan mun þó þegar alt er athugað vera dýrmætasta fast- eignin flestra, ríkra sem snauðra, ungra sem aldraðra og konunga sem kotunga. Það væri ótilhlýðilegt í sambandi við 'þessa harðýðgisfullu tíma og erfiðleika að láta þess ekki get- ið að hér í Wynyard og vatna- bygðinni, eru starfandi kvenfé- lög sem láta mikið gott af sér leiða, einkum þar sem skórinn kreppir mest að, sem vænta mátti. Það er ekki að því að spyrja, að þegar konurnar bindast sam- tökum sín á milli, með öll bless- uð brjóstgæðin og líknsemina, að þar nýtur margur sem bág- ast á góðs af. Því það er sem fconum sé í blóð borin meiri miskunsemi og hjálpfýsi en oss karlkyninu, en vitanlega að oss karlmönnunum ólöstuðum. Eg læt nú hér staðar nema að sinni, og óska öllum íslend- ingum, nær og fjær, árs og friðar og gleðilegs sumars, en umfram alt sæluríks sálarlífs. M. Ingimarsson —Wynyard, Sask., 2. apríl, 1936. G. S. THORVALDSON B.A., LL.B. LögfrœSingur 702 Coníederatlon Life Bldg. Talsími 97 024 w. J. LINDAL, K.C. BJÖRN STEFÁNSSON lSLENZKIR LÖGFRÆÐINGAR á öðru gólfi 325 Main Street Talsími: 97 621 Hafa einnlg skrifstofur að Lundar og Gimll og eru þar að hdtta, fyrsta miðvikudaB í hverjum mánuði. M. HJALTASON, M.D. ALMENNAR lækningar Sérgrein: Taugasjúkdómar Lætur úti meðöl < viðlögum ViBtalstímar kl. 2—4 e. h. 7—8 að kveldinu Siml 80 857 665 Victor St. A. S. BARDAL selur likkistur og annast nm útfar- lr. Allur útbúnaður sá besti. — Ennfremur selur hann nii«ir/ma. mlrmisvarða og legsteina. 843 SHERBROOKE ST. Phone: 86 607 WINNIPEG Dr. S. J. Johannesson 218 Sherbum Street Talsiml 80 877 ViOtalstími kl. 3—5 e. h. Rovatzos Floral Shop 206 Notre Dame Ave.- Phone 94 954 Fresh Cut Flowers Dally Plants ln Season We specialize in Wedding & Concert Bouquets & Funeral Designs Icelandic spoken • the watCh shop Thorlakson Baldwin Diamonds and Wedding Rings Agents for Bulova Watches Marriage Licenses Issued 699 Sargent Ave. Dr. A. V. JOHNSON tSLENZKUR TANNLÆKNIR 212 Curry Bldg., Wlnnipeg Gegrnt pósthúslnu Simi: 96 210 Heimilis: 33 328 J. J. Swanson & Co. Ltd. REALTORS Rental, Insurance and Financial Agentt 8ími: 94 221 600 PARIS BLDG.—Winnlpeg RAGNAR H. RAGNAR Píanisti oo kennari Kenslustofa: 683 Beverley St. Phone 26 555 Orricx Phoni res. Phon* 87 293 72 409 Dr. L. A. Sigurdson 109 MEDICAL ARTS BtJILDING Orric* Hotrns: 12-1 4 r.M. - 6 p.m. AHD BT ArrOHfTMXNT Dr. E. JOHNSON 116 Medical Arts Bldg. Talsími 23 739 Viðtalstlmi 2—4 p.m. Heimili: 776 Victor Street Wínnipeg Talsími 22 168.

x

Heimskringla

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimskringla
https://timarit.is/publication/129

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.