Heimskringla - 15.07.1936, Qupperneq 5
WINNIPEG, 15. JÚLÍ, 1936
HEIMSKRINGLA
5. SIÐA
Vote No. 1 for G. S. Thorvaldson
Conservative Candidate in Winnipeg and
Abolish the 2% Wage Tax
REDUCE
THE COST
OF
COVERNMENT
Pledged to Maintain
Mother’s Allowance,
Old Age Pensions,
H&alth Nursing and
All Other Essential
Services
Lessen
the Burden
Pf
Interest
•
Reduce
Motor Licenses
to $5.00
•
Equitable
Distribution of
Gasoline Tax
to All Cities and
Municipalities
No matter where you live in Winnipeg you can vote for all five candidates, Winnipeg is
ONE constituency.
«009ðSOSðOSOSOSCð09GOSOOSððOgOOg>SCO'.iOSeðOððOSððOGð999SððOSeSS9S6eOOOS09SðSð90»!
mesta atriði þeirrar stefnu. Og
það var rætt í öllum blöðum,
sem að jafnarðstefnu og sönn-
um umbótum vinna í þjóðfélags-
málum. Þo umbotatilraun þess-
ari bafi hvergi verið af stokkum
hleypt nema í Alberta og að
nokkru í Nýja-Sjálandi, hefir
hún búið hverjum sönnum um-
bótamanni, um langt skeið í
huga og er ekki nein nýlunda
til þeirra, nema ef vera skyldi í
aðferðinni til þess að fram-
kvæma hana. En menn getur
vitanlega greint á um hana. Það
stendur ekki alls staðar eins á,
og sumt af því, sem gripið verð-
ur til á einum staðnum, er óvíst
að þurfi með á öðrum til þess
að leggja hornsteina hennar. En
það raskar ekki heildarhug-
myndinni, sem í umbótinni
felst; þó tilraunin fari sumstað-
ar í handaskolum, getur hún
hepnast annar staðar.
Vegna þess að fylkin í Canada
hafa ekki útgáfurétt peninga,
heldur landsstjórnin, er auðvit-
að erfiðara að koma þjóðeigna-
rekstri í peningamálum á innan
fylkjanna. En þó er spursmál
hvort að Alberta hefir ekki brú-
að þá ófæru með vetröbréfa-
sölunni (prosperity bonds), sem
hefst 1. ágúst og að grundvöllur
sé með henni lagður að öflun
nægilegs viðskiftamiðils. Blöð
Alberta stjórnarinnar herma að
minsta kosti, að stjómin verði
ekki í neinum vandræðum með
peninga til brýnustu þarfa með
því. Fáist landsstjórnin því ekki
til að gera neinar umbætur í
peningamálum, sem, fáum dylst
að nauðsynlegar eru, virðist
leiðin þrátt fyir það ekki lokuð
fylkjunum til þess. En hjákát-
leg landsstjórn er það, sem að-
eins lítur á hag þeirra fáu, sem
með vöxtum á peningum ræna
þjóðfélagsbúið helming tekna
sinna, en fæst ekkert um vel-
ferð fjöldans, leggur meira að
segja stein í götu Albertastjórn-
arinnar, sem tilraun hefir í
þessu efni að minsta kosti gert
til þess. Og sama sönginn kyrja
blöð þessa fylkis, er Bracken-
stjórninni fylgja, að íslenzka
blaðinu Lögbergi meðtöldu.
SMÆLKI
Það hafa margir verið að
spreyta sig á, að íslenzka orðin
“social credit.” Það hefir ekki
tekist sem bezt. Eg heyrði gaml-
an tannlausan landa lýsa því
yfir nýlega að hann ætlaði að
greiða atkvæði með social credit
En hann bar nafn nýja flokksins
þannig fram, að mönnum
heyrðist hann segja “súpuket”.
Er það ekki eins góð þýðing og
nokkuð annað?
* * *
Mr. Bracken lofar nú bænd-
um, að setja ákvæðisverð á
hveiti $1.25 mælirinn. Þegar
hann var beðinn að koma í veg
fyrir að King tæki ákvæðisverð-
ið af hveiti á s. 1. vetri og verðið
lækkaði, sagði hann, að það
væri ekki í verkahring fylkis-
stjórnanna að ákveða verð
vöru!
ÆFIMINNING
“Hann féll í hinum almenna
bardaga við verk það er hann
hafði starfað að í 20 ár sem trúr
verkamaður.”
Jón Vigfússon, (John W.
Johnson) andaðist hinn 10. apríl
síðastl. (föstudaginn langa) í
Billingham í Washington í
Bandaríkjunum og var jarð-
sunginn 14 sama mán. af séra
V. J. Eylands,, að viðstöddum
fjölda af vinum þeirra hjóna;
banamein hans var hjartaslag.
Jón sál. var sextíu og átta
ára gamall er hann lézt, fæddur
19. sept. 1867 að Steinstóft í
Hoitum í Rangárvallasýslu. —
Foreldrar hans voru Vigfús
Jónsson og Sesselja Guðm.dótt-
ir. Eftirlifandi kona hans er
Kristín Magnúsdóttir frá Garð-
bæ á Eyrarbakka, Árnessýslu,
og lifir hún maka sinn í sælli
minning um 44 ára ástúðlegt
hjónaband, því þótt þeim hjón-
um yrði ekki barna auðið, þá
virðist það ekki hafa skert, hið
ástúðlega samband er var og er
á milli þeirra.
Það er sérlega ljúft að minn-
ast þessa vinar sér í lagi, sökum
þess að hin daglega framkoma
hans var látlaus prúðmenska á
hæsta stigi. Hin makalausa
gestrisni er prýddi heimili þeirra
hjóna, er sér á parti; það er ís-
lenzkur arfur, sem hefir um ald-
ir prýdd þjóð vora. En það var
sér í lagi hans umgengni utaa
húss og innan, í friði og rósemi
er maður var hluttakandi í, er
hann ræddi við menn þá fylgdi
því æfinlega bros, slíkt, sem gaf
til kynna að það var viijur, er
átti tal við mann.
Starfi hans í okkar fámenna
félagi hér í Bellingham, má
sömuleiðis minnast með vel-
þóknun, hann leysti það vel af
hendi eins og alt annað er hann
vann að, enda var hans minst í
þögulli bæn, ásamt sálma söng
í þakkláts skyni, félagið hafði
mist s^inn bezta meðlim.
Frjálslyndi og bjartsýni prýddi
hann sömuleiðis, og var hægt
að ræða við hann í friði og ró
um það málefni,, er menn oft
gera úr háværa orðasennu. —
Þegar meistarinn mikli, gat
þess„ að móðurin gleddist yfir
því að maður hafi fæðst í heim-
inn, þá virðist sem hann hafi átt
við að móðirin gerði sér í hug-
arlund að þessi maður verði af-
bragð mannkynsins, en þótt ekki
sé farið frekar út í þann leynd-
ardóm mannlífsins, sem Jesús
þekti svo vel, þá vitum við sem
höfðum þá ánægju að kynnast
svo vel Jóni Vigfússyni, að við
höfum kvatt vin, er oss finst
að í sannleika hafi unnið sér
fyrir lífsins góðu launum og
margir munu þeir vera af vinum
hins látna, er vildu óska sér að
mega mæta þessari göfugu sál
á ókomnum lífsleiðum þar sem
brosið nyti sín enn betur.
“Sæl er oss minning þín kæri
vin Jón Vigfússon.”
Einn af vinum hins látíia.
• * *
EIMREIÐIN
Síðsta hefti Eimreiðarinnar
(2. hefti, 42. árg.) er nýkomið
vestur og hefir bóksali Magnús
Petersson verið ísvo góður að
senda Hkr. það; kann hún hon-
um þakkir fyrir. Innihald þessa
heftis, er sem hér segir:
Jón Gauti Pétursson: Er ætt-
arkjarna sveitafólksins hætta
búin? (með mynd)-. Kristmann
Guðmundsson: Um nýjustu bók-
mentir Norðurlanda (með 20
myndum). Guðmundur Einars-
son frá Miðdal: Um Vatnajökul
austanverðan (með 7 myndum).
Steindór Steindórsson: Blaða-
menska Matthíasar Jochums-
sonar (með 3 myndum). Sól-
setur (Ijóð) eftir Gísla H. Er-
lendsson. Böðvar frá Hnífsdal:
Bardaginn á Bjarnarnúpi (ást-
arsaga frá söguöld). Risaskipið
nýja. Sigurjón Friðjónsson: Er
lauf taka að gróa. Gísli H. Er-
lendsson: Helga hin fagra. ____
Vorið kemur (sonnetta) eftir
Angantý. Ljóð eftir Sigurð
Sigurðsson frá Arnarhóli (Man-
söngur — Gagnrýnir — Ástin
Til skálds). Hjálmar Söder-
berg: Kýrnar prestsins (smá-
saga). — Alexander Cannon:
Máttarvöldin. Raddir. Ritsjá.
bréf til hkr.
Minneapolis, Minn.,
11. júlí, 1936
Herra ritstj.::
Viltu gera svo vel og geta
um í blaði þínu, að kvenfélagið
“Hekla” í Minneapolis hefi sitt
áilega Picnic ’ í Lake Harriett
Park (nr. 2.) 2. ágúst og að dr.
ófeigur ófeigsson ætli að vera
þar og tala fyrir okkur. Við
vitum að það eru margir landar
hér í grend, sem langa að hlusta
á dr. Ófeigsson, en við getum
ekki náð til þeirra allra nema í
gegnum íslenzku blöðin.
Virðingarfylst,
Mrs. G. T. Athelstan,
forseti Heklu
Members of the Icelandic
Male Voice Choir and the Chor-
al Society will please remember
that a “Kantata” practise will
be held in the First Lutheran
Church on Wednesday night the
29 of this month.
STEFNUSKRÁ
Social Credit Sambandsins
í Manitoba
1. Réttri skipulagning fylk-
isstjórnarinnar með hliðsjón til
sparnaðar, samanfærslu stjórn-
ardeilda og afnJámi þess er þar
kann að vera ofaukið.
* * *
Þessi liður er í samræmi við
óá almennu skoðun að ráðs-
menskan á stjórnarbúinu sé
kostnaðarsamari heldur en vera
ætti.
2. Nýir samningar um skuld-
ir fylkis og sveita án nokkurrar
tilslökunar á réttindum fylkis-
ins.
* ¥ *
Eftir nokkra mánuði verður
fylkisstjórnin að mæta allstórri
upphæð af skuldabréfum sín-
um. Social credit menn halda
því fram að ekki skuli endur-
nýja þessi skuldabréf með hærri
vöxtum en gjaldþol fylkisins
leyfir. Einnig að fylkisstjórn
inni beri að gæta þeirra réttinda
er fylkið hefir til umráða yfir
fjármálum sínum. Með þessu
er alls ekki meint að fylkið neiti
að borga skuldir sínar.
3. Að stjórnin láti tafarlaust
rannsaka auðlegð Manitoba-
fylkis, og kanna til hlýtar hin
raunverulegu auðæfi þess í fríð-
indum og framleiðslu gögnum,
og gera áætlun um framleiðslu-
mlátt fylkisbúa, atvinnuvegu og
iðnaðar, í iþví augnamiði að
auka kaupgetu almennings og
samræma hana framleiðslunni.
* * *
Manitoba er auðugt land bæði
að náttúrugæðum og mannafla,
einnig að tækjum til fram-
leiðslu. Fylgjendur social credit
halda því fram að hægt sé að
nota þessa auðlegð án þess að
fá til þeste leyfi þeirra, sem nú
hafa peninga ráðin. Og að ekki
sé nein skynsamleg ástæða til
fyrir því að náttúru auðlegð og
starfs kraftar sé ónotað meðan
þörfum fylkisbúa er ekki full-
nægt. Einnig að það sé skylda
stjórnarinnar að sjá fylkisbúum
fyrir auknum gjaldeyri í ein-
hverri mynd svo að þessu verði
komið til leiðar.
4. Skrásetning fylkisbúa. —
Þetta verður nauðsynlegt til að
geta ákveðið hverjir eigi lög-
mæta kröfu til hlutdeildar í fé-
lagsframleiðslunni.
5. Að hverjum lögmætum
borgara fylkisins sé trygð hlut-
deild í félags framleiðslunni að
minsta kosti svo að nægi nauð-
synjum hans til fæðis, húsnæðis
og klæðnaðar.
Athugasemd við 3. lið skýrir
þetta að nokkru.
6. Ákvæði um réttlátt kaup-
gjald og verðlagsskrá er tryggi
bæði framleiðendum og kaup-
sýslumönnum sanngjarnan arð
af starfi sínu.
* * *
Frtá sjónarmiði social credit
manna eiga laun þeirra sem
vinna, hvort heldur er að fram-
leiðslu eða öðru er horfir til fé-
lagsheilla að vera ;rétt hærri
heldur en kröfur þeirra, sem
kallað sé að lánað hafi fé til
framkvæmdanna á liðnum ár-
um, og nú krefjast svo hárra
Lesið Heimskringlu
BorgiS Heimskringlu
vaxta, að þjóðinni er um megn
að greiða.
7. Að búa betur í haginn fyr-
ir uppvaxandi kynslóð. Að gefa
uppvaxandi fólki hluta af fé-
lags framleiðslunni; að tryggja
því möguleika til að halda á-
fram námi svo það verði vaxið
hverju því lífsstarfi er það kýs
sér.
* * *
Það er skoðun, þeirra, er
fýlgja social credit stefunni, að
sú kynslóð sem nú er að skila
af sér, hafi tilfinnanlega brugð-
ist skyldu sinni gagnvart þeim,
sem á eftir koma. Þar sem
mikill hluti hins unga fólks er
nú atvinnulaus, og hefir ekki
nein tækifæri til að byggja upp
framtíð sína með nytsömu
starfi.
Eg býst nú við að þeir, sem
lítið hafa kynt sér þetta mál
hafi margar spurningar fram að
bera um það hvað Social Credit
raunverulega þýði. Þessu mætti
í fáum orðum svara á þlá leið,
að Social Credit er skipulögö
vísindaleg aðferð til að útbýta
framleiðslu þjóðfélagsheildar-
innar meðal einstaklinganna er
heildin saman stendur af. 1 ■—
Reynsla liðinna ára sannar það
ótvíræðlega að yfirráð auðæf-
anna hafa á skömmum tíma
færst í hendur þeirra er þjóðirn-
ar hafa selt útgáfurétt pening-
anna. Það er því fyrsta sporið,
sem stíga verður að heimta
þann rétt til baka. Social
credit flokkurinn krefst þess af
fulltrúum sínum að þeir finni
ráð til þess að færa yfirráð
gjaldmiðilsins aftur í hendur
stjórnarinnar og að þau yfirráð
verði notuð til að koma í veg
fyrir það að fólk líði skort með-
an allsnægtir eru til í landinu.
Hjálmar Gísliason
SÖNGUR GAMLA NÓA
Kosningunum, kosningunum,
komið er bráðum að —
allir að því gái
eins þótt lítið sjái,
krossinn merki, krossin merki.
hver á réttum stað.
Þörfin kallar, þörfin kallar,
þjakaðan verka lýð
til að hefjast handa,
hart mót kúgun standa,
svo hann öðlist, svo hann öðlist
sælli og betri tíð.
Bracken stjórnin, Bracken
stjórnin
brögðótt þó að sé,'
bændum vill hún bjóða,
bændalánið góða.
Ýmsir græða, ýmsir græða,
á því hefðar fé.
Vegina bæta, vegina bæta,
vilja þeir bændum hjá.
Fært svo verði á körum
kosninga í förumj
allir hljóta, allir hljóta
ítar þetta sjá.
Fossa málið, fossa málið,
flestra hugi sló,
svo var sótt og varist,
samt ei alveg barist.
Enn sum síðir, enn um síðir,
að því margur hló.
Vernda betur, vernda betur
verður sjálfsagt kent,
allar orku lindir,
eru það gamlar syndir,
að þær hafa, að þær hafa,
í auðvaldsklónum lent.
Manitoba, Manitoba,,
mönnum ekki dylst.
Innan fylkis öllum,
auðs sem lindir köllum,
fær að ráða, fær að ráða,
flestum þetta skilst.
Auði í hrúgum, auði í hrúgum,
ausa Brackens menn,
upp úr láð og legi,
líkt á nótt sem degi,
fátækt gamla, fátækt gamla,
flýja verður senn.
Aukna skatta ,aukna skatta,
enginn borga þarf.
Frelsi og líf í andi,
lítill sýnist vandi,
láta klingja, láta klingja,
lof fyrir Brackens starf.
Engin skortur, engin skortur,
er á neinu hér,
gjafarinn okkar góði,
gefur af ríkdóms sjóði.
Ójafnt skifta, ójafnt skifta,
engin stjórn því ber.
íslendingar, íslendingar,
eru í kjöri nú,
á þingum þjóðar sómi,
þeir eru að allra dómi,
sem að skilja, sanna vilja,
siðmennigartrú.
Einhver landinn, einhver land-
inn,
eflaust kemst á þing,
sjá má það með sanni,
sæmd hver er að manni,
þeim sem fólkið, þeim sem
fólkið,
þeytir í slíkan hring.
Guðm. Elíasson
When the Mercury Soars
phone 92244
for quick home delivery, direct from
the warehouse of
Es+ablished
1832
QA^ótat
Cold and pure froin the thousand foot depth of our own Artesiajn
well, comes the water with which this pleasant light beverage is
brewed, with the skill of a century of experience. Bottled in
clear hottles.
“The Consumer Decídes”
Also—
STOCK At Clubs & Oash & Carry
Stores
ALE
INDIA PALE
ALE
BROWN STOUT
JOHN LABATT LTD.
191 Market Ave. E. (Just off Main)
WINNIPEG
t