Heimskringla - 22.07.1936, Side 2
L SÍÐA.
HEIMSKRINGLA
WINiNIPBG, 22. JÚLÍ, 1936
KIRKJUÞING
HINS SAMEINAÐA
KIRKJUFÉLAGS ISLENDINGA
f NORÐUR AMERIKU
Framh..
Annar fundur var settur á
mánudagsmorgun 29. júní, kl.
10. Fundarbók var lesin og
samþykt- Næst var skýrsla
dagskrámefndar les^n af séra
Philip M. Péturssyni og sam-
þykt með nokkrum smávegis
breytingum.
Forseti las bréf frá nefnd úr
báðum íslenzku 'Goodtemplara
stúkunum í Winnipeg. Var bréf-
ið þess efnis, að kirkjufélagið
tæki bindindismálið á einhvern
hátt upp á dagskrá sína. Séra
Jakob Jónsson gerði tillögu,
sem var studd af Mrs. Júlíus
Bjarnason, um að forseti skipi
þriggja manna nefnd í málið,
sem gefi skýrslu á þessu þingi.
Tillagan var samþykt. í nefnd-
ina setti forseti þessa: sr. Jakob
Jónsson, Mrs. Bjarnason og
Stephan B. Stephansson.
Þá las forseti bréf frá Mr. Inga
Borgfjörð, sem var staddur í
Halifax. Flutti bréfið kveðju til
þingsins og heillaóskir.
Næst voru lesnar skýrslur frá
söfnuðum. Höfðu eyðublöð fyr-
ir skýrslurnar verið send út fyr-
ir nokkrum tíma. Dr- Rögnv,
Pétursson benti á, að skýrslu-
formin væru ekki nógu greini-
leg og gerði tillögu um, að
þriggja manna nefnd væri sett
til þess að yfirfara skýrslumar
og gera tillögur um nauðsynleg-
ar breytingar á þeim. Tillagan
var samþykt og í nefndina voru
settir: Dr. Rögnv. Pétursson,
Friðrik Sveinsson og Finnbogi
Johnson.
Þar næst voru lesnar skýrslur
frá ungmennafélögum og sunnu
dagaskólum. Voru skýrslur
lagðar fram frá ungmennafélagi
og sunnudagaskóla Quill Lake
safnaðar, sunnudagaskóla Sam-
bandssafnaðar í W^anipeg,
sunnudagaskóla Riverton safn-
aðar, isunnudagaskóla Árborg-
ar safnaðar og sunnudagaskóla
að Mary Hill, sem nýstofnaður
er undir umsjón Lundar-safnað-
ar. Sýndu skýrslur þessar mjög
gott starf unnið í þeim sunnu-
dagaskólum og félögum, sem
gáfu skýrslur. Séra Jakob
Jónsson gerði tifllögu um að
skýrslum sunnudagaskóla og
ungmennafélaga sé vísaði til
milliþinganefndar. — Tillagan
studd og samþykt.
Nefndin, sem sett var til að
athuga skýrslur safnaðanna,
lagði fram eftirfarandi nefndar-
álit: — Nefndin hefir það að
athuga við skýrslur safnaða
kirkjufélagsins, að þær flestar
eru miður greinilegar og allar
hafa þær verið sendar ritara of
seint. Skýrslur þessar þurfa að
vera í höndum ritara skemst
mánuði fyrir þing. Þetta eru
safnaðarnefndir mintar á og
beðnar að athuga.
Nefndin leggur til að eftir-
fylgjandi skýrsluform séu not-
uð, og að stjórnarnefnd kirkju-
félagsins útbýti því, prentuðu
eða fjölrituðu, til safnaðanefnda
kirkjufélagsins, eigi síðar en við
byrjun janúar mánaðar.
Winnipeg, 30. júní 1936.
Undirritað:
Rögnvaldur Pétursson
Friðrik Sveinsson
Finnbogi Johnson
Skýrsluformið, sem nefndin
leggur til að sé viðtekið er sem
fylgir-
Bíðið
—með að kaupa yður 1937
RADIO
þangað til þér hafið hina óviðjafnanlegu
VIKING
sem lýst verður í hinni næstu
HAUST OG VETRAR
VERÐSKRÁ
sem nú er í undirbúningi
Árið sem leið buðum vér fram Viking Radio, sem vér
töldum þau fullkomnustu á Radio-markðinum, er vér
nokkru sinni hefðum haft. Og hún skaraði alveg fram
úr í sinni rö'ð. Nú í ár höfum vér þó náð lengra hvað
viðkemur Gæðum, Nothæfni, Verði.
Þessi nýja Viking Radio á framundan stærri sigurvinn-
inga en fyrirrennari hennar.
Bíðið eftir henni
^T. EATON Cl—
WINNIPCQ CANAM
E ATO N ’S
Skýrsla
Til ritara hins Sameinaða
kirkjukjufélags Islendinga
í Norður-Ameríku
1. Nafn safnaðarins og staður. j
2. Prestur Heimilisfang, [
3. Forseti. Heimilisfang
4. Ritari. Heimilisfang, 1
5. Féhirðir. Heimilisfang
6. í söfnuði á ársfundi......
193.... Atv.bærir.... Ungmenni.
7. Teknir í sönfuð á árinu...
Úrsagnir....’...........
8. Hjónavígslur-
9. Skírnir.
10. Fermingar.
11. Jarðarfarir.
1 2. Tekinr Alls &............
ÚtgjÖld $............
í sjóði $.............
13. Nemendur í sunnudaga-
skóla..... Kennarar........
Skólastjóri...-........
14. Kirkjulegt samband.
15. Eignir alls $.......
Skuldir $.......
Skuldlausar eignir $.......
16. Greitt í kirkjufélagssjóð $....
Til annara félaga $....
Þá bað forseti um skýrslu frá
milliþinganefnd í samvinnumál-
inu. Dr. Rögnvaldur Pétursson
sagði að nefnd þessi hefði verið
sett sökum þess, að hreyfing í
þessa átt hefði verið haf'in af
mönnum, sem tilheyrðu lúterska
kirkjufélaginu, en engin tilraun
til samvinnu hefði komið úr
þeirri átt á árinu; kvað hann
nefndina hafa átt að taka á
móti og athuga málaleitanir af
því tagi^ Sjálfur kvaðst hahn
hafa gefið bendingar um þetta
mál í útvarpserindi, er hann
hefði flutt. Annars hefði séra
Jakob Jónsson mest starfað í
þessu máli. Hann kvaðst vera
því meðmæltur, að nefndin héldi
áfram starfi til næsta þings, ef
tækifæri byðust til þess að gera
eitthvað.
Séra Jakob Jónsson tók næst-
ur til máls. Vísaði hann til þess
sem hann hefði rætt og ritað
um þetta mál. Kvað hann sam-
vinnu eiga sér stað nú þegar
meðal einstaldinga og 'félaga
innan beggja kirkjufélaganna;
en sagðist óska eftir skipulagðri
samvinnu með samþyktum
beggja aðila. Skýrði hann frá
því, að hann hefði sem einstakl-
ingur skrifað bréf til hins lút-
erska kirkjuþings í Árborg, en
enn hefði ekkert svar komið,
og vissi hann því ekki hverjar
undirtektir málaleitun sín hefði
fengið, annað en það, að henni
hefði verið vinsamlega tekið af
þinginu.
Dr. M. B. Halldórsson lagði
til, að skýrsla nefndarinnar sé
viðtekin og að nefndin sé end-
urkosin til næsta árs. Tillagan
var studd af Ólafi Péturssyni og
samþykt.
Nefndarsýrsla í útvarpsmálinu
í fjarveru nefndar þeirrar,
sem séð hefir um samninga við
útvarpið gaf dr. Rögnvaldur
Pétursson stutta skýrslu um
málið. Kvað hann ómögulegt
að fá fleiri sunnudaga, en reynt
hefði verið að breyta tímanum
og fá fleiri messur, en það hefði
heldur ekki tekist. Kostnaðinn
kvað hann ekki hafa orðið til
j byrðar kirkjufélaginu, því að
! samskot hefðu komið utan áð.
Aörir, sem tóku til máls um
þetta, voru sr- Jakob Jónsson,
sem kvartaði um að útvarpið
frá Winnipeg kæmi ekki að not-
um í Saskatchewan, Dr. M. B.
Halldórsson og P. K. Bjarnason.
I Allir voru því meðmæltir að
j haldið verði áfram með útvarp-
ið eins og að undanförnu og
reynt, ef mögulegt er, að fá
endurútvarpað frá Yorkton. ól.
Pétursson gerði tillögu um að
haldið sé áfram með að útvarpa
guösþjónustum frá Sambands-
kirkjunni í Winnipeg og að
sömu mönnum sem að undan-
förnu, þeim Þorsteini Borfjörð
og Jósep B. Skaptasyni, sé falið
að semja við útvarpsstöðina fyr-
ir hönd félagsins. Tillagan var
studd og samþykt.
sosccooeeoscosoQGCocosiðooooeaooecccoðOðccoaosccoosucoseccooosGocoGoccccoosGosðoof
Vote No. 1 for G. S. Thorvaldson
Conservative Candidate in Winnipeg and
Abolish the 2% Wage Tax
REDUCE
THE COST
OF
GOVERNMENT
Pledged to Maintain
Mother’s Allowance,
Old Age Pensions,
He-alth Nursing and
All Other Essential
Services
Lessen
the Burden
of
Interest
•
Reduce
Motor Licenses
to $5.00
(Equitable
Distribution of
Gasoline Tax
to All Cities and
Municipalities
No matter where you live in Winnipeg you can vote for all five candidates, Winnipeg is
ONE constituency.
«0000000000000000000000050000000000-. Joscccceccecccoococoooeooscoosccooscossscocös
Útbreiðslu- og prestþjónustumál
Dr. Sveinn Bjömsson lagði til
að forseti skipi þriggja manna
nefnd í þetta mál. Tillagan var
studd og samþykt. Þessir voru
settir í nefndina: sr. Jakob
Jónsson, B. Björnsson og Guðm-
Eyford.
Sumarheimili barna
Sr. 'Eyjólfur J. Melan lagði til,
að þriggja manna nefnd sé skip-
uð í það mál. Till studd og
samþ. í nefndina voru sett: -—
Mrs. E. J. Melan, P. K. Bjarna-
son og Ól. Pétursson.
Fundi frestað til ,kl. hálf þrjú.
Framh.
ÆFIMINNING
GUNNAR HERMANNSSON
lézt á sjúkrahúsinu í Yorkton,
Sask-, 10. maí síðastliðin eftir
nýafstaðinn uppskurð. Virtist
hann um stund vera á batavegi,
en þá kom afturkast, er endaði
með dauða hans.
Gunnar átti helma í Hólar-
bygðinni, suður af Leslie Sask.,
og vann þar að búskap með
stjúpa sínum og bróður. Hann
var fæddur á Barðsnesi í Norð-
firði á Íslandi 1. maí 1895. For-
eldrar hans voru Ármann Her-
mannsson og Arnórina Árna-
dóttir, hjón búandi á Barðsnesi.
Ármann faðir hans var Her-
mannsson frá Brekku í Mjóa-
firði, Vilhjálmssonar, en móðir
Ármanns var Guðný Jónsdóttir
prests að Skorrastað Hávarðs-
sonar. — Foreldrar Arnórínu,
móður Gunnars var Árni Sveins-
son frá Viðfirði og Gunnhildur
ólafsdóttir frá Hellisfirði. —
Gunnar var af góðu fólki kom-
inn, og ættir hans alkunnar um
Austurland og víðar. Foreldrum
Gunnars varð auðið þriggja
annara barna, en af þeim lifir nú
aðeins Árni bróðir hans, mynd-
armaður hinn mesti, til heimilis
hjá móður sinni og stjúpföður.
Þegar Gunnar var aðeins
þriggja ára að aldri, misti hann
föður sinn. Ármann druknaði
ásamt 2 mönnum öðrum í
vondu veðri og ofsabrimi í lend-
ingunni fyrir framan bæinn. —
Bæði vegna illviðrisins og myrk-
urs, sem skollið var á, varð eng-
um bjargað og aðeins einn
mann rak upp. Rifjast þessi
hryllilegi atburður enn í dag
upp fyrir mörgum þeim, sem á
leið um lendinguna í Barðsnesi.
Hafði Ármann verið að flytja
yfir fjörðinn mann einn, er
nauðsynlega þurfti að komast
yfir um til að bjarga skepnum
sínum undan veðrinu. Hann
kom manninum hedlu og höldnu
yfir um, en fórst sjálfur á heim-
leiðinni, svo að segja fáum föðm
um framan við bæjardyr sínar-
Það ;er fagurt á Barðsnesi og
útsýni þaðan er vítt, fjölbreytt
og mikilfenglegt í senn. En
eftir slysið, festi Arnórína ekki
yndi þar út frá og flutti sig inn-
ar að Viðfirði og að lokum, eftir
ein 3 ár, til Vesturheims, árið
1902. — Ári síðar giftist hún í
annað sinn Jóni Magnússyni frá
Tandrastöðum í Noirðfjrði. —
Fyrstu tvö árin dvöldu þau í
Álftavatnsnýlendu í Manitoba,
en árið 1905 fluttu þau vestur
til Saskatchewan og tóku sér
heimilisréttarland þar sem þau
enn búa, suðvestur af Leslie. —
Þau hjónin hafa eignast einn
son, heitinn eftir Ármanni á
Barðsnesi, en hann féll frá á
bezta aldri, 24 ára gamall (f.
1904, d. 1928).
Gunnar ólst upp með móður
sinni og stjúpa og sem barn
gekk hann með þeim í gegnum
fátækt og basl frumbyggjans.
En bæði stjúpi hans, og þeir
bræður sjálfir, þroskuðust,
— höfðu sig áfram með
dugnaði og atorku. Svo fóru
leikar, að heimilið varð fremur
veitandi en þiggjandi. Mun
kunnugum líka bera saman um
það, að heimilisfólkð hafi heldur
kosið að verða fyr en seinna til
að rétta hjálparhönd, þar sem
þess þurfti, með.
Þeir sem þektu Gunnar, bera
honum allir sömu sögu, að hann
hafi verið hægur maður og ró-
legur í allri framkomu og sér-
staklega orðvar. Lagði sjaldan
mikið til mála, fyr en hann
hafði myndað sér sjálfstæða
skoðun, en var þá fastur fjnrir.
Hann þótti hjálpfús, orðheldinn
og ábyggilegur í öllum skiftum,
og naut almennrar vinsælda.
Gunnars Hermannssonar er
The Ideal Insurance
for your home
This is one way of acquiring ample protectioa
for your family and home at a minimum of ex-
penditure. The few cents a day that you spend
on your
OWN HOME
TELEPHONE
are the best investment you can make. Your
telephone’s dependability in times of emergency
is unsurpassed, for it is an everready means of
protection in case of illness, fire, burglary, or any
of the emergencies arising in the average house-
hold.
Your Telephone is Wholly
A MANITOBA PRODUCT
Use it!
Manitoba Telephone System