Heimskringla - 29.07.1936, Side 1
L. ÁRGANGUR
WINNIPEG, MIÐVIKUDAGINN, 29- JÚLÍ, 1936
NÚMER 44.
Bracken-stjórnin á grafarbakkanum; hefir minni hluta allra þingsæta
FYRSTA ÍSLENZK KONA Á
FYLKISÞINGI MANITOBA
~ FJALLKONAN
FRÚ BJÖRG V. ÍSFELD
íslendingadagsnefndin í Winnipeg hefir valið frú Björgu
Violét ísfeld, 'píanókennara, konu Eiríks ísfeld í Winni-
peg, til þess að sýna “Fjallkonuna” á íslendingadeginum
á Gimli, 3. ágúst 1936. Myndin hér að ofan er af frú
Isfeld í Fjallkonu-búningnum.
Ungfrú Salomo Halldórsson
Ungfrú Salome Halldórsson,
er kosningu náði í St- George
kjördæmi, er fyrsta ísLenzka
konan, sem situr á fylkisþingi
Manitoba.
Hún er fædd 1887 að Lundar.
Foreldrar hennar voru hjónin
Halldór Halldórsson og Kristín
Pálsdóttir, er bjuggu þar lengi.
Ungfrú Halldórsson útskrifaðist
frá Manitoba háskóla 1910. Að
því húnu istundaði hún nám í
Bandaríkjunum stuttan tíma, og
1930 var hún um tíma í ParÍ3
við nám.
Hún hefir stundað kenslustarf
og hefir undanfarin ár verið
kennari á Jóns Bjamasonar-
skóla.
Hún sótti undir merkjum
social credit-flokksins. And-
stæðingur hennar var Skúli Sig-
fússon, sem um 18 ár hiefir ver-
ið þingmaður kjördæmisins og
fylgdi Brackenstjórnarflokknum
að málum.
Manitoba
Kosningarnar
Þó fullur sólarhringur sé nú
liðinn frá því að kosningmar í
. þessu fylki fóru fram, er langt
frá því að hægt sé að segja enn
frá endanlegum úrslitum þeirra.
Hlutfallskosningar, sem hér
tíðkast, eru ástæðan fyrir því.
En þó forvitni manna sé ekki
eins skjótt svalað með því sein-
virka kosninga fyrirkomulagi,
má það þó heita óumflýanlegt,
þar sem flokkkarnir ern orðnir
svo margir sem sækja, ef úrslitin
eiga að verða í einhverju sam-
ræmi við vilja meiri hluta kjós-
enda.
Hér verður því aðeins sagt frá
Íþví hvernig sakir standa á þess-
ari stundu. Ef eitthvað ákveðn-
ara fréttist 'áður en blaðið fer í
pressuna, um tölu hvers þing-
mannaflokks, skal það birt á
eftir þessari grein-
Það sem segja má með vissu
um kosningamar, er það, að
Brackenstjórnin nær ekki í
meiri hluta þingsæta. Hún tel-
ur sér 16 viss þessa stundina.
En fleiri en 24, er ómöðulegt að
hún fái. Það líklegasta er að
hún kræki í 22 alls. En með því
er hún fallin og ætti að segja af
sér. Að sitja við völd í von um
stuðning frá einhverjum hinna
flokkanna, væri ógerningur.
Stjórnin hefir tapað fylgi
kjósenda hroðalega. Fyrsta
talning atkvæða ber með sér,
að hún hefir um 83,000 atkvæði
í öllu fylkinu. Andstæðinga-
flokkar hennar hafa til samans
hlotið 151,000 atkvæði. Þó
ekkert væri nema sá minni hluti
allra atkvæða, ætti stjórninni
að skiljast hvað til síns friðar
heyrir.
Utan þessa bæjar er nú víst
um kosningu 10 conservatíva,
5 sociaL credit-sinna og 1 C.C.F.
sinna. Þegar öll kurl koma til
grafar, er sennilegt talið, að
andstæðingar stjórnarinnar á
þingi verði 31- Það ier það Lík-
legasta, sem stendur.
í Winnipegborg var aðeins
einn maður kosinn við fyrstu
talningu- Um 7000 atkvæði
þurfa til þess að þingmaður sé
kosinn. Við fyrstu talningú
hlaut Mr. L. iSt. G. Stubbs full
24,000 atkvæði. Það er svo
lang fram yfir það, sem nokkur
fylkisþingmaður hefir hér áður
hlotið, að það liggur við að vera
óhugsanlegt. Sá sem næst hefir
því komist, var W. Sanford
Evans, fyrv. Leiðtogi conserva-
tíva, í kosningunum 1932, en
hann hlaut þó ekki nema rúm
13,000 atkvæði. Þessi atkvæða
hrúga Stubbs, virðist beinlínis
hafa verið hlaðin upp af hatri
kjósenda til Brackenstjórnar
innar fyrir meðferð hennar á
Stubbs og til að votta henni
skömm almennings á framkomu
hennar við dómarann.
Samkvæmt fyrstu talningu
atkvæða í bænum, er ennfremur
ljóst, að stjórnarandstæðingar
hafa til samans um 60,000 atkv.,
en stjórnarflokkurinn ekki nema
16,000 atkvæði.
Að öðru leyti var atkvæða-
tala flokkanna í bænum þessi:
conservatívar 18,000, — C.C.F.
10,000, kommúnista 5,700,
social credit 3,008. Hin lága tala
C.C.F. flokksins, er eflaust að
kenna það, hve Stubbs hlaut
mikið; ihann hefir þar að líkind-
um klofið stærst skarð.
í bænum er sennilegt, að
stjórnin hljóti tvö eða 'þrjú þing-
sæti, conservatívar 3 eða 4, og
C. C. F. á afgangi Stubbs 2;
kommúnistar 1. i ISocial credit
eru ekki líklegir að koma nein-
um að. Sá flokkur hefir yfir-
leitt hlotið færri atkvæði en
margur mun hafa ibúist við. —
Utanbæjar hefir honum óvíða
farnast vel, nema þar sem hann
hefir sótt einn á móti stjórnar-
sinna.
Mr. Willis, leiðtogi conserva-
tíva, vann leikandi sigur í sínu
kjördæmi (Deloraine).
Hon- R. A. Hoey mentamála-
ráðherra Brackens, tapaði fyrir
C. C. F. sinna í St. Clements.
Hon. W. R. Clubb heldur sæti
sínu í Morris. Hon. W. J. Major
og Hon. J. S. McDiarmid í Win-
nipeg eru líklegir að ná kosn-
ingu. Alt öðru máli er að gegna
með stjórnar formanninn, Hon.
John Bracken og fjármálaráð-
herra Hon. A. E. McPherson,
sem í kjördæmunum The Pas og
Prince Rupertsland sækja síðar.
Kosningu í þessum kjördæmum
var frestað. Að Mr. Bracken
haldi sæti sínu, er nú talið hæp-
ið, og fjármálaráðherrann er
heldur, ekki talinn of-viss um
sitt.
í St. George vann ungfrú Sal-
ome Halldórsson social crédit
sinni kosninguna. Á móti henni
sótti Skúli Sigfússon fyrv. þing-
maður.
Verði 3 conservatívar kosnir í
Winnipeg, er Mr. IG. S. Thor-
valdson lögfr. ekki ólíklegur til
að vinna. Mr. Paul Bardal bæj-
arráðsmaður tapar kosningu.
í Gimli lítur út fyrir að glím-
an sé milli C. C. F. sinnans og
Thór Lífmanns. Og er þó hinn
fyrnefndi líklegri til að sigra.
Frú Ásta Oddsson hefir tapað.
Og Mr. Magnacca hlaut sára fá
atkvæði.
Þar sem sjáanlegt er að
Brackenstjórnin fær ekki meiri
hluta þingsæta, verður hér um
minni hluta stjórn að ræða fyrst
um sinn. Og hver verður hún?
Getur núverandi stjórn fengið
nokkurn andstæðinga-flokkinn
í lið með sér? Það er ótrúlegt.
Aftur á móti munu conserva-
tívar geta fiengið til samvinnu
social credit-þingmennina og ef
til vill C. C. F. sinna einnig. Að
andstæðingar tækju því við
völdum undir leiðsögu Mr. Willis
væri það skynsamlegasta og
sanngjarnasta gagnvart kjós-
endum. Brackenstjórnin hafði
öll tækifærin í sinni hendi að
vinna þessar kosningar; hún
var undir þær ibúin; hún ein
hafði fé handa milli. Ef aðstaða
hennar hefði verið sú sama og
hinna flokkanna, hefði hún ekki
einu sinni haldið þeim þingsæt-
um sem hún gerir. Það væri því
samkvæmt vilja, kjósenda, að
hún segði sem fljótast af sér-
Þegar í ljós kemur, að andstæð-
ingarnir geta ekki unnið saman,
ieru kosningar óumflýanlegar, en
ekki fyr. Að Bracken færi á-
fram með völd yrði afar óvin-
sælt og ræki brátt aftur til
kosninga, sem engan árangur
hefði.
FYRIR KOSNINCAR
Fyrir kosningarnar s. 1.
mánudag í Manitoba, var tala
þingmanna hvers flokks sem
hér segir:
Brackenflokksins ...........38
Conservatívaflokksins ......10
Liberalflokksins ............1
Verkamannaflokksins .....-...4
Óháðir.....................;.2
VIMY MINNISVARÐINN
AFHJÚPAÐUR
iSíðast liðinn sunnudag var
afhjúpaður minnisvarði fallinna
canadiskra hermanna í stríðinu
mikla, í Vimy Ridge á Frakk-
landi. Edward Bretakonungur
afhjúpaði varðan og flutti á-
gæta ræðu bæði á frönsku og
ensku við það tækifæri. Um
5000 manna frá Canada fóru til
Frakklands til þess að vera við •
staddir, er þessi athöfn fór
fram. Voru það bæði hermenn
og feður og mæður og skyld-
menni látinna hermanna. Frá
Manitoba fóru um 600 manns.
Af Canadamönnum dóu um
60,000 í stríðinu. Um grafir
10,600 af þeim vita menn ekki.
ORÐSENDING TIL
VESTUR-ÍSLENDINGA !
Eins og kunnugt er voru
rímur og rímnakveðskapur öld-
um saman ein af höfuðskemt-
unum íslenzkrar alþýðu. Þess-
ari sérkennilegu grein íslenzkra
bókmenta hefir verið minni
gaumur gefinn en vert ær, og
um jímnagerð eftir 1600 hefir
sama sem ekkert verið ritað. Eg
liefi um allmörg undanfarin ár
viðað að mér efni í rit um
rímnakveðskap síðari alda, og
er það nú komið ,vel á veg. —
Verður þar getið allra skálda og
hagyrðinga, sem kunnugt er
um að ort hafi rímur eftir 1600,
sögð á þeim nokkur deili ,og lýst
rímum þeirra. Eigi er enn full-
kannað, hve margir hafa ort
rímur á þessu tímabili, :en þeir
skifta hundruðum. Meginhluti
verka þeirra hefir aldrei verið
gefinn út, en mikill fjöldi rímna-
handrita er varðveittur í opin-
berum söfnum, einkum í hand-
ritasafni Landsbókasafnsins í
Reykjavík. Þó vantar þar all-
marga flokka, sem vitað er um,
að ortir hafa verið, og eru sum-
ir þeirra vafalaust glataðir. Þó
er eigi loku fyrir það skotið, að
enn kunni að vera í eigu ein-
stakra manna rímnahandrit,
sem ekki eru til í opinberum
söfnum, og hugsanlegt er, að
slík handrit séu jafnvel til í ís-
lendingabygðum vestan hafs. —
Það eru því vinsamleg tilmæli
mín til Vestur-íslendinga, sem
kynnu að eiga rímnahandrit í
fórum sínum eða hafa orðið
slíkra handrita varir, að þeir
geri mér aðvart við fyrsta tæki-
færi, ef ské kynni, að á þann
hátt kæmi eitthvað í leitirnar,
sem glatað er hér heima. Mér
þætti t. d. gamanf ef einhver
gæti fært mér þá fregn, að
lengstu rímur, sem ortar hafa
verið á íslandi, Bragða-Mágus-
arrímur, eftir Jón nokkurn, sem
kallaður var “langur”, 70 að
tölu, væru enn til vestra- Þær
hafa eigi fundist hér heima, en
mér er sagt, að handrit af þeim
muni hafa borist vestur um haf.
— Eg skal að lokum láta þess
getið, að ef einhver Vestur-ís-
lendingur kynni að óska upplýs-
inga um rímur eða rímnaskáld
er eg reiðubúinn að láta þær í
té eftir föngum.
Með kærri kveðju.
Finnur Sigmundsson,
bókavörður
Utanáskrift: Landsbókasafnið,
Reykjavík, ísland.
SKIFTING ATKVÆÐA
STUBBS
Við aðra talningu atkvæða
Stubbs, hefir kommúnistinn, Mr.
Litterick, bætt við sig 2107 at-
kvæðum og er hann nú kosinn.
Mr. Webb hlaut 1,669 og er kos-
inn. Mr. Queen 3,045, en skort-
ir en nærri 1,300 til að ná kosn-
ingu. Mr. Farmer hlaut 2,564,
en er ennþá vant um 2,500 at-
kvæði til að ná kosningu. Af-
gangsatkvæði iStubbs hafa tþví
flest farið til C. C. F. manna.
ÍSLANDS-FRÉTTIR
Flóð í Glerá
Akureyri 26. júní
Geysihiti hefir verið hér í dag,
25 gr. í skugga og 39 móti sól.
Allar ár hafa vaxið stórkost-
lega. Eyjafjarðará flæðir yfir
alla bakk.
Rafstöð bæjarins er stöðvuð
og einnig 'klæðaverksmiðjan
Gefjun vegna aurhlaups í Gler-
á.—Mbl.
* * * *
Bretar kvarta undan landhelgis-
vörnum fslendinga og
Norðmanna
Rvík. 20- júní
iSamkvæmt skeyti frá London
til norskra blaða hafa nokkrir
þingmenn á Bretlandi, þar á
meðal Sinclair, foringi frjáls-
lynda flokksins, ákveðið að fara
þess á leit við brezku stjórnina,
að hún geri ráðstafanir til þess,
að gæta hagsmuna brezkra
fiskimanna í norðurhöfum og á
Norðursjónuim betur en hingað
til hefir verið gert.
í greinargerð, sem þessir
þingmenn hafa sent brezkum
blöðum fyrir ákvörðun sinni,
segja þeir, að Norðmenn reyni
að hrekja brezka fiskimenn af
miðum, þar sem þeir hafi stund-
að veiðar árum saman. íslend-
ingar reyni duglega að feta í
fótspor Norðmanna í þessu efni
NÆSTI
FORSÆTISRÁÐHERRA ?
Errick Willis
Errick Willis, hinn nýi l.eið-
togi conservatíva flokksins í
Manitoba, stendur eins nærri því
að verða næsti forsætisráðherra
í fylkinu og nokkur annar um
það er atkvæðatalningu lýkur.
og geri nú tilraunir til þess að
loka Faxaflóa fyrir Bretum.
Þá segir í greinargerðinni, að
innflutningur norsks, íslenzks
og dansks fiskjar til Englands
sé að verða harðvitugri keppi-
nautur með hverju ári, enda
verði Bretar að leggja hverjum
togaranum eftir annan.—Alþbl.
* * *
Fornminjar fundnar
á Staðarbakka
Stykkishólmi 2. júlí
Á Staðarbakka í Helgafells-
sveit, sem á söguöld hét Bakki
hinn meiri, hafa nýlega fundist
fornminjar.
Þar í túninu er verið að gera
nýjan bæ, og stendur hann þar
siem álitið e|r að bærinn hafi
staðið frá landnámstíð og fram
yfir síðastliðin aldamót. Um
einn og hálfan metra í jörðu
niðri fanst holaður móbergs-
steinn, i— að líkindum hlaut-
bolli. Steinninn er því nær
kringlóttur, um 40 cm. í þver-
mál. Dæld er í steininn, 32 cm-
í þvermál og 11 og hálfur cm.
á dýpt og er hún eldrauð.
Nálægt steini þessum fanst
steinþró full af ösku. Þróin
líkist ekki venjulegum hlóðum,
en þó ætla menn að þar hafi
verið matur seiddur eða eldur
falinn. Þá fanst þar knöttur
um 11 cm. í þvermál, gerður úr
hvalbeini og ætla meiin að þetta
hafi verið leikknöttur.
Alt var þetta um einn og
hálfan metra undir grassverði
og lágu á því gamlar gólfskán-
ir.
* * *
Marino Hafstein
fyrv. sýslumaður
andaðist 6 júlí að Svarfhóli í
Stafholtstungum, en þar hafði
hann dvalist mörg síðustu ár
æfinnar. M. H. var hæfileika-
maður, eins og hann átti kyn
til. Hann var sýslumaður í
Strandasýslu nokkur ár, en mun
hafa látið af embætti 1909. —
Gerðist hann þá starfsmaður í
stjórnarráðinu um hríð, uns
hann varð að láta af öllum
störfum, sakir heilsubilunar.
Hann var kvæntur Þórunni
Eyjólfsdóttur prófasts Jónsson-
ar í Árnesi, og áttu þau mörg
börn. Meðal þeirra var Pétur
lögfræðingur, mikill gáfumað-
ur, er fórst í hafi fyrir nokkur-
um árum með botnsvörpuskip-
inu Apríl, á leið hingað til lands.
—Vísir.