Heimskringla - 16.09.1936, Qupperneq 1
L. ÁRGANGUR
NÚMER 51.
Islendingar taka höndum saman um að
búa undir komu landstjórans til Gimli
Eins og frá var skýrt í síðasta
blaði heimsækir Barón Tweeds-
muir, landstjóri Canada Gimli
næstk. mánudag. Eru íslend-
ingar nú í óða önn, að búa sem
allra bezt og yeglegast undir
komu hans þangað. Síðast lið-
inn mánudag héldu Islendingar
fund í Jóns Bjarnasonar skóla
og voru þar kosnir fyrst og
fremst fjórir menn, að ósk Ný-
íslendinga, til þess að starfa
sem miðstjómarnefnd með þeim
sem á Gimli og í Bifröst voru til
þessa kosnir. í þessa nefnd voru
þessir kosnir í Winnipeg: Dr.
Rögnv. Pétursson, séra Björn
B. Jónsson, D.D., Hjálmar Berg-
man, K.C., og Jón J. Bíldfell. í
bréfi til Þjóðræknisfélagsins er
sagt frá því að í þessa mið-
stjórnarnefnd hafi verið kosnir
úr Bifröstsveit Sveinn Thorvald-
son, M.B.E., frá Riverton jog
Thor B. Lífman oddviti frá Ár-
borg. En frá Gimli: Kristján
Pálsson bæjarstjóri, Hannes
Kristjánsson kaupm., Guðm.
Fjeldsted, fyrv. þm., Þórður
Þórðarson, kaupm.; frá Selkirk
séra Carl Olson og R. Benson.
Á herðum þessarar nefndar
hvílir nú að segja fyrir um fyr-
irkomulag móttökunnar.
En svo var á fundinum í Jóns
Bjarnasonar Jjskóla ennfremur
kosin stór nefnd til þess að vinna
frekar að undirbúningi hátíðar-
innar. Hafði 24 manna nefnd
verið kosin til þess á Gimli og
12 manna nefnd frá Bifröst. Það
sem Winnipeg nefndin sneri sér
fyrst að, var að kjósa þrjár
auka-nefndir úr þessari áminstu
nefnd. Var hin fyrsta til að út-
vega söngflokkana íslenzku og
voru til þess nefndir: Walter Jó-
hannsson, Dr. Baldur Olson og
Dr. Ág. Blöndal; önnur nefndin
var til að semja um flutning á
fólki til Gimli þennan dag við
flutningafélög og eru í þeirri
nefnd: Ásm. P. Jóhannsson,
Þorst. Borgfjörð og Dr. Baldur
Olson. Þriðja nefndin var f jár-
málanefnd; hana skipa Hannes
Pétursson, Ásm. Jóhannsson og
Arinbjöm Bardal.
Fjögra manna miðstjómar-
nefndin fór til Gimli í gærkvöldi
til þess að ræða við nefndina
þar um fyrirkomulag móttök-
unnar.
sætið. Verður á eftir því sung-
inn íslenzbur söngur.
Þá verða gestir kyntir land-
stjóra.
Forseti samsætisins verður
Kristján Pálsson borgarstjóri á
Gimli.
Þessari skemtun í Gimli Park
er æltast til að verði lokið kl. 1.
e. h. En áður en því lýkur
verður sungið Eldgamla ísafold
og God Save the King.
Með því er samkomunni slitið,
en landstjóra og fylgdarliði hans
verður þá fylgt til dagverðar hjá
Kristjáni Pálssyni borgarstjóra.
Gimli-skemtigarðurinn verð-
ur skreyttur fánum og veifum.
Þetta er nú nægileg lýsing á
því sem fram fer.
Miklú þykir móttökunefndinni
það skifta, að menn f jölmenni í
Gimli Park við þetta tækifæri.
íslendingum í Winnipeg, sem
kost eiga á að fara og ekki hafa
bfla, má benda á, að sérstök lest
er fengin hjá C.P.R. er fer frá
stöðinni kl. 9.30 f. h. og er far-
gjald báðar leiðir $1.20 fyrir
fullorðna, 60c fyrir börn innan
12 ára, frá Selkirk og norður
70c, Winnipeg Beach 50c, Húsa-
vík 25c. Hálft fargjald fyrir
böm innan 12 ára. Til baka fer
lestin frá Gimli kl. 4. e. h.
Ávarpið sem landstjóra verður
flutt semja þeir Dr. R. Péturs-
son, Dr. B. B. Jónsson og
Hjálmar Bergman, K.C.
Hefir þá þess verið getið er
oss er kunnugt um í sambandi
við móttöku landsstjórans. Þá
sem þar fýsir að vera viðstadda,
verða að passa sig að vera
komnir í Gimli Park í tæka tíð.
JÓN ÞORSTEINSSON DÁINN
Jón Þorsteinsson, hótelhaldari
á Gimli, dó s. 1. fimtudag á Gen-
eral Hospital í Winnipeg. Er
ætlað, að hann hafi dáið af af-
leiðinum slyss, er hann varð
fyrir fjórum dögum áður, er
hann yhhasaði og lærbrotnaði.
Jón var 66 ára gamall, hafði ver-
ið eigandi og stjórnandi hóteis
á Gimli síðan 1914. Hann kom
vestur um haf 1888 og bjó lengi
í Winnipeg, rak þár iðn ,þá að
gera við reiðhjól. Á Gimli hefir
hann þó búið síðari árin og
verið þar í bæjarráði og gegnt
ýmsum áríðandi störfium.
Móttaka landstjórans á Gimli
Nefndin sem hér að ofan get-
ur um að kosin hafi verið til
samvinnu við miðstjórnarnefnd
Ný-lslendinga, kom norðan frá
Gimli í morgun. Hafði hún
fund í gærkvöldi með nefnd Ný-
íslendinga og var þar gert ráð
fyrir að tilhögun á móttöku
landstjórans yrði sem hér segir:
Samkoman byrjar klukkan
11.45 f. h. og eiga þá allir að
veira komnir í Gimli Park.
Við hliðið í Gimli Park verður
tekið á móti landstjóra. Þaðan
og til ræðupallsins verður röð
af skólabömum, er syngur O,
Canada undir stjórn kennara.
Eldri íslendingum, sem hing-
að hafa komið 1877 og fyrir
þann tíma er ætlað | sérstakt
sæti hjá ræðupalli.
Eftir að Imenn eru komnir í
sæti, verður lesið ávarp til land-
stjóra á íslenzku. Ávarpið les
séra B. B. Jónsson, D.D.
Þá verður sama ávarpið flutt
landstjóra á ensku; les Sveinn
Thorvaldson, M.B.E., það.
Að því búnu syngur blandað-
ur kór: Ó guð vors lands.
Þá ávarpar landsstjóri sam-
SJÓNARVOTTUR LÝSIR
HÖRMUNGUM BORGAR-
STYRJALDARINNAR
Á SPÁNI
I
Hér fer á eftir frásögn brezks
blaðamanns, sem komist hefir
frá Fi’akklandi inn á Spán heim-
sótt San Sebastian og Burgos og
vígstöðvarnar í Guadarrama-
fjöllum. Frásögninni var út-
varpað frá Hendaye, smábæ
innan frönsku landamæranna,
‘og endurvarpað um Bretland.
Engum manni sást stökkva
bros í San Sebastian
“Eg er kominn hingað fyrir
5—6 stundum. Það var tals-
verðum erfiðleikum bundið, að
fá að komast inn á Spán4 en
þegar eg var loks búinn að fá
öll nauðsynleg skírteini, þá gekk
alt eins og í sögu. Mér var
fengin bifreið, og vopnaður her-
maður settur í sætið við hliðina
á mér.
Við ókum til San Sebastian.
Það var auðséð á öllu, að þar
hafði staðið grimmur bardagi.
Alls staðar voru Imerki efitir
skotkúlur og sprenkjur. En mest
WINNIPEG, MIÐVIKUDAGINN, 16. SJIPT. 1936
LANDSTJÓRI CANADA
BARON TWEEDSMUIR
Landstjórinn heimsækir Gimli mánudaginn 21. sept.
Hefir enginn landstjóri Canada þangað komið síðan
Dufferin lávarður, 1877, heimsótti Íslendinga.
brá mér þó við að líta framan í
fólkið. Enginn brosti. Eg hefi
aldrei séð eins alvarlegt fólk í
nokkurri borg. í hverju andliti
lýsti isér beiskja og harðneskja
Hér duldist engum, að það er
barist ' á Spáni upp á líf og
dauða.og fólkið trúir á sinn mál-
stað með ofsatrú þeirra, sem eru
reiðubúnir að líða hvaða píslir
sem vera skal, til þess að mál-
staður þeirra megi sigra. Fólkið
gekk þegjandi að störfum sín-
um — slík sem þau eru, því at-
ihafnalíf borgarinnar má heita
að liggi í dái. Spilavítið er nú
ví§j, og þvottahúsin eru sjúkra-
hús.”
“Frá San Sebastian fór eg svo
til Burgos, og það var sem eg
kæmi í annan heim; en þess
ber að gæta, að Burgos er langt
firá vígstöðvunum; þangað heyr-
ast .ekki skotdrunurnar, auk
heldur að þar hafi verið barist.
í kaffihúsunum var fólk með
gleðibragði, eins og í öðrum
borgum Evrópu. Verzlunarhús-
in voru opin, og fólk gekk þar
út og inn. Það var erfitt ifyrir
mig að ímýnda mér, að eg væri
í landi, þar sem barist er upp á
líf og dauða og bróðir ber vopn
á bróður.
Líkin liggja og rotna ójörðuð
á vígstöðvunum á Sierra
Guiadarrama
“Frá Burgos var mér fylgt til'
vígstöðva uppreisnarmanna í
Guadan-amafjöllum, ,en þangað
hafa uppreisnarmenn komist
lengst í áttin til Madrid. Við
staðnæmdumst við Alta de Leon,
og fram undan okkur blasti við
sléttan, og höfuðborgin út við
sjóndeildarhring. Mér varð það
Ijóst, að luþperisnarmenn eru al-
gerlega vissir um, að þeir muni
sigra. Fylgdarmaður minn benti
mér á Madrid .“Bráðum verðum
við komnir þangað,” sagði hann,
og ,það var sigurhreimur í rödd-
inni. En svo bætti hann við, —
og það var alvörublær í rödd-
inni: “Þar eru móðir mín og
bróðir. Guð gefi'að þau séu ó-
hult.”
“Þar sem vegurinn lá niður úr
skarðinu og ofan á sléttuna, var
barist með ákafa. 1 eyrum okkar
hljómaði hið stöðuga “rat-tat-
tat-tat” frá vélbyssunum, og
skotin þutu yfir höfðum okkar.
Eg verð að játa, að mér fanst
það ónotalegt, og mér varð að
beygja mig niður, ,þegár eg
heyrði hvininn í kúlunum. Mér
virtist skotið af handahófi á
báða bóga. Eg varð ekki var
við, að uppreisnarmenn á þess-
um slóðum hefðu nokkur kort,
og ekki heldur sjónauka. Eg
held að aðeins lítill hluti kúl-
anna Ihafi hæft óvinina.”
“Ofar í fjallinu var vélbyssu-
stöð uppreisnarmanna. Þar
var ljótt umhorfs. Hér höfðu
kúliurnar ekki mist marks, og
.sprengjur úr flugvélum stjómar-
' innar. Það hafði ekki verið unt
að jarða búkana, og» þeir lágu
þar sem þeir höfðu fallið, svart-
ir af reyk og brendir, og það
lagði af þeim iherfilegan ódaun.
Stefán J.
Listin þér lék í hönJum,
Ljóðin á þinni tungu
Orðanna svanir sungu
Saman á vængjum þöndum.
\
Valdir þú veg, að gleðja,
Veita, en ekki þyggja,
Hugga, en ekki hryggja,
Heilsa, en ekki kveðja.
Scheving
Eilífs var eðlis trygð þín,
Aldur hún þoldi’ og kulda.
Öllum, sem enn þér skulda,
lOflaunað hafði dygð þín.
Hlóst þú ei hátt af vana,
Hafðir ei geð að kvarta.
Það, að iþú hafðir hjarta,
Hlaut þér að verða að bana.
Sálin þín nú að sumbli
Situr, en úti er þraut þín.
Blikar öll vetrarbraut þín
. Brosum frá vöggu að kumli.
Guttormur J. Guttormsson
Alt í einu var hrópað: “flugvéllj
flugvél!” og allir leituðu skjóls,
innan um klettana og lundir
hríslum. Tvær flugvélar svifu
í lofti yfir höfðum okkar, þær
voru að búa sig undir að kasta
sprengjum yfir San Rafael, eina
mflu niður eftir veginum. —
Sprengjurnar féllu, en -,aðein3
fáar þeirra sprungu. En úr vél-
byssunum stóð látlaus skot-
hríðin. Einn flugmaðurinn eygði
bifreiðina okkar. Vélbyssan var
þegar sett í gang, en kúlumar
hæfðu hana ekki. Þær sprengdu
úr klettunum og björgin féllu
alt í kring um okkur. En tak-
markið var San Rafael, og þeg-
ar eg ók í burtu, var önnur flug-
vélin að kasta sprengjum yfir'
borgina, en hin Ihélt uppi skot-
hríðinni úr vélbyssunum.”
“Nú hefi eg séð styrjöldina,
frá sjónarmiði uppreistarmanna.
Á morgun fer eg í vígstöðvar
stjómarinnar. En engum, sem
séð hefir það, sem eg hefi séð,
getur dulist, að hér er ekki um
neinar skærur eða venjulegar
óeirðir að ræða. f»áð er stríð
með öllum þess ógmum, og ægi-
legast vegna þess, að bróðir
berst við bróður og vinur við
vin.”—Alþbl.
ÍSLANDS-FRÉTTIR
150 ána afmæli Reykjavíkur
Rvík. 18. ág.
Fánar voru dregnir að hún
um allan bæinn í gær í tilefni
af 150 ára afmæli Reykjavíkur-
kaupstaðar.
Kl. 11. f. h. var messa í dóm-
kirkjunni. iSteig séra Friðrik
Hallgrímsson í stólinn. Kl. 2. e.
h. ,'lék lúðrasveitin Svanur á
Austurvelli, að viðstöddum mikl-
um mannf jölda.
Að því loknu hélt allur mann-
söfnuðurinn upp á Amarhól, þar
sem Karlakór Reykjavíkur söng
kl. 3. |K1. 5 söng Karlakór K.
F. U. M. á sama stað og kl. 6
lék Lúðrasveit Reykjavíkur á
Austurvelli. Mikill mannfjöldi
var viðstaddur þessar útiskemt-
anir.
Útvarpið mintist afmælisins
með ræðuhöldum. Talaði fyrst-
ur Pétur borgarstjóri Halldórs-
son, þá dr. theol. Jón biskup
Helgason og Árni prófessor
Pálsson, svo sem fyr er um
getið.
Óvanalega mannmargt var á
götunum allan daginn, þótt veð-
ur væri eigi sem ákjósanlegast,
þurt, en allhvast og sólarlítið.
Sjálfstæðismenn mintust af-
mælisins með fjölmennu sam-
sæti að Hótel Borg.
Samætið var afar fjölment
og komust miklu færri að en
vildu. Árni Jónsson frá Múla
stýrði samsætinu. Hófst það
kl. 9. e. h. Fyrstur ræðumanna
var Pétur Halldórsson borgar-
stjóri. Ræddi hann erfiðleikana
hér á landi, er Reykjavík fékk
kaupstaðarréttindi og gerði
samanburð á þeim og ejrfiðleik-
unum nú og dró af ýmsar fróð-
legar ályktanir. Næstur talaði
Ólafur Thors, form. Sjálfstæðis-
flokksins, fyrir minni Reykja-
víkur. Þá talaði Magnús Kjar-
an stórkauppmaður um verzlun-
arfrelsið, en að því búnu sagði
Indriði Einarsson rithöfundur
frá hátíðahöldunum 1886. Bjarni
Benediktsson prófessor talaði
fyirir minni Sjálfstæðisflokks-
ins. Ámi Pálsson prófessor var
næstur ræðumanna og gerði að
umtalsefni sqinustu daga ein-
okunarinnar. — Ólafur Thors
fluttj ræðu fyrir minni sjó-
mannastéttarinnar. Loks talaði
dr. Guðm Finnbogason fyrir
minni kvenna. Karlakór K. F.
U. M. skemti með söng. Auk
þess var sungið milli ræðanna.
Að lokum var dansað.—Vísir.
—----st
hitt og ÞETTA
Einkennilegt þorp
í Mexiko er þorp, sem heitir
Ancoma, og á það vart sinn líka.
Það stendur á 120 metra háum
kletti sem er eins og sveppur í
laginu.
Yfirborð klettsins er 28 hekt-
arar, flatt og þar eru gjár, alt að
100 irVetra djúpar.
Ancoma er aldgamalt þorp og
á miðöldum talið afbragðs vígi,
því að ekki er hægt að komast
þangað upp nema eftir einstig-
um og stigum. íbúamir hafa
altaf lifað á jarðyrkju en akrar
þeirraeru niðri á jafnsléttu. Þar
bjuggu þeir og áður, en lands-
hornalýður gerði þeim svo
margar skráveifiur að þeir fluttu
bygð sína upp á klettinn. Húsin
voru bygð úr steini og þau
standa enn, og eru eins og kast-
alar.
* * *
Aldrei friður
Þýski rithöfundurinn Ernest
Tolier, sem varð landflótta,
dvelst nú í London. Þar hefir
ihann samið nýtt leákrit, sem
heitir “Aldrei friður”, og hefir
það verið sýnt í Gate’s Theatre
og vakið talsverða athygli.
Leikurinn gerist bæði á himni
og jörðu. Á himni sér maður
meðal annars Napoleon og Só-
krates og eru þeir að spjalla
saman um ævarandi frið. Jarð-
búar tala líka um sama efni, en
þeir eru ekkert sérlega gin-
keyptir fyrir friði. Og þeir, sem
berjast fyrir alheimsfriði, eru
álitnir kjánar.
Auk þessa er komlð á loft-
skeytasamband milli himins og
jarðar. Lítill engill, sem er
mesti galgopi, sér um sendjstöð-
ina og þá er ekki von á góðu.
Yfirleitt dregur Toller dár að
friðarhreyfingunni, en undir
niðri er þó alvarlegur tónn.
* * *
Mælt er, að járnbrautakon-
ungurinn frægi, Jay Gould —
(1836 — 1892) hafi einu sinni
keypt dagblað af blaðasöludreng
á götum New York-borgar. —
Blaðið kostaði 10 cent, en Gould
fékk honum 15 cent og sagði um
leið:
Eigðu þessi 5 cent og keyptu
þér fyrir þau sápu og þvoðu þér.
Drengurinn þyktist við, skil-
aði Gould centunum og sagði:
Eigið þér oentin yðar sjálfur
og kaupið þér yður heldur fyrir
þau bók um mannasiði.
Er sagt, að drengur þessi
hafi fyrstur orðið til þess að
gera Gould orðlausan.
* * *
Norskur sjómaður, sem einu
sinni hélt hér til á Hernum kom
einhverju sinni heim að kvöldi,
þéttings fullur, en þó minna en
vanalega”. Hann gekk til hvílu
uppi á lofti, sofnaði og vaknaði
síðan úti á götu. í svefninum
hafði hann steypt sér út um
gluggann, og má segja að hann
hafi sloppið furðu vel, þó nokk-
uð væri hann meiddur á andliti.
Einu sinni áður segist hann
hafa gengið í svefni upp í reiða
á skipi, en þegar hann var kom-
inn efst í reiðann var kallað í
hann og við það voknaði hann
og datt samstundis niður á þil-
far. **
* * *
Roger Baeon: Fjallið er gert
úr sandkornum og árið úr
augnablikum; og það virðist
vera smámunir, en getur reynst
mjög veigamikið.
\>