Heimskringla - 16.09.1936, Blaðsíða 6

Heimskringla - 16.09.1936, Blaðsíða 6
6. SÍÐA i Vesturvíking Þýtt úr ensku Skiþherranum Blood iþótti súrt í (broti. Hann hafði heitið því með sjalfum sér, að hann skyldi láta Rivarol kenna á öllum þeim ónotum og stórbokkaskap, sem hann hafði haft í frammi, áður þeir væru skildir að skiftum. Nú hafði sá gikkur bætt gráu ofan á svart og sýnt sig í fantalegum svikum. Hann lýsti sinni vild: “Við megum til að elU þá. Elta þá og launa iþeim svikin.” í fyrstunni hlupu allir upp og kölluðu hið sama. En er lítið leið frá og af því átti að verða, fundu þeir að hvergi nærri allir kom- ust fyrir á þeim tveimur skipum víkinga, sem haffær voru, og að þeim dveldist of lengi að því, að safna nesti handa miklum fjölda, til hver vissi hvað langrar sjóferðar. Wolverstone og Yberville og þeirra skipverjar skárust úr og vildu hvergi fara. í»eim þótti sem mikið her- fang myndi vera að fá í Cartagena, þó mikið væri í burtu flutt, og ætluðu sér að safna því, meðan þeir biðu þess að skip þeirra væru full- búin, þeir Blood og Hagthorpe mættu gera hvað þeir vildu fyrir þeim. Þá sá Blood að hann hafði verið of fljótur á sér, reyndi til að miðla málum, en við það gerðust báðir flokkar svo æstir, að nærri iá að þeir berðust. Meðan á því stóð, lækkuðu segl hinna frönsku skipa er þau færðust fjær. Þá óx vandinn fyrir Blood. Ef hann sigldi burt, þá áttu borgarbúar ekki á góðu von, með þeim ofsa sem hlaupinn var í þá, er eftir voru skild- ir. Og líkast til, að hásetar hans sjálfs og Hagthorpes myndu tryllast og slást á rán og ódáðir með hinum, ef hann færi ekki burt með þá. Honum þótti hvorugur kosturinn góður og velkti fyrir sér, hvað upp skyldi taka, þar til menn hans tóku af skarið og báru hann til skips. Þeir voru óðir að hefna svikanna, sem þeir höfðu verið beittir, elta þann sem hafði táldregið þá og reyna að koma höndum á þann ódæma auð, sem hann hafði meðferðis. Þeir voru ekki lengi að fylla vatnskeröldin og flytja vist á skip og að því loknu var siglt af stað, tveim skipum, á trylta hefnileið. Þegar Pitt var hættur svaðilförum og seztur fyrir, ritaði hann bók um það sem drifið hafði á daga hans, eftir dagbókum sem hann hafði trúlega haldið, og eftir hans frásögnum er mik- ið af þessari sögu ritað. Hann segir svo frá, að þegar út kom af höfninni og búið að ákveða hvert sigla skyldi, þá gekk hann í lyftingu og fann þar foringjann einan, sitjandi með höfuð- ið á hönd'unum, næsta illa haldinn og segir: “Hvað er nú Peter? Drottinn sæll og góður, hvað stríðir nú á þig, maður? Ekki hefirðu raun af því, sem fram á að koma við Rivarol?” “Nei” svaraði Blood. Og nú sagði hann eins og honum bjó í brjósti. Það má vel vera, að honum hafi þótt hann mega til, eða eiga á hættu að vandræðið gerði hann brjálaðan. Pitt var hans bezti vinur og þótti vænt um hann og alt er vini vel segjandi. “En ef hún vissi! Ef hún fengi þetta að vita! Ó drottinn! Eg hélt eg væri laus við víking fyrir fult og alt. Og þessi skálkur hefir teygt mig til að vera viðrið- inn þann versta hemað, sem eg hefi nokkum- tíma orðið sekur um. Hugsaðu til Cartagena og hvert víti þeir djöflar eru nú að gæta úr þeirri borg! Og það verð eg að hafa á minni samvizku!” “Nei, nei, Peter — ekki er það á þinni sam- vizku, heldur Rivarols, hans er sökin. Sá saur- ugi þjófur hefir öllu þessu yaldið. Hverju gaztu ráðið um það?” “Eg hefði verið þar kyr, ef eg hefði getað aðgert.” “Það hefði ekki tjáð neitt, það veiztu vel. Svo til hvers er að sakast um það.” « “En það er meir í efni”, stundi Blood. “Hvað tekur nú við? Eg var hrakinn af því, að þjóna Englandi með trú og hollustu. Ærleg þjónusta við Frakkland er svona komin, og er lokið að fullu og öllu. Hvað er eftir? Víking? Eg hefi sagt skliið við rán og rupl til fulls. Svei því ef eg held ekki, að mér sé sá kostur eftir skilinn, að fara og bjóða sverð mitt kóng- inum á Spáni.” En fleiri kostir voru honum boðnir — og sá sem hann sízt varði, og beið hans á þeirri átt sem hann sigldi til, yfir bólginn sæ, við suðrænt sólar bál. Allur sá vandi, sem hann kvartaði svo beizklega um, var aðeins nauð- synlegur aðdragandi að því undarlega láni, sem fyrir honum lá. Þeir stefndu til Hispaniola, því að þangað þóttust þeir vita, að Rivarol myndi halda, að fá sér vatn og vistir, áður hann legði á hafið til Frakklandi, við allgóðan byr í tvo sólar- hringa. Að morgni hins þriðja var þokuslæð- ingur sælægur, svo að ekki sá meir en tvær mílur eða þrjár út frá sér, en til norðvesturs HEIMSKRINGLA stóð líkt og þokubunki upp úr myrkvanum. Það voru Bláfjöll á nefndri ey. Vindur var á norðan og vestan og bar að hlustum þeirra dunur, sem óreyndir hefðu tekið fyrir nið af stórbrimi. Pitt stóð á stjórnpalli hjá Blood og segir: “Stórskot!” Hinn kinkaði kolli og hleraði. “Tíu mílur héðan, ekki meir en fimtán — úti fyrir Port Royal, þyki mér líklegt,” bætti Pitt við. Leit svo á foringja sinn. “Er það okkur nokkuð viðkomandi?” “Skothríð úti fyrir Port Royal . . . það segir ofurstann Bishop að verki. Og við „hverja ætli hann berjist nema vora vini? Eg býst við að það komi okkur við. Stýrðu þang- að.” Nú var seglum ekið og skipunum haldið þangað sem dynkina lagði frá, og altaf urðu þeir skýrari. Eftir klukkutíma siglingu heyrðu þeir skotbrestina hætta alt í einu. Eigi að síður héldu þeir fram ferðinni og sáu nú hvar mikið bál brann á sjónum, og Blood sá í kíkinum, að stórskip stóð í björtu báli og á því skipi lék við hún merki hins heilaga Gyrgis. “Enskt skip!” kallaði hann til skipverja sinna, sem allir voru upp komnir á þiljur og höfðu mikinn hug á að sjá það sem fyrir bar. En er þeir komu nær sá hann bregða fyrir í þokuslæðunni, þrem skipum hásigldum, á burtsigling frá vettvangi, í áttina til Port Royal. Af því réði hann það, sem eðlilegt var, að þau tilheyrðu Jamaica flotanum brezka og að skip- ið sem brann væri víkingaskip, og þessvegna sigldu þeir að því, sem hraðast þeir kunnu, að bjarga þeim sem eftir lifðu af skipshöfninni. Þeir höfðu bjargast í þrjá báta, en sumir á ýmislegt rekald. Meðan þá var að bera að, að- gætti Pitt í kíkinum þau skip sem burt sigldu og af sinni sjómanna reynslu þekti hann það, sem öllum fanst ótrúlegt, að eitt þeirra var Victorieuse, skipið stóra, sem Rivarol stýrði. Nú feldu þeir segl og sneru upp í vindinn. XXIX. Kapítuli Úr bátinum sem fyrst náði til Arabella stiklaði maður upp stigann, lítill vexti og nett- legur í treyju af mórauðu flosi, gulli prýddri, þunnleitur, grágulur á hörundslit og mjög grettinn og með yfrið stóra hrokkinkollu, hrafnsvarta. Klæði hans, vel sniðin úr dýrum dúki, sýndu hvorki slettu né hrukku eftir þann svaðil sem hann hafði verið staddur í, og hann bar sig hóflega æg hvatlega, líkt og menn af háum stigum. Þetta var auðsjáanlega ekki sjó- víkingur. Á eftir honum kom annar, hinum | ólíkur i alla staði nema að aldri, mjög hár, breiður og þykkvaxinn og kraftalegur, þykk- leitur og kringluleitur og útitekinn, augun blá og svipurinn því líkur, að hann gæti gert að gamni sínu. Vel búinn var hann en íburðar- laust og bar sig eins og hann væri vanur að fara með vald og bjóða yfir öðrum. Nú sem sá smávaxni steig á þiljur, en þar var Blood kominn, að veita viðtal þeim að- komnu, þá rendi hann skörpum og skimandi augum á þá ruddalegu skipverja, sem störðu á hann hvarvetna frá, og segir, snarpur og önugur: “Og hvar í skollanum er eg nú kominn? Ertu enskur, eða hver fjárinn ertu?” “Sjálfum mér veitist sá sómi að vera írsk- ur, herra. Blood heiti eg — skipherra á þess- ari snekkju, Arabella, þér til þénustu.” “Blood!” hvein í þeim smáa. “Hvert í hóandi! Sjóræningi!” Hann vatt sér við að tröllinu sem með honum var — “Bölvaður sjóræningi, Van der Kuylen. Slægðu mig iif- andi ef við erum ekki kommnir úr öskunni í eldinn.” “So?” isagði hinn, kokmæltur, og aftur sagði hann. “So?” Þarnæst sá hann nokkuð kýmilegt í því, hvernig komið var og hló skelli- hlátur. f “Fjárinn fái mig! Hvað er til að hlægja að, hnýsan þín!” sagði sá á mórauðu treyjunni fljótmæltur og beit á jaxlinn. “Falleg er sagan að segja frá heima: Fyrst verður admiral Van der Kuylen viðskila við flota sinn í myrkri, tapar svo skipi sínu með því, að franskur floti brennir það og er svo loksins hertekinn af sjó- ræningja. Eg er feginn þér þykir gaman að því. Mér þykir það annað en gaman, úr því eg hlaut, synda minna vegna, að vera þér sam- ferða.” “Hér ber öðru vísi á að líta, ef eg má ger- ast svo djarfur, að benda á það,” skaut Blood inn í, hægur og stiltur. ‘‘Þið eruð ekki her- teknir herrar, ykkur er bjargað. Þegar ykkur skilst það, þá kann^vera að þið látið verða af því að þiggja þann gfeiða, sem eg þýð ykkur. Hann kann að vera lítill, en það bezta sem eg hefi, stendur ykkur til boða.” Sá snúðugi litli herramaður leit við hon- um, alt annað en hýrlega. “Skollinn taki mig! Ertu að leyfa þér að fara með háð?” Þar næst sagði hann til sín, máske í því skyni, að aftra allri spégimi: “Eg er Willoughby lávarður, Vil- hjálms konungs æzti stjórnari yfir Vestindí- um og þetta er æzti stjórnandi yfir flota hans hátignar í Vesturhöfum. Sá floti er samt, nú sem stendur á óvísum stað í þessum forbann- aða Cariba sjó.” Nú brá víkingum, er þeir heyrðu svo stór- kostlegt nýnæmi. Blood spurði: “Og hver er sá kóngur Vilhjálmur? Og yfir hverju á hann að ráða?” “Hvað er að tarna?” Lávarðurinn Wil- laughby varð forviða og starði á hann, segir svo loksins: “Eg á við hans hátign Vilhjálm III. konung — William Orange — hann sem, ásamt drotninguinni Mary, hefir ráðið yfir Englandi í tvo mánuði og nokkru lengur.” Nú varð þögn, þar til Blood segir: “Mein- arðu herra, að þeir hafi níannað sig upp heima, og rekið út þann óhappa James og hans fanta flokk?” Aðmirállinn Var de Kuylen hnipti í lávarð- inn og urraði: “Pærilega réttsinnaður huksa eg.” Lávarðurinn brosti en við það fór hans eltiskinns andlit í margar -hrukkur. “Drott- ins dyygða líf! Varst’ ekki búinn að frétta þetta? Hvar í skollanum hefirðu haldið þig?” “Utan við almannafæri í nokkra mánuði,” sagði Blood. “Stangi mig! • Svo hefir hlotið að vera. Og í þá þrjá mánuði hefir veröldin tekið ekki svo litlum breytingum.” Síðan sagði hann stuttlega hið Ijósasta af því, að Jakob konung- ur væri flúinn á náðir Loðvíks konungs, og England gengið í sambandið móti þeim kon- ungi og ætti því í stríði við Frakkland. Þar af stafaði, að skip hins hollenzka aðmiráls var eyðilagt, er það varð fyrir flota Rivarols, þann sama morgun. Þar næst leiddi Blood þessa þöfðingja til lyftingar,, en skipverjar fóru til á bátum og týndu upp þá sem þeir fundu á floti. Honum þótti hin nýju tíðindi mikil. Úr því Jakob kon- I’ ungur var úr landi, þá var útlegð sjálfs hans þar með lokið, sem honum hafði verið gerð fyrir að reyna að hrinda þeim harðstjóra úr völdum. Nú mátti hann hverfa heim aftur og byrja æfina upp á nýtt, þar sem henni var slit- ið fyrir fjórum árum, með svo skyndilegu og miklu hrakfalli. Honum fékk þetta svo mikils, að hann hátti ekki orða bindast, en af því tali hans varð sá kæni, stutti karl annars og meira vísari, en Blood sjálfan grunaði. “Far þú heim ef þér svo líkar,” mælti lá- varðurinn, þegar Blood tók málhvíld. “Þú mátt eiga víst, að þér verður alls ekki gefin sök á víking þinni, þegar aðgætt er, hvað knúði þig þar til. En til hvers er að flýta sér? Við höfum haft fréttir af þér, vitaskuld, og vitum vel til hvers þú dugar. En úr því þér leiðist hei-naður, þá skal gera þér annan kost. Ef þú skyldir kjósa, að þjóna konunginum Vil- hjálmi á þessum slóðum, meðan þetta stríð helzt, þá myndir þú, af kunnugleik þínum á Vestindíum, verða mikilmetinn starfsmaður hjá stjórn hans hátignar, og hún myndi ekki láta sér farast lítilmannlega við þig. Þetta. ættir þú að íhuga. Fari eg bölvaður herra, ef þér er ekki til vænlegra kosta boðið.” “Sem þú býður mér, lávarður. Veit eg Ýel og er þér stórlega þakklátur. En segja verð eg eins og er, að þessi stórtíðindi umbreyta minni veröld, og því nýja viðhorfi hlýt eg að venjast og átta mig á, áður en eg veit fyrir víst, hvar mín stöð er.” Nú gekk Pitt í lyftingu, kvað öllum bjarg- að, um hálfan fimta tug* að tölu. Hann spurði hvað gera skyldi. Blood stóð upp. “Eg hugsa svo mikið um minn hag, að eg gleymi þínum vanda, lávarður minn. Þú munt helzt vilja komast til Port Royal sem fyrst.” Sá stutti reigðist í sætinu reiðilega. Og reiðilega sagði hann Blood sögu af því, að kvöldið áður lögðu þeir inn til Port Royal, og fengu að vita, að æzti yfirmaðurinn var á bak og burt. “Var þotinn á einhverja refilstígu til Tortuga, á eftir víkingum og hafði tekið hverja fleytu með sér í þá skottuferð.” Blood hló og innti svo: “Hann mun hafa lagt upp áður en hann frétti um stjómarskiftin heima, og af stríðinu við Frakkland?” “Alls ekki” gall við lávarðurinn. “Hann var búinn að fá tilkynningu um hvorttveggja og sömuleiðis um mína komu hingað, áður en hann lagði upp.” “O, það getur ekki skeð.” “Það hélt eg líka. En eg fékk það sanna að vita af einhverjum Major Mallard, sem eg fann í Port Royal, væntanlega stjórnandi í fjarveru flónsins.” “Er hann genginn af vitinu, að fara frá sínu embætti á slíkri háskastund?” “Með allan flotann, gerðu svo vel og gleymdu því ekki, og skildi við staðinn opinn og önverðan fyrir árásum Franskra. Svona varastjóra lét sú afdankaða stjórn sér líka að setja hér, það var hennar óstjóm líkt, bölvaðr- ar. Hann stekkur burt úr stjómarsetrinu, skilur engar varnir eftir nema virkis hrúgald, sem skjóta má í rúst á einni klukkustund. — Stingi mig! Það er ótrúlegt endemi!” Hláturinn fór af Blood. “Ætli Rivarol hafi grun um þetta?” Sá hollenzki flotaforingi varð til svars, kvað þann franska foringja hafa tekið á sitt skip feina bátshöfn, sjálfsagt haft af þeim WINNIPE’G, 16. SEPT. 1936 sanna sögu, og myndi vafalaust ekki láta ann- að eins færi ónotað. Lávarðurinn kvað við urrandi líkt og villi- dýr. “'Sá þrjótur Bishop skal höfði skemmri ef nokkuð verður að vegna þess, að hann hefir hlaupið frá stöðu sinni. Ætli það geti ekki skeð, að það sé gert með ásettu ráði? Skyldi það ekki geta skeð, að hann sé frekar svikari en flón? Það skyldi ekki vera að hann sé með þessu að vinna gagn konunginum Jakob, sem veitti honum embættið?” Skipherrann Blood lét vægilega. “Varla það! Það var ekki annað en hefnigirni, sem rak á eftir honum. Hann er að elta mig, og ætlaði að sækja mig heim í Tortuga, lávarður minn. Mér dettur nú í hug, að það sé réttast eg líti eftir Port Royal fyrir Vilhjálm kóng, meðan hann rekur sitt erindi í Tortuga.” Hér hló hann, með meiri kæti en á honum hafði heyrst í langan tíma, og sagði við Pitt: “Taktu stefnu á Port Royal, Jeremy, og hafðu öll segl við. Við skulum reyna, hvort ekki má jafna sakirnar við Rivarol og gjalda honum rauðan belg fyrir gráan.” Við það spruttu höfðingjarnir báðir á fætur. “Fari eg bölvaður, ef liðsmunurinn er ekki of mikill” hvein í lávarðinum. “Hvert af þeim frönsku skipum er jafnoki þinna beggja.” “Eins vel búin að skotvopnum, sjálfsagt,” svaraði Blood og brosti við. “En fleira dugir í þessum hryðjum en skotbáknin. Ef lávarðinn fýsir að sjá hvernig berjast skal á sjó, þá skal ekki standa á tækifærinu.” Báðir gláptu á hann. “Ofurefli, maður!” sagði lávarðurinn, snúðugt. Aðmrállinn hristi sitt stórmannlega höfuð: “Sjómensga má mikið. En pyssur eru pyssur.” “Ef mér tekst ekki að sökkva Rivarol á mararbotn, þá get eg þó sökt mínu skipi í ál- inn og bannað honum burtför, þangað til Bish- op kemur aftur, eða ykkar flota ber að.” “Og til hvers ætti það að vera?” “Það get eg vel sagt ykkur. Rivarol er flón að leggja í þessa hættu, með því sem hann hefir innanborðs. Hann flytur með sér ódæma auð, allan ránfenginn í Cartagena, fjörutíu miljónir.” Þeir tóku báðir viðbragð, er þeir heyrðu þetta, því að slíkur auður, saman kominn á einn stað, var óvenjulegur á þeim tímum. “Þennan sjóð tekur hann með sér inn í Port Royal. Hvort sem hann vinnur sigur á mér eða ekki, þá skal hann ekki komast út með hann aftur, og í hirzlu Vilhjálms konung3 skal sá auður, fyr eða síðar — eftir að víking- ar mínir fá það af honum, sem þeim ber. — Hvernig líkar þér þetta, Willoughby lávarður?” Lávarðurinn spratt á fætur, hristi upp kniplinga, sem lágu fram á hnúa frá ermunum, og rétti fram hvíta hönd og smáa: “Captain Blood, það er mín meining, að þú sért mikil- menni,” sagði hann. “Víst, víst, og lávarðurinn hefir góða sjón, að sjá hið sanna,” svaraði víkingurinn hlægj- andi. XXX. Kapítuli. Eftir hádegi þann sama dag, voru víkinga skipin Arabella og Elizabeth komin undir land, og sigldu meðflram þeim tanga, sem lá milli hafs og ytra lóns hafnarinnar, en áður en kom að þeim þrönga ál, sem stórskip þræddu milli vesturlands og oddans, feldu þeir segl og létu fyrirberast þar sðm ekki sá til þeirra. Þar lágu þau í tvær stundir eða þrjár, og allan þann tíma dunaði loftið af stórskotum frá virkinu og skipum Rivarols. Loks brast þá aðkomnu höfðingja þolinmæðin: “Ettir hverj’ ert að bíða, lapm?” spurði sá hollenzki aðmíráll. „ “Já, í herrans nafni, hverju svo sem —?” innti lávarðurinn. “Þú sagðist ætl’að sýna okkur eitthvað afrek? Hvar er það afrek?” spurði sá hol- lenzki hjöfðingi. Blood var búinn til bardaga, í gullroðinni spangabrynju úr stali, girtur sverði, með skammbyssur í fetlum. Hann var öruggur og með gleöibragði: “Biðin er bráðum á enda. Eg þykist heyra, að skothríðin dvínar. En svona stendur á: Okkur er ekkert gagn að flýtinum, heldur að því, að fara hægt. Og það skuluð þið fá að sjá.” Lávarðurinn leit við honum tortryggnis- lega: “Þú ætlar að bíða eftir því, að Bishop sýni sig eða flotinn hollenzki?” “Víst ekki. Því fer fjarri. Hitt er nær, að Rivarol kunni ekki að varast og fái drjúgan skaða af virkismönnum. Við það kann leikur- innn að verða lítið eitt jafnari, þegar við förum að eigast við.” Rétt í því varð hlé á skotunum, svo að auðséð þótti, að lokið væri vörn virkisins. Þá hallaði Blood sér út á þiljugrindur, fagurlega rendar og steindar, og tók að skipa fyrir. í einni svipan var uppi fótur og fet um alt skip- ið, seglum var hleypt úr heflum og skipið tók skriðinn á leið til innsiglingar, hver tók þá stöðu sem honum var ætluð og Ogle hvarf á undirþiljur, til skothólka og skeyta, með þær fyrirskipanir sem hann fékk hjá foringjanum. Elizabeth hélt sömu leið, eftir merkjum sem hún fékk af fyrirliða skipinu.

x

Heimskringla

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimskringla
https://timarit.is/publication/129

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.