Heimskringla - 13.01.1937, Blaðsíða 8
8. SÍÐA.
HEIMSKRINCLA
WINNIPEG, 13. JANÚAR 1937
FJÆR OG NÆR
Messur í Winnipeg
Tvær guðsþjónustur fara fram
í Sambandskirkjunni í Winnipeg
eins og venjulega, næstkomandi
sunnudag, á ensku kl. 11 f. h. og
á íslenzku kl. 7 e. h. Prestur
safnaðarins messar. Fjölmennið!
Sunndagaskólinn kemur saman
kl. 12.15. Sendið börnin yðar
þangað!
* * *
Messað verður í Sambands-
kirkjunni í Árborg sunnudaginn
17. jan. n. k. kl. 2 e. h.
* * «
Samkoma og kappræða
f Sambandskirkjunni verður
samkoma og kappræða næstkom-
andi mánudagskvöld kl. 8.30. Á
skemtiskránni verða Mr. John
Tait með gamanvísur og söngva,
Mrs. Ragnar G. Gíslason með
einsöngva og Mr. Pétur Magnus
með einsöngva. Kappræðumenn-
irnir verða kappræðusnillingarn-
ir séra Guðm. Árnason og Dr.
Sig. Júl. Jóhannesson. Kapp-
ræðuefnið verður: “Er menning
vor í hættu við að eyðileggjast!”
Já hliðina tekur séra Guðmund-
ur Árnason, en nei hliðina, Dr.
Sig. Júl. Jóhannesson. Mega
menn eiga von á mjög skemti-
legu og fræðandi kvöldi. Inn-
gangur verður aðeins 25c — Lát-
ið þetta fréttast og fjölmennið!
* * " *
Stoðir Samfélagsins
Leikfélag Sambandssafnaðar
hefir í huga að endurtaka leikinn
“Stoðir Samfélagsins”, nú við
næstu mánaðamót. Hafa ýmsar
raddir látið til sín heyra, er óska
eftir að leikurinn verði endur-
tekinn. Hefir það því vej;ið á-
kveðið að sýna hann þriðjudags-
kvöldið 2. febrúar. Frá þessu
verður nánar skýrt í næsta blaði.
* * *
Ársfundur Leikfélagsins
Leikfélag Sambandssafnaðar
heldur ársfund, í kirkju safnað-
arins, miðvikudagskveldið 13. þ.
m. (í kvöld) kl. 8 e. h. Auk
venjulegra ársfundar starfa
liggja ýms áríðandi mál fyrir
fundi, er því sérstaklega skorað
á félagsfólk að mæta.
f umboði forstöðunefndar.
Elin Hall, forseti
B. E .Johnson, skrifari
* * *
Fyrrum og nú
Um bygðir menn þjóta á bifreið-
um nú
með brunandi ferð eins og örin,
en alment hér fyrrum menn
keyrðu á kú
og komust, þó seint gengi förin.
G. J. P.
Almanakið 1937
43. ár.
INNIHALD :
Almanaksmánuðimir, um tímatalið,
veðurathuganir og fleira.
Safn til landnámssögu Islendinga við
Brown, Manitoba, með myndum.
V Eftir Jóhannes H. Húnfjörð
Drög til landnámssögu Isl. við norð-
urhluta Manitobavatns, — með
myndum. Eftir Guðmund Jóns-
son. *
Söguágrip Isl. í Suður-Cypress sveit-
inni í Manitoba. Eftir G. J. Ole-
son, með myndum.
Landnámssaga mín eftir Martein
Jónsson, með myndum, skrifuð af
honum sjálfum.
Með byssu og boga. — Eftir Grim
Eyford.
Deiðréttingar við landnámssöguþátt
Isl. í Keewatin í Almanakinu
1936. Eftir B. Sveinsson.
Helztu viðburðir og mannalát meðal
Isl. i Vesturheimi.
Almanakið alls 120 bls.
Kostar 50 cents
Til sölu föstud. 8. jan. 1937
•
ÓLAFUR S. THORGEIRSSON
674 Sargent Ave. Winnipeg
Dánarfregn
Síðastliðin föstudagsmorgun
8. þ. m. andaðist Kristjana Sig-
urðardóttir Hafliðason á St.
Boniface spítalanum. útförin
fór fram s. 1. mánudag frá Gard-
ner’s útfararsal á Kennedy St.,
og jarðað var í Brookside graf-
reit. Kristjana er ættuð úr
Mýrasýslu í Borgarfirðinum. —
Fæðingarstaður hennar var
Miklholt í Mýrarsýslu, og for-
eldrar hennar, Sigurður Saló-
monsson og Guðbjörg Hákonar-
dóttir. Hún var fædd 9. okt.
1859. Hún kom til þessa lands
árið 1888 ásamt eiginmanni sín-
um Kristjáni Hafliðasyni, sem
er dáin fyrir mörgum árum. —
Börn hennar, sem íifa hana, eru
Sigurborg (Lóa), sem hún bjó
hjá öll síðustu árin) hér í
bæ; Guðrún, gift Jóhannesi
Grímólfssyni á Mikley, og
Kristjánína, gift Sigurði Stef-
ánssyni í Seattle. Jóhanna, önn-
ur dóttir andaðist fyrir nokkrum
árum.
Við útförina voru séra Jóhann
Bjarnason og séra Philip M.
Pétursson sem báðir fluttu nokk-
ur minnjngarorð um hina öldr-
uðu konu semí nú er til hvíld,ar
gengin eftir langa og erfiða æfi.
* * *
í bréfi vestan frá Wynyard, er
þess getið að skarlatssótt gangi
í bygðum þár vestra og að skól-
um hafi sumstaðar verið lokað.
Tvö börn séra Jakobs Jónssonar
liggja.
* * *
Almanak 0. S. Thorgeirssonar
yfir árið 1937 er komið út. Hefir
inni að halda landnámssöguþætti
um íslendinga við Brown, Norð-
ur-bygðanna við Manitobavatn,
Glenboro og margvíslegan ann-
an fróðleik. Almanakið mun
komið til útsölumanna svo menn
geta komist yfir það nú þegar
með því að vitja þess þangað.
* * *
Dánarfregn
Snemma í desember mánuði
s. 1. andaðist Kristjana Gísladótt-
ir, kona Eyjólfs Thorsteinsson-
ar til heimilis á Beverley Street
hér í bæ. — Hún hafði búið
við vanheilsu í nokkur ár en
versnaði snögglega seint í nóv-
ember, og fór hnignandi úr
því. — Hún var fædd á Ár-
gerði í Eyjafirði, 18. nóvember
1865. Foreldrar hennar voru
Gísli ólafsson og Guðríður Jó-
hannesdóttir kona hans. Hún
átti fimm bræður, sem eru allir
dánir. Árið 1906 kom hún til
þessa lands og giftist Eyjólfi
Thorsteinssyni 1914, og áttu þau
hjónin heima hér síðan.
útförin fór fram frá útfarar-
sal Bardals fimtudaginn 17. des.
s. 1. og jarðað var í Brookside.
Séra Philip M. Pétursson jarð-
söng. * * *
Ald. Paul Bardal, sem verið
hefir formaður fátækranefnda^r í
bæjarráðinu í Winnipeg, var end-
urkosin í þá stöðu á fyrsta fundi
hins nýkosna bæjarráðs, 7. jan.
* * *
Silver Tea
og sala á heimtilbúnum mat,
verður haldin undir umsjón I.
0. G. T. á 7 gólfi hjá T. Eaton
Co., mánudaginn 25. jan. frá
2.30 til 5.30 e. h.
* ~ * *
Frónsfundur
Þjóðræknisdeildin ‘Frbn’ held-
ur skemtifund fimtudaginn 21.
jan 1937, kl. 8 e. h. í neðri sal G.
T. hússins. Fráfarandi stjórnar-
nefnd skilar af sér reikningum
og nýja nefndin tekur við. Pró-
fessor J. G. Jóhannesson flytur
ræðu, frú Alma Gíslason syngur
tvo flokka af einsöngvum. Dr.
Sig. Júl. Jóhannesson les upp og
getur um hina nýútkomnu ljóða-
bók P. S. Pálssonar. Enginn
inngangseyrir eða samskot. —
Allir velkomnir.
Við Kviðsliti?
Til linunar, bóta og styrktar
reynið nýju umbúðirnar, teyju-
lausar. Stál og sprotalausar. —
skrifið: Smith Manfg. Company,
Dept. 160, Preston, Ont.
Mánudaginn þ. 3. jan. s. 1. voru
gefin saman í hjónaband þau
James McGowan og Victoria
Língey Davidson, bæði frá Win-
nipeg. —• Vígsluna framkvæði
séra Guðm. P. Johnson, að heim-
ili brúðarinnar 620 Toronto St.,
og verður það heimili ungu hjón-
anna, fyrst um sinn.
* * *
Eimieiðin
Síðasta hefti ársins 1936 er
komið vestur og fæst hjá Magn-
úsi Peterssyni, 313 Horace St.,
Norwood, Man. Efni þess er
sem fylgir:
NorðurJönd (kvæði) eftir
Jakob Jóh. Smára. Norræn sam-
virma eftir Svein Sigurðsson.
Grasakonan (kvæði) eftirHuIdu.
Grannkonan mín fagra (smá-
saga) eftir Rabindranath Tag-
ore (Sv. S. þýddi). Heilsulind-
irnar í Karlsbad. fslenzkar
heilsulindir? (með 7 myndum)
eftir Svein Björnsson, sendi-
herra. úr dagbók búðarstúlk-
unnar (saga með mynd) eftir
Elinborgu Lárusdóttur. Lóuvís-
ur eftir Stefán Vagnsson. Vor-
draumurinn (kvæði)' eftir ólaf
Jóh. Sigurðsson. öskjuferð sum-
arið 1936 (með mynd) eftir
Hjört Björnsson frá Skála-
brekku. Rökræður um búnaðar-
og gengismál (með 2 myndum).
Frumbúskapur og framleiðslu-
verð, (opið bréf til hr. Halldórs
Jónassonar) eftir Tyggva Kvar-
an. Alþjóðahagur á að ráða
eftir Halldór Jónasson. Gróður
Gyðingalands eftir Fredrik Böök
(Einar Guðmundsson þýddi).
Hárin grána eftir Herdísi og
ólínu. Tvö ljóðabréf eftir Forn-
ólf. Hrikaleg örlög (saga) eftir
Joseph Conrad (framh.). Raddir.
Ritsjá.
* * >ii
BRÉF
Fækkar frumherjum,
fangbragða mönnum.
Fóstran þeim bíður
faðminn að launum.
Sunnud. 3. jan. kl. 6 e. h. var
Finnur Johnson frá Calgary,
Alta., á gangi yfir aðalgötuna
hér við 15th St., er bíll keyrði
svo nálægt honum að hann
slengdist um koll og beið svo að
segja samstundis bana af.
Dómur var settur í málið 5.
jan. og dæmt af 9 kviðdómend-
>um að keyrsla bílstjórans varð-
aði ekki við lög, og slysið því ó-
hjákvæmilegt undir kringum-
stæðunum. Hinn látni bjó á
hóteli bæjarins.
Finnur Jónsson var fæddur að
Heiðarhúsum á Þelamörk í Eyja-
fjarðarsýslu, 18. des. 1860, og
því fullra 76 ára er hann lézt.
Finnur var hinn bezti drengur
og nýtasti borgari, eg þykist
vita að hans verði frekar getið í
bloðunum að tilhlutun ættingj-
anna.
Finnur kom*hingað að læknis-
ráði og ætlaði að dv»lja hér á
ströndinni í 4—5 mánuði,” nú
dvelur hann á annari strönd og
tefur lengur. Þelmerkingur og
æfilangt vinur hins látna.
7. jan. 1937.
John S. Laxdal
National City, Calif.
—j-------------
Nýja Ijóðabókin
“Norður-Reykir”
eftir Pál. ,j«J. Páísson er til sölu
hjá eftirfylgjandi útsölumönn-
um:
Ánborg: G. O. Einarsson
Foam Lake: John Janusson
Gimli: Kr. W Kemested
Geysir: T. Böðvarsson
Glenboro: G. J. Oleson
Kandahar: S. S. Anderson
Keewatin: S. Björnsson
Leslie: Th. Guðmundsson
Piney: S. S. Anderson
Selkirk: K. S. Pálsson
Steep Rock: F. E. Snidal
Winnipegosis: Ingi Andérson
Blaine, Washi, Rev. H. E. John
son
Cavalier, N. Dak.: J. K. Einars-
son
Chicago, 111.: Geo. F. Long
Garðar, N. D.: J. S. Bergmann
Mountain, N. D.: Th. Thorfinns-
son
Winnipeg:
Magnus Peterson
313 Horace St., Norwood
Viking Press Ltd.
Sargent Ave.
P. S. Pálsson
796 Banning Street
Bókin kostar $1.50 í kápu —
$2.00 í skrautbandi.
Tilbúið fljót
Vestur í Californíu hefir 9 þús
und manns verið falið það verk
á hendur að búa til 500 km. langt
fljót og hafa lokið því á þremur
árum. Fljót þetta er hin nýja
vatnsveita fyrir Los Angeles, og
úerður það stærsta vatnsveita í
heimi. Henni er ætlað að flytja
25 miljónir lítra af vatni til borg-
arinnar á dag. Vatnsveitan ligg-
ur í jarðgöngum gegn um fjöll
og hæðir á 180 km. löngu svæði,
en um eyðimerkur að mestu að
öðru leyti.
(Einn af aðal-verkfræðingun-
um við þetta stórvirki er íslend-
ingurinn Magnús Hjálmarsson,
verkfræðingur, sonur Halldórs
heitins Hjálmarssonar búfræð-
ings og Margrétar Bjarnad. konu
hans, er bjuggu lengst um að
Akra, N. D.)
Hér fer á eftir saga af hinni
þektu skáldkonu Marie Corelli:
Hún var einu sinni spurð að
því, hversvegna hún gifti sig
ekki.
“Á mínu heimili eru þrjár ver-
ur, sem allar hafa eiginleika
meðal-eiginmanns, svo að eg þarf
engan slíkan,” svaraði hún.
“Hvað áttu við?” sagði sá, er
spurt hafði.
“Já,” sagði Marie Corelli, “eg
á hund, sem liggur á meltunni
allan fyrri hluta dags, páfagauk,
sem sefur allan seinni hlutann,
og kött, sem er úti á hverju
kvöldi.—Dvctl.
GÖMUL HUGMYND UM
ALHEIMSMÁL KEMUR
FRAM AÐ NÝJU
í sunnudagshefti “Politiken”
frá 5. des. er grein eftir Felix
von Binzer, sem heitir “Skal vi
skrive Hieroglyffer ?”
Lýsir greinarhöf. hve mikils
virði það væri, ef hægt væri að
koma upp alheims táknmáli, þar
sem tákn væri í stað orða fyrir
sama hugtakið, j>g menn allra
þjóða gætu lesið táknmálið hver
á sinni tungu, með sínum orðum.
Höf. bendir á, að þegar sjón-
varpið kemur til sögunnar, mætti
á alheims táknmáli senda skýr-
ingar með myndunum, er menn
gætu skilið, hvar sem væri á
hnettinum.
Er greinarhöf. hefir sýnt fram
á þýðing þessa, segir hann frá,
að höfundur slíks táknmáls sé
Páll Þorkelsson, sem allir Reyk-
víkingar kannast við, og dó hér á
Elliheimilinu í' fyrravetur. Hann
var, sem kunnugt er, málamaður
mikill.
Greinarhöf. bendir á, að menn
megi ekki álíta, að Páll Þorkels-
son hafi ekki lifað og starfað, þó
hvergi sé hans getið í alfræði-
bókum. Því, eins og hann segir,
það eru vitlausu uppfyndingarn-
ar, sem jafnan fá mestan byr.
Morgunblaðið hefir snúið sér
til Páls Sveinssonar yfirkennara
og spurt hann um þetta alheims-
mál frænda hans.
Gömul hugmynd
— Er það nú komið aftur á
dagskrá? segir Páll Sveinsson.
Greinina í ‘Politiken’ hafði hann
ekki'Séð.
Það var rétt um aldamót, sem
Páll heitinn Þorkelsson vann að
þessu táknmáli sínu. Hann
r^yndi að koma því á framfæri
Lesið Heimskringlu
Kaupið Heimskringlu
Borgið Heimskringlu
Ro.
erlendis en það tókst ekki, nema
hvað einstök blöð birtu um það
nokkrar vingjarnlegar greinar.
A. m. k. man eg, að í “Politiken”
var grein um það. En síðan eru
víst ein 33 ár.
— Hvaða álit höfðuð þér á
þessu táknmáli frænda yðar?
— Eg verð að segja, að eg á-
Ieit, að það myndi altaf verða of
flókið, til þess að menn gætu al-
ment lagt það á sig að læra það.
— Hafði hann gert fullkomið
táknkerfi yfir öll nauðsynleg
orð?
— Eg býst við því, að hann
hafi litið svo á, að það væri full-
gert frá hans hendi.
— Og hvar eru nú skjöl og
handritin niður komin, sem
geyma þetta mál hans?
— Það er mér ekki kunnugt.
Síðustu ár æfinnar var hann á
Elliheimilinu. Þar hafði hann öll
sín skjöl og plögg. En hann var
sem kunnugt er, blindur síðustu
árin.
Grein í “Familie Journal”
Þá hefir blaðið haft tal af dr.
Guðbrandi Jónssyni um þetta
mál. Hann sagði m. a.:
Páll frændi minn nefndi má!
sitt “Ideografi”. ítarleg grein
um þessa hugmynd hans birtist
í “Familie-Journal” fyrir mörg-
um árum. Get eg ímyndað mér,*
að höf. greinarinnar í “Politik-
en” hafi notað þá grein til þess
að rita sína. Er mér ekki kunn-
ugt um, að annarsstaðar hafi
komið út ítarleg lýsing á hug-
mynd þessari.
Eg er ekki viss um, að í hand>
ritum hans, sem hann lét eftir
sig, séu þau drög sem hann end-
ur fyrir löngu gerði að “Ideo-
grafinu’ ’sinni. Því sjálfur hafði
hann fyrir löngu hætt að hugsa
um hana. En af greininni í
“Familie Journal” er alveg hægt
að læra hvernig hann hugsaði
bygging og samsetning tákn-
málsins.
Eg fyrir mitt leyti, sagði G. J.
að lokum, tel, að mál hans geti
orðið svo óbrotið og auðlært, að
það gæti vel komið að tilætluð-
um notum.
í greininni í “Politiken” er
táknmáli Páls Thorkelssonar lýst
með nokkrum dæmum, sýnt m. a.
hvernig beygingar sagna, nafn-
orða og fornafna eru "játnar
koma fram með táknum.
Greinarhöf. leggur það til,, að
þetta alheimsmál verði látið
heita eftir höf. þess og nefi»%
P. Tí S.-mál.—Mbl.
MESSUR og FUNDIR
í kirkju SambaniscafnaSar
Uessur: — á hverjum sunnudegi
Kl. 11 f. h. á ensku
Kl. 7 e. h. á íslenzku.
SafnaSarnefndin: Funólr 1. fðetu-
deg hvers mánaðar.
Hjálparnefndin: — Fundlr fyrsia
mánudagskveld í hverjum
mánuði.
KvenfélagiO: Fundlr annan þriSJu-
dag hvers mánaðar, kl. 8 að
kveldinu.
Söngœfingar: lslenzki &öng-
flokkurinn á hverju fimtu-
' dagskvöldi.
Enski söngflokkurinn á
hverju föstudagskvöldi.
Sunnudagaskólinn: — Á hverjum
sunnudegi, kl. 12.15 e. h.
VERZLUNARNÁMSKEIÐ
Þjóðræknisfélag íslendinga í
Vesturheimi hefir til sölu nám-
skeið við alla höfuð verzlunar-
skóla bæjarins með vægum
kjörum. Ungt fólk er hefir i
huga að leggja fyrir sig verzl-
unarnám ætti að leita upplýs-
inga um iþetta. Talið við eða
símið: Á. P. Jóhannsson, 910
Palmerston Ave., sími 71 177.
OPIÐ BRÉF TIL
KUNNINGJANNA
Frh. frá 7. bls.
ætluðum notum. Síðar tók eg
eftir því, að allmargt af kven-
fólkinu var orðið skegglaust. —
Það hafa því fleiri orðið fyrir
sömu afdrifunum, en þessir
skellihlátrar um allan garðin létu
sérlega vel í eyrum mér. Nú var
þessi lystigarður orðin nærri
troðfullur og nú var kl 12, og þá
tók út yfir alt. Gamla árið brent
á báli, öllum klukkum og stórum
blásturs pípum hringt og blásið
og skothríð mikil og eg vissi svo
eða heyrði ekki meir, því eg hélt
fyrir eyrun í langan tíma. Eftir
mikinn troðning og eftirminni-
legt kveld, náðum við heim kl. 3;
og aldrei á æfi minni hefi eg
heyrt eða séð önnur eins fagnað-
arlæti við nokkurt tækifæri.
Vonandi að þessu bjartsýna,
glaðværa fólki, verði að von sinni
og óskum, að þetta nýbyrjaða ár
verði því til gengis og gæfu. Og
okkur líka kæru vinir minir, og
öllum löndum okkar alstaðar.
Já, að árið verði öllum heimin-
um ljúft og blítt og rótt sem
heiðskír draumanótt.
Vinsamlegast,
A. Johnson (frá Sinclair),
7007 Normal Blvd.,
Chicago, 111.
V —
Lesið Heimskringlu
Borgið Heimskringlu
SAMK0MA
• ««
og
KAPPRÆDA
undir umsjón Stjórnarnefndar Sambandssafnaðar
Á skemtiskránni:
Mr. John Tait, gamanvísur og söngvar
Mrs. Ragnar G. Gíslason, einsöngvar
Mr. Pétur Magnus, einsöngvar
Kappræða -— “Er menning vor í hættu með að eyði-
leggjast.”
“já” — Séra Guðm Árnason
“nei” — Dr. Sig. Júl. Jóhannesson
NÆSTKOMANDI MÁNUDAGSKVÖLD f
SAMBANDSKIRKJUNNI, 18. þ. m. kl. 8.30
Inngangur aðeins 25c Fjölmennið!
WELLINGTON BAKARÍIÐ
764 Wellington Avt. Sími 25 502
Hið einasta íslenzka bakarí í Winnipeg borg
Kringlur og tvíbökur af beztu tegund og lagað úr
bezta efni, ásamt fjölda, bæði íslenzkum og canadiskum
brauð og köku tegundum, sem seljast ný úr ofninum á
hverjum degi.Brúðarkökur bezt lagaðar og ljómandi vel
puntaðar einnig áskrifaðar hamingjuóskir. Kringlur á
15c í heildsölu og Tvíbökur á 20c þá keypt eru 10 pd. eða
meira. fslenzk Rúgbrauð 20 oz. 2 fyrir 15c og 6c þá tekin
eru 10 brauð minst, (geymast vel, og mjög góð til neyzlu,
löguð af bezta rúgmjöli, (fine rye).
Gleymið ekki að okkar nýja símanúmer er 25 502.
Beztu þakkir fyrir viðskiftin, góðu landar.
#
/
\
\