Heimskringla - 03.03.1937, Blaðsíða 5

Heimskringla - 03.03.1937, Blaðsíða 5
WINNIP^G, 3. MARZ 1937 HEIMSKRINGLA 5. SIÐA Við kaupum HÚÐIR, ALFALFA, SWEET CLOVER og BROME GRASS hæðsta verði Símið eða skrifið: Deloraine Exporting Company DELORAINE, — MANITOBA J. Fredriksson, ráðsmaður var að þröngva honum til að af- neita kenningu sinni viðvíkjandi snúning og hringferð hnattar- ins. Trú á mátt sinn og megin hef- ir í einhverju horfi loðað við landann í gegnum alt og alt. — Hann vill koma til dyranna eins og hann er klæddur, vill hugsa sínar eigin hugsanir, róa sínum eigin bát, og ráða sinni eigin landtöku. Það er eitthvað svo forn-ís- lenzkt við þetta alt saman að það er ómögulegt annað að segja en að okkur kyppi í kynið. ' Við tölum um að varðveita vorn bókmentalega arf, að við- halda voru fagra máli, að gróð ursetja í Vesturheimi íslenzka menningu. Alt er þetta gott og gagnlegt. En hvað sem öllu þessu líður þá er þó kannske sjálfstæðis-andinn, sannleiks- ástin, vor dýrmætasti arfur, það sem mest ætti að hirða um og hlúa að. Það er gjaldgeng vara á torgi menta og menningar um heim allan. Sá arfur þarf eng- an túlk; hann skammast sín ekki í koti karls og krýpur ekki að fótskör konunganna. “Vér trúum þér sjálfum,” sagði enska sTíáldið mikla, “því af því leiðir, eins og dagur kem- ur á eftir nótt, að þú munt eng- an svíkja.” Við erum öll að skrifa bók — bók lífsins — vors eigin lífs. — Okkur langar öll til að blek- sletturnar verði sem fæstar, krassið sem minst. Eg leyfi mér að enda þetta erindi með broti úr kvæði eftir íslenzka stórskáldið, Þorstein Erlingsson; hann er að tala um “Bókina sína”: “Eg fékk þig svo ungur á fjar- lægri strönd og fyrr en eg kynni að lifa; og á þér var hvarvetna annara hönd— því óvitar kunna ekki að skrifa. En oft hefi eg hugsað um ógæfu þína og alla, sem skrifuðu í bókina mína. Eg veit þó sitt besta hver vinur mér gaf og viljandi blekti mig enginn; en til þess að skafa það alt sam- an af er æfin að helmingi gengin. Það verður á bók þess svo var- lega að skrifa, sem veikur er fæddur og skamt á að lifa, Og æskunnar menjar það mein- lega ber, sem mitt var hið dýrasta og eina— , um síðuna þá, sem þar óskrifuð er, eg ætla ekki að metast við neina: mig langar að sá enga lýgi þar finni, sem lokar að síðustu bókinni minni. Eg veit að allir sannir íslend- ingar taka undir með Þorsteini og vilja gjarnan velja sem eink- unarorð á titil-blað sinnar eigin bókar: “Mig langar að sá enga lýgi þar finni, sem lokar að síðustu bókinni minni.” ALDREI FYR og aldrei framar verður jafn verð- mæt bók sem þessi fáanlega fyrir 35c. Heilbrigðar ráðleggingar og upplýsingar um: að ha,lda við heils- unni, lengja lífið; hjálp í sjúkdóm- um og slysum; leiðbeiningar við _ húshald; að ná blettum úr fötum: ‘ elda við moðsuðu; baka brauð; gera fatnað og skó vatnsheld; finna vatn í jörðu; þvo; þurhreinsa eyða veggamaur; tímatal í 2000 ár; kurteisishegðan fyrir unga menn og meyjar; skógerð; byggja smáhýsi sjálfur; múrhleðslu; tré- smíði; pappíring; málning; að skerpa sagir; meðferð bíla; bú- skap; geitnarækt; fuglarækt; fjár- rsfekt; svín&rækt; nautarækt; slát- ureldi nautgripa; skera upp kjöt; komrækt; trjárækt; uppskeru; frærækt; smjörgerð, sútun; malt- gerð; sódadrykk; aldinadrykk; stangarveiði; fisk, kjöt og aldina geysmlu, o. s. frv. Bókin er 200 bls. á 35c. Pantið hana hjá O. EYNARSON, Box 51Í, Winnipeg, Man. ÚTVARPSMESSAN 14. FEBRÚAR (Eftirfylgjandi þrjú bréf hafa Heimskr.” borist um útvarps- messu séra Eyjólfs J. Melan, er sýna hversu fólk lítur á boðskap hinnar frjálslyndu kirkju. Þær kenningar eiga erindi út til manna og ætti séra Eyjólfur að verða við tilmælum bréfritara og birta ræðuna). Winnipegosis, Man. Eg vona þú fyrirgefir þó upp- hæðin, sem eg sendi með þessum miða sé fremur lítil fyrirferðar, enda frá fáum og smáum; eða aðeins einni fjölskyldu, sem hlýddi með óblandinni ánægju á útvarpsræðuna hans séra E. J. Melans s. 1. sunnudagskveld. Hún var ein af þessum fáu ómenguðu sálgræðandi smyrslum, sem vert er að veita athygli, sem lýsir sér í óbrjálaðri einurð og sannleiks- ást. Og í Heimskringlu ætti hún að koma til frekari áréttingar, “Því aldrei er góð vísa of oft kveðin”. Með beztu óskum þinn einl. Thór Stephánsson • j. : I Leslie, Sask. Útvarpsmessan frá Sambands- kirkjunni í gærkveldi heyrðist jómandi vel hér vesturfrá. Söng- urinn gaf okkur óblandna á- nægjustund. Karlmanns sóló-in fanst mér sérstaklega góð. Að öllum líkindum fær ræðan mlsjafna dóma, eins og venju- lega þegar sannleikurinn ber að dyrum. En það er einnig sönn- un fyrir gildi innihaldsins. En óþarft getur það varla talist að gagnrýna sumt af þeim úreltu — en þó daglega upptugnu — kreddukenningum vanabundinn- ar kirkju. Mér hefði líkað að sjá ræðuna birta í Heimskr. eða Lögbergi! til frekari athugunar. Eg þakka þeim, sem hlut eiga að máli fyrir útvarpið. Með beztu kveðju. R. A. Akra, N. D. Hér með sendi eg póstávísan fyrir $1.00 sem eg bið þig að koma til féhirðis Sambandssafn- aðar, sem lítið tillag upp í út- varpskostnaðinn á messu safnað- arins síðastliðinn sunnudag (14. feb.) Svoleiðis messu vildi eg og fjölskyldan heyra sem oftast. Séra Melan dregur ekki fjöður yfir skoðanir sínar í trúmálum, né hikar við að setja — ó — fyr- ir framan okkar gamla evangelí- um. Þinn einlægur, S. G. N. p.S.—Hver var hinn mikli söngmaður, sem söng rétt eftir messuna? S. G. N. — Söngmaðurinn var Pétur Magnús. ____________ JÁTVARÐUR KONUNGUR VIII. Eftir Sig. Júl. Jóhannesson Framh. Meginpartur þess, sem eg hefi skrifað um þetta mál eru þýðing- ar úr greinum ýmsra merkra manna og rita; auk þess eru þar nokkur söguleg atriði. Hér felli eg inn í þýðingu af grein, sem birtist í ritinu Maclean’s Maga- zine 15. jan. Hún er eftir þing- mann á Englandi sem Beverley Baxter hetir; hann er einnig frægur blaðamaður. Greinin er sem fylgir. “Hvervegna sagði Játvarður af sér? Hann gerði það sökum þess að honum fanst sjálfum sem hann væri ekki til þess faílinn að vera konungur. Það er alls ekki í því skyni gert að vekja upp alt það flóð af kjaftæði, tilgátum og deil um um hrygðarefni Játvarðar VIII. að eg skrifa þessa grein. Eg veit hversu sárt það hefir tekið fólkið í Canada sökum þess að hann var andlega nálægari lífi og skilningi canadisku þjóð- arinnar en nokkurra annara þjóða í brezka ríkinu. Samt sem áður finst mér að eg ætti að minnast á nokkur söguleg atriði í þessu óheillamáli þar sem ekki gat hjá því farið að eg sæi leikinn frá upphafi til enda, sökum þess að eg er bæði þingmaður og blaðamaður; leik- inn sem endaði eins ótrúlega og raun varð á. Eg skal viðurkenna það í byrj- ' un að engin getur fullkomlega lesið annara tilfinningar; og þess vegna er það mögulegt að konungurinn hafi búið yfir ein- hverju-leyndu, sem enginn gæti séð; en eftir því sem næst verð- ur komist af þeim, sem nálægt stóðu og athygli veittu, er hér framsettur sannleikurinn eins og hann birtist eftir alt moldviðrið og allar deildurnar. Eg get ekki trúað því eins og sumir geðshræringamenn halda fram, að hér hafi verið um svo djúp ástamál að ræða að jafnvel ástir Tístrans og ástmeyjar hans komist þar hvergi nærri. Að því er konuna snertir hefi eg meira að segja ekki sannfærst um að ástir hafi átt þátt í leikn- um að nokkrum mun. Vér verðum að horfast í augu við sannleikann. Játvarður kon- ungur sagði ekki af sér til þess að giftast Mrs. Simpson; hann sagði af sér sökum þess að hann áleit sjálfur að hann hefði hagað sér þannig að hann væri ekki til þess fallinn að skipa lengur kon- ungssæti Bretlands. Eg er hér alls ekki að biðjast neinnar vægðar fyrir hans hönd. Eg fer aðeins fram á það að fólk reyni að skilja hvernig í öllu lá. Þegar allir voru að spyrja þeirr- ar spurningar í Lundúnaborg hvort hann væri að missa vitið; spyrja hvort hann vissi ekki hvaða kjör útlægir stjórnendur ættu efnalega við að búa — já, þegar allir voru að spyrja þess- ara spurninga þá starði hann beint inn í eldinn og horfði í huga sér á framtíð sína með hug- rekki og samvizkusemi. “Eg veit af engum stað, sem eg gæti flúið til”, sagði hann við vin sinn fáum klukkustundum áður en hann fór úr landi burt. “Eg verð fátækur að fé og get ekkert haft fyrir stafni. Eg ætla að rifja upp fyrir mér þýzkuna og stytta mér stundir með ein- hverju.” Þessi síðustu orð gætu verið töluð af vörum fjársýslumanns í hálfgerðri alvöru og hálfgerðum galsa þegar hann væri að hugsa um að setjast í helgan stein. En hin bitra sjálfsákæra, er lýsti sér í rödd Játvarðar konungs sýndi greinilega að hér var um ekkert slíkt að ræða. Snemma morguns meðan dimma næturinnar ennþá huldi ljóma loftsins, stóð hann aleinn á herskipinu og horfði á dimm- bláa ströndina meðfram Eng- landi, sem var að hverfa honum sjónum smátt og smátt. Napol- eon var ekki eins einmana þegar hann var fluttur til St. Helenu. Hann vissi það að enn voru þúsundir manna á Frakklandi sem fegnir hefðu viljað berjast og láta lífið fyrir hinn fallna keisara. En fjórum klukku- stundum áður hafði eg setið í leikhúsi þar sem hlustað var á kveðjuræðu Játvarðar sem út- varpið flutti og ekki ein einasta rödd heyrðist sem fagnaði síð- ustu orðum konungsins! Skömmu áður en þetta skeði var eg í þingsalnum, þegar Wedgewood lýsti því yfir um leið og tárin streymdu niður eft- ir kinnum hans að hann mundi stundum minnast konungsins fyrir handan hafið; en þá var dauða þögn í þingsalnum. “Hann var sjálfur valdur að ósigri sínum” Hinn ósveigjanlegi andi Crom- wells var risinn úr gröfinni og hafði tekið sér bústað í sál manns er Baldwin hét. Hér var ekki um þingræði að tala; það var siðferðismeðvitund þjóðar- innar og þingsins; hér var um svipað mál að ræða einsi og það er skeði á dögum Karls I. Ntí var enginn munur á jafn- aðar mönnum, frjálslyndum mönnum eða afturhalds mönn- um. Churchill og fáeinir aðrir reyndu að láta til sín heyra og mintust á hollustu við konung- inn; en þingið mætti orðum þeirra með kulda og reiði og lýsti því yfir að hollustan væri sjálfsögð gagnvart stjórnandan- um og konunginum ef hann væri trúr en ekki svikull embætti sínu. Lávarðarnir Beaverbrook og Rothemere innlásu letrið á veggnum og héldu að fólkið í landinu mundi krefjast þess að tillit yrði tekið til hamingju kon- ungsins persónulega. Þeir lýstu því yfir í fréttablöðum sínum að tímarnir hefðu breyzt og vér yrðum að taka tillit til þess. Þeir héldu einnig að sá tími kæmi áður en lyki að Baldwin yrði $ð engu gagnvart vinsældum þess manns, sem verið hafði átrúnað- argoð þjóðarinnar. Þar fóru þeir alveg villir vegar. Alt hrópið um “Konungsflokkinn” sem heyrðist í byrjun þessa máls, varð að engu og fólkið þyrptist utan um Baldwin en sú litla von, sem konungurinn kann að hafa haft var með öllu horfin. Mig langar til þess að taka það fram hér, að þótt Játvarður yrði að þola allskonar sársauka þá mun honum ekki hafa sviðið neitt sárar en það þegar talað var um að stofna “konungs- flokk” á móti þinginu. Þótt hann verðskuldi harðan dóm í sögunni þá hagaði hann sér með skynsemi og hollustu sem sönnum stjórnmálamanni og prúðmenni hæfir frá byrjun málsins og þangað til það var um garð gengið. Með þeim staðfasta ásetningi að gera ekkert sem kæmi í bága við stjórnarskrána “var hann valdur að sínum eigin ósigri”, en með því trygði hann staðfast þingræði. Annað atriði kom hér einnig til greina: í fyrsta skifti í sög- unni var leitað álits meðríkjanna um mál, sem áður hafði verið skoðað heimamál Englands ein- ungis. Fólkið á Englandi setti í fyrstu upp stór augu og var hissa; en eftir stutta athugun áttaði það sig og samþykti þessa | aðferð. Canada lýsti yfir skoð- un sinni á giftingu konungsins, sömuleiðis Ástralía, Nýja Sjá- land og Suður Afríka. Mr. Bald- win gat þá sagt við konunginn: “Stjórnir meðríkjanna eru á móti ætlun þinni.” Hér var um alveg nýja aðferð að ræða í öllu brezka ríkinu og fór svo vel fram að hvergi varð á töf né tálmi. Það var engin furða þó konungurinn horfði á allar þessar sambandsþjóðir, sem hann stjórnaði, þegar svona var komið og kæmist að þeirri nið- urstöðu að stríðið væri á enda; kirkjan var farin að láta til sín taka svo ekki varð um vilst; erki- biskupinn af Kantaraborg, sem æðsti maður ensku kirkjunnar tilkynti konunginum það að hann leyfði engum presta sinna að gifta hann. Til þess- að kóróna alt var að mæta hinum varjhelga skugga hinnar allra óþjóðleg- ustu stofnunar — kirkjmáladóm- ari konungsins, sem hefir vald til þess að ónýta hvaða hjóna- skilnað sem er innan sex mánaða frá því hann var veittur, ef hann 1 álítur að samsæri hafi átt sér stað eða ef umsækjandi skilnað- arins hafi gert sig sekan um hór- dóm áður en skilnaðurinn var veittur eða eftir það. Framh. Maður, sem oft varð mismæli,' kom inn í búð og hrópaði: “Mikil Englands vandræði. Nú kvað vera orðið vita kolalaust í hel- víti.”—Dvöl. FJÆR OG NÆR Mrs. Einar Ludwickson, 626 Victor St., hlaut rúmábreiðu “Fróns” með miða nr. 131; um ábreiðuna var dregið s. 1. mið- vikudagskvöld. * * * í dánarfregn Ó. S. Th. í síðasta blaði stendur að hann hafi orðið fyrsti æðsti templar stúkunnar Heklu 1890; á að vera 1888. * * * v R. H. Ragnar biður Hkr. að geta þess, að hann hafi æfingu með “Barnasöngflokkinum” í Sambandskirkju n. k. sunnudag kl. 3. e. h. Eru börnin beðin að minnast þessa. * * * Brynjólfur Björnsson 1171 Ingersoll St. Winnipeg, dó á King Edward spítala 26. febrúar. — Hann var 62 ára. Kona hans dó fyrir nokkrum árum, en hann lætur eftir sig uppkomin börn. Útför fór fram frá Sambands- kirkju í Winnipeg í gær, en með líkið var farið til greftrunar til Gimli. Séra Philip M. Pétursson jarðsöng. Hins látna verður minst frekar síðar. * * * Leikflokkur Sambandssafnað- ar er að æfa leikinn “Æfintýri á gönguför”, er leikinn verður ein- hverntíma á þessu vori. * * * í æfiminningu Eggerts Sigur- geirssonar í síðasta blaði, stend- ur: “Eggert var prýðilega vel gefinn maður; fagnaðarmaður, vinsæll og vel látinn”, en átti að vera: dugnaðarmaður o. s. frv. * * * Þorl Thordarson frá Árnes, Man., og Valgeir Thorláksson frá Camp Morton komu til bæjarins fyrir helgina. Þeir héldu heim- leiðis á mánudag. * * * Forstöðunefnd karlakórsins íslenzka biður meðlimi að sækja fund er haldinn verður miðviku- dagskveldið 10. marz í Jóns Bjarnasonar skóla. Nefndin. * * * Laugardagsskólinn er enn í góðu gengi; en nú er farið að líða á tímann sem hann stendur á þessum vetri. Þó æskilegt hefði verið að því nær allir nemendur hefðu sótt skólann frá byrjun hafa samt allir fengið upptöku hvenær sem þeir hafa komið. — Einn drengur byrjaði að nema þar íslenzku síðastliðinn laugar- dag og gerði hann tilsögninni frábærlega góð skil. — Næsta laugardag fá nemendur að sjá fallegar myndir. * * « Stefán Oliver, fyrrum heil- brigðisfulltrúi lézt 23. febrúar að heimili sínu 924 Banning St.. Winnipeg. Hann lætur eftir sig konu ásamt mörgum börnum. — Stefán var 74 ára, Húnvetningur að ætt, greindur maður og gam- ansamur. Hann var einn þeirra fslendinga er þátt tóku í stríðinu 1885 hér í Vestur-Canada. * * * The annual contest for the Ice- landic Millenial Trophy will be held at Selkirk the latter part of March. Player requirements are: (a) Age limit, 18 years and under. (b) Each team must carry at least six Icelandic players. The committee desires all en- tries be sent to B. E. Olson, 819 Somerset- "Bldg., Winnipeg, by Monday March 8th. Following receipt of entries committee will advise all contestants of actual date of play-off. Páll Reykdal fiskikaupmaður lagði af stað í gærkveldi suður til Minneapolis, Chicago, Detroit, Windsor og Toronto. Býst við að verða 9 til 10 daga í burtu. Einar Þorsteinsson frá Leslie, Sask., kom til bæjarins fyrir tveim vikum og dvelur hér. * * * Heimilisiðnaðarfélagið heldur næst fund sinn á miðvikudags- kvöldið 10. marz að heimili Mrs. G. H. Gillies, 923 Warsaw Ave. Fundurinn byrjar kl. 8. e. h. * ♦ * Afmælishátíð Templara er annað kvöld (Fimtudag). Búist er við að allir meðlimir komi. Samkoman byrjar kl. 8. FLEYGAR Það eltir maður slóðina mína. Mörgum getum er að því leitt hversvegna hann sé að því. — Helsta niðurstaðan er sú, að hann geri það til þess að standa ekki kyr. -§— Eg er að hugsa um að hætta að fara á undan og láta náung- ann brjóta brautina sjálfan — og sjá hvað hann kemst. —§— 111 meining breytir ekki einum staf í bók örlaganna. —§— Það er til saga um mann með gul gleraugu. Sporgöngu mað- urinn hefir einhverstaðar náð í þau. öll tilveran verður gul þegar hann hvessir á hana aug- un. -§— Sumir eru of stuttir, sumir of langir, sumir of sverir, sumir of mjóir — og svo er meiri og minni fúi í þeim öllum saman. Það fer alt af svona þegar menn eru að reyna að gera það, sem þeir geta ekki. -§— Sumir segjast ekki skilja síð- ustu fleyga. í>að sýnir að þeir hafa ekki haft svo mikið við að lesa skrif sporgöngu mannsins. -§— Roosevelt er talinn einskonar endurlausnari Bandaríkjanna. — Sagan segir að hann hafi hóað mörg þúsund svínum fram af björgum af kærleika til þeirra sem ekkert höfðu. Kærleikur- inn verður stendum að fara úr híólínsbrókum meðaumkunarinn- ar og girðast buxum hermanns- ins til þess að koma verki sínu í framkvæmd. -§— Sporgöngumaðurinn vill held- ur trúa því að Kristur hafi hleypt djöflinum í “saklaus svín- in”, en að hann hafi gengið á há- skóla. —§— Boðskapur Jesú Krists ber þess merki að hann sé endur- hljómur frá hærri menning á jörðu hér en vestræn saga getur sýnt í fórum sínum. Þau merki verða ekki lesin með gulum gler- augum. —§- Það er leiðinlegt að sjá mann- inn alt af vera að berja, en hitta aldrei naglann á höfuðið. _-§— Það eru til menn, sem aldrei heyra neitt fyrir hávaðanum í sjálfum sér. J. S. frá Kaldbak Konan þráir að giftast þeim manni, sem hefir dregið hana á tálar, það er ekki lélegri hefnd en hvað annað. Beaumanoix * * * Borgið Heimskringlu

x

Heimskringla

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimskringla
https://timarit.is/publication/129

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.