Heimskringla - 07.04.1937, Blaðsíða 8
8. SÍÐA.
HEIMSKRINGLA
WINNIPEG, 7. APRÍL 1937
Við gullbrúðkaup
MR og. MRS. C. P. PAULSON á GIMLI
16. mar 1937
Að hafa lifað hálfa öld
Við hugðnæmt hjónaband:
Það öllum finnast örlög völd
Og ágætt lífsins stand; \
Við arð og mátt á ýmsan hátt,
Um unnið heimaland. ♦
Að leiðast þannig lífsins ár,
Er lán, sem fagna má;
Og all-flest græðir sviðasár,
Um svifin stór og smá;
Á greindri braut, við gæfu og þraut,
Er gjöfin tign og há.
Því látið hvarfla hug til hans,
Sem heill þá fögru gaf,
Og einn er vörður anda manns,
Um eilíft tímans haf;
Mpð glaðri lund á góðri stund
Og gefinn trúarstaf.
Og sveitin þakkar samhygð þá,
Er sýnduð farna leið.
Og kjörlands grund þess minnast má,
Við merkin björt og heið.
Og verði hér hvað eftir er,
Eins örlög frjáls og greið.
Jón Kernested
FJÆR OG NÆR
Sækið messurnar
í Sambandskirkjunni
Tvær guðsþjónustur fara fram
á hverjum sunnudegi á ensku kl.
11. f. h. og á íslenzku kl. 7 e. h. í
Sambandskirkjunni í Winnipeg.
Prestur safnaðarins messar við
báðar guðsþjónusturnar næst-
komandi sUnnudag, — og ræðir
um alvarleg og þýðingarmikil
málefni. Tflraunin sem gerð
hefir verið til að efla kirkjusókn
yfir apríl mánuð sýndi ágætan
árangur síðastliðinn sunnudag,
og er vonað eftir að aðsóknin
aukist enn að mun.
* * *
Séra Guðm. Árnason messar á
Oak Point 11. apríl á venjuleg-
um tíma.
HVER ERU VAND-
KVÆÐI YÐAR?
LEITIÐ TIL JANE DEE
ÞVI að vera að bera áhyggjur
út af móðnum þegar alt sem þér
þurfið a<i gera, er að skrifa Jane
Dee og láta hana ráða fram úr
vandamálum yðar?
Vorið er komið! Meginhluti
kvenna er að hrjóta heilann um
hvaða atriði snerti móðinn. Að
hve miklu leyti breytir krýning-
arhátíðin móðnum í vorklæðn-
aði? Hvemig má breyta sama
klæðnaði svo hann liti út sem
margskonar? Hverju á að klæð-
ast svo maður virðist hærri eða
lægri? Ef til vill er tilvonandi
brúður að velta fyrir sér hvaða
móð hún skul velja sér í kjól,
eða lit, fyrir prívat- eða heima-
húss eða kirkju-giftinguna sem
hún er að undirbúa. Tengda-
móðirin er, ef til vill, lika að
hugsa um í hverju hún eigi að
vera við þetta tækifæri. Eða í
hverju á að vera ef þetta er i
öðru skifti sem þér standið fyrir
altarinu? Eða hvaða ferða-
klæðnað þurfið þér fyrir sum-
arið?
Um þessi og hver önnur vanda-
mál sem eru, skal eg með á-
nægju leiðbeina yður hvenær
sem er.
EATON’S
Laugardags-skemtun
fer enn fram á hverju laug-
ardagskveldi í samkomusal Sam-
bandssafnaðar. Þar er margt til
skemtunar og gamans — spil,
kaffi, söngvar, leikir og gamal-
dags dans. Dregið verður um
verðlaun. Hvað er svo glatt sem
góðra vina fundur! Komið og
skemtið ykkur!
* * *
Séra Jakob Jónsson messar í
Mozart n. k. sunnudag (11. apríl)
kl. 2 e. h.
* * *
Haraldur J. Guðmundsson,
Wynyard, Sask., dó s. 1. föstudag
af brunasárum, er hann hlaut 20.
marz, er kviknaði í húsi hans og
hann og kona hans skaðbrunnu.
Haraldur var 26 ára, giftur 1935,
og hafði hveitimylnurekstur með
höndum. Jarðarförin fór fram í
gær. Yfir moldu hans mæltu
séra Jakob Jónsson og séra H.
Sigmar frá Mountain.
* * *
Sr. Jón Sveinsson
Nokkur breyting varð á ferða-
áætlun hans. í staðinn fyrir að
sigla frá San Francisco 18. feb.
eins og áður hafði verið gert ráð
fyrir þá brá gamli maðurinn sér
til Los Angeles, Hollywood,Santa
Barbara, Los Catos, Oakland og
Santa Clara háskóla.
Flutti hann fyrirlestra á þess-
um stöðum, alla um fsland eða
íslenzk efni — hvarf hann svo
aftur til San Francisco og tók
sér far með “Chicobu Maru”
japönsku línuskipi 4. marz.
Síðast fréttist af honum —9.
marz — í Honolulu, segist vera
að leggja á stað í keyrslutúr að
skoða þá jarðnesku paradís —
svo eigi hann eftir ellefu daga
ferð til Japans.
f Tokio verður hann gestur
kaþólsks háskóla sem þýzkir
Jesúítar hafa stofnað þar í borg-
inni. Hann biður kærlega að
heilsa Winnipeg-íslendingum.
F. S.
* * *
Barnasamkoma
Eins og getið hefir verið um í
undanförnum blöðum verður
barna og unglingasamkoma hald-
in í Fyrstu lútersku kirkju föstu-
dagskvöldið þ. 9. apríl. Er sam-
koma þessi í sambandi við laug
ardagsskóla Þjóðræknisfélagsins
og barnablaðið “Baldursbrá”. Er
samkoma þessi tilbreyting frá
því sem fólk á að venjast hér að
því leyti að aðeins börn og ungi-
ingar koma þar fram. Hefir ver-
ið kappkostað að gera skemti-
skrána sem bezt úr garði og má
sérstaklega minnast á tvo barna -
flokka sem undan farið hafa ver-
ið að æfa ný sönglög fyrir þetta
tækifæri.
Á laugardaginn kemur 3. aprí!
eru börnin er sækja laugardags-
skólann, mint á að þá hefst skóh
að nýju eftir páska, kl. 9.30 að
morgni. Verður þá öllum börn-
unum að skólatíma loknum
gefnir aðgöngumiðar að “ROSE”
Ieikhúsinu.
Samkomunefndin
* * *
Friðrik Sveinsson, málari sem
var skorinn upp á Almennaspít-
alanum snemma í marz er nú
kominn heim fyrir nokkru og
heilsast eftir öllum vonum. —
Skurðurinn tókst vel.
* * *
Gott og bjart framherbergi til
leigu án húsagagna. 591 Sher-
burn St., Sími 35 909.
* * *
Dr. A. B. Ingimundson verður
staddur í Riverton þriðjudaginn
13. apríl.
* * * s
Stórstúkuþing
Þing stórstúku Manitoba og
Norðvesturlandsins af I. O. G. T.
verður haldið dagana 14. til 15.
apríl-mánaðar í Goodtemplara-
húsinu á Sargent Ave. Þingið
fer fram ofurlítið seinna en
vanalega, en ástæðan fyrir því
var bruni G. T. hússins. Væntir
þingið að allir góðir Goodtempl-
arar fjölmenni og sýni með því
þátttöku sína í því starfi, sem
Goodtemplarar hafa með hönd-
um.
ISLANDS-FRÉTTIR
Falsaðir tveggja króna
peningar í umferð
Rvík. 11. marz
Nýja dagblaðinu bárust ný-
Iega fréttir um það, að fundist
hefði í skiptimynt hjá ríkisfé-
hirði tveggja króna peningur,
sem allar líkur bentu til að væri
falsaður.
Blaðið sneri sér því til lög-
reglustjóra og spurði hann um
hvort lögreglunni hefði borist
nokkur vitneskja um það, að
slíkir peningar myndu vera í um-
ferð.
Skýrði lögreglustjóri svo frá,
að fyrir nokkru hefði lögreglunr.i
borist þrír tveggja króna pening-
ar, sem allar líkur bentu til að
væru falsaðir. Var einn þeirra
því sendur til efnagreiningar á
efnarannsóknarstofu ríkisins.
Athugun efnarannsóknarstof-
unnar leiddi það í ljós að pening-
urinn var frábrugðinn hinum
venjulegu peningum, bæði hvað
snertir stærð og efnasamsetn-
ingu.
Þvermál þessa penings var
27.3 mm., en þvermál venjulegs
penings er 27.85 mm. Þykkt
(rönd) þessa penings var 2.25
mm., en þykt venjulegs penings
er 2.40 mm.
Stórum -'meiri munur var þó á
efnasamsetningunni. Kopar var
miklu minni í hinum falsaða pen-
ÍSLENZKAR BÆKUR
Þyrnar Þorst. Erlingssonar 2.00
(Agætt sklnnband, niðursett verðj
Norður-Reykir (P. S. Pálsson)
í kápu $1.50, í bandi...2.00
Að Norðan (Davíð frá
Fagraskógi) ..............2.00
(Síðasta Ijóðabók höfuðskálds isl.)
Þrjú nóteruð sönglög:
“Mig- hryggir svo margt”,
(eftir ölaf Halison) ....*..35c
“Dauðsmanns sundið” og “1
dalnum”, hvert .............50c
(bæði þessi lög eftir Björgv. Guðm.)
Karl Iitli (J. Magnús
Bjarnason) .................2.00
Framhaldslíf og nútíma
þekking ....................2.50
(Séra Jakob Jónsson)
Og björgin klofnuðu
(niðursett verð) ...........2.00
(Jóhannes úr Kötlum)
Tímjritið “Dvöl”, 400 bls.
á ári.......................2.00
Rauðir pennar, ársrit;
með myndum .................2.00
Þú vínviður hreini,(Laxnes) 2.00
Fuglinn í f jörunni (Laxnes) 2.00
Báðar þessar skáldsögur í góðu
bandi, mjög niðursett verð.
Sunnefurnar þrjár
(Margit Rafn) ..............l./þ
Eins og allar hinar
(Margit Rafn) ..............1.75
Davíð skygni, eft. Jónas Lie 1.5Q
(höfundurinn einn hinn þjóðkunnasti
skáldsagnafrömuður Dana)
Gríma, 11. bindi.................75
Gráskinna, 4. bindi..............75
Þáttur af Halli Harða ...........85
(Saga frá 17. öld, eftir Jónas Rafnar)
Skáldverk eftir
Jakob Thorarensen:
Fleigar stundir, skájdsögur.1.50
StiUur, Ijóðmæli............1.00
Kyljur, ljóðmæli .............75
(AUar þessar bækur i bandi)
Land og lýður (Sigurður
• frá Yztafelli) ..............2.50
(Agæt bók, nær 300 bls.,
fjöldi af myndum)
Æfisaga Gunnars Þor-
bergssonar) ..................75
Frá öðrum heimi (samtal dáins
sonar við föður sinn) ........85
Mikilvægasta málið í heimi .60
(Ranmsóknir dularfullra fyrirbrigða)
Póstgjald talið með í verði
hverrar bókar
Svo mælist eg til þess, að þeír
sem skulda mér fyrir bækur eða
tímarit sendi mér póstávísan
tafarlaust.
MAGNUS PETERSON
313 Horace St. Norwood, Man.
BARNASAMK0MA
undir stjórn Þjóðræknisfélagsins í
FYRSTU LÚTHERSKU KIRKJU
Föstudagskvöldið, 9. apríl 1937
Byrjar kl. 8 e. h. Inngangur 25c
Fyrir börn innan 15 ára lOc
1. Ávarp forseta............Bergthor Emil Johnson
2. Barnakór...............undir stjóm R. H. Ragnar
3. Framsögn.................... Lorraine Jóhannson
3. Piano solo................................Thora Ásgeirsson
5. Framsögn......................Tom Finnbogason
6. Fiðluspil........................Raymond Beck
7. Piano solo.................... Allan Halderson
8. Framsögn..........................Lilja Johnson
9. Barnakór...............undir stjóm R. H. Ragnar
10. Gestir frá íslandi (samtalsleikur með upplestrum,
framsögn og söngvum).
DO YOU PLAY
0 BRIDGE? 0
The Junior Women of the First
Icelandic Federated Church cordi-
ally invite you and your friends to
play Bridge Saturday nights, start-
ing February 20th in the Church Parlors, Sargent and Banning.
Unusual prizes being offered.
Refreshments served, followed by sing-song and dancing. Come and
enjoy a real sociable evening with your friends.
ADMISSION 25c Bridge starts 8:15 sharp
Kjörkaup á Islenzkum mat
Harðfiskur.....18c pundið
Kryddsíld......25c dósin
Mjólkurostur ... 40c pundið
Pöntunum utan af landi veitt
skjót afgreiðsla.
Einnig til sölu hjá:
West End Food Market
sími 30 494
og
Kjartan ólafsson, Lundar, Man.
G. FINNBOGASON
-Síipi 80 566 641 Agnes St. Wpg.
ingi og í hann vantaði bæði al-
uminum og nikkel. Hinsvegar
var í honum mikið af zinki
(30%), en af því er ekkert í hin-
um löglegu peningum.
“Við athugun með stækkun-
argleri”, segir ennfremur í áliti
efnarannsóknarstofunnar, “sést
líka á ýmsu, að hér getur ekki
verið um löglegan pening að
ræða”.
Lögreglan hefir gert töluverða
eftirgrenslan í sambandi við
þessa peninga, en árangurslaust.
Þau dæmi, sem hér hafa verið
nefnd, benda til að eitthvað muni
vera hér í umferð af fölsuðum
/
VERZLUNARNÁMSKEIÐ
Þjóðræknisfélag íslendingá í
Vesturheimi hefir til sölu nám-
skeið við alla höfuð verzlunar-
skóla bæjarins með vægum
kjörum. Ungt fólk er hefir i
huga að leggja fyrir sig verzl-
unarnám ætti að leita upplýs-
inga um iþetta. Talið við eða
símið: Á. P. Jóhannsson, 910
Palmerston Ave., sími 71177.
“THERMIQUE HEATERLESS
PERMANENTS”
THE ERICKSON’S
BEAUTY PARLOR
950 Garfield St.
Open 9—6 p.m. Phone 89 531
MESSUR og FUNDIR
i kirkju SambandssafnaOar
Messur: — á hverjum sunnudegi
Kl. 11 f. h. á ensku
Kl. 7 e. h. á íslenzku.
SafnaBarnefndin: Funálr 1. íöstu-
deg hvers mánaðar.
Hjálparnefndin: — Fundlr fyrata
mánudagskveld I hverjum
m&nuðl.
KvenfélagiO: Fundir annan þrlðju-
dag hvers mánaðar, kl. 8 að
kveldinu.
Söngæfingar: Islenzki fcöng-
flokkurinn á hverju fimtu-
dagskvöldi.
Enski söngflokkurinn á
hverju föstudagskvöldi.
Sunnudagaskólinn: — A hverjum
sunnudegi, kl. 12.15 e. h.
peningum, en ekki getur það þó
verið nema í litlum stíl, þar
sem þeirra hefir orðið jafn óvíða
vart.
En þrátt fyrir það er full á-
stæða fyrir fólk að gæta varúðar
í þessum efnum og gera lögregl-
unni aðvart, ef það kynni að
verða vart við peninga, sem ætla
mætti að væru falsaðir.
THOR GOLD
Mining Syndicate
NAMURNAR ERU 20 MILUR
AUSTUR AF KENORA, ONT.,
VIÐ ANDREW FLÓA —
LAKE OF THE WOODS
Félagið hefir umráð á 400
ekrum í námulandi við Andrew
Bay, Lake of the Woods í Ken-
ora-umdæml.
Sýnishom af handahófi í nám-
imni hafa reynst frá 50c upp í
$40,000 úr tonninu og í Channel
Samples eru frá 60c upp í $60.00
í tonninu.
KAUPIÐ NÚ—
| A $10 HVERT UNIT
(300—500 hlutir í Unit)
Thor Gold Mining Syndicate
Head Office: 505 Undon Trust
Bldg., Winnipeg Man.
Ráðsmenn:
Forseti: M. J. THORARINSON
370 Stradbrooke St., Winnipeg
Skrifari og féhirðir:
SKCrLX BENJAMINSON
Whittier St., St. Charles, Man.
'OCCCOGOBCCCCCCCCCCCOCCGOCOCCOCOOCOCCGOOOSCOOOOGOCCOrV
I
Canada Bread Co. Ltd. |
Hefir nú á boðstólum, fyrir húsfreyjur, sem vandlátar eru
með meðhöldun á mat, nýja tegund af
RÚGBRAUÐI í tárhreinum
umbúðum
flutt með vögnum félagsins út um bæinn
eða í matvörubúðunum.
ÞÉR GETIÐ FENGIÐ ÞETTA
NÝJA RÚGBRAUÐ
^ vafið í loftheldum pappír, sneitt eða ósneitt |
Það helzt nýtt og ferskt í umbúðunum
því þær eru tvöfaldar
Pantið nú strax eitt brauð hjá matvörusalanum sem
þér skiftið við. Það kostar aðeins 7c. Það er holl of
Ijúffeng fæða.
Canada Bread Co. Ltd.