Heimskringla - 28.04.1937, Blaðsíða 2
2. StÐA
HEIMSKRINCLA
WINNIPEG, 28. APRÍL 1937
BRÉF FRÁ ISLANDI
Fagurhólsmýri,
15. febr. 1937.
Kæri góði nábúi fyrir nálægt
40 árum, Bjarni Sveinson!
Eg þakka þér ástsamlega þitt
góða, greinilega og fréttaríka
bréf frá 1. des. ’36 og svo 2
Almanök ó. S. Th. 1935—36, og
afmælisblað Heimskringlu, sem
eg meðtók alt með ágætum skil-
um 17 fyrra mán. Þetta alt er sú
besta sending sem eg hefi fengið
í tilefni af 85 ára afmæli mínu
__.f. 19. sept. 1851.—Þetta alt frá
þér er bin vinsamlegasta gest-
risni sem þú hefir veitt mér, því
þetta er ekki af verðleikum, síð-
ur en svo. — Eg er ófær að
skrifa, hefi ekki sjón nema á
hægra auga, sjóntaugin biluð á
hinu, þótt lítið sjáist á að utan,
hefi ekki gleraugu sem eiga við,
en get lesið, og haft ávalt eitt-
hvað milli handa mér til ánægju,
því letin er lifandi dauði. — Þú
fræðir mig um marga, mér kunn-
uga menn sem var ánægja að
minst var á, sem eg ætla að
nefna síðar.
Þú ætlaðist til að Ingibjörg þín
húsvitjaðir sveitina, og segðir
þér svo frá öllu sem greinilegast
— því sjón er sögu glöggvari —
en hún gat ekki komið hér, svo
eg verð nú að reyna að fara með
þér dálítið um sveitina, og byrja
“boðleið rétta” í Kvískerjum: —
Þar býr Bjöm Pálsson og Þrúður
Aradóttir, með 8 bömum sínum:
Flosa, Ara, Sigurði, Guðrúnu
eldri, Guðrúnu yngri, Ingimundi,
Helga og Hálfdani, aldursröðin
er: — 57—53—30—28—26—15
—11 og 9 ára, — öll hraust
og vel gefin. Flosi hefir lært
sjálfur heima af bókum ensku,
dönsku og eitthvað í þýzku.
hann hirðir vel kál- og kartöflu
garða og blómreiti og fleira. Ari
smíðar hús og þiljar þau og
fleira, er mjög sauðglöggur, Sig-
urður er allmikill dýrafræðingur,
og jafnvel skordýra. Þau eru
öll uppbyggileg og mjög góð börn
sem öllum er þekkja þykir vænt
um. Þar oft mannkvæmt, allir
ferðamenn koma þar og margir
gista. Þar er all vel hýst, svo al-
þingismaðurinn í Hólum segist
óvíða hafa komið í betri bað-
stofu. Þar er símastöð, móttaka
frá útvarpi Reykjavíkur, rafstöð,
Helgi hefir sett hana upp og
smíðað túrbínuna. Þar er vatns-
leiðsla ofan af Bæjarskeri — á-
gætt vatn, þrýtur ekki, pípu-
lengd er 520 fet í fjós og eldhús.
Túnið alt girt vírneti, og orðið
allvel ræktað, eirúthey sótt hing-
að í Mýrar engjar og flutt á 5
vögnum sem hann á, og varð —
eftir tillögum Helga — fyrstur
hér í sveit til að flytja þann’ig.
Nú flytja allir hér í sveit alt á
vögnum. Björn hefir vatns-
millu, og malar nokkuð af korn-
mat, en kaupir samt eitthvað af
mjöli, en heimamalað er betra.
Hann hefir 14 geitur sem mjólka
vel. Refabú — það eina í sveit-
inni — 2 refabúsgirðingar.
Þá verð eg að koma með þér
að Austur-Hjáleigu, þar býr
Guðrún Þorláksdóttir ekkja Þor-
steins yngra — Þorsteins Páls-
sonar, 63 ára með sonum sínum:
Páli barnakennara 27 ára, af-
bragðs vel gefnum, og Gunnari
33 ára einnig vel gefnum. Þar er
vel hýst og ein rafstöð austur á
Veitum, sem að eiga Austur og
Vestur-Hjáleigu búendur, Gísli
Jónsson og Stefán Þorláksson og
Jón Þorsteinsson fær ljós þaðan.
f Vestur-Hjáleigu býr Jóhann,
55 ára son Þorst. Pálssonar þar.
Kona hans Guðrún 44 ára er
dóttir Jóns Árnasonar, eiga 3
pilta 18, 15 og 12 ára, svo er
Sigurður Þorsteinsson fyr bama-
kennari 67 ára, Stefán 60, Guðný
71 ára, Halldóra 63 ára — 9
menn, þar er einnig vel bygt,
og í góðu lagi.
Gísli Jónsson, frá Breiðutorfu,
51 ára, býr þar sem Bjarni Páls-
son var, Guðný hans kona Páls-
dóttir 47 ára, eiga 4 böm: 1 pilt
og 3 dætur, 9 til 18 ára, og einn
vinnumann 47 ára. Það er frem-
ur efnað heimili. Helgi smíðaði
túrbínuna og gekk frá öllu þar
tilheyrandi. Þá er Stefán Þor-
láksson 58 ára og Ljótunn Páls-
dóttir 54 ára, eiga 3 pilta og 3
stúlkur: 13 til 25 ára, hraust og
vel gefin, hafa gott bú. Vestan
við lækinn búa 2: óli Jónsson 38
ára, einhleypur, faðir hans Jón
Árnason 86 ára, fór á milli með
heykerrur í sumar leið af engj-
um, Þorbjörg systir óla 79 ára,
Þórey systir þeirra 38 ára,
Katrín móðir þeirra 70 ára; 5
menn í heimili. óli keypti jarð-
arpartinn, og kemst fremur vel
af. Þá er Jón Þorsteinsson og
Ingunn systir hans, ekkja eftir
Gísla Bjarnason. Jón er ógiftur
53 ára, Guðlaug móðir hans 79
ára blind, Sigríður Þorsteins-
dóttir 56 ára, Ingunn Þorst.d. 47
ára börn hennar 5, 13 til 19 ára.
Það eru 2 piltar og 3 stúlkur, Jón
hefir rafljós frá þeim sem eiga
stöðina, þau komast vel af.
Þá skulum við halda að Mýr-
inni. Fyrsta rafstöðin í sveitinni
var hér sett upp 1922. Vélin 12
hesta afla, hefir gengið nætur og
daga 1 15 ár til suðu ljósa — 45
ljós — hitunar og fleira, til ó-
metanlegra þæginda og verka-
sparnaðar, fyrir okkur og neðra
bæinn. Kýrnar hafa 2 Ijós allar
nætur, því ekki þarf að spara
þau. Stöðin er niðri, vestan við
klyfið, gerður skurður frá lækn-
um gegnum túnið vestur, móts
við Grasklyf, vatnið fer þar nið-
ur 17 metra fallhæð í stöðina.
Þar niðri eru 2 hús með járn-
þaki, stöðvarhúsið og annað. Þar
á Helgi rennibekk úr stáli frá
Þýzkalandi er kostaði 12 eða
1300 kr. gengur fyrir vatnsafli,
og fleira. Hefir hann smíðað 13
renni-öxula í vagna og túr-
bínur — þar af fimm — fyrir
Have the Business
POINT OF VIEW
T
•
Dominion Business College students have the advantag}
of individual guidance in the all-important factors of
business personality, conduct, and approach.
No matter how thoroughly you know the details of
office work, you must be able to sell your services,
and this is now just as much a part of Dominion
training as Shorthand, Typewriting, Bookkeeping, or
any of the other courses in which Dominion leader-
ship has been recognized for over twenty-five years.
Business is better! Employment is increasing!
Prepare for it.
DOMINION
BUSINESS COLLEGE
On The Mall
and at Elmwood, St. James, St. John’s
utan sveitar menn og selt mikið
lægra en útlendar túrbínur og að
mestu gefið þeim fátækustu. —
Eina rafstöð setti hann upp á
Melrakkarnesi í Álftafirði fyrir
tvö heimili. Smiðjan er snúin af
smá mótor, á henni er gamall
skilvindu skrokkur, með tilgerð-
um spjöldum sem snúast ört, og
þeyta vindi í pípu er gengur
undir eldstæðið og upp í það. —
Mótorinn snýr mikið hraðara en
maður og er því fljótara að hita
þegar steypt er kopar eða hvít-
málmur, í túrbínur og fleira.
Túnin hafa mikið stækkað á
báðum bæjunum, öll slétt og vél-
tæk. Er rakað þegar hirt er,
með rakstrarvél og dregið að
hlöðum á hestum, með heyborði
og aktýi á hestunum. Túngarð-
ar eru nú í burtu, vegna útfærslu
túna, en gaddavír alt í kring. —
Girt tún er niðri frá Blesakletti
vestur í vestri Lambhúsklett,
sem bæði heimilin eiga, búið er
að græða allstórt tún þar efra á
mýrinni í þétta þýfinu, var sax-
að í sundur með Haukmó herfi,
með 3 hestum fyrir, og svo nót-
arherfi, síðan valtrað og borið i
sauða skán og fleira — því engu
þarf að brenna — svo er þetta
orðið gott tún á öðru, en einkum
á þriðja ári. Búið er að hækka
svo veginn upp klyfið, að kerru-
vegur er upp með hey og fleira,
heyband er nú stærra en áður, 4
baggar hafðir á kerru. Nú er
upphleyptur vegur frá bæjar-
læknum að Gljúfursá. “Skaft-
fellingur” mótorbátur 60 tonna
flytur hingað vörur frá Reykja-
vík, og fer héðan þangað með
þær vörur er seldar eru, og ull
í lopa til “Álafoss” og er spunn-
inn mest í 22ja þráða spunavél,
er sveitin keypti á 700 kr. Helgi
smíðaði nýjan vefstól, sem heim-
ilið á. Vaðmálið úr honum er
rúmur metar breitt þæft. Einn
hnakk hefir hann smíðað sér, og
lítur út eins og eftir hnakka-
smið.
Vöruhús er vestan undir Salt-
höfða 24. ál. langt 10. ál. breitt
með járnklæddri framhlið 24. ál.
með grjótvegg á norðurhlið, og
öðrum stafni. Nóg er þar af
góðu hleðslugrjóti nærtækt.
í eystri enda hússins er slátr-
að á haustin það sem selt er í
Reykjavík, nú 90 tunnur kjöt.
Jón Oddson á Hofi er aðal beyk-
irinn. Einn hefir aðal verk að
skjóta í.einum klefa við aflífun,
aðrir að flá og hirða, salta og ann
ast kjötmatið. Þetta hefir lukk-
ast vel, og fengið gott orð á sig.
Báturinn legst nálægt f jöru þeg-
ar stilt er í sjó, fram af Dælu-
fit, og sézt því vel hér frá bæjar-
dyrum. Góð brú úr timbri er
yfir kýlinn vestan Salthöfða, og
hlaðið beggja megin við, úr
grjóti og kökkum. Vörum öllum
er ekið á kerrum að og frá hús-
inu af fjörunni, vatn ekki til
skaða á leiðinni. Nautgripir og
stundum sauðir—lifandi—hafa
verið sendir með bátnum héðan,
að seljast til R.víkur. Héðan út
á fjöru 1^4 tími með kerrur og
er því sem tekið við bæjardyrn-
ar, miðað við löngu kaupstaðar-
ferðirnar. Nú er hér slegið í
útjörð það besta — síðan taðan
jókst, er slegið með grind á
hjólum — kölluð rakstrakona —
alt verður þá í rökuðum skára,
ekkert strá eftir nema í skáran-
um. f svæðum, er slóðinn hafð-
ur svo langur, að hestar fari ekki
út í nema á góðum vegi, og 2
hestar með aktýjum fyrir, koma
heyinu upp á bakka. Á mörgum
heimilum eru steyptar súrheys-
gryfjur. Hér á bæ er öll háar-
taða tekin af Ijánum og sett í
gryfju, er svo reynist besta
kraftfóður handa kúm verður
mjólkin þá með ljósrauðum lit
eins og sumar mjólk. Víða eru
steyptar lögforir er rennur alt
þvag í frá steyptum flórum i
fjósum, og er besti áburður. —
Helgi hefir smíðað 2 smávélar er
ganga fyrir vatnsafli, aðra hér
— og hina handa Nesinu — sem
þrýsta vatninu eftir pípum, frá
læknum í vatnsgeyma, upp á loft
í húsinu, og er tekið úr krana í
eldhúsi. Vaskar er undir, er
svo rennur úr eftir pípum í lög-
for, annar' vatnsgeymir er í
fjósi. Vatnsleiðslur eru að kalla
á öllum heímilum í sveitinni. —
Þetta alt er til afarmikilla þæg-
inda.
Þá er fólkið hér í bæ: Ari
Hálf. 85 ára; Sigurður Arason
49; Halldóra Jónsd. 44 ára. —
Þeirra börn: Guðrún 11, Halldór
8, Ari Benedikt 7, Tryggvi 5,
Nanna 2 ára. Helgi Arason 47
ára Ingunn Arad. — tvíburi frá
Sigurði — 49 ára, Páll sonur
Björns á Kvískerjum 22 ára —
spilar á orgel í kirkjunni; Rósa
16 ára — tekin af fátækum hjón-
um í R.vík, þá á 5. ári; alls tólf
manns. Svo í neðri bænum Jón
Jónsson 49 ára, Guðný Arad. 49
árá — dáin 4. janúar, börn
þeirra: — Ari 15 ára, Guðrún
14, Guðjón 12, Jóhanna Þuríður
11 ára Sigþrúður 7, Sigurgeir 4
ára, Gústaf Albert 3 ára, Sigríð-
ur á y. ári, Einar Jónsson 66 ára
bróðir bónda. öll eru börnin vel
gefin og frísk. Búið er að þurka
mýrina vestan túnið þar og
slétta, svo alter tún, og öll girð-
ingin fyrir vestan sem nú til-
heyrir neðribænum. Jón og
Björn á Kvískerjum keyptu
hálfa Mýrina, allan Þorvarðar
partinn fyrir 14 þús. kr., og bún-
ir að borga hann 7. þús. kr. hver.
Björn á þar væna heyhlöðu með
súðhellu á mitt þak, en þakjárni
að ofan og torf yfir svo snjór
smjúgi ei einn. Þar hjá er hest-
hús með þaki sem á hlöðunni —
með steyptum flór og 5 básum.
Við skjólið á hann 2 fjárhús og
svo í hellinum frá gengið skýli,
svo hlöðu járnþakta og stóra súr-
heysgróf steypta. — Hefir með
Haukmóherfi sléttað þar tún.
Hefir þar ær um tíma á veturnar.
Jón á 2 f járhús og 1 hlöðu fremst
í veitunni hér niður af. — Hér á
bæ er símastöð, radíó, og veður
athugun og er tekin 4 sinnum
daglega á hverju ári, en símað
þrisvar á dag. — Viti er í
Ingólfshöfða síðan 1916. Sig.
Arason sér um hann. Þangað er
héðan 2 kl.tíma lestagangur. —
Hans er vitjað vikulega á 10
mánuðum, en slökt 2 mánuði. Þá
komum við að Nesi, þar er raf-
stöð í gilinu austan bæjar og vél
er þrýstir vatninu í geymira í
eldhús og fjós, túnið er alt girt
með vírneti, og er stækkað og
allmikið sléttað svo taða hefir
mikiðaukist. Fólkið nú: Guðrún
ekkja 69 ára; Bjarni 37 ára son
hennar; Lydía Pálsd. 37, börn
þeirra: Sigurður og Guðrún 4 og
1 ára. Vel hýst og gott bú; Guð-
Iaug Sigurðardóttir 42, ekkja;
Guðgeir fósturbarn hennar 3
ára; Steinunn systir hennar 38
ára ekkja; Sigrún, 4 ára Þor-
steindóttir og hennar; Helgi
Stefánsson 16 ára; Steindór
smiður Sveinsson Árnasonar 46
ára. Gott heimili vel húsað og
heyskapur nógur vegna vatns-
veitinga úr Gljúfursá og tún-
bóta. — Hof: Þorsteinn Giss-
ursson 72 ára; Sigrún 71 árs,
börn þeirra: Jórunn, Gróa,
Gunnar, 41, 40, 28 ára; Þorleifur
Pálsson 35; Pálína 33, börn: 1, 2
ára. Finnbogi Einarsson 72 ára;
Halldóra Eyjólfsd. 68 ára, börn-
in: Guðný og Sigurður 35—38
ára. Þar er rafstöð og radíó,
mjög vel hýst — Þorlákur Jóns-
son 75 ára, Sigríður Eyj.d. 67
barn laus. Magnús Þorsteinsson
Gissurasonar vinnumaður 39
ára; Bergur bróðir hans 33, Pála
30 ára, þeirra börn 4, eitt til 6
ára. Þar rafstöð, radíó og
lengsta vatnsleiðslan í sveitinni
eitt þús. fet, vel hýst og með
bestö heimilum. Lækjarhús:
Karl Magnússon 51 ára; Sigríður
Pálsdóttir 49; börnin 3, 6 til 17
ára, Þorsteinn bróðir bónda 52
ára, þar er radíó. Rafstöð eiga í
félagi 3, Karl, Þorlákur og Kot-
bræður. Vel húsað og að öðru
gott heimili.
Fyrir vestan læk, þar sem
Eiríkur Rafnkelsson bjó fyrri,
með Steinunni. Nú á þann jarð-
arpart Oddur Sigurðsson og Kar-
ólína, 79 ára blindur. Þar búa:
Jón Oddsson smiður 50 ára,
Helga Sigurðardóttir frá Nesi' 40
ára, þeirra börn: Oddur 8, Guð-
munda 7, Sigurjón 4 ára; Eyj.
Eyjólfsson 58; Guðlaug Odds-
dóttir 49 ára, börn þeirra' 2
stúlkur 13 og 18 ára, öll eru
börnin vel gefin. Þar er rafstöð,
vatnsleiðsla og vel hýst. Kotið:
Arndís Halldórsdóttir ekkja 73
ára börn hennar og Sigurjóns:
Karl 32 ára, Þorlákur 29, Bjarni
27, Þuríður 24 ára. Svo er þar
Jón Bjarnason Vigússonar 48
ára, Sigrún dóttir hans 16 ára.
Þar er ágætlega hýst og vatns-
leiðsla eftir pípum í hús. Þorlák-
ur hefir verið nokkrar vertíðir í
Vestmannaeyjum 0g haft gott
kaup, en heima á sumrum, þar er
vel stætt heimili, gott bú.
Þá komum við að gamla prests
setrinu Sandfelli. Þar býr Run-
ólfur Jónsson Sigurðssonar 39
ára, hans kona Katrín Jónsdóttir
præfings 40 ára, þeirra barn
stúlka á fyrsta ári. Þuríður,
móðir hennar, Runólfsdóttir 78
ára, Jón Bjarnason, sonur henn-
ar 53 ára. Þar er símastöð,
radíó og vatnsleiðsla, eins og
nærri allstaðar í sveitinni.
Þá er Svínafell, austurbær:
Páll Pálsson 47 ára, Halldóra
Sigurðardóttir frá Nesi 43 ára,
börn þeirra: Sigrún 10, Jón Páll
7 ára, Guðrún 5 ára dóttir
Bjarna og Lydíu á Nesi, Guðrún
og Helga Pálsdætur 56—52 ára,
Sigríður 20 ára: dóttir Stefáns
Þorlákss. á Hnappav., Björn Sig-
urðsson 81 árs, bróðursonur Jóns
gamla Pálssonar, Vilborg, syst-
ir Finnboga á Hofi, 75 ára.
Þá er vesturbær: Rannveig
Runólfsdóttir 70 ára, Sigur^ur
Jónsson og hann er 43 ára, Sig-
ríður systir hans 33, Jóhanna
fósturbarn 15, Þorst. Magnússon
76 ára, Þórhallur, bróðir Katrín-
ar í Sandf. 44 ára, Sveinbjörg 29
ára Jónsdót.tir og Rannveigar,
þeirra barn piltur 4 ára. Báðir
þessir bæir eru vel hýstir, hafa
gott bú, rafstöð, radíó, vatns-
leiðslur og fleiri þægindi.
Þá kemur Bölti: Lárús Mag-
nússon 52 ára, Ingunn 40, þeirra
börn þrjú, 9 til 13 ára, Lára Páls-
dóttir frá Skálafelli 20 ára, Ljót-
unn Magnúsd. 64 ára. Rafljós er
frá stöðinni í austurbænum.
Breiðatorfa: Gunnar Jónsson
45, Sólveig 39 ára, börn þeirra 6,
eru 1 til 12 ára. Guðlaug systir
bónda 54 ára, Guðrún móðir kon-
unnar, systir Arndísar á Hofi 76
ára, fremur vel hýst, vatnsleiðsla
o. fl.
Skaftafell: Oddur Magnússon
42 ára og bræður hans þrír 41,
45, 50 ára allir ógiftir og barn-
lausir hafa vinnukonu 40 ára og
dóttur hennar 15 ára. Þar er
rafstöð, radíó, símastöð prívat.
Þeir eru taldir efnuðustu bænd-
ur í sýslunni, hafa átt um 600
fjár, þar er einnig vel hýst.
Selið: Sveinn 55, Runólfur 51,
Guðmundur 48 allir Bjarnasyhir
og Þuríður Runólfsdóttur, Sig-
ríður 50 ára kona Guðm. Þeirra
börn 4 — 7 til 19 ára, símastöð
radíó. Gott bú og fl. þægindi.
Skaftafell, Hæðir: — Stefán
Benediktsson 63 ára, Jóhanna
guðlaug 61 ára, þeirra börn: Jón
37 ára góður smiður á margt,
Guðlaug 30, Ragnar 22 ára, öll
mjög vel gefin og góð, þar er
rafstöð, er Helgi setti upp áður
en Oddur kom upp sinni (og gaf
túrbínuna 0. fl.). Þar er radíó 0.
fl. gott.
Þá hefi eg talið fólkið í öræf-
um, sem er alls 190 þetta ár, og
líður vel, 0g eg veit að yngra
fólkið veit ekki hvað er, að vera
svangur, þótt það viti hvað er að
hafa lyst á rhat. Allir búendur
eiga jarðir þær er þeir búa á,
nema Sandf. er landsjóðs eign.
Garðrækt hefir mikið aukist á
síðari árum, svo að kartöflur
endast á heimilunum þar til nýj-
ar eru tækar, svo eru gulrófur,
NOTIÐ
MASSEY-HARRIS
TRACTORA vegna
ORKU, HRAÐA
og SPARNAÐAR
Spyrjið Masscy-Harris agentinn
mftSSEI-HRRRIS
COMPANY LIMITED
CALGARV • IDMONtON • V AMCOUVtM WINNIPIO • ■NANOON • NCGINA • IWIf
TONONTO • MONTNIAL • MONCTON CONNINT • «ALK ATOON • TONNTON
hreðkur, græn- og hvítkál, salat
0. fl brúkað. öll heimili eiga
tjöld á engjum til að borða í og
hita kaffi á prímus. — Borðhald
er, þar sem eg þekki til þannig,
að langborð er haft milli búrs og
eldhúss, er alt heimilsfólk situr í
kringum og borðar þar. Fyrst
er drukkið kakóte klukkan 6^/2,
morgunverður kl. 8^/2, kaffi kl.
9^2, miðdagsverður kl. 12^,
kaffi kl. 3 og kvöldverður kl. 514,
altaf verða afgangs leifar.
Mest er slátrað dilkum á
haustin, saltað í tunnur 224 pund
hver og selt í Reykjavík. Allar
gærur af því fé, 0g mikið ‘af
heima slátruðu eru saltaðar og
seldar til Reykjavíkur. Þar eru
nú 36 þúsund manns. f eystri
hreppum sýslunnar er mikil
jarðrækt, bæði kartöflur og fl.
Eg hefi heyrt nefnd tvö heimili
í Nesjum sem höfðu 300 tunnur
hvort og að af 8 tunnum niður-
settum hafi orðið 90 tunna upp-
skera. í einni strandferð frá
Hornafirði til R.víkur fóru 25
tonn af kartöflum og seldist tunn
an 14 kr. — 1897 var verzlunin
flutt frá Papós til Hornafjarðar,
þá var á þeim stað ekkert hús né
maður. Nú eru þar yfiri 200
manns og mikil mannvirki og
sjávarútvegur um vetrarvertíð.
Kvískerjafólkið er til húsa hjá
okkur um sláttinn. Þeir eiga 3
reiðhjól, 0g hér á bæ eitt og eitt
mótorhjól með tveimur sætum,
er líflegt að sjá þegar þotið er
til og frá engjunum líkt fuglum
fljúgandi. Tvisvar hefir Páll
hér, farið á hjóli til Hornafjarð-
ar og heim aftur, og gengið vel.
Hann kennir börnum sund, þeg-
ar hlýtt er í vatni.
Sjöunda nóv. lenti Sigurður á
Kvískerjum í snjóflóði í Breiða-
merkurfjalli, var hans leitað þá
um kveldið, og eins 8. nóv. og
fanst þá lifandi og að mestu ó-
meiddur, búinn að vera 25 kl.-
tíma án þess að geta hreyft sig
vegna þrengsla af snjó, niður
við jökul. Þessum atburði var
útvarpað frá R.vík, og kom svo í
blöðum greinilega sagt frá þessu
mikilsverða kraftaverki. Nú er
hann að mestu jafngóður, var
lengi slæmur í fótum því mann-
broddar voru svo fast bundnir,
að fæturnir bólgnuðu all mikið.
Allmikið frost var tímann sem
hann var þarna. Hollur er sá sem
hlífir, oft reynir maður á lífs-
leiðinni dásemdir drottins. — Þú
hefir líklega frétt, að Guðrún
mín andaðist 4. nóv. 1924, úr
inflúensku. Hún fékk hægt og
rólegt andlát. Þegar eg les eða
heyri góðrar konu getið, þá dett-
ur mér hún í hug. Þið hjónin
þektuð hana. Börn okkar voru 8,
fyrsta barnið stúlka dó á fyrsta
ári, hin 4 stúlkur og 3 piltar,
þrjár giftar, eiga lifandi 19 börn
og þeir 10, alls 29 öll góð og vel
gefin. Helgi og Inga eru hér
einhleyp, bæði vel gefin. Helgi
vinnur öll venjuleg heimilisverk
auk þess sem hans er vitjað ef
gera þarf við rafleiðslur, radíó
0. fl., sem hann gerir með á-
nægju ög starfsgleði, því verk
til þarfs eru til gleði þeim sem
hafa í huga almenningsgagn, en
ekki að auðga sjálfan sig, nema
að blessun drottins, sem og er
farsælasti.