Heimskringla - 08.12.1937, Blaðsíða 5

Heimskringla - 08.12.1937, Blaðsíða 5
WINNIPEG, 8. DES. 1937 HEIMSKRINGLA 5. SÍÐA unnar sinnar og því verður lífs- starf hans að beztu Ijóðunum, sem ort eru: efni beirra er raun- veruleiki og sannleiki athafna hans og æfistarfs, og þegar hann er sjálfur horfinn eru þau eftir- mæli, sem komandi kynsjóðir læra og lifa upp um ár og aldir. Einn slíkra manna var Benedikt sál. Jónsson. Hann valdi sér eigi léttasta hlutskiftið og “barð- ist meðan hjartað sló að Hóla- manna sið.” Hann var af góðu kyni kominn. Hafa margir frændur hans á íslandi skipað hæðstu sætin með þjóðinni og það að verðleikum. Sjálfur var hann fæddur og alinn upp á ein- um frægasta sögustað þjóðar- innar, þar sem svipir fornaldar- innar reika og eigi ein heldur hundrað hetjur sofa. Þar fékk hann mentun sína á íslenzka al- þýðu vísu. Árið áður en hann flutti frá íslandi voru einhver hin verstu er menn mundu og mun það hafa knúð hann til brottflutnings af landinu og ef til vill æfintýra þrá eftir því sem ókannað var. Eins og gefur að skilja mundi æfi hans hafa orðið önnur, ef hann hefði hvergi far- ið. Hið andlega umhverfi út- lendingsins verður ætíð miklu takmarkaðra en þess er þar á heima í raun og veru. Áhuga- málin verða færri og samúðartil- finning mannsins verður tak- markaðri og svo sjálfur hann. Benedikt heitinn var vel greind- ur og frjálslyndur í hugsunum. Hann hefði sjálfsagt í öðrum æfikjörum getað orðið leiðandi maður eins og fleiri ættmanna hans, því hann hafði bæði þrótt og vitsmuni og einurð til að standa fyrir máli sínu. Hann var að ytra áliti myndarlegur maður, mikill vexti, ljós yfirlit-' um, íþróttamaður á yngri árum, gleðimaður, vel hagmæltur og vinsæll af mörgum. Jarðarför hans fór, samkvæmt því sem hann sjálfur hafði gert ráð fyrir, fram frá Sambands- kirkjunni í Riverton. Fylgdu honum til grafar margt vina og nágranna. Þakka aðstendend- ur hans öllum, sem veittu hjálp eða á anan hátt sýndu þeim hluttekningu við það tækifæri. E. J. Melan FURÐULEG EMBÆTTISVEITING ' Frh. frá 1. bls. tekin, að láta fram fara utan- stefnur slíkar, sem hér hefir átt sér stað, þar sem úrskurði, sem feldur er hér á landi og á vegum íslenzkrar stofnunar, er skotið til erlends manns til dónjsálagn- ingar, eins og nú hefir gert ver- ið. Sú framkoma, sem hér hefir átt sér stað gagnvart sr. Birni Magnússyni, verður því á engan hátt varin, og má vissulega undr- um sæta, að ráðherrann skuli hafa gert sig sekan um slíkt farmferði. Um þann mann, sem nú hefir verið skipaður dósent við guð- fræðideildina, vill blaðið nú að sinni segja þetta eitt: Til þess skal engin tilraun gerð, að gera lítið úr hæfileikum sr. Sigurðar Einarssonar eða möguleikum til að inna af höndum þau störf, sem honum hafa áður verið falin. Mætti þó um þau ýmsar athuga- semdir gera. En hitt er óhætt að fullyrða, að meðal kenni- toannastéttarinnar og þess fólks yfirleitt í landinu, sem mest er siftnandi kirkjulegum málum, yerður skipun hans ekki vel tek- ið. Og því verður ekki með rök- mótmælt, að einmitt sá hluti þjóðarinnar, sem þessi mál lætur sig mestu varða, á réttlætiskröfu á því, að við ráðstöfun kennara- embættanna við guðfræðideild háskólans sé tillit tekið til vilja hans og tilfinninga. Og þegar nú hinn frjálslyndi og vinsæli, ungi guðfræðingur, sem samkepnisprófið vann á s. 1. vori, er hrakinn frá háskólan- um, mun því alment verða trú- að, að meira hafi þar um ráðið pólitískt ofurkapp, en umhyggja fyrir þeirri stofnun, sem hér á hlut að máli. Því mun þetta þykja hið versta verk meðal alls þorra almennings í þessu landi, og raunalegur blettur á stjórnar- ferli þess — að mjög mörgu leyti mæta — manns, sem ráð- stöfun þessa hefir framkvæmt. —Nýja Dagbl. “TÍU LAGA BOÐORÐIN HANS BJARNA” Bjarni Jónsson frá Vogi er maður sem allir íslendingar kannast við. Hann var skáld og rithöfundur og ræðumaður með afbrigðum. Aðal lífsstarf hans var kannske við lærðaskólann í Reykjavík, en auk þess fékst hann við blaðamensku og bók- mentir í ýmsum stíl. Bjarni var eiginlega fyrsti kennari “nýja tímans” á íslandi. Sú tízka hélzt þar lengi að ó- mælisdjúp var á milli nemenda og kennara; voru kennarar á- litnir nokkurs konar æðri verur og gekk það svo langt með suma' þeirra að þeir píndu lærisvein- ana, en lærisveinarnir urðu að þéra þá. Þegar Bjarni frá Vogi kom fram á sjónarsviðið sém kennari hafði hann á sér alt annað snið en stéttarbræður hans höfðu haft. Hann umgekst piltana eins og jafningja sína, tók þátt í leikjum þeirra og félagsskap, kjörum þeirra og kringumstæð- um. v Af þessu leiddi það að hann varð brátt einkar vinsæll kenn- ari. Á opinberum mannfundum var hann einnig öðru vísi en aðrir menn: miklu frjálsari og opin- skárri en venja var til um menn í hans stöðu. Hann níddi hvorki orð sín né skoðanir við það hvort vænta mætti samþykkis áheyrenda eða ekki. Hann var óvenjulega sjálfstæður maður í' skoðunum og hreinskilin í orðum. Sökum þess hversu samrýmd- ur Bj arni var skólapiltum og sök- um þess hversu vænt þeim þótti um hann sóttu þeir allar sam- komur þar sem hann átti að koma fram. Eg man glögt eftir þeim sam- komum — sumum þeirra að minsta kosti. M!ig langar að geta hér um eina þeirra, sem sýnir hverskonar maður Bjarni var. Þannig var mál með vexti að verið var að stofna “Blaða- mannafélag” í Reykjavík. — Vakti það alímiklar umræður, sérstaklega vegna þess að all- svæsnar skammir áttu sér stund- um stað milli ritstjóranna. — Bjarni var hræddur um að “það | litla líf” sem blaðamenskan á fslandi ætti yfir að ráða mundi dofna eða jafnvel sofna ef allir ritstjórarnir tækju höndum sam- an í þessu félagi. f sambandi við þetta mál átti hann einu sinni að tala á opin- berum fundi, og hafði valið sér þetta umræðuefni: “Hvaða skil yrði þarf maður að hafa til þess að vera góður ritstjóri?” Skóla- piltar fóru allir sem gátu á þetta samkvæmi, eins og nærri má geta. Þegar Bjarni hafði borið fram spurninguna, sem átti að vera umræðuefnið svaraði hann henni sjálfur með tíu atriðum, sem síðar voru nefnd: “Tíu lagaboðs- orðin hans Bjarna”. Og atriðin voru þessi: 1. Að hafa alveg óbundnar hendur til þess að birta í blaði sínu hvað sem honum sýndist, bæði eftir sjálfan sig og aðra. 2. Að vera að minsta kosti meðal gáfum gæddur. 3. Að hafa sæmilega ment- un (þó ekki nauðsynlega mikla skólagöngu). 4. Að geta umgengist alla sem jafningja, æðri jafnt sem lægri (vera grískur með Grikkj- um og gyðingur með Gyðingum). JÚDAS Þó alment sé talið á tuttugustu öld að takmarkalaust sé þitt brot Og fordæmi jafnt öll hin jarðnesku völd þig Júdas frá Kariot, Vér heyrum að undir þeim áfellisgný er innri rödd vor, eins og suð, Að fékst þú ei staðist, en félst fyrir því, sem flestir menn telja sinn guð. Frá upphafi vega að safna í sjóð þeir sækja, þeir fara í ham Og hlífðarlaust svíkja hið saklausa blóð og selja sinn meistara fram, . Og friðar og jafnaðar forvígis menn þeir fjötra og negla á kross, Þó bót sé það mikil í máli, að enn ei myrða þeir sálir en oss. Þó klækjafull væri hún kaupsýslun þín ei kemst hún í samjöfnuð við Þá blöskrun er leiða út börnin sín gegn borgun, þeir sjálfir í frið, Og þurfa ekki að iðrast, því útvarp og blað slíkt efni þeim gefa til drambs. Og hvítþvottur kemur þeini bezt eftir bað í blóði hins saklausa lambs. En þú varst sá eini sem iðrandi grét —á innræti þetta er bent^- Og óskiftan gróðann af glæp sínum lét í guðkistu, pens eða cent. Ef álíka grætt hefðu aðrir, það fé sitt ei mundu þeir hafa lagt í annað en það sem gat orðið að tré með ávöxt og höggorm á vakt. Þú skilaðir aftur því eina sem fékst í arð þinn af Júdasar koss Og festir ei kaupin í framtíð, en gekst Þig frá því sem öðrum er hnoss. Af svikurum öllum hins saklausa blóðs varst sjálfsagt, þó níði þeir þig, Sá eini með samvizku glæpamanns góðs sem gekk út og hengdi sig. Guttormur J. Guttormsson 5. Að hugsa hvert mál sem á dagskrá væri; afla sér um það allra mögulegra gagna, mynda sér um það ákveðna skoðun og halda henni fram hiklaust hvort sem hún væri vinsæl eða óvinsæl. 6. Að lesa og hlusta með sjá- andi augum og opnum eyrum og vera reiðubúinn að skifta um skoðun þegar sanngirni og heil- brigð skynsemi krefðust þess. 7. Að rita svo rétt mál og sæmilegt að tungan væri hvorki meidd né myrt, og svo alþýðlegt að allir skildu. 8. Að afla sér allra þeirra frétta, sem líklegar væru til þess að gera blað sitt nytsamt, fræð- andi og skemtilegt. 9. Að skoða blað sitt sem æðstu menningarstofnun þjóð- arinnar og kosta kapps um að láta það ná því marki í raun og sannleika. 10. Að kynna sér blöð og blaðamensku annarsstaðar (bæði heima og erlendis), bera sitt eig- ið blað saman við þau og keppa þar æfinlega um hið efsta sætið og æðsta. Eg man ekki hvort þessi atriði voru öll nákvæmlega stíluð eins og hér er stílfært, ekki heldur hvort þau voru í sömu röð og hér; hitt man eg að atriðin voru þessi og að þau voru eftir sam- komuna kölluð: “Tíu lagaboð- orðin hans Bjarna”. Sömuleiðis man eg að eftir ræðuna tóku margir fleiri til máls og voru þar á meðal þessir: Björn Jóns- son ritstjóri ísafoldar, Þorsteinn Gíslason, ristjóri íslands, Einar Benediktsson, ritstjóri Dagskrár og séra Þórhallur biskup. Þeir voru allir sammála um það að blöðin ættu að vera sál þjóðar- innar, hugsun hennar og tunga. Sig. Júl. Jóhannesson Framh. JóLIN ERU 1 NÁND Lauslega þýtt úr “The Univer- salist Nevvs” gefið út af séra H. I. S. Borgf jörð í Halifax. Vér kaupum öll jólagjafir og helst handa börnum nú um þetta leyti árs. En kaupum vér vitur- lega eða skynsamlega? Þ..e. a. s. vakir það fyrir oss, hver áhrif gjafir vorar munu hafa á börn- in? T. d. alt árið í kring tölum vér um frið og friðarhugmyndir, og um verðmæti þeirra. Ættum vér þá á jólunum að kaupa og gefa gjafir sem óbeinlínis dýrka ófriðarhugmyndina ? Til eru allskonar leikföng sem eru bæði uppbyggjandi, fræðandi og skemtileg, svo að maður þarf ekki að vera í vandræðum með að velja eitthvað, sem er viðeig- andi, og þarf ekki að snúa sér að skriðdrekum, byssum og tin- soldátum o. s. frv., sem minna á ófrið og víg og koma þeirri hugsun inn hjá börnunum, að ó- friður og manndráp séu leikur, sem skemtilegur er og gaman að. Þar að auki verður á þessum jól- um allskonar ódýrt glingur til boðs frá Japan. Ef vér elskum frelsið og lýðveldishugmyndina, ættum vér ekkert með þetta glingur að hafa að gera. Með því að kaupa það til að gleðja eitthvert barn hér, hjálpum vér japönum óbeinlínis með fjár- styrk, að taka börn í Kína af lífi nú um jólin. Um leið stofnum vér bæði frelsi voru hér og lýð- ræði í hættu, nema að vér kaup- um og gefum viturlega svo að aðeins hinar æðstu og fegurstu hugsanir eflist og útbreiðis, um frið á jörðu. P. Kaupið Heimskringlu Borgið Heimskringlu FEDERAL //CRAIIU Framskipunar Komlyftustöðvar í Fort William—Port Arthur— Vancouver. 423 Sveitakornlyftur í Vesturlandinu. I 101 Kolasölustöð. Þjónusta og verzlunartæki vor tryggja hagkvæm viðskifti NAPOLEON AUSTURLANDA Hann er magur, sköllóttur og hefir tinnusvört augu. Hann not- ar gervitennur, þjáist af sífeldri gigt. Hann hvorki reykir né drekkur, talar aðeins eitt mál, kann enga leiki sér til dægra- styttingar og hefir engin þvílík áhugamál. Hann ræður örlögum 450 milj. manna. Þessi maður er Chiang-Kai- Shek, eini maðurinn sem getur bjargað Kína úr höndum Japana. Hann er ágætur hermaður, því að byssan var leikfang hans í æsku. En getur hann varist Japönum, þótt hann hafi Kín- verja sameinaða að baki sér? Chiang-Kai-Shek varð forseti Kína í okt. 1928, sama dag og byltingin hófst árið 1911. Þegar blaðamaður átti tal við hann þá sagði hann: “Alt veltur á því, að Kínverjar séu samhuga . . . .” Chiang-Kai-Shek sá fyrst dagsins ljós fyrir 50 árum í Fenghua-þorpi í Chikiang-hér- aði. Af því að hann fæddist nærri Ningpo, er hann kallaður “Napoleon frá Ningpo”. Þegar byltingin hófst 1911 gerðist hann fyrst ræningi, drakk og i svallaði, en hætti því skyndilega I vegna áhrifa er hann varð fyrir jaf Sun-Yat-Sen, fyrsta forseta i kínverska lýðveldisins. Er Sun j lézt árið 1925, hafði Chiang ein- I mitt staðað í s’amningum við jRússa um að leggja Kína undir þá, en sleit síðar allri samvinnu ; við þá. Þegar Chiang tók sér j einræði var ríkið “fúið hrip”. jÁtján héraðsstjórar hans höfðu einkaheri er námu samtals 2 milj. manna en til að standa straum af kostnaði við þá, voru þeir búnir að innheimta alla skatta til ársins 1995. Honum miðaði lítið í baráttu sinni, þangað til 1931—1932, er Japanir tóku Mansjúríu. Þá fylt- . ust Kínverjar föðurlandsást og : Chiang tókst að leggja á skatta, svo að hann gat komið sér upp ! góðum her, lagt vegi, aukið j mentunina og bætt heilsufarið í landinu. En það sem gaf honum bestan i byr í seglin var, er hann kvænt- | it Mei-Ling Soong, því að ætt hennar er hin auðugasta í Kína. i Mei-Ling er afar áhugasöm um málefni Kína og hefir komið af stað ýmsum hreyfingum í þjóð- holla átt, en lætur þó ávalt mann sinn hljóta heiðurinn. Japanir hafa getað gert það sem þeim sýnist í Kína, þangað til' nú, er þeir eru byrjaðir að bíta frá sér, og Chiang varð þó í mörgu að lúta boði þeirra og banni. En jafnframt reyndi hann að koma á umbótum í ríki sínu. Á 5 árum voru bygðir lengri vegir og betri en á 3000 árum á undan. Farþega- og vöruflutn- ingavagnar þjóta um landið, þar sem bændurnir eru svo fátækir, að þeir geta varla keypt olíu á lampann sinn. En bílamir eru aðallega fyrir hermenn Chiangs, og til vistaflutninga, ef hallæri skellur á, því að miljónir Kín- verja hafa dáið vegna þess, að ekki hefir verið hægt að koma vistum til þeirra um vegleysurn- ar. Chiang reyndi að koma aga á 2ja miljóna her sinn, en það hef- ir gengið misjafnlega. Einvala- liðið er um 250 þúsundir manna, sem þýzkir herforingjar hafa æft og agað. Chiang hefir jafn- an átt í höggi við kommúnista, en Rússar styðja þá, eins og hann sjálfan áður. Sagt er að það hafi verið bragð hjá Chiang, að láta ræna sér til Sianfu, svo að hanmgæti rætt við kommún- istana í ró og friði, því að hann vissi, að hann gæti ekki staðið Japan á sporði án hjálpar þeirra. Þegar Chiang-Kai-Shek varð fimtugur, voru honum færðar að gjöf 50 nýtízku hernaðar flug- vélar. Höfðu verið hafin sam- skot meðal þjóðarinnar í þessu skyni.—Vísir. HITT OG ÞETTA Maðurinn með magana tvo Það er sagt að prins Hadji Ali, egyptski sjónhverfinga maður- inn, hafi haft tvo maga. Þegar hann dó fyrir nokkrum dögum síðan í New York, var gerð ná- kvæm rannsókn á mögum þessa undra manns. Prins Hadji Ali lék sér að því að drekka tólf potta af vatni og tvo potta af gasoline í einu. Síðan sprautaði hann gasinu upp úr öðrum maganum og kveikti í því en drap svo logann með því að sprauta á hann vatni upp úr honum maganum. * * * Bókmentaverðlaun Nobels Bókmentaverðlaun Nobels var úthlutað í gær og féllu þau í skaut frönskum manni, Rogers Martin du Gard, mjög mikils- metnum rithöfundi. Rogers Martin du Gard er maður um fimtugt. Frægasta verk hans er ættarsaga í tíu bindum og nær frá síðustu alda- mótum og fram til þessa dags. Nefnist sögubálkur þessi Les Thibaults. Fyrstu bindin hafa verið þýdd á dönsku, en nýlega hefir Gyldendals-bókaforlag á- kveðið að gefa skáldverk þetta alt út í nýrri útgáfu. Saga « þessi hefir í einu helzta bók- mentatímariti Ameríkumanna verið talin glæsilegasta skáld- verkið, sem komið hafi út í Frakklandi síðustu hundrað ár- in. Sömuleiðis hefir dr Gard samið nokkur leikrit og að minsta kosti eitt þeirra hefir verið leikið í þjóðleikhúsinu í Osló. Martin du Gard er viðbrugðið sem glöggum mannþekkjara og pólitískra lífsviðhorfa gætir minna í bókum hans heldur en títt er um franska nútímahöf- unda.—N. Dbl. 12. nov. ÍSLANDS-FRÉTTIR Anna Borg hlýtur meiðsli í bifreiðarslysi Bifreið þeirra frú önnu Borg- Reumerts leikkonu og Pauls Reu- mers leikara rann á hálku í gær- dag, þar sem þau hjónin voru á ferð, og steyptist ofan í skurð meðfram veginum. Frú Anna Borg viðbeinsbrotnaði, en að öðru leyti er hún ekki talin í hættu. Paul Reumert slapp ó- meiddur. Bifreiðin eyðilagðist. —Einkaskeyti frá Khöfn. 16 nóv. * * * Faleg bók kom út í fyrradag. Er það Reykjavík 1786—1936. Þættir og myndir úr sögu bæjarins. Höf. er dr. Jón Helgason biskup, en útgefandi ísafoldarprent- smiðja. Bókina prýða 232 ljóm- andi fallegar myndir. Frágang- ur allur frá prentsmiðjunnar hálfu er með miklum ágætum. —Vísir 4. nóv. / /

x

Heimskringla

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimskringla
https://timarit.is/publication/129

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.