Heimskringla - 02.02.1938, Page 5
WINNIPEG, 2. FEBRÚAR 1938
HEIMSKRINCLA
5. SÍÐA
endurnir hafi gert sér vonir um
það — en það er svo auðvelt að
spyrja.
Það eina, sem eg get gert í
þessu efni, er að rekja í stuttu
máli hið helzta af því, sem fjöl-
vísir og spakir vísindamenn hafa
sagt um þessar spurningar, sem
liggja á yztu takmörkum þekk-
ingar vorrar, “þar sem mætast
vegir vits og trúar”, eins og Ein-
ar Benediktsson hefir svo snild-
arlega að orði komist.
Eg ætla að styðjast við orð
enska stjörnufræðingsins Jeans,
enda hefir all-oft heyrst vitnað í
hann í útvarpinu sem dæmi um
vísindamenn, sem ekki yrði sak-
aður um óskoraða efnishyggju.
í bók sinni “Leyndardómar al-
heimsins (The Mysterious Uni-
verse )gerir Jeans fyrst grein
fyrir því, hvernig menn ætla
helzt, að sólkerfi vort hafi orðið
til við það, að einhver stjarna
hafi á reiki sínu um himingeim-
inn, af hreinni tilviljun, komið í
námunda við sól vora. Þessi
framandi stjarna hefir valdið
geysihárri flóðbylgju á yfirborði
sólarinnar — af sömu orsökum
og tunglið og sólin valda flóð-
bylgjum á höfum jarðarinnar —
aðeins miklu, miklu stórkost-
legri. Loks fór svo, að þessi flóð-
bylgja brotnaði og brot af henni
þeyttust út frá sólinni, og tóku
að sveiflast í kringum hana. —
Þessi bylgjubrot eru reikistjörn-
urnar í sólkerfi voru — Merkúr,
Venus, Jörðin, Marz, Júpiter.
Satúrnus, úranus, Npetúnus og
Plútó.
Sólin sjálf og allar aðrar
stjörnur, sem við sjáum á himn-
inum, eru geysilega heitar, miklu
heitari en svo, að nokkurt líf
geti náð þar fótfestu né haldist
við. Sama máli var líka að
gegna um börn sólarinnar, reiki-
stjörnurnar, fyrst í stað. En
smámsaman kólnuðu þær og í
rás tímans, við vitum ekki hvern-
ig, hvenær eða hversvegna, fædd-
ist lífið á einu þessara kólnandi
hnattbrota. Það hófst í fyrstu
á mjög frumstæðum lífverum,
sem varla höfðu önnur einkenni
lifandi lífs en endursköpun og
dauða. En frá þessum veika vísi
óx meiður lífsins sífelt hærri og
víðfeðmari, uns hann náði há-
marki sínu í verum með kendir,
metnað og fegurðarsmekk að
lífskjarna, ásamt trúarbrögðum,
sem þær tengja við sínar æðstu
vonir og göfugustu eftirvænt-
ingu.
Svo heldur Jeans áfram að
virða fyrir sér og reyna að gera
sér grein fyrir eðli og tilgangi
sköpunarverksins. Og þá kemst
hann svo að orði: “Fyrst í stað
liggur nærri, að véf verðum
lostnir skelfingu, er vér litumst
um frá vorum þröngu bæjardyr-
um. Oss finst alheimurinn ægi-
legur sakir hinnar geysilegu víð-
áttu, bæði í tíma og rúmi, og
ennþá ægilegri sakir þess, hve
einmana og smáir vér erum —
aðeins eitt sandkorn meðal allra
sandkorna við úthaf alheimsins.
En fyrst og fremst mætti oss
finnast alheimurinn ægilegur af
því, að hann virðist með öllu
kærulaus um lífverur eins og
okkur. Tilfinningar, metnaður,
afrek, listir og trúarbrögð, virð-
ist alt vera jafn-framandi til-
gangi hans eða ætlunarverki. Ef
til vill væri réttmætt að kveða
svo fast að orði, að alheimurinn
væri hreint og beint fjandsam-
legur lífinu. Mestur hluti geims-
ins er svo kaldur, að alt líf myndi
þar helfrjósa, og mestur hluti af
efnismagninu er svo heitur, að
ekkert lifandi níá þar þrífast.
Um geiminn geysast geislar af
ýmsu tæi, sem margir hverjir
munu vera hættulegir eða jafn-
vel banvænir lifandi verum.
Inn í slíkan heim hefir oss
skolað, ef ekki af vangá, þá að
minsta kosti fyrir atvik, sem
með fullum rétti má kalla tilvilj-
un.
Ekki þó svo að skilja, að það
sé sérstakt undrunarefni, að
jörðin skuli hafa orðið til, því að
tilviljanir hljóta altaf að verða,
og ef heimurnin helst nógu lengi
við lýði, þá er sennilegt, að sér-
hver hugsanleg tilviljun eigi sér
stað áður en lýkur. Miljónir
miljóna af stjörnum, sem reika
um himingeiminn um biljónir
ára, hljóta að verða fyrir hvers-
konar tilviljunum eða slysum,
sem verða vill, og þar á meðal að
fæða af sér takrparkaða tölu sól-
kerfa eða reikistjarna í rás tím-
ans. En tala þeirra hlýtur þó
jafnan að verða mjög lítil í sam-
an burði við allan aragrúa
stjarna á himninum.
Þetta atriði, hve jarðstjörnu-
kerfi eru sjaldgæf, er mjög þýð-
ingarmikið, því að það virðist
bersýnilegt, að líf geti aðeins
myndast á plánetu af sama tæi
og jörðin. Það krefst sérstakra
I líkamlegra skilyrða til þess að
geta þrifist. Fyrst og fremst
hitastigs, sem efni getur haldist
fljótandi í.
Stjörnurnar sjálfar eru altof
heitar fyrir lífverur. Vér verð-
um að hugsa oss þær sem mikla
brennandi elda, hér og hvar í
geimnum, er senda hita frá sér
út í umhverfi, sem er 270 st.
kalt. Þegar fjær dregur eldun-
um, er því banvænn kuldi, en
fast við þá er hiti, sem skiftir
þúsundum stiga og bræðir alt
fast efni, en sýður alt fljótandi.
Líf getur því aðeins þrifist á
mjóu belti umhverfis eldana í
ákveðinni fjarlægð. Utan þeirra
takmarka hlýtur alt lifandi að
frjósa, en innan þeirra að
skrælna.
Eftir lauslegum reikningi
nemur svæði það, sem hugsan-
legt er að líf geti þróast í, minna
en 1:1000 biljónasta af öllum
geimnum. Og jafnvel innan
þessa svæðis hlýtur líf þó að
vera sjaldgæft, því að svo fá-
gætt mun það vera, að sólirnar
fæði af sér reikistjörnur, eins og
vor sól hefir gert, að varla er
meira en ein sól af hverjum 100
þús., sem gæti haft reikistjörnu
með sér innan þeirra þröngu
takmarka, sem líf getur þróast
í.
Af þessum ástæðum virðist
það ótrúlegt, að alheimurinn hafi
frá upphafi vega, verið skapaður
til þess að framleiða líf í þeirri
mynd, sem vér þekkjum, því ef
svo hefði verið, hlyti að mega
vænta annars hlutfalls milli hins
mikla vélræna bákns og fram-
leiðslunnar.”
Því meir sem Jeans rekur af-
leiðingar náttúrulögmálanna, því
ósennilegra finst honum, að
heimurinn hafi fyrst og fremst
verið látinn lúta lögmálum lífs-
ins. Þau gætu alt að einu hafa
verið sett til þess að framleiða
segulmagn eða efnisgeislun eins
og líf. — Efnafræðin gefur í
skyn, að lífið kunni að vera, al-
veg eins og segulmagn og efnis-
geislun, einungis tilfallandi af-
leiðing af þeim lögmálum, sem
eru alls ráðandi í alheiminum, en
sem vér ekki þekkjum til hlítar.
*
Frá efnishyggjulegu sjónar-
miði virðist þýðingarleysi lífs-
ins gagnvart alheiminum stappa
mjög nærri því að gera að engu
allar hugmyndir um það, að hinn
mikli byggingameistari Alheims-
ins hafi nokkra sérstaka um-
hyggju fyrir lífinu. —
Lífið getur aðeins þrifist við
hæfileg skilyrði ljóss og hita. Því
aðeins getum vér lifað, að jörðin
fái nákvæmlega tilmældan skamt
af geislum frá sólunni. Ef nokk-
uð verður verulega of eða van í
því efni, hlýtur lífið að hverfa af
jörðunni.
Frumbyggjar tempruðu belt-
anna hljóta að hafa verið gripnir
geig, þegar fimbulvetur ístíma-
bilsiná var að leggjast að. Með
ári hverju hafa þeir séð jöklana
skríða lengra niður eftir dölun-
um og jafnframt virtist sem sól-
in mætti sín minna gegn kuldan-
um. Þessum mönnum hlýtur,
engu síður en oss, að hafa virst
heimurinn vera lífinu fjandsam-
legur.
Vér, sem nú lifum, sjáum nýja
ísöld ógna tilveru vorri í óra-
fjarri framtíð. — Sólin hlýtur
smám saman að senda minna og
minna geislamagn frá sér og
hringurinn, sem lífvænt er í,
hlýtur að þrengjast. Jörðin
þyrfti þá að færast nær sólunni
til þess að lífsskilyrðin héldust,
en þvert á móti mun hún þokast
utar, vegna ósveigjanlegra
hreyfingarlögmála, í áttina til
kulda og myrkurs. Að því er vér
fáum séð, hljóta endalokin að
verða þau, að lífið frjósi í hel,
nema þá ef árekstur við aðrar
sólir skyldi eiga sér stað, sem
eyddi lífinu fyrr og á sviplegri
hátt.
Er þetta þá alt og sumt gengi
lífsins ? Að koma nánast af til-
viljun inn í heim, sem bersýni-
lega hefir ekki verið skapaður
vegna lífsin, veröld, sem virðist
annað tveggja hlutlaus gagnvart
öllu lifandi eða beinlínis fjand-
samleg því.
Stjörnufræðin hlýtur að vekja
þessar spurningar, en hún svar-
ar þeim ekki. Jeans álítur, að
eðlisfræðin muni vera líklegust
til þess að veita svarið — og að
það yerði að grafa djúpt í insta
eðli hlutanna, áður en vér fáum
úrlausn á spnuringum vorum.
Hann hyggur, að hinar síðustu
niðurstöður í stjörnufræði og
eðlifsræði muni orsaka gagn-
gerðar breytingar á skoðunum
okkar á alheiminum og gildi
mannlegs lífs. Úrlausnarefnin
hljóta að lokum að færast inn á
svið heimspekilegra umþenk- J
inga. En fyrst og fremst er
skylt að gera sér fulla grein
fyrir því, sem vísindin geta lagt
fram af staðfestri þekkingu, og
að því búnu, en fyr ekki, geta
heimspekingar og trúfræðingar
kvatt hér hljóðs.
*
Eg hefi nú orðið nokkuð lang-
orður um þessar spurningar, en
það vil eg afsaka með því, að þær
eru í raun og veru ótæmandi
umræðuefni og bera ekki hvað
sízt á góma þegar hugsandi
menn ræða um daginn og veginn.
Ef til vill getur einhver hlust-
andi látið sínar skoðanir á þess-
um efnum að einhverju leyti í
ljós á þann hátt, að ríma þær við
vísubyrjunina, sem eg fór með
áðan:
Lengist nóttin, lækkar sól,
lífið óttast vetur.
—Dvöl.
Til að stöðva fólksfækkun
í Svíþjóð hafa verið sett ný
lög" sem eru á þá leið, að hver
hjón sem gifta sig, geta átt kost
á að fá þúsund króna lán til 5
ára með 314% ársvöxtum án
nokkurrar ábyrgðar annarar en
sinnar eigin.
Kaupið Heimskringlu
Lesið Heimskringlu
Borgið Heimskringlu
DÝRAFRÆÐIISLANDS
Nýlega eru komin út tvö hefti
af Dýrafræði íslands (The Zoo-
logy of Icelnad). Rit þetta er á
ensku, og er gert ráð fyrir að það
verði í fimm bindum, alls 100 til
150 arkir, og verði um það bil tíu
ár að koma út. Það er Levin og
Munksgaard (Ejnar Munks-
gaard), sem gefur ritið út, en
það er kostað af Carlsbergs-
sjóði, Hask-örsted-sjóði og Sátt-
málasjóði. í ritnefnd þess eru
Pálmi Hannesson, Adolf S. Jen-
sen, R. Sparck, Bjarni Sæmunds-
son, A. Vedel Taning. Eru hinir
tveir síðastnefndu aðalritstjór-
ar. Á bókinni stendur, að hún
komi út í Kaupmannahöfn og
Reykjavík.
Þessi tvö hefti, sem eru nýút-
komin eru 27. og 58 kaflar
þriðja bindi, en bókin er prent-
uð jafnótt og handritið er tilbúið,
en af því ritgerðirnar eða kafl-
arnir eru mjög misjafnlega lang-
ir, og höfundarnir margir, er ætl-
ast til þess að fögur fyrstu bind-
in komi út jöfnum höndum, og í
þeirri röð sem handritin verða
tilbúin. Fimta bindið á þó ekki
að koma fyr en hin fjögur eru
komin öll, og á að vera yfirlit
yfir dýraríki fslands. Þessir 27.
og 58. kaflar, eru báðir eftir K.
Stephensen, (verð þeirra er 2.75
og 1.50 — til áskrifenda 1.75 og
1.00). Er hinn fyrri um “Mar-
ine Isopodaand Tanaidasea”, en
þetta eru krabbadýr er lifa í sjó,
og öll fremur smá, (þó til stór-
krabba teljist). Hafa fundist 42
tegundir af þeim fyrtöldu hér
! við land, en 9 teg. af þeim síðar-
nefndu. Til ísópodanna teljast
meðal annars óskabjörninn* og
trjáætan, sem gerir mikið tjón
hér við land með því að éta í
sundur bryggjustólpa.
Síðari kaflinn (58.) er um
“Pycnogonida” — þ. e. hinar
svonefndu sæ-köngulær. Af þeim
haf afundist 19 tegyndir hér við
land út á 300 metra dýpi, en talið
líklegt, að hér séu fleiri tegund-
ir ófundnar, því þetta eru skepn-
ur, sem lítið fer fyrir. Búkur
þeirra er svo mjór, að innýflin
* Ýms þjóðtrú er í sambandi
við óskabjörninn og “steininn”,
sem finst í honum, sem á að
vera vaðarsteinn Sankti Péturs.
iskabjörninn átti eftir þjóðsögn-
inni að hafa verið ægilegasta
skepna jarðarinnar, eða að
minsta kosti sjávarins, og hafa
ætt með gapandi kjafti að sjálf-
um Sankti Pétri, þar sem hann
var að dorga í soðið, rétt utan
vlð landsstein.anna, en hann
hafði skroppið þangað og ekki
lengra, af því að þetta var um
há-sláttinn. En Pétri varð lítið
fyrir. Hann tók bara .vaðarstein-
inn og senti í kjaftinn á óska-
birninum, og sagði að hann
skyldi verða að auðvirðilegustu
skepnu sjávaripg, og minkaði
óskabjörninn þá ofan í þá stærð,
sem hann hefir nú, og vaðar-
steinninn líka.
komast ekki fyrir í honum, og;
eru fæturnir holir innan ofantil,
og liggja innýflin út í þá alla.
Þangað liggja líka göng frá
eggjastokkum kvendýrsins og
sæðiskirtlum karldýrsins, og eru
kynferðisop við annan liðinn á i
öllum fótum þessara skepna, —
(sem venjulega hafa átta fætur, í
en sumar tegundir tíu), og geta i
kvendýrin því verpt með öllum I
fótum, en karldýrin gefið frá
sér sæði um opin á þeim.
Meðal þeirra ritgerða er næst
koma, er ritgerð um bjöllur, eft-
ir G. Gígju og A. West, um dýra-
líf í vötnum, eftir O. Hammer,
um dýrlíf í laugavatni, eftir S.
L. Tuxen, um krabbadýr í vötn-
um eftir E. M. Paulsen, og um
spendýr, eftir dr. Bjarna Sæ-
mundsson.—ól. Fr.
—Alþbl. 27. des.
FJÆR OG NÆR
Sambandssöfnuðurinn í River-
ton heldur skemtisamkomu í Riv-
erton Hall 4. febrúar n. k. Til
skemtana verða tombóla og dans,
ennfremur verða veitingar.
* * *
Bækurnar eru til fróðleiks og
skemtunar. Góðar bækur eru
dýrmæt eign. Látið þær einn-
ig vera til prýðis í bókaskápnum
yðar, með því að senda þær í
band til Davíðs Bjömssonar á
“Heimskringlu”. Verkið vel af
hendi leyst.
* * *
LJóÐMÆLI
St. G. Stephanssonar
Á þessum vetri koma út síð-
ustu kvæði hans er fylla bindi á
stærð við þau sem út eru komin.
Tækifærið er því nú, að eignast
4 og 5 bindið fyrir þá sem eiga
hin fyrstu þrjú og vera við því
búin að fylla kvæðasafnið, er
þetta síðasta kemur á markað-
inn.
Andvökur IV. og V. eru nú
seld með affalls verði á $4.25
bæði bindin.
Sendið pantanir til
Viking Press og
íslenzkra bóksala hér í bæ
HITT OG ÞETTA
Það er kostur
Þér sem notið—
TIMBUR
KAUPIÐ AF
THE
Empire Sash & Door
CO., LTD.
Blrjfnir: Henry Ave. Gut
Sími 95 551—95 552
Skrifstofs:
Henry og Argyle
VERÐ - GÆÐI - ÁNÆGJA
(— -----------1—
BLÖÐIN SEGJA
ÞÉR TIL ÞESS
HREINN HVÍTUR
Vindlinga Pappír
TVÖFÖLD Sjálfgerð _ c
STÓR BÓKARHEFTI ^
vera venjulegur lögregluþjónn,
eins og hann pabbi minn, svar-
aði hún.
— Eg held nú víst, því að ef
einhver læti verða, þá er pabbi
minn fljótari að komast undan.
♦ * sjc
Betri en blöðin!
Blaðamaður nokkur mælti fyr-
ir minni kvenna. Hann lauk
ræðu sinni á þessa leið: Kon-
urnar lifi og blómgist frétta-
starfsemi þeirra! Þætr einar
skáka blöðunum í fréttaburði!
Tvær telpur hnakkrifust um
það, hvor ætti meiri mann fyrir
föður.
— Pabbi minn er í riddara-
lögreglunni, sagði önnur. Hann
situr á hestbaki allan liðlangan
daginn.
— Það er ekkert meira en að
Verið er um þessar mundir að
æfa leikrit í London, sem samið
var sérstaklega fyrir ungu prins-
essurnar Elizabeth og Margaret.
Allir leikendurnir eru böm og
það þykir prinsessunum vænst
um.
NÍTJÁNDA ÁRSÞING
Þjóðræknisfélagsins
verður haldið í
Goodtemplarahúsinu við Sargent Ave., Winnipeg
22, 23, og 24., febrúar 1938
DAGSKRÁ:—
1. Þingsetning. 8. útbreiðslumál.
2. Skýrsla foreta. 9. Fjármál.
3. Kosning kjörbréfa- 10. Fræðslumál.
nefndar. 11. Samvinnumál.
4. Kosning dagskrár- 12. Útgáfumál.
nefndar. 13. Bókasafn.
5. Skýrslur embættis- 14. Kosning embættis-
manna. manna.
6. Skýrlsur deilda. 15. ólokin störf.
7. Skýrslur milliþinga- 16. Ný mál.
nefndar. 17. Þingslit.
Samkvæmt 21. gr. laga félagsins er deildum þess
heimilað að senda einn fulltrúa til þings fyrir hverja
tuttugu eða færri gilda félaga deildarinnar; gefi þeir full-
trúa skriflegt umboð til þess að fara með atkvæði sitt á
þingi og sé umboðið staðfest af forseta og ritara deildar-
innar.
Þing sett þriðjud. morgun 22. febrúar kl. 9.30. Þing-
fundir til kvelds.
Miðvikudagsmorgun þ. 23. kl. 9.30 kemur þing saman
að nýju. Þingfundir til kvelds. Það kveld kl. 8. heldur
deildin Frón sitt árlega íslendingamót. Fimtudagsmorg-
un hefjast þingfundir aftur og standa til kvelds.
Frekari greinargerð fyrir hinum ýmsu samkomum
þingsins verður gerð síðar.
Winnipeg, 19. janúar 1938.
í umboði stjórnarnefndar Þjóðræknisfélagsins.
Rögnv. Pétursson (forseti) Gísli Johnson (ritari)