Heimskringla - 13.04.1938, Blaðsíða 8
8. SÍÐA
HEIMSKRINGLA
WINNIPEG, 13. APRfL 1938
FJÆR OG NÆR
Páskadags guðþjónustur
í Winnipeg
fara fram í Sambandskirkj-
unni páskadaginn kl. 11. f. h. á
ensku og á íslenzku kl. 7 e. h.
Við báðar guðsþjónusturnar
verður sérstaklega æfður söngur
undir stjórn Bartley Bro^n við
morgun messuna, en undir
stjórn Péturs Magnús við kvöld-
guðsþjónustuna. — Umræðuefni
prestsins verður í samræmi við
anda dagsins. Fjölmennið við
báðar guðþjónustumar!
Sunndagaskólinn kemur sam-
an eins og vanalega kl. 12.15.
* * *
Messað verður í Sambands-
kirkjunni í Árnesi á páska-dag-
inn (þ. 17. þ. m.) kl. 2 e. h.
* * *
Séra Guðm. Árnason messar á
Langruth sunnud. 17. apríl kl.
2 e. h.
* * *
Vatnabygðir
Föstudaginn langa, 14. apríl,
ensk messa í Wynyard. (Þátt-
taká allra presta og kirkjusöng-
flokka bæjarins).
Páskadag 17. apríl, kl. 11 f. h.
Samkoma sunnudagaskólans. —
Foreldrar og aðrir velkomnir.
Kl. 2 e. h. Hátíðamessa í Wyn-
yard. (ísl.)
Annan páskadag 18. apríl, kl.
11 f. h. Páskamessa í Mozart.
Kl. 2 b. h (M.S.T.) Páska-
messa í Leslie.
Jakob Jónsson
* * *
Kvenfélag Sambandssafnaðar
í Winnipeg efnir til samkomu á
sumardaginn fyrsta (21. apríl)
í Sambandskirkjunni. Til sam-
komunnar hefir verið efnt hið
bezta. Sjáið auglýsingu í þessu
blaði.
We can arrange the financmg
of automobiles being purchased
or repaired, at very reasonable
rates. Consult us—J. J. Swanson
& Co., Ltd., 601 Paris Bldg.,
Winnipeg.
* * *
Rit.—Séra S. ólafsson
V. Rit.—Miss Anna Laxdal
Fj. Rit.—Miss O. Oddleifsson
Gjaldk.—Ingvar Guðmundsson
D—Miss Laura May Jónasson
ÆD—Miss Agnes Oddleifsson
V—Jakob Thorsteinsson
Soffonías Thorkelsson lagði af i ÚV—Irvin Sveinsson
stað vestur á strönd, til Van- Umboðsmaður—Jóh. B. Jóhanns-
son
J WIMMPEG u
PHILHARMONIC
CHOIR
and Symphony Orchestra
Herbert J. Sadler, Oonductor
PRESENTS
—í
‘King Olaf’
with
STEUART
WILSON
and
Sigrid Olson—Paul Bardal
AUDITORIUM
MONDAY, APRIL 18th
8.30 p.m.
Box Office
Winnipeg Piano Co.
Dánarfregn
S. 1. miðvikudag 6. þ. m. and-
aðist ungabarn, Valdína Doro-
thy, dóttir þeirra hjóna Carl og
Winnifred Cooper Brandson, 405
Marjorie St., St. James.
Faðir barnsins er sonur
Odds Brandson og Ásgerðar
konu hans, en móðir þess er af
hérlendum ættum. Barnið var
fætt 28. janúar s. 1. Útförin fór
fram s. 1. föstudag, 8. þ. m. frá
Bardals. Jarðað var í St. James
grafreitnum. Séra Philip M. Pét-
ursson jarðsöng. -
* * *
Jón Jónsson frá Vogar kom
til bæjarins um helgina til að
sjá systur sína er liggur hér á
sjúkrahúsi.
* * *
Sigurður Indriðason frá Sel-
kirk var staddur í bænum í gær.
* * #
Mrs. Valgerður McClellan,
Winnipeg brá sér suður til Moun-
tain, N. D., í vikunni sem leið
og bjóst við að dvelja þar nokkra
daga.
* * *
John J. Arklie, auknlæknir
verður staddur á Lundar (Lund-
ar hótel) föstudaginn 22. apríl í
lækninga-erindum.
* * *
Kristinn bóndi Eyjólfsson frá
Kandahar, Sask., leit inn á skrif-
stofu Hkr. s. 1. fimtudag. Hafði
hann þá verið hér í bænum á
aðra viku. Kona hans hefir ver-
ið til lækninga hér á Almenna-
sjúkrahúsinu á þriðja mánuð. —
Kvað hann henni líða betur þessa
stundina og vonaði að um varan-
legan bata væri að ræða. Mr.
Eyjólfsson vissi ekki um hvenær
hann færi vestur.
couver, Seattle og fleiri staða s.
1. fimtudag. Hann bjóst við að
verða í tvo mánuði í burtu.
* * *
Þakkarorð
Með innilegu þaklæti til þeirra
er heiðruðu minningu elskulegr- • ^ardal tekur þátt
ar eiginkonu og móður okkar, ^ asamt Mrs. C. 0
Vegna annríkis verður næsti
fundur ekki haldin fyr en annan
í páskum, 18. apríl kl. 8 e. h. í
G. t. húsinu að Árborg.
Stórtemplar br. Arinbjörn
í fundinum,
L. Chiswell,
SKEMTISAMKOMA
Lestrarfélagsins á Gimli í Parish Hall, Gimli
FÖSTUDAGINN, 22. APRIL, kl. 8 síðd.
•
SKEMTISKRÁ :
Ávarp forseta.
Piano Solo.............Ragnar H. Ragnar
Upplestur..............Ragnar Stefánsson
Einsöngur..............Guðm. Stefánsson
Rímur kveðnar.........Ragnar Stefánsson og
Guðm. Stefánsson
Kappræða........Dr. Sig. Júl. Jóhannesson og
séra Guðm. Ámason
Einsöngur................Ólafur N. Kárdal
Piano solo.............Ragnar H. Ragnar
Einsöngur.............. Guðm. Stefánsson
Kvæði..................Einar Páll Jónsson
Einsöngur................ólafur N. Kárdal
•
Inngangur 35c fyrir fullorðna; 15c fyrir böm
DANZ—VEITINGAR TOMBÓLA
Nefndin.
SUMARMÁLA SAMKOMA
Hin árlega sumarmála samkoma Sambandssafnaðar,
undir umsjá safnaðar kvenfélagsins verður haldin
FIMTUDAGINN, 21. þ. m.
Sumardagskveldið fyrsta—í samkomusal safnaðarins.—
Fjölbreytt skemtiskrá—og fyrirtaks veitingar. Aðgangur
er ókeypis en tekið verður á móti samskotum.
Til skemtana verður:
1. Ávarp forseta...........Mrs. J. B. Skaptason
2. Piano solo............Miss Thelma Guttormsson
3. Trumpet solo.................Mr. A. G. Bardal
4. Ræða......................Mr. Tryggvi Oleson
5. Organ solo..............Mr. Gunnar Erlendsson
6. Upplestur....................Mr. P. S. Pálsson
7. Vocal solo................Miss Lóa Davidson
8. Söngur................Söngflokkur safnaðarins
9. Veitingar í neðri sal kirkjunnar.
Fagnið sumri og fjölmennið á samkomuna.
Byrjar kl. 8.15 e. h.
Forstöðunefndin.
Lauru Signýjar Blöndal, með
nærveru sinni við útför hennar
5. apríl s. 1. Einnig fyrir blóm og
öll hluttekningar orð víðsvegar
að.
Blöndals fjölskyldan,
707 Home St.
* * *
Síðast liðinn sunnudag fór for-
seti Þjóðræknisfélagsins ásamt
nokkrum fleiri stjórnarnefndar-
mönnum norður til Gimli. Erind-
ið var að afhenda bæjarstjóm
Gimli'-bæjar formlega Landnema
minnisvarðann til umsjár og
eftirlits.
* * *
Heimilisiðnaðarfélagið heldur
næsta fund á miðvikudagskvöld-
ið 13. apríl að heimili Mrs. Óvídu
Swainson, Ste. 2 Reliance Blk.,
480 Young St. Fundurinn byrj-
ar klukkan 8.
* * *
Leiðrétting
Af ógáti hefir fallið eitt nafn
úr gefendaskrá, í blómasjóð til
minningar um Ingimund sál. Er-
lendsson á Steep Rock, er send
var barnaheimilinu á Hnausum
af Mr. Einari Johnson. Nafnið er
þetta er vera átti á skránni
Mr. og Mrs. Jón Thorsteinsson,
Steep Rock
Þetta eru hlutaðeigendur beðn-
ir að afsaka.
* * *
Jón Bjarnason Academy
Gjafir
D. H. Backman,
Clarkleigh, Man........$2.00
J. Goodman, Glenboro, Man. 2.00
Sig. Davidson,
Edinburg, N. D.........10.00
Mrs. Sigr. Eiríksson,
Lundar, Man............10.00
Fyrir þessar gjafir vottast hér
með vinsamlegt þakklæti.
S. W. Melsted,
gjaldkeri skólans
* * . »
Söngflokkur hins fyrsta Lút
safnaðar hefir verið að undirbúa
og æfa hið yndisfagra tónverk
‘The Crucification” (Krossfest-
inguna) eftir J. Stainer, og verð-
ur það sungið í kirkjunni á
föstudaginn langa. Sólóistar við
þetta tækifæri eru þau frú Sig-
ríður Olson og Paul Bardal. —
Söngurinn byjar klukkan 7 e. h.
og allir eru velkomnir.
* * *
Goodtemplara stúkan “Ár-
borg” nr. 37 var endurreist
þriðjudaginn 29. marz kl. 8 e. h.
í Goodtemplarahúsinu að Ár-
borg, Man. Stúkan hafði ekki
starfað í 2 ár vegna of fárra
meðlima.
20 manns gengu inn í stúkuna.
á endurreisnarfundinum, en þar
sem veðrið var óhagstætt og
brautir slæmar til yfirferðar, þá
gátu ekki fleiri komið á fundinn
af þeim 38 sem skrifað höfðu
undir beiðnir til alþjóðareglunn-
ar.
Þessir voru settir í embætti
fyrir yfirstandandi ársfjórðung.
ÆT—Mr. Marino Elíasson, kenn-
ari.
VT—Mrs. O. G. Oddleifsson
C—Miss Josephine S. ólafsson
Pianokensla
R. H. RAGNAR
Kenslustofa:
Ste. 1 Mall Plaza
Phone 38175
G. S. J. M. o. fl. frá stórstkúunni.
Allir eru boðnir hjartanlega
velkomnir í stúkuna Árborg nr
37 og vonast er eftir að margir
gangi inn á næsta fundi.
Séra G. P. Johnson, G. S. L. W.
endurreisti stúkuna eftir að hafa
safnað 38 undirskriftuni í Ár-
borg.
Lúterskri presturinn, séra S.
Ólafsson tók óskiftan þátt í end-
urreisnar starfi stúkunnar á-
samt Jóh. B. Jóhannsson og fl.
góðum og áhugsömum mönnum
og konum í Árborg bygð og bæ.
* * *
Bók sem allir ættu að eiga
er auglýst á öðrum stað í blað-
inu.
Bókin heitir, “The Claimant’s
Fire Insurance Guide” eftir John
A. MacLennan. Hún er um
skaðabótarkröfu til eldsábyrgð-
aréflaga. Fæstir eru heima í
þeim sökum, og eru því árlega
stórir hópar, er verða fyrir
eignatjóni af völdum elds, snuð-
aðir um stórfé, sem þeir eiga fult
tilkall til, ef þeir kynnu með að
fara. Bókin kostar 75c send með
pósti hvert sem er. Þessu riti'
hefir verið mikið hrósað. Það
er glögt og greinilegt og þó ná-
kvæmt og fylgir fyrirmælum
laganna í öllum greinum. Pant-
anir niá senda á skrifstofu
“Heimskringlu.”
Það er álit vort að enginn ætti
að vera án þessa rits, það kostar
lítið en getur verndað menn fyr-
ir ágangi umboðsmanna eldsá-
byrgðarfélaganna sem jafnan
fara eins langt og þeir komast
þegar um skaðabótar mat er að
ræða. £L
* » *
Hinn ungi og glæsilegi tenór
söngvari ólafur N. Kárdal efnir
til hljómleika í Lútersku kirkj-
unni í Riverton þriðjud. þ. 19.
apríl n. k. kl. 8.30 e. h. Á söng
skránni verða valin íslenzk og
útlend lög. R. H. Ragnar að-
stoðar, leikur hann undirspil á
piano og auk þess pianosólós. —
Aðgangur verður 50 cent. Kaffi
veitingar verða ókeypis eftir
samkomuna.
* * *
Heiðurs samsæti var fröken
Halldóru Bjarnadóttir frá Rvík.
haldið af Mrs. L. O. Chiswell á
Gimli í Moore’s matsöluhúsinu í
Winnipeg, föstudaginn 8. apríl.
Var þar neytt snyrtilega fram-
borinna rétta og skemt sér við
samræður. Konur er þátt tóku
í samsætinu auk þeirra sem
nefndar eru, voru þessar:
Mrs. R. Marteinsson, Mrs. R.
Pétursson, Miss Salóme Hall-
dórsson, M.L.A., Mrs. B. J.
Brandson, Mrs. F. Johnson, Mrs.
P. Pétursson, Mrs. A. S. Bardal,
Mrs. L. Thomsen, Mrs. S. Björns-
son, Árborg, Man., Mrs. B.
Thorpe, Mrs. O. Stephensen,
Mrs. G. Johnson, Mrs. A. C.
Johnson, Mrs. B. S. Brynjólfs-
son, Mrs. J. B. Skaptason, Mrs.
P. Bardal, Sr., Mrs. S. O. Bjer-
ring, Mrs. L. E. Summers, Mrs.
A. Wathne, Mrs. J. Markússon,
Mrs. P. S. Pálsson, Mrs. B. E.
Johnson, Mrs. S. ólafsson, Ár-
borg, Man., Mrs. B. S. Benson.
» * *
Hátíðaguðsþjónustur við
Churchbridge: á föstudaginn
langa í prestshúsinu í Church-
bridge, kl. 2 e. h.
Á páskadaginn kl. 2 e. h. í
kirkju Konkordia safnaðar.
S S. C.
ÞJÓÐRÆKNISFÉLAG
ISLENDINGA
Forseti: Högnv. Pétursson
45 Home St. Winnipeg, Man.
Allir fslendingar í Ameríku
ættu að heyra til
Þjóðræknisfélaginu
Ársgjald (þar með fylgir
Tímarit félagsins ókeypis)
$1.00, sendist fjármálarit-
ara Guðm. Levy, 251 Furby
St., Winnipeg, Man.
Karlakór fslendinga í Winnipeg
efnir til hljómleika miðvikud.
4. maí n. k. í Lútersku kirkjunni
á Victor St. Mun mörgum for-
vitni að heyra þessa hljómleika
því nær þrjú ár eru nú liðin síð-.
an kórinn hafði hljómeilka síð-
ast. Mun kórinn syngja átján
lög, mörg af þeim aldrei áður
sungin hér í borg. Auk þess að-
stoða flokkinn þeir Paul Bardal
bæjarráðsmaður með einsöngv-1
um og Frank Thorólfsson með i
piano leik. Aðgöngumiðar eru
nú til sölu hjá meðlimum karla-
kórsins. Samkoman verður aug-
lýst í næstu blöðum.
* * *
Bréf
Winnipegosis, Man.,
3. apríl 1938
Hr. ritstj. Hkr.:
Eftirfarandi greinagerð er
óskað að Heimskringla birti í
blaðinu sem væntanlega verður
gefið út 13. apríl n.k. Tilefnið
er það, að páskadag næsta þ. 17.
apríl, sem er dánardagur Mrs.
Valgerðar H. Z. French, fædd 13.
nóv. 1899, dáin 17. apríl 1937.
Á dánardag hennar er ákveðið að
lagðir verði á hvílustað hennar
tveir prýðilegir blómvendir; —
annar frá eftirlifandi eigin-
manni, hinn frá foreldrum og
systkinum hennar. Sömuleiðis í
sambandi við þessi ummæli eftir-
farandi ljóðlínur eftir Stgr
Thorsteinsson:
ó! gætum við aftur þig grátið
frá Hel,
Góðkvendið elskulega!
Það eina við megnum: með ást-
ar þel
Að inna þér fórn vors trega:
Þér fylgir vor blessun, þér
fylgja vor tár
Á friðarins engilvega.
Foreldrar, Mr. og Mrs. G. Brown,
Eiginmaður og systkini
* * *
FJÖLBREYTTA SKEMTUN
heldur G. T. stúkan “Skuld”
miðvikudaginn 13. apríl kl. 8 e.
h. að I. O. G T. Hall, Sargent
Ave.
SKEMTISKRÁIN: Upplestur,
einsöngur og hljóðfærasláttur.
Einnig afar spennandi gam-
anleikur:
Frá einni plágu til annarar”
MESSUR og FUNDIR
f Jcirkju Sambandssafnaðar
Messur: — á hverjum sunnudegi
Kl. 11 f. h. á ensku
Kl. 7 e. h. á íslenzku.
SafnaOarnefndin: Funalr 1. föstu-
deg hvers mánaðar.
Hjálparnefndin: — Fundir fyrata
mánudagskveld f hverjum
mánuðl.
KvenfélagiO: Fundlr annan þrlSJu-
dag hvers mánaðar, kl. 8 að
kveldlnu.
Söngæfingar: Islenzki söng-
flokkurinn á hverju fimtu-
dagskvöldi.
Enski söngflokkurinn &
hverju föstudagskvöidi.
Sunnudagaskólinn: — A hverjum
sunnudegi, kl. 12.15 e. h.
Wonderland
THEATRE
Fri. Sat. & Mon. Apr. 15, 16, 18
NOTE! Good Friday MATTNEE
Doors open 1 p.m.
‘LIFE of EMILE ZOLA’
Paul Muni—Josephine Hutchlson
“The Littlest Diplomat”
Sybil Jason, a featurette
CARTOON
Added: Fri. and Sat. Matinee
“SOS Coastguard”—Chapter 3
Our Gang Comedy
Mon.—Country Store Nlght,
SPECIAL Holiday MATENEE
Monday, April 18th
A Complete New Show
1. “BORNEO”
Thrilling Picture of Jungle Llfe
2. Our Gang Comedy
3. Popeye Cartoon
4. A Tuneful Colortoon
Tue. Wed. & Thu. Apr. 19, 20, 21
“THE FIREFLY”
JEANETTE MacDONALD
ALLAN JONES
“The THUNDER TRAIL”
Gilbert Roland—Marsh Hunt
Paramount News
Thursday—Country Store Nlght
Yið kviðsliti
Til linunar, bóta og styrktar
reynið nýju umbúðirnar, teyju-
lausar. Stál og sprotalausar. —
Skrifið: Smith Manfg. Company,
Dept. 160, Preston, Ont.
Sjónleikur í 4 þáttum eftir dr.
Sig. Júl. Jóhannesson.
Að endingu verða stignir
gamlir og nýir dansar.
Veitingar verða seldar á staðn-
um.
Inngangur aðeins 25c.
Allir velkomnir.
» »
ARIÐANDI
««
Gætið réttinda yðar, með
því að afla yður allra upp-
lýsinga um skaðabætur. —
The Claimant’s Fire Insur-
ance Guide er 123 bls., veit-
ir allar upplýsingar aðlút-
andi vátryggingar kröfum.
Skýr og áreiðanleg. Verð
75c. — Sendið pöntun til
“Hkr.” eða höf.
John A. MacLennan
154 Sherbrook St., Wpeg.
LEIKFL0KKUR ÁRB0RGAR
sýnir sjónleikinn
“TENGDAMAMMA”
Á eftirfylgjandi stöðum:
ÁRBORG, I.O.G.T. HALL..........Föstudag, 22. apríl
VfÐIR HALL........................Mánudag, 25. apríl
HNAUSA HALL....................Miðvikudag, 27. apríl
LUNDAR HALL......................Föstudag, 29. apríl
WINNIPEG, í efri sal I.O.G.T. Hall, Sargent Avenue,
Fimtudag, 5. maí
Leikurinn byrjar kl. 8.30 e. h.
Veitið sérstakt athygli
MISS GUÐNÝ V. EINARSSON,
Ste. 9 Granton Apartments Sími 73129
er veitt hefir forstöðu og verið kennari við helztu
snyrtingartsofur Winnipeg-bæjar, tilkynnir að hún
hefir nú stofnað á eigin reikning nýtízku snyrt-
ingarstofu með öllum nýjustu og fullkomnustu
tækjum.
Sérstakt kjörverð á “Permanent Waving”
Tekið á móti viðskiftafólki að kveldinu.