Heimskringla


Heimskringla - 27.04.1938, Qupperneq 4

Heimskringla - 27.04.1938, Qupperneq 4
4. SÍÐA HEIMSKRINCLA WINNIPEG, 27. APRÍL 1938 niHiiniiiiitmiitiHiiiHiinuHiifliiiiiinmmiiiimnmnninrannmmniiininifflmmminimaimfflminimmmtimmnuiBHig Iticimskcíniila | (Sto1v.ua 18S6) Kemur út á hverjum miSvikudegi. Eigendur: THE VIKXNG PRESS LTD. SS3 og S5S Sargent Avenue, Winnipeg Talsimis 86 537 Verð blaðsins er $3.00 árgangurinn borglst g tyriríram. Allar borganir sendist: TIíE VIKING PRESS LTD. tJU viðskiíta bréí blaðinu aðlútandi sendist: g ííznager THE VIKING PRESS LTD. S53 Sargent Ave., Winnipeg Ritstjóri STEPAN EINARSSON Utanáskrift til ritstjórans: EDITOR HEIMSKRINGLA 853 Sargent Ave., Winnipeg I“Heimskringla" is publlshed and printed by m THE VIKING PRESS LTD. 853-855 Sargent Avenue, Winnipeg Man. H Telephone: 86 537 plllllllllllHllllllllllllllllllllllll lUUlUUIllliiUillliliilllilllUUUUUlUIUlUtlllUillUpilillllUlUUItUUJIlUlUUUUlUIUliUliUUillUliic WINNIPEG, 27. APRfL 1938 ALYARLEGASTA MÁLIÐ fhaldsmenn í Canada hafa ráðgert að halda fund í júlímánuði til þess að velja sér flokksforingja og semja nýja stefnu- skrá. Hafa þeir haldið nokkra undirbún- ingsfundi og landsmálin verið gaumgæfi- lega athuguð. Af umræðunum á þeim fundum er það ljóst, að þeir skipa atvinnu- leysismálinu ofarlega á stefnuskrá sina. Þetta er eins heilbrigt og það getur verið. Af öllum þeim vandamálum, sem þjóðin horfist í augu við, er atvinnuleysið alvar- legast. Að vita nærri helming uppvaxandi kynslóðar á 16 til 24 ára aldri í stórborg- um landsins ráfa ákvörðunarlaust og eins og menn í svefni um göturnar iðjulausa árið um kringí hrópar í himininn um skeytingarleysi þeirra, er með stjórn og athafnamál þjóðarinnar fara. Atvinnuleysi var fyrst sérstakur gaum- ur gefinn hér árið 1930. Var þó langt frá að það væri byrjun þess. Það hafði legið hér í landi síðan 1920 eða skömmu eftir stríð, sem ekki var óeðlilegt, þar sem allur annar iðnaður en vopnaframleiðsla hafði lagst í dá á stríðsárunum, og þúsundir heimkominna hermanna höfðu bæzt við á vinnumarkaðinn. En Mr. King, forsæt- isráðherra Canada, neitaði eigi að síður fyrir átta árum, að um nokkurt atvinnu- leysi væri að ræða. Mr. Bennett kvað í kosningabardaganum 1930, atvinnuleysið alvarlegt, og hét að gefa því óskiftan gaum. H&nn vann storkostl6g3.n sigur í kosningunum og tók til óspiltra mála með að efla atvinnu, lagði fram fé til atvinnu- bóta í svo rífum mæli, að þeim sem landið höfðu erft og alt höfðu í sinni hendi, nema atkvæði almennings þá stundina, stóð ógn af því. Styrk veitti hann einnig þeim er atvinnu nutu ekki. Hann hækkaði og verndartolla með það sama fyrir augum, að efla atvinnu í iðnaði landsins. Þó alt þetta bætti í sjálfu sér mikið úr skák og eins og á stóð, bjargaði Canada annars vegar frá fjárhagshruni, áttu verstu af- leiðingar undarfarandi ára eftir að koma betur í ljós. Þó kreppan sé að jafnaði ekki neinni sérstakri stjórn kend, þar sem hún átti sér stað um allan heim, er hitt sann- leikur, að Kingstjómin hafði með ráðslagi sínu og eins langt og áhrif hennar náðu, búið vel í pottinn fyrir hana í Canada og var hún að ómældu leyti að kenna. Þegar ráð Bennetts dugðu ekki til hlítar að bæta úr 10 ára óstjórn liberala, var sagan um kosninga-loforðasvik spunnin upp og á Bennett borið að hann ætti eftir að upp- fylla loforðið um að uppræta atvinnuleysið. Að vísu var þetta ekki annað en kosninga- beita, enda hafði það við ekkert að styðj- ast. Kosningaloforð Bennetts lutu að því einu, að viðurkenna þörfina á að gefa at- vinnuleysismálinu fylsta gaum, en sem Kingstjórnin gerði ekki og virðist ekki gera ennþá. Síðustu tvö árin sem Bennett fór með völd, rénaði kreppan að nokkru og atvinna í iðnaði landsins jókst. Á þremur árunum sem liðin eru síðan King kom til valda, hefir og hin utanaðkomandi og óviðráðan- lega kreppa einnig haldið áfram að réna, en atvinnumöguleikar virðast hvað sem til kemur ekki hafa aukist að sama skapi í Canada. Svo mikið er víst. Og það er vegna þess, sem margir spyrja nú, hvort að viðreisnin hefði ekki verið hér greiðari, með stefnu Bennetts, en með stefnu Kings. Tala skráðra styrkþega lækkar ekkert að ráði. Má auk þess gera ráð fyrir að eins margir óskráðir séu atvinnulausir og styrkþegamir; fréttimar úr stórbæjunum bera sorglegan vott um þetta. Hvað á að gera til að lækna þetta þjóðar- mein, atvinnuleysið ? Þó svarið liggi fá- um í augum uppi, er það eitt víst, að þjóð- in er alls ekki ánægð með aðgerðir King- stjórnarinnar í þessu máli. Stjórnin hefir að vísu skipað kostnaðarsama nefnd, undir stjórn Mr. A. B. Purvis, til að rannsaka málið ítarlega; hefir sú nefnd og gert ýmsar tillögur, en sem í framkvæmdum stjórnarinnar hafa að sára litlu gagni komið. Mr. Rogers, verkamálaráðherra, hefir og klukkustundum saman talað um at hafnir Kingstjórnarmnar á þinginu í þessu máli, en þrátt fyrir alt það skrum hafa verkin ekki borið neinu af því vitni. — Stjómin hefir ekki ennþá svo mikið sem snert við rótum meinsins. Ef íhaldsmenn geta upphugsað eitthvert ráð, til þess að létta atvinnuleysisbölinu af þjóðinni, ráð sem ekki bregst er til fram- kvæmda kemur, geta þeir reitt sig á, að athygli þjóðarinnar brestur ekki. Ástand- ið í atvinnumálum er óþolandi eins og það nú er og að láta sig það litlu skifta eins og Kingstjórnin gerir, að öðru leyti en því, að lána atvinnuleysingjana járnbrautarfélög- um eða búskítum, sem fastir mundu vilja lána hesta sína, er blátt áfram ófyrirgef- anlegt og getur, þó allar mannréttinda- rellur séu lagðar á hilluna, til meiri þjóð- arvandræða leitt en orðið er, þó ekki sé á það bætandi. Efnafræðingurinn og konan hans höfðu verið að rífast og hinn lærði maður fékk sér sæti við skrifborðið. — Þú veizt ekki hvað tár eru, kjökraði konan hans. — ó, jú. Veit eg víst, sagði efnafræð- ingurinn. Tár eru ekki annað en aqua chlorata með dálitlu af fosfórslati í. ER HOLLAND NÆSTA BRAÐIN? Menn hafa á hverri stundu vænst frétta um það að Hitler væri að taka Czecho-Sló- vakíu. Það er landið sem búist var við að yrði næsta bráð þessa gráðuga ránfugls. Hvað sem til kemur, hefir enn ekki orðið af því. Og nú er því jafnvel haldið fram, að það sé ekki Czecho-Slóvakía, sem Hitler líti fyrst til í veiðihug, heldur Holland og hin auðuga nýlenda þess, Austur-Indland. Bernhard (“Benno”) Hollands-prins brá sér fyrir skömmu í skyndi til Englands. Furðaði marga þá á hvað mundi undir búa. Nú er ferð sú engum ráðgáta. Hollend- ingar vissu hvað Hitler ætlaði sér og lá alvarlega hugur á að fá England til að taka sem bráðast í strenginn. Ferð Bennos nýlega til ítalíu var og í dauðans ofboði farin til að fá Mussolini að skerast í leikin með því að tala við Hitler, áður en um seinan yrði. Stjórn Bretlands er sagt að hafi lítið gert, úr þessari frétt. En Strabolgi lá- varður (áður Kenworthy sjóliðsforingi) kvað ótta Hollendinga ekki ástæðulausan. Heldur hann fram að Hitler skoði sér alla vegi færa síðan Þjóðabandalagið fór í mola. Um samtök smáþjóða sér til verndar sé ekki lengur að ræða. Afleiðing af því sé sú, að öll nágranna lönd Þýzkalands séu í hættú stödd; Danmörk, Noregur, Svíþjóð, Lithuania, Eistland og Latvia séu það alveg eins og Holland, þegar Hitler fái lystina. En Holland freistar hans þó mest. Hitler er sólgimi í nýlendúr. Og nýlendur Hol- lands eru auðugar af olíu, togleðri,. tini og öðrum hráefnum, sem Þýzkaland skortir tilfinnanlega. Austur Indland er og mikils- vert frá hemaðarlegu sjónarmiði. Her- stöðvar þar koma sér vel í stríðum fyrir Þjóðverja í framtíðinni, ekki sízt ef sam- bandsþjóð þess, 'Japanir, skyldu etja við Bandaríkin á Kyrrahafinu eða meðfram því einhverstaðar. Strabolgi lávarður heldur meira að segja fram, að samningar séu til milli Japana og Þjóðverja, er taki fram hvernig hlutnum skuli skift að leiks- lokum. Þétta er einnig sögð ein af á- stæðum Rreta fyrir að vinna eins og þeir gera að því að fullkomna herstöðvar sínar í Singapore. Hvað geta Hollendingar gert, ef Þjóð- verjar ráðast á þá? Sem næst ekkert. — Her þeirra er lítill og Holland hefir ekki hernaðarsamband við eina einustu þjóð. Sjóflotann er ekki að nefna. Milli Bret- lands og Hollands eru engir samningar og Nazistar eru sannfærðir um það, af fram- komu Chamberlain-stjórnarinnar, að Bret- land bindur sig engum samningum um að vernda Holland í stríði. Utanríkis-ritari lét Benno prins skilja það fyllilega, er hann var í London. Þó Hollendingar ættu nú kost á að gera samning við Breta^eða Frakka um vernd, ef nógu mikið væri í boði, þá hika þeir nú við það af ótta við að það flýti fyrir árás Hitlers. Þeir hafa því kosið þá leið eina, enn sem komið er, að knýja á dyr Musso- lini og fá hann til að friðmælast við Hitler samherja sinn, fyrir hönd Hollands. Hefir Holland með þetta fyrir augum brugðist við að viðurkenna yfirráð ítala í Blá- landi sem það hefir til þessa þrjóskast við. Hvernig Mussolini snýst við þessu, er nú eftir að vita. HAFA DÝRIN SÁL? Eftir Steingrím Matthíasson i ------ Ef eg er spurður: “Hafa dýrin sál?” þá svara eg líkt og Skúli heitinn á Sigríðar- stöðum, þegar trúboðinn spurði hann: “Trúir þú á Jesús?’’ og Skúli svaraði hvell- um rómi: “Já, það held eg og það held eg og rúmlega það!” En enginn hefir á spurninni, því til skamms tíma var því bar- ið inn í alla krakka, (að forlagi klerkanna), að einungis mönnunum væri af guði gefin ódauðleg sál, en að dýrin væru bara blátt áfram skynlausar skepnur, og kæmi' því ekki til mála, að þau gætu upprisið á efsta degi. Ef til vill hefir hér nokkru ráðið óttinn fyrir því, að ekki væri pláss í himna- ríki fyrir allan þann grúa, þó hinsvegar sagan af örkinni hans Nóa benti til þess, að guði þyrfti ekki að verða nein skota- skuld úr því að leysa úr hibýla-spursmáí- unum. Með sigri framþróunar kenningarinnar, á sviði núttáruvísindanna, er enginn nátt- úru fróður maður lengur bundinn við gömlu klerkakredduna, heldur skoðar það sem auðvitað mál, að dýrin hafi sál, engu síður en mennirnir; aðeins sé stigmunur á, hve sálin sé þroskuð og fullkomin. Sumir vilja þó halda því fram, að mjög gagngerður munur sé á mannvitinu og skynsemi þeirra dýra, sem standa fremst í röð að gáfnafari, eins og t .d. hundurinn, aparnir og fíllinn. Þeir segja: “Munurinn mikli er sá, að engin dýr geta, eins og maðurinn, dregið eina ályktun af annari.” Aðrir vísindamenn viðurkenna ekki þenn- an mun og tilfæra ýms dæmi til að hnekkja þeim rökum. Einn meðal þeirra er hinn stórmerki skáldspekingur Maeterlinck, sem manna mest hefir reynt að kanna sálarlíf æðri og lægri dýra. Vandinn er mikill, því enn kann enginn það mál, sem dýrin skilja, né skilur það mál og þau merki, sem þau kunna að nota, nema að mjög litlu leyti. Fyrrum voru barnafræðararnir svo vel að sér um alla hluti. Þá kendu þeir t. d. það, að maðurinn væri gæddur frjálsum vilja og það væri hans aðalsmerki er hann hefði framar dýrunum. Þessu var okkur kent að trúa, og við krakkar þóttumst trúa þessu. En heimurinn breytist og mennirnir með. Hve margir vitringar munu nú skrifa undir kenni»guna þá? Spursmálið um sálina er farið að vefjast í villu og reyk, fyrir prestum og barna- fræðurum, því það er langtum flóknara en flestir hugðu. Ef við spyrjum líffræðinga þá, sem mest hafa athugað plöntur og dýr og menn, þá segja þeir: Líf og sál eru ó- aðskiljanleg hugtök, en afar margbreytt og misjöfn að þroska og lægstu stig lífsins eru enn ófundin. Sennilegast er, að allur heimur, eins í lágu og háu sé gæddur lífi eða sál, eins og ymprað er á í formálanum að Snorra-Eddu og því slegið föstu þar, hvað jörðina snertir, að hún sé ein heljar- stór lifandi skepna. Við skulum nú halda okkur við jörðina og athuga með nokkrum dæmum, sem allir kannast við, hvernig blessaðar skepnumar virðast skynja, hugsa og skilja og, draga ályktanir og sjá sér farborða í lífsbarátt- unni öldungis eiAs og við mannskepnumar. í þessu spjalli, sem haldið var á skemti- kveldi Iðnaðárskólans á Akureyri í fyrra, bíð eg ykkur forláta þó eg komi nokkuð óreglulega við, í stökkum, eins og fló á skinni, en ekki í neinni vísindalegri röð né reglu. Við höfum öll frá unga aldri lagt eyrun við öllum sögum, bæði sönnum og lognum af vitsmunum dýranna. Það gleð- ur okkur ætíð að heyra um kýr og hesta, hunda og ketti sem sýna af sér einhver sérleg greindarmerkr og klókinda, eða t. d. merki næmra tilfinninga og sorgar. Það var nú t. d. kýrin hans Þorgils gjallanda, sem tárfeldi út af kálfinum, sem skorinn var. Eg verð þó að segja, að af því eg er læknir, varð mér nærri að halda að táraflóðið kynni að hafa orsakast af þrota í táragöngunum, sem kussa kunni að hafa gengið með lengi án þess læknis væri vitjað. En hvað um það, hitt kann líka að vera satt að harmur hafi valdið, því enginn efast um að ýms dýr sýni greinileg hrygðarmerki, og kannast allir við sögur af hundum, sem syrgja húsbændur sína eins og Grímur Thomsen hefir svo ágætlega lýst í kvæðinu Rakki og þar tekur hann það ein- mitt fram, að seppi hafi tárast: Hvorki vott né þurt hann þiggur, ?ungt er í skapi, vot er brá, en fram á sínar lappir liggur íki bóndans hjá. Og hér fer eins og um hund ólafs konungs Tryggvasonar, Vígja, að hann sveltir sig í hel: “og hungurmorða loks hann liggur líki bóndans hjá.” Það eru margar sögur um hesta, svipaðar þessu, sem segja frá því, hvernig þeir standr dög- um saman hreyfingarlausir yfir líki fallins og dáins húsbónda síns, (sbr. erfiljóð föður míns um séra St. Jónsson): “. . . svalt dör drösull drottinlaus á heiði.” Hér get eg ekki varist þeirri at- hugasemd, að með allri virðingu fyrir ýmsum ágætum gáfum hestsins, þá er hann oft einkenni lega misvitur; þess eru mörg dæmi', að hestar lenda úti á hjarnbletti, uppi á f jalli og verða þar til og svelta í hel. Það er eins og þeir verði snögglega úr ræðalausir og tapi algerlega kjarkinum til að bjarga sér á eigin spýtur. Eins gæti eg hugs- að mér að færi fyrir hesti þegar húsbóndi hans dettur af baki og svo að segja dettur úr sögunni, limlestur eða hann verður úti, þá falli hestinum stjórnlausum, allur ketill í eld og hann eins og gleymir allri sjálfsbjargar við- leitni. — En að hestar muni árum saman, það, sem fyrir hefir borið, um það eru óþrjótandi sagnir. Eg man altaf eftir hon- um Fjallarauð, þegar eg var drengur. Það var meinleysis á- burðarklár, sem aldrei hafði sýnt neinn annálsverðan skörungskap. Hann hafði verið í mörg ár hjá okkur og virtist una vel hag sín- um. En alt í einu var hann þot- inn og horfinn á braut. Og hvert? Það fréttist loksins af honum austur undir Eyjafjöll- um. Þangað hafði hann strokið því þaðan var hann kominn sem ungur foli- til okkar. Þetta þótti mér skrítið. Þarna var Rauður með merunum á góðu grasi áður en hann strauk. Alt í einu verð- ur honum starsýnt austur eftir, þar sem sá til Eyjafjalla; þar var Seljalandsfoss og þar var Skógafoss—sem báðir sáust svo greinilega frá Odda, þó langt væri á milli. Hans innri augu opnast og endurminningarnar koma í ljós —- “blessuð sértu sveitin mín” — og þó gott sé grasið hér, betra var það eystra og svo mun vera enn! Og svo af stað, og á bullandi sund yfir | Rangá, því mikið lá á. Eitthvað ' á þessa leið hugsaðist mér hátta- i lag Rauðs. — Hann var svo sótt- ur og strauk aldrei úr því. Margir kunna slíkar sögur af strokuhestum og enn aðrar sem sýni minni og eftirtekt og rat- vísi o. fl. Og öll könnuinst við tvið hve góðir reiðhestar kunna vel að þóknast húsbónda sínum í ýmsH, en sýna það ekki öðrum eða hvernig þeir t. d. eru f jörug- 1 ir þegar þeim svo sýnist, en húðlatir ef t. d. óvön kerling sezt þeim á bak. Það miðlar hvor öðrum af f jöri sínu, hestur og maður. Marga hestamenn hefi eg heyrt fullyrða, að hest- urinn finni það fljótt ef hús- bóndinn er ör af víni. Það er eins og hesturinn verði líka kendur. Séra Einar Jónsson prófastur í Hofi sagði mér sanna sögu af því, um karl, sei* hann þekti og var góður tamningamaður. “Það fer aldrei svo,” sagði karl, “að blessuð skepnan finni það ekki”, og fékk hann sér því oft neðan í því þegar hann var að temja hesta, til þess að betur tækist tamningin og f jörið vaknaði bet- ur í klárnum. Flestir þekkja sögur af því hvemig góðir reið- hestar kunna lagið á því, að varna því, að ölvaður húsbónd- inn detti af baki þó hann slingri út á hliðarnar. Þeir hreyfa sig þá frá einni hlið til annarar eftir því og dinta sér til, svo að jafn- vægið haldist og karlgreyið dinglar en dettur ekki. Um hundana mætti svo margt segja að ein kveldvaka entist ekki til. Það ber víst flestum saman um, að telja hundana með allra vitrustu dýrum. Sumir halda þó að vissar apategundir séu þeim fremri. Að vissu leyti má segja að hundurinn taki manninum fram, þar sem þef- vísi er svo aðdáanlega næm, að það yfirgengur vorn skilning. Um minni hundanna eru deildar meiningar. Það er t. d. ótrúleg sagan af hundi Odysseifs, sem á að hafa þekt hann eftir 11 ára brottveru, en þó er ekki fyrir það að synja. Synir mínir áttu hund vitran og tryggan, sem var þeim og okkur öllum á heimilinu, mjög fylgispakur. Nú fór yngri son- urinn Þorvaldur, til Reykjavík- ur og var þar í nálægt ár. Þegar hann kom aftur, kom okkur sam- an um að láta lítið á bera og vita til hvort Bob þekti vin sinn. Það var engum blöðum um það að fletta, hann snuðraði að honum snöggvast og stökk síðan upp um hann með endalausum fleðu og gleðilátum. Eldri sonur minn, Jón fór líka burtu og var í sigl- ingum rúm þrjú ár og kom svo heim. Nú var gaman að vita hvernig Bob tæki honum; því milli þeirra tveggja hafði vin- skapurinn verið allra mestur. — Bob snuðraði að honum, en svo ekki meira. Hann gaf honum engan gaum framar og hafði auðsjáanlega alveg gleymt hon- um. Við gátum þess til, að þar sem Jón hafði siglt svo lengi um saltan sjó ogfarið til heitralanda þá hefði hann viðrast svo ræki- lega að af honum var ekkert hniss framar, sem Bob gat kann- ast við. En hvað um það, þef- vísi hundanna er dásamleg og við skulum ekkert fortaka nema að Garmur, seppi Oddysseifs, hafi verið eins þefvís og minn- ugur og Hómer segir. Fyrir þef- vísinnar tilstilli getur hundur rakið spor húsbónda síns og ann- ara, að eg ekki tali um spor ann- ara hunda langar leiðir. Það má setja hund á sporið, sem kallað er og láta hann síðan rekja. — Þeirra er nú notað mjög af lög- reglumönnum til að hafa uppi á þjófum og öðrum afbrotamönn- um. Alkunnugt er hve sumir hundar taka öðrum hundum langt fram í þessu. T. d. þekkja bændur það um hunda, sem eru afbragðs duglegir að snuðra uppi hvar fé liggi undir fönn, þó fönn- in sé afar djúp. En það sagði mér fjármaður, sem fylgdi slík- um hundi eftir, að þegar hann kom á staðinn þar sem hundur- inn gaf með snuðri og krafsi og ýlfri til kynna, að hér væru allar ærnar grafnar, þá hefði hann líka sjálfur greinilega fundið þefinn af fénu er hann lagðist niður og þefaði eim þann er lagði upp úr snjónum. Margar sögur eru af því sagð- ar að hundar skilji mannamál, en það mun vera mjög takmarkað og ef til vill álíka ábyggilegt eins og þjóðsagan um kýrnar sem áttu að geta skilið og talað mannamál á Nýársnótt: “Mál er að mæla, maður inni’ í fjósi o. s. frv.” En svo mikið er víst, að hundar þekkja nafnið sitt og skal enginn fullyrða nema að greindur hundur gæti lært jafn- vel hebreksu ef einhver góður kennari legði sig allan fram. Enn skal nefna eitt um hund- ana og þefvísi, þeirra. Okkur þykir máske ekki fínt að tala mikið um hundaþúfurnar, þar sem hundarnir ganga erinda sinna (en hundaþúfur þekkjast víst hvergi nema á íslandi, frem- ur en þúfur yfirleitt, og það er

x

Heimskringla

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimskringla
https://timarit.is/publication/129

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.