Heimskringla - 25.05.1938, Page 8
8. SÍÐA
HEIMSKRINGLA
WINNIPEG, 25. MAÍ 1938
FJÆR OG NÆR
Messur í Winnipeg
N. k. sunnudag 29. . þ. m. í
fjarveru prestsins messar við
morgun guðsþjónustuna í Sam-
bandskirkjunni, kl. 11 f. h. Mr.
A. W. Puttee. Umræðuefni hans
verður “Child Welfare in Mani-
toba”. Mr. Puttee hefir verið í
“Child Welfare” nefnd Mani-
toba-fylkis í tólf ár. Auk þess
var hann fyrsti verkamanna full-
trúinn kosinn á sambandsþingið
í Ottawa. Aðstoðar maður hans
verður Mr. J. S. Farmer, sonur
fyrv. bæjarstjóra Winnipeg-
borgar. Við kvöldguðsþjónust-
una flytur frú Guðrún Finns-
dóttir Johnson ræðuna en frú
Halldóra Jakobsson aðstoðar við
messu-athöfina.
* * *
Séra Guðm. Árnason messar á
Steep Rock, Man., sunnudaginn
5. júní.
* * *
Vatnabygðir sd. 29. maí
Kl. 11 f. h.: Sunnudagaskóli í
Wynyard.
We can arrange the financmg
of automobiles being purchased
or repaired, at very reasonable
rates. Consult us—J. J. Swanson
& Co., Ltd., 601 Paris Bldg.,
Winnipeg.
* * *
Oak Point, 18. maí Heimboð
f tilefni af gullbrúðkaupi for-
vinum
Leikflokkur Sambandssafnaðar
í Winnipeg
sýnir sjónleikinn vinsæla og
velþekta “Jósafat” eftir Einar H.
Kvaran á
Gimli, Parish Hall, 27. maí
* * *
Hr. ristj. Hkr.:
Viltu gera svo vel og leið , éldra okkar> bjóðum við
retta mannsnafn sem ntast hef- þe.rra fjölskyIdunnar> að
ir s a ja mer1 gre111 me heimsækja þau á heimili þeirra,
fyrirsögnmni í'rettapist.ll með|118 EmHy st > hér , borginni &
ei™ u ,.a v ?!!! " . ,ar! sunnudaginn þ. 5. júní næstk.
stendur^araldurEyfjorðstjom kJ g g h fram ^
aði flokknum (songflokknum) en kveldinu Allir> sem kynnu að
a a vera a í y jor . vilja heimsækja foreldra okkar,
þau Mr. og Mrs. A. G. Polson
þenna áminsta dag, eru hjartan-
lega velkomnir.
Winnipeg, 23, maí, 1938.
Börn Polson fjölskyldunnar
Með vinsemd,
Á. J. Skagfeld
m m m
Guðmundur bóndi Jónsson frá
Vogar, Man., hefir dvalið í bæn-
um nokkra undanfarna daga.
* * *
Kristján Guðnason Backman,
Lundar, Man., dó 19. þ. m. Var
jarðaður á laugardaginn frá út-
fararstofu Bardals. Hinn fram-
liðni var 63 ára gamall, fæddur á
Dunkárbakka 1 Hörðudal, bjó
lengi í Grunnavatnsbygð þar til
hann seldi bú sitt og rak ýmis-
Kl. 2 e. h.: íslenzk messa í lega afvinnu á Lundar. Hann
Wynyard. Ræðuefnr: “Söng- var nd seztUr að hér í borg. —
mótið í Foam Lake.” j Kristján heitinn var ótrauður
Kl. 4 e. h.: Ensk messa í dugnaðarmaður og ötull að
Mozart.
Jakob Jónsson
TIIEATRK
THIS THIJR.—FRI—SAT.
JEANETTE MacDONALD
AIXAN JONES in
‘The FIREFEY’
Added Attraction—
WABNER OLAND
‘Charlié Chan on Broadway’
Friday Night and Sat. Matinee
Chap. 7—“Zorro Rides Again”
Thursday Nite is GIFT NITE
SUMARIÐ ER KOMIÐ!
Allir sem þurfa að bjarga sér
ættu að eiga
REIÐHJóL
Vér höfum haft sérstakan við-
búnað til að bæta úr þörfum yðar
í þá átt.
Ný og brúkuð reiðhjól á öllum
stærðum og prísum.
26 ára reynsla við aðgerðir.
Lítið inn eða skrifið til
SARGENT BICYCLE WORKS
675 Sargent Ave., Winnipeg
S. Matthew, eigandi
Pianokensla
R. H. RAGNAR
Kenslustofa:
Ste. 1 Mall Plaza
Phone 38175
hverju sem hann tók fyrir.
* * *
Jón Jónsson frá Siglunesi,
Man., var staddur í bænum s. 1.
mánudag.
* * m
Jón bóndi Straumfjörð og
kona hans að Lundar, Man, hafa
selt eignir sínar á Lundar qg
búast við í næsta mánuði að
flytja alfarin vestur á Kyrra-
: hafsströnd. Eru synir þeirra
fjórir vestra. Búið á Lundar
keypti B. Eiríksson.
* * *
Walter J. Líndal, K.C., lagði
af stað s. I. viku austur tii Ot-
'tawa til að sitja.fund, er foringj-
ar liberala eru að halda þar.
* * *
A concert and dance will be
held at the I. 0. G. T. Hall,
Thursday June 2nd, commenc-
ing at 8.15 under the auspices of
The Young Icelanders.
A most interesting program
arranged, which wi}l be adver-
tised in detail later.
AIl are urged to bear this date
in mind, and are cordially invit-
ed to attend.
* * *
Gunnar B. Björnsson frá Min-
neapolis, K. Valdimar Björnsson
og Jón Björnsson, voru staddir
í bænum s. 1. laugardag. Þeir
komu til að wera við útför
Kristjáns Backman, Lundar,
Man., er var jarðaður í Wínni-
peg s. 1. laugardag.
* * *
Meðlimum Heimilisiðnaðarfé-
lagsins er hér með tilkynt að hin
fyrirhugaða heimsókn til Mrs.
Churchill í Sturgeon Creek, verð-
ur á laugardags eftirmiðdaginn
28. maí 1938, ef veður leyfir. —
Þær félagskonur er ætla sér að
vera með, eru beðnar að tilkynna
Mrs. Hannes Líndal, 46 958, Mrs.
Albert Wathne 35 663 eða Mrs.
P. J. Sivertsen.-33 400.
Árslokahátíð Jóns Bjarnason-
arskóla er ákveðin í Fyrstu lút.
kirkju á Victor St., á föstudag-
inn í þessari viku (27. maí) —
Ræðumaður er mentamálaráð-
gjafi Manitoba-fylkis, Hon. Ivan
Schultz. Allir yelkomnir. Gjöf-
um til skólans veitt móttaka.
* * *
Framkvæmdarnefnd sumar-
heimilisins á Hnausum hefir á-
kveðið að byrja starf sitt
fyrstu viku júlí. Vill hún því
mælast til þess að umsóknir
verði sendar til Mrs. P. S. Páls-
son, 796 Banning St., Mrs. J.
B. Skaptason, 378 Maryland St.,
eða séra P. M. Pétursson, 640
Agnes St., frú Olavía Melan,
Riverton, Man., fyrir þ. 15. n
mánaðar.
Fyrir hönd nefndarinnar,
E. J. Melan
Marja Björnsson
* * *
Próf. Watson Kirkconnell og
Gutt. J. Guttormsson skáld hafa
góðfúslega lofast til að flytja
erindi og kvæði á samkomu sem
haldin verður á Lundar þ. 3
júní. Arður af þeirri samkomu
verður fyrir sumarheimili barna
á Hnausum. Verður einnig
fleira þar til skemtunar og fróð-
leiks. Festið þetta í minni.
* * *
Mr. og Mrs. Daníel Backman
frá Clarkleigh, Man., dvelja í
borginni nokkra daga. Þau
komu til að vera við jarðarför
Kristjáns heitins, bróður Daníels
* * *
Dr. Ingimundson verður stadd-
ur í Riverton þriðjudaginn 31.
þ. m.
* * *
Séra K. K. ólafsson flytur
guðsþjónustur í bygðunum aust-
an Manitobavatns sunnudaginn
5. júní, sem fylgir:
Haylad, kl. 11 f. h.
Oak View, (Darwin skóla) kl.
3 e. h.
Silver Bay, kl. 8 e. h.
* * *
útvarp
Ákveðið er að hið fjórða út-
varp Hins ev. lút. kirkjufél. fari
fram fimtudaginn 26. maí (ann-
að kveld) kl. 8.30—9 frá útvarps
stöðinni CJRC. Séra E. H. Faf-
nis flytur ræðuna og söngflokkur
frá Argyle aðstoðar.
* * *
Séra K. K. ólafsson flytur
erindi og messur á virkum dög-
um sem fylgir í vikunni sem
byrjar 5. júní:
Silver Bay, mánudaginn 6.
júní kl. 8 e. h. Ensk samkoma:
Efni: “The Difficulty of Making
Proper Changes. Oak View,
þriðjudaginn 7. júní kl. 8 e. h.
Sama efni.
Wapah, miðvikudaginn 8. júní,
kl. 4 e. h. íslenzk messa.
Reykjavík, mjðvikudaginn 8.
júní kl. 8 e. h. íslenzk messa.
Reykjavík, fimtudaginn 9. júní
kl. 4 e. h. Fyrirlestur: —
“Hversvegna er svo erfitt
að koma á þörfum breyt-
ingum ?”
Hayland, föstudaginn 10. júní,
kl. 8 e. h. Fyrirlestur um
sama efni.
Mrs. Ingibjörg Sólmundsson
F. 18. maí 1878—D. 26. maí 1935
í nafni systur hennar
Ingun Daniel
Systurminning
Til sólarlanda systir kær!
Ert svifin nú á braut;
Hvar laðar andann blíðu blær
—Og brottu flúin þraut.
Minninganna bjjðu blær;
—Mig baðar alla stund—
Samvistanna, systir kær,
Og sorgar græðir und.
Eg veit þér ami enginn nær,
Og alt er kyrt og rótt.
Eg þakka samúð systir kær!
—Æ! sofðu. Góða nótt.
Jóhannes H. Húnfjörð
* * *
Bók sem allir ættu að eiga
er auglýst á öðrum stað í blað-
inu.
Bókin heitir, “The Claimant’s
Fire Insurance Guide” eftir John
A. MacLennan. Hún er um
skaðabótarkröfu til eldsábyrgð-
aréflaga. Fæstir eru heima í
þeim sökum, og eru því árlega
stórir hópar, er verða fyrir
eignatjóni af völdum elds, snuð-
aðir um stórfé, sem þeir eiga fult
tilkall til, ef þeir kynnu með að
fara. Bókin kostar 75c send með
pósti hvert sem er. Þessu riti
hefir verið mikið hrósað. Það
er glögt og greinilegt og þó ná-
kvæmt og fylgir fyrirmælum
laganna í öllum greinum. Pant-
anir má senda á skrifstofu
“Heimskringlu.”
Það er álit vort að enginn ætti
að vera án þessa rits, það kostar
lítið en getur verndað menn fyr-
ir ágangi umboðsmanna eldsá-
byrgðarfélaganna sem jafnan
fara eins langt og þeir komast
þegar um skaðabótar mat er að
ræða.
GÓÐIR GESTIR—
GOTT MÁLEFNI
Þ. 3. júní næstkomandi eiga
Lundar-búar von á góðum gest-
um.
Þá verða þar á samkomu tveir
merkir menn og þjóðkunnir, þeir
prófesor Watson Kirkconnell frá
Wesley skólanum og Guttormur
skáld Guttormsson frá Riverton.
Kirkconnell er alveg einstakur
maður í sinni. röð, og hefi eg
tvisvar áður skrifað um hann í
íslenzku blöðin. Hann er talinn
mesti tungumálamaður, sem núi
er uppi ekki einungis hér í Can-
ada heldur í víðri veröld. Hann
er skáld og bókmentamaður og
hefir þýtt Ijóð á enska tungu
af 52 (fimtíu og tveimur) mál-
um. Hefir verið sæmdur nafn-
bótum og heiðursmerkjum í svo
að segja öllum löndum Evrópu,
að meðtöldu íslandi. Hann hefir
sérstaklega ritað mikið og lof-
samlega um íslendinga og virð-
ist hafa tekið við þá andlegu
ástfóstri. Hann hefir hiklaust
haldið því fram og lýst því yfir
ritum sínum að Steph. G.
Stephansson sé mesta skáld allra
þjóða, sem Canada hafi átt, hef-
ir hann þýtt heilmikið eftir
Stephan.
Kirkconnell er ein hinna af-
kastamestu manna í bókmenta-
störfum, sem sögur fara af. —
Hefir hann t. d. núna alveg ný-
lega ort hvert kvæðið á fætur
öðru í bókmentadeild Free Press
(laugardagsblaðið). Eru það
myndum skreytt söguljóð úr
frumbýlingslífi Manitoba. Kirk-
connell hlakkar til þess að koma
í þann bæ, sem honum hefir ver-
ið sagt að sé al-íslenzkastur allra
bæja í heimi utan fslands — það
er Lundar.
Eg efast ekki um að Lundar-
búar hlakki eins mikið til þess
að sjá og heyra hann eins og
hann hlakkar til þess að mæta
þeim.
Um hinn gestinn þarf ekki
margt að segja. Guttormur J.
Guttormsson þarf ekki neinnar
kynningar. Sá sem orti: “Sandy
Bar”, “Sál hússins”, “Þorra”,
“Eldfluguna”, “Góða nótt” o. fl.
ÞJÓÐRÆKNISFÉLAG
ÍSLENDINGA
Forseti: Rögnv. Pétursson
45 Home St. Winnipeg, Man.
Allir íslendingar í Ameríku
ættu að heyra til
Þjóðræknisfélaginu
Ársgjald (þar með fylgir
Tímarit félagsins ókeypis)
$1.00, sendist fjármálarit-
ara Guðm. Levy, 251 Furby
St., Winnipeg, Man.
á sér svo veglegt og varanlegt
sæti meðal íslenzkra skálda að
hann þarf hvorki á lýsingu né
meðmælum að halda.
Guttormur fer til íslands í
sumar sem heiðursgestur: boð-
inn þangað af íslenzku þjóðinni
í virðingarskyni fyrir þann
mikla skerf, sem hann hefir lagt
til íslenzkra bókmenta og skáld-
skapar.
Þessir tveir merku menn verða
gestir að Lundar 3. júní næst-
komandi. Koma þeir þar fram
á samkomu sem haldin verður
til arðs fyrir gott málefnr: Það
er til aðstoðar sumarheimili
barna, sem stofnað hefir verið
af Sambandskirkjunni, og er
bygt að Hnausum, aðallega í því
skyni að íslenzk börn frá Winni-
peg fái tækifæri til þess að lyfta
sér upp, skemta sér og styrkjast
í sumarfríinu.
Það verður óefað fjölment að
Lundar 3. júní; þar styðja góðir
gestir gott málefni.
Sig. Jál. Jóhannesson
MESSUR og FUNDIR
i kirkju Sambandasafna/Sar
Uessur: — á hverjum sunnudegi
Kl. 11 f. h. á ensku
Kl. 7 e. h. á íslenzku.
Safnaðarnefndin: Funálr 1. föstu-
deg hvers mánaðar.
Hjálparnefndin: — Fundlr fyrata
mánudagskveld í hverjum
mánuðl.
KvenfélagiS: Fundir annan þrlðju-
dag hvers mánaðar, kl. 8 að
kveldlnu.
Söngæfingar: Islenzki söng-
flokkurinn á hverju fimtu-
dagskvöldi.
Enski söng-flokkurinn á
hverju föstudagskvöldi.
Sunnudagaskólmn: — A hverjum
sunnudegi, kl. 12.15 e. h.
ÚR VESTURFÖR
Mr. S. Thohkelsson lagði upp í
ferðalag í vor og kom heim aft-
ur á laugardaginn. Hann stóð
við í Edmonton, Vancouver, Vic-
toria, Blaine, Bellingham og
Seattle, var þar við messu hjá
séra K. K. ólafsson einnig í New
Westmister í kveldboði hjá Jón-
asi Pálssyni, hitti allmarga
landa á þeim slóðum, bæði norð-
an landmæra og sunnan, fór svo
sem leið lá um Portland, Ore.,
Oakland, Cal. og San Francisco,
þar eru goturnar úr steinsteypu,
stéttar úr steinsteypu, húsin úr
steinsteypu, bygð út að stétt-
um og borgin virðist hanga utan
í bröttu bergi, trjálaus og varla
vistleg í þoku og súld, þó mann-
virkin séu mikil og fögur, sér-
staklega nýju brýmar yfir fjörð-
inn á miili Frisco og Oakland.
Frá Frisco hélt hann til Lindsay,
Cal., til dótytur sinnar Ragn-
heiðar og Mr. Flint, sem þar
búa, og til Los Angeles til bróð-
urbama sinna Njáls og Heklu
Thorkelsson. Ennfremur til
Long Beach, San Diego og
snögga ferð inn í Mexikó. Þar
sá hann engar vélar, en landið
virtist honum frjósamt og fag-
urt og fólkið iðjusamt. Aðal at-
vinnuvegir á þeim slóðum sem
hann fór um, aldina rækt og
sauðfjár, þar sá hann handiðn-
að úr tré, leir, leðri og ull, merki-
lega vandaðan og smekklegan.
Atvinnuvegi sagði hann
marga og merkilega í Californíu,
en þá langhelztu olíunámur og
aldina rækt. í fyrra brást þar
uppskera vegna óhagstæðrar
veðráttu. f ár var uppskeran
bæði mikil og góð, en verðmæti
hennar á markaðnum sama sem
ekkert.
Þegar svo ber við ár eftir ár,
ræður það að líkum, að f járhags-
legar ástæður þeirra sem búa í
hinni sólríku Califomíu, verði
æðr þröngar. Fjöldi bænda hef-
ir á síðari árum orðið að leita
lána með þeim afleiðingum, að
líkur eru til að lönd þeirra verði
tekin til skulda lúkninga. Á við-
skiftunum virðast liggja Torfa-
lög, ef svo má kalla það við-
skiftamein sem Thos. E. Dewy
var fenginn til að reyna að
lækna í New York, þéim við-
skiftum sem rekin eru í smáum
stíl, stóru samtökunum þarf
ekki ráð að kenna. Hinar gíf-
urlegu fjárveitingar forsetans
virðast ekkr koma að fullum not-
um. Nokkur hluti þeirra streym-
ir gegnum hendur almennings,
aðeins einu snni, og lendir í
stóru sjóðina, en þaðan virðast
þær ekki eiga afturkvæmt til’al-
mennings afnota.
Mr. Thorkelsson iét vel yfir
líðan þeirra fslendinga sem hann
hitti og hafði spurnir af á þessu
ferðalagi og sömuleiðis þeim
ágætis viðtökum sem hann mætti
alstaðar. íslenzka gestrisnin
hefir ekki skilið við þá, þó þeir
færðu sig um set frá heimahög-
unum og búi strjált í framandi
landi.
“Það er gott að vera íslending-
ur og koma til íslendinga,” segir
Mr. Thorkelsson.
Wonderland
THEATRE
Fri. Sat. & Mon. May 27, 28, 30
“ROSALIE”
Nelsond Eddy—Eleanor Powell
2-Reel Featurette
CARTOON
“SOS Coastffuard”—Chapter 9
(Fri. nÍRht and Sat. mat. only)
Sat. Matinee—YoYo Contest
Come and win a sweater
Mon.—Country Store Nlght,
20 Prizes
Tue. Wed. & Thu. May 31,
June 1, 2
“EBB TIDE”
Oscar Homolka
Frances Farmer
“Thrill of a Lifetime”
Eleanore Whitney
Johnny Downs
Paramount News
Thursday—Country Store Nlght
20 Prlzee
» »
ARIÐANDI
« «
Gætið réttinda yðar, með
því að afla yður allra upp-
íýsinga um skaðabætur. —
The Claimant’s Fire Insur-
ance Guide er 123 bls., veit-
rr allar upplýsingar aðlút-
andi vátryggingar kröfum.
Skýr og áreiðanleg. Verð
75c. — Sendið pöntun til
“Hkr.” eða höf.
John A. MacLennan
154 Sherbrook St., Wpeg.
AMAZING VALUE
--Greatest Advertising Offer Ever Made-
A GUARANTEED SCIENTIFIC PUSH-UP
Permanent
WAVE
95
With Shampoo
& Finger Wave
Complete
Thls Offer Is Made by the Scientific as an Advertising Special.
Never Before Such Values. Beautiful, Eastlng, Permanent Waves.
Phone 24862
SCIENTIFIC BEAUTY CULTURE
612 Power Bldg., Portage Ave. & Vaughan St., Winnipeg
Winnipeg’s Largest, Most Reliable, Best Equipped Beauty Salon