Heimskringla - 06.07.1938, Qupperneq 1
THE PAR-T-DRINK
Good Anytime
In the 2-Glass Bottle ^ ®
SNÚIÐ Á MELINU!
Komið loðfatnaði og vetrar-
kápum yðar til geymslu hjá
oss I mel og eldtryggum
skápum
SÍMI 37111
AVENUE
DYERS and CLEANERS
LII. ÁRGANGUR
WINNIPEG, MIÐVIKUDAGINN, 6. JÚLÍ 1938
NÚMER 40.
HELZTU FRÉTTIR
Byrja C. N. smiðjurnar
á vopnasmíði?
Hermálaráðherra Canada,
Hon. Ian Mackenzie, sagði frá
>ví s. 1. miðvikudag, að hermála-
deildin í Ottawa væri að rann-
saka, hvort ekki væri fýsilegt, að
á vopnasmíði væri byrjað í
smiðjum C. N. R. kerfisins um
land alt.
Ráðherrann kvað ekkert
sýnna, en að þjóðbrautakerfið
yrði að segja fjölda manna upp
vinnu. Ef hægt væri með litlum
kostnaði, að breyta smiðjum
járnbrautarinnar í vopnaverk-
smiðjur, væri að líkindum hægt
að afstýra þessu vinnutapi.
Vopn voru framleidd í C. N.
smiðjunum 1914—1918. Til að
framleiða skotfæri þurfti litla
breytingu að gera. Að búa til
skotvagna eða tanka, er ekki
heldur neitt sagt meiri breytingu
háð, en sú er gera þarf er nýir
katlar eru teknir til notkunar.
Pantanir eru að vísu ekki fyr-
irliggjandi fyrir vopnum, en það
er ekki talin mikil hætta á, að
þau seljist ekki.
í Transcona og Ft. Rouge
smiðjöm félagsins hér, er talið
líklegt, að á vopnaframleiðslu
verði því byrjað, sem annar stað- Frægur landi
ar, innan skamms.
Myndar Herridge
nýjan flokk?
Hon. C. H. Cahan, sambands-
þingmaður frá St. Lawrence-St.
George í Quebec, hélt því fram
síðast liðna viku á sambands-
þinginu, er frumvarpið um að
gera Canadabanka að þjóðeign
var til þriðju umræðu, að Hon.
W. D. Herridge, fyrverandi sendi
herra í Bandaríkjunum væri að
mynda nýjan flokk, er fjármál
landsins ætlaði að hafa með
höndum svo um þennan þjóð-
eigna banka þyrfti ekki meira
að hugsa. Skoðanir Herridge í
fjármálum kvað hann þær sömu
eða svipaðar og sósíalista, social
credit-sinna og C. C. F.-sinna.
Þessi ummæli Cahans um Her-
ridge, stafa af ræðu þeirri er
Herridge flutti á fundi flokks-
bræðra sinna og Cahans, því
báðir eru íhaldsmenn, í Halifax
28. júní. í ræðunni ávítaði Her-
ridge báða stjórnarflokkana
gömlu fyrir það að vera tól í
höndum annara og átti sérstak
lega með því við peningavaldið.
Herridge mun líta á það sömu
augum og Roosevelt, að stjórn-
irnar verði að hafa hemil á fram-
ferði þess.
Þegar blaðamenn spurðu King
forsætisráðherra um hvort að
það væri satt, sem kvisast hefði
um, að Canadastjórn hefði feng-
ið pantanir fyrir vopnum frá
Bretlandi, svaraði hann engu um
það. Hann varðist einnig allra
frétta um það, hvenær byrjað
yrði á vopnasmíðinni hér.
Spáir kosningum
í Manitoba
f ræðu sem Eric Willis, leiðtogi
íhaldsmanna hélt 28. júní í Bran-
don, hélt hann því fram, að
kosningar yrðu í Manitoba á
þessu ári. Og ástæðan væri ekki
eingöngu sigur liberala í Saskat-
chewan-fylki nýlega, heldur hitt
að Bracken-stjórnin væri hætt að
stjórna eða gera nokkuð þjóð-
félaginu til þrifa. í kosningui
um 1936 bað Bracken um end-
urkosningu fyrir það hve ve
hann hefði verndað f járhag fylk
isins. Árið 1937 segir hann
Rowell nefndinni að fylkið sé
gjaldþrota. Árið 1938 er gert
ráð fyrir að útgjöld stjórnarinn-
ar verði $480,000 meiri en ári
áður. Síðan Brackení-.stjói',nin
kom til valda, sagði Willis, að
skuld fylkisins hefði hækkað um
60 miljón dollara og skattaálögur
væru 4^2 miljón hærri nú á ár
en þegar hann tók við. Og ofan
á alt þetta væri svo þjófnaður-
inn á stjóranrskrifstofunum,
sem prýddi stjórnarsögu hans.
Þegar þess værí ennfremur
gætt, að hann sæti við völd með
aðstoð annars þingflokks, er all
aðra stefnu segðist hafa í fjár-
málum en þá, sem Bracken
fylgdi og það hálmstrá gæti bilað
þegar minst varði, væri enginn
furða þó Bracken leitaði lags um
að reyna að verða í meirihluta.
Og sigurför stjórnarinnar í Sask-
atchewan, þó ekki næði hún nú
uema um 46% aljra atkvæða,
væri ef til vill nokkurt tákn þess,
að kjósendur hér væru ánægðir
uæð það sem er og þar sem for-
lögunum yrði ekki frestað, væri
kosning nú eins tímabær og síð-
ar.
Útnefningar kosning
í Norður Dakota
Eftirfarandi íslendingar náðu
útnefningu á þriðjudaginn s. 1.
viku til þess að sækja í kosning-
unum í Dakota í haust:
Fyrir State’s Attomey: J. M.
Snowfield, Cavalier Co., Fred
Snowfield, Pembina Co.; Oscar
Benson, Bottineau Co., iEinar
Johnson, Nelson Co.
Fyrir County dómara: Gunnar
Olgeirsson, Burleigh Co.
Fyrir County féhirðir: S. J.
Swenson, Pembina Co.
Fyrir County Commissioner:
Freeman Einarsson, Pembina
Co.; B. D. Benson, McHenry Co.
Fyrir Sheriff: Stone Hillman,
Pembina Co.
Gagnsækjendur hafa allir
þessir menn við kosningamar í
haust, nema J. M. Snowfield og
S. J. Swenson.
JÓHANN BRIEM LÁTINN
I íslendingurinn T. W. Thórðar-
son, sem er ríkis-eftirlitsmaður
! 7
í bréflegri fræðslu (Corespond-
ence School) við Búnaðarskólann
í Norður-Dakota, hefir nýverið
hlotið þann heiður, að vinna til
námsskeiðs frá The Rockefeller
Educational Foundation, er fólg-
ið er í því, að fullnuma sig í ogi
rannsaka skóla-útvarp víðsvegar
um Bandaríkin.
Prófessorar við ýmsa háskóla
í Bandaríkjunum sem eru sér-
fræðingar í því er lítur að ment-
un yfir útvarp, verða kennarar
Mr. Thordarsonar. Auk þess
veitist honum tækifæri að ferð-
ast til ýmsra staðk, og rannsaka
hverju fram vindur í þessum
efnum. Allur kostnaður og fult
kaup auk þess, er greitt af
Rockefeller-stofnuninni. Náms-
skeiðið stendur yfir í 4 mánuði.
Þessi Correspondence School,
sem Mr. Thórðarson hefir stjórn-
að s. 1. 3 ár við North Dakotaj
Agricultural College, hefir
blómgast svo að nemendur skifta j
orðið þúsundum, eru nú sem
stendur um 5000. Þessi bréflega
fræðsla hefir orðið samband við
meirihluta allra miðskóla í rík-
inu og eru það nemendur frá slík-
um skólum, sem mest færa sér
bréflegu fræðsluna í nyt. —
Fræðslan má heita í hverju því
fólgin, er menn æskja að fræðast
um.
Mr. T. W. Thórðarson er sonur
Gríms Thórðarsonar og bróður-
sonur Hjartar Thordarsonar raf-
fræðingsins nafnkunna í Chicago.
Hann á því ekki úrættis að
sækja að vera stórvirkur, enda er
starf hans við þennan bréflega
fræðsluskóla nú viðurkent um
alt — og nú síðast með þessari
viðurkenningu frá Rockefeller
mentastofnuninni með veitingu
þessa námsskeiðs.
* * *
Samkvæmt “hlutleysissamn-
ingunum” geta Bretar ekki sent
loftför til Spánar, en vélar í loft-
för geta þeir sent til Þýzkalands.
Á Spáni hafa stundum verið
skotin niður þýzk loftskip, er
vélarnar í hafa verið brezkar.
Síðast liðinn sunnudag lézt að
heimili sínu Grund í Riverton í
Nýja-íslandi merkisbóndinn og
landnámsmaðurinn — Jóhann
Briem. Hann var á þriðja ári
yfir nírætt.
Með Jóhanni er til moldar
hniginn einn hinn mikilhæfasti
og merkasti maður í hópi elztu
íslenzku landnemanna í Nýja-
íslandi.
Til Vesturheims kom hann
1876 og nam land í bygðinni við
íslendingafljót. Hefir hann
búið þar síðan. Lét hann sig
hag bygðarinnar nýju og sam-
bygðarmanna sinna brátt mikið
skifta og leiðbeindi þeim er síð-
ar komu um hvar jarðir væru
byggilegastar. Komu slíkar
leiðbeiningar sér vel á þeim ár-
um.
í framfaramálum bygðarinnar
var hann og j í tijlu hinna
fremstu. Og bændafélag er þar
var snemma stofnað með það
fyrir augum, að efla kornrækt
og bæta búfjárstofninn, var Jó-
hann aðal hvatamaðurinn. Var
það félag starfandi um mörg ár
og náði eftir efnum og ástæðum
að talsverðu leyti tilgangi sínum.
Menningarmál bygðar sinnar
lét Jóhann sig einnig mikið
skifta. Hann hafði fengið upp-
eldi á heimilum mentamanna á
íslandi, eins og séra Þorsteins á
Hálsi, séra Björns í Laufási o.
fl., sem gerði honum mögulegt
að afla sér góðrar alþýðument-
unar, þó skólaveginn færi hann
ekki. Hann var í tölu mentaðri
bænda.
Jóhann var einn af aðalmönn-
unum, sem gengust fyrir stofnun
fyrsta ísl. bla^sins hér vestra,
blaðsins “Framfara”. Skrifaði
hanns talsvert í það og er nú
margt af því ágætasta tillagið
til sögu íslendinga á fyrstu ár-
um þeirra hér vestra. Honum
var lagið að rita, enda hafði
hann fengið æfingu við það
heima þar sem hann var einn af
stofnendum “Ganglera”, blaði er
gefði var út á Akureyri og skrif-
aði oft í það. Þegar hann lagði
til mála, hvort sem var í riti eða
ræðu, var það ávalt vel hugsað.
Árið 1881 giftist Jóhann Guð-
rúnu Pálsdóttur bónda Péturs-
sonar frá Reykhóli. Hún lézt
fyrir tveim árum. Var hún hin
ágætasta kona og samhent
manni sínum í að halda uppi
rausn á heimilinu. Var þau
gott heim að sækja, enda var oft
gestkvæmt á heimili þeirra. Og
skemtilegt umræðuefni skorti
Jóhann aldrei.
Jóhann var fæddur á Grund í
Eyjafirði 7. des. 1845. Faðir
hans var Ólafur Briem, timbur-
meistari og bóndi á Grund; var
hann þjóðfundarmaður Eyfirð-
inga 1851; en móðir Jóhanns
var Dómhildur Þorsteinsdóttir
bónda á Stokkahlöðum Gíslason-
ar. Faðir Ólafs Briems var
Gunnlaugur Briem sýslumaður
Eyfirðinga. Foreldra sína misti
Jóhann ungur eða 14 ára gam-
all og fór hann þá og systkini
hans í vist til ættingja og vina.
Börn þeirra Jóhanns Briems
og Guðrúnar voru: Veighildur
Mabel (Mrs. Wood), Valdheiður
Laura (Mrs. Ford) Páll Marino,
Valgerður Helen (Mrs. Óli K.
Coghill), Sigtryggur Hafsteinn
og Ólafur.
Jóhann Briem og kona hans
voru ótrauðir starfsmenn lút-
erska safnaðarins í Riverton —
(Bræðrasafnaðar) frá upphafi
vega.
Jarðarför Jóhanns heitins fer
fram í Riverton í dag (mið-
vikudag).
Ráðstefna íhaldsmanna
Frá allsherjar fundi íhalds-
manna í Ottawa eru engar end-
anlegar fréttir enn komnar um
hver leiðtogi þeirra verður. —
Virðist Dr. R. J. Manion frá Ft.
William og fyrverandi járn-
brautamálaráðherra vera einna
líklegastur til að taka við for-
ustu íhaldsflokksins. En um það
verður ekkert sagt með vissu fyr
en annað kvöld eða síðar í þess-
ari viku. Það sem merkilegast
er, enn sem komið er, við fund-
inn talið, eru ræður þeirra Sir
Thomas White, fjármálaráð-
herra Canada á stríðsárunum og
Rt. Hon. Arthur Meighens, for-
seta efrimálstofu Canada þings-
ins. Rakti hinn fyrnefndi sögu
íhaldsmanna og áhrif þess flokks
á þjóðlífið, en Mr. Meighen gagn-
rýndi utanríkismálastefnu King-
stjórnarinnar og sýndi fram á í
hverju henni var ábótavant, er
hún var borin saman við stefnu
íhaldsmanna. Eru báðir þessir
menn mælskir, enda er um ræð-
ur þeirra sagt, að á þær verði
litið, sem grundvöll að hinni
nýju stefnuskrá flokksins í þeim
efnum, sem þær fjölluðu um.
20,000 deyja úr
kóleru á Indlandi
Kólera hefir á síðustu tveim
eða þrem mánuðum drepið 20,000
manns á Indlandi. Og fyrir end-
an á útbreiðslu veikinnar er ekki
enn séð.
Veikin er aðallega í norður-
fylkjum Indlands (United Pro-
vinces). Upptök hennar halda
menn þau, að Indverjar héldu
hátíð mikla í Hardwar í norður-
fylkjunum nýlega, er ein miljón
manna sótti og stóð yfir í sex
vikur. Er álitið að það hafi orð-
ið til þess að útbreiða veikina, og
menn hafi þaðan flutt hana heim
í héruð sín. Hennar hefir nú
þegar orðið vart í 44,000 þorp-
um.
Að varna útbreiðslu hennar er
erfitt. Yfirvöldin hafa reynt að
láta efni í neyzluvatn henni til
varnar í vissum þorpum, en þá
gerðu Indverjar uppþot og sögðu
yfirvöldin vera að eitra fyrir sig
með þessu. Með líkin er eins,
að þau fæst ekki að brenna, held-
ur er þeim jfleygt í £r eða
brunna, sem vatns er neytt úr.—
Að brenna skrokkana, er eitt-
hvað á móti trú Indverja; þeir
halda hina liðnu sofa fyrst í
stað, en ekki vera dauða.
* * *
í Bandaríkjunum es 5,427,000
menn beinlínis á framfærslu-
styrk (on Relief pay-rolls).
Reikningar nefndanna
Þegar umræðurnar stóðu yfir
í Ottawa um reikninga fjár-
málaráðherra Dunnings, bað A.
B. Hyndman íhaldsþingmaður í
Ontario um skýrslur yfir kostn-
að einhverra nefndanna sem
Kingstjórnin hefði skipað til að
rannsaka hitt og þetta viðvíkj-
andi hag þjóðfélagsins. Honum
voru gefnar tölur aðeins fárra
nefndanna og eru þær þessar.
Nefndir Kostnaður
Ullar verksmiðjun....$180,000
Kornsölun............ 114,000
Fangelsan............. 90,060
Hermannahjálparn..... 236,000
Kolan................. 23,000
Rækju (lobster) veiðan. 4,000
Atvinnumálan......... 295,000
Rowelln. (til 10. feb. ’38) 68,000
Ef eitthvað af starfi þessara
nefnda hefði nú komið að gagni,
verið notað til umbóta, er ekki
að vita nema eitthvað af kostn-
aðinum hefði náðst upp með því.
En nú hefir stjómin ekki fært
sér það í nyt. Þessvegna er
kostnaður þessi hreint tap fyrir
landið.
Anderson dæmdur í
3 ára fangavist
Dómur var kveðinn upp í máli
T. Cuthbert Anderson, forseta
Anderson, Greene Co. Ltd., s. 1.
mánudag. Var Anderson fund-
inn sekur af kviðdómi um fjár-
drátt og dæmdur af Taylor dóm-
ara til 3 ára fangelsisvistar í
Stoney Mountain.
Félagið Anderson, Greene varð
gjaldþrota 5. nóv. 1936. Var
Anderson kærður af hinum
mörgu hluthöfum félagsins er fé
töpuðu 1. feb. 1937 um fjárdrátt.
Málið kom fyrir Dysart dómara
8. nóv. og lauk 22. nóv. þannig,
að dómarinn fann hinn kærða
sekan. Anderson kaus, að málið
yrði rannsakað án kviðdóms.
Þessum úrskurði Dysart dóm-
ara var skotið til áf rýj unarréttar.
Lagði áfrýjunarrétturinn til að
málið yrði rannsakað að nýju.
Var byrjað á þeirri rannsókn 6.
júní. Er henni nú lokið á þann
hátt, er að ofan er greint.
FRÉTTAMOLAR
Allar tekjur Bandaríkja þjóð-
arinnar á árinu 1937 námu $70,-
000,000,000 (sjötíu biljón doll-
urum). Hafa þær aldrei verið
svo miklar síðan 1929. Tekjurn-
ar nema 5 til 6 hundruð dölum á
hvern mann eða 25 til 30 hundr-
uð á hverju fimm manna fjöl-
skyldu.
* *
Sæti í New York Stock Ex-
change (kauphöllinni), var ný-
lega selt fyrir $51,000. Er það
sagt lágmarksverk síðast liðin
20 ár.
* * *
Ferðamannastraumurinn frá
Bandaríkjunum til Evrópu er
sagt að verði minni á þessu
sumri en áður. Eru ófriðarhorf-
urnar í Evrópu orsökin.
* * *
Á þjóðhátíðardegi Banda-
ríkjanna 4. júlí, fórust 449
manns af slysum.
* * *
Nefndin sem er að undirbúa
olympsku leikina í Tokío í Japan
1940, segir leikflokka frá Kína
eins velkomna til þátttöku í leikj-
unum og frá öðrum löndum,
hvað sem stríðinu líði.
* * *
Yfir 100 ítölsk börn hafa fæðst
í Addis Ababa í Blálandi, síðan
ítalir tóku landið.
Stjórnin í Mexikó hefir gert
samning við Hitler um að selja
honum 10 miljón tunnur af
steinolíu, úr námunum sem hún
tók af Bretum og Bandaríkja-
mönnum.
* * *
Frá 1. jan. til 16. júní 1938,
voru 19,092 nautgripir frá Can-
ada seldir til Bretlands. Á sama
tíma árið 1937, var talan aðeins
3,273.
* * *
í stjórnarskýrslum er ekki
æfinlega rétt sagt frá. — Til
dæmis kaupir Danmörk talsvert
af canadisku hveiti, en í skýrsl-
um þeirra er hveitið sagt frá
Bandaríkjunum af því að það er
selt í New York. Á árinu 1937,
hefir Danmörk keypt hveiti fyrir
$1,088,507, frá Canada, en milli-
liður þeirra viðskifta var New
York, svo kaupin eru talin gerð í
Bandaríkjunum í skýrslunum.
* * *
Bandaríkin gera ráð fyrir að
smíða 500 herskip á komandi tíu
árum til þess að bæta upp fyrir
skip, sem eru orðin gömul og úr
sér gengin. Mikið af skipunum
verður smíðað í Englandi.
* * *
D. M. Elchesen bæjarráðsmað-
ur hefir sagt stöðu sinni lausri.
Hann hefir ekki sótt fundi all-
lengi; er sagður veikur. Eins og
kunnugt er, var hann fyrir
skömmu fundinn sekur um að
hafa hnuplað 72 centa virði af
vörum úr einni Piggly-Wiggly-
búðinni.
* * *
Nefndin, sem um hlutleysi
annara þjóða í Spánar-stríðinu
fjallar, hafði fund í London í
gær; er Halifax greifi, utanríkis-
ritari Breta formaður hennar. —
Voru fréttir af fundinum þær, að
Franco væri samþykkur því að
senda hermenn frá ítalíu og
Þýzkalandi heim til sín nú þeg-
ar. Það mun þó bezt að bíða og
sjá hvað situr með þetta.
* * *
Carl Winkler, 24 ára drengur í
Detroit, hjó af sér aðra hendina
í gær til þess að losna við að
vera í hernum í Bandaríkjunum.
Hann innritaðist í herinn fyrir
6 mánuðum, en kvaðst vera bú-
inn að fá nóg af skrafi um hern-
að og byssur. Drengurinn er á
spítala og sagður hættulega
veikur vegna blóðmissis.
* * *
Leikföng tilbúin af föngum í
Þýzkalandi, eru flest smíðisgrip-
ir af Hitler, Göring, Göbbels og
Mussolini.
* * *
Smábærinn Gnarp, sem er
skamt frá Hudriksvall, hefir ný-
lega komist á allra varir í Norð-
ur-Svíþjóð. í grjóti þar hefir
fundist svo mikið af gulli að
rannsóknarstofan í Stokkhólmi
hefir fullyrt að gullgröftur þar
myndi geta borið sig. Er nokk-
urt útlit fyrir, að námurekstur
muni byrja þar á næstunni. Yrði
það þá önnur gullnáman, sem
starfrækt er í Svíþjóð. Hin ér
í Boliden.
Fyrsti barnahópurinn fór til
Sumarheimilisins á Hnausum í
dag (miðvikudaginn 6. júlí). f
hópnum voru 25 drengir sem
allir eiga heima í Winnipeg og
grendinni. Þeir verða þar til
þess 16. þ. m. Þá fer út stúlkna
hópur sem verður þar nyðra á-
líka langan tíma. Eru allir for-
eldrar sem vilja senda börn sín á
sumarheimilið beðin að tilkynna
það Mrs. P. S. Pálsson, 796 Ban.
ning St., Mrs. J. B. Skaptason,
378 Maryland St., eða Mrs. E.
J. Melan, Riverton.