Heimskringla - 06.07.1938, Blaðsíða 7
WTNNIPEG, 6. JÚLf 1938
HEIMSKRINGLA
7. SÍÐA
HELGISTAÐUR
ÍSLENDINGA
Nú í vor eru liðin tíu ár síðan
Alþingi friðlýsti Þingvallabygð-
ina. Tveim árum síðar var þar
haldin hin mikla hátíð, mesta
þjóðhátíð, sem nokkurntíma
hefir verið háð á'fslandi.
Fyrir hönd Alþingis hafa þrír
þingmenn stýrt friðun Þingvalla
undanfarin 10 ár. Það voru þeir
Jón Bildvinsson, Magnús Guð-
mundsson og Jónas Jónsson. Var
samstarf þeirra hið bezta, og er
nefndinni mikill skaði að fráfalli
þeirra tveggja þingskörunga, er
hnigu í valinn í vetur sem leið.
Á undangegnum tíu árum hef-
ir orðið gífurleg breyting á
Þingmvöllum. Þangað hefir verið
lagður vegur, sem kostar um 400
þús. kr. og er fær nálega alt árið
Alt láglendið milli Almannagjár
og Hrafngjár hefir verið friðað,
norður með Ármannsfelli. Er
það mesta skógargirðing á fs-
landi. Búskap hefir verið hætt í
hrauninu, áður gengu, þar um
1000 f jár á beit í skógunum allan
ársins hring. Telur Hákon skóg-
ræktarstjóri mikla framför
orðna á skógunum síðan friðað
var. Þá voru hinir þýfðu vellir
sléttaðir og friðaðir. Valhöll og
konungshúsið flutt af völlunum,
á stað þar sem betur fer um
húsin, en þau trufla ekki fegurð
héraðsins. Hinn gamli, ömur-
legi bær hefir verið endurbygð-
ur í stíl gamalla sveitabæja. Þar
býr umsjónarmaður þjóðgarðs-
ins og þar er heiðursbústaður
fyrir gesti landsins. Hafa marg-
ir hinir tignustu menn, er til
landsins hafa komið hin síðustu
ár, dvalið á Þingvöllum og unað
vel hag sínum í heiðursbústað
þjóðarinnar.
f vetur sem leið kusu þing-
flokkarnir að nýju í Þingvalla-
nefnd. Haraldur Guðmundsson
kom í stað Jóns Baldvinssonar,
en Sigurður Kristjánsson fyrir
Magnús Guðmundsson. Jónas
Jónsson var endurkosinri af
Framsóknarmönnum. — Heldur
þóttu það giftumerki að nefndin
bjargaði veikum manni í Þing-
vallahrauni, er hún var nýlega
austur þar í eftirlitsferð.
Hvað gerist á næstu tíu árum
á Þingvöllum? Það er erfitt að
spá, en getum má leiða að því
hvað við muni taka. Friðunin er
nú vel á veg komin. Reykvík-
ingar og Hafnfirðingar finna hve
mikils það er um vert, að hafa
Þingvallahraun eins og sameig-
inlegan trjágarð beggja bæj-
anna. Skólabörn eru nú farin að
koma austur á vorin og planta
mörg þúsund trjám ár hvert. —
Komið hefir til orða að úthluta
skólunum í Rvík ákveðnu svæði
af Fögrubrekku til að planta í
og hirða um. Yrði sýnt með var-
anlegum merkjum, hve miklu
var plantað árlega. Þá er talað
um að bæta Valhöll, svo að hún
geti verið opin alt árið og að
þingmenn hafi þar samastað af
INNKÖLLUNARMENN HEIMSKRINGLU
I CANADA:
Amaranth...............................J. B. Halldórsson
Antler, Sask.........................-K. J. Abrahamson
Árnes...............................Sumarliði J. Kárdal
Árborg.................................G. O. Einarsson
Baldur...............................Sigtr. Sigvaldason
Beckville..............................Björn Þórðarson
Belmont...................................G. J. Oleson
Bredenbury...............................H. O. Loptsson
Brown...............................Thorst. J. Gíslason
Churchbridge..........................H. A. Hinriksson
Cypress River.............................Páll Anderson
Dafoe................................... »
Ebor Station, Man....................K. J. Abrahamson
Elfros..................................
Eriksdale..............................ólafur Hallsson
Foam Lake..............................H. G. Sigurðsson
Gimli................................... K. Kjernested
Geyslr..............................................Tím. Böðvarsson
Glenboro...................................G. J. Oleson
Hayland................................Slg. B. Helgason
Hecla.................................Jóhann K. Johnson
Hnausa..................................Gestur S. Vídal
Hove....................................Andrés Skagfeld
Húsavfk...................................John Kernested
Innisfail.......................................Ófeigur Sigurðsson
Kandahar................................
Keewatin..........................................Sigm. Björnsson
Kristnes..........................................Rósm. Árnason
Langruth.............................................B. Eyjólfsson
Leslie...............................Th. Guðmundsson
Lundar........................Sig. Jónsson, D. J. Lfndai
Markerville............*............ ófeigur Sigurðsson
Mozart..................................
Oak Point........................................Andrés Skagfeld
Oakview.............................
Otto...............................................Björn Hördal
Piney....A...............................S. S. Anderson
Red Deer........................................Ófeigur Sigurðsson
Reykjavík...........................................Árni Pálsson
Riverton.............................Björn Hjörleifsson
Selkirk........................... Magnús Hjörleifsson
Sinclair, Man.......................K. J. Abrahamson
Steep Rock........................................Fred Snædal
Stony Hill.........................................Björn Hördal
Tantallon.........................................Guðm. ólafsson
Thornhill............................Thorst. J. Gíslason
Víðir.................................. Aug. Einarsson
Vancouver.............................Mrs. Anna Harvey
Winnipegosis......................Finnbogi Hj álmarsson
Winnipeg Beach......................................John Kernested
Wj’nyard.................................
I BANDARÍKJUNUM:
Akra...................................Jón K. Einarsson
Bantry..................................E. J. Breiðfjörð
Bellingham, Wash..................Mrs. John W. Johnson
Blaine, Wash...................Séra Halldór E. Johnson
Cavaliér...............................Jón K. Einarsson
Chicago: Geo. F. Long, 2428 Hamlin Ave., Logan Square Sta.
Edinburg....................................Jacob Hall
Garðar................................S. M. Breiðfjörð
Grafton...............................Mrs. E. Eastman
Hallson................................Jón K. EJinarsson
Hensel............................... J. K. Einarsson
Ivanhoe.............................Miss C. V. Dalmann
Los Angeles, Calif....Thorg. Ásmundsson, 4415 Esmeralda St.
Milton...................................F. G. Vatnsdal
Minneota............................Miss C. V. Dalmann
Mountain..............................Th. Thorfinnsson
National City, Calif......John S. Laxdal, 736 E 24th St.
Point Roberts.........................Ingvar Goodman
Seattle, Wash..........J. J. Middal, 6723—21st Ave. N. W.
Svold...................................Jón K. Einarsson
Upham....................................E. J. BreiðfjörO
The Yiking Press Lisiited
Winnipeg; Manitoba
og til um þingtímann. Auk þess
myndu margir aðrir menn vilja
taka sér þar hvíld að vetrinum,
ef skilyrði væru góð, því að Þing-
vellir eru engu síður tilkomu-
miklir að vetri en að sumri. Vel
mætti svo fara, að innan tíu
ára yrði bygt við ValhöIT fram- ,
tíðar gistihús, sem miðað væri
við þörf landsins og tign staðar- j
ins.
Það er líka talað um að endur- j
byggja Þingvallakirkju, að lík-
indum fremur litla kapellu í ein-
földum, hreinum stíl. Á Þingvöll-
um var reist hin fyrsta kirkja
og yrði sérstök helgi í því guðs-
húsi sem þar væri reist. Færi
vel á að þar væru haldnar hátíð-
legar sérstakar kirkjulegar há-
tíðir, svo sem biskupsvígslur o. s.
frv. — Komið hefir sú tillaga, að
í hinni nýju Þingvallakirkju
yrðu geymdar tlrunaleifar
merkra íslendinga, svo sem Bret-
ar grafa lík sinna mestu manna
í Westminsterkirkjunni. Þá hef-
ir verið borið í tal að íslending-
um vestan hafs yrði helgaður
einn dagur á Þingvöllum á
hverju ári og að þá yrðu ekki á
Þingvöllum aðrir gestir heldur
en landar vestan um haf og þeir
aðrir, sem þangað væru sérstak-
lega boðnir.
Þingvöllur verður auk þess al-
veg sérstakur samkomustaður
fyrir félög og flokka, sem halda
mót sín og afmæli. Alveg sér-
staklega væri vel til fallið að
halda þar aimenna þjóðhátíð tí-
unda hvert ár, þó að hún stæði
ekki nema einn dag.
Vafalaust munu menn fjnna
enn miklu fleiri leiðir til að njóta
fegurðar og helgi Þingvalla. Al-
þingi og þjóðin öll mun meir og
meir festa þau bönd sem gera
Þingvallabygðina að hinni eigin-
legu dómkirkju íslenzku þjóðar-
innar.—N. Dbl. 5. júní.
Hvort var betra?
Þjóðverji og Hollendingur sátu
inni á kaffihúsi og ræddust við.
Alt í einu sagði Þjóðverjinn:
— Við erum voldug þjóð. Við
eigum þúsundir flugvéla, óþrjót-
andi birgðir af skriðdrekum og
miljónaher.
— Já, það er satt, sagði Hol-
lendingurinn. — Við þolum eng-
an samanjöfnuð við ykkur á því
sviði. Her okkar er lítill, við
eigum fáa skriðdreka og fáar
flugvélar. En eitt get eg sagt
þér. Þegar eg heyri dyrabjöll-.
unni hringt snemma morguns,
þá veit eg, að það er mjólkur-
pósturinn að færa mér mjólk og
smjör.
KONAN Á AÐ VERA
VINUR ÞINN ÁÐUR
EN ÞtJ GIFTIST
HENNI
Séra W. H. Elliot
þektur enskur útvarpsræðumað-
ur, myndi gefa syni sínum
þetta ráð.
Milli föður og sonar er oft
ekki fullur skilningur í þeim
efnum, sem þýðingarmest eru,
og faðirinn veigrar sér oft og
tíðum við að segja syni sínum
sannleikann einmitt í þessum
málum. Oft er það svo, að úr
því að einu sinni er farið að
draga þetta, þá kemst það aldrei
í framkvæmd, og svo naga menn
sig síðar í handarbökin fyrir að
hafa ekki útskýrt hlutina í tíma,
svo sem skyldi verið hafa.
Það getur að vissu leyti verið
erfitt að ræða við son sinn um
ástamál og hjúskaparmál, því
að margt getur borið í milli og
hinn gullni meðalvegur er vand-
rataður.
Þessi skylda föðursins hefst
löngu áður en sonurinn er það
stálpaður, að hann fer að líta í
kringum sig og augu hans að
opnast fyrir kvenlegri fegurð.
Faðirinn á að segja syni sínum,
þegar hann er í æsku og gengur
enn í barnaskóla, frá “grund-
vallaratriðum lífsins”, og út-
skýra þau þannig, að hann skilji
þau til hlítar, en þurfi ekki að
undrast það, sem fyrir augun
ber, eða verða að geta í þær eyð-
ur, sem hann hefir ekki fengið
fullar skýringar á. Það þarf að
opna augu sonarins fyrir fegurð
lífsins og dásemd, en varast að
láta bernskudraumana fölna síð-
‘ ar og dreifast í grádumbung
| veruleikans vegna þessarar van-
! rækslusyndar.
Lífið er dásamlegt og vissu-
lega þess vert, að augum barn-
anna sé beint að fegurð þess og
gæðum, því að guð er lífið. Það
eru mennirnir, sem, í heimsku
sinni afskræma lífið og hneyksl-
ast eða hlægja flónslega, ef þeir
heyra eitthvert tvírætt glens í
leikhúsum eða manna í milli.
Við eigum einnig okkar sök á
því, að gera lífið erfiðara með
því að geyma í þrálátri þögn
þann fróðleik, sem getur leið-
beint hinu fróðleiksþyrsta og fá-
fróða barni, sem blygðast sín
fyrir að spyrja um það, sem það
hefir fengið einhvern pata af, en
heldur að menn hneykslist á. En
nokkrar ráðleggingar og leið-
beiningar um það, hvað sé hreint
og heilbrigt líf, getur bjargað
barninu frá margskonar böli,
sem vanþekkingin hefir oft og
einatt í för með sér.
Alt þetta langar mig til að
segja, þar sem eg er prestur, og
hefi fylgst með þeim píslum, er
hertaka hjörtu margra æsku-
manna, sem eru að komast á
þroskaskeiðið, og leiða oft til
takmarkalausra þjáninga og
ótta.
Hjá þessu er auðveldlega hægt
að komast, ef feðurnir gera sér
fulla grein fyrir skyldum sínum
í þessu efni, en eg býst við að
fæstir feður hafi sint þessu svo
sem vera skyldi.
Sannleikurinn er sá, að hugs-
unin um hjónabandið þróast ó-
sjálfrátt hjá hverju barni. er,
þar á eg ekki við að börnin geri
sér grein fyrir því eða hugsi um
slí'kt að staðaldri. Því fer íjarri.
en hjúskapurinn er eitt atriði í
lífi barnsins, eins og það hugsar
sé: það frá upphafi.
Það er ekkert óeölilegt við það.
aí drengur og te!pa verði goðir
vmir og hænist h\ort að öðru í
skólanum, og það cr engin hjálp
fyrir börnin, að gert sé gys að
þeim vegna slíkrar vináttu. Með
því að gera gys aö þeim vekjum
við ástæðulausa blygðunartil-
finningu hjá þeim, vegna þeirrar
saklausu vináttu, sem allra góðra
gjalda er verð, og komum því ef
til vill til leiðar, að börnin upp-
ræta þann vísi að vináttu, sem
þegar er tekinn að gróa.
Eg vorkenni hverjum þeim
unglingi, sem er hræddur og
feiminn við að tala við kvenfólk,
af því að hann hefir aldrei átt
vinkonu. Ef hann verður síðar
ástfanginn, kann hann ekki með
það að fara og gerir sig sekai,
allskonar glappaskotum. Hvern-
ig getur hann gert að slíku, ef
hann þekkir ekki hugsunarhátt
og tilfinningar kvenþjóðarinnar ?
Foreldrar ættu að gleðjast yfir
slíkri vináttu og gera sitt til að
efla hana og viðurkenna með
því að leyfa börnunum að um-
gangast heima fyrir, eins og ekk-
ert væri eðlilegra.
Ef börnin bera fult traust til
foreldra sinna, leyfa þau for-
eldrunum að leiðbeina sér í vina-
vali, þótt þeirra sé völin og kvöl-
in, er þau vitkast og stækka. —
Foreldrar mega ekki fæla vini
barnsins frá heimilinu með eins-
konar afbrýðissemi, sem getur
eyðilagt líf barnanna, eins og
mörg dæmi eru til.
Ef við getum ekki skilið “hvað
hann sér í henni”, verðum við að
hafa það hugfast, að hann sér
með sínum augum, en ekki með
okkar. Ef við teljum hana ekki
samboðna honum, þá verðum við
að gera okkur grein fyrir hvort
ást okkar hefir ekki sín áhrif á
niðurstöðuna.
Ef þessa er gætt á heimilinu,
- NAFNSPJÖLD —
Dr. M. B. Halldorson 401 Boyd Bldg. Skrifstofusími: 23 674 Stundar sérstaklega lungnasjúk- dóma. Er a5 finnl á skrifstofu kl. 10—1 f. h. og 2—6 e. h. Heimlli: 46 Alloway Ave. Talsimi: 33 ÍSS G. S. THORVALDSON B.A., LL.B. LögfrœOingur 702 Confederation Liíe Bl<tg. Talsiml 97 024
Orric* Phon* Res Phoni 87 293 72 409 Dr. L. A. Sigurdson 109 MEDICAL ART8 BUILDINO Omci Hottrs ■ 12 - 1 4 r.M. - 6 p.m SND BT APPOINTMBNT — W. J. LINDAL, K.C. BJÖRN STEFÁNSSON tSLENZKIR LÖGFRÆÐINOAR á öðru gólfi 325 Main Street Talsimi: 97 621 Hafa einnie skriístofur að Lundar og Gimli og eru þar að hitta, fyrsta miðvlkudag i hverjum mánuði.
Dr. S. J. Johannes.ion 218 Sherbum Street Talsiml 30 877 VlOtalstiml kl. 3—5 e h. M. HJALTASON, M.D. ALMENNAR LÆKNINGAR Sérgrein: Taugasjúkdómar Laetur úu meðöl í viðlögum Viítalstímar kl. 2 4 e. h. I—8 að kveldlnu Síml 80 857 s66 vietor Bt.
J. J. Swanson & Co. Ltd. REALTORS Rental. Insuranct and Financíal Agtnts Siml: 94 221 608 PARIS BLDO.—Wlnnlpeg A. S. BARDAL selur llkklstur og annaat um útfar- ir. Allur útbúnaður sá bestí. Ennfremur selur hann «n«k«^nr minnlsvarða og legsteina. 843 SHERBROOKE 8T Phone: 16 607 WINNIPEO
Gunnar Erlendsson Pl&nokennari Kenslustofa: 701 Victor St. Síml 89 535 THL WATCH SHOP Thorfakson Baldwin Diamonds and Wedding Rings Agents for Bulova Watches Marriage Licenses Issued 699 Sargent Ave.
Jacob F. Bjamason —TRANSFER— Baggage and Furniture Moving 591 SHERBURN ST. Phone 35 909 Annast allskonar flutninga fnun og aftur um bœinn. MARGARET DALMAN TEACHER OF PIANO SSi BANNING ST. Pbone: 26 420
þá munu börnin líta á hjóna- bandið sem eðlilegan og örlaga- ríkan viðburð. Þau munu skilja það, að það er aldrei auðvelt eða ábyrgðarlaust að tengja líf við líf, jafnvel þótt um ást á hæsta stigi sé að^ ræða. Skilyrði fyrir affarasælu
Rovatzos Floral Shop *0ð Notrie Dame Ave. Phone 94 954 FTeeh Cut Flowers Daily Plants in Season We speciallze in Wedding St Concert Bouquets & Funeral Deslgns Icelandic spoken
hjónabandi er óeigingirni, um- —
kvæm ást og umhyggja. Ef um ; þær byrðar, sem á menn hlaðast
sanna ást er að ræða, kemur ; með árunum. Fæðing barns get-
þetta af sjálfu sér, því að ástin ur stundum verið fyrsti dag-
leitast altaf við að gefa frekar renningarvotturinn í myrku lífi
En vandamálið er hjónanna, og ef unga fólkið ger-
ir sér það ljóst, áður en það
en að taka.
hinsvegar hitt, að hjónaefnin
hafa ímyndað sér hvort annað
gallalaust og þeim gengur þvi
erfiðlega að sætta sig við þá
staðreynd, að enginn maður er
ókostalaus.
Með tíð og tíma venjast þau þó
þessu og með umburðarlyndi
vekja þtessir ]smáárekstriar
hreinni skilning og dýpri ást.
Menn kynnast nánar ár frá ári
með umgengni og samstarfi og
hið sama gildir í lífi manns og
konu, sem gengið hafa í hjúskap.
Eg efast um að þau skilji nokk-
urntíma hvort annað til fulls, en
þá er það umburðarlyndið eitt,
sem vekur traustið og ástina.
Ef ástin væri ekki fyrir hendi,
væri lífið autt og gleðisnautt. —
Æfintýri, sem á sér ekki djúpar
rætur, en á upphaf sitt að rekja
l til fagurs andlits og einskis ann-
ars, varir aldrei lengi. Andlitið
glatar fegurð sinni með tímanum
í augum allra annara en þess,
sem elskar það og snoppufegurð
er fátækleg fæða fyrir hungraða
sál.
Mér er kunnugt um mörg
hjónabönd, þar sem slíkir erfið-
leikar koma ekki til greina, með
því að bæði hjónin dá hvort ann-
að vegna umburðarlyndis og þol-
inmæði, trygðar og skapfestu, en
hin hreina og djúpa ást vex best
í þeim jarðvegi. Göfuglyndið og
gengur út í hjónabandið, að ást-
in þróast á heimilinu sjálfu, og
að betra er að eiga bú en bifreið,
þá hygg eg að líkindi séu til að
það verði heppið í ástum. Hjú-
skapurinn getur verið æfintýri,
en það á aldrei að vera áhættu-
leikur.
Ekkert okkar hefir leyfi til að
eyða annars lífi sér sjálfum til
afþreyingar og skemtunar. —
Grundvöllurinn verður að vera
traustari, vilji menn eignast
heimili, sem heimili getur kall-
ast. Heimili, sem ekki er heim-
ili, er fangelsi.
Þetta tel eg að faðir ætti að
segja syni sínum, — ekki einu
sinni í lauslegu viðtali, heldur
oft á ári í alvarlegum viðræðum.
Milli þeirra á að ríkja gagn-
kvæmt traust og trúnaður, —
annars hvílir þetta alt í þögn-
inni.
Þegar sonurinn hefir fengið
þessar leiðbeinigar, lærir hann
sjálfur miklu meira, er hann at-
hugar sitt eigið heimili. Að hafa
alist upp við farsælt heimilislíf
er fyrsta skilyrði þess að menn
eignist sjálfir hið sama.
Alvarlegasta spurning foreldr-
anna er ekki þetta: “Hvað eigum
við að segja syni okkar?”, held-
ur hin: “Hvaða fordæmi höfum
við gefið honum?”—Vísir.