Heimskringla - 01.02.1939, Page 8
8. SíÐA
HEIMSKRINGLA
WINNIPEG, 1. FEBRÚAR 1939
FJÆR OG NÆR
Ungmennaguðsþjónustur
fara fram í Sambandskirkj-
unni í Winnipeg n. k. sunnudag
5. þ. m. á ensku kl. 11 f. h. og á
íslenzku kl. 7 að kvöldi til. Við
morgunmessuna flytja ræður
Skapti Borgford og Páll Ásgeirs-
son. Aðstoðarmaður þeirra verð-
ur Miss ólöf Sigmundsson. Við
kvöldguðsþjónustuna flytur Ein-
ar Árnason, B.Sc., ræðuna, og
aðstoðarmaður hans verður Jón-
as Thorsteins.son. Báðar guðs-
þjónusturnar verða að öllu leyti
undir umsjón ungmennafélags
safnaðarins, og söngflokkarnir
báðir syngja sérstaklega valin
lög. Fjölmennið við báðar mess-
urnar!
* * *
Vatnabygðir, sd. 5. febr.
Kl. 11 f. h. Sunnudagaskóli í
Wynyard.
Kl. 2 e. h. Ensk messa í Wyn-
yard — þessi sunnudagur er
upphaf uppeldismálavikunnar,
og verður ræðuefnið í samræmi
við það.
Miðvikudaginn, 8. febr. verð-
ur fundur í hinni yngri þjóð-
ræknisdeild í Wynyard, “Young
Icelanders”.
Jakob Jónsson
* * *
Messað verður í Sambands-
kirkjunni á Gimli sd. 5. febp. n.
k. kl. 2 e. h. og í Sambandskirkj-
unni í Árborg sd. 12. febr. kl. 2
e. h.
* * *
The Young Icelanders
The annual meeting of the
“Young Icelanders” will be held
at the home of Dr. and Mrs. L.
A. Sigurdson, 104 Home St.,
February 19th, 1939, at 8.30 p.m.
THIS
-T-H-E-A-T-R-I
THURS. FRI. & SAT.
HAROLD LLOYD in
“PROFESSOR BEWARE”
GENE AUTRY in
“SPRINGTIME IN THE
ROCKIES”
—Added—
“Smith Family Takes a Trip”
Kiddies Fri. Nite & Sat. Matinee
Chap. 11—“Flaming Frontiers”
THURS. NITE is GIFT NITE
Séra Guðm. Árnason messar á
Oak Point 5. febr. og á Lundar
12. sama mánaðar.
* * *
Ungmenna dansskemtun
undir umsjón Ungmennafélags!
Sambandssafnaðar í Winnipeg,'
fer fram í Goodtemparahúsinu
n. k. mánudagskvöld 6. þ. m. kl. j
8.30. “Actimist” hljómsveitin
spilar fyrir dansinum. Inngang-
ur verður aðeins 25c. Minnist
þess og fjölmennið.
Eins og áður hefir verið minst
á verður miðsvetrarmót haldið í
Parish Hall, Riverton þ. 10. febr.
kl. 8 e. h.; til skemtunar verður
frumort kvæði, Dr. S. E. Björns-
son: Ræður: Mr. G. J. Guttorms-
son og Mr. E. J. Melan. Þjóð-
söngvar og hljóðfærasláttur,
rímnakveðskapur og dans á eft-
ir. íslenzkir hátíðaréttir á borð-
um. Aðgöngumiðar fást keyptir
hjá Mr. Grími Laxdal, Árborg,
Mr. T. Böðvarsson, Geysir; Mr.
G. Sigmundsson Hnausa; Mr. S.
Thorvaldson, Mr. G. Einarsson
og Mr. Jón Sigvaldason, River-
ton.
* * *
Dánarfregn
S. 1. mánudag, andaðist á
heimili sínu í Piney, Man., Sig-
urður J. Magnússon á 87 árinu
Hann var fæddur 19. júní 1852 á
Gilsbakka í Hvítársíðu í Borgar-
fjarðarsýslu. Faðir hans var
Magnús prestur Sigursson, Sig-
urðarssonar prests á Auðkúlu í
Húnavatnssýslu og konu hans
Rósu Magnúsdóttur bónda á
Myrkárdal. Móðir hans var Guð-
rún Pétursdóttir Péturssonar,
hreppstjóra og bónda að Mið-
hópi í Víðidal í Húnavatnssýslu
og konu hans Soffíu Þórðardótt-
ur, Helgasonar, verzlunarstjóra
á Akureyri. Sigurðar heitins
verður nánar minst síðar. Út-
förin fer fram í dag (mið-
vikud. 1. febr.) í Piney. Séra
Philip M, Pétursson jarðsyngur.
Jarðáð verður í Piney grafreitn-
um.
* * *
Gefin saman í hjónaband af
sóknarpresti á prestheimilinu í
Áborg, Man., þ. 29. jan.: Jónas
H. Johnson, bóndi í grend við
Árborg, og ólöf Ingibjörg Lovísa
Johnson, Árborg, Man.
FUNDARBOÐ TIL VESTUR-ISLENZKRA
HLUTHAFA í h. f. EIMSKIPAFÉLAGS
ISLANDS
Útnefningarfundur verður haldin að 766 Victor St.,
Winnipeg, Föstudagskvöldið, 24. febr. 1939, kl. 7.30
Fundurinn útnefnir tvo menn til að vera í vali að kjósa
um á Aðalfundi félagsins, sem haldinn verður í Reykja-
vík í júní mánuði, n.k., í stað herra Áma Eggertsonar
sem þá verður búinn að útenda sitt tveggja ára tímabil.
Ásmundur P. Jóhannson
Árni Eggertson
ÞORRAMÓT
heldur Sambandssöfnuðurinn í
Riverton í Parish Hall, Riverton,
10. feþrúar n. k., kl. 8 e. h. —
Veitingar: fslenzkur miðdegis-
verðbr (hangikjöt, svið, rúllu-1
pylsa, harðfiskur o. s. frv.) —
Skemtiskrá: Ræður, söngvar,
rímnakveðskapur og kvæði. —
Einnig verður rætt um mögu-
leika á því, að stofna þjóðrækn-
isfélagsdeild í Riverton. — Dans
á eftir. Inngangseyrir 50c.
* * *
A. J. Trommberg frá Fort
McMurray, Alta, var staddur í
Winnipeg s. 1. viku. Hann hefir
verið norður við McMurry í 21/2
ár og hefir þar heimíli. f Mc-
Murray, sem er nærri 300 mílur
norður af Edmonton, eru enda-
stöðvar járnbrauta og er það
sem lengra norður fer, flutt eftir
McKenzie-ánni. Er norður með
ánni einhver bygð, veiðimanna
aðsetur og einnig við norður-
ströndina, við íshafið. Eru skip
á ferð þar aftur og fram og til
norðurstrandarinnar koma skip
að austan og vestan. f McMur-
ray og við járnbrautastöðina
hinumegin við Great Slave Lake,
kvað hann um 4 til 5 hundruð
manns búa. Hafa sumir þar
kvikfénað, naut, hesta og sauð-
fé, en aðrir lifa á veiðum bæði í
vötnum og á landi. Garðmatur
sagði hann að yxi þar vel. Mun
hlýrra kvað hann á þessum slóð-
um heldur en t. d. í Churchill,
þar sem hann var áður en hann
fór vestur. Mr. Trommberg fór
norður í Nýja-ísland að hitta
forna kunningja. Hann mun
dvelja tvær þrjár vikur hér
eystra.
* * *
Ársfundur Sambandssafnaðar
verður haldinn sunnudags-
kvöldið 5. febrúar að guðsþjón-
ustunni lokinni, og áframhald
af honum verður á sunnudags-
kvöldið 12. febrúar. — Árs-
skýrslur safnaðarins, og félags-
skapa innan safnaðarins verða
lagðar fyrir fundinn, og kosning-
ar embættismanna fara fram.
Auk þess verða ýms mál rædd
er lúta að framtíðarstarfi safn
aðarins og útbreiðslu trúar-
stefnu hans. Er skorað á sem
allra flesta safnaðarmenn að
sækja þessa ársfundi.
Stjórnarnefnd Sambandss.
í Winnipeg
* * *
Eftirspurn eftir jörð
Við viljum kaupa jörð norður
af Winnipeg, helzt í Árnes-bygð-
inni eða ekki langt frá Gimli,
með öllum búnaðaráhöldum. —
Þeir sem sinna vildu þessu, eru
beðnir að gefa allar upplýsingar
til: Mr. Sloane, 1003 Lindsay
Bldg., Winnipeg, Man.
SAMSTARF ÍSLENDINGA
Frh. frá 1. bls.
þurfi að vera tvær íslenzkar-
bókabúðir. Önnur í Winnipeg
fyrir Canada. Hin í Dakota fyr-
i ir Bandaríkin. Hvorug útsalan
getur verið gróðafyrirtæki, en
það á að vera trygt á öllum tím-
um að landar vestra geti fengið
þær bækur, sem út koma á fs-
landi, án óþarfa tilkostnaðar. —
Væri eðlilegt að Þjóðræknisfé-
lagið hefði yfirumsjón með þess-
ari bókasölu vestra eins og sann-
arlegu þjóðernismáli, þó að ein-
stakir menn hefðu með höndum j
framkvæmdina. Heima á íslandi
yrði að sýna sanngirni og lipurð ,
í þessum skiftum. Eðlilegast !
SARGENT TAXI
SIMI 34 555 or 34 557
724 /i Sargent Ave.
vestra, yrði að auglýsa vörurnar
í Heimskringlu og Lögbergi. Það
væri nauðsynlegt fyrir verzlun-
ina og stuðningur fyrir blöðin.
9. En hin mikla vörusala
vestra til annara en íslendinga
verður á hraðfrystum fiski, síld
í mörgum myndum og niðursoðn-
um sjávarvörum. Sú sala þarf
. , , , , ,, , að gerast um öll Bandaríkin og
væri að bækur vestra væru seld- að einhverju leyti j Canada. Við
fr..fgS1í ?r^ þá útbreiðslustarfsemi geta land-
krofu. Bloðm i Winmpeg myndu ar vestra haft hina mfistu þýð_
geta um hinar þyðingarmem f þeir sem standa að yöru.
bækur, svo að landar, hvar sem sölunni fr& NfiW York> kunna að
þeir búa í Ameríku, vissu um
þær bækur, sem eru á markaðin-
meta og biðja um velviljaðan
, . , . _ stuðning landa. í Seattle búa
“■ °« sem t?™?' En hálf milj. manna, þar af senni-
eins og nu er hattað boksolunm,
verða senn íslenzkar bækur tor-
fengnar og mjög erfitt fyrir
marga landa, sem dreifðir eru
um hið mikla meginland, að vita
hvað út er gefið á íslandi.
5. Einn undarlegur ósiður
Tilkynning
Vér viljum hérmeð tilkynna, að frá 1. febrúar, að
þeim degi meðtöldum, verður skrifstofa vor að 308
Avenue Building, Winnipeg og að símanúmerið, sem
breytt verður einnig, verður 26 821.
Vér bjóðum öllum skiftavinum og kunningjum að
heimsækja okkur í hinum nýja bústað vorum í febrúar-
mánuði, einkum laugardaginn, 3. febrúar 1939 frá kl. 10
til 4 að deginum.
J. J. Swanson & Co. Ltd.
ÁRSFUNDUR SAMBANDSSAFNAÐAR
í WINNIPEG
SUNNUDAGSKVÖLDIN 5. og
eftir messu.
12. FEBRÚAR
Kosning embættismanna, skýrslur lesnar, o. s. frv.
Eru allir safnaðarmenn beðnir að f jölmenna bæði kvöldin.
Sveinn er fjandans fyrirtak,
flest að spánum gengur.
Nú þarf ekki Almanak
Ólafs heitins lengur.
. —P. G.
* * *
Heimilisiðnaðarfélagið heldur
næsta fund sinn á miðvikudags-
kvöldið 15. febrúar að heimili
P. J. Sivertson, 497 Telfer St.
Þetta er ársfundur og því æskt
að sem flestir sæki fundinn.
* * *
Miss Salóme Halldórsson,
þingmaður frá St. George lagði
af stað í byrjun þessarar viku
til Brandon til að flytja þar er-
indi um Social Credit mál. Hún
gerði ráð fyrir að flytja erindi á
þrem til fjórum stöðum suður í
fylkinu.
* * *
Síðast liðinn sunnudag voru
gefin saman í hjónabnad af séra
V. J. Eylands á heimili prests-
ins: Kristján Hinrik ísfjörð,
fóstursonur Guðríðar og Sæ-
mundar Árnagonar á Baldur og
Helga, dóttir Sigurðar og Járn-
gerðar Sigurðsson á Gimli.
* * *
Mrs. Hinrik Johnson og dóttir
hennar Mrs. H. Easy, báðar frá
Virden, Man., voru staddar í
borginni um helgina sem leið.
lega 500 fslendingar. Ef þessi
litli hópur vill tala um og agitera
fyrir íslenzkum vörum, sem rétt
eru framleiddar fyrir markað
þar, þá munar m.'kið um slíkati
stuðning.
. , , j. , . . . i 10. Blöðin í Winnipeg, Lög-
v.r5.3t ta.l iand, her he.ma,:bc Heimakringla, eru bæ6i
og það er að kaupaht.ð .slenzk- nm -(J áfa ömu, Þau eru |if_
ar bækur, sem gefnar eru ut . t j WóðerniSbaráttu landa
W.nmpeg, og prentaðar 1 islenzk- vesfra Þau þurfa teði aS lifa
7,uren ,T Þa,u J er »2 !>■**> hvort um sig eðlilegt og
eí til vill leiðmleg tilviljun, en , .*
'u'u ’ , ohjakvæmilegt verksvið. Þau
ur þvi þarf að bæta með fræðslu . ., , ., .* ,
, . . . . eiga vitaskuld við verulega erfið-
um þetta efni. i, * * .. * „ ,
c T j Teika að etja og eru að allmiklu
u • ,Sr la a a a ^ leyti háð margháttuðum stuðn-
allmorg lestrarfelog og voru þau ingi áhugamanna vestra. Eftir
vitanlega mjog blomleg meðan þyí hin yoldu engka gæk.
mikið var um bokakaup að heim-
an. Mörg þeirra starfa mikið
ennþá, og munu gera það jafn-
lengi og íslenzkt þjóðerni er við-
urkent vestra. — Blaðasala héð-
an vestur hefir aldrei verið mik- Blöðin fá mjög lítinn stuðning
! ’ ge e 1 a ^ neina f jár- Qg viðurl{enningu héðan að heim-
hagslega þyðingu. A hmn bóg- an Þau haf& sennilega ekki
ínn myn í þa ja pa no krum einn einasta þorgandi kaupanda
hluta landa vestra að fylgjast hér á landi_ Tveir menn> Krist.
með malum her heuna, ef aðal- ]eifur á Kr0ppi 0g Stefán Vagns-
bbð stjornmalaflokkanna, Alþbl.1^ f Skagafirði> hafa regiulega
. ‘. 0?., miUU væru send o- gent vestanhloðunum fréttir og
keypis ollum starfandi lestrarfe- hefir það þótt góður greiði _
logum vestra, eftir tilyisun Þjóð- Hvort b]aðið fyrir gig> þyrfti að
rækmsfe agsins, en rett væri að hafa SVQ sem 8_10 fasta frétta.
kstrarfelogm greiddu burðar- menn dreifða um landið> sem
gJm Vf að ÞaU ^rðu Það að Þegnskyldu, að
vi u a o ín. g æ a upp ur vinna fyrir landa vestra, með
aramotum að snua mer til ót-! skipulagsbundnum fréttum. -
gefenda þessara þriggja blaðajVerður ef tn vill j þessu efni
með ofangreind tilmæli. auglýst eftir sjálfboðaliðum í
7. Haskolmn i Winmpeg verð-jþesgu gkyni hér j blaðinu
ur að vissu leyti þýðingarmestur
fyrir íslendinga vestra, því að
hann er mitt í höfuðbygðum
þeirra. Eru líkur til að þar verði
innan skamms stofnað prófess-i
orsembætti í íslenzkum fræðum, j
11. En það er með öllu óviðun-
andi, að þau blöð, sem landar
vestra gefa út með mikilli þraut-
seigju og fórnum, skuli alls ekki
vera keypt hér eða borguð. Að
vísu má segja, að tæplega sé von
eingöngu fyrir forgöngu og ... . ... , ,
framlög íslendinga vestra. Aldr- um eigmlega almenna solu her,
aður maður í Winnipeg, Arnljót-
ur Olson, náfrændi og nafni Arn-
ljóts Ólafssonar, hefir gefið há-
skólanum í Winnipeg aleigu sína,
en ’það er prýðilegt íslenzkt
freipur en fyrir blöð héðan
vestra. En eg álít að almennar
stofnanir hér, skrifstofur, meiri
háttar fyrirtæki, sjúkrahús,
skólar o. s. frv., eigi að kaupa
bókasafn, 2,500 bindi. Þessi gjöf Vesturheimsblöðin og borga þau
er ufllkomin undirstaða að ís- 1 þvi skJni að WiS3**t mal-
um vestra og syna londum í
Vesturheimi verðskuldaða við-
urkenningu fyrir hlýhug þeirra
til gamla landsins.
—Tíminn. Framh.
lenzkri bókadeild við háskólann.
Löndum vestra myndi þykja við-
leitni sú, að halda við íslenzkum
fræðum, studd réttilega, ef Al-
þingi léti eintak af hverri bók,
sem hér er prentuð, koma ókeyp-
is framvegis í þetta safn. Mun
því máli verða hreyft á þingi nú
í vetur.
8. Jafnskjótt og reglulegar
skipaferðir byrja vestur til New
York frá Reykjavík, mun þar!
byrja heildsala með íslenzkar
framleiðsluvörur. Af vissum
vörutegundum, svo sem góðum
harðfiski, osti og ef til vill með-
alalýsi handa börnum, myndi;
verða beinlínis um verulega sölu
að ræða til íslenzkra heimila
vestan hafs. Alveg sérstaklega j
myndi ágætur iharðfiskur vera
kærkominn tilhaldsmatur, ef
hann væri til sölu, víðast hvar j
þar sem landar eiga heima. Hefi!
eg fengið ádrátt frá einum mjög
duglegum verzlunarmanni, að
leysa harðfisksmálið vestra á
viðeigandi hátt. Jafnskjótt og
sala á íslenzkum vörum byrjaði
MESSUR og FUNDIR
1 kirkju Sambandssafnaðar
Messur: — á hverjum sunnudegi
Kl. 11 f. h. á ensku
Kl. 7 e. h. á íslenzku.
Safnaðarnefndin: Funalr 1. fösftu-
deg hvers mánaðar.
Hjálparnefndin: — Fundir fyrsta
mánudagskveld í hverjum
mánuði.
Kvenfélagið: Fundlr annan þriðju-
dag hvers mánaðar, kl. 8 að
kveldlnu.
Söngæfingar: Islenzki söng-
flokkurinn á hverju fimtu-
dagskvöldi.
Enski söng-flokkurinn &
hverju föstudag-skvöldi.
Sunnudagaskólinn: — Á hverjum
sunnudegi, kl. 12.15 e. h.
Pianokensla
R. H. RAGNAR
Kenslustofa:
522 Furby Street
Phone 31476
jir meir og meir að íslenzkunni,
eiga þessi blöð erfiðara. Þau
minna á tvo svani, sem halda
opinni vök með því að synda í
hring þétt upp við ísbrúnina.
ALMANAKIÐ
1939
45. ár
INNIHALD:
Almanaksmánuðirnir, um tíma-
talið veðurathuganir og fl.
Kæða Lincoln’s hjá Gettysburg.
Eftir G. E.
Sögu-ágrip Islendinga í Suður-
Cypress sveitinni í Man. —
Framhald frá 1938. Eftir G.
J. Oleson.
Dýrasögur. Eftir G. E.
Söguþættir af landnámi Isl. við
Brown, Man. Framhald frá
1938. Eftir Jóh. H. Húnfjörð.
Drög til landnámssögu Isl. við
norðurhluta Manitobavatns.—
Eftir Guðm. Jónsson
Helztu viðburðir meðal Islend-
inga í Vesturheimi.
Mannalát.
Kostar 50c
•
Thorgeirson Company
674 Sargent Ave.,
Winnipeg, Man.
FROSINN FISKUR
Nýkominn frá vötnunum
Pundið
Hvítfiskur ............7c
Pickerel ..............6c
Birtingur .............3c
Vatnasíld ...........3V4c
Sugfiskur, feitur .....2c
Hvítfiskur, reyktur ....12c
Birtingur, reyktur.....8c
Norskur harðfiskur....25c
Saltaður hvítfiskur...lOc
Jack Fish ........... 3c
Pantanir utan af landi af-
greiddar tafarlaus. Fluttur
um Vesturbæinn ef pöntuð
eru 10 pund eða meira.
Fiskurinn til sýnis að:
323 Harcourt St. St. James
SÍMI 63 153
Jón Árnason
Verið Velkomin
A Laugardags spilakvöldin
í Sambandskirkjusalnum
Næsta spilaskemtunin verður laugardagskvöldið 4.
febrúar. Byrjar á slaginu kl. 8!
Takið eftir: Spilaðar verða 20 hendur.
Verðlaun veitt á hverju kvöldi fyrir hæztu vinninga.
Að Bridge-spilinu loknu, verða frambornar kaffi-
veitingar. Þar á eftir fara fram ýmiskonar skemtanir.
Munið eftir hvað vel þér hafið skemt yður undan-
farna vetur á þessum spilakvöldum.
Undir umsjón yngri deild kvenna í Sambandssöfnuði.
The Saturday Night Club
ÞJóÐRÆKNISFÉLAG
ÍSLENDINGA
Forseti: Rögnv. Pétursson
45 Home St. Winnipeg, Man.
Allir fslendingar í Ameríku
ættu að heyra til
Þjóðræknisfélaginu
Ársgjald (þar með fylgir
Tímarit félagsins ókeypis)
$1.00, sendist fjármálarit-
ara Guðm. Levy, 251 Furby
St., Winnipeg, Man.