Heimskringla - 22.11.1939, Blaðsíða 1
LIV. ÁRGANGUR
WINNIPEG, MIÐVIKUDAGINN, 22. NÓV. 1939
NÚMER 8.
HELZTU FRÉTTIR
“Via: New York”
Hr. Árni fasteignasali Eg-
gertsson, hefir beðið Heims-
kringlu að draga athygli þeirra
að því er póst sendi til íslands,
að bezt sé að senda hann um
New York og skrifa á umslögin:
“Via: New York” Það er bráð-
lega (um 5. des.) von á Goða-
fossi til New York, er siglir það-
an 11. des.
í bréfi frá Vilhjálmi Thor hef-
ir Grettir A. Jóhannsson enn-
fremur gefið blaðinu þessar
upplýsingar um siglingar ís-
lenzkra skipa frá New York:
Katla leggur af stað heim um 6.
desember, Goðafoss 11 des. (sem
áður segir) og Dettifoss fer einn
ig frá New York litlu síðar, eða
fyrir jól. Telur Mr. Thor betra
að tiltaka skipið einnig og setja
á bréfin t. d. “Via: New York,
s.s. Katla,” o. s. frv.
40 kaupskipum bætt við
Canada-flotann
Af hálfu hermáladeildarinnar
í Ottawa var frá því skýrt í út-
varpi eigi alls fyrir löngu, að 40
kaupskipum hefði verið bætt við
sjóflota Canada. Hefir skipun-
um verið breytt í herskip eins og
þörf hefir krafist. Gæta þau
strandvarnar af ýmsu tæi. Sum
hreinsa sjóinn af sprengjum,
sum eru sett til höfuðs kafbát-
um og elta þá uppi, sum gæta
milliferðaakipa og enn önnur
leggja net fyrir kafbáta.
En þetta er þó að líkindum
ekki nema byrjun. f síðasta
stríði voru 242 skip leigð af
stjórninni til strandvarnar.
í fyrstu voru stærstu hafnir
flestar verndaðar. Nú er vörnin
orðin miklu víðtækari.
Stærstu eiginlegu herskipin í
flotanum, eru 350 fét á lengd;
breidd þeirra er einn tíundi af
lengdinni. Þau eru tundurbátar
(destroyers) og hraði þeirra er
36 sjómílur á kl.st. Það svarar
til 43 mílna hraða á landi.
Herskipin hafa fjórar 4.7
þumlungit byssur. Þær geta
skotið tonni af málmi á hverri
mínútu og flytja 8 mílur. Hvert
skip hefir einnig 8 sprengivélar.
Canada ætlar því að sjá sjálft
um sínar hervarnir við strend-
urnar fyrst um sinn.
Á öllum herskipunum eru Can-
adamenn eingöngu eða 100%.
Verður Hepburn
f Iugmálaráðherra ?
Nokkrar líkur þykja á því, að
Hon. Mitchell F. Hepburn, for-
sætisráðherra Ontario-fylkis,
taki sæti í ráðuneyti King-
stjórnarinnar í Ottawa.
Á ráðuneytisfundi í Ottawa 3.
1. viku, var Hepburn boðin flug-
málaráðherrastaða. Áður hafði
honum boðist starf útbreiðslu-
málastjóra, en Hepburn hafnaði
því. Síðara tilboðinu hefir hann
ekki neitað, en bæði hann og
King eru þögulir enn um hvað
gerast muni.
Sérstakur flugmálaráðherra
hefir enginn áður verið í Can-
ada. Hernaðarflugmálin hafa
verið undir. eftirliti hermála-
deildar stjórnarinnar, er Hon.
Norman Rogers veitir nú for-
stöðu. En önnur flugmál hafá
tilheyrt samgöngumáladeildinni,
er Hon. C. D. Howe stjórnar.
En sérstaka flugmáladeild
mun nú í ráði að mynda, ekki
sízt vegna flugskólans, sem hér
er gert ráð fyrir að koma upp.
Canada hefir tekið að sér að
kenna 25,000 mönnum flug í
snatri fyrir brezka ríkið.
Ekki hefir ávalt verið sem
ljúfast milli Kings og Hepburns.
En það mun nú gleymt og graf-
ið verða, ef Hepburn þiggur
ráðuneytisstöðuna. Báðir eru
liberalar. Og í átta ár sat Hep-
burn á þingi með King. Að
forustu hans fann hann þá ekk-
ert. En svo varð hann forsæt-
isráðherra í Ontario. Og þá fór
þeim að sýnast sitt hvorum.
Um leið og stríðið braust út
á þessu hausti, hét Hepburn
stjórninni óskiftu fylgi sínu.
Hepburn var í flugliði Canada
(Royal Canadian Air Force) í
síðasta stríði. Þegar stríðið
hófst fyrir skömmu, bauðst hann
undir eins til þjónustu í hern-
um, til hvers sem væri.
Bæjarkosningin
Hér birtast nöfn þeirra er um
embætti sækja í bæjarkosning-
unum í Winnipeg er fara fram
föstudaginn 24. nóvember.
f fyrstu deild
Bæjarráðsmamvaefni:
Mrs. Margaret McWilliams, nú-
verandi fulltrúi, kona R. F.
McWilliams, K.C. Hún hefir
verið formaður heilbrigðis-
nefndar, er þakkað að börn fá
mjólk í skólum og margt fl.
Mrs. Christine White. Hún sæk-
ir undir merki verkamanna.
Sótti um skólaráðsstöðu s. 1.
ár, en tapaði. Hefir ekki áður
verið í bæjarráði.
C. E. Simonite, núverandi full-
trúi. Hann er fasteignasali.
Hann hefir verið formaður
fjármálanefndar og er með
lækkandi fasteignaskatti.
F. G. Thompson núverandi full-
trúi. Hann er lögfræðingur,
mentaður á Manitoba-háskóla, [
lætur sér ant um “town-plan-l
ning” og að halda útgjöldum í
hófi.
Skólaráðsmannaefni:
Mrs. Etta May Rorke, læknisfrú.
og núverandi fulltrúi.
Charles Brown, verkamanna-
sinni; sótti s. 1. ár en féll.
Hann er í þjónustu hjá C.N.R.
Dr. F. E. Warriner, fyrv. borg-
arstjóri. Hann hefir oft áður
verið í skólaráði.
W. Stan McEwan lögfræðingur;
sækir í fyrsta sinni..
Til eins árs sækja:
Alexaínder J. String'er, sonur
erkibiskups J. O. Stringer; há-
skólagenginn og lögfræðingur.
John Atkinson, starfsmaður vá-
tryggingarfélags; hann var í
stjórnarþjónustu hjá land-
stjórninni 12 ár.
f annari deild
Bæjarráðsmannaef ni:
Thomas Flye, núverandi full-
trúi; verkamannasinni. Sækir
nú í tíunda sinni; hefir verið
lengst allra í bæjarráði.
Paul Bardal, núverandi fulltrúi.
Hann hefir verið í bæjarráð-
inu síðan 1932.
M. W. Stobart, núveranid full-
trúi, verkamannasinni. Hann
er með því að byggja ódýr
hús, verkamannabústaði, en
rífa niður gömlu hjallana
(slums), hefir verið fulítrúi 6
ár.
Victor B. Anderson, verkamanna
sinni; hefir verið tvö kjör-
tímabil í bæjarráði. Hann er
prentari.
H. B. Scott, bakari og viðskifta-
málum kunnugur. Hann sæk-
ir í fjórða sinni.
John McNeil, sækir í fimta sinn,
nú sem verkamannasinni.
Skólaráðsfulltrúaefni:
Mrs. Jessie Maclennan, núver-
andi fulltrúi. Sækir í áttunda
sinni og er því með þeim sem
lengst hafa fulltrúar verið. —
Hún er verkamannasinni.
Mrs. Gloria Queen-Hughes, nú-
verandi fulltrúi, sækir í fjórða
sinni undir merki verkamanna
flokksins. Hún er elzta dóttir
John Queen borgarstjóra.
Mrs. Ethel Montgomery, mikil
starfskona í kvenfélögum. —:
Hún hefir áður sótt í bæjai--
og skólaráð, en tapað.
Mrs. Mary Jenkins, sækir í
fyrsta sinni; hún tilheyrir ó-
tal félögum, Rauða Krossi, I.
O.D.E., o. s. frv.
Adam Beck, núverandi fulltrúi.
Einn af stofnendum Home and
Property Owner’s félagsins.
L. M. Van Kleek, verkamanna-
■sinni; hefir áður sótt en tapað.
f þriðju deild
Bæjarráðsmannaefni:
Jack Blumberg, núverandi full-
trúi og s. 1. 20 ár. Hann er
verkamannasinni.
William Scraba, áður skólaráðs-
maður; sækir í fyrsta sinni
um bæjarráðsstöðu. Hann er
ritstjóri Ukrainian Review.
Angus MacKay, verkamanna-
sinni. Hefir einu sinni sótt
áður en tapað.
John Petley, kaupmaður í Elm-
wood, hefir einu- sinni sótt
áður en tapað.
Bruno Roscoe, sækir í fyrsta
sinn, er forseti Winnipeg Tax-
payers félagsins.
Jacob Penner, núverandi full-
trúi, kommúnisti.
Skólaráðsmannaefni:
Charles Carl Knox, var í stríð-
inu mikla og tilheyrir deild af
Canadian Legion. — Sækir í
fyrsta sinni.
Mrs. Mary Lowe, verkamanna-
sinni.
Meyer Averbach, verkamanna-
sinni.
Andrew Bilecki, kommúnisti.
A. Zaharychuk, útnefndur af
Taxpayers félaginu. Hann er
fæddur í Austurríki 'og er
blaðstjóri.
Heiðursmerki afhent
Á minningar samkomu um dr.
Jón Bjarnason, sem haldin var s.
1. miðvikudag í Fyrstu lút.
kirkju, afhenti Grettir Jóhanns-
son konsúll séra R. Marteinssonl
og dr. Sig. Júl. Jóhannesson
heiðursviðurkenninguna, ridd-
arakross, sem stjórn íslands og
Danakonungur sæmdi þá. Við
það tækifæri flutti Mr. G. Jó-
hannsson eftirfarandi ræðu:
Háttvirta samkoma!
Séra Rúnólfur Marteinsson,
skólastjóri, og Dr. Sigurður
Júlíus Jóhannesson, skáld:
Mér er það mikið ánægjuefni,
að koma hér fram í kvöld í um-
boði hans hátignar, konungs fs-
lands og Danmerkur, og hinnar
íslenzku ríkisstjórnar, til þess að
afhenda ykkur fyrir hönd hlut-
aðeigandi stjórnarvalda hvorum
um sig riddarakross hinnar ís-
lenzku Fálkaorðu. Það er ekki
einasta mín persónuleg skoðun,
heldur mun það álit Vestur-ís-
lendinga í heild, að þið hafið
fyrir löngu unnið til þeirrar
sæmdar, er ykkur nú hefir fallið
í skaut.
Þú, séra Rúnólfur Marteins-
son, átt tvennskonar mikilvægt
afmæli í ár: fimtíu ára kenslu-
afmæli og fjörtíu ára prestskap-
arafmæli; skyldurækni þín, og
alúð við hvorttveggja starfið,
má til sannrar fyrirmyndar telj-j Liberalar halda velli
ast, og gefur fagurt dæmi til í New Brunswick
eftirbreytni í þjóðræknisstarfi
okkar íslendinga vestan hafs.
Fulltrúi íslandsstjórnar, herra
Thor Thors alþingismaður, sem
hér var á ferð í sumar, tilkynti
það opinberlega að þú hefðir
verið kjörinn til þessarar sæmd-
ar, og nú leyfi eg mér, að af-
henda þér virðingarmerkið með
þakklæti og árnaðaróskum.
Þú, Dr. Sigurður Júúlíus Jó-
hannesson, rithöfundur og
skáld! Fyrir hönd hans hátign-
ar, konungs fslands og Dan-
merkur, og íslenku ríkisstjórnar
leyfi eg mér að afhenda þér ridd-
arakross hinnar íslenku Fálka-
orðu; trúmenska þín við íslenzkt
þjóðerni, kvæði þín og ritstjórn,
við barna- og unglingablöð, hafa
fyrir löngu vakið á þér þá at-
hygli beggja megin hafs, að
sjálfsagt var, að slíkt yrði á
sínum tíma opinberlega viður-
kent, ofsagt mun það ekki vera,
að þér, meira en nokkrum ein-
um manni öðrum, eigi vestur-
íslenzk æska að þakka skilning
sinn á íslenzkri tungu og íslenzk-
um ljóðum; þessa tvo kjörgripi
hefir þú sungið inn í huga henn-
ar með slíkri kostgæfni “er seint
mun fyrnast yfir.”
Mér er það óumræðilegt fagn-
aðarefni, að afhenda þér opin
Fylkiskosningunum í New
Brunswick, s. 1. mánudag lauk
þannig að liberal-stjórnin, undir
forustu A. A. Dysart hélt velli.
En það var heldur ekki meira.
Stjórnin hélt á 27 þingsæti;
hafði áður 43; íhaldsflokkurinn
hlaut 21, hafði fyrir kosning-
arnar aðeins 5. Leiðtogi íhalds-
flokksins heitir F. C. Squires.
Stjórnin hlaut tæplega 55% allra
atkvæða.
Þrír ráðgjafar stjórnarinnar
féllu; 16 af kjördæmum hennar
snerust á móti henni. Ekki er
sagt að tap þetta hafi stafað af
hermálunum eins og í Quebec.
Hitt er þó víst, að Sambands-
stjórnin gerði ekkert fyrir A. A.
Dysart í þessum kosningum.
Róstusamt í Prag
Stjórn Hitlers er óvinsæl í
Tékkóslóvakíu. Tékkarnir sýna
henni mikinn mótþróa. Gengur
það oft svo langt, að hneppa
verður nokkra þeirra í varðhald.
Síðast liðna viku keyrði þó fram
úr hófi. Um 2000 stúdentar
hófu kröfugöngu um borgina og
andmæltu yfirráðum Hitlers. —
Þegar stjórnin skarst í leikinn,
bjuggust stúdentar til varnar í
háskólanum. Var þar tveggja
berlega þetta virðlingarmerki,! klukkustunda hörð rimma. Köst-
um leið og eg með þakklæti óska
þér giftusamlegrar framtíðar.
Mér er það ennfremur sér-
stakt ánægjuefni að geta tilkynt
Vestur-fslendingum það, að rit-
höfundurinn víðkunni og góð-
uðu stúdentar myndum af Hitler
og húsmunum í haus hermanna.
En fyrir herliði nazista stóðst
ekkert. Stúdentarnir voru hand-
teknir um 1200 að tölu og 120
af þeim skotnir (segir í rit-
kunni, herra Jóhann Magnús stjórnargrein í Winnipeg Tri-
Bjarnason, hefir einnig verið:bune) og rúmt þúsund þeirra
sæmdur riddarakrossi Fálkaorð- j sen(br í þýzku vinnuverin. Víoa
unnar; sögur hans og hin un- annar staðar urðu uPP>ot um
aðsfögru æfintýri í nær því heil-! betta sama leyti. Er nú haldið
ann mannsaldur hafa skipað tram’ að 50,000 Tékkar hati
honum sérstakan virðingarsess j veruð handteknir hingað og
meðal rithöfunda íslenzku þjóð-( banga^ð um landið ^á nokkrum
Eg flyt honum hér
innilegustu ham-
annnar
með mínar
ingjóskir.
Grettir Jóhannsson
GUÐMUNDUR G.
GOODMAN
Ágúst 1866—November 1938
Ein með þrá um æfi sjó
áfram má eg halda,
Hann er dáinn, húm og ró
hylur náinn kalda.
mánuðum og sitji fjöldi þeirra
enn í varðhaldi eða sé í vinnu-
verunum.
Alt er þetta kent yfirgangi
nazista, er nú stjórna landinu.
Þeir reka Tékka frá vinnu, sem
þeir hafa stundað svo árum
skiftir, loka 9 háskólum þeirra
og nota þá fyrir hermannabú-
staði og setja herlög í landinu.
Fyrir þetta alt borga Tékkar
grimmilega. Upp úr á er Vet-
ava heitir og sem gegnum Prag
rennur, voru nýlega dregin 30
lík þýzkra hermanna.
Að eiga trúan vin á vegi
er von >og sigur hverri þraut,
og þegar hallar haustsins degi
vort hjarta þráir skjól á braut,
og þá er sárt við þann að skilja
sem þunga dagsins með oss bar
af helgum kærleiks hug og vilja
við harms og gleði stundirnar.
Við stríð og gleði stunda hagsins
þín stefna lýsti trú og dygð,
og fram til síðsta sólarlagsins
þú sýndir mannúð, dáð og trygð,
við dagsins skyldur drenglund-
aður
þú dyggur gekst að verki beinn
og mættir hverjum mótbyr glað-
ur
í máli og anda trúr og hreinn.
f minning vina ljósið lifir
sem léttir dagsins húm og stríð,
með lífið dauðans dölum yfir
hvar drottnar eilíf sælutíð.
Þó andi kalt á hljóðu hausti
og harmur beygi veikan þrótt,
eg bíð í von með trú og trausti
unz til mín kallar hinsta nótt.
f nafni Pálínu Goodman
ekkju hins látna.
M. Markússon
Mestu skiptapar í stríðinu
Yfir síðustu helgi urðu meiri
skiptapar af völdum stríðsins en
nokkru sinni áður.
Á Norðursjónum sukku niu
skip frá því á laugardag og til
| mánudags, fles,t af völdum
isprengja, er nazistar hafa slept
lausum um sjóinn. Um 177
manns er talið að hafi farist, eða
sem ekki hefir spurst til.
Fjögur skipin voru brezk, öll
fremur lítil, með 13 til 16 mönn-
um hvert, og litlu njanntapi. Hin
skipin voru frá hlutlausum þjóð-
um. Stærst þeirra var hollenskt
skip, Simon Bolivar, farþega-
skip, með 140 manns; er áætlað
að af því hafi milli 80 og 90 far-
ist. Hin skipin voru frá þess-
um löndum: Svíþjóð, ítalíu,
Yugoslavíu og Lithuaníu.
Við þessa tölu bæta svo fréttir
í gær fjórum skipum, er sökt var
á sama hátt eða með sjósprengj-
um, frá því seint á mánudag til
þriðjudagskvölds. Var eitt
þeirra japanskt skip á leið frá
Englandi. Skipshöfnin bjargað-
ist, sem var með farþegum 180
manns. Hin þrjú skipin voru
brezk.
Eru nú Bretar byrjaðir að
hreinsa sjóleiðirnar af þessum
ófögnuði, sprengjunum. Gera
þeir sér vonir um að það vinnist
furðu skjótt. Þjóðverjar gerðu
þetta sama í siðasta stríði og
tókst þá, að gera við því.
Bretar eru reiðir þessari lög-
leysis aðferð og hóta Þjóðverj-
um í hefndarskyni, að hvert skip
með vörur frá Þýzkalandi skuli
tekið. Hafa Bretar þegar gefið
út skipun um þetta.
Til þessa er talið, að 136 skip-
um hafi verið sökt síðan stríðið
hófst. Smálestastærð þeirra er
alls um 543,000. Um 2000 manns
hafa með þeim farist.
Bretar telja Þjóðverja hafa
gripið til þess að kasta sprengi-
duflum í sjóinn, þegar kafbátar
þeirra orkuðu orðið litlu.
SAMANDREGNAR
F R É T T I R
í frétt frá Þýzkalandi í gær er
haldið fram, að Hitler skorti
herforingja á vesturvígstöðv-
unum til þess að hefja sóknina,
sem hann hefir svo oft hótað.
Hann telur sig þurfa 17,000
fleiri herforingja til þess. Hug-
myndin var að hefja árásina
milli 12. og 14. nóvember og
fara. yfir Holland og Belgíu og
hvar sem var. En herfroingj-
ar hans munu hafa bent honum
á að þetta væri ókleift nema með
miklu fleiri herforingjum. Úr
þessu er verið að reyna að bæta
að sagt er, svo að hvellsin's mikla
er von síðar.
>k sk
Heinrich Himmler, yfirmaður
þýzku lögreglunnar, heldur að
hann hafi fundið 'þann, sem
banatilræðið sýndi Hitler, í öl-
kastalanum í Munich 8. nóv. s. 1.
Heitir hann Georg Elser, 36 ára
gamall og á heim í Munich. —
Himmler segir hann hafa loks
leftír sta-pp m(ikið meðgengið
glæpinn. Skifta þeir orðið þús-
undum, sem handteknir hafa
verið út af þessari sprengingu.
* * *
John Queen borgarstjóri hélt
reeðu o. 1. Sunnudagskvöld í
Norður-Winnipeg (Hebrew Free
School, Flora Ave.) og fór hörð-
um orðum um kommúnista. —
Kvað hann það gjanga glæpi
næst, ef nokkur kommúnisti yrði
kosinn í bæjarstjórn n. k. föstu-
dag. Kommúnistaflokkinn sagði
hann hættulegan lýðræði og kvað
sögu hans tóm svik og látalæti.
Winnipeg kommúnistar væru
engin undantekning frá þessu.
Þeir prédikuðu á móti einræði,
en aðhyltust svo stefnu Stalins.
^em með skotliði við hendina
hefði ráðið þúsundum manna
bana fyrir það eitt, að hafa aðra
skoðun en hann.
Mr. Queen var að tala máli
flokksbræðra sinna, Blumbergs
bæjarráðsmanns og Averbachs
er um skólaráðsstöðu sækir, í
bæjarkosningunum ,er hann fór
þessum orðum um kommúnista.
* * *
f Þýzkalandi er nú mikil á-
herzla lögð á það að kenna rúss-
nesku.
* * *
í ritstjórnargrein í blaðinu
Winnipeg Free Press í gær, er
minst á heiðurinn, sem þeim
séra Rúnólfi Marteinssyni og dr.
Sig. Júl. Jóhannessyni hlotnað-
ist nýlega. Telur blaðið viður-
kenningar af þessu tæi mj ög við-
eigandi og engan hégóma, þar
sem þeim fylgi ekki erfðatitill,
en séu veittar fyrir verðskulduð
störf. Sér blaðið ekkert á móti
því að Canada-stjórn fari þarna
að ráði íslandsstjórnar.
Frh. á 5. bls.