Heimskringla - 06.03.1940, Page 1

Heimskringla - 06.03.1940, Page 1
The Modern Housewife Knovvs Quality That ls Why She Selects “CANADA BREAD” “The Quality Goes in Before the Name Goes On” Wedding Cakes Made to Order PHONE 39 017 ALWAYS ASK FOR— “tíutter-Nut Bread” The Finest Loaf in Canada Rich as Butter—Sweet as a Nut Made only by CANADA BREAD CO. LTD. LIV. ÁRGANGUR HELZTU FRÉTTIR Frá sonum G. Grímsonar Af blöðum að dæma frá byrj- un þessa árs, er Heimskringla hefir komist yfir, hefir Lynn. yngsti sonur Guðm. dómara Grímsonar hlotið stöðu sem að- stoðar-dómsmálaráðherra í N.- Dakota-ríki. Hann tók við em- bættinu í þessa árs byrjun. Lög- fræðisstarf hans verður mik;ð fyrst fyrir Workmen’s Compen- sation skrifstofur stjórnarinn- ar. Lynn útskrifaðist af Da- kota-háskóla í “Arts”, en laga- nám sitt stundaði hann í lög- fræðisdeild Minnesota-háskóla. Hann getur starfað sem lögfræð- ingur í báðum ríkjunum. Keith, elzti sonur Mr. G. Grímsonar, er á síðast liðnu sumri lauk námi í Evrópu, en hann hlaut Belgian-American fellowship námsstyrkinn til þess, hefir nú tekið við skurðlæknis- starfi á Billings Memorial Hospi- tal, University of Chicago clinic Báðir þessir drengir fóru með föður sínum til íslands 1930. ^ó lítt tali þeir íslenzku, eru beir stoltir af íslenzka ættstofn- inum. Frá Sigurði Skagfield Það hefir lítið frést af Sígurði Skagfield að undanförnu, en nú hefir einn kunningi hans fengið bréf frá honum og skýrir Sig- urður þar frá högum sínum. Sigurður hefir sungið víða um Þýzkaland, og síðast í ónerunni 1 Oldenburg. Hefir hann t. d. ®ungið “Erik” í “Hollendingnum G.iúgandi”. Þá hefir hann og sungið hlutverk í Lohengrin og Oon José í Carmen. Hefir Sigurður fengið góða dóma fyrir söng sinn. Hann mun fara til Berlínar í næsta mánuði og syngja þar. Hefir honum verið boðið þangað. f vor gerir svo Sigurður ráð fyr- *r því að koma heim. ' -Vísir, 30. jan. Arssamkoma Islendinga í Minneapolis 30. marz Söngflokkur íplenzkra kvenna, Sem fyrir skömmu var stofnaður j Minneapolis, söng í þeirri borg í fyrsta sinni s. 1. miðvikudag, víð góðan orðstír. Á árssarn- homu fslendinga, sem nú er ver- ið að undirbúa, og sem haldin verður 30. marz n. k., lætuf bvennakór þessi einnig t.il sín beyra. Samkoma þessi, seni aðallega er fólgin í því, að ís- ieudingar á þessum sióðum kond suman einu sinni á ári og end- Urnýi fornan kunningsskap, verður eins og nokkur undanfar- ' ár haldin á 3. gólfi í bygg- ’nSu Svenska - Amerikanska ^°sten, 500 So. Seventh St. ^L’nneapolis. Kvennasöngsveitin, sem á Var minst, hefir verið æfð og Verður stjórnað af próf. Hairy Gárusson, bróður Mrs. Lauru G. Salverson, og Mrs. S. Jakobs- son í Winnipeg. Hann stjórnar Community Band og er *®nnari við MacPhail School of ^usic. Þegar krónprinsinn anski og krónprinsessan voru a erð í apríl á s- L ári í Minne- ap0Jis, undirbjó próf. Lárusson syeit kvenna til að syngia þjóð- s°ng fslands: “ó, Guð vors anjJs” við það tækifæri. 'elagar hins nýja kvennakórs, ?ru íslendingar, og flestar tii- neyra Hekl aðu konurnar klúbbnum a> en sá klúbbur var stofn- r af íslenzkum konum i Minneapolis og St. Paul. Soprano syngja Mrs. G. T. Athelstan, sem er og forseti hins nýja kvenna- kórs; Mrs. A. E. Arntson, frá Red Wing; Miss Sigrún Gíslason Miss Iva Magnússon og Mrs- K. N. Hetland, allar frá Minne- apolis; Mrs. P. A. Heiderien, Mrs. Wm. E. Erickson og dóttir hennar, Dóra, og Mrs. Cook, all- ar frá Minneapolis. Aðra alto rödd syngja: Mrs. LaBell og Miss Helga Björnsson frá Min- neapolis og Mrs. Victor Valstad í St. Paul. Á söng kvennakórsins s. 1. miðvikudag, voru fjórir flokkar af íslenzkum lögum sungnir. Þar var og voldugt hljóðfæraspil. Þá mintist Valdimar Björnsson þar skáldsins mikla Hallgríms Pét- urssonar í ræðu er hann flutti og PasMusálma hans, er íslenzk þjóð hefir nú sungið í 300 ár. Samkomuna sem haldin verð- ur 30. marz og sem hefst klukk- an 8 að kveldi, æskir forstöðu- nefndin að allir sæki, sem kost eiga á því. Þar fer fram góð skemtiskrá; þá máltíð og síðast dans. Þar flytur og ræðu séra B. Theo Sigurðsson, fyrrum prestur í Selkirk, en sem nú hef- ir um skeið verið starfsmaður Marquette National Bank í Min- neapolis. SAMANDREGNAR F R É T T I R Leyndarráðið á Bretland1 kvað upp þann dóm í gær, að lögin um lækkun á vöxtum á skuldum Alberta-stjórnarinnai, sem samþykt voru 1937, séu ó- gild. Aberhart-stjórnin lækkaði vextina um helming. Talsmenn stjórnarinnar segja, að dómur leyndarráðsins hafi engin áhrif og hærri rentur verði ekki greiddar, en undanfarin tvö eða þrjú ár. * * * Konungleg nefnd er líkleg að verða skipuð til að rannsaka stjórn og rekstur lögregiu Win- nipeg-bæjar. Á þessu efni var vakið máls á bæjarráðsfundi s. 1. mánudag. John Petley bæjar- ráðsmaður hóf máls á þessu og var vel brynjaður með dæmuin af framferði lögreglunnar, er réttlættu krófuna um rannsókn. Eitt var krafa um rannsókn í sambandi við dauðfall John Mc- Donald, lögreglumanns er var skotinn í viðureign við inn- brotsþjófa fyrir skömmu. Mánð vekur mikla eftirtekt. * * * í Palestína er sagt að 100,000 Gyðingar hafi innritast í herinn eystra með Bretum. * * * Á Manitoba-þinginu héit James Litterick kommúmsti ræðu s. 1. miðvikudag. Hann mótmælti allri þátttöku af hendí Canada í stríðinu, kvað Mr. Chamberlain hafa sett af stað stríðið í Finnlandi móti Russum og þjóð þessa lands kysi frið; vopnasalar einir væru með því. Um þetta hélt hann alllanga ræðu. Reiddust sumir þing manna því og einn að minsta gekk út, sagðist ekki sitja á þingi, ef landráðaskraf sem þetta yrði leyft. Daginn eftir svaraði L. St. G. Stubbs (óháður þ.m. fyrir Winmpeg) ræðu kom- múnistans. Sagði hann breyt- ingar hafa orðið á skoðunum Lit- tericks, því í byrjun stríðsins í september, hafði hann skrilað Mr. Bracken og Mr. King foi- WINNIPEG, MIÐVIKUDAGINN, 6. MARZ, 1940 NÚMER 23. sætisráðherra Canada og eggiaði stjórnirnar til að bregðast h'ð skjótasta við að taka þátt í stríðinu á móti Hitler. Las Mr. Stubbs bæði bréfin eða skeytin, er prentuð voru í blaði kom- múnista í Winnipeg, The Clar- ion; var blað það bannað í On tario á s. I. hausti, en er ennþa gefið út í Winnipeg. En þegar Stalin vai kominn í leikinn með Hitler breyttist tónninn í kom- múnista-þingmanninum. Þá var krafist að Canada hætti þáct- töku í stríðinu. Mr. Stubbs hélt ennfremui fram, að Litterick fengi skip anir sínar frá Moskva, en Can- ada gæti ráðið ráðum sínum á- leiðbeininga þaðan. * * * Stjórnarráðið í Ottawa kvað hafa farið að hugsa um það lyr ir helgina, að láta Winnipeg gera byggingu, er kostaði um $1,000,000 til að nota hér fyrix’ flugskóla handa brezkum flug- mönnum. Það lítur út fyrir, að King hafi fengið eftirþanka ein- hverja við komuna vestur. * * • Sumner Welles, aðstoðarritar; Bandaríkjanna, sem er að heim- sækja hel?tu stríðsþjóðir Ev- rópu og kynna sér hvort nokki urn grundvöll sé þar að finm. fyrir friði, heimsótti Hitler s. 1. föstudag. Er svo sagt, að fnð arskilmálar Hitlers hafi verið þeir, að hann héldi því sem hann hefði, og Ungverjaland yrði hann auk þess að hafa. Enn- fremur að vígi Breta við Gibral- tar, á Malta og við Singapore, yrðu rifin niður. Hann sagði Þýzkaland aldrei verða sveit inni; samningar þess við Stalin væru öryggi gegn því. * * • Rússar eru að komast nær takmarkinu, að ná borginni Vii- puri (Viborg) af Finnum. íbú- ar hennar hafa flúið þaðan. Og húsin loga upp hvert af öðru í útjaðri borgarinnar. Að Rússai taki borgina bráðlega, er það líklegasta. Mannerheim virkin eru nú að vísu ekki unnin með því. En frá þeirri borg er auð- veldara fyrir Rússa, að ná iðn- aðarborgunum í Suður-Finn - landi. Meö þeim töpuðum, e<* úti um aðdrætti Finna. Þeir verða þá að fara norður í land og geta þar háð stigamensku hem- að, en annað ekki. Með utan að komandi hjálp, væri hægt ef tii vill að sporna við þessu, en sú hjálp yrði að vera fólgin í því at fá tugi þúsunda hermanna og fleiri hundruð flugvéla. Finnar er sagt, að varist geti enn í eirtn eða mesta lagi tvo mánuði af eigin ramleik. Og á sjálfu Kyrj- álanesinu og fyrir norðan La- doga brytja þeir Rússa niður. En í her þeirra er nú hver vopu- fær maður og hermennirnir eru nú þegar farnir að þreytast, af erfiði og vökum, því þeir geta ekki fengið svo mikla hvild, sem nægilegan svefn. * * * Blaðið Daily News í New York hermdi s. 1. laugardag, að Finu- ar í Bandaríkjunum hefðu 9,000 menn, sem þá fýsti að koma til Finnlands til að berjast með lýðveldinu litla á móti Rússiandi. Telja þeir einu leiðina, að senda þá til Canada og þaðan auslur og vona að því verði ekkert til fyrirstöðu. Er svo að sjá, sem eftir svari um þetta sé beðið fra stjórn Canada. >H * * Bretar tóku í gær fimm kola- skip á leiðinni frá Þýzkalandi tn ítalíu. Þeir höfðu stöðvað nokkur áður. Eru ítalir hinir reiðustu út af þessu og telja Breta fremja alþjóða lagabrot með þessu. Bretar eru nú ekki á því. Þeir geta selt ítölum kol- in með sömu kjörum og Þyzka land, eða með því að taka vopn hjá þeim fyrir þau. Er hvað sem til kemur, vilja ftalir ekki selja Bretum vopn. Er haldið að þeir óttist reiði Hitl ers. En ítalía verður nú að far a að ráða það við sig með hverj urn hún er í þessu stríði. Hún hefir að Bretum virðist nógu lengi leikið flátt í því máli. “OFUREFLI” eftir Einar H. Kvaran Þá góðkunnu og gömlu sögu, hefir Leikfélag Sambandssafn- aðar í Winnipeg ákveðið að sýna innan skamms. Það er svaiió við margendurtekinni spurningu til leikfélagsins: “Hvað ætlið þið nú að sýna okkur í vetur?” Það hefir verið venja leikfélagsins að sýna sem mest frumsamda þjóðlega íslenzka leiki, en mjög sjaldan þýdda leiki, og það von- ast til að geta haldið því áfram. Þessar árlegu sjónleikasýningar leikfélagsins eru orðnar að þeirri venju hér að þær eru taldar sjálf sagður þáttur í lífi íslendinga. Það er enginn vafi á því, að það hlakka margir til að sjá “Ofur- efli” á leiksviði. Það hefir þegar kvisast um bæinn, að leikfélagið væri að búa sig undir sýningu þessarar bráð- skemtilegu sögu, og bókavörður íslenzka bókasafnsins segir: “að síðan sé “Ofurefli” altaf á ferð- inni.” Og þeir, sem eiga þá sögu — og þeir eru nú íjöldu margir — endurnýja kunnings- skap við allar þær skemtilegu og fjölbreyttu persónur í sóg- unni, sem þeir hafa máske ekaí séð síðan bókin kom út í Reykja- vík 1908 — og þar kennir nú margra grasa. Mannlífsmyndlr úr Reykjavíkurlífinu, af öllura stéttum og stærðum, eða eins og ólafur margfróði segir: “Alla leið frá Ragnhildi háyfirdómara- dóttir og niður að Imbu vatns- kerlingu”, Grímsa skakkalöpp og Gróu Péturs. Frá “Kongsríki dómkirkju- prestsins inn í aumasta garðs- hornið sem til er í henni Reykja- vík,” segir Imba gamla vatns- kerling við séra Þorvald Gunr. arsaon. Þér verður einnig — lesari góður — boðið inn í stof u til virðulegustu fjölskyldunnar í Reykjavík, Þorgríms Jónsson- ar háyfirdómara og frúar. Og eins og nærri má geta þarf að koma við nokkrum sinnum í húsi Þorbjarnar Ólafssonar stórkaup- manns og dómkirkjusafnaðar- fulltrúa, og hans ungu ráðskonu fröken Sigurlaugar. Nú, — og þar sem Þorbjörn ber alla vel- ferð bæjarins á herðum sér og “hefir vald á fjölda manns, and- lega og líkamlega” — eins og háyfirdómarinn kemst að orði, þó koma þangað vitanlega marg- ir — auk Ólafs margfróða, sem er auðvitað sjálfsagður alstaðar, sem fulltrúi slúðurs og sletti- rekuháttar — það má til dæmis nefna þessa úr safnaðarnefnd- inni: Þórð trésmið, Steingrím járnsmið, Finnur “margrabarna - faðir” og Jón litli kaupmaður. Einnig Ásgrímur Bjarnason siú- dent, uppihald Þorbjarnar ólafs- sonar, vegna skriffinsku skamm- argreinar í blöðin, bænum til heilla og. — Það er auðvitað ákaflega margt, sem mætti benda á, en það á ekki við að gera það hér, því það færðu að sjá á leiksviðinu, þegar Ofur- efli verður sýnt hér í Winnipeg, fyrstu dagana í apríl. Það verður auglýst síðar. Það er bara ómögulegt að slá botninn í þetta riss, án l?ess að minna á lokaþátt sögunnar. Það verður boðað til almenns fundar til að “ræða um trúar og sið- gæðismál safnaðarins”, og það er mælst til þess að þau verði rædd af áhuga og stillingu án persónulegra hnútukasta og of- beldisverki. En það er sterk- lega skorað á alla íslendinga að sækja fundinn. Það er eng- um ofurefli að sjá “Ofurefn” þegar “Ofurefli” verður sýnt af Leikfélagi Sambandssafnaðar 5 Winnipeg. Á. S. ÁSTANDIÐ Á ÞÝZKALANDI Eftir Oswald Garrison Villard Oswald Garrison Villard, höf- undur eftirfarandi greinar, er alþektur blaðamaður í Banda- ríkjunum. Hann hefir ritað mikið í vikublaðið “The Nation”, sem fjallar mikið um stjórnmál og mannfélagsmál, og var víst um tíma einn af ritstjórum þess. Ekki þarf að efast um að álit hans á ástandinu á Þýzkalandi muni vera mjög nálægt sanni. —Þýð. Eg — borgari hlutlauss lands — er nýkominn frá Englandi, eftir að hafa dvalið hálfa fjórðu viku í Þýzkalandi Hitlers. Eg kom við í Hanover, Berlín, Prag, Vín, Munchen, Nuremberg og Frankfurt. Eg er ekki ókunn- ugur á Þýzkalandi, því eg hefi dvalið þar árum saman og jafn- vel gengið á menta skóla í Berlín um stutt skeið á æskuárum mín* um; eg get sagt með sanni, að eg hafi þekt Þýzkaland vel alla mína æfi; og eg hefi ritað tvær bækur um landið; önnur þeirra kom út áður en Hitler komst til valda. Þannig undirbúinn fór eg til Berlín eftir sex vikna dvöl á Englandi, en þangað hafði eg komið rétt fyrir byrjun stríðs- ins. Eg held að eg sé eini ame- ríksi blaðamaðurinn, sem hefir verið bæði á Englandi og Þýzka- landi síðan stríðið hófst, og eini útlendi blaðamaðurinn, sem hef- ir komið til Prag síðan í júlí. Mér þykir vænt um að geta látið í ljós skoðanir mínar á báðum löndunum. Eg verð að segja hreinskilnis- lega, að það Þýzkaland, sem eg hefi svo lengi haft mætur á, er, að því er mér virðist, gersamlega hamingjurúið og lamað land. Eg fann þar ekki nú þann áhuga og vígahug, sem einkendu Þýzka- land í byrjun stríðisins 1914 — en fann aðeins djúpa lönguneftir að þetta stríð tæki fljótt enda. Háttsettir Nazista embættis- menn, einkanlega Karl Hermann Frank, staðgöngumaður land- stjórans yfir tékkneska ríkis- hlutanum, og doktor von Neu- rath, sögðu mér, að þjóðin stæði að baki leiðtoga sínum sem einn maður, og væri fús að deyja fyr- ir hann og land sitt; en af minni eigin reynslu hika eg ekki við að segja, að þetta sé vitleysa. Eg átti erfitt með að finna nokkra menn á Þýzkalandi, utan hersins og embættismannaflokksins sem voru hundrað prósent Nazistar; aðrir höfðu mjög mismunandi skoðanir og margir voru alger- lega á móti Nazistunum. Verkamenn töluðu á móti Hitler og stjórn hans, svo opin- Próf. Harry Lárusson, hljómleikakennari, sem stjórnar söngnum á árssamkomu íslend- inga í Minneapolis 30. marz n. k. skátt, að eg varð forviða og hræddur, þeirra sjálfra vegna. Eg fann einn eða tvo, sem vildu berjast á móti Hitler í þessu stríði. Sumir sögðu að stjórnar- flokkurinn þýzki hefði stofnað til þessa stríðs til þess að efla sjálfan sig. Einn maður í ein- kennisbúningi spurði mig að, hver væri afstaða Ameríku- manna í þessu stríði, og þegar eg sagði: “95 af 100 eru á móti stjórn ykkar”, svaraði hann: “Eg dáist að þeim fyrir það að þeir eru svo ákveðnir.” Það er enginn vafi á því að Þjóðverjar eru föðurlandsvinir og að þeir eru fúsir að berjast til að verja land sitt, og það er enginn vafi á því, að margir hinna yngri manna bæði í land- og sjóhernum eru ákafir í stríð og trúa áróðrinum gegn Bretum, en allur fjöldinn af fólkinu virð- ist vera þreyttur og niðurdreg- inn og margir eru alveg von- lausir. Eg er viss um, að aldrei hefir nokkur þjóð lagt út í stríð nauðugri, og að aldrei hefir stríð verið byrjað með jafn litlum á- huga meðal eldra fólksins og alls fjöldans af verkamönnum. Fólk á Þýzkalandi er, að því er virðist, svona niðurdregið af því að það skortir alt frelsi; af því að þeir eldri muna eftir hörmungum síðasta stríðs og stynja, þegar þeir sjá matarút- býtingar-seðlana; af því að þeir þrá frið og næði og eru orðnir sárþreyttir af að lifa frá einni hættu, einu uppnámi og einu stríði til annars. Fólkið er ó- ánægt af því það veit ekki við hverju það má búast. Einn daginn er því sagt, að það verði að senda syni sína til Spánar, til að berjast á móti BoLsévikum þar, og næsta dag er því sagt, að þetta afhrak jarðarinnar, Stalin, sé frelsari þess; Hitler sagði því, að Pólverjar væru af- bragðs þjóð og að samkomulagið milli þeirra og Þjóðverja væri hið ákjósanlegasta, en á næsta augnabliki er því sagt að senda syni sína til að berjast á móti þessum úrþvættum og morð- ingjum, þessum hræðilegu Pól- verjum. Fólkið hefir aldrei haft frið eða lausn frá hræðslunni við stríð síðan Nazistarnir komust til valda. Flestir þeir, sem eg mætti voru algerlega mótfallnir því, að Gyðingar væru ræntir og látnir rotna niður lifandi eða flæmdir úr landi burt. Það er satt, að þeir mótmæla ekki þessum að- förum, qins og þeir ættu að gera, en hvernig geta þeir það, þegar stjórnin hefir valdið til að setja þá í fangelsi eða einangrunar- stöðvar, án dóms og laga og jafn- vel án þess að færa fram nokkr- ar ákærur á móti þeim, og halda þeim þar eins lengi og henni sýn- ist? “Við erum bara þrælar,” sögðu fleiri en einn við mig. Og samt eru það þessir “þrælar”, sem eiga þjóna drotnunarstefnu Hitlers og hinna nánustu fylgj- enda hans, til að sigra England, Frh. á 5. bls.

x

Heimskringla

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimskringla
https://timarit.is/publication/129

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.