Heimskringla - 13.03.1940, Page 7
WINNIPEG, 13. MARZ, 1940
HEIMSKRINGLA
7. SÍÐA
EINAR BENEDIKTSSON
Framh. frá 3. bls.
Þorbjörg Sveinsdóttir hafði alt
af ráð til að hýsa marga gesti,
sem að garði báru, þó að vanaa-
menn hennar væru þar lang-
dvölum. Á skólaárum sínum var
Einar Benediktsson mikið á ferð-
um með föður sínum um allar
bygðir í Þingeyjarsýslum og á
leið til og frá Alþingi. Hestur-
inn varð vinur hans og félagi.
Endurminningar um náttúrufeg
urð Þingeyjarsýslu og ást skálds-
ins á íslenzkum hestum kom síð-
ar ógleymanlega fram í ljóðum
hans.
VII.
Einar Benediktsson hafði lokið
lögfræðisprófi þegar hann var
28 ára gamall. Hann var þá um
stund aðstoðarmaður hjá föður
sínum við sýslumannsstörfin í
Þingeyjarsýslu, en samhliða því
hafði hann byrjað að sinna
skáldskap og ritstörfum. Á
þessum árum var hann með ann-
an fótinn í Reykjavík, kyntist
erlendum mönnum og lagði stund
á að fá viðskifta- og kynningar-
sambönd erlendis. Hann lifði
um þessar mundir frjálsu og ó-
háðu lífi og naut þess að vera
ungur maður með óákveðnar en
glæsilegar framtíðarvonir. Að
lokum ákvað hann að setjast að
í höfuðstaðnum sem málfærslu-
maður við yfirréttinn. Þaðan
voru dyr í margar áttir. Blaða-
menska, þingmenska, stjórn-
málaforusta og síðast en ekki
sízt afburðir í skáldskap og bók-
mentum. Um þessar mundir
KAUPIÐ HEIMSKRINGLU—
útbreiddasta og f jölbreyttasta
íslenzka vikublaðið
kom sér vel fyrir Einar Bene-
diktsson að mega standa á kross-
götum. Hann hafði marghliða
gáfur og margháttaðar hneigð-
ir. Og sjálfur var hann tæplega
viss um hvert ætti að verða
meginlífsstarf hans.
Einar Benediktsson var, þrátt
fyrir ýmsa erfiðleika æskuár-
anna, mikið eftirlætisbarn ætt-
ar sinnar og þjóðar. Hann
þótti mikið glæsimenni fallega
vaxinn, fríður sýnum og svip-
mikill. Hann hafði að sumu
leyti erft mælsku föður síns en
hinsvegar orðkyngi og raddfeg-
urð móður sinnar. Hann var
fjölgáfaður og fjölmentur. Sk'ap-
gerð hans var undarlega sam-
sett. Þar var fólginn mikill
kuldi frá móðurfrændum hans,
og mikið af suðrænum hita, sem
minti á þau Benedikt Sveinsson
og Þorbjörgu systur hans. Þeg-
ar þar við bættist, að þessi ungi
og gerfilegi maður virtist vita
alt og talaði jafnan eins og sá,
sem vald hafði, þá var sízt að
furða, þó að honum væri veitt
mikil eftirtekt hvar sem hann
fór. Leiðtogar Þingeyinga voru
hrifnir af sýslumannssyninum á
Héðinshöfða. Katrín móðir hans
og Þorbjörg frænka hans báru
hann á höndum sér með kven-
legri aðdáun og umhyggju. í
skóla og í hópi námsmanna í
Kaupmannahöfn fór saman hjá
jafnöldrunum mikil aðdáun og
nokkur afbrýðisemi við þennan
félaga og keppinaut, sem virtist
verða ríki erfinginn meðal ungra
fslendinga.
En í hópi þeirrar æsku, sem
þá var að koma fram á sjónar-
sviðið, átti Einar Benediktsson
aðeins einn raunverulegan
keppninaut, og sá maður var
Hannes Hafstein. Hann var
þrem árum eldri en Einar Bene-1 sinni stétt. En yfir þessari
diktsson. Hann var amtmanns- fyrstu útgáfu af ljóðum Einars
son, átti ágæta móður, var lög'
fræðingur, skáld og hið mesta
glæsimenni. Þessir tveir menn
stóðu að mörgu leyti líkt að vígi
um þessar mundir. Þeir báru
af samtíðarmönnum sínum, á
alveg óvenjulegan hátt. Og fyr-
ir þeim báðum átti að liggja að
verða miklir frægðarmenn
sögu þjóðar sinnar, þó að leiðir
þeirra lægju sjaldan saman.
INNKOLLUNARMENN HEIMSKRINGLU
I CANADA:
Amaranth..............................j_ g Halldórsson
Antler, Sask...........................„K. j_ Abrahamson
"rnes.........................-.....Sumarliði J. Kárdal
Arþorg............................... q, O. Einarsson
Baldur.............................. Sigtr. Sigvaldason
Beckville..............................Björn Þórðarson
Belmont...................................G. J. Oleson
Bredenbury.............................H. 0. Loptsson
Br°wn .... .........................Thorst. J. Gíslason
Churchbridge.............—...........H. A. Hinriksson
Cypress River...........................P4H Anderson
^a^oe--.................................S. S. Anderson
Ebor Station, Man...................K. J. Abrahamson
^tros......-........................J. H. Goodmundson
Eriksdale .............................ólafur Hallsson
Fishing Lake, Sask.....................Rósm. Árnason
Foam Lake..............................H. G. Sigurðsson
~[imlj....................*.............K. Kjernested
Geysir...........................................Tím. Böðvarsson
Glenboro.................................G. J. Oleson
Hayland..................................gig g Helgason
f?ecla..............................Jóhann K. Johnson
B?aU8a.................................Gestur S. Vídal
Husavík................................John Kernested
iunis/ail.......................................ófeigur Sigurðsson
Kandahar...............................S. S. Anderson
Keewatin..............................Sigm. Björnsson
Langruth..................;..............B Eyjólfsson
r*68110...............................Th. Guðmundsson
Lundar........................gig Jónsson, D. J. Líndal
Markerville........................ ófeigur Sigurðsson
™ozart;..................................S. S. Anderson
Oak Pomt.............................Mrs. L. S. Taylor
/tto.............................................Björn Hördal
Vney-..................................... S. Anderson
d^. Pe?.r.....................................ófeigur Sigurðsson
geyklavík........................................Árni Pálsson
2 nftr 1°“,,.....................................Bl°rn Hjörleifsson
oelkirk, Man...........Mrs. David Johnson, 216 Queen St.
Sinclair, Man.........................K. J. Abrahamson
Steep Rock.......................................Pred Snædal
btony Hill.......................................Björn Hördal
Tantallon.......................................Guðm. ólafseon
/|lornhi11........................Thorst. J. Gíslason
Á oir............................................-Áug. Einarsson
Vancouver............................Mrs. Anna Harvey
Wmmpegosis..................... .Finnbogi Hjálmarsson
Winnipeg Beach.........................John Kernested
Wynyard................................S. S. Anderson
í BANDARÍKJUNUM:
^antry................................E. J. Breiðfjörð
Bellmgham, Wash..................Mrs. John W. Johnson
Blaine. Wash...................Séra Halldór E. Johnson
Cavalier and Walsh Co.................Th. Thorfinnsson
Brafton...............................Mrs. E. Eastman
Ivanhoe............................Miss C. V. Dalmann
Los Angeles, Calif....
P11^011............................................S. Goodman
Minneota...........................Miss C. V. Dalmann
Mountain..............................Th. Thorfinnsson
National City, Calif.....John S. Laxdal, 736 E 24th St.
Point Roberts...................................Ingvar Goodman
Seattle, Wash.........J. j. Middal, 6723—21st Ave. N. W
Upham...................................E. J. Breiðfjörð
Tfee Vlking Press Liiited
Winnipeg; Manitoba
VIII.
Að lokum afréð Einar Bene-
diktsson að fylgja föður sínum
inn í stjórnmálabaráttuna. Þeg-
ar hann var 33 ára, byrjar hann
jafnhliða málfærslustörfum og
fasteignakaupum, að gefa út
blaðið Dagskrá, fyrst sem viku-
blað og síðar sem dagblað. Einar
Benediktsson er þess vegna
fyrsti dagblaðsritstjóri á ís-
landi.
Dagskrá kom ekki út nema í
nokkur missiri. En hún sýnir
stefnu og hæfileika ritstjórans.
f Dagskrá boðaði hann að veru-
legu leyti nýja landsmálatrú. í
sjálfu stjórnarbótamálinu bygg-
ir þann á þeim grundvelli, sem
faðir hans hafði lagt. En hon-
um er ekki nóg hin þjóðréttar-
lega viðurkenning í frelsi fs-
lendinga. Hann vill ummynda
fsland og íslenzku þjóðina. Hann
vill flytja land sitt ínn í hringiðu
nútíma tækninnar. Hann vill
nota fiskimiðin, hina frjóu moid
og vatnsorkuna til að gefa börn-
um landsins brauð og fullkomn-
ari lífsskilyrði. Samhliða
stjórnmálagreinunum birti rit-
stjórinn í Dagskrá nokkur af
kvæðum sínum, frumsamdar
sögur, bókmentaþætti um sum
helztu samtíðarskáldin, þýddi á-
gæta sögu eftir Björnson og tók
á lofti spjót og örvar frá öðrum
ritstjórum og sendi skeytin með
óvenjulegum þunga beint til and-
stæðinganna.
Áður en langt leið á ritstjórn-
arferil Einars Benediktssonar
mun honum hafa orðið ljóst, að
braut blaðamenskunnar yrði
honum seinfær að marki hug-
sjónanna. Blaðið var langt á
undan sínum tíma, eins og rit-
stjórinn var langt á undan sín-
um samtíðarmönnum. Benedikt
Sveinsson hafði jafnvel átt erf-
itt með að vera flokksforingi af
því að samtíðarmennirnir gátu
ekki fylgt honum. Einar sonur
hans átti að þessu leyti enn
meiri erfiðleika við að etja. —
Hann var marglyndari en faðir
hans. Hann bjó yfir fleiri og
stærri hugsjónum. Hann vildi
verða pólitsíkur leiðtogi þjóðar
sinnar. Forlögin synjuðu hon-
um um þennan metnað. En þau
veittu honum annan og meiri
heiður. Þau gerðu hann að spá-
manni samtíðar sinnar. Honum
var aldrei ætlað að flytja boð-
skap sinn í skammlífum blaða-
greinum, heldur í ódauðlegum
ljóðum.
Benediktssonar var, að því er
snerti ytra form, nokkur tötra-
blær. Það var eins og höfund-
urinn væri enn nokkuð hikandi
um að fullyrða, að hann væri bú-
inn að ná þeim tökum á skála-
mentinni, sem hugur hans
stefndi að.
En þetta átti aðeins við hið
ytra form. Öllum virkilegum
ljóðavinum varð ljóst, er þeir
kyntu sér Sögur og kvæði, að her
var komið fram á sjónarsviðið
skáld, sem seint myndi fyrnast
í íslenzkum bókmentum. í heild
sinni báru Ijóðin vott um, aö
skáldið var þá þegar orðinn full-
þroskaður maður í list sinni. Að
vísu eru þar kvæði frá yngri ár-
um með nokkrum viðvaningsblæ.
Hin eru miklu fleiri, sem eru
svo fullkomin, að skáldið komst
aldrei hærra í list sinni. Víð-
sýnir lesendur fundu, að hér var
sjálfstætt skáld með miklum
skapandi þrótti. Einar Bene-
diktsson fylgdi engum skóla eða
skáldastefnu. Hann tók engan
mann til fyrirmyndar, hvorki er-
lendan eða samlendan. Hann
orti um sínar hugsjónir og sín-
ar tilfinningar á alveg nýjan og
frumlegan hátt. Ljóð hans voru
söngvar hins sterka, framgjarna
íslendings, sem unni landi sínu,
þjóðinni og tungunni. Hann
hafði ótal áhugamál og yrkis-
eíni. Og með nýjum hugsjónum
kom hið nýja form eðlilega og
þjáningarlaust.
Fyrsta kvæðið í ljóðasafninu
eru íslandsljóð, í þrem köflum.
Þetta eina kvæði er raunveru-
lega dagskrá fyrir alt bókmenta-
starf hans. Fyrsti þátturinn er
hamröm hvatning til þjóðariun-
ar. Nú skildi ekki sofið lengur,
heldur hafin stórfeld barátta og
sannað, að landið væri auðugt og
að þjóðin gæti verið rík og mátt-
ug við auðlindir landsins. —
Skáldið segir:
Þú fólk með eymd í arf!
Snautt og þyrst við gnóttir lífs-
ins linda,
lítil þjóð, sem geldur stórra
synda,
reistu í verki
viljans merki —
vilji er alt, sem þarf.
Trúðu á sjálfs þíns hönd, en
undur eigi.
Upp með plóginn. Hér er þúfa í
vegi.
Bókadraumnum,
böguglaumnum
breyt í vöku og starf.
Dr. M. B. Halldorson
401 Boyd Bldg.
Skriístofusíml: 23 674
Stundar sérstaklega lungnasjúk-
dóma.
Er að flnni á skrlfsrtofu kl. 10—1:
f. h. og 2—6 e. h.
Heimlli: 46 Alloway Aye.
Talsimi: 33 15S
Thorvaldson & Eg’g'ertson
Lögíræðlng-ar
705 Confederation Life Bldg.
Talsíml 97 024
Orric* Proni
87 293
Res. Proni
72 409
Dr. L. A. Sigurdson
109 MEDIOAL ART8 BUILDINO
Orrici Hoohs :
12 - 1
4 r M. - 6 F.M
»WD BY APPOINTMENT
M. HJALTASON, M.D.
A.LMENNA.R LÆKNINOAR
Sérgrein: Taugasjúkdómar
Lætur ÚU meðöl i viðlögum
ViTStalstímar kl. 2_4 «. j,
7—8 aB kveldlnu
Simi 80 867 666 victor 0t
Dr. S. J. Johanneston
806 BROADWAV
Talaiml 80 877
ViðtalBtími kl. 8—8 e. h.
A. S. BARDAL
selur líkkistur og annast um útfar-
Allur útbúnaður sá besU _
Ermfremur selur hann allskonar
minnlsvarða og Jegsteina.
843 SHERBROOKE 8T.
Phone: S6 S07 WINNIPEO
J. J. Swanson & Co. Ltd.
REALTORS
Rental, Insurance and Financial
Agents
Sími: 26 821
308 AVENUE BLDG.—Winnipeg
Florai sh°p
"06 Notre Dame Ave. Phone 04 Bft.
Freah Cut Flowers Daliy
Plants in Season
We specialize in Wedding &
Concert Bouquets & Ftmeral
Designa
Iceiandic spoken
Jacob F. Bjamason
—TRANSFER—
Baggage and Furniture Moving
691 SHERBURN ST.
Phone 35 909
Annast allskonar flutnlnga fram
og aftur um bæinn.
margaret dalman
teacher of piano
«64 BANNINO ST.
Phone: 26 420
DR. A. V. JOHNSON
DENTIST
506 Somerset Bldg.
Office 88 124
Res. 27 702
410 Medical Arts Bldg.
Dr. K. J. AUSTMANN
Stundar eingöngu
Augna, eyma, nefs og kverka
sjúkdóma
10 til 12 f.h.—3 til 5 e.h.
Skrifstofusími 80 887
Heimasími 48 551
IX.
Einar Benediktsson hafði frá'
því á skólaárum ætlað sér að
verða skáld og trúað á að svo
myndi verða. Þó hafði hann far-
ið hægt af stað í þeim efnum. En
1897, mitt í stjórnarönnum
við Dagskrá, gefur hann út bók,
er hann nefndi Sögur og kvæði,
með mjög yfirlætislausum eftir-
mála. Þessari bók var ekki veitt
mjög mikil eftirtekt. Sumir and-
stæðingar skáldsins við önnur
blöð, fóru um hana mjög hörð-
um höndum. Sögurnar þóttu, og
voru, ekki mikils virði. Margir
töldu, að ljóð þessa unga skálds
væru þung og torskilin. Að öllu
samtöldu var bókinni alls ekki
veitt sú viðurkenning, sem hún
átti skilið. Skáldið mátti, að
nokkru leyti sjálfu sér um
kenna. Síðari .útgáfur Ijóða hans
voru frábærlega vandaðar að
formi og öllum ytra frágangi.
Auk þess valdi skáldið sér þá
að forleggjara, meðan unt var,
Sigurð Kristjánsson, sem var
einhver mesti prýðismaður í
Þú, sonur kappakyns,
lít ei svo með löngun yfir sæinn,
lút ei svo við gamla, fallna bæ-
inn,
byggðu nýjan,
bjartan, hlýjan,
brjóttu tóptir hins.
Líttu út og lát þér segjast, góð-
ur,
líttu út, en gleym ei vorri móður,
Níð ei landið,
brjót ei bandið,
Iboðorð hjarta þíns.
Þú býr við lagarband —
bjargarlaus við frægu fiskisvið-
in,
fangasmár, þótt komist verði á
miðin,
en gefur eigi
á góðum degi,
gjálpi sær við land.
Vissirðu hvað Frakkinn fékk til
hlutar?
Fleytan er of smá, sá grái er
utan.
Hve skal lengi
dorga, drengir,
dáðlaust upp’ við sand?
Og horfðu heim á bú.
Upp til heiða endalausar beitir,
en til bygða níddar, eyddar sveít-
ir.
Sinumýrar
rotnar, rýrar
reyta svörul hjú.
Og svo túnið. — Sérðu í blásnu
barði,
bóndi sæll, þar mótar fyrir
garði?
Svona bjó ’ann,
hingað hjó ’ann,
hann, en ekki þú.
Sjá, yfir lög og láð
autt og vanrækt horfir himin-
sólin.
Hér er víst, þótt löng sé nótt um
jólin,
fleira að vinna
en vefa og spinna
vel ef að er gáð.
Sofið er til fárs og fremstu
nauða.
Flý þó ei. Þú svafst þig ei til
dauða.
Þeim, sem vilja
vakna og skilja,
vaxa þúsund ráð.
En, — gáfum gædda þjóð!
Gleymdu ei hver svefni þeim þig
svæfði
sérhvert lífsmark íslands deyddi
og kæfði,
hungursár þín,
tjón þitt, tár þín
tíndi í maurasjóð.
Skildu rétt hvar skórinn að þér
kreppir.
Skildu hver í bönd þig hneppti
og hneppir.
Engu að gleyma
í Höfn né heima. —
Heil, mín ættarslóð.
Enginn veit að hve miklu leyti
þessi herhvöt, sem birtist rétt
fyrir aldamótin, hefir vakið ís-
lendinga. En svo mikið er víst,
að fullyrða, má að á þeim fjór-
um áratugum, sem liðnir eru
síðan kvæðið var ort, hefir ís-
lenzka þjóðin endurheimt frelsi
sitt að miklu leyti úr höndum
Dana, bygt hafnir, eignast skipa-
flota, jafnvel gert sjálfan Frakk-
ann útlægan af miðunum. Túnin
hafa verið sléttuð og girt. Bæir,
þorp og höfuðborg hafa risið
upp úr auðnum fyrri alda, eins
og Aladinslampi hafi snert þetta
gamla land, sem virtist hafa
THL WATCH SHOP
Thorlakson Baldwin
Diamonds and Wedding
Rlngs
Agents for Bulova Watches
Marriage Licenses Issued
699 Sargent Ave.
sofið í margar aldir. Jafnvel
sinumýrar, rotnar, rýrar, eins og
þær, sem skáldið hafði þekt á
Héðinshöfða, voru ræstar fram
eða græddar með frjómagni
jöklanna. Þjóðin hefir meira að
segja tekið til stórra muna í
sína þjónustu orku fossanna,
sem skáldið minnist ekki á í
þessu volduga æskukvæði sínu.
Það verður aldrei greint til
fulls hver áhrif slíkt kvæði get-
ur haft. Eg hygg, að þjóðin hafi
í sjálfu sér borið í brjósti hug-
sjónir skáldsins. Frelsisbarátta
hennar frá því um 1830 hafði að
þessu leyti verið samfeld sókn.
En skáldið verður Aron þjóðar-
innar. Á vörum skáldsins verða
bundnar hugsanir samtíðar-
manna að ævarandi listaverkum.
Hvatningin í íslandsljóðum Ein-
ars Benediktssonar lifir eilíf-
lega, löngu eftir að margar kyn-
slóðir eru raunverulega búnar
að gera draumsjónina að veru-
leika.
Framh.
LIF OG EITUR
\ ---------
Mannlífið heilagur hámáttur
skóp
Svo hver hefir rétt til að myrða
Getum við hlustað á angistar ó
Án þess hin veika að hirða?
Þá heimurinn baðar sín blóðug
mein
f brimsöltum glóðheitum táruir
En hver fremur verknaðinn? Á
girndin ein!
Sem iðandi maðkur í sárum.
Yndó