Heimskringla


Heimskringla - 05.06.1940, Qupperneq 5

Heimskringla - 05.06.1940, Qupperneq 5
WINNIPEG, 5. JÚNÍ 1940 HEIMSKRINGLA 5. SÍÐA bar hornin í gröfina, íþá lagðist hann í rúmið um tíma á eftir. Svo tók hann aftur að safna hornum að nýju um allar nálæg- ar sveitir. Hann bar þau út í haga til beitar og jarmaði sem kind þegar hann var að færa þau að og frá húsi. Salómon var fremur lítill vexti, skikkanleg- ur og allvel greindur, meinlaus og óáleitinn við alla. Sigurður sonur hans giftist Guðrúnu *Hákonardóttur frá Há- teigi á Skipaskaga. Þau kom- ust í mál veturinn 1859 fyrir að hafa drepið barn sitt úr hor, en lítið varð úr því máli. Sigurður bjó þá í vestri hreppnum á Mýr- um. Halldór Pétursson —Lesb. Mbl. EINAR BENEDIKTSSON Eftir Jónas Jónsson Framh XLI. Þegar Einar Benediktsson orti um málmloga yfir fjársjóð- um fyrri alda, talaði hann lík- ingamál til að vekja þjóðina til skilnings á viðfangsefnum sam- tíðar sinnar. Fyrir mann, sem skildi undramátt nútíma tækn- innar, voru hin sönnu verðmæti ekki geymd í fornum kappa- haugum, heldur í lífrænum gæð- um landsins. Iðar djúpt í mold og móðu magn og líf, sem hefja þarf. Þegar skáldið kemur að Detti- fossi, mestu orkulind ættjarðar- innar, sézt, hvað hann ítelyr hinn sanna haugaeld: Hér finst, hér skilst, hve fslands auðn er stór, hver ómur bris, er rís þess fljótasjór! Þig konung vorra stoltu, sterku fossa, eg stilla heyri forsöng í þeim kór. Öll gljúfrahofin hljóma af gulli snauð um héruð landsins undir sólar- blossa. Einar Benediktsson vill leggja þennan mikla orkugjafa í fjötur vélatækninnar og láta hann vinna fyrir þjóðina: Þú gætir unnið dauðans böli bót, stráð blómaskrauti yfir rústir grjótsins, steypt mynd þess aftur upp í lífsins mót með afli því, frá landsins hjarta- rót, sem kviksett er í klettalegstað fljótsins. Skáldið sér fleiri sýnir við Dettifoss. Hér var sú orkulind, sem hann dáði mest, og eyddi mikilli vinnu í mörg ár til að beygja undir vald mannanna: Hve mætti bæta lands og lýða kjör, að leggja á bogastreng þinn kraftsins ör, að nota máttinn rétt í hrapsins hæðum, svo hafin yrði í veldi kraftsins skör. Og frjómagn lofts má draga að blómi og björk, já, búning hitans sníða úr jökuls klæðum. Hér mætti leiða líf úr dauðans örk og ljósið tendra í húmsins eyði- mörk við hjartaslög þíns afls í segul- æðum. XLII. Meðan Einar Benediktsson var rtistjóri Dagskrár, átti hann í allmiklum blaðadeilum við ookkra af helztu leiðtogum kaupfélaganna í Þingeyjarsýslu, bar á meðal Jón Jónsson í Múla °g Pétur Jónsson á Gautlöndum. Hann var mjög andstæður sam- vinnustefnunni. Gulltrú hans beindi honum á aðrar brautir um hagfræðileg málefni. f kvæði um Egil Skallagrímsson kemur glögglega fram lífsskoðun skáldsins um undirstöðuatriði fjárhyggjunnar: í gullbjarma sá hans glögga hyggja, að gifta hins stærra er frelsi hins smærra, að þúsunda líf þarf í eins manns auð, eins og aldir þarf gimstein að byggja. Skyldleikinn með þessum tveim víkingum og höfuðskáld- um kom hér enn glögglega fram. f augum Einars Benediktssonar varð fjármagnið og vélatæknin að hafa fullkomið frelsi. Hinir sterku athafnamenn stýrðu fjár- magninu og stóriðjunni. Þeir sköpuðu nýjan auð, og fyrir þeirra tilverknað dreifðist fjár- magnið síðan til iðjuhersins, og bætti þannig lífskjör þegnanna í landinu. f ritgerðum Einars Benedkitssonar má sjá, að hann Frh. á 7 bls. FJÆR OG NÆR Heimilisiðnaðarfélagið heldur næsta fund sinn á miðvikudags- kvöldið 12. júní, að heimili Mrs. F. W. Edinger, 641 Sherburn St. Vegna þess að þetta verður síð- asti fundur fyrir sumarfríið, er æskilegt að sem flestir meðlimir sæki fundinn. * * * * Kirkjuþing hins Sameinaða Kirkjufélags íslendinga í Vesturheimi verður haldið dagana 28. júní til 1. júlí n. k. í Wynyard, Sask., sam- kvæmt fundarsamþykt stjórnar- nefndar kirkj ufélagsins, og eru söfnuðir sem eru í kirkjufélag- inu kvaddir til að senda fulltrúa á þingið, einn fyrir hverja fimtíu safnaðarfélaga eða brot af þeirri tölu. Einnig heldur Samband íslenzkra frjálstrúar kvenfélaga sitt þing á sama tíma og sama stað. Auk þess mæta einnig á þinginu fulltrúar fyrir hönd ung- mennafélaga og sunnudaga- skóla. Þingið verður nánar aug- lýst síðar. * # * Stjórnarnefnd Sumarheimilis- ins á Hnausum biður þess getið, að fyrstu vikuna í júlí n. k. verð- ur byrjað að starfrækja heimil- ið. Þeir, sem hafa í hyggju að færa sér það í nyt eru hér með beðnir að snúa sér sem fyrst til nefndarinnar, fyrir 20. júní. Ennfremur æskir nefndin þess ef svo stæði á, að einhver ís- lenzk hjúkrunarkona eða kenn- ari hefði tíma til að hjálpa til við heimilið, þó ekki væri nema í nokkra daga, að nefndin fengi þá að vita um það sem fyrst. í nefndinni eru undirrituð: Mrs. P. S. Pálsson, 796 Banning St., Ph. 89 407 Mrs. B. E. Johnson, 1016 Dominion St., Ph. '38 515 Mrs. E. J. Melan, Riverton, Man. Mrs. S. E. Björnsson, Árborg, Man. Rev. P. M. Pétursson, 640 Agnes St., Ph. 24163. * * * Til leiðbeiningar þeim, sem þurfa að leita sér upplýsinga um eitthvað í sambandi við hátíða- hald íslendingadagsins að Gimli næsta sumar, skal hér sett niður nöfn allra nefndarmanna, og getur fólk snúið sér til einhvers þeirra. Sveinn Pálmason, forseti, Win- nipeg; Steindór Jakobsson, vara- forseti og formaður prógrams- nefndar, Wpg; Davíð Bjömsson, ritari, Winnipeg; Jóh. Sigurðs- son, vara-ritari, Winnipeg; Joch. Ásgeirsson, féhirðir og formað- ur garðs- og flutningsnefndar, Winnipeg; Geir Thorgeirsson, vara-féhirðir, Winnipeg: E. A. fsfeld, formaður íþróttanefndar, Winnipeg; séra P. M. Pétursson, Winnipeg; Dr. L. A. Sigurðsson, formaður auglýsinganefndar, Winnipeg; Th. S. Thorsteinsson, Selkirk; Th. Thórðarson, eigna- vörður, Gimli; og Hannes Kristjánsson, Gimli. * * * fslendingar! Þér sem eruð bókamenn og bókavinir! Munið eftir því, að þér aukið þægindi yðar, og prýðið alt í kring um yður, með því, að láta binda og gylla bækur yðar. Þá þurfið þér ekki annað, en að renna augunum yfir kjöl- inn á bókunum, til þess að finna bókina, sem þér þurfið á að halda. Sendið því bækur yðar, sem fyrst, í band eða viðgerð, til Davíðs Björnssonar að “Heimskringlu”. — Stafirnir þryktir í gull eða silfur á kjöl- inn, eftir því sem óskað er. — Miklu efni úr að velja í mörgum litum. Verkið vel af hendi leyst. STÁLLUNGAÐ Á LANDS- SPÍTALANUM TILBÚIÐ TIL NOTKUNAR Stállungað, sem Nuffield lá- varður gaf hingað til lands og sagt hefir verið frá áður hér í blaðinu, er nú að verða tilbúið til notkunar. Ófeigur ófeigsson læknir sýndi blaðamönnum stállúngað í gær á Landspítalanum. Ófeigur skýrði frá því, að er enski próf. R. R. Macintosh kom hingað í sumar og dvaldi hér einn dag með “Arandorra Star”, hafi hann komið í heimsókn á Land- spítalann. ófeigur læknir sýndi honum spítalann og bæinn. Prfóessor Masintosh er kenn- ari í svæfingum og deyfingum við háskólann í Oxford. Hafði hann orð á því við Ófeig lækni, að það, sem sér virtist einna helst ábótavant við Landsspítal- ann væri, að þar vantaði sér- fróðan lækni í deyfingum og svæfingum. Bauðst prófesorinn til að bjóða ungum, efnilegum íslenzk- um lækni til Oxford til þess að kynna sér þessi vísindi endur- gjaldslaust með öllu. Þá bauð hann ófeigi að gjöf stállunga það, sem nú er komið hingað til lands, en það er próf. Macintosh sem sér um úthlutun á þessum stállungum, sem Nuf- field lávarður hefir gefið sjúkra- húsum víðsvegar í Bretaveldi. Prófessorinn gat þess, að ekki hefðu stállungun verið gefin til annara landa, en sem tilheyrðu brezka heimsveldinu, en þar sem ófeigur læknir hefði stundað framhaldsnám í Bandaríkjun- um og í Canda og þar að auki gæti hugsast að enskir sjómenn hefðu gagn af þessu áhaldi ‘hér, fyndist það réttlætanlegt, að hingað væri gefið slíkt áhald. Ófeigur lækni stakk svo upp á því, að stállungað yrði eign Landspítalans. Stállungað er kassi, sem rúmi er rent inn í. Aðeins höfuð sjúkl- ingsnis er út úr kassanum. — Sýndi ein hjúkrunarkona sjúkra hússins blaðamönnum hvernig sjúklingar eru lagðir í þenna kassa. Kassinn er loftþéttur, en áhald fylgir honum til að dæla inn 1 hann lofti, miklu eða litlu, eftir þörfum. Það hefir Verið almenn skoð- un að stállungu séu eingöngu notuð við mænuveikissjúklinga. En Ófeigur læknir skýrði frá því, að stállunað mætti nota við allskonar lömunarsjúkdóma í andfærum og hjarta. T. d. gæti verið heppilegt að nota það við fólk, sem hefði fallið í sjó og gera þyrfti lífgunartilraunir á. Einnig fólk, sem hætti að anda vegna svæfingar, atsmasjúkl- inga, æðakölkun, o. fl. o. fl. Yfir- leitt taldi Ófeigur læknir þetta hið mesta þarfa áhald, sem gæti komið hér að miklum notum. —Mbl. 7. maí. Morgenthau fjármálaráðherra Bandaríkjanna lýsti því yfir ný- lega, að gullforði Bandaríkjanna sem er 18,600 miljón dollarar, myndi verða notaður til aðstoð- ar við að byggja upp heilbrigð alþjóða viðskifti eftir stríðið. ISLANDS-FRÉTTIR Launakjör skipverja á milli- Iandaskipunum áður en verkfallið hófst Launakjör á íslenzku milli- landaskipi, með núverandi stríðshættuþóknun, áður en verkfall byrjar til að knýja fram hækkun: Kr. á dag 1. Skipstjóri ..........83.00 2. 1. stýrimaður........59.00 3. 2. styrimaður........41.00 4. 3. stýrimaður........31.00 5. Loftskeytamaður .....39.00 6. 1. vélstjóri ........72.00 7. 2. vélstjóri.........56.00 8. 3. vélstjóri ........41.00 9. Bryti ...............56.00 10. Háseti ..............27.00 11. Léttadrengur ........21.00 12. Kyndari .............32.00 13. Matsveinn ...........45.00 14. Batsmaður ...........35.00 —Tíminn, 30. apríl. * * * 480 atvinnulausir í Reykjavík Við hina lögboðnu atvinnu- leysisskráningu, sem staðið hef- ir yfir undanfarna daga og lauk í gær, skráðu sig 480 manns. Mikið er af iðnaðarmönnum meðal atvinnuleysingjanna, — múrurum og trésmiðum. 27 konur voru skráðar at- vinnulausar og er það meira en nokkru sinni áður. Á sama tíma í fyrra voru skráðir 458 atvinnulausir, 363 árið 1938, 309 1937, en 746 1936. —Mbl. 7. maí. ♦ >1« * 13 hjúkrunarkonur nýútskrifaðar Þann 30. apríl s. 1. útskrifuð- ust úr Hj úkrunarkvennaskólan- um 13 eftirtaldar fullnuma hj úkrunarkonur: Ágúst Jónasdóttir, Stardal, Mosfellssveit; Arndís Einars- dóttir, Hringsdal, Arnarfirði; Betsý Petersen, Reykjavík; Gerður Guðmundsdóttir, Litla- Skarði, Stafholtstungum; Guð- rún Árnadóttir, Stórahrauni, Stokkseyrarhr.; Ingunn H. Sig- urjónsdóttir, Akureyri; Katrín Pálsdóttir, Heiði, Mýrdal; Kat- rín H. Tómasdóttir, Reykjavík; Oddný Pétursdóttir, Eydölum; óla S. Þorleifsdóttir, Hofi, Norð- firði; Sigríður Jónsdóttir, Skeggjastöðum, Fellnahreppi; Sólveig Pálsdóttir, Ásólfsstöð- um. Námstími er 3 ár og ljúka hjúkrunarnemarnir prófi, bæði í bóklegum fræðum og verklegum hjúkrunaraðgerðum. Alls hafa 88 hjúkrunarkounr lokið burt- fararprófi úr Hjúkrunarkvenna- skólanum síðan hann tók til starfa í Landspítalanum, árið 1933,—Mbl. 5. maí. * * * Yfir 38 þúsund íbúar í Reykjavík Samkvæmt manntalinu síðast- liðið haust voru í bænum 38,219 manns. Af þeim voru það 1,016. sem ekki áttu lögheimili í Reykjavík. Haustið 1938 voru hér 37,366, þar með taldir þeir, sem ekki áttu hér lögheimili. Hefir því fjölgað hér um 853 á síðasta manntalsári, og mun það vera minni f jölgun en verið hefir um árabil, og er þó helst til mikil. —Mbl. 4. maí. HVAÐ VILDUÐ ÞÉR HELZT VITA UM WINNIPEG ELECTRIC FÉLAGIÐ? veittir fyrir beztu spurning- una, sem send er til “Quiz Contest,” 411 Railway Cham- bers. Þessari samkepni lýkur 15. júní, og er úrskurður dóm- enda algildur. WINNIPEGELECTRIC C O M P A N Y urinn Abraham Eliahn Hittler, — sonur Shmils, lést í Chesvan- mánuði 5653.” — Gyðingurinn óreytti skírnarnöfnum sínum í Adolf — þótti það vestrænna. Hann lést 26. okt. 1892, sextug- ur að aldri. * * * Árið sem leið andaðist grískur munkur, sem dválist hafði í þessum heimi full 82 ár, en enga konu augum litið — alla leið frá vöggu til grafar! Móðir hans dó þegar hann fæddist. Og daginn eftir var sveinninn fluttur í munkaklaustur á fjallinu Athos og þar hafðist hann við til æfi- loka. En í það klaustur hefir engin kona fæti stigið öldum saman, samkvæmt æfafomu banni! Þér *em notið— TIMBUR KAUPIÐ AF THE Empire Sash & Door CO., LTD. MrgSlr: Henry Ave. Ea*t Sírrvi 95 S51—95 562 Skrtfstofa: Henry o| Argyle VERÐ - GÆÐI . ÁNÆGJA $10.00 í góðu bandí, en er nú færð niður í þriðjung þess verðs, auk burðargjalds. Pant- anir ætti að gera sem fyrst, því ólíklega endist upplagið lengi úr þessu. * * * Baldursbrá * * * — Hvers vegna afhentuð þér ekki lögreglunni demantshring- inn sem þér funduð? — Það var óþarfi! — Hvað meinið þér? — Það stóð í hringnum: “Þinn að eilífu”. * * * Gunna: ÓIi hefir altaf komið fram við mig eins og heiðurs- maður. Sigga: Já, mér finst hann líka vera hálf leiðinlegur. * * * — Hvernig gengur það með þig og hana Siggu? — Það gengur ekkert. — Nú, af hverju? — Vegna þess, að þegar eg var að hugsa um að biðja henn- ar, sagði hún mér að hún elskaði Kipling, Knut Hamsun og. ein- hvern náunga sem heitir Strind- berg, og þá þýddi vitanlega ekki fyrir mig að hugsa um hana. * * * — Þessi bekkur geymir minn- ingar. Það var við þenna bekk, sem eg bað Bodil Ibsen, leikkonu í Konunglega leikhúsinu, að koma á stefnumót. — Hvað segirðu, Badil Ibsen? Segðu mér frá því! — Það er frá engu að segja. Hún kom ekki á stfenumótið! * * * Jóns Sigurðssonar félagið I.O. D.E., hefir beðið “Heimskr.” að minna fólk á, sem ekki hefir enn eignast bókina “Minningarrit íslenzkra hermanna”, sem félag- ið gaf út fyrir mörgum árum síðan, að enn gefist því kostur á að eignast bókina, því fáein ein- tök eru enn eftir óseld hjá for- seta félagsins, Mrs. J. B. Skapta- son, 378 Maryland St., Winni- peg. Bókin kostaði upphaflega Nú fást keyptir 3 árgangar af aarnablaðinu Baldursbrá fyrir $1.00, sent póstfrítt. Það eru til 6 árgangar og eru 3 þeir fyrri innheftir. Ætti fólk að nota þetta tækifæri á meðan upplagið endist. Pantanir sendist til: B. E. Johnson, 1016 Dominion St., Winnipeg “Þegar eg er þurbrjósta kaupi eg Kl EWELS VERIÐ HÓFSAMIR— DREKKIÐ BJÓR HITT OG ÞETTA í blaði einu í Suður-Evrópu var birt frétt um kuldana í Dan- mörku í vetur. Fréttin var svona: — Það er harður vetur, frost og snjóalög í Kaupmannahöfn, og í dönsku nýlendunni Græn- landi er einnig töluvert frost þessa dagana. * * * Adolf Hittler Kirkjugarður Gyðinga í Buka- rest heitir Filantropa. Þar eru grafnir um 20 þús. Gyðingar og þeirra á meðal Adolf Hittler. Hann var austurrískur að ætt og uppruna en ritaði eftirnafnið með tveim t-um. Á legsteini hans er ritað á hebresku: “Mað- BORGIÐ HEIMSKRINGLU— því gleymd er goldin sknld Thla advertlsement la not lnserted by Govemment Llquor Control Oommtsalon. The Commlaslon la not respcmadble for statements made as to quaúty oí pro- ducts advertlsed. With Shampoo & Finger Wave Complete AMAZING VALUE --Greatest Advertising Offer Ever Made- A GUARANTEED SCIENTIFIC PUSH UP Permanent _ _ t W A V E 95 ______ This Offer Is Made by the Scientific as an Advertislng Special. Never Before Sueh Values. Beautiful, Lasting, Permanent Waves. Phone 24 862 SCIENTIFIC BEAUTY CULTURE 612 Power Bldg., Portage Ave. & Vaughan St., Winnipeg Winnipeg’s Largest, Most Reliable, Best Equipped Beauty Salon

x

Heimskringla

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimskringla
https://timarit.is/publication/129

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.