Heimskringla


Heimskringla - 13.11.1940, Qupperneq 1

Heimskringla - 13.11.1940, Qupperneq 1
-The Modern Housewlfe Knows Qnallty That ts VVhy she Selects “CANADA BREAD” "Tlie Quality Goes in Before the Name Goes On’’ Wedding Cakes Made to Order PHONE 39 017 LV. ÁRGANGUR WINNIPEG, MIÐVIKUDAGINN, 13. NÓV. 1940 ALWATS ASK FOR— “Butter-Nut Bread” The Finest Loaf In Csnadi Rich as Butter—Sweet as a Nut Made only by CANADA BREAD OO. LTD. NÚMER 7. 4 4 HELZTU Neville Chamberlain dáinn Neville Chamberlain, fyrrum forsætisráðherra Breta, lézt s. J- laugardag á óðalssetri sínu í Hampshire. Hann hafði ver- Jð veikur nokkrar vikur og lá í móki undir hið síðasta, lengst af meðvitundarlaus. Það er efast um að hann hafi nokkuð vitað um það, að Georg kon- hugur og Elizabeth drotning Satu klukkustund við sjúkra- hans einn síðustu daganna sem hann lifði. Kona Chamberlains og tvær systur hans voru viðstaddar andlátið. Með líkið er búist við að verði farið til Westmin- ster Abbey, þar sem síðari tíma stórmenni Bretlands hvíla. Hann var 71 árs. Forsætisráðherra Breta varð Neville Chamberlain árið 1937, er Baldwin fór frá völdum. — Hafði hann áður verið í ráðu- neytinu og haft þar mikils- verðustu stöðunum að gegna, svo sem f jármálaláðherra stöð- unni. Hann kom til Ottawa 1932 og var einn þeirra manna er mestan átti þátt í að samn- mgar þeir voru gerðir. Eins °g aðrir Bretar sá hann, að með heim samningum var verið að víkja frá hinni gömlu fríverzl- nnarstefnu Bretlands, en hann kvað það heilbrigt vit, eins og á stæði. Á hag fátækra fékk hann ráðið bætur með löggjöf, er hann var frumkvöðull að og sem talin er ein hin mikilvæg- asta þjóðfélagslöggjöf, sem á hingi Breta hefir gerð verið. Afskifti hans af fjármálum Breta voru og mikilsverð, eink- um verðbreytingar á brezkum Peningum, er sagt er að þjóð- inni hafi sparaði offjár, með hiðurfærslu skatta. En þrátt fyrir þetta alt, kom a<5 því að Chamberlain varð að fara frá völdum. Sagði hann stjórnarforustu af sér í s- i- maírhánuði og Churchill tók við. Var óánægja út af stríðsrekstrinum í Noregi á- stæðan fyrir því. Var hann ei8i að síður formaður ráðu- Peytisins þar til 3. október. En Pa sagði hann þeirri stöðu einnig lausri vegna bilaðrar heilsu að sagt var og sem ef- aust hefir mikið verið í, en Sem alment var þó ætlað, að stafað hefði af stefnu hans. Stefna Mr. Chamberlains í htanríkismálum, þótti æði rátt varhugaverð og óhugur manna óx því meira á henni, Sem hún var meira reynd. Þó ^ar enginn sem grunaði Cham- erlain um græzku eða að ann vildi bæði þjóð sinni og e fum þjóðum alt hið bezta. n Munich-samningurinn við Hitler, gerði út af við álit þjóð- armnar á stjórnmálastefnu ^hamberlanis. Fyrst í stað ^ar þó friðnum fagnað, sem eð því var fenginn, en þegar lós kom ári síðar, að Hitler a t ekki í hug, að efna þann samning, féu dómurinn á ^namberlain. Að hann hafi eHð skammsýnn að treysta } ier, sáu allir eftir á. Enn- a virðist þess lítið gætt hvern- a a stóð. Bretland var alt nnað en búið undir að fara í , rið 1938; það var það ekki 0 ' Hitler gat bæði þessi ár, ti} vil1 betur en 1940, lagt ir Slg ^au lencl er hann hef- is Slfan gert. 1 Munich virð- e um annað en samning s ri® hafa verið að ræða og FRÉTTIR « < Neville Chamberlain samning eins og Hitler vildi. Nú — á hina hliðina var aftur Pólland. Þá var Bretland fjór- falt eða fimmfalt betur út í striðið búið. Þá voru engir samningar gerðir. Söguna síð- an þarf ekki að rekja. Hinu er samt sem áður eKki hægt að neita, að óánægja var meðal fjölda manna á Eng- landi og í stjórninni út af utan- ríkisstefnu Chamberlains. — Eden og Cooper, er stöðum sínum köstuðu frá sér, er ó- rækt vitni þess. En Hitler þektu menn þá ekki, nema af bók hans, og hún auðvitað gekk svo fram af öllum, að menn lögðu engan trúnað á hana. En framferði Hitlers hefir á sama hátt verið ósvífið og fjarri öllu, sem heilbrigt er nú á tímum. Menn vöruðu sig ekki á því og þessvegna hefir hver þjóðin af annari verið rænd frelsi, eignum og mann- réttindum, og vestlæg menn- ing, sem var þeirra skjól, ver- ið upprætt. Ef þjóðir Evrópu hefðu við þessari óöld búist, hefðu þær vissulega búist til varnar, áður en það var of seint. Chamberlain var ekki eini maðurinn, sem misskildi þennan djöful'í mannslíki, sem sverðinu heldur nú yfir höfði hverrar þjóðar Evrópu. Arthur Neville Chamberlain var sonur Joseph Chamberlain er frægur var bæði sem stjórn- málamaður og viðskiftahöldur. — Lagði hann undirstöðu að framleiðslu þeirri í Birming- ham, er síðan hefir verið fé- þúfa niðjanna, en það var skrúfnagla verksmiðja, sem og ýmsar aðrar stálvörur voru gerðar í. Bróðir hans, Sir Jo- seph Austen Chamberlain var og nafnkunnur stjórnmálamað- ur, sem faðir hans. Neville kemur alt seinna til sögunnar og hefir eflaust ekki eins mik- ið kveðið að honum á stjórn- mála-vettvanginum og þeim. Framan af starfaði hann við iðnstofnun föður síns og reynd- ar mikið til æfina á enda. í Birmingham gengdi hann ýms- um opinberum stöðum, varð fyrst bæjarráðsfulltrúi (1911), síðan borgarstjóri. En um þær mundri rekst Lloyd George á hann og bauð honum stöðu í London, sem ráðherra án stjórnarskrifstofu. Ekki var Neville þar út árið, sagði upp vinnunni og kvaðst hafa ann- að starf að víkja að. Lloyd George sagði að þessi ráðning sín hefði ekki hepnast, þótti ekki nóg framtak í eða hug- sjónir sýna sig hjá Neville. En 1918 varð hann íhaldsþingmað- ur fyrir eitt kjördæmið í Birm- ingham. Hafði hann lítið við < sig fyrstu árin, en þegar Bonar Law tók við, gerði hann Ne- ville yfirpóstmeistara, síðan að yfirmanni við vinnulauna- greiðslu og næst að heilbrigð- isráðgjafa. Þóttist Bonar Law heppinn að hafa fundið svo á- reiðanlegan starfsmann. EffTr það var Chamberlain oftast í ráðuneytinu, bæði hjá Baldwin og Macdonald og var ein tvö kjörtímabilin fjármálaráð- herra. Er viðurkent, að það starf hans hafi átt mikinn þátt í viðskifta-útþenslu landsins þau árin. Árið 1911 giftist Chamber- lain Annie Vere Cole, dóttur Majors Cole. Sagði Chamber- lain eitthvert sinn, að hann hefði ef til vill aldrei neitt skift sér af stjórnmálum ef ekki hefði verið fyrir áeggjan konu sinnar. íslendingar við nám vestra Nokkrir Islendingar heiman af ættjörðinni stunda nám hér vestra á þessum vetri. Hefir nokkurra þeirra áður verið get- ið í Hkr. Nýlega bættust 6 við í hópinn. Komu þeir 19. okt. með skipi frá íslandi til New York. Fjórir eða fimm af þeim stunda nám í Bandaríkjunum, en einn eða tveir í Canada. Einn þessara námssveina kom til Winnipeg 5. nóvember. Heitir hann Bragi Freymóðs- son, frá Akureyri. Stundar hann nám á Manitoba-háskóla í vetur. Námsgrein hans er rafmagnsfræði og byrjaði hann námið 7. nóvember. En þó greitt gengi í þetta sinni að komast að námi, skal það tekið fram, að æskilegt er, að landar heima, sem hugsa sér að stunda nám vestra, komi um leið og kensla byrjar á Manitoba-háskóla á haustin. Kenslan byrjaði nærri fyrir tveim mánuðum á háskólanum og eins og allir góðir skólar, er hann tregur til að gefa mikið eftir af hinum ákveðna náms- tíma. Það vill svo vel til, að íslenzkir námsmenn bæði hér og að heiman, eru vel þektir við þennan skóla og þeim var þessvegna bæði í þetta sinni og á síðast liðnu ári veitt tæki- færi, sem ekki er auðfengið. Þetta er ‘öðrum til viðvörunar’ tekið fram, eins og K. N. heit- inn var vanur að segja. Þeir sem með Braga komu vestur, heita þessum nöfnum: Ragnar Thorarensen frá Akureyri; hann hugsar sér að nema rafmagnsfræði í Banda- ríkjunum. Jóhann Hannesson frá Siglu- firði; námsgrein hans er enska og enskar bókmentir. Ingólfur Aðalbjarnarson frá Hafnarfirði. Hann nemur hér tryggingarfræði (actuary). Haraldur Kröyer frá Akur- eyri. Verður enska námsgrein hans. Th. Thorsteinsson, Reykja- vík. Hann leggur fyrir sig verkfræði (engineering) og stundar nám við háskólann í Boston. Þegar þetta er skrifað, er ekki kunnugt um á hvaða skól- um aðrir af þessum löndum eru. Vonandi eru þeir á ein- hverjum vel þektum og viður- kendum skólum. Af þeim er nóg hér vestra. En svo eru einnig aðrir skólar, sem mikið auglýsa sig, en ekki gera eins miklar kröfur til sjálfra sín. Þetta væri þarft að hafa í huga einnig, þegar að heiman er far- ið. Oss skilst að námssveinarn- ir hafi sumir ekki verið ráðnir er vestur kom. Þar sem þeir eðlilega eru ókunnugir, ættu þeir að finna landa sína í New York eða aðra hollvini, sem þeir kunna að eiga og fá upp- lýsingar hjá þeim. Það getur bæði sparað þeim tíma og fyr- irhöfn og stuðlað að því, að þeim verði sem mest úr förinni vestur. Námsgáfur Islendinga vöktu mikla eftirtekt í skólum hér eftir komu þeirra vestur. Og námsmenn sem komið hafa að heiman síðari árin, hafa einn- ig gert það. Skemst frá að segja gerði Jóhannes Bjarna- son, er á síðast liðnu hausti (1939) kom vestur, svo vel á Manitoba-háskóla, að mikla eftirtekt hefir hér vakið. Hann kom nærri tveim mánvlðum eft- ir að kensla var byrjuð og hafði ekki tveggja mánaða nám fyrir prófin um hátíðirn- ar. Eigi að síður stóðst hann vel það próf. Og við vorprófið var hann með 10 beztu nem- endum skólans, sem voru alls eitt hundrað eða vel það. Það er þetta og annað eins, sem ekki er aðeins skemtilegt að vita til heldur eflir einnig trúna á íslenzkt þjóðerni. Líf á Venusi Einn af frægustu vísinda- mönnum heimsins, heldur því nýlega fram, að lif sé að byrja á jarðstjörnunni Venusi og sama sagan að endurtaka sig tjar og á jörðunni. Það er dr. H. Spencer Jones, formaður helztu stjörnufræð- isstofnunar á Englandi, sem heldur þessu fram í grein í árs- riti því er Smithsonian Insti- tute gefur út. Heldur hann fram að lífagnir bæði jurta og sjávardýra séu þarna að mynd- ast. Venus er næsti nábúi jarðar á himninum. Ástánd þeirrar jarðstjörnu er nú sagt mjög svipað því sem var á þessari jörð fyrir einni biljón ára, þegar líf fór að koma hér fram í sjávarslími. Quéen borgarstjóri endur- kosinn gagnsóknarlaust Þegar útnefningu í bæjarráð Winnipegborgar lauk um há- degi s. 1. föstudag, kom í ljós, að enginn hafði boðið sig fram til að sækja um borgarstjóra stöðuna á móti Mr. John Queen, núverandi borgarstjóra. Hann er því sjálfkjörinn borg- arstjóri til næstu 2 ára. Fyrir skömmu hreyfði Mr. Queen því, að óviðeigandi væri ekki að sleppa bæjarstjórnar kosningum í þetta sinn vegna stríðsins. Hafi Mr. Queen munað í, eins og gárungarnir sögðu, að halda stöðu sinni fyrirhafnarlítið, hefir honum orðið að ósk sinni. Einu sinni er sagt að borg- arstjóri hafi verið kosinn hér áður án mótsækjanda; það var Dan McLean, 1929 Fyrir luktum dyrum Ihaldsmenn á sambandsþing- inu höfðu fund með sér s. 1. föstudag og samþyktu þar að fara fram á að sambandsþingið væri haldið fyrir luktum dyr- um. Þeir sögðu tilgangslaust að ætla sér að ræða nokkurt mál svo að gagni væri án þess að skoðað yrði sem hugfró eða upplýsingar til óvina þjóðanna í stríðinu, en þá fýsti hvorki að gera það né samþykkja með þögn alt sem King-stjórnin hefðist að. Hvernig stjórnin lítur á þetta mál, er ókunnugt um. ósk Breta um kaup á 26,000 flugvélum, veitt Eitt af því fyrsta sem Roose- velt forseti tilkynti blaðamönn- um eftir kosningarnar um gerð- ir sinar var að hann hefði skip- að svo fyrir, að helming allra flugvéla, sem nú væri verið að smiða í Bandaríkjunum, skildi Bretland og Canada hafa, en Bandaríkin hinn helminginn. Bretar höfðu fyrir nokkru pantað 14,000 flugvélar * í Bandaríkjunum og mun smíði þeirra komin langt. Nú hafa þeir pantað 12,000 í viðbót, sem Roosevelt hefir leyft, að smíð- aðar væri handa þeim. Þrjátíu og fimm í vali 1 bærjarstjórnar-kosningun- um í Winnipeg sem fara fram seint í þessum mánuði, eru 35 í vali um bæjar- og skólaráðs- stöðurnar, sem til boða standa. í bæjarráðið verða 10 kosnir, allir til tveggja ára nema einn, en umsækjendur eru 18 alls. Skólaráðsstöðurnar eru 7, ein til eins árs, en hinar til tveggja og sækja 16 um þær. íslendingar sækja engir í ár. Þeir láta sér nægja þessa tvo sem í bæjarráðinu eru, þá Paul Bardal og Victor Anderson. Molotoff í Berlín Molotoff, utanríkisráðherra Rússa er staddur í Berlín; kom þangað í gær. Var á móti hon- um tekið og föruneyti hans, er hann hafði nokkurt, með virkt- um af Hitler. Var sveit nazista á járnbrautastöðinni. Hvert erindið er, hefir ekk- ert verið sagt um, en það þykir nú enginn efi á að sé í sam- bandi við Balkanskaga-málin. Aðstoðin sem Tyrkir vonuðu að verða aðnjótandi, verður á- reiðanlega ekki mikil úr þessu. Það getur verið, að Rússar reki ekki beint hnífinn í bak þeim fyrir austan Svarta haf, þegar Hitler hefir hafið glímuna við þá að vestan, en það mun eng- in hætta á að samningurinn sem Hitler nú gerir við Rússa verður ekki Bretum eða Tyrkj- um vinsamlegur, því hverju sem Rússinn kann að óska sér fremst, er það víst að hann er í vasa Hitlers. » . Vesaldarleg aðstoð í svari sínu við hásætisræð- unni í gær á Sambandsþinginu, sagði Mr. Hanson, leiðtogi í- haldsmanna, að aðstoðin sem Canada vferi að reyna að veita Bretum í stríðinu, væri “átak- anlega vesaldarleg”. Hann benti á, að fremsta varnarlína Canada væri á Englandi og þar ætti aðstoð Canada að koma fram. Til þessa hélt Mr. Han- son að sú aðstoð hefði verið lítil eða enginn þáttur í vörn Bretlands. Grikkir halda sínu Enn ,og nú er komið hátt á þriðju viku síðan stríðið hófst, halda Grikkir sínu fyrir Itöl- um. Meira að segja var í frétt- unum í byrjun þessarar viku, að þeir hefðu yfirbugað einar þrjár herdeildir Itala, er voru skotnar niður, herteknar eða flýðu alt sem fætur toguðu. — Þetta var við Pindas í norð- vestur Grikklandi. Kvað þetta hafa vakið óhug i liði Itala. Þar sem Grikkir voru að sækja fram í Albaníu, greiddu brezk loftför þeim leiðina. En sóknin inn í Albaníu, gengur Grikkjum ógreitt. Italir eru þar svo mannmargir fyrir. Þó Italir hafi til þessa heldur farið ófarir, spáir það engu enn um hvernig þarna fer. Jarðskjálftar í Rúmaníu I Rúmaníu urðu feikna jarð- skjálftar s. 1. sunnudag. Heil héruð léku á þræði. Kviknuðu eldar af því í ólíulindum, er skelfingu og skaða höfðu í för með sér. Er ætlað að um 2000 manns hafi farist, fjögur til fimm þúsund meiðst. Hús hrundu í Bukarest og þúsund- ir manna eru sagðir heimilis- lausir. ISLANDS-FRÉTTIR Gort hershöfðingi kominn til íslands Gort lávarður, hinn frægi hershöfðingi Breta, sem var yfirmaður breska hersins í Frakklandi í vetur, er kominn hingað til lands. Kom hers- höfðinginn í gærmorgun og var tekið á móti honum á hafnar- bakkanum í gær með mikilli viðhöfn. Skip Gorts lávarðar lagðist á ytri höfnina snema í gærmbrg- un, en það var' ekki fyr en und- ir hádegi að lávarðurinn kom í land. Hermönnum hafði verið rað- að upp á hafnarbakkanum, þar sem Gort steig á land, og var einnig hljómsveit frá setuliðinu hér. Æðstu menn breska hers- ins hér á landi voru á hafnar- bakkanum til að taka á móti lávarðinum. Hann kom á vopn- uðum togara upp að bryggju, og er hann gekk á land lék her- hljómsveitin. Gort lávarður gekk á milli hermannanna og ræddi við einn og einn þeirra. Er hann hafði lokið þessari skoðun hélt hann að Hótel Borg, en þar mun hann hafa aðalbækistöðv- ar sínar á meðan hann dvelur hér á landi. Ekki er blaðinu kunnugt um hve lengi hershöfðinginn dvel- ur hér á landi, eða í hvaða er- indagerðum hann er hingað kominn, en hann er yfireftir- litsmaður með þjálfun breska hersins (Inspector-General). Gort lávarður hefir getið sér mikið orð sem hermaður og hefir meðalannars hlotið æðsta heiðursmerki, sem breskum hermanni er veitt, Victoria Cross. Auk þess hefir hann hlotið heiðursmerkin K.C.B., C.B.E., D.S.O., M.V.O. og M.C. Hershöfðinginn er 54 ára gam- all. Árið 1905 gekk hann í breska herinn og tók þátt í heimsstyrjöldinni. Árið 1937 var hann gerður að yfirmanni breska herfor- ingjaráðsins og yfirforingi B. E. F. i Frakklandi er núver- andi styrjöld braust út. Þegar Bretar hörfuðu frá Dunkerque hlaut gort mikið hrós fyrir skipulag það, sem var á undanhaldi breska hers- ins. Er hann var sæmdur heið- ursmerki þegar hann kom heim frá Dunkerque, er sagt að full- trúi Bretakonungs, sem afhenti honum heiðursmerkið, hafi sagt: “Samkvæmt öllum regl- um um veitingu heiðursmerkja í hernaði ættuð þér ekki að vera lengur í tölu hinna lif- andi.”—Mbl. 16. okt. Aðrar fréttir frá íslandi verða að bíða næsta blaðs.

x

Heimskringla

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimskringla
https://timarit.is/publication/129

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.