Heimskringla - 18.12.1940, Qupperneq 1
aukablað
WINNIPEG, 18. DES. 1940
^etmökrtngla
Winston Churchill
Bardagamaðurinn og skóldið
“Engum Þjóðverja mun líð-
ast að stíga fæti á land á ís-
landi.” Svo mælti forsætisráð-
herra Breta á þingfundi í enska
Parlamentinu, nokkru áður en
þeir sendu hingað setulið það,
sem nú er í landinu. Þetta
voru örlagarík orð fyrir ís-
lenzku þjóðina, eins og þeim
yar vel fylgt eftir, og maður-
lnn> sem mælti þau, ber nú
^eiri ábyrgð á herðum en
nokkur annar innan hins víð-
lenda brezka alríkis. Hann
heitir Winston Leonard Spen-
cer Churchill og er fæddur 30.
nóvember 1874.
Það hefir verið einkenni
Churchill-ættarinnar að láta
skamt í milli orða og athafna,
°g svo er um Winston einnig.
Hann er í föðurætt afkomandi
hins fræga hershöfðingja Johns
Churchill Marlborough (1650—
1722). John Churchill barðist
nieð Vilhjálmi af óraníu, sem
gerði hann að jarli og hers-
höfðingja sínum. Churchill
vann og marga sigra og stóra
a ríkisstjórnarárum Önnu
órotningar, svo sem við Liege,
Sonn, Lembprg, Blenheim,
Hamillies, Oudenarde og Lille.
Er um hann mikil saga og
nierkileg, sem hér verður ekki
rakin. Foreldrar Winstons voru
Handolph Churchill lávarður,
föðurnum John, og Jennie Jer-
ome, dóttir Ameríkumannsins
Leonard Jerome, ritstjóra New
York Times. Er það í frásögur
fært sem dæmi um skap þessa
afa Winstons í móðurætt, að
eitt sinn áður en gerð var árás
á ritstjórnarskrifstofu blaðs
hans í New York, hafi hann
verið búinn að vopna skrif-
stofufólkið með rifflum og auk
þess útvega sér fallbyssu og
skipaði að skjóta á múginn,
sem og gert var, enda lagði
múgurinn á flótta eftir nokkrar
blóðsúthellingar. Faðir Win-
stons, Randolph lávarður, var
einhver atkvæðamesti stjórn-
málamaður Breta á árunum
1880 til 1886 og komst í fjár-
málaráðherrastöðu. En stjórn-
málaferill hans varð stuttur,
og hann lézt árið 1895, aðeins
hálffimtugur að aldri. Móðir
Winstons var um eitt skeið ein-
hver dáðasta konan í sam-
kvæmislífi Lundúnaborgar, og
er henni lýst þannig, að hún
hafi í æsku verið töfrandi fög-
ur og öll framkoma hennar
heillandi, enda framúrskarandi
lífsglöð og kát. Sjálfur hefir
Churchill lýst móður sinni með
þessum orðum: “Móðir mín
hafði mikil og heillandi áhrif
á líf mitt í æsku. Mynd henn-
ar skein fjarlæg, eins og blik-
andi stjarna, í huga mér, og eg
unni móður minni heitt. Mér
fanst hún eins og töfrandi
kongsdóttir úr álfheimum.”
Sjálfur hefir Winston Chur-
chill ritað æfisögu föður síns
og lýst þar meðal annars
fyrstu kynnum foreldra sinna.
Þau hittust í fyrsta sinni árið
1873, hún nitján ára og hann
tuttugu og fjögra. Það var ást
við fyrstu sýn hjá báðum, og
strax daginn eftir hinn fyrsta
fund þeirra höfðu þau hvort í
sínu lagi trúað einum vina
sinna fyrir því, að örlög þeirra
væru ráðin og órjúfanlega
tengd. Winston lýsir í æfi-
sögunni trúlofun þeirra þann-
ig:
“Daginn eftir hittust þau aft-
ur “af tilviljun” — eða svo er
mér frá skýrt — og fóru á
skemtigöngu saman. Þetta var
þriðja kvöldið síðan þau sáust
fyrst, — og það var unaðslegt
kvöld. Veðrið var hlýtt og
kyrt, ljósin á snekkjunum með-
fram ströndinni skinu svo
skært út yfir vatnsflötinn, og
yfir var alstirndur himinn. Að
loknum kvöldverði hittust þau
aftur ein í garðinum, og þó
að kynningin væri svona ör-
stutt bar hann upp bónorðið og
fékk já.”
Það kostaði mikið stríð að fá
foreldrana til að samþykkja
ráðahaginn. En ástin sigraði.
Brúðkaupið fór fram 15. apríl
1874, og í byrjun desember
sama ár gat að líta eftirfarandi
tilkynningu í “The Times”:
“Hinn 30. nóvember er lafði
Randolph Churchill í Blen-
heimhöll fæddur vanburða son-
ur.” Þessi sonur, sem þannig
var nafnlaus kyntur heiminum
í fyrsta sinn, var Winston
Churchill, núverandi forsætis-
ráðherra Breta.
Æfiferill þessa merka manns
hefir verið harla viðburðarík-
ur, enda hafa þar skifst á sigr-
ar og ósigrar í stófeldara mæli
en í lífi flestra manna. Hann
gerist ungur hermaður og lend-
ir í margskonar mannraunum.
Hann býður sig fram til þings,
og eftir að hann verður þing-
maður kemst hann brátt í
stjórnina, verður fyrst aðstoð-
arráðhera, þá forseti viðskifta-
málanefndar (Board of Trade),
síðan innanríkismálaráðherra
og eftir það flotamálaráðherra,
þá hergagnaráðherra, þá ný-
lendumálaráðherra og síðan
flugmálaráðherra, þá hermála-
ráðherra og loks fjármálaráð-
herra. Eftir það verður hann
flotamálaráðherra í annað sinn
og er nú bæði landvarnarmála-
ráðherra og forsætisráðherra.
Það er öðru nær en hann hafi
altaf verið flokksmönnum sín-
um þægur ljár í þúfu. Þvert á
móti hefir hann aldrei látið
flokkshagsmuni sitja í fyrir-
rúmi, heldur farið eftir eigin
sannfæringu, þó að hún kæmi
ekki altaf heim við sannfær-
ingu samflokksmanna. Hann
hefir þá einnig verið ýmist í
flokki ihaldsmanna eða frjáls-
lyndra, eftir því við hvora hon-
um fell betur í það og það
skiftið, en þó miklu lengur í
frjálslynda flokknum. Og
jafnan hefir hann verið ein-
Bond & Ronald
LIMITED
THE MAKERS OF
Wish their Many
Icelandic Friends
a
MERRY CHRISTMAS
and a
HAPPY NEW YEAR
dreginn fylgismaður frjálsrar
verzlunar. Hann hefir aldrei
getað felt sig við troðnar slóðir
hinna dyggu flokkaklíkufylgj-
enda innan þings og stjórnar.
Til þess er hann of frjáls í hugs-
un og gjarn á uppreisn. Hefir
þetta leitt til þess, að hann
hefir oftar en einu sinni lent í
andstöðu við fylgismenn sína
og jafnvel staðið einn uppi.
Winston stundaði nám í
mentaskólanum Harrow og í
Sandhurst, en til háskólanáms
kom ekki, því að loknu námi í
Sandhurst gekk hann í herinn.
Honum leiddist latína og
gríska, en hafði allan hugann
við hernaðarvísindi, enda var
hann ekki nema rúmlega tví-
tugur þegar hann hætti námi
til þess að komast í herinn.
Fyrsta orustan, sem hann tók
sátt í, var háð á eyjunni Cuba,
en þangað komst hann sem
stríðsfréttaritari, og gat með
jví móti staðist þann kostnað,
sem af svo langri ferð leiddi.
Þetta sama notaði hann sér, er
tann réðist fréttaritari til Ind-
lands, fyrir blöðin “Pioneer” og
“Daily Telegraph”, upp á 5
sterlingspunda laun fyrir
Dlaðadálkinn. Síðar fór hann
til Afríku og var þá fréttaritari
stórblaðsins “Morning Post” og
fékk 15 sterlingspund fyrir
dálkinn, svo að ritlaun hans
höfðu þrefaldast á skömmum
tíma, enda vöktu greinar hans
mikla athygli. Kitchener lá-
varður var .þá hershöfðingi
Breta í Afríku og naut mikils
álits og þó enn meira síðar,
bæði í Búastríðinu og loks í
heimsstyrjöldinni 1914—1918.
En Churchill gagnrýndi í grein-
um sínum Kitchener allfrek-
ega, einkum fyrir meðferð
íans á föngum, enda varð af
nokkur kali milli þeirra út af
þessu. Segir William Stead í
“Skapgerðarlýsingu” sinni af
Churchill, sem hann reit í Re-
view of Reviews 1904, að her-
stjórnin hafi kunnað því illa,
hvernig þessi tannhvassi und-
irmaður leyfði sér að gagn-
rýna yfirmenn sína. En um
fréttabréf Churchills segir
Stead, að þau hafi verið “fram-
úrskarandi góð, skilmerkileg,
ljós, myndauðug og hreinskil-
in”, enda vakið almenna eftir-
tekt.
Það var haustið 1898, að
Winston kom heim fré Egypta-
landi, lagði niður stöðu sína í
hernum og bjóst til að gerast
stjórnmálamaður að dæmi föð-
ur síns. Hann leitaði fyrir sér
um stuðning hjá íhaldsflokkn-
um, en fékk daufar undirtektir,
bauð sig þó fram í Oldham
kjördæmi, en féll í kosningun-
um. í október 1899 réðist hann
aftur fréttaritari hjá “Morning
Post” og fór til Suður-Afríku í
sama mánuði, til þess að skrifa
fréttir frá Búastríðinu fyrir
blaðið. Hann átti að hafa 250
sterlingspund í kaup á mánuði
og allan ferðakostnað frían —
cg var harla ánægður með
kjörin. En hálfum mánuði eftir
að hann kom til Höfðaborgar
höfðu Búar tekið hann til
Frh. á 10. bls.
sa áttundi í röðinni frá ætt-
Sargent Pharmacy
Sími 23 455 Sargent og Toronto, Winnipeg
Þakkar fyrir viðskiftin á liðnu ári og óskar
öllum viðskiftavinum sínum
GLEÐILEGRA JÓLA 0G
FARSÆLS NÝÁRS
We
D0MINI0N
BANK
STOFNSETTUR 1871
Vér seljum bankaávísanir og ferðamannaávísanir á
því lægsta verði, sem mögulegt er.
Sérstakt athygli veitt reikningum skiftavina, sem
utan bæjar búa. Allar upplýsingar veittar sem um er
beðið.
Vér bjóðum yður að byrja reikning hjá oss, og nota
þá sparisjóðsdeild, sem næst yður er. Vér lofum skifta-
vinum skjótri og prúðmannlegri þjónustu.
WINNIPEG ÖTBÚ:'
«>
Main Office—Main Street and McDermot Avenue
Main Street and Redwood Avenue
North-End Branch—Main St. near C.P.R. Station
Notre Dame Avenue and Sherbrook Street
Portage Avenue and Kennedy Street
Portage Avenue and Sherbrook Street
Union Stockyards, St. Boniface
A. S. Bardal og þeir sem hjá honum vinna, óska
öllum sínum mörgu viðskiftamönnum
og vinum hjartanlega
GLEÐILEGRA JÓLA 0G
FARSÆLS NÝÁRS
21 parbal
ÖTFARARSTJÓRI
843 SHERBROOK STREET
Símar: — 86 607 og 86 608
Hvað ætlarðu þér þegar
þú ert 55 ára að aldri, 60 eða
65? Muntu hætta störfum
með fulltryggar tekjur það
sem eftir er æfinnar? Hvi
ekki setjast hjá erindreka
Great-West Life? Seztu hjá
honum og gerðu fyrir þörf-
um þínum með hans aðstoð
—ráð sem tryggja afkomu
og farsæld ástvina þinna.
Fulltrúi vor er reyndur mað-
ur og á bak við hann eru
úrræði og auður eins elzta
og traustasta liftryggingar
félags í Canada.
Finnið og ráðgist við
erindreka Great-West Life
B. DALMAN
Umboðsmaður
SELKIRK, manitoba
wÍCREAT-WEST LIFE ASSURANCE COMPANY