Heimskringla - 29.01.1941, Page 8
8. SIÐA
HEIMSKRINGLA
WINNIPEG, 29. JANÚAR 1941
FJÆR OG NÆR
Heimskringla hefir náms-
skeið (scholarship) til sölu á
beztu verzlunarskólum þessa
fylkis. — Það er hverjum sem
nám hugsar sér að stunda á
þessu hausti eða vetri hagur að
sjá oss þvi viðvíkjandi.
* * *
MESSUR I ÍSLENZKU
SAMBANBSKIRKJUNUM
voru viðstödd. Ætlast var til
þess í fyrstunni, að athöfnin
færi fram í kirkjunni, en vegna
lasleika prestgins var því ekki
komið við, og farið var þvi
heim til hans. Að athöfninni
lokinni fór skírnarveizla fram
að heimili foreldranna, Ste. 8
Mount Royal Apts., á Smith
St. Guðfeðgin barnsins voru
Mr. og Mrs. Treasure.
* * *
Björn G. Thorvaldson, Piney,
Man., lézt þriðjudaginn 21. jan.
s. 1. Hann var 63 ára að aldri,
fæddur á Mikluey í Skagafirði
á Islandi. Banameinið var
hjartveiki. Hann var jarð-
sunginn s. 1. föstudag af séra
Messur í Winnipeg
Útvarpsmessa fer fram n. k.
sunnudagsmorgun, kl. 11 f. h.
frá Sambandskirkjunni í Win-
nipeg undir umsjón Únítara
safnaðarins, sem heldur þar. ...
guðsþjónustur á hverjum i Valdimar Eylands. Hinn látm
sunnudagsmorgni. Séra Philip ivar nierkisbóndi og verður ef-
M. Pétursson messar. Við kvöld laust getið nánar síðar.
guðsþjónustuna, sem fer fram
á íslenzku eins og vanalega,
verður umræðuefni prestsins,
“Nýtt mannfélag.”
Sækið messur Sambands
safnaðar og eflið frjálslyndi
trúmálum.
* * *
Ungmennamessa
Sunnudaginn 9. febrúar, fer
fram ungmennamessa í Sam
bandskirkjunni kl. 11 f. h. —
Ræðuna flytur Jónas Thor
steinsson og hann verður að
stoðaður af Miss Maríu Stef
ánsson. Önnur ungmenni taka
einnig þátt í messunni, og
halda þannig upp á Ungmenna
daginn eins og árlega hefir
verið gert í Sambandskirkjunni
og öðrum frjálstrúar kirkjum
Canada og Bandaríkjunum.
* * *
Mr. Bergthór E. Johnson
forseti Sambandssafnaðar
Winnipeg stýrði guðsþjónust-
unni s. 1. sunnudagskvöld og
flutti ræðu í fjarveru prestsins,
sem gat ekki verið viðstaddur
vegna lasleika, og tókst honum
það*ágætlega þrátt fyrir það að
fyrirvarinn væri stuttur, og
lítill tími til undirbúnings. Við
morgun guðsþjónustuna steig
Mr. E. J. Ransom í stólinn, og
leysti verk sitt einnig vel af
hendi. Séra Philip M. Péturs-
son gerir ráð fyrir að geta
messað sjálfur n. k. sunnudag,
og þá, eins og auglýst hefir
verið, verður útvarpað um
morgunin, og hin vanalega
guðsþjónusta haldin á sunnu-
dagskvöldið.
* * *
Nikulás Jón Stefánsson, son-
ur Dr. og Mrs. Jón Stefánsson,
lézt 24. janúar, 19 ára gamall,
eftir langvarandi heilsuleysi.
Hann var í Philadelphía hjá
móðursystur sinni er hann lézt
og fer jarðarförin þar fram í
dag. Foreldrar hans eru dánir
fyrir nokkrum árum. Hann lifir
ein systir 15 ára gömul.
Frónsfundurinn, sem haldinn
var í Góðtemplara húsinu, s. 1.
mánudagskvöld, var vel sóttur
og að öllu leiti hinn ánægju-
legasti.
Forseti deildarinnar, Ragnar
H. Ragnar, stjórnaði fundinum
af áhuga og fjöri, sem honum
er eðlilegt.
Þeir, sem skemtu voru: Páll
Bardal yngri, með píanó sóló,
Marian Hart og Dorothy Ólafs-
son, sungu tvisvar og Marian
Hart tvö einsöngslög. Hefir
hún undurfagra og viðfeldna
rödd, sem vonandi er að fái að
njóta sín að verðleikum í fram-
tíðinni.
Aðal lið.urinn á skemti-
skránni var ræða flutt af séra
Sig. ólafssyni frá Selkirk. Tal-
aði hann um íslenzka alþýðu
mentun. Var ræða hans ágæt.
Hugþekk öllum, prýðilega flutt
og hin skemtilegast. D.
* * *
Tuttugasta og annað ársþing
Þjóðræknisfélags íslendinga í
Vesturheimi verður haldið dag-
ana 24., 25. og 26. febrúar n. k.
falla um sjálft sig. Var þvi
hafist handa með að stofna til
kenslu í íslenzku, í vetur, með
þeim árangri að yfir 30 börn
teljast nú til skólans, og koma
þau í tímann reglulega á hverj-
um laugardagsmorgni. Fjórir
kennarar sjá um þetta verk og
alt er auðvitað gert án endur-
gjalds. Er þetta áreiðanlega
heppileg úrlausn okkar esju-
mála, því að með þessu er fé-
laginu fundið starfsvið í fylsta
samræmi við áhugamál allra
þjóðrækinna íslendinga. Von-
andi er því að áframhald verði
af þessu, með meiri og meiri á-
rangri í framtíðinni.
Ársfundur Esju verður hald-
inn þ. 11. feb. og verða þá kosn-
ir embættismenn og einnig full-
trúar á næsta þjóðræknisþing.
S. E. B.
* * *
Gjafir í blómasjóð Sumar-
heimilisins á Hnausum
Gefið í minningu um mína
ástkæru systir, Margréti
Byron, sem dó á nýársdag 1941,
Philip, canadiskur fregnriti
New York Times. Mr. Philip
er vel til þess hæfur að tala
um efni það er hann hefir valið
sér, en það er: “That Broken
Front Line—France (Brotna
vígið—Frakkland). Mr. Phil-
ip hefir átt heima í Frakklandi
s. 1. 24 ár og var mest af þeim
tíma yfirmaður fregnstofu
Times í París. Hann ræðir í
erindi sínu um ástæðuna fyrir
falli Frakklands og mun leiða
getur að því hvað þess mikla
lands bíði framvegis. Hann
hefir áður talað í útvarp í Can-
ada.
Til skemtunar þessarar er
öllum boðið. Engin inngangur
seldur og engir aðgöngumiðar
eða leyfismiðar eru nauðsyn-
legir.
* * *
"Fjalla-EYVindur" sýndur á
Landbúnaðarháskólanum
í Norður Dakota
Leikfélag stúdenta á Land-
búnaðarháskólanum í N. Dak.,
jí Fargo, sýndi á miðvikudags-
kvöldið þann 22. janúar “Fjalla
SARGENT TAXI
and TRANSFER
SÍMI 34 555 eða 34 557
7241/2 Sargent Ave.
Contracts Solicited
Við höfum nýlega fengið
birgðir af
HANGIKJÖTI
Verðið er 16 cents pundið.
Skal senda express ef
nauðsyn krefur.
Tom Gelmoti
General Merchant
LUNDAR MANITOBA
af Kristínu K. ólafsson, Sel-
kirk, Man..................$5.00 EyVjncT Jóhanns Sigurjónsson-
Gefið í minningu um Mar-
1 mmningu um
gréti Byron af Rafnkeli Berg-
son, Winnipeg, Man. _____$5.00
Gefið í minningu um Mar-
gréti Byron, af Mr. og Mrs. O.
J. Anderson, Winnipeg ....$3.00
' Gefið í minningu um Mar-
gréti Byron, af Oðdfríði, Einari
og Stefáni Johnson, Winnipeg,
Man. ________________ '..$5.00
Með innilegu þakklæti og
samúð,
Mrs. H. von Renesse,
—Árborg, Man.
* * *
Mountain, N. D.,
26. jan. 1941.
Herra ritstjóri “Hkr.”:
Mig langar að biðja um leið-
rétting á tvennu sem eg hefi
tekið eftir að er rangt í minn-
isvarðaskýrslu okkar í sein-
og hefst með venjulegum hætti ustu “Hkr.” Hið fyrra er það:
á mánudaginn þann 24. kl. 9.30
f.h. í aðalsal Good Teemplars
Hall. Dagskrá þingsins verður
birt síðar.
Samkvæmt 21. grein laga fé-
lagsins er deildum utan Winni-
peg borgar heimilt að senda
fulltrúa á þing, er farið geta
hver um sig með alt að tuttugu
atkvæði fjarverandi félags-
manna. Umboðið skal vera
skrifiegt, og undirskrifað af
forseta og skrifara hlutaðeig-
andi deilda.
Fyrir hönd stjórnarnefndar,
V. J. Eylands, skrifari
* Skírnarathöfn •
Sunnudagskvöldið 26. þ. m.
fór fram skírnarathöfn að
heimili séra Philip M. Péturs-
son er hann skírði Eileen Fran-
ces Lorraine, dóttur Friðsteins
Guðmundar Davidson og Lor-
raine Frances Skinner konu
hans. Bæði vinir og ættmenni
McCURDY
SUPPLY CO.( LTD.
COAL & WOOD
Hafa kolin og viðin sem
þú hefir verið að óska eftir
'Winneco"
Coke
“Semet Solvay" Coke
Foothills
Pocahontas
•
Þeir hafa reynsluna fyrir
sér, og eru áreiðanlegir í
öllum sínum viðskiftum
og þeir þekkja eldiviðinn
sem þið þarfnist.
Simið 23 811—23 812
Á síðasta degi ársins, 31. des
1940, var ungfrú Hulda Gutt-
ormsson og Alexander Clark,
gefin saman í hjónaband í Win-
nipeg áf séra Valdimar J. Ey-
ands. Brúðurin er yngsta
dóttir Guttorms skálds Gutt-
ormsonar og Jensínu konu
hans. Brúðguminn er skozkrar
ættar og starfsmaður British
American Oil félagsins. Á eft
ir giftingunni var setin vegleg
veizla á heimili Mr. og Mrs
Joe Sigurðssonar, 944 Garfield
St.; Mrs. Sigurðsson er systir
brúðurinnar. Heimili ungu
hjónanna verður í Winnipeg,
994 Banning St. Hkr. óskar til
lukku.
* * »
Jón Sigurðssonar félagið hef-
ir ársfund sinn hjá Mrs. G. H
Nicholson, 557 Agnes St.,
þriðjudagskvöldið 4. febrúar kl
8 e. h. Kosningar fara fram og
ársskýrslur lesnar.
“Esjan”, heitir þjóðræknis-
deildin í Árborg, sem stofnuð
var fyrir rúmu ári síðan. Hefir
hún látið fremur lítið til sín
taka, eins og oft vill verða með
þá sem ungir eru og lítil mök
hafa haft við veröldina. Nokkr-
ir fundir hafa þó verið haldnir,
og talsverður áhugi virðist fyr-
ir því að einhver árangur verði
af þessari félagsmyndun. Kom
mönunm saman um að félag,
sem ekki hefði neitt ákveðið
takmark eða starf, hlyti að
að J. H. Norman, Hensel, N. D.,
er settur niður með 50c í stað
$1.00 (máske er það misgáning
okkar að kenna við afritun).
Hitt er upphæðin sem við tók-
um á móti frá Mr. Friðrik
Kristjánssyni, í Canada pen-
ingum. Á að vera $256.75 en
ekki $276.75 eins og stendur í
blaðinu. Þetta held eg að sé
áreiðanlega prentvilla, afföllin
voru 10%.
Það er líka annað sem eg
ætla að kvabba á þér með: að
minnast á það í næsta blaði,
ef mögulegt er, að Báran held-
ur ársfund sinn 8. feb. n. k.
skólahúsinu á Mountain, kl. 2
e. h. Skýrslur fyrir árið lesn-
ar upp og embættismenn kosn-
ir fyrir næsta ár. Áríðandi að
fjölment sé.
Allir sem sækja fundinn fá
skyr og rjóma ókeypis. — Setj-
ið keðjur á bílana, eða spennið
hestana fyrir sleðana.
Thorl. Thorfinnson, skrifari
* * *
Þann 11. jan. s. 1. voru gef-
in saman í hjónaband Miss
Fern Christine Dermody og
Sidney V. Eastveld, R.C.O.C. í
St. Mary’s Cathedral áf Rev.
Fr. Leo McDonald. Foreldrar
brúðgumans eru Mr. og Mrs.
Willis Eastveld, en brúðurin er
af hérlendum áttum.
Á hverju ári heldur Mani-
toba-háskóli svonefndan “Há-
skóladag” í Winnipeg Auditori-
um. Eru við það tækifæri ræð-
ur fluttar af víðkunnum mönn-
um. Öllum almenningi er til
íessarar samkomu boðið, er
svo vel hefir ávalt styrkt skól-
ann. Undanfarin ár hafa ræðu-
menn “dagsins” verið Rt. Hon.
R. B. Bennett, Sir Robert Fal-
ckener, Hon. Norman McL
Rogers heitinn og Tweedsmuir
ávarður heitinn.
Háskóladagur skólans er í ár
mánudaginn 3. feb. og byrjar
kl. 8 e. h. Samkoman fer
fram í aðalsal í Winniþeg Audi-
torium. Gesturinn sem í þetta
sinn flytur ræðu, er Mr. P. J.
ar, er nefnist í ensku þýðing-
unni “Eyvind of the Hills”. Fór
sýningin fram undir leikstjórn
Prófessor A. G. Arvold, sem er
víðkunnur fyrir starfsemi sína
á því sviði. Hann er einnig Is-
landsvinur mikill og sótti Al-
þingishátíðina 1930.
í sambandi við sýninguna
birti “Fargo Forum”, sem er
útbreiddasta blað þar í ríkinu,
grein um Jóhann Sigurjónsson
eftir dr. Richard Beck. 1 grein
þessari, sem út kom á þriðju-
dagskvöldið þ. 21., er í stuttu
máli skýrt frá æfiferli Jóhanns
og bókmentaafrekum.
* * *
Bœkur til sölu á Heimskringlu
Endurminningar, 1. og II.
hefti, alls 608 blaðsíður, eftir
Friðrik Guðmundsson. Verð
upphaflega $2.50, báðar bæk-
urnar; nú $1.00.
Hetjusögur Norðurlanda, um
200 blaðsíður að stærð, eftir
Jacob A. Riss. íslenzkað hefir
Dr. Rögnvaldur Pétursson. —
Verð 35c.
Upplag þessara bóka er lítið.
Þeir sem eignast vilja þær,
ættu því að snúa sér sem fyrst
til ráðsmanns Hkr.
* * *
Messur í Gimli
Lúerska prestakalli
Sunnud. 2. feb.: Betel, mor^-
unmessa. Gimli, íslenzk messa
kl. 7 e. h.
B. A. Bjarnason
* * *
Lúterska kirkjan í Selkirk
Sd. 2. febr., 4. sd. e. þr. Ensk
messa, kl. 7 e. h.
S. Ólafsson
“Ónei,” svaraði Þórður. “Ja
— það er að segja svo og svo.
Mig dreymdi svo undarlega í
nótt.”
“Nú, og hvernig var sá
draumur?”
“Jú, mig dreymdi að eg kom
til Sankti Péturs og ætlaði þar
inn. En hann sagði: Uss, uss,
Þórður, þetta hjálpar ekki; all-
ir verða að skrifta og fá þjón-
ustu áður en þeir koma hér. —
Þá spurði eg, hvort eg gæti
ekki lokið mér af þar. Uss,
nei, Þórður, segir hann, það
stoðar ekki. Hér eru engir
prestar, segir hann.”
HVAÐ ER AÐ FRÉTTA?
Eruð þér Ijónatemjarinn
frægi?
Nei, eg kembi aðeins Ijónun-
um og bursta í þeim tennurnar.
* * *
Nirfillinn: Ef eg ætti pen-
inga, myndi eg ekki snerta einn
einasta eyri af þeim, fyr en síð-
asta ár æfi minnar. Þá myndi
og eyða þeim öllum.
Þórður gamli formaður hafði
ætíð verið allheiðinn í hátta-
lagi, andvígur prestum og lengi
saupsáttur við séra Pétur,
sóknarprest sinn. Einu sinni
varð Þórður snögglega veikur.
Er hann hafði legið nokkra
daga í rúminu og neytt þeirra
ráða, sem hann taldi heilsu-
samlegust, en þau voru kaffi og
brennivín, þá sendi hann boð
eftir prestinum. Það var um
miðja nótt. Samt lét ekki
prestur á Sér standa, enda þótti
honum mikið liggja við, er
vænta mátti hughvarfs hjá
slíkum manni.
“Sæll, Þórður minn,” sagði
prestur, er hann kom inn til
Þórðar. “Er nú komið að því
að stundin nálgist og hjartað
fari að láta undan síga?”
Það er spurning, sem allir
mæta og allir verða að svara.
Þau orð eru nálega eins sjálf-
sögð þegar fundum manna ber
saman eins og orðin: “Komdu
sæll!”
En til eru tímabil þegar þessi
orð fá enn þá ákveðnari þýð-
ingu, en venjulega. Þau mál
eru stundum á prjónunum, sem
allir tala um við alla. Þegar
það á sér stað þá er gengið út
frá því sem sjálfsögðu að
spurningin: “Hvað er að
frétta?” eigi í raun og veru
einungis við það sérstaka mál
eða að minsta kosti eigi aðal-
lega við það.
Þannig er það meðal Vestur-
Islendinga nú sem stendur. —
Spyrji einhver og segi: “Hvað
er að frétta?” Þá finst þeim,
sem spurður er eins og spurt
hafi verið:- “Hvað er að frétta
um Sögumálið?” Þetta er ofur
skiljanlegt; það fer að líkum að
íslendingum sé ant um þetta
sitt þýðingarmesta mál. Þegar
svo var vel á veg komið að
starfsfé var fáanlegt og hæf-
asti maðurinn sem völ var á
fenginn til þess að vinna verkið
var næsta áhyggjuefnið sala
bókarinnar. “Það hefir verið
nálega ómögulegt að selja
nokkra íslenzka bók hér vestra
í seinni tíð,” sögðu menn: —
“Bara að það verði nú ekki
eins með Sögu Vestur-íslend-
inga.”
Sumir höfðu þau tíðindi að
flytja að ágætisbækur íslenzk-
ar þættu seljast hér vel ef að
þeim fengjust með löngum tíma
2—3 hundruð kaupendur. Við
þetta bættist það að bókin kom
hingað á markaðinn á stríðs-
tímum þegar hugir manna eru
negldir við alvarlegri efni. Og
ekki nóg með það heldur varð
tilviljunin að bæta gráu ofan á
svart og haga því þannig að
bókin kæmi um þann tíma árs,
sem allra tíma var erfiðastur
og óheppilegastur.
En það sýnist fylgja sumum
fyrirtækjum svo mikið lán, svo
MESSUR og FUNDIR
í kirkju Sambandssafnaðar
Messur: á hverjum sunnudegi
Kl. 11 f. h. á ensku
Kl. 7 e. h. á íslenzku.
Safnaðarnefndin: Fundir 1.
föstudag hvers mánaðar.
Hjálparnefndin: Fundir fyrsta
mánudagskveld í hverjum
mánuði.
Kvenfélagið: Fundir annan
þriðjudag hvers mánaðar,
kl. 8 að kveldinu.
Söngœfingar: Islenzkri söng-
flokkurinn á hverju fimtu-
dagskveldi.
Enski söngflokkurinn á
hverju föstudagskveldi.
Sunnudagaskólinn: Á hverjum
sunnudegi, kl. 12.15 e. h.
ÞJóÐRÆKNISFÉLAG
ÍSLENDINGA
Forseti: Dr. Richard Beck
University Station,
Grand Forks, North Dakota
Allir Islendingar í Ame-
ríku ættu að heyra til
Þjóðrœknisfélaginu
Ársgjald (þar með fylgir
Tímarit félagsins ókeypis)
$1.00, sendist fjármálarit-
ara Guðmann Levy, 251
Furby St., Winnipeg, Man.
mikil hepni eða blessun eða
hvað við getum kallað það, að
ekkert geti hindrað þau né
hnekt þeim. Þannig hefir það
verið með þetta sögumál. Því
hefði enginn trúað í byrjun að
því greiddust svo götur sem
raun hefir á orðið, og þó hefðu
menn sízt af öllu gert sér í
hugarlund að bókin fengi eins
mikla útbreiðslu um flestar
bygðir Islendinga og hún hefir
þegar hlotið. Salan hefir geng-
ið svo vel (alstaðar nema í
Winnipeg) að slíks eru engin
dæmi hér með nokkkra ís-
lenzka bók um langan tíma.
Vonandi að Winnipeg taki sér
fram og verði ekki eftirbátur
annara bygða, sérstaklega þar
sem Winnipeg er miðstöð
margra þeirra mála, sem sag-
an segir frá og eitt bindið verð-
ur að líkindum algerlega um
Winnipeg. En hvað sem því
líður þakkar Sögunefndin hin-
um mörgu^ sem þegar hafa sýnt
dugnað og fórnfýsi við út-
breiðslu bókarinnar í bygðum
og lýsir ánægju sinni yfir þvi
hversu ágætlega salan hefir
gengið þar.
Sum bréfin frá útsölufólkinu
eru svo lifgandi og hressandi
að frá þeim streymir þrek og
kraftur. Einn segir: “Að sjálf-
sögðu geri eg mitt allra bezta
til þess að útbreiða bókina;
þetta er okkar bók, okkar verk
og við verðum að leggja fram
alla krafta því til fram-
kvæmda.” Annar segir: “Við
ætlum tveir að ferðast um alla
bygðina, koma á hvert einasta
heimili og gera okkar bezta.”
Svona og þessu lík eru allflest
bréfin sem berast utan af land-
inu; það er sannarlega hug-
hreystandi.
Eg bjóst við að ritstjórar
blaðanna yrðu um þetta leyti
tilbúnir með dóma sína um -
bókina; en þeir eru önnum
kafnir og það er ekki gert í
“fljótum hasti” að lesa eins
stóra og efnismikla bók svo vel
og vandlega að hægt sé að
skrifa um hana rækilegan dóm.
Ef spurt er meðal íslendinga
nú sem stendur og sagt: “Hvað
er að frétta?” Þá er venjulega
svarið: “Þú átt við um Söguna
okkar?”
Sig. Júl. Jóhannesson.
ritari Sögunefndarinnar
ÁRSFUNDUR SAMBANDSSAFNAÐAR
í WINNIPEG
SUNNUDAGINN 2. og 9. FEBRCAR
eftir Guðsþjónustu
Kosning embœttismanna, skýrslur lesnar, o. fl.
Eru allir safnaðarmeðlimir beðnir að fjölmenna
bæði kvöldin.