Heimskringla - 26.03.1941, Síða 1
The Modern Housewife Knows
Quality That is Why She Selects
“CANADA
BREAD”
“The Quality Goes in
Before the Name Goes On”
Wedding Cakes Made to Order
PHONE 39 017
•»
ALWAYS ASK FOR—
“Butter-Nut
Bread”
The Finest Loaf in Canada
Rich as Butter—Sweet as a Nut
Made only by
CANADA BREAD CO. LTD.
LV. ÁRGANGUR
WINNIPEG, MIÐVIKUDAGINN, 26. MARZ 1941
NÚMER 26.
“Oldur” íslenzkur leikur sýndur í Samkomusal Sambandskirkju 31.8marz og 1. apríl
‘ ’ HELZTU FRÉTTIR - -
Júgóslavía sameinast
öxulríkjunum
Her Breta á Grikklandi
Croft barón og aðstoðar ,rík-
isritari Breta gat þess í lá-
varðadeild brezka þingsins í
gaer, að Bretar hefðu nú mik-
inn og vel útbúinn her í Grikk-
landi. Hann bjóst við, að þess
yrði stutt að bíða, að þeir
mættu Þjóðverjum á landa-
mærum Grikklands og Búlgar-
íu.
Hann kvað herinn nú hafa
fengið þá æfingu og þekkingu
á að eiga við hinn mikla her
Hitlers, að þarna væri engu að
kviða.
í Búlgaríu og Rúmaníu er
sagt að Hitler hafi 800,000
manna her, vel útgerðan til á-
takanna, er á Grikki og Tyrki
verður ráðist.
í sömu fréttinni er sagt, að
her Hitlers sé deilt niður sem
hér segir:
Á ítaliu og Afríku um 50,000
menn. Á Frakklandi 600,000,
Danmörku 300,000, heima í
Þýzkalandi, í Póllandi, Noregi,
Hollandi og Belgíu um 750,000
til 1,000,000.
í Belgrade í Júgóslavíu er um
það talað, að Þjóðverjar hafi
nýlega sent 18 eða 20 herdeild-
ir—um 240,000 manna til ítalíu
til þess að halda ítölum í skefj-
um og koma í veg fyrir að
ítalska stjórnin yrði rekin til að
semja sérstakan frið víð Grikki.
St. Lawrence-samningurinn
Samningur þessi, sem um 20
ár hefir verið þvælt um aftur
og fram, var loks samþyktur
18. marz í Ottawa. Fyrir hönd
Canada skrifaði Mr. King for-
sætisráðherra undir hann, en
Mr. Moffatt fyrir hönd Banda-
ríkjanna.
Svo mikill viðburður þótti
þetta, að hreyfimyndir voru í
gangi meðan á undirskriftinni
stóð.
Allur kostnaður við dýpkun
fljótsins svo að það verði skip-
gengt hafskipum vestur á stór-
vötnin, er sagður nema 266
miljón dölum. Sjá Bandaríkin
um mest af þeim kostnaði eða
alt annað en hvort landið um
sig lætur gera til orkuvirkjun-
ar meðfram fljótinu. *
Líklegast verður skjótlega á
verkinu byrjað. En sú byrjun
getur orðið löng; það er við
litlu meira en byrjun búist
næstu fimm árin.
Nýr samningur milli
Rússa og Tyrkja
Rússar og Tyrkir gerðu með
sér nýjan samning í gær, er
eftirtektaverður þykir fyrir
hve fráhverfir Rússar virðast
nú Þjóðverjum. 1 samningn-
um er sagt, að Rússar -l©fi
Tyrkjum vopnum, ef nazistar
reyna að hrekja þá burtu úr
Dardanella sundunum.
Það þótti einnig benda til, að
verið væri að reyna að koma
vitinu fyrir Júógslava að ganga
ekki í öxulsambandið, að samn-
ingur þessi er gerður sama
daginn og Júgóslavar fara til
Vín í þeim tilgangi að semja
við Hitler.
Ennfremur er sagt, að Rúss-
ar hafi síðan 1. marz enga olíu
selt Þjóðverjum.
Stjórnin og bændur
Sambandsstjórnin hefir á-
kveðið að mínka um einn
þriðja ekru fjöldann, sem
hveiti var sáð í í Vesturfylkjum
Canada á s. 1. ári. En þá var
sáð í 27 miljón ekrur. Það eru
níu miljón ekrur, sem nú verð-
ur minna sáð í á árinu 1941 en
1940. Greiðir stjórnin bændum
$4 fyrir hverja ekru, ef landið
er hvílt yfir árið. En verði það
notað fyrir hafra eða bygg,
verða aðeins $2 greiddir fyrir
ekruna.
Með því að hvíla sáðlandið,
verða því hveitibændum
greiddir 36 miljón dalir af
stjórninni; það eflir kaupgetu
þeirra.
Hveitiráðið greiðir 70c, sem
áður, fyrir hveiti á árinu 1941.
Vakir fyrir stjórninni að tekjur
jarðyrkjubænda nemi 325 mil-
jón dollurum á árinu.
Hveitiráðið kaupir sem áður
um 230 miljón mæla af hveit-
inu. I vörzlum bænda eru 146
miljónir mæla frá árinu 1940.
En nú eru í vörzlum kornfé-
laga hveiti svo að nemur 575
miljón mælum (óselt búist við
31. júlí) í lok uppskeru-ársins.
Hefir sambandsstjórnin ábyrgð
á þessu og nemur hún í pening-
um 400 miljón dölum.
Verði nú rokna uppskera á
þessu ári, getur svo farið, að
hveiti-birgðir Canada nemi
einni biljón mæla ($1,000,000,-
000) á komandi hausti..
Og þá kemur til hinna vand-
ræðanna, að geymsla er ekki
fyrir meira en 582 miljón mæla.
Fjársöfnun til stríðsins
t byrjun þessarar viku var
lagt af stað í nýja fjársöfnun-
arferð í Canada í þágu stríðsins
eða öllu heldur hermannanna,
því það sem fyrir vakir, er að
ná inn fé, svo gera megi þeim
lífið þægilegra og betra þó í
stríði sé.
Féð sem gert er ráð fyrir að
safnt, nemur $5,500,000 í Can-
ada. Skerfur þessa fylkis mun
vera $280,000. Það eru 6 félög
sem nú sem fyr leggja á sig að
annast um þessi samskot. Þau
eru Canadian Legion, I.O.D.E.,
Knights of Columbus, Salva-
tion Army, Y.M.C.A. og
Y.W.C.A.. Ætti starf þeirra að
vera metið að verðugu — og
það er bezt gert með því, að
gefa eftir getu sinni í þennan
sjóð. Þegar á alt er litið, getur
það ekki minna verið en að.
greitt sé fyrir starfi sem þessu
í þágu stríðsins. Það þættist
mörg stríðsþjóðin sæl, sem
ekki þyrfti meira að leggja í
sölurnar, en frjáls samskot til
að verja frelsi og mannréttindi
sín og annara í þessu striði.
Verið með hver eftir sinni getu.
Sprengjuárás á Berlín
Síðast liðinn mánudag (24.
marz) hófu Bretar feikna flug-
árás á Berlín. Köstuðu þeir
um 10,000 sprengjum yfir borg-
ina. Er líklegt að af því hafi
miklir skaðar hlotist þó naz-
istar hafi ekki hátt um það.
Sendingarnar voru sumar eld-
kveikju sprengjur en aðrar hin-
ar sterkustu, er til hafa verið
búnar. Þetta er 38 flugárásin
á Berlín. Hin síðasta var 12.
marz og er sögð að hafa verið
þessari meiri.
• Anhalter-járnbrautastöðin er
talið víst að hafi orðið fyrir
sprengju, því í útvarpi í gær frá
Berlín, sagði að verzlunarmála-
ráðherra Ungverja, Joseph
Varga, hefði komið til Berlínar
og verið mætt á Friedrich-
strasse-stöðinni, en lestir frá
Budapest koma vanalega á An-
halter-stöðina.
Örlæti Þjóðverja
Darlan, aðmíráll og vara-
forseti Frakklands, mintist
þess nýlega, “að Þjóðverjar
væru örlátari og mannúðlegri
en Bretar hefðu verið s. 1. ár.
Hér er brot af þeirri “örlætis
og mannúðarsögu” Þjóðverja:
80,000 frakkneskir hermenn
fallnir.
100,000 særðir.
2,000,000 herteknir.
Allur herútbúnaður Frakka
tekinn.
Öll þau matvæli er Þjóðverj-
um hefir þóknast.
Eitt hundrað biljón fránka
(100,000,000,000 fr.) í setuliðs-
kostnað.
Frelsi og heiður frönsku
þjóðarinnar.
Og það verður ekki enn sagt,
að séð sé fyrir endann á þessu
“örlæti og mannúð.”
Bruni
The Steele block — stórhýsi
með mörgum búðum og skrif-
stofum, þar á meðal Metropoli-
tan búðin, á Portage og Carl-
ton strætum brann til kaldra
kola í morgun.
THE VOYAGER
John Greenleaf Whittier
I ótal bugðum fer áin,
sem óralöng hlekk-keðja, rauð,
um sléttuna vindsvala, víða,
veglaus skóglönd og auð.
Aðeins er endur og sinnum
einstakan reyk að sjá,
í strjálum veiðiverum,
þeim viltu Assiniboins hjá.
Úr ísþrungnu norðrinu næðir
napurt inn kaldi blær;
augað af aðgæslu er þvingað
og eins þyngist höndin sem
rær.
Með annan fót úti á vatni,
en annan á rökkvandi strönd,
aðvarar engill húmsins
að aldimm nótt fari í hönd.
I
Er helsyngja-kvak sem heyr-
ist?
eða hljómur af indjána-róm?
eða vindur að feykja og flytja
fjarlægra klukkna hljóm?
Ræðarinn hugglaður hlustar
á hvarflandi misvinda-þras;
hann kannast við kvöld-hring-
inguna
klukknanna í St. Boniface.
Klukkna innar rómönsku
kirkju
sem kalla úr turnunum tveim,
á volkaða vegfara Rauðár,
og veiðimenn sléttunnar —
heim!
Svo einnig, á okkar lífsferli,
finst andkaldur norðan blær;
og löngum á lífsins Rauðá
langþreytta mannshjartað rær.
Og þegar engill húmsins
um öldur og strendur fer,
og oss dimmir loks fyrir aug-
um,
og andróður þreytir oss hér.
Sæll er þá hver sá er heyrir
hljóma síns lausnar-máls-klið,
frá klukkum í hæstum hæðum,
—samhringing um eilífan frið.
Þessi þýðing er tileinkuð
Miss Audrey Gillies, af afa
hennar, sem óskar og vonar að
hún læri vel og vandlega ís-
lenzkt mál, sem er allra tungu-
mála fegurst! — og viturlegast.
E. G. Gillies
ISLANDS-FRÉTTIR
Sextán póstpokar frá
Ameríku hafa glatast
Samkvæmt upplýsingum, er
íslenzka póststjórnin hefir
fengið frá póststjórninni í Ame-
ríku, höfðu 16 póstpokar til Is-
lands verið með skipinu “West-
ern Prince”, sem skotið var í
kaf, og allur pósturinn glatast.
Guðmundur Hlíðdal, póst- og
simamálastjóri, skýrði Morgun-
blaðinu svo frá, að hér væri um
að ræða póst frá Ameríku til
íslandi, á tímabilinu 18 nóv. til
5. des.
Alls var hér um að ræða 16
póstpoka, þar af var einn pok-
inn með ábyrgðarpóst. í hon-
um var, auk pósts frá Ameríku,
talsvert af pósti frá Norður-
löndum, aðallega Svíþjóð.
:—Mbl. 5. febr.
* * *
Þingsetningin
Alþingi verður sett á laugar-
dag. Flestir þingmenn munu
Sú illa frétt barst hingað frá
Vín í gær, að Júgóslavía hefði
loks látið bugast og sameinast
öxulríkjunum. Samningur um
þetta var gerður í Vín í gær.
1 fréttinni er tekið fram, að
eftir samningnum haldi Júgó-
slavía öllu sínu landi og sé
meira að segja lofað höfn við
Grikklandshaf. Yfir landið á
ekki her að fara, nema nauð
reki til fyrir Þjóðverja, að kom-
ast til Grikklands.
Samningur þessi er auðvitað
hinn sami og Hitler hefir gert
við Rúmaníu, Búlgaríu og Ung-
verjaland. Um sjálfstæði Júgó-
slavíu er nú líkt komið.
Serbarnir í Júgóslavíu, sem
miklir fjandmenn Þjóðverja
eru, kváðu láta órólega út af
þessum samningi. Kveður svo
mikið að því, að sagt er að upp-
reisn geti af því hlotist.
Kom færandi hendi
Wendell Willkie, sem til Tor-
onto kom s. 1. mánudag og hélt
þar ræðu í þágu fjársöfnunar
til stríðsins, kom og færandi
hendi. Þegar hann var kominn
nokkuð fram í ræðu sína, af-
henti hann fjársöfnunarnefnd-
inni ávísun, er nam 5,000 ster-
lingspundum ($22,500) frá ein-
stökum mönnum og félögum í
Bandaríkjunum.
Ræða Mr. Willkies var mikil-
væg rómuð, enda var hún ein
sterkasta áskorunin, sem út-
varp hér hefir flutt þjóð þessa
lands um að styðja Breta í
stríðinu.
Mr. King, forsætisráðherra
Canada, bauð Willkie velkom-
inn.
í förinni með Willkie var
kona hans og dóttir.
vera komnir til bæjarins, nema
Austfirðingarnir.
Vegna samkomubannsins
verður að hafa aðra tilhögun á
guðsþjónustunni fyrir þing-
setninguna, en verið hefir. —
Verður tilhögunin sú, að út-
varpað verður guðsþjónustu
frá dómkirkjunni og prédikar
þar séra Sigurbjöfn Einarsson,
hinn nýi prestur í Hallgríms-
sókn.
Dómkirkjan verður ekki opin
fyrir almenning, vegna sam-
komubannsins. Þar verða að-
eins þingmenn og þeir fáu boðs-
gestir, sem venjulega eru við
þingsetningu.—Mbl. 14. febr.
* * *
Amerísk lögregla^
í Grœnlandi
í “Norsk Titend” frá 14. jan.
er sagt frá því samkvæmt
fregn frá Stokkhólmi, að
verkamenn, sem unnið hafa við
kryolitnámurnar í Ivigtut, séu
nýkomnir til Hafnar.
Segja þeir frá, að Amer. lög-
reglulið hafi sest að í Græn-
landi, og sé amerísk lögregla í
Ivigtut.
Matarskömtun var lögleidd í
Grænlandi í vor, en skamtur-
inn er mjög ríflegur, fá Græn-
lendingar nauðsynjar sínar frá
Ameríku.
1 öðru blaði, sem hingað hef-
ir borist, er frá því sagt, að
landstjórinn í Grænlandi, er fór
til New York í sumar til þess
að semja um viðskifti við
Bandaríkjamenn, hafi skýrt
svo frá, að Grænlendingar
þurfi engrar fjárhagsaðstoðar
við, útflutningsvörur þeirra
nægi til þess að greiða með
þeim allan innflutning til
landsins.—Mbl. 14. febr.
* * *
Aðalfundur
Þjóðrœknisfélagsins
Aðalfundur Þjóðræknifélags-
ins var haldinn á miðvikudags-
kvöldið í Kaupþingssalnum. —
Var fundurinn allvel sóttur.
Formaður félagsins, Jónas
Jónsson, setti fundinn og
kvaddi til fundarstjóra Kristján
Einarsson framkvæmdastjóra,
en séra Jakob Jónsson til skrif-
ara. Síðan skýrði hann frá hel-
stu störfum fél. á síðastliðnu
ári, og þá einkum heimboði
VesturTslendinga á síðastliðnu
sumri, stuðningi félagsins við
útgáfu á Sögu Vestur-lslend-
inga, og fyrirætlun félags-
stjórnarinnar er lýtur að auk-
inni kynningu við landa vestra.
Út af þessu spunnust all-
langar umræður um það,
hvernig heimboðum Vestur-ís-
lendinga skyldi hagað í fram-
tíðinni, en allir eru sammála
um, að þeim skuli haldið á-
fram. Séra Jakob Jónsson lagði
til, að m. a. yrði boðið heim
yngri mönnum, sem væru á
miðjum starfsaldri, en- aðrir
töldu að fyrst skyldi bjóða eldri
mönnum, sem með því væri
sýnd viðurkenning fyrir vel
unnin störf.
Margir Vestur-lslendingar
voru nefndir í þessu sambandi,
og skal hér aðeins minst á
nokkra þeirra, svo sem Hjört
Þórðarson hugvitsmann og raf-
magnsfræðing, dr. B. Brands-
son í Winnipeg, Vilhjálm Stef-
ánsson, Sveinbjörn Jónsson
prófessor, Guðm. Grímsson
dómara, Sig. Júl. Jóhannesson
skáld, Jóh. Magnús Bjarnason,
Hjálmar Bergmann lögmann og
Ottó Bárðarson skólastjóra. En
vafalaust mætti lengi telja þá
Leikfélag Sambandssafnaðar
er um fleiri ár hefir eitt haldið
uppi sýningum íslenzkra leikja
vestan hafs, býður almenningi
í byrjun næstu viku einn leik-
inn enn. Hann heitir “Öldur”
og er skrifaður af séra Jakob
Jónssyni. Um þennan leik hef-
ir verið birt í þessu blaði nokk-
uð af því, sem hefir verið skrif-
að um hann heima á Islandi,
þar sem hann hefir verið leik-
inn. Skal hér ekkert endurtek-
ið af því. Á hitt skal þó mint,
að leikurinn er spennandi, að
skamt er á milli þátta, og hann
gengur skjótara en nokkur
annar leikur, sem vér höfum
séð að jafnri lengd. Leikstjór-
inn er Árni Sigurðsson í þetta
sinn. Hefir hann lagt mikið
verk í að æfa flokkinn, svo að
til efs er, að hér hafi leikendur
nokkru sinni verið betur þjálf-
aðir. Leikendur eru og felstir
þeir sem áður eru vel kunnir
fyrir list sína, svo sem Ragnar
Stefánsson, Miss Elín Hall, Haf-
steinn Jónasson, o. s. frv.
Hér er því von á góðri leik-
sýningu. Og meðan kostur er
á að sjá íslenzka leiki hér, ættu
íslendingar að sæta því.
upptaldir væru þeir menn, sem
vel væru þess verðugir að boð-
ið yrði hingað heim.
Séra Jakob Jónsson skýrði
frá því, að komið hefði til mála
að Leikfélag Reykjavíkur byði
hingað heim Árna Sigurðssyni
leikstjóra í Winnipeg.
Engar ákveðnar tillögur sam-
þykti fundurinn í þessu máli.
Árni G. Eylands, er hefir
haft reikningshald félagsins á
hendi, lagði fram reikninga
þess og voru þeir samþyktir.
Lagði hann ennfremur til, að
ársgjald félagsins, sem var 2
kr. yrði hækkað í 5 kr. með
tilliti til þess að félagið gerði
samning við Þjóðræknisfélagið
vestra um að fá Tímarit Þjóð-
ræknisfélagsins handa félags-
mönnunum, er þá fengju það
fyrir árgjald sitt. Var þeirri
tillögu vel tekið og hún sam-
þykt.
Sérstök nefnd hefir starfað
innan fulltrúaráðsins, er hefir
athugað hvað tiltækilegast
væri til þess að auka bókavið-
skifti milli Austur- og Vestur-
Islendinga. Guðm. Finnboga-
son skýrði frá áliti hennar.
Þvínæst flutti Soffonías Þor-
kelsson verksmiðjueigandi
ræðu um bókaútgáfu Vestur-
Islendinga og bókakaup þeirra
héðan að heiman. Hafði hann
ýmsar viturlegar tillögur að
gera í því máli, sem vonandi
komast í framkvæmd.
Stjórnarkosning fór fram á
fundinum. Jónas Jónsson, er
gegnt hefir formannsstörfum,
baðst undan endurkosningu, og
var Árni G. Eylands kosinn í
hans stað. En þeir Ásgeir Ás-
geirsson og Valtýr Stefánsson,
sem voru fyrir í stjórninni,
voru kosnir með Árna.
Frh. á 5 bls.
Þess var getið í útvarpsfrétt-
um hér í gær — og haft eftir
Þjóðverjum, að nazistar litu nú
á Island sem undir vernd
Breta og skip er sigldu að eða
frá landinu, sættu hinu sama
og skip Breta.
Quisling er sagt að fái dag-
lega bréf frá löndum sínum í
Noregi er fara fram á það við
hann, að hann fremji sjálfs-
morð.