Heimskringla - 26.03.1941, Blaðsíða 4
4. SÍÐA
HEIMSKRINGLA
WINNIPEG, 26. MARZ 1941
llicimskrmgla
(StofnuB 111«;
Kemur út A hverjum miBvikudegi.
Elgendur:
THE VIKING PRESS LTD.
Ij« og SSS Sargent Avenue, Winnipef
Talsimia 86 537
Ver8 blaðslns er $3.00 é.rgangurlrm borglst
tyrirfram. Allar borganir sendist:
THE VIKING PRESS LTD.
011 vltSakifta bréf blaðlnu aðlútandl sendlst:
Manager J. B. SKAPTASON
853 Sargent Ave., Winnipeg
Ritstjóri STEFAN EINARSSON
Utanáskrift til ritstjórans:
EDITOR HEIMSKRINOLA
153 Sargent Ave., Winnipeg
"Helmskrlngla" ls publlahed
and prlnted by
THE VIKIVO PRESS LTD.
153-855 Sargent Avenue, Winnipeg Jfra.
Telepiione: 86 537
WINNIPEG, 26. MARZ 1941
ÞREYTA
Við sem nú erum uppi, heyrum líkleg-
ast fá orð eins títt á vörum manna og
orðið þreytu. En það skrítna við þetta
er, að það er ekki þreyta af vinnu, sem
átt er við. Það skilur hver maður, að
ströng og uppihaldslaus vinna þreytir.
En sú þreyta sem hér er átt við, kemur
fram í alt öðru. Hennar verður tíðast
vart á skemtisamkomum, vegna þess að
oflangar ræður eru þar fluttar. Ræður
sem fara fram úr fimm mínútum, að
maður ekki segji tíu, eru alt of þreytandi.
Hvað fróðlegar ræðurnar eru, kemur
ekki til greina. Þær olla sömu þreytunni
hvernig sem þær eru.
Á íslenzkum skemtifundi ónefndum í
þessum bæ, bauð maður nýlega upp á
nokkrar lausavísur, sem ortar voru flest-
ar hér vestra, og skýrði um leið frá
ástæðunni eða tilefni sumra þeirra. —
Margar af vísunum hafa aldrei á prenti
sézt. Þær voru að vísu misjafnar, en
einstöku þó ágætar. En nú var lest-
urinn farinn að nálgast 20 mínúturnar.
Þá var þess heldur ekki lengi að bíða, að
farið var að kvarta undan þreytu, og
lesturinn væri að verða of langur. Sá er
þetta ritar stjórnaði skemtiskránni. —
Viðstatt var aðeins eldra fólk, fimtugt og
þar yfir. Oss varð á að spyrja, hverju
þetta sætti? Við hefðum komið hingað
til að skemta okkur og með hverju öðru
en þessu gætum við skemt okkur, sem
of stirð værum orðin til að dansa og ó-
ljúft alt hopp og hí? Við því var ekkert
sagt.
Dæmi þessu lík mætti lengi telja. Það
er ekki á þetta atvik bent sem neitt sér-
stakt. Þreytan, sem þar kom fram, er,
algeng. Hennar verður vart á hverri
samkomu, í kirkjum, á íslendingadögum,
á þjóðræknisþingum. Henni skýtur og
skjótt upp í því sem lesið er. Það er
undantekningarlaust sózt eftir að lesa
styztu greinarnar í blöðunum og styztu
sögurnar og fréttirnar. Alt annað er svo
þreytandi!
Hvað veldur þessari andlegu þreytu,
að geta ekki fylgst með því, sem skrifað
er, eða lesið, nema fáeinar mínútur í
senn? Það er ekki gott að segja. En
eitt er víst. Hún ber vott um andlegt
þróttleysi. Sálarþrekið er ekki meira
en þetta, að ekki er hægt að fylgjast með
efninu í ræðunni eða greininni, nema
mjög stutt í einu. Þá slitnar þráðurinn
og alt verður að einum hrærigraut fyrir
hugskotssjónum áheyrandans og þá fer
sem vonlegt er, áhuginn að dvína.
Þetta hugar-ástand er orðið æði ólíkt
því, sem var heima, er sögur og fróðleik-
ur, alt andlegt fóður, sem náðist í, var
lesið kvöldvökurnar út, og menn fylgd-
ust svo með lestrinum, að hætta varð, ef
fram i eldhús þurfti að hlaupa til að líta
eftir hvernig hlutunum þar reiddi af,
Þar var ekki kvartað um þreytu. Nei —
þar var fylgst með lestrinum og því
lengur, sem lesið var, þeim mun meiri
fróðleikur var drukkinn í sig og með
sama ákafanum.
Að þreytu umkvörtuninni kveður nú
orðið svo mikið, að margur veigrar sér
við, að koma fram á íslenzkum samkom-
um eða hátíðum, sem eitthvað nýtilegt
hefir að bjóða. Hinir þreyttu eru ekkert
að biðja um fróðleik. Það er andleg
fyrirhöfn að fylgjast með honum. Og
hana eru flestir ófúsir að leggja á sig.
Ef að þessi ríkjandi aldarháttur hefði
nú ekkert alvarlegra í för með sér, en
það, sem á hefir verið minst, eða það
eitt, að ófróðlegar ræður, ef aðeins eru
nógu stuttar, væru fluttar á samkomum,
til þess að þreyta ekki samkomugesti,
skyldum vér ekkert um þetta efni segja.
En sannleikurinn er, að hér liggur víð-
tækt efni að baki sem vert er að íhuga
sem vandlegast. Það er þetta. Er flaust-
ur nútímans svo mikið, að menn eigi
bágara með en áður að gerhugsa hlut-
ina? Tvístra lífshættirnir nú svo hugs-
uninni, að hún geti ekki staðnæmst til
lengdar við neitt vist eða eitt efni? Ef
svo er, virðist í raun réttri um andlega
afturför að ræða frá því sem við þektum
heima á Islandi.
FRAMTÍÐAR VIÐHORF
Eftir Stuart Chase
Gunnbj. Stefánsson þýddi
“Berið saman framsýni yðar og hug-
boð fyrir árið 1941 við það sem með fullri
vissu virðist að fram muni koma, eftir
skoðun höfundarins. Ennfremur við það
sem miklar líkur eru til að rætist og
einnig það sem hugsast gæti að komi
fram.”
Hver svör eru við þessum eftirfar-
andi spuringum?
Heldur Bandaríkjaþjóðin áfram að
verða voldugasta þjóð heimsins?
Er hugsanlegt að Bandaríkin verði
gjaldþrota?
Verður ráðist á Bandaríkin með mn-
rásarher?
Hvað kemur fyrir, ef Bandaríkin fara
í stríð sem bandaþjóð Bretlands?
Aukast stjórnar yfirráð yfir hagfræði-
legu þjóðkerfi voru?
Hvað kæmi fyrir ef vér mistum utan-
ríkjaverzlun vora?
Fer Þýzkaland í stríð við Rússland?
Fer Rússland í strð við Japan um yfir-
ráð yfir Asíu?
mn
Ritstjórar tímaritsins “Cosmopolitan”
(Heimsborgarinn), hafa beðið mig að
skýra frá því, er eg sæi í framtíðinni, og
með skyndilegri ályktun, hefi eg orðið
við áeggjan þeirra . Spámenn liðins tíma
hafa eigi reynst svo áreiðanlegir, síðan
heimurinn byrjaði að liðast sundur eftir
Munich samningana.
Þeir fullvissuðu oss um, það á meðal
annars, að Hitler væri aðeins með blekk-
ingar, og myndi eigi berjast, að Rússland
og Þýzkaland myndu aldrei gera samn
ing með sér, að Rússland gæti eigi sigr-
að hina hughraustu Finna, að “Maginot
varnarvirki Frakka væru ósigrandi, að
franski herinn væri hraustasti og best
vígbúni her heimsins, að ítalía myndi
að lokum gera bandalag við Frakka og
Breta; að stríðið í Kína myndi ríða
Japan að fullu og svona mætti halda
áfram, og þetta var ályktað eftir bestu
vitneskju og rannsóknum.
Eðlilega er eg mjög hikandi við að
bætast í hóp þessara spásagna anda, en í
kyrþey lágnættisins rísa spurningar
huga mínum, er eg reyni að finna svör
við. Hvað er í vændum? Hvaða undir-
búning þurfum vér hér í Ameríku að
gera?
Að morgninum virði eg fyrir mér þær
hugmyndir, er eg hefi séð að nóttunni.
Sumar þeirra eru góðar á að líta, aðrar
valda mér hins mesta áhuga. En ef eg á
að vera sjálfum mér samkvæmur, þá
hlýt eg að geta þeirra eins og hinna.
Þær sýna eigi hluti né viðhorf, sem eg
æski eftir að birtist mér, heldur það sem
mér finst að muni koma fram, eða geti
rætst innan næstu tíu ára, hvort sem
mér líkar það betur eða ver.
Til að tryggja sjálfann mig fyrir of
mikilli ónákvæmni, þá ætla eg að skifta
þessum atburðum í þrjá flokka.
Fyrst þeim, sem mér virðist augljóst
að muni eiga sér stað. 1 þessum flokki
eru óhreykjandi sannindi á þessum tím-
/Um yfir stefnur og viðburði svo áhrifa-
ríka, að ekkert getur breytt þeim í ná-
inni framtíð. Þeir munu rætast, þrátt
fyrir það hverjir það eru sem vinna
styrjaldir eða kosningar.
í annan flokk skipa eg þeim atburð-
um, sem sterkar líkur eru til að muni
eiga sér stað. Eg er þess þó alls eigi
fullviss, að svo verði, en alt bendir fylli-
lega til þess.
Ef eg ætti að gefa fullnaðar úrskurð,
myndi eg segja að þeir rættust.
f þriðja flokkinn skipa eg þeim atburð-
um, sem einhver ástæða er til að hugsa
sér, að gætu viljað til, en um þá
vildi eg enga fullyrðingu gera. Þó sé eg
enga ástæðu til, að þeir gætu eigi viljað
til undir vissum aðstæðum. Og ef eg
væri bandarískur stjórnmálamaður, eða
hermálaráðherra, þá myndi eg nú þegar
hefjast handa að sporna við þeim.
Viðburðir sem virðast bersýnilegir:
Bandaríkin munu halda áfram að verða
voldugasta þjóð heimsins. 1 þeim eru
nú um helmingur allrar stóriðnaðar fram
leiðslu í heiminum. Þar eru einnig
helmingur allrar nothæfrar orku frá
kolum, olíu og vatnsafli.
Með auknum herviðbúnaði, verður
þessum hlutföllum áreiðanlega haldið
við. Þýzkur og breskur stóriðnaður ligg-
ur undir stórskemdum frá sprengiárás-
um. Slíkt veldur því að ekkert eitt þjóð-
ríki né samband af ríkjum, gætu fram-
leitt meira en vér, ef vér snerum stóriðn-
aðarkrafti vorum að því að framleiða
stál, olíu, kol, trjávið, byssur, skip, flug-
vélar bryndreka, hús vefnaðarvörur,
fæðutegundir eða nokkuð annað sem
hægt væri að koma stóriðnaði við.
Með miklum fjárframlögum til auk-
inna hervarna, verður góðæri í landinu
eins lengi og fé er varið til þeirra. Enn-
fremur eins lengi og vér höfum nægilegt
af vinnulausum mönnum, iðnaðarvélum
og uppskeru þá þurfum vér eigi sem
þjóðfélag að fórna neyslu á framleiðslu
vorri, né hagkvæmilegum framförum í
landinu.
Tíminn til að velja á milli byssa og
smjörs kemur fyrst, þegar allir at-
vinnulausir menn hafa tekið til starfa.
Bandaríkin munu eigi verða gjald-
þrota.
Eins lengi og vér höfum vinnukraft og
hráefni, þá geta bankarnir með verð-
bréfum sínum og töluliðum eigi neytt oss
i ríkisgjaldþrot. Sá heimur, er nú er að
birtast oss, skipar mönnum og efni í
fyrsta lið, peningum í annan.
Þýzkajand hafði enga peninga og ekk-
ert lánstraust. Þó höfðu þýzk stjórnar-
völd á sjö árum haft stórfeldari hernað-
arviðbúnað, en nokkru sinni áður hafði
þekst í heiminum. 1 landinu var nóg til
af mönnum, efni og orku, og Dr. Schacht
sá um gjaldmiðilinn. Ef bandarísk
stjórnarvöld sem hafa yfir margfalt meiri
auðlindum að ráða en Þýzkaland, en til-
tölulega minni hernaðarkostnað, stýrðu
landi voru í gjaldþrot, þá hefðu þau sann-
að oss að þau þyldu enga samkepni á
við stjórnarvöld Þýzkalands í hinum
raunverulega heimi manna, efnis og
orku. Sé eg fullviss um nokkurn skap-
aðan hlut, þá er eg fullviss um, að þau
munu þola slíka samkepni.
Verðlækkun á vörum mun eigi eiga sér
stað sem nokkru munar, eða hafa nein
hættuleg áhrif uns nálega allir vinnu-
lausir menn og starfsvélar eru starfandi.
Eg efast um að slíkt kæmi fyrir innan
þriggja ára. Þegar að þeim tíma kem-
ur, nema sambandsstjórnin verði ó-
hyggnari en hún hefir verið, er hægt að
stemma stigu fyri verðhækkun með því
að takmarka vald viðlagasjóðskerfisins.
í Þýzkalandi þar sem ekkert atvinnu-
leysi hefir verið, hefir mjög lítil verð-
hækkun átt sér stað. Á Bretlandi, sem
hafði nálega ekkert vinnuleysi í nóv.
1940, hefir átt sér stað talsverð verk-
hækkun. Verð á fæðutegundum og föt-
um fer hækkandi á Englandi. Þarna
höfum vér tvö dæmi, sem vér getum
numið nokkuð af. Yfirráð yfir hagfræði-
legu þjóðlífi voru af hálfu stjórnarinnar
munu aukast með auknum hervarna-
kostnaði.
Ríkið leggur féð fram við allan þann
kostnað, og enginn skyldi ætla stjórn-
areftirlit færi þverrandi. Fyrsta skylda
ríkisins er að verja landið. Öllu verður
að ryðja úr vegi að því marki, og það
verður gert.
Á hinu liðna krepputímabili varð sam-
bandsstjórnin að ná auknum yfirráðum
frá því sem áður var. Á þessum hættu-
legu stríðstímum hlýtur hún að fá vald
sitt aukið enn meira.
Það er ef til vill eigi æskilegast sem
skyldi, en óhjákvæmilegt. Sterk og at-
hafnasöm sambandsstjórn. mun sitja að
völdum um nokkra hríð, eftir að fjár-
eyðsla til hervarna lýkur. Hvers vegna?
Vegna þess, að miljónir af borgurum rik-
isins verða atvinnulausir og þúsundir
verksmiðja óstarfræktar þegar eigi er
þörf á meiri herskipum né byssum. Þá
verður sambandsstjórnin að finna ný
störf fyrir alt þetta fólk, eða horfast í
augu við hið gífurlegasta krepputímabil
í sögu þjóðarinnar.
Ef Bandaríkin fara í stríðið, aukast
yfirráð sjtórnarinnar svo mjög, að land-
íð verður nálega undir einræðis hag-
fræði skipulagi. Til sönnunar þessum
óvæntu athugunum, þarf eigi annað en
lesa stefnuskrá hermáladeildarinnar,
sem samin hefir verið fyrir löngu síðan.
Samkvæmt henni verður stjórnfræðilegt
lýðræði og starfsræksla einstaklingins-
stofnana afnumin yfir það
tímabil sem stríð stendur yfir.
Ef til vill lengur. Sérstætt þjóð-
legt sjálfstæði eins og vér höf-
um þekt það, fer óðum hverf-
andi. Engin þjóð getur haldið
uppi þjóðréttindum sínum á
vorum tímum, nema hún hafi
tíu þúsund hernaðar flugvélar,
og verksmiðjukraft til að
halda þeim við. Með því er átt
við að smáþjóðir hljóta að
ganga í þjóðasamband, eða að
öðrum kosti leggjast {índir
vernd einhverrar stórþjóðar,
sem ræður yfir tíu þúsund her-
flugvélum. Vér skulum gefa
gaum að smáþjóðum í Evrópu
og Asiu um þessar mundir. —
Ennfremur að Suður-Ameríku
þjóðunum, sem hafa enga þörf
á að auka landsvæði sín til að
geta fullnægt hagfræðilegri
þörf sinni. Framh.
FRÓÐLEIKSMOLAR
(Um Canada)
Blöð og Tímarit: 1 Canada
eru gefin út 1805 blöð og tíma-
rit á ári. Auk þess er greitt
$9,822,000 fyrir erlend blöð og
rit. Fyrir því að menn hafi eitt-
hvað að lesa virðist vel séð.
Fyrsta blaðið hér, stofnaði
maður að nafni John Bushnell
árið 1752. Það var gefið út í
Halifax og hét “Halifax Gaz-
ette”. Blað þetta er ennþá gef-
ið út, en nafninu hefir verið
breytt að ofurlitlu leyti; það
heitir nú “Nova Scotia Royal
Gazette”, en er að öðru leyti
sama blaðið.
Af þessum blaðasæg eru 116
dagblöð. 9 blöð koma út annan
hvorn dag eða þrisvar á viku,
25 tvisvar á viku, 1010 viku-
lega, 14 aðra hvora viku, 43
tvisvar eða oftar á mánuði, 454
mánaðarlega, 19 annanhvorn
mánuð, 55 hverja 3 mánuði, 60
á ýmsum tímum — eða alls
1805 blöð og rit.
Af dagblöðunum eru 40 gefin
út í Ontario-fylki, þar eru og
350 vikublöð og 183 mánaðar-
blöð eða rit. í Quebec eru 19
dagblöð, 152 vikublöð, 154 mán-
aðarrit. Næst er British Col-
umbia með 18 dagblöð, 83 viku-
blöð og 35 mánaðarrit. Nova
Scotia hefir 9 dagblöð, 41 viku-
blað og 8 mánaðarrit. Mani-
toba: 8. dagblöð, 92 vikublöð og
42 mánaðarrit. Alberta hefir 6
dagblöð, 99 vikublöð og 8 mán-
aðarrit. I Saskatchewan eru
gefin út 5 dagblöð, 155 viku-
blöð og 14 mánaðarrit. I New
Brunswick eru 7 dagblöð, 21
vikublað og 8 mánaðarrit. —
Prince Edward-eyja og New
foundland hafa sín 2 dagblöðin
hvort og 5 vikublöð hið fyrra en
hið síðara 10.
Blöðin eru auk ensku og
frönsku á þessum málum: kín-
versku, króatisku, tékknesku,
dönsku, hollensku, finsku,
þýzku, grísku, ungversku, ís-
(-lenzku, ítölsku, japönsku, he-
bresku, norsku pólsku, rú-
mönsku, rússnesku, spönsku,
svensku og úkrainisku.
* * *
Ensku kunnátta: Tvö tungu-
mál eru jafn rétthá í Canada:
enska og frakkneska. Mann-
talið 1931, sýnir að 15 af hundr-
aði af þjóðinni, að undanskild-
um öllum undir 10 ára aldri
gátu ekki talað ensku. Meira
en 48% af Quebec-búum, kváð-
ust ekki geta talað ensku. Af
Frökkum í Quebec tala ekki 61
af hundraði ensku; í New
Brunswick heldur ekki 11%. —
Fylkið sem mest enska er töluð
í og enskast er að því leyti í
Canada, er Prince Edward Is-
land. Aðeins einn af hverjum
300 manns, getur ekki mælt á
enska tungu. Nova-Scotia er
næst með 1% óenskumælandi.
1 Ontario eru 2% sem ekki eru
enskumælandi. í Vesturfylkj-
unum eru að jafnaði 4 af 100,
sem ekki mæla á enska tungu.
eða mótor-hjól): Árið 1908 voru
3054 mótorferðatæki (aðallega
bílar) í Canada. Árið 1939 voru
ferðatækin orðin 1,439,245, sem
svarar til þess að áttundi hver
maður (nákvæmlega reiknað
7.9) eigi bíl eða vagn eða mót-
orhjól.
I eldsneytisskatt (gas tax)
heimtu stjórnir fylkjanna $51,-
945,360 og fyrir ökuleyfi bæði
fyrir bílana og bílstjóra $27,-
961,132 — eða alls $79,915,492.
Eldsneytið (gasolía) sem far-
tæki þessi brenna, nemur á ári
807,666,000 gallónum.
Árið 1939 dóu 1,584 menn af
bílslysum í Canada. Fer þeim
þó fækkandi, en eru samt há
borin saman við dauðsföll af
járnbrautaslysum, sem voru
aðeins 197 á árinu.
í byrjun núverandi stríðs,
voru 12 bílaverksmiðjur í Can-
ada. Þær framleiddu 166,086
bíla árlega er kostuðu um
$108,158,725. Með vélapörtum
er þær gerðu, nam framleiðsl-
an alls $116,746,239. Innstæðu-
féð er sagt um 60 miljón dalir.
Atvinnu veittu þær 14,872
mönnum árlega og kaup goldið
nam $20,993,362.
ORÐ MERKRA MANNA
UM TÍMANN
Tíminn er græðijurt
sára.—Franklin
allra
Tíminn er líf sálarinnar.
Longfellow
__ * * *
Eg sóaði tímanum og nú só-
ar tíminn æfi minni.
Shaekspeare
Tíminn er vor vitrasti
gjafi.—Perikles.
ráð-
Tíminn opnar augu fleiri
manna en vísindalegar ástæð-
ur geta gert.—Thomas Paine.
* * •
Tíminn — þú, sem græðir alt
og myrðir alt.—Shakespeare
* * «
Manninum virðist ekki eins
ábótavant í nokkru og því, að
hafa tímann á valdi sinu.
Zeno
* * •
Svo stutt sem æfi vor er,
styttum við hana þó mikið með
því, hvernig við eyðum tím-
anum.—Victor Hugo
* * *
Eilífðin gefur aldrei neitt til
baka af mínútunum, sem við
eyðum gálaust.—Schiller.
* * *
Hyldýpi tímans, það er gröf
vor allra.—Dryden
* * *
Æfi-örlög vor fara eftir notk-
un tímans.—Chapman.
* * *
Tíminn breiðir yfir alt; list
hans er í því fólgin, að gera alla
hluti að moldu.
Sir Thomas Browne
* « •
Tíminn eyðileggur alt ráða-
brugg mannsins, en staðfestir
dóm náttúrunnar.—Cicero
* * *
Tíminn er dýrmætur. En
sannleikurinn er dýrmætari en
tíminn.—Beaconsfield
* * *
Að þekkja hið sanna gildi
tímans, er mest um vert. Lærið
að njóta hvers augnabliks
réttilega. Iðjuleysi, leti leiðir
af sér, að öllu er slegið á frest,
sem gera þarf. Geymið ekki til
morguns það sem gera á í dag.
Jarlinn af Chesterfield
Áttundi hver maður á mótor-
ferðatœki (bíl, flutningsvagn
Kennarinn: Eftirmenn Mú-
hameðs hétu Kalifar. En hvað
hét ríki þeirra?
Lærisveinninn: Kalifornía?!
Faðirinn: Hvaða ástæðu hef-
ir þú til þess að kvænast stúlk-
unni?
Sonurinn: Ástæðu? Eg elska
hana!
Faðirinn: Það er ekki á-
stæða! Það er afsökun!