Heimskringla - 11.06.1941, Side 4
4. SIÐA
HEIMSKRINGLA
WINNIPEG, 11. JÚNÍ 1941
Hfeítnskrhtglci
(StofnuO 1886)
Kemur út á hverjum miðvikudegi.
Eigendur:
THE VIKING PRESS LTD.
853 og 855 Sargent Avenue, Winnipeg
Talsími: 86 537
VerS blaðsins er $3.00 árgangurinn, borgist
fyrirfram. Allar borganir sendist:
THE VIKING PRESS LTD.
öll viðskifta bréf blaSinu aðlútandi sendist:
Manager J. B. SKAPTASON
853 Sargent Ave., Winnipeg
Ritstjóri STEFAN EINARSSON
Uitanáskrift til ritstjórans:
EDITOR HEIMSKRINGLA
853 Sargent Ave., Winnipeg
"Heimskringla” is published
and printed by
THE VIKING PRESS LTD.
853-855 Sargent Avenue, Winnipeg, Man.
Telephone: 86 537
WINNIPEG, 11. JÚNI 1941
MINNINGAR-HATÍÐ
SAMBANDSSAFNAÐAR
Eins og áður hefir verið getið, minnist
Únitara- eða Sambandssöfnuðurinn í
Winnipeg hálfrar aldar afmælis síns í
byrjun næstu viku. Hefir Heimskringla
verið beðin að minna á það helzta, sem
fram fer. Er það eftir skrá, sem undir-
búningsnefnd hátíðarhaldsins hefir látið
blaðinu í té, það sem hér segir:
Minningarhátíðin hefst með guðs-
þjónustu í Sambandskirkjunni sunnu-
daginn, 15. júní, kl. 2 e. h. Taka prestar
Sameinaða kirkjufélagsins þátt í henni.
Á sunnudagskvöldið, kl. 7.30 hefst
samkoma, með góðri skemtiskrá, er fer
fram uppi í kirkjunni og veitingum á
eftir í samkomusalnum. Stuttar ræður
verða þar fluttar um starfsemi safnaðar-
ins á fyrri árum af þessum: Gísla Jóns-
syni, dr. M. B. Halldórssyni, Friðrik
Sveinssyni, P. S. Pálssyni, frú Steinunni
Sommerville og frú P. S. Pálsson. Þá
verða og sýndar myndir af ýmsu starfi
og starfsmönnum safnaðarins frá fyrri
og síðari tímum. Söngur verður á milli
ræðanna; ennfremur verða þarna flutt
frumort kvæði í tilefni af hálfrar aldar
afmælinu.
Á mánudagskvöld er samkoma, er
byrja mun um sama leyti og fyrra kvöld-
ið. Aðal ræðumenn það kvöld verða
Rev. Raymond B. Bragg frá Minneapolis,
séra Albert Kristjánsson og frú Sigríður
Árnason frá Lundar. Söngflokkur safn-
aðarins skemtir með margbreytilegum
söng eða kór- og einsöng. Þá verða
ávörp flutt frá ýmsum félögum og stofn-
unum, skeyti lesin o. s. frv.
Eins og menn sjá af þessu, hefir undir-
búningsnefndin vandað til þessarar
minningar-hátíðar. Og það þarf naum-
ast að taka fram, að þangað eru allir
velkomnir.
Minningar hátíðinni stjórnar núver-
and forséti Sambandssafnaðar, Bergþór
Emil Johnson.
Með þessari minningarhátíð fer ekki
hjá því, að ýmislegt rifjist upp í sögu
þjóðlífs vors hér vestra, sem margar
kærar minningai* hinna eldri eru bundn-
ar við, en hinum yngri er fróðleikur,
mikils eða lítils-verður að vísu eftir því,
hvað rækt hans líður til andlega erfða-
fjárins, er forfeður þeirra hafa þeim hér
eftirskilið, og íslenzkar stofnanir og fé-
lagsstörf bera að minsta kosti vitni um í
framtíðinni.
THE BOOK OF THE ICELANDERS
(íslendingabók)
By Ari Thorgilsson
Edited and translated with an
introductory Essay and Notes
by Halldór Hermannsson.
Tuttugasti árgangur þess ritsafns sem
próf. Halldór Hermannsson gefur út
undir nafninu Islandica, er þessi fræga
bók, með þýðingu, athugasemdum við
hvern kapítula og inngangi.
1 innganginum segir útgefandinn sögu
Ara fróða eftir þeim heimildum sem fyfir
hendi eru, en þær eru flestar í þessari
bók hans. Ari fæddist ári síðar eða
tveim en Haraldur harðráði féll (1066),
faðir hans druknaði skömmu síðar, þá
fór hann í fóstur til afa síns Gellis (sem
var sonur Guðrúnar ósvífsdóttur). 1
þann tíð hófust snörpustu deilur milli
móðurföður Ara, Kolbeins lögsögumanns
(sonar Brennu-Flosa) og Isleifs biskups,
Gellir þóttist þurfa að leita sér sálu-
hjálpar, fór úr landi í Rómferð og kom
ekki aftur, en sveininn 7 vetra tók til
fósturs Hallur í Haukadal (sem hann
seinna gaf viðurnefnið “hinn mildi”).
Með Halli var líka sonur hins aðilans í
deilunni (sem sloknaði um stund með
því, að lögsögumaðurinn dó í banni)
Teitur prestur sem kendi Ara geistleg
fræði. Ari tók prestvígslu, fór frá
Haukadal um það leyti sem Hallur dó,
vestur að Staðastað, að haldið er, og
tók líklega við goðorði forfeðra sinna.
Þá réð Gizur biskup mestu á Islanldi
með frænda sínum Markúsi' lögsögu-
manni og Sæmundi presti en annara
höfðingja er að litlu getið. Þá var það
siður að höfðingjar gerðust prestar eða
héldu presta sem heimamenn, þar til
manntal var tekið og skattur lögtekinn
(tíundarlög 1096) sem var skift í 4 staði,
einn fékk biskup, annan prestar, þriðja
kirkjur, fjórða fátækir. Frá þessu seg-
ir Ari og þykir ganga kraftaverki næst,
þakkar það þrem áðurnefndum höfðingj-
um og mest vinsældum Gizurar bps., að
landsmenn samþyktu að leggja á sig ár-
legan skatt til þessara þarfa, enda voru
þá ekki liðin meir en sextán ár frá því
ísleifur biskup hafði lýst því á sinni
banasæng, að enginn mundi fást til að
verða biskup, nema íslendingar lofuðu
að veita honum meiri hlýðni en sér hefði
verið sýnd.
Nú leið enn hálfur mannsaldur, Gizur
gerðist hrumur og heilsulaus og þá
skaut upp til virðinga Hafliða Mássyni
(sem 4tti bróðurdóttur biskups, amma
hennar, Dalla, var ættuð úr Víðidal).
1 fyrsta sinn þegar Gizur biskup gat ekki
sótt alþingi, var samþykt að skrifa
skyldi lögin næsta vetur, á Breiðaból-
stað hjá Hafliða, var þá ritaður Vígs-lóði
og margt annað í lögum, og lesið upp í
lögréttu af kennimönnum á næsta þingi.
Gizkað er á, að Ari hafi átt þátt í þessu
löggjafar starfi, ef ,til vill lesið Hafliða
skrá í lögréttu. Það sama vor dó Gizur
biskup (28. maí 1118), en svo mikið
fjölmenni sótti það þing, til deilu Haf-
liða og Þorgils Oddasonar, að ekki voru
dæmi til síðan Brennumálið og málið
út af Heiðarvígum voru sótt og varin
rúmum hundrað árum fyr. Að kenni-
menn sögðu upp lög en ekki leikmaður
var mikil nýung, enda er svo að sjá, að
enginn viti hvenær landslögin, sem nefn-
ast Grágás eru samin og af hverjum,
heldur eru tíðindin af löggjafar starfi
íslendinga upp frá þessu mestmegnis
þau, ef messudagar eru lögteknir, eða
önnur mál, sem kirkjan lét til sín taka,
unz lögtekið var nál. miðri 13. öld, er
þeir Brandur ábóti og Gizur Þorvald-
son komu út, að ef landslög og guðslög
greindi á, skyldu guðs lög ráða.
Ekki vita menn um kvonfang Ara né
hagi hans að öðru leyti, en.frægð sina
hefir hann fengið af ritum sínum. Seinni
tíma menn hafa eignað honum ýmislegt
sem öðrum þykir vafasamt og skrifað
um það langar ritgerðir. Ástæðan er sú
að formáli Isl. bókar hefir verið mis-
jafnlega Upp tekinn en hann hljóðar svo:
“íslendinga bók görða ek fyrst biskupum
várum Þorláki og Katli og sýndaek bæði
þeim ok Sæmundi presti. En með því
at þeim líkaði svá at hafa eðr þar viðr
auka, þá skrifaðaek þessa of et sama
far fyr utan ættar tölu og konunga
æfi, ok jók ek því er mér varð síðan
kunnara ok nú er görr sagt á þessi en á
þeirri. En hvatki er missagt er í fræðum
þessum, þá er skylt at hafa þat heldur er
s.annara reynist.”
Hér skyldi maður halda að skilja bæri
svo, að biskupum og Sæmundi líkaði
bókin eins og hún var (“líkaði svá at
hafa”) eða ef breytt væri, þá að bæta
við hana. Setninguna væri þá þannig
að skilja: Þá skrifaði eg þessa bók. Hún
er um Islendinga líka (eins og hin) nema
það sem segir um ættartölu og æfi kon-
unga. En nú vill svo til, að í formála
Heimskringlu (sem er eignaður Snorra
Sturlusyni) er rakið innihald Isl. bókar
álíkt þeirri sem vér nú höfum, og bætt
við: “Hann ritaði sem hann sjálfur segir
æfi Noregs konunga eftir sögu Odds
Kolssonar, Hallsonar af Síðu, en Oddur
nam at Þorgeiri afráðskoll, þeim manni
er vitur var og svá gamall, at hann bjó
þá í Niðarnesi er Hákon jarl hinn ríki
var drepinn.” Til og frá í sögum er
vitnað til Ara um ára tal og í einu
handriti (Fríssbók) eru konunga sög-
urnar eignaðar honum. Enn aðrir eigna
honum Landnámu að upphafi. Af þessu
hafa merkir menn haft fyrir satt, að
Islendinga bók hin fyrri hafi verið miklu
lengri en hin síðari, þá fyrri hafi Snorri
haft undir hönum, með ættar tölu og
sögu Noregs konunga, sem Ari hafi slept
úr þegar hann skrifaði þá seinni. Þess
vegna eigi að lesa: “Þessa bók skrifaði eg
um sama efni (og þá fyrri), slepti úr
ættar tölu og konunga æfi, og bætti við
því er eg fékk að vita glöggari deili á
síðar.”
Enn eru þeir sem ætla að formálinn
segi til þess, að bókin seinni sé hinni
fyrri samhljóða nema að því leyti sem
hin seinni hafi ættartölu og konunga æfi
umfram hina fyrri. Þá ætlun segir út-
gefandi stafa frá dögum Árna Magnús-
sonar. Ekki fellir hann dóm á þessar
tilgátur en hagar sinni útgáfu svo að
,hann tekur úr ættartölur og lætur
prenta í viðbæti.
Mörgum getum er leitt um það, hvað
komið hafi Ara til að skrifa þessa bók.
Sömuleiðis um hvenær rituð sé. Enn-
fremur um hvað þessi síðari bók geymi
umfram hina fyrri. Útgefandinn ritar
kunnuglega um þessi efni, sem við mátti
búast, handgenginn vorum fornu ritum
og öllu sem hefir verið skrifað um þau
fyr og síðar. Það er vafalaust fárra
meðfæri að gera betur, þó engan veginn
vonlaust, að svo fari. Rannsóknum
í sögu Islands fleygir fram með ári
hverju, í þeirri fræði, sem öðrum má
kanna heimildir vandlega og með skerpu
skilnings og krafti ímyndunar gera skýr-
ari myndir og nærfærnari því sanna, en
áður hafa þekst.
Þessi útgáfa mun helzt ætluð til náms
þeim sem girnast að læra tunguna og
kynnast fornu fari og til þess er hún á-
gætlega löguð. 1 innganginum er mikill
fróðleikur, ekki aðeins um Ara heldur
um sögu Islands frá upphafi, með til-
vitnunum í helztu rit um hvert atriði,
alt hófsamlega ritað þó óbágur sé út-
gefandinn að segja til sinnar skoðunar á
tillögum annara, ef svo vill verkast, svo
sem prófessoranna Finns Jónssonar og
Heuslers. Aftan við bókina eru skýr-
ingar um hvern kapítula fyrir sig með
tilvísunum til þar að lútandi rita.
Þeim af vorum löndum, sem enskan er
töm, hvað þá tamari en íslenzkan, vísast
til þessarar útgáfu Islendinga bókar, ef
fræðast vilja um hvaðan kynjaðir eru,
hvernig forfeður þeirra námu land, skip-
uðu lögum, tóku kristni og hófu að rita
um sögu íbúanna á þeirri frægu sögu ey,
Islandi. Hver sem les, jafnvel þó lærður
sé, mun fróðari eftir en áður.
Bókin er seld fyrir 2 dali, kostuð af
Cornell University og fæst ef um er
beðið hjá bóksala D. Björnsson, 702 Sar-
gent Ave., Winnipeg. K. S.
OLfA OG HERNAÐUR
Á hverju hvílir nútíma hernaður mest?
Á olíu. Sú þjóð, sem mestar hefir olíu-
lindir, stendur bezt allra að vígi með að
heyja og vinna stríð. Helmingur allra
skipa sem um höfin sigla, nota orðið
olíu; það gera og öll loftför; ennfremur
50 miljón ferðatæki á landi. Að minsta
kosti 300 vörutegundir, eru gerðar úr
olíu, eða væru ekki til án hennar. í
Bandaríkjunum nemur féð, sem lagt hef-
ir verið fram til olíuvinslu, 10 biljón döl-
um ($10,000,000,000). Við þann iðn-
rekstur starfa og 1,250,000 manns.
1 Bandarikjunum er 70% framleitt af
allri olíu (petroleum) heimsins. í Rúss-
landi, Mexikó, Rúmaníu, Iraq, Indland-
inu hollenska og Venezuela, má olía
heita blóðstraumur viðskiftanna. Af
hráolíu (crude oil) framleiða Rússar um
einn fimta á við Bandaríkin og af annari
olíu (petroleoum gas) aðeins einn fimt-
ánda.
Hér um bil öll olían sem notuð var í
fyrra stríðinu, var frá Bandaríkjunum
og Mexikó. Nú hafa olíunámur fundist
víða um heim. Bretar hafa nú olíu frá
Trinidad, Indlandi, Borneo, Canada og
Vestur Asíu, auk þess er þeir fá frá
Bandaríkjunum og Suður-Ameríku.
En þrátt fyrir það, er það olía, sem
Breta skortir mest af öllum hráefnum,
sem það þarf með. Aðeins 2% af allri
olíu í heimi, eru innan brezka ríkisins
eða landa þess. Ástæðan fyrir því að
Bretland sóttist eftir yfirráðum í Vestur-
Asíu, voru hinar miklu olíulindir þar.
Féð sem þeir hafa lagt þar fram til olíu-
vinslu, er geysi-mikið.
Úr olíulindunum í Iraq, Saud-Arabía
og Iran, eru daglega unnar 350,000
tunnur. I Bahrein, sem einu sinni var
kunn fyrir perluveiði sína, er nú olíu-
náma, er miljón tonn eru unnin úr dag-
lega. Caltex félagið, sem er brezkt, er
framleiðslu rekur í Bahrein, hefir olíu-
geyma við Suez, Colombo, Singapore og
Durban. Er spáð að í Bahrein verði
innan eins eða tvegjga ára unnin 4,000,-
000 tonn árlega. Framleiðsl-
unni í íran (Persíu) er stjórnað
af Bretum, eða Anglo-Iran olíu-
félaginu; framleiðir það 300,000
tunnur árlega.
Ein af aðal-ástæðum Hitler
fyrir að sækja með her sinn til
Vestur-Asíu, er að ná þessum
lindum úr höndum Breta handa
vélahersveitum sínum. Að ná
Iraq-olíuleiðslunni, er kostaði
Breta 5 miljón dollara, og sem
4,000,000 tonn renna um árlega
frá Mosul til Haifa í Palestínu
og Tripoli í Sýrlandi, væri eng-
in smáræðis sigur fyrir nazista.
En að alger sigur fyrir Hitler
sé samt með því fenginn, fer
mjög fjarri.
Olíubirgðir sínar hefir
Þýzkaland fyrst og fremst frá
Rúmaníu og Rússlandi. Það
hefir og eflaust átt miklar
brigðir heima fyrir, sem það
hafði safnað saman, áður en
stríðið hófst. Um birgðirnar
frá Rúmaníu er það að segja að
þær hafa talsvert minkað
vegna jarðskjálfta, er nýlega
urðu þar, ennfremur vegna
skemdarstarfsemi, sem ávalt
heldur þar áfram og þá ekki
sízt vegna truflunar af flugá-
rásum Breta. Nazistar þurfa
mikla olíu með er her þeirra er
á ferðinni eða þó hann sé ekki
nema á verði á öllum vígstöðv-
um sínum. Rússland verður að
minsta kosti, að hafa' nóg fyrir
sjálft sig í hvað sem skerst.
Oliuvinsla má auk þess heita
að byrja í Rússlandi, þrátt fyr-
ir þó olíunámur séu þar miklar,
að sögn jarðfræðinga. Hefir
einn fræðimanna þessara met-
ið að í olíunámum þessum væru
fólgin 3,877,000,000 tonn, sem
er nærri 55% af olíu í öllum
námum heimsins, er geyma
7,077,000,000 tonn. En Rússar
virðast ekkert vera að flýta sér
að virkja þessar lindir, sem ef
til vill eru heldur ekki eins
miklar og þær eru sagðar, því
árið 1937, samþykti stjórn
Rússa, að mínka olíu neyzlu
um 12% til þess að spara olíuna
fyrir herinn.
Á Þýzkalandi er framleidd
olía úr brúnum og linum kol-
um. Ein 550,000 tonn eru búin
til og kvað það langt til nægja
þörf á friðartímum heima í
landinu. En sú olía er óhæf
fyrir flugför og til hernaðar.
Bretar og Bandaríkjamenn
hafa því enn sem komið er um-
ráð mest-allrar olíu í heimin-
um, eða framleiðslu tveggja
biljón tunna. Þetta er ein á-
stæðan fyrir því, að Hitler
verður að hraða striðinu alt
sem unt er, ef hann á að vinna
það.
MYNDARFÓLK
III.
Þegar við fyrst settumst að
í San Francisco var okkur boð-
ið að gerast meðlimir í Skandi-
naviska klúbbnum í Californíu
háskólanum í Berkeley. . .
Stúdentar af norrænum ætt-
um höfðu þetta félag með sér,
en ýmislegu Norðurlandafólki,
sem ekki gekk á háskólann,
var boðið að gerast aukameð-
limir. . .
Á einum af fyrstu fundunum,
sem við sóttum, kyntumst við
Lars Jörgensen verkfræðingi.
. . . Um þetta leyti var hann
mkil stoð félagsins, sérstaklega
með fjárframlög, og sótti hvern
fund. . . Þegar maður heyrir
mikið talað um einhvern mann
og honum hrósað fyrir sitt af
hverju, þá dregur maður ó-
sjálfrátt upp mynd af honum í
huga sínum. . . Okkur hafði
verið sagt, að Lars Jörgensen
væri einn af merkustu Dönum
í Californíu og þótt víðar væri
leitað. . . Hann væri svo vel
þektur verkfræðingur, að jafn-
vel nemendur á verkfræðinga-
skólum Norðurálfunnar lærðu
um hann og það sem hann
hefði áorkað. . . Þarna hugsaði
eg mér stórann mann og mynd-
arlegan, með kónganef, harð-
úðgann mann, sem vanur væri
að skipa fyrir og láta hlýða sér.
. . . En Lars Jörgensen var lít-
ill maður, kringluleitur, blíður
og brosandi. . . Hann leit út
eins og kennarj í barnaskóla
og það var ekkert skipandi
eða harðúðugt í fari hans.
Fjórtán ára gamall fór hann
út í heiminn, til þess að vinna
fyrir sér. . . Faðir hans var
skólakennari á Fjóni í Dan-
mörku ,en börnin voru mörg
og efnin lítil. . . Lars Jörgen-
sen fór í smiðju og lærði járn-
smiði. . . Hann vann sér inn
nóg til þess að fara á verkfræð-
ingaskóla einn lítinn í Þýzka-
landi og þaðan tók hann próf.
. . . Síðar fór hann til Banda-
ríkjanna og þegar hann steig
á land í New York átti hann
aðeins fáeina dali. . . Nú hafði
hann heyrt mikið talað um
mann, sem Edison hét og þann
mann vildi hann sjá og fyrir
hann vildi hann vinna. . . En
þegar hann kom á verksmiðju
Dominion Business College
Student Wins International
Typewriting Contest
In the third Annual International Artistic
Typewriting Contest recently conducted, the
second place winner was Miss Lorraine Young,
of St. James, Manitoba, a student of the
Dominion Business College.
Miss Young secured second place out of some
thirty-six hundred contestants from the United
States and Canada, receiving a Silver Trophy
together with two special awards.
In addition her class teacher, Miss M. Walker,
received a special award.
IT PAYS TO ATTEND
A GOOD SCHOOL
Enquire Today—NOW!
DOMINION
Business College
The Mall. Winnipeg—37 181
St. James—61 767 Elmwood—501 923
‘A BETTER SCHOOL FOR THIRTY YEARS’