Heimskringla - 29.10.1941, Page 3

Heimskringla - 29.10.1941, Page 3
WINNIPEG, 29. OKT. 1941 HEIMSKRINGLA KVEÐJUSAMSÆTI Samsæti mjög fjölment og myndarlegt var þeim Dr. Núma Hjálmarsson og Sigríði konu hans haldið í samkomuhúsinu á Lundar miðvikudagskvöldið þann 15. þ. m. Samsætið var haldið í tilefni af því að Dr. Hjálmarsson er að flytja sig al- farinn frá Lundar með fjöl- skyldu sína eftir fimtán ára dvöl þar; fer hann til Pilot Mound og sezt þar að sem læknir. Samsætinu stýrði séra Guðm. Árnason, sem ávarpaði hjónin með nokkrum orðum og af- henti lækninum gjöf frá bygð- arbúum, lindarpenna og silfur- skál með dálitlum sjóði. Einn- ig voru Mrs. Hjálmarsson færð- ar gjafir frá báðum kvenfélög- unum á Lundar, Björk og Ein- ing, rafmagnslampi frá kvenfé- laginu Björk, sem Mrs. Dóra Goodman afhenti og ferðataska frá kvenfélaginu Eining, sem var afhent af Mrs. Björgu Hjörnsson, og fluttu þær stutt ávörp, hvor fyrir hönd síns fé- lags. Mrs. Chrissie Thorsteins- son ávarpaði Mrs. Hjálmarsson fyrir hönd kvenna í bygðarlag- inu og færði henni fagran blóm- vönd, sem lítil stúlka Elaine Hreckman afhenti henni. Ræð- ur til þeirra hjónanna fluttu: Skúli Sigfússon þingmaður; S. Thorvaldson þingmaður frá Winnipeg, sem þar var staddur; sveitaroddviti Kári Byron; Haníel Líndal og Guðmundur Jónsson frá Húsey, og sagðist öilum vel. Vigfús Guttormsson flutti þeim kvæði það sem er Prentað hér á eftir. Læknis- hjónin þökkuðu fyrir gjafirnar °g velvildina sér til handa með vel völdum orðum. Milli ræð- anna söng stór og vel æfður söngflokkur undir stjórn Vig- fúsar Guttormssonar íslenzka söngva og enska. Og eftir að allir höfðu setið að kaffi- drykkju, var dans stiginn lengi nætur. Um 500 manns sátu samsætið. Dr. Hjálmarsson er maður mjög vinsæll og læknir góður. Hefir hann í fimtán ár gegnt læknisstörfum í stóru og erfiðu héraði með framúrskarandi skyldurækni. Er honum við brugðið fyrir ástundun við sjúkravitjanir og dugnað í ferðalögum, sem oft hafa verið löng og erfið. Munu hans æörgu vinir og kunningjar unna honum þess að komast í hérað, sem er greiðara yfir- ferðar, þó að þeir sakni hans mikið eftir svo langa samveru nieð honum. Frú Sigríður hefir tekið mik- inn þátt í félagslífi Lundar- b^ejar öll þau ár, sem hún hefir átt þar heima. Áður en hún giftist var hún hjúkrunarkona, °g hefir hún stöðugt unnið að hjúkrunarstörfum síðan, þrátt fyrir miklar annii* á heimili sinu. ✓ Hinar hugheilustu árnaðar- ósirk fjölda vina þeirra í hinu víðlenda umdæmi læknisins fylgja þeim til þeirra nýju bú- staða, og var hið afar fjöl- ^nenna kveðjusamsæti vottur hess, hversu vinsæl og vel met- in þau hafa verið öll þau ár, Sern þau hafa dvalið á Lundar. G. Á. Til Dr. og Mrs. Hjálmarsson við burtför þeirra frá Lundar Þá finst oss rétt að flytja í nýjan stað, Er forlög vilja breyta stefnu sinni, Og ófært verður gamalt göngu- vað, Sem greiðfært þótti fyr á lífs- leiðinni. Oft blómgast gróður bezt í nýj- um reit, Þar bezta arðinn hlýtur göfug iðja. Og Guð er víðar en í einni sveit, Á öllum stöðum vill hahn hjálpa’ og styðja. Og þið, sem héðan bráðum flytjið brott í beztu von um lán og farsælt gengi, Við þökkum ykkur afarmikið gott Og óskum, að þið lifið vel og lengi. V. J. Guttormsson STALIN VAR MISSKILINN Árið 1939, þegar Stalin gerði hlutleysissamninginn við Hitl- er, var hann af mörgum álitinn svikari við undirstöðuatriði sinna eigin pólitísku trúarjátn- ingar. Á þeim ruglings og vafa tím- um, þegar enginn dagur virtist til enda tryggur, var þó eitt atriði er gaf nokkra von, og stóð eins og klettur úr hafinu; það var hinn rótgróni fjand- skapur milli Rússlands og Þýzkalands. Milli svo gagn- ólíkra hugtaka í þjóðmálum er þessi ríki eru fulltrúar fyrir, virtist öll samvinna útilokuð, ekkert friðsamlegt samtal mögulegt. Eins víst og jörðin væri hnattmynduð, mundi Stal- in aldrei eiga nein kaup við Hitler á neinum grundvelli. En það ótrúlegasta af öllu ó- trúlegu skeði áður en nokkurn varði. Á hinum voðalegustu hættutímum, þegar mestallur hinn mentaði heimur var á hengiflugi blóðugrar styrjald- ar, umbreyttist Stalin alt í einu í samningamann, og að því er virtist eingöngu til að frelsa sitt eigið ríki. • Með mannhaturslega ráðn- um huga sýndist hann hrinda saklaUsum og friðsömum þjóð- um fram af hengifluginu, með því að gera samtök við Hitler um alheimsstjórnleysingja byltingu. Þetta var nokkurnvegin aug- ljós en þó ótrúleg skýring á röð málanna. Svona litu stað- reyndirnar út á yfirborðinu. En þegar Hitler snerist snögglega á hæli og réðist á sinn ímyndaða bandamann, Rússland, fór heimurinn að verða efablandinn um sína fyrri staðhæfingu í málinu, og leitaði nýrra skýringa. Hinar beztu útskýringar á þessu viðfangsefni, og sannar- lega þær rökréttustu eru ritað- ar af Kenneth Davis, sérfræð- ing í utanríkismálum, í tíma- ritið “Current History”. Rök- færsla Mr. Davis er sem hér segir: Stalin vissi árið 1939, að fyr- irætlun Hitlers og hans ráða- nauta var að leggja undir sig heiminn með vopnum. Hitler var að hinu leitinu þess fullviss að hvorki England eða Frakk- land mundu hafa nein hernað- arleg áhrif á dauðateygjur Pól- lands á þeim tíma. En hin vafasama spurning er hann þurfti að svara — og svara rétt — var, hvort næst ætti að verða í röðinni, Rússland eða vesturlýðveldin. Fullnaðar á- kvörðun í því máli varð kð byggjast á samanburði á kostn- aðaráætlun í báðum tilfellum. Hvort mundi terða ódýrara og auðveldara að taka Rússland þegar í stað, eða ekki fyr en England og Frakkland væru að fullu brotin á bak aftur. Rússland stóð hér aleitt gegn hinum voðalega herafla Hitl- ers, er hafði flest Mið-Evrópu rikin sín megin, var í föstu bandalagi við ítalíu og jafnvel Japan. Rússland var ótilbúið að mæta slíku ofurefli; stund- arfrestur varð að skapast með einhverjum ráðum. Versala-samningurinn ákvað landamæri Rússlands og Finn- lands aðeins 20 mílur frá Len- ingrad. Að sunnanverðu og vestan lá Ukraine, er afar tor- velt var að verja í nýtízku hern- aði. Þegar þar við bættist að vopnaframleiðsla Rússlands á þessum tíma, var mikið minni en Þýzkalands, var sigurvon ef til vopnaviðskifta kæmi, harla ÞAÐ ÞARF MIKIÐ TIL AÐ STÖÐVA BREZKAN BREN GUN CARRIER Hermenn við æfingar í nútíðar vélahernaði, verða að geta farið með áhöld sín öll eins og reyndir menn. í brezka hernum, verða hermenn að æfa sig vel í því að fara með vélarnar þar sem ilt er yfirferðar sem á góðum vegum. Myndin sýnir þá við slíkar æfingar í Norður-írlandi. lítil 1939. I stutu máli, Rúss- land mundi áreiðanlega hafa orðið undir í þeim átökum, og það á skömmum tíma. Hver hefði þá röð viðburðanna orðið að þeim tíðindum loknum? Með olíu og hveiti Rússa að bakhjarli og stóriðnað þeirra reiðubúinn til vopnagerðar, mundi Hitler hafa orðið marg- falt styrkari en nokkru sinni fyr, og albúinn að herja í vest- urátt, gæti jafnvel nú verið langt kominn að sigra og und- iroka mestallan hinn mentaða heim. Með þessar skýringar á reiðum höndum, heldur Mr. Davis því fast fram að alls eng- in ástæða sé til að álíta að Stalin hafi í eigingjörnum til- gangi, eða í neinum skilningi brugðist lýðveldisstefnunni í Evrópu, og á þann hátt átt þátt í að kveikja það ófriðarbál er nú æðir yfir. Hann bendir með réttu á, að Stalin hafi alls ekki myndað neitt algert bandalag við Hitler, heldur að- eins trygt sér lítinn frest. Það sem hann meðal annars telur að sanni mál sitt er, að Stalin hóf tafarlaust vopna- búnað í stórum stíl, numdi úr gildi sjö stunda vinnudag, og styrkti. eftir föngum hernaðar- lega aðstöðu sína að vestan- verðu og norðan; en síðast en ekki sízt hafi hann á allan mögulegan hátt — sumpart með yfirlögðum flutningamis- tökum — stuðlað að töfum og erfiðleikum í vígbúnaði Hitl- ers. Aðeins fáum vikum eftir að hinn svokallaði Þýzk-Rúss- neski samningur var myndað- ur, talaði Molotoff til öreiga allra landa og eggjaði þá til heimsbyltingar, þar taldi hann Þýzkaland í sama flokki og önnur auðvaldsríki, og þess- vegna í andstöðu við Rússland. Sumarið 1941 gerði Stalin hlutleysissamning við Japan, og haíði þá um sama tímabil komið vígbúnaði sínum í sæmilegt horf, og virtist ein- mitt þá hafa náð einhverju settu marki með hinni þegj- andi en árvökru mótspyrnu gegn ófriðarráðstöfunum Hitl- ers. Frekari bið á úrsjita átökum gat nú falið í sér hættu á hlut- fallsbreytingu á styrkleika Rússa og Þýzkalands, þeim fyr- nefnda í óhag. Stalin þvingaði því Hitler til að leggja spilin á borðið og berjast, og það sem mest var um vert, og Hitlerctt- aðist mest, á tveim vígvöllum — austan og vestan — í senn. Með aðstoð Bandaríkjanna við herbúnað Breta að vestan, í huga, tók Hitler leiftur snögga ákvörðun, fylkti í skyrjdi ó- grynni liðs og vopna gegn Rússum, reiðubúinn til atlögu. Áform hans var í raun og veru að taka Rússland síðar, en ótt- inn við það að verða of seinn neyddi hann til að hefjast handa þegar í stað. Niðurlagið í ritgerð Mr. Davis er orðrétt á þessa leið: “Það virðist því augljóst að Stalin hafi, í stað þess að svíkja lýðveldisríkin, gert alt sem í hans valdi stóð til að aftra því að þau sjálf brigðust sínum eigin málstað. “Þegar lokasaga þessa hild arleiks verður skráð, er mjög sennilegt að Stalins verði getið sem mikilmennisins er frelsaði hinn siðaða heim frá tortím ingu með glæsilegri herkænsku og dýpri stjórnvizku en nokkur þjóðhöfðingi hefir nokkru sinni sýnt á dögum hættu og þreng- inga, þrátt fyrir margvíslegan andróður.” Hér má vera að fullmikið sé sagt. En'þó sá timi sé enn ekki kominn, að samþykt verði með öllum atkvæðum að taka Stal- in í helgra manna tölu sem frelsara mannkynsins, virðast allar þessar skýringar gáfuleg- ar og á góðum rökum bygðar. Fram að þessu hafa margir álitið að njósnarar Hitlers hafi talið honum trú um að Rússar væru lítt vopnaðir og lélegir til hernaðar, og hann í þeirri trú hafið árásina. Gæti nú ekki verið sanni nær að álykta að þessir sömu njósnarar hafi einmitt uppgötvað voldugt Rússland, er varð voldugra með hverjum degi er leið. —Þýtt úr “Winnipeg Tribune”. Jónbjörn Gíslason ATHUGASEMD Eg hefi venjulega haft á- nægju af að lesa ritgerðir Pét- urs Sigurðssonar um eitt og annað, og eg hafði einnig nautn af að lesa greinina um listamanninn fræga dansk-ís- lenzka, Thorvaldsen, í Heims- kringlu 15. okt., ummæli H. C. Andersens og Georg Brandes- ar um snillinginn og afrek hans og frásögn um hina glæsilegu móttöku er Kaupmannahöfn fagnaði þessum heimsfræga ástvin og dönsku þjóðarinnar. En hvað munnmælasögunni viðvíkur er segir að hann hafi tvívegis gert unnustu sinni minkun get eg ekki séð að auki hróður hans eða lista- mannsgildi. Eg hygg að listin hefði ekki beðið nokkurn hnekki við það að hann hefði haldið trygð við heitmey sina. Ef þessa munnmælasögu er annars nokkuð að marka, sem eg vona að ekki sé. En það er nokkuð í þessari grein P. S. sem eg átti ekki von á úr hans penna, og sem mér gramdist, en það eru óþarfa slettur til tveggja ágætismanna Bandaríkjanna, Robert G. Ing- ersoll og Thomas Paines er soll. hann gefur í skyn að hafi verið myrkursins börn — því áður en hann minnist þeirra telur hann fram þrjú “ljóssins börn”, Whitfield, er dó á hnjánum, Abraham Lincoln og David Livingstone. Við andlát þeirra hafi verið bjart. Svo kemur þessi grein: “Slíkt verður ekki sagt um neinn eins og Thomas Paine, Ingersoll eða Nietzsche, þótt þektir menn væru, kvöldroð- ans blik lék ekki um himin þeirra hinstu stunda. Kvöldið var þá grámyglulegt, hráslaga- legt og kalt.” Eg læt ritsnillinginn Nietz- sche eiga sig, hann var af alt öðru sálufélagi en Paine og Ingersoll. Hvað hafa þeir Paine og Ing- ersoll unnið til þess að vera flokkaðir myrkursins börn? Thomas Paine átti drjúgan þátt í frelsisstríði Bandaríkj- anna með ritum sínum, “The Crisis” og “Common Sense”. Sagt hefir verið um þau rit að þau hafi verið sem eldstólpi er vísaði veg hinum stríðandi lýð um nótt þrenginganna til sig- urs. Síðar ritaði hann hina frægu bók sína “Age of Reason” um trúmál. Leitast hann við í þeirri bók að eyða n\iðalda myrkri hjátrúar og hindur- vitna í kristninni en auka ljós þekkingar og víðsýnis, efla mannúð og umburðarlyndi. Paine var guðstrúar maður með ódauðleika von. Skoðanir Abrahams Lincolns á trúmál- um munu hafa fallið mjög saman við skoðanir Paines og náskyldar stefnu Únítaranna, Ralph Waldo Emerson, Theo- dore Parkers og Wm. Ellery Channings, sem séra Matthías Jochumsson var svo hrifinn af. Col. Robert G. Ingersoll, þessi göfugi frjálsi andi, hafði svo næma réttlætistilfinningu og skarpann skilning á veilun- um í hinum svokallaða “rétt- trúaða evangeliska kristindóm” að hann gat ekki orða bundist, en réðist með öllu afli afburða mælsku og rökfimi, á þær kenrtingar kirkjunnar er stríddu á móti samvizku og heilbrigðu viti, svo sem guðs hugmynd Gamla testamentis- ins, óskeikulleik ritningarinn- ar, útskúfunar kenninguna, og blóðfórnar friðþæging og skyldi svo við þessar kenning- ar að þær áttu sér ekki framar uppreisnar von hjá upplýstu fólki með sæmilegri dóm- greind. Ingersoll var ástríkur heim- ilisfaðir, tilfinninganæmur og hjálpsamur með afbrigðum, hann unni vísindum og aðhylt- ist breytiþróunar kenninguna. Það má telja hann til “hum- anista”, einnig mun hann hafa hneigst að algyðis kenningu Spinoza, eins og fleiri djúp- vitrir menn hafa gert. Boðskapur Paines og Inger- solls og skyldra umbótamanna hefir gert heiminn betri, frjáls- ari og viðsýnni, og áhrifin á kirkjuna, siðferðilegur gróði. Það er orðið hljótt um útskúf- unar kenninguna í prédikunar- stólum. Mannúð, sannleiksást og hreinskilni voru meginþættir í skapgerð þessara mikilmenna. Ingersoll flutti boðskap sinn af eldmóði og heitri sannfær- ingu og skeytti ekki um hvort hann aflaði honum vinsældar eða óvildar. Hann var að vísu persónulega vinsæll en vegna kenninga sinna varð hann fyrir óvægum dómum og fordómum og óvild af hálfu íhaldsmanna kirkjunnar. Eg vil vinsamlega mælast til þess að Paine og Ingersoll séu taldir “ljóssins” börn. Þegar Ingersoll andaðist nokkru fyrir aldamótin, varð öðrum stórum anda, ljóð á munni vestur í Klettafjöllum. Eg set hér að endingu tvö vers úr kvæði St. G. St. um Inger- “Frægðar-maður látni, leiddi, Leyfðu mér í hinsta sinn, Lyng-grein höggna af heiðum Islands Hengja í dánarkransinn þinn. Sá, sem hana úr ljóðshönd leggur Lægst í sveiginn, hann er einn Orkumenni og yngri bróðir, Ekki þegn né lærisveinn. Þú sem gazt í ljósa loga Lífgað upp við mælsku glóð Það sem frjálsast hugsað hefir Hugstór, ung, en sjálfelsk þjóð. Hjátrú löngum lærdóm varin Litlu kunni að svara þér, Skáldið firrist fræði múgsins, Fer samt réft, það veit, það sér.” Friðrik Swanson FRÁ HOLLYWOOD, CALIFORNIA Sunnudaginn 19. þ. m. kl. 3 e. h. var haldin áhrifarík og ó- gleymanleg minningar og sorg- ar athöfn í Saint Thomas Epis- copal kirkjunni, 7501 Holly- wood Blvd., um mæðgurnar Mrs. Mable Helen Seymour Kahre og Dorothy Elizabeth Kahre, sem að mistu líf sitt á sorglegan og sviplegan hátt i bilaslysi í Oklahoma ríkinu 2. október s. 1. Lík þeirra voru flutt til Kans- as City, Missouri og brend en askan var flutt til Hollywood þar sem fjölskylda þessi hefir átt heimili árum saman. Kirkj- an var þétt skipuð safnaðar- fólki, nágrönnum og vinum auk ástvinanna. Andrúmsloftið í kirkjunni var þrungið þögn og sorg. Jarðneskar leifar mæðgn- anna voru í litlu skríni á borði fyrir framan altarið í hafi af hinum fegurstu blómum Cali- forníu. Prestur safnaðarins, Rev. Arthur Wurtele hélt hugnæma huggunar ræðu og mintist á smá atvik í lífi þessara ást- sælu og mikilsvirtu kvenna utan safnaðarins sem innan. — Mrs. Ólöf Oliver MacFarland söng “Ah Sweet Mystery of Life”. Skrininu var síðar kom- ið fyrir í vegg kirkjunnar í landinu þar sem að þær sjálfar höfðu kosið sér að lifa og deyja. Mrs. Kahre var forstöðukona Islendingafélagsins í Los Ang- eles og í þeirri stöðu sá eg hana í síðasta sinn á útisamkomu Is- lendinga 3. ág. s. 1. í North Hollywood Park, hvítklædda, hávaxna, föngulega, dökk- hærða og bláeygða ásamt hinni ungu dóttur hennar, bjartri yfirlitum við hlið unnusta síns i tilhugalífi við hann og lífið sjálft. Hverjum hefði þá getað kom- ið til hugar sem að sá þessa hamingjusömu fjölskyldu að þessi þungi skapadómur og ó- gæfa biði þeirra og að lifsins leiðarendi væri svo nærri. Mrs. Kahre var fædd 18. nóv^ 1895 í Eagle River, Ontario, Canada. Foreldrar hennar voru Mr. og Mrs. Seymour, hann var canadiskur en Mrs. Seymour var áður Elizabeth Thomson, ættuð úr Laxárdal í Dalasýslu á Islandi. Þann 4. júní 1914 giftist Mabel, Her- bert W. Kahre, voru þau gefin saman af föður hans, sem að var þýzkur prestur í Winnipeg í mörg ár. Dorothy var fædd í Winnipeg 28. júlí 1917, nýlega hafði hún opinberað trúlofun síria með Jack Green frá Santa Maria í Californíu. Mrs. Kahre lætur eftir sig auk eiginmanns síns og móður 2 sonu sem að eru Herbert S. Jr., og Kenneth. Islendingar hér taka sérstaka hluttekningu í sorg hinnar öldnu móður sem að ber sig eins og norræn hetja, þótt eina barnið hennar hafi verið hrifsað af henni á þennan óþolandi hátt og sem að þrátt fyrir alt og alt getur brosað til vina sinna í gegnum tárin. Skúli G. Bjarnason —Los Angeles, Calif.

x

Heimskringla

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimskringla
https://timarit.is/publication/129

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.