Heimskringla - 29.10.1941, Side 8

Heimskringla - 29.10.1941, Side 8
8. SIÐA HEIMSKRINGLA WINNIPEG, 29. OKT. 1941 F’JÆR OG NÆR MESSUR í ISLENZKU SAMBANDSKIRKJUNUM Messur í Winnipeg Við guðsþjónusturnar í Sam- bandskirkjunni í Winnipeg n. k. sunnudag, verður umræðu- efni prestsins við morgun guðs- þjónustuna, kl. 11 f. h. “Christ- ianity as Modern Religion” og við kvöldguðsþjónustuna, kl. 7 “Annarlegir guðir.” Sækið messur Sambandssafnaðar. Sunnudagaskólinn kemur saman kl. 11 f. h. Yngra ungmennafélag safn- aðarins heldur fundi á hverju sunnudagskvöldi kl. 8.30, og heldur einnig — í þessari viku — Hallowe’en Party föstudags- kvöldið 31. þ. m. • • • Messa í Sambandskirkjunni á Gimli sunnudaginn 2. nóv. kl. 2 e. h. • • • Méssað verður að Hólar Hall sunnudaginn þann 2. nóv. kl. 2 e. h. (fljóti tíminn). H. E. Johnson • • • Dánarfregn Laugardaginn 24. þ. m. and- aðist á General Hospital hér í Winnipeg, Oddgeir Friðrik Anderson, 72 ára að aldri. Fæð- ingarstaður hans var Dverga- steinn í Seyðisfirði. Kona hans, Málfríður og fjórir synir lifa hann, þeir eru, Stanley Ed- ward, Rochester, N. Y.; Gust- ave, Los Angeles, Calif.; John Martin, Los Angeles, Calif. og Harry hjá móður sinni, 567 Elgin Ave., Winnipeg. Einnig lifa hann tveir bræð- ur og tvö hálfsystkini, Jónas Helgason, Oak Point; Olgeir Helgason, Seattle, Wash.; Ein- ar Helgason, Winnipeg og Mrs. Lillian Thoman í Chicago. — Tveir bræður, Gunnlaugur og Jens dóu fyrir nokkrum árum. Oddgeir Friðrik heitinn hafði átt heima í Winnipeg s. 1. 62 ár. Útförin fór fram í dag frá út- fararstofu Bardals. Séra Philip M. Pétursson jarðsöng. • • • The Y. P. R. U. of the First Federated Church are organiz- ing a Bowling League and plan on bowling every alternate Monday evening. Anyone in- terested is asked to get in touch with a member of ~the executive. The next bowling session is scheduled for Mon- day, November lOth. Mr. og Mrs. Hjálmur Daniels-1 son eru flutt í nýtt hús að 869 Garfield St., Winnipeg, er þau hafa nýlega keypt; það er hið prýðilegasta heimili. * • * S. 1. laugardagskvöld lagði Mrs. Th. Borgfjörð af stað aust- ur til Ottawa. Býst hún við að vera þar í vetur hjá syni sín- um, séra Helga I. Borgfjörð og konu hans. Mrs. Th. Borgfjörð fór með dóttur sinni er hér var stödd (Mrs. C. A. Pesnicak) og syni hennar (Charles A.). Mrs. Pesnicak heldur til Augusta í Georgíu-ríki, þar sem maður hennar kapteinn C. A. Pesnicak er við heræfingar. * • • Nýlega kom til bæjarins Gunnar Norland frá Reykjavík á íslandi; hann stundar nám á Manitoba háskóla í vetur. • • • Jón Bíldfell, fyrrum ritstj. Lögbergs, kom um síðustu helgi til Winnipeg. Hann hefir eins og kunnugt er, verið á þriðja ár norður i Baffinslandi, starfsmaður Hudson’s Bay fé- lagsins. 1 stuttu simtali við hann um4eið og blaðið var að fara í pressuna lét hann hið bezta af verunni nyrðra. Hann hefir verið þar talsvert í sigl- ingum og séð margt. Áður en hann kom hingað, var hann vikutima í Grænlandi. Mun hann þegar frá líður segja okk- ur sögur úr Norðrinu; hann virðist nú orðinn eins forlíftur í því og V. Stefánsson. Heims- kringla býður Mr. Bíldfell vel- kominn i bæinn. TO MBOLA I SAMKOMUSAL SAMBANDSKIRKJU I WINNIPEG undir umsjón Stjórnarnefndar Sambandssafnaðar Mánudagskvöldið 3. Nóvember n. k. kl. 8 Fjöldi góðra drátta — Freistið hamingjunnar Sækið þessa ágætu Tombólu Inngangur og einn dráttur 25^ sjá nú um búið; Guðbjörg, gift Elwood Stewart, og á heima nálægt Gladstone og Dýrleif Halldóra, ógift, og á heima í Winnipeg. Útför Önnu heitinnar fór fram í Gladstone s. 1. laugar- dag, frá Gladstone United Church, og jarðað var í Glad- stone grafreit. Séra Philip M. Pétursson jarðsöng. Heimskringla er beðin að minna á tombóluna, sem fram fer í Sambandskirkju salnum n. k. mánudag. Þar kvað vera mikið góðra, eigulegra drátta. Reynið lukkuna! Tombólur eru auk þess beztu skemtisamkom- ur. Látið kassa í Kœliskápinn WvmoLa m GOOD ANYTIME SARGENT TAXI and TRANSFER SÍMI 34 555 eða 34 557 7241/2 Sargent Ave. Contracts Solicited Gefin saman í hjónaband af séra Sigurði Ólafssyni, þann 25. okt. að heimili hans í Selkirk, Þjóðræknisdeildin Esjan er Orval William Hay, hermaður frá Barrie, Ont., og Rebecca Helgason frá Riverton, Man., dóttir Mr. og Mrs. Jóhannes Helgason í.Riverton. Gjafir til sumarheimilis isl. barna að Hnausa, Man.: Mr. S. Thorvaldson, River- ton, Man., 3 ný rúmstæði með springs og mattresses. Miss Steinunn Vídal, Hnausa, Man., flosaða sessu, mjög vand- aða. Mr. Steindór Árnason, Víðir, Man., hrepti ullarteppi sem að dregið var um í Víðir 10. okt. og gaf hann heimilinu það aft- ur. Meðtekið með þakklæti. Emma von Renesse —Árborg, 26. okt. Dánarfregn Anna Karólína Pétursdóttir, kona Alberts Frímanns Breck- mann, til heimilis í grend við Grass River, P.O., í Manitoba, andaðist s. 1. fimtudag, 23. þ. m. snögglega og með litlum fyrir- vara, 81 árs að aldri. Hún var dóttir þeirra hjóna Péturs Guðmundssonar og Þór- dísar Sæmundsdóttur, sem að stofna til samkomu 7. nóv til arðs fyrir bókasafnið. Þar skemta meðal annars Mrs. E. P. Jónsson, Ragnar Stefánsson og ungmenna söngflokkur. — Dans á eftir og veitingar. Katrín Jósefsson, kona Jó- hannesar Jósefssonar á Elgin Ave., Winnipeg, lézt s. 1. mánu- dag á Grace-spítalanum. Jarð- arförin fer fram frá Fyrstu lút. kirkju á fimtudaginn kl. 2.30 e. h. Þann 18. okt. s. 1. voru gefin saman í hjónaband í Vancouv- er, B. C., þau Magnús Eliasson, 26 W. Broadway, Vancouver, og Helen Scrimbitt, 252 E. lOth St., N. Vancouver. Brúðgum- inn er sonur Guðmundar Elías- sonar fyrrum bónda á Laufhóli i Árnesbygð og Margrétar Sveinsdóttur konu hans. En brúðurin er dóttir Steven bjuggu mörg ár á Melrakk'a-1 Scrimbitt, Regina, Sask., og sléttu í Norður-Þingeyjarsýslu.1 fyrveran(ji konu hans, Mary, En Anna heitin var fædd íjsem dáin er fyrir nokkrum ár- Skagafirðinum, 3. des. 1860. Jum -Brúðhjónin fóru stutta Fyrstu ár æfinnar dvaldi | giftingarferð til Victoría. — hún hjá foreldrum sínum, en Vramtíðarheimili þeirra verð- tólf ára að aldri fór hún að ur að 26. W. Broadway, Van- vinna fyrir sér og sýndi þegar á 'couver * þeim unga aldri dugnaðinn og * * * þrekið sem einkendu hana alla Hallowe'en Dans og Bridge hið; undir umsjón Jóns Sigurðs- hennar daga og fram a allra síðasta. __ Isonar félagsins verður haldin Árið 1894 giftist hun eftirlif- ; I O, G. T. Hall, Sargent Ave. andi manni sinum, Albert Fri- fimfU(jaginn 30. okt. Byrjar mann Ásmundssyni Guttorms- k] g 30 e h Prísar gefnir fyr. sonar sem var einnig ættaður ]r “Bridge”. Inngangur 35^ úr Norður-Þingeyjarsýslu. Arður af skemtuninni verður Móðir Alberts Frímanns var hotðaur . þarfir hermanna< Kristjana Jósefsdóttir fra ís* félassins verð- ólfsstöðum í Bárðardal í Suður- Ns?stl fnn^r „ | , . iur a heimili Mrs. H. F. Daniels- Þingeyjarsyslu. !son) 869 Garfield St., þriðju Þau Anna heitm og; Albert; daginn 4 nóy k] 8 e h Mrs komu til þessa lands aldamota- R R Harf ge jr fréttir af j q_ anðogsettustaðfyrs iMarsh- D R gem ha]dið yar land og voru þar halft annað október mánaðar ár. Þá fluttu þau til Grass byrjun °kt°ber manaðar. River, nálægt Plumas, Man., . .. , og áttu þar heima úr því. Mlss. Freyja Eleanor ólafs Fjögur börn þeirra eru á lífi,,son- hjukrunarkona, dottir sera og eru Kristján og Eiður Mar- Sigurðar og fru Ingibjargar inó sem eru i heimahúsum og C^ooðossoooðSððeðððððeeeeQSQOooeesoðeesðeðsesððsoesof For Good Fuel Values Warmth — Value —- Economy ORDER WILDFIRE LUMP (DRUMHELLER) BIGHORN SAUNDERS CREEK LUMP (Saunders Area) CANMORE BRIQUETTES MCC PHONES )” URD Y QUPPL Y/*• O BUILDERS' IJSUPPLIES ^^and .Ltd. and COAL LICENSE No. 51 1034 ARLINGTON ST. « ySOOOOCCOeCOCðOCCCCCOOOSOCCCCCCOSiOOSOOSCCOSCOOCOSGOSC Ólafsson í Selkirk, er í þann veginn að leggja af stað til Suður-Afríku, ásamt mörgum hjúkrunarkonum víðsvegar að úr Canada, til þess að ganga í þjónustu Suður-Afríkustjórnar, til eins árs í senn. Miss Ólafs son stundaði nám við skólann á Gimli, en lauk Grade XI. í Árborg; einnig stundaði hún um hríð, nám við Jóns Bjarna- sonar skóla. Hún lauk námi í hjúkrunarfræði við Almenna sjúkrahúsið í Winnipeg 1938 Um þriggja ára bil starfaði hún fyrir Margaret Scott Nursing Mission í Winnipeg, og nú síð- ast um hríð í þjónustu Winni- peg-borgar. Hún hefir getið sér góðan orðstýr fyrir dugnað og hæfilegleika í starfi sínu. • • • Lúterska kirkjan í Selkirk Sunnud. 2. nóv.: Sunnudaga- skóli kl. 11 f. h. Ensk messa kl. 7 e. h. S. Ólafsson TIL SÖLU Stórt hús og lítið hús við Winnipeg Beach í góðu standi og á mjög lágu verði. Fyrir fullkomnari upplýsingar sjáið E. M. Wolchuk, Phone 36 532, 274 Furby St., Winnipeg, Man. • • 4 Pilot Officer Haraldur J. Davidson lagði á stað til Eng- lands í síðustu viku. Hans hefir verið getið hér tvisvar í blaðinu í sambandi við flugpróf hans. Hann lauk öllum próf- untim með ágætis vitnisburði. • • • Til leigu Hús, fyrir sunnan Portage, á Lenore St., til leigu; 8 her- bergi, vandað. Sími 33 940 eft- ir kl. 6 að kvöldi. • • • Mr. J. J. Bíldfell er nýkom- inn heim til Winnipeg eftir all- langa dvöl í norðurhluta Can- ada, norðan við allar hvítra manna bygðir að heita má. Fór hann þar víða um, en kom einn- ig til Grænlands og sá hinar fornu Islendinga bygðir þar í landi. Hefir hann nú góðfús- lega lofað kvenfélagi Fyrsta lút. safnaðar í Winnipeg að flytja erindi um þessar fornu Grænlandsbygðir og sýna myndir þaðan. Er gert ráð fyrir að það verði á miðviku- dagskveldið 19. nóv. n. k. Það er búist við að marga fýsi að heyra það sem Mr. Bíld- fell hefir að segja um hinar fornu bygðir Grænlands, sem altaf eru nærri hugum Islend- inga hvar sem þeir eru og einnig að sjá góðar myndir þaðan, og ræðumaðurinn er svo kunnur Islendingum í Win- nipeg, og reyndar Vestur-ís- lendingum yfirleitt, að það er óþarfi að mæla sérstaklega með honum. Þessarar vænt- anlegu samkomu verður nán- ar getið siðar. • • • Minningarrit Þeir, sem eignast vilja 50 ára minningarrit Sambands- safnaðar, geta eignast það með því að senda 50^ til Davíðs Björnssonar, 702 Sargent Ave. Ritið er mjög eigulegt, með myndum og ágripi af sögu kirkjunnar á íslenzku og ensku. • • • Dansar á hverju þriðjudagskvöldi í Goodtemplara húsinu á Sar- egnt og McGee. Byrja 4. nóv. Góð músik. Gamaldags dans- ar einnig. • • • Lút. messur sunnud 2. nóv. Mozart, kl. 11 f. h., á ísl. Wynyard, kl. 3 e. h., á Isl. Kandahar, kl. 7.30 e. h. á ensku. B. T. Sigurðsson Bœkur til sölu á Heimskringlu Endurminningar, 1. og II. hefti, alls 608 blaðsíður, eftir Friðrik Guðmundsson. Verð upphaflega $2.50, báðar bæk- urnar; nú $1.00. Hetjusögur Norðurlanda, um ^00 blaðsíður að stærð, eftir Jacob A. Riss. Islenzkað hefir Dr. Rögnvaldur Pétursson. — Verð 35c. Upplag þessara bóka er lítið. Þeir sem eignast vilja þær, ættu því að snúa sér sem fyrst til ráðsmanns Hkr. • • • ísl. guðsþjónusta í Vancouver Guðsþjónusta til minningar um lútersku siðbótina verður, ef G. 1., haldin í dönsku kirkj- unni á Burns St., og 19th Ave. E., kl. 3 e. h. næsta sunnudag, 3. nóv. Komið og kveðjið aðra til að koma. Við skulum halda fjölmenna minningarhátið. Rúnólfur Marteinsson • * * Landnómssögu Islendinga í Vesturheimi má panta hjá Sveini Pálmd- syni að 654 Banning St., Dr. S. J. Jóhannessyni að 806 Broad- way, Winnipeg og Björnson’s Book Store and Bindery, 702 Sargent Ave., Winnipeg. • • • Messur i Gimli Lúterska prestakalli Sunnud. 2. nóv: Betel, morg- unmessa. Víðines, messa kl. 2 e. h. Gimli, ísl. messa kl. 7 e. h. Sunnudagaskóli Gimli safnað- ar kl. 2 e. h. B. A. Bjarnason MESSUR og FUNDIR I kirkju Sambandssafnaðar Messur: á hverjum sunnudegi Kl. 11 f. h. á ensku Kl. 7 e. h. á íslenzku. Safnaðarnefndin: Fundir 1. föstudag hvers mánaðar. Hjálparnefndin: Fundir fyrsta mánudagskveld í hverjum mánuði. Kvenfélagið: Fundir annan þriðjudag hvers mánaðar, kl. 8 að kveldinu. Söngœfingar: lslenzkri söng- flokkurinn á hverju fimtu- dagskveldi. Enski söngflokkurinn á hverju föstudagskveldi. Sunnudagaskólinn: Á hverjum sunnudegi, kl. 12.15 e. h. ^#################################/ ÞJÓÐRÆKNISFÉLAG ÍSLENDINGA Forseti: Dr. Richard Beck University Station, Grand Forks, North Dakota Allir íslendingar í Ame- riku ættu að heyra til Þ j óðrœknisf élaginu Ársgjald (þar með fylgir Tímarit félagsins ókeypis) $1.00, sendist fjármálarit- ara Guðmann Levy, 251 Furby St., Winnipeg, Man. HEFNIERNIR PÓLLANDS Frh. frá 5. bls. með því að skjóta niður 13 þýzka dreka, eða V3 af öllum þeim sem brezki flugflotinn skaut niður á þeim degi. Pólverjar eru ofurhugaðir flugmenn. Sprengjudrekarnir þeirra strjúka sér næstum við þökin á þýzku flugvélastöðv- unum á Frakklandi, þegar þeir eru að Ijúka erindum sínum þar; jafnvel þó skothríðin sé hin ákafasta. Og orustudrek- ar þeirra ráðast hiklaust á ó- vinina, jafnvel þó við ofurefli sýnist að eiga. En þeir eru einnig ágæfeir flugvélastjórar. Pólskur flug- maður sem hafði fengið skipun um að fara í njósnarför til ljós- myndatöku, steig upp í Spitfire. drekann sinn og hóf sig til flugs, án þess að taka eftir því, að einn af flugvélasmiðunum sat á sporði drekans eins og á hestbaki. Þegar hann var kominn í hér um bil 500 feta hæð, varð hann þess var, að hann gat ekki flogið lárétt. Þér sem notið— TIMBUR KAUPIÐ AF THE Empire Sash & Door CO.. LTD. Birgðir: Henry Ave. East Sími 95 551—95 552 Skrifstofa: Henry og Argyle VERÐ - GÆÐI - ANÆGJA Flugmenn á jörðu niðri, sem horfðu á tilþrif hans við vél- ina, sáu hann síga hægt til jarðar, með sporðinn niður á við; en halda þó hreyflinum að starfi, svo hann ekki tapaði stjórninni. Hann flaug svo í kring um lendingarvöllinn; en einmitt þegar út leit fyrir að hann myndi stinga sporðinum niður í völlinn, náði hann alt i einu jafnvægi og lenti slysa- laust. “Þetta er óstöðugt far,” sagði hann þegar hann steig út úr drekanum. “En það var heppilegt, að eg er æfður stjórnari og vanur hinum ó- stöðugu.” Þá fyrst komst hann að raun um, að hann hafði setið í einum af þeim stöðugustu drekum sem til eru; og að hann hafði flogið með 180 punda þungan flúgvéla- smið á sporði sínum. —Reader’s Digest. B. Th. þýddi BUY UJflR SRYINGS CERTIFICRTES Takið Eftir! Vér ráðum yður til að láta senda heim loðföt yðar strax, áður en ösin byrjar og aðsóknin að geymistöðv- um vorum. Því fyr sem byrjað er því hœgara er við að fást, — styður lika hernaðinn með þvi að spara gasoliu — yður sjálfum hentugra lika, þegar nauðkaldur vetur byrjar að blása. .... SÍMIÐ 21 857 STRAX .... Vorir ökusveinar, trygðir gegn hverri vá, flytja loðföt yðar heim. Tfolt F^nfrew&Co. Limitec/ Portage at Carlton

x

Heimskringla

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimskringla
https://timarit.is/publication/129

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.