Heimskringla - 05.11.1941, Síða 7
WINNIPEG, 5. NÓV. 1941
HEIMSKRINGLA
7. SlÐA
BOÐSKAPUR
frá Englandi til hetjanna
í austri.
Eftir Rev. Hewlett Johnson
(Dean of Canterbury)
Þetta erindi er sent frá rúst-
um þess, er áður var minn
yndislegi prófastsbústaður.
Vér sendum hjartans kveðju
til rauð^ hersins, á landi, á sjó
og í lofti, til Stalins og allra
'hinna hugprúðu íbúa Rúss-
lands; vér hneigjum oss í lotn-
ingu.
Með sívaxandi aðdáun erum
vér vottar að yðar hugprúðu
vörn gegn hinni óvæntu og
sviksamlegu árás, þar sem þér
standið eins og klettur í haf-
inu, og brjótið brimöldur inn-
rásarhersins, er fram að þessu
var talinn óvinnandi.
Þér auglýsið öllum heimin-
um hverju frjálsir menn og
frjálsar konur, vel búið að
vopnum, innblásið af göfugum
hugsjónum, undir forystu á-
gætra leiðtoga, fá áorkað til
varnar föðurlandi sínu, verk-
smiðjum þess og öllu andlegu
og efnislegu verðmæti.
Þegar Nazistar voru hraktir
til baka frá ströndum Eng-
lands og.hófu innrás í yðar víð-
áttumikla land, staðfestu þeir
og innsigluðu sinn eigin dauða-
dóm.
Með hrygð í huga sé eg að
þér verðið nú að mæta á hólmi
hinum ægilegasta herafla allra
tima.
Vissulega er það nöpur kald-
hæðni atburðanna, að þjóð sem
hefir þá einu ósk að reisa föð-
urland sitt úr rústum í fullum
friði, sem hefir það takmark
að skapa nýtt og göfugt þjóð-
félag, þar sem arðrán er óþekt
fyrirbrigði og stéttaskipun af-
numin, þar sem jafnrétti ríkir
án tillits til þjóðernis eða litar-
háttar, þar sem vísindi og upp-
götvanir uppfylla hinar marg-
víslegu þarfir og kröfur mann-
anna; það er vissulega kald-
hæðni að þjóð með þessa
stefnuskrá skuli þvinguð til að
yfirgefa sín margvíslegu og
friðsamlegu störf, og ganga til
einvígis upp á líf og dauða við
erkifjanda alls sem er gott og
göfugt í siðuðu þjóðfélagi, í
gömlum og nýjum tíma.
Við nánari athugun er þetta
ofurskiljanleg atburðaröð. Sem
forvígisaðili frjálslyndisdreym-
andi þjóða, frá Kína til Spánar,
er þrá að brjóta af sér hlekki
og ok harðstjórnar og kúgun-
ar, eruð þér sterkasta og glæsi-
legasta vígið; móti yður verður
því höfuðsóknin hafin. Hitler
hefir sjálfur gert það heyrum
kunnugt.
Framsæknar og frelsisleið-
andi þjóðir líta til yðar sem
voldugs vinar, en Nazistar og
Fasistar sem höfuð óvinar.
Um endalok þessa hildar-
leiks er engin vafi mögulegur.
Þýzkum nazisma verður komið
á kné með samanlögðum kröft-
um Englands og Rússlands. —
Hinn illi andi er nú ræður lög-
um og lofum í Þýzkalandi, mun
verða kveðinn niður að fullu
og öllu, og þjóðin sem hefir
verið fjötruð hlekkjum ánauð-
ar og kúgunar, mun aftur öðl-
ast full réttindi orða og athafna
og þakka yður og okkur frelsi
sitt og endurlausn.
INNKÖLLUNARMENN HEIMSKRINGLÖ
I CANADA:
Amaranth...............................
Antler, Sask.........................-K. J. Abrahamson
Ames.................................Sumarliði J. Kárdal
Árborg...................................G. O. Einarsson
Baldur............................................Sigtr. Sigvaldason
Beckville..............................Björn Þórðarson
Belmont..............................•'....G. J- Oleson
Bredenbury..............................
Brown................................Thorst. J. Gíslason
Churchbridge..........................<-
Cypress River.....................................Guðm. Sveinsson
Dafoe....................................S. S. Anderson
Ebor Station, Man....................K. J. Abrahamson
Eifros................................J. H. Goodmundson
Eriksdale...............................Ólafur Hallsson
Fishing Lake, Sask......................Rósm. Árnason
Foam Lake...............................H. G. Sigurðsson
Gimli.............a.......................K. Kjernested
Geysir..............................................Tím. Böðvarsson
Glenboro...................................G. J. Oleson
Hayland.................................Slg. B. Helgason
Hecla...............................Jóhann K. Johnson
Hnausa..................................Gestur S. Vídal
Húsavík................................
Innisfail.............................Ófeigur Sigurðsson
Kandahar........................-........S. S. Anderson
Keewatin............................... Sigm. Björnsson
Langruth.........................................Böðvar Jónsson
Leslie................................Th. Guðmundsson
Lundar.....................................D. J. Líndal
Markerville.......................... ófeigur Sigurðsson
Mozart..............-...................S. S. Anderson
Narrows....................................S. Sigfússon
Oak Point.............................. Mrs. L. S. Taylor
Oakview...................................S. Sigfússon
Otto......................................Björn Hördai
Piney....................................S. S. Anderson
Red Deer.........................................Ófeigur Sigurðsson
Reykjavík..................................
Riverton.............................BJörn Hjörleifsson
Selkirk, Man____________Mrs. David Johnson, 216 Queen St.
Silver Bay, Man........................Hallur Hallson
Sinclair, Man........................K. J. Abrahamson
Steep Rock..................................Fred Snædal
Stony Hill.................................Björn Hördal
Tantallon...............................Árni S. Árnason
Thornhill...........................Thorst. J. Gísla§on
Víðir...................................Aug. Einarsson
Vancouver............................Mrs. Anna Harvey
Winnipegosis..................................S. Oliver
Winnipeg Beach..........................
Wynyard.................................S. S. Anderson
( BANDARÍKJUNUM:
Bantry................
Bellingham, Wash......
Hlaine, Wash..........
Cavalier and Walsh Co.
Grafton...............
Ivanhoe..............
Los Angeles, Calif....
Milton................
Minneota..............
Mountain..............
National City, Calif.
Point Roberts, Wash...
Seattle, Wash.........
Upham............
......E. J. Breiðfjörð
Mrs. John W. Johnson
...Magnús Thordarson
................Mrs. E. Eastman
.............Miss C. V. Dalmann
...............,....S. Goodman
.............Miss C. V. Dalmann
...............Th. Thorfinnseon
...John S. Laxdal, 736 E 24th St
..................Ásta Norman
J. J. Middal, 6723—21st Ave. N. W.
.................E. J. Breiðfjörð
The Viking Press Ltd.
Winnipeg Manitoba
KAPTEINN LYTTELTON: RÁÐHERRA VESTUR-
ASÍU MALA BRETA
Kapteinn Oliver Lyttelton, nýlega skipaður ráðherra
Vestur-Asíu mála Breta, hitti blaðamenn í Cairo í Egypta-
landi og er að skýra fyrir þeim skyldur sínar. Mynd þessi
sýnir Kaptein Lyttelton með Sir Miles Lampson, brezka %
sendiherranum í Egyptalandi í garði sendiherrans í Cairo.
Rússnesku vinir mínir, í tólf
langa mánuði, sættu enskir
menn og enskar konur hinum
ægilegustu loftárásum frá Naz-
istúm, og báru í raun og veru
sigur . úr býtum. Aldrei var
hopað á hæli eða efast um að
réttur málstaður mundi sigra
að lokum. Samfelda 9 mán-
uði dundi samfelt eldregn yfir
Lundúnaborg og aðrar stærstu
borgir landsins; smærri borgir
og þorp fengu einnig bróður-
hluta.
Aldrei bilaði hreysti og hug-
prýði ensku þjóðarinnar í þessu
voðalega steypiregni elds og
brennisteins; hún fetaði í fót-
spor hins fræga varnarliðs í
Madrid á Spáni með herópinu
“rui pasaran”.
Með stolti blandinni ánægju
sjáum vér sömu eldheitu föður-
landsástina og fórnfýsina með-
al rússneskra þegna.
Hin óskelfda mótspyrna yð-
ar, og hugrekki í baráttunni
um hvern einasta þumlung
yðar dýrmæta föðurlands, og
hin miskunarlausa eyðileggíng
allra verðmæta, í stað þess að
láta þau af höndum, hin ein-
beitta staða yðar gegn ofur-
afli hinna æðandi sviftibylgja,
blæs oss, og öllum lýð allra
landa, nýrri von í brjósti.
í þrotlausum spenningi fylgj-
umst vér með hverri sókn og
vörn yðar órofnu fylkingaraða;
allur heimurinn dáist að snild-
inni, þekkingunni og seiglunni,
sem nú er að ósanna trúna á
sigursæld Þjóðverja á landi,
eins og vér gerðum fyrir
skömmu í loftinu.
Ibúar Moskva, Leningrad,
Kiev og Minsk, menn konur og
börn í hverju þorpi og þverjum
bæ hins volduga og viðlenda
Rússlands, berjast í trúnni á
hina rússnesku arfleifð, og í
þeirri trú mun þjóðin sigra að
lokum.
Á fyrstu dögum þessa hildar-
leiks, lét eg í ljósi í heyranda
hljóði, óbifandi trú mína á
mótstöðuafl yðar; sú trú er ó-
hagganleg; hún byggist á yðar
siðferðislega þreki, yðar þjóð-
félagslegu og vísindalegu af-
rekum.
Enskri alþýðu er ljóst hverju
þér hafið komið í framkvæmd
á liðnum árum, sömuleiðis
hverja hetjudáð þér sýnið nú á
yfirstandandi tima; húnYís því
á fætur í samtaks hrifningu og
heilsar yður sem hugrökkum
bandamanni.
Vér erum stoltir af yður; for-
lög vor eru tengd saman um há-
leitt markmið; bak við oss eru
sláandi hjörtu og vaknandi
- NAFNSPJÖLD -
Dr. M. B. Halldorson
401 Boyd Bldg.
Skrifstofusltni: 23 674
Stundar sérstaklega lungnasjúk-
dóma.
Er að finna á skrifstoíu kl. 10—12
f. h. og 2—6 e. h.
Heimili: 46 Álloway Ave.
Talsimi 33158
Office Phone
87 293
Res. Phone
72 409
Dr. L. A. Sigurdson
109 MEDICAL ARTS BUILDING
Office Hours:
12—1
4 p.M.—6 P.M.
AND BY APPOINTMENT
Dr. S. J. Jóhannesson
215 RUBY ST.
Beint suður af Banning
Talsimi 30 877
Viðtalstími kl. 3—5 e.h.
J. J. Swanson & Co. Ltd.
REALTORS
Rental, Insurance and Financial
Agents
Sími: 26 821
308 ÁVENUE BLDG.—Winnipeg
vonir miljóna manna um allan
heim.
Dimmir dagar eru að öllum
líkindum framundan, en hvor-
ugur aðili mun hika eða hopa á
hæli.
Vér skulum mæta öllum
þrengingum með óbifandi hug-
rekki. Vér ábyrgjumst kunn-
áttu og hagleik verkalýðsins,
hreysti og hugprýði bardaga-
mannsins og framleiðslu áhuga
fjöldans; það bræðraband inn-
siglast með fórnfýsi hinna lif-
andi og blóði fallinna ástvina
og vandamanna.
Þeir dagar munu koma, er
vér allir sameinaðir förum sig-
urför yfir meginlandið, ekki
sem kúgarar, heldur sem frels-
arar.
Að lokum, þegar blær frels-!
isins sveipar Evrópu í faðm i
sinn, líkt og úthafs andvari,j
skulum vér í sameiningu end-j
urtaka þessi orð hins mikla
Pushkin yðar:
“The heavy-hanging chains
will fall. The walls will
crumble at the word and
freedom greet you in the
light, and brothers give you
back the sword.”
Við grafir hinna föllnu — á
sundurtættu landi hinna lif-
andi manna, munum vér standa
og vígjast til framkvæmda og
athafna sem meðlimir voldugs
jafnaðarmannaríkis, þar sem
styrjaldir og arðrán er óþekt
fyrirbrigði, þar sem siðferðis-
legt afl mun stjórna allri fram-
leiðslu með aðstoð vísindanna, j
þar serri misskifting auðæf-
anna er ekki lengur óttaefni
uppvaxandi æskulýðs, þar sem
sönn menning opnar öllum j
jafnt, öll sín nægtabúr, þar
sem hulið vald æðstu manna í
efstu stöðum mun auðga og
blessa hið sameiginlega þjóð-
félag, umlykjandi öll tungu-
mál og allar þjóðir jarðarinnar.
—Þýtt úr ensku.
Jónbjörn Gíslason
DR. A. V. JOHNSON
DENTIST
506 Somerset Bldg.
Oífice 88 124
Res. 27 702
eigum varla kost á að greina
þau hvort frá öðru. Það var
oft sagt, “Þolinmæði þrautir
allar vinnur” eða þá: “Hann
eða hún ber það alt með þögn
og þolinmæði”.
Vér finnum fljótt að það er
eðli þagnar að vera þolinmóð
og þolinmæði að vera þögull.
Svo er að finna heila keðju af
orðum sem koma inn á þessi
hugtök. Til dæmis getum vér
sagt að hógværðin sé þolinmóð
og þolinmæði sé hógvær og þá
er umburðarlyndi og langlund-
argeð og stilling, jafnvægi og
rósemi. -Og þannig má lengi
halda áfram að rifja upp orð-
tæki sem tákna eitt og sama
hugtak á voru merkilega móð-
urmáli. Eitt vorra mætu skálda
kveður svo að orði:
“Og sittu heil með hópinn þinn
og hnyptu við þeim ungu.
Þeir ættu að hirða um arfinn
sinn
sem erfa þessa tungu.
Gæti það ekki verið bæði
gagn og gaman fyrir oss vest-
ur-lslendinga að hirða ögn um
andlega arfinn sem feðra tunga
vor felur í sér? M. I.
AUÐLEGÐ ÍSLENZKRAR
TUNGU
Ef vér viljjum athuga auð-|
legð móðurmálsins (íslenzkrar
tungu), þá má auðvitað gera
það á ýmsa vegu. Svo sem
með því að rannsaka fornar og
nýjar bókmentir, en vér getum
líka gert þetta á mjög svo ein-
faldan og auðveldan hátt. Þótt
vér séum einir á ferð eða með
því að hugleiða við vinnu vora.
Hve mörg orð má finna yfir
eitt hugtak, eða þá svo hiið-
stæð og skyld hugtök og vér
Thorvaldson & Eggertson
LögfrœOingar
300 NANTON BLDG.
Talsíml 97 024
M. HJALTASON, M.D.
ALMENNAR LÆKNINGAR
Sérgrein: Taugasjúkdómar
Lsetur úti meðöl í viðlögum
Viðtalstímar: kl. 2—4 e. h.
7—8 að kveldinu
Sími 80 857
643 Toronto St.
A. S. BARDAL
selur líkkistur og annast um útfar-
ir. Allur útbúnaður sá besti.
Ennfremur selur hann allskonar
minnisvarSa og legsteina.
843 SHERBROOKE ST.
Phone 86 607 WINNIPEG
Rovatzos Floral Shop
253 Notre Dame Ave., Phone 27 989
Presh Cut Plowers Daily.
Plants in Season
We specialize in Wedding & Concert
Bouquets & Funeral Designs
Icelandic spoken
Dr. P. H. T. Thorlakson
205 Medical Arts Bldg.
Cor. Graham & Kennedy Sts.
Phone 22 866
Res. 114 Greníell Blvd.
Phone 62 200
THE WATCH SHOP
THORLAKSON & BALDWIN
Dlamomd and Wedding Rtngs
Agent for Bulova Watches
Marriage Licenses Issued
699 SARGENT AVE
»;<iuuuuuuciumuuuiciuuiiiiiiiic]iiiiiiiiiiuc]uuuuuuciuuuuu£
j INSURANCE AT . . .
REDUCED RATES
Fire and Automobile |
| STRONG INDEPENDENT |
COMPANIES
j McFadyen |
| Company Limited 1
| 362 Main St. Winnipeg |
Dial 93 444
cmmuiliciuuuuuuciuuuuiiioiumiiuiciuuuuuuciuuuuuucli
Ræningi kom þjótandi inn í
veitingastofu, skaut til hægri
og vinstri og hrópaði: Hypjið
þið ykkur út, bölvaðir skíthæl-
arnir ykkar.
Allir gestirnir flýðu eins og
örskor — allir nema einn Eng-
lendingur, sem sat rólegur og
drakk úr glasi sínu.
— Jæja, sagði ræninginn og
sveiflaði rjúkandi skambyss-
unni.
— Jæja sagði Englendingur-
inn, þeir voru sannarlega nokk-
uð margir, fanst yður það ekki?
• * •
— Hvað er verra en að kaupa
gjöf handa stúlku, sem vantar
ekkert?
— Kaupa gjöf handa stúlku,
sem vantar alt.
• • •
Læknirinn. Þér hafið vatn á
milli liða í hnénu, skipstjóri.
Skipstjórinn: Vatn! Það hlýt-
ur að vera whisky. Eg hefi
aldrie á æfi minni drukkið
vatn.
Taugaveikluð kona fór beint
til læknisins þegar hún var
komin um borð í strandferða-
skipið og sagði: Ef mér skyldi
líða illa, viljið þér þá segja mér,
hvað eg á að gera.
Læknirinn: Það þarf ekki.
Þér gerið það.
• • •
— Kínverjar geta matbúið
hrisgrjón á allan mögulegan
hátt.
— Það getur konan mín líka.
Hún hefir bara ekki fundið
þann rétta ennþá.
m
IT LIKES YOU